Heimskringla - 19.05.1894, Blaðsíða 1
WINNIPEGr, MAN., 19. MAl 1894.
» *
VIII. ÁR.
LÍFSÁBYRGÐARFÉLAG.
Aðalból - - Winnipeg - - Manitoba.
J. H. BROCK FORSTÖBUMAÐUR.
Uppborgaður höfuðstóll.... $ 140.014.22
Varasjóður................ S 54.720.00
Lífsábyrgð i gildi við lok
tyrsta ársins.......... 82.268.000
Lifsábyrgð veitt með hvaða helzt
nýmóðins fyrirkomulagi sem vill.
Kaupið ábyrgð í The Great West
og tryggið yður á þann veg þann
hagnað, er háir vextir af peningum fé-
lagsins veita.
Þetta jjelag dregur ekki Jje burt úr
fylkinu.
K. S. Thordarson - - agent.
457 Main Str., Winnipeg.
FRÉTTIR.
DAGrBÓK.
LAUGARDAG 12. MAÍ.
Fregn frá Venezuela í Suður-Ame-
ríku segir að í lok Aprílmán. síðastl.
hafi þar komið ógurlegur jarðskjálfti
og haíi orðið þúsundum mans að bana;
ef til vill hafa 10,000 manna farist.
Dó útlitið sé dauflegt fyrir Coxey
sjálfum og hans fámenna flokki i Was-
hington, halda hinar ýmsu herdeildir
hans áfram i áttina til höfuðborgar-
innar. Iowa-deildin er á siglingu nið-
ur eftir Des Moines-ánni og Misisippi
á ýmis konar bátflekum, er “hermenn-
irnir” fengu í Des Moines. í Colorado
eru 500 eða fleiri á austurleið á vagn-
lest er þeir stálu, og lögregluþjónarn-
ir fara hamförum bæði á undan þeim
og eftír og setla sór að höndla þá ein-
hvern tima. I gærkveldi lenti í bardaga
milli Coxey-sinna og lögreglunnar vest-
ur í Yakiinadal i Washington ríki.
I riistum fornborgarinnar Eretria
á Grikklandi eru fundnar menjar af
bæði musteri og leikhúsi.
Kólera er að útbreiðast á Rússlandi.
1000 kolanámamenn í Nova Scotia
gerðu verkfall í gær. Heimtuðu liærra
kaup.
Bandaríkjastjórn og Þýzkalands-
stjórn eru samdóma í því, að þær hafi
ekki haft nema fyrirhöfn og kostnað
af afskiftum Samoa málanna. Það er
þess vegna ekki ómögulegt, að Bretar
fái að verða einir um hituna fram-
vegis, ef þeir, sem sennilegt er, vilja
nota eyjarnar.
Að frádregnum öllum kostnaði voru
tekjur Montreal-banka fél. á síðastl.
fjárhagsári bankans 81.31B.289.80. Er
það nálega 11% vextir af uppborguð-
um höfuðstól bankans.
Fyrir Washington-þinginu er tillaga
að skipa 6 manna nefnd til að
rannsaka liver ástæða sé til iðnaðar
°S verzlunardoðans, og benda á ráð til
a'~' afstýra vandræðunum. Nefndina
e,Sa að skipa 3 menn úr hverri þing-
deild.
Tillaga er fyrir efri deild Wasbing-
tons þingsins um að Wilson-tolllögin
skuli ekki hafa gildi að því er snertir
canadisk viðskifti, fyr eu forseti gefur
leyfi til þess. Ln leyfi tii þess á liann
ekki að fa fyr en nef,Kj Bandaríkja
og Canada-manna hefir komið sér sam-
an um báðum haghvsema vörutolla.
Coxey hefir verið knúður til að
flytja “herbúðir” sínar út fyrir tak-
mörk Washington-borgar.
MANUDAG, 14- APRÍL.
Ottawa-fregnii' segja htefu]ausf að
búið só að veita govcrnors-ernbættið í
Manitoba; það verði okki .veitt fyrri en
eftir að þingi er slitið.
Kyrkjan mikla í Brooklyn. N. Y.,
sem Dr. De Witt Talmage prédikar í,
brann til kaldra kola í gser. Talmage
sjálfur var hætt kominn; var inn i
kyrkjunni ásamt 200 safnaðarlimum
begar eldurinn kom upp. Er þetta í
triðja skipti að kyrkja þessi brennur.
Bignatjónið nemur 8325 000. Nálægt
kyrkjunni var hótel mikið, er einnig
hrann. Eignatjón á því um $600 000.
Derby plötu-reyktóbak
selst ákaflega vel og
sala þess fer sívaxandi.
Torpedo-skipi, er lieitir Eirioson
(eftir Jóni Eiríkssyni sæuska) var
hleypt af stokkunum í Dubuque, Iowa
(Dubuque er á vesturbakka Mississippi-
fljótsins) á laugardaginn. Er það fyrsta
Torpedo-skipið sem smíðað hefir verið
svo langt inni í landi.
Bandaríkjaherskipið “Chicago” er
á skemtiferð meðfram ströndum Eng-
lands og hefir sjóflotastjórn Breta á-
kveðið að halda yfirmönnunum á skip-
inu veizlu mikla í Lundúnum á af-
mælisdag drotningarinnar, á fimtudag-
inn kemur.
5422 nautgripir voru sendir til Evr-
ópu frá Montreal í síðastl. viku.
Forseti Argentínu-lýðveldisins neit-
ar að viðurkenna tillögur þingsins er
fara fram á að gefa út ný ríkisskulda-
bréf til þess að lina þrautir alþýðu í
harðærinu. — Argentína er alt að því
gjaldþrota nú, ,svo miklar eru rikis-
skuldirnar.
ÞRIÐJUDAG 15. MAÍ.
í gær var bundin endi á öll við-
skifti. í bráðina, Brasilíu og Portúgal
stjórna, og erindreki Brasilíu í Lissabon
kallaður heim. Orsökin er, að Portú-
gal stjórn neitar að framselja upp-
reistarmenn Brasilíu, er flúðu á portú-
gisk herskip.
16 Lappar, karlar, konur og börn,
komu til New York í gær og þóttu
einkennilegar manneskjur I þjóðbún-
ingi sínum. Fólk þetta er í þjónustu
Bandaríkjastjórnar. A að fara til Al-
aska og takast á hendur að hirða og
temja hreindýr á búgarðinum, sem
Bandaríkjastjórn er að stofna þar.
Verzlunarþing breskra nýlendna
verður haldið í Ottawa, Canada, í
næstkomandi Júnímán. Tveir sendi-
menn þangað eru nú komnir af stað
frá Höfða-þorpi í Suður-Afríku.
Flokkur af Coxey-sinnum liefir
setið í St. Paul nokkra undanfarna
daga, en fóru í dag af stað niður,
Mississippi, áleiðis til Washington.
Lestaferð á járnbrautum í aust-
urríkjum Bandaríkjanna er alt að því
ómöguleg vegna kola eklunnar. Lest-
um hefir verið fækkað að mun á
flestum brautuin þessvegna. — í Cleve-
land, Ohio, stendur nú yfir fundur
mikill til að reyna að koma á sættum
milli námaeigenda og námamanna.
Hálf sjöunda vika er nú liðin
síðan efrideild Washington þingsins
byrjaði að ræða toll-laga frumvarp
Wilsons. Þrjú til fimm atriði kláruð
er meðal dagsverkið.
Repúblikar í efri deild hóldu flokks-
fund í gærkvöldi og afréðu að berjast
gegn toll-lögunum atriði fyrir atriði.
Franskur gieifi, sem um tíma
hefir verið í lialdi í Quebee, kærður
fyrir að hafa stolið peningum frá
konu sinni í Fralcklandi, er hann hefir
yfirgefíð, var í gær framseldur Frökk-
um og fluttur austur yfir liafið.
MIÐVIKUDAG, 16. MAÍ.
Um 190 hús eyðilögöust af eldi
í Boston í gær, og eru 1,000 fjöl-
skyldur þarafleiðaridi húsviltar, því
húsin öll voru íbúðarhús. Eignatjón
tahð um SJ milj.
Um 300 manns biðu nýlega bana
við járnbrautarslys í 'Mið-Ameríku, i
San Salvador-ríkinu, segja fróttir frá
Panama.
Oeirðir allskonar og smá-orustur
eru tíðar i Nýfundnalandi, út af póli-
tisku klækjamálunum.
Bólusóttin æðir um Mexico.
Fellibylur sleit’í gær stykki mik-
ið úr Northern Pacific-sporinu i Minne-
sota.
FIMTUDAG, 17. Maí.
Ofsastormur og steyjiiregn æddi
yfir mikinn hluta af Minnesota í gær
og varð 5 mönnum að bana. Eigna-
tjón, er leiðir af storminutn, er motið á
SJ millíón.
Tilraun hefir verið gerð að kaupa
nokkra af efri deildar þingmönnum i
Washington til að greiða atkvæði móti
tolllagafrumvarpinu.
Braziliu-stjórnin beið ósigur í gær í
orustu við uppreistarmenn. I orust-
unni féllu 140 manns.
Nokkrir egyfskir auðmcnn hafa nú
ákveðið að höfða sakamál gegn Lesseps
gamla í Paris fjwir fjárdrátt o. þ. h.,
Þegar Suez-skurðurinn var grafinn. Er
Þar búist við engu hreinlegra máli en
þrí um Panama-skurðinn.
Saktin “Valkyrju”, er síðastliðið
haust þreytti kappsigling á New Yorlt
höfn, fórzt nýloga við strendur Afríku
með allri skipshöfn. Var orðin oign
ítalskra manna.
FÖSTUDAG, 18. Maí.
Timburtollurinn kom til umræðu
aftur á sambandsþingi í gær og tilkynti
þá fjármálastjórinn, að tollurinn skyldi
einnig tekinn af borðvið, sem heflaður
er annarsvegar. Martin fór fram á, að
tollurinn væri einnig tekinn af hefluð-
um við beggja megin og plægðum, en sú
tilaga var feld.
Lestagangur á Grand Trunk braut-
unum í Ontario er nærri ómögulegur
vegna kolaleysis. Verkstæðum hefir og
orðið að loka af sömu ástæðum.
Washington-þingið hefir skipað
nefnd til að rannsaka kærurnar um
mútu-tilraunir viðefri deildarþingmenn.
Enn fremur á að rannsaka þá kæru, að
sykurgerðarfél. Bandaríkja hafi lagt
millíón í kosningasjóð demókrata fyrir
síðustu kosningar.
Jarðskjálfti gerði vart við sig á
Skotlandi í gær.
Stórmenni ríkiskyrkjunnar á Eng-
landi afbiðja aðskilnað kyrkjunuar I
Wales frá þjóðkyrkju heildinni.
í gær brann aftur $600,000 virði af
eignum í Boston.
íslands-fréttir.
Eftir Áustra.
21. Marz.
Snjójlóð. Hinn 16. Febr. kom snjó-
flóð á bæinn á Höskuldsstöðum í Breið-
dal, sem lenti mest á bæ bóndans Ein-
ars Gunnlögssonar, er var nær læk
þeim er flóðið kom úr.
Fjós er efst húsa með dyrum upp
að fjalli og vatnshús til hliðar, einnig
með útidyrum, og úr þeim liggja beinar
dyr fram á hlað. Snjóflóðið braut nið-
ur vatnshúsið og fór fram um allan bæ-
inn, svo að hálffyltust göngin, eldhús,
búr og baðstofudyr, svo ekki varð kom-
izt úr baðstofunni nema út um glugga.
Timburhús er neðst í þorpinu, þrí-
loftað, og braut flóðið tvo glugga á mið-
loftinu, sem vissu að fjalli, og hálffj'lti
lítið herbergi, er var við annan glugg-
ann. Kjallarinn nærri fylltist af vatni.
F'jósdj'rnar brotnuðu upp og fylltist
fjósið í miðja súð af snjó og vatni. í
fjósinu voru tvær kýr, tarfur og kálfur
nýalin, sem alt náðist lifandi nema
kálfurinn. Einnig braut snjoflóðið inn
töðuhlöðu með á að gizka tuttugu hest-
um af töðu í, hérumbil helmingurinn
náðist þiír af henni, en meiri og rúinni
skemdir.
Yfir alt túnið fyrir ofan bæinn, þar
sem sést fj’iir flóðinu, sem er víða svo
þj'kt á. liefir borið grjót og sand, en þó
mun það vera verkandi.
Fólk var alt á hentugum stað, svo
það ,'sakaði ekki.
I bæ Hóseasar kom að eins nokkur
snjókrapi í fjósið, svo'nautin stóðu rtim
lega í kvið í því.
Snjóflóðið hafði tekið sig upp á svo-
kallaöri Hólamýri í fjallinu, serner stór,
en þó með litlum lialla, en hallar öll að
þröngu gili, sem endar fáa faðma frá
bænum. Hafði komiö svo mikill krapi
í mýrinni unz alt fór á stað.
Tveir menn urðu úti af sunfianpósti
á Eskifjarðarheiði. er hann fór ofan á
Eskifjörð með póstinn. Fengu blind-
bil, fíppgáfust og gróf jióstur þá í fönn,
en voru dauðir er þeir fundust.
Þann 10. þ. m. héldu Good templar
á Fjarðaröldu almennan málfund. Voru
fjrrst fluttir heitir og áhugamiklir fyrir-
lestrar af Þorsteiui Skaptasj’ni og Ant-
oni Sigurðssyni um binkindísmálið og
síðan tfiálið töluvert rætt á fundinum.
g
Gufuskipið “Vaagen” kom til Aust-
tjarða um miðjan þ. m. með timburfarm
frá Mandal.
Með “\aagen fréttist, að herra
Otto Wathne hefði keypt gufuskip, 418
smálestir, að eins 4 ára gamalt, og j-fir-
hysgt. Skipið heitir “Egill” (Skalla-
grímsson) og á að ganga til vöruflutn-
inga til og frá íslandi í sumar. og er
bráðum væntanlegt liingað og fer þá
norður á ýmsar hafnir. A “Agli” verð-
ur valmennið Tönnes Wathne skip-
stjóri.
Amtmannsembættið norðan og aust-
an veitt sýslumanni Lárusi Blöndal.
Emirit-prestur, séra Jakob Bene-
diktsson á Glaumbæ, sæmdur riddara-
krossi dannebrogsorðunnar, og óðals-
bóndi Jónas Gunnlögsson á Þrastar-
hóli dafinebrogsmannskrossi.
30. Marz.
Þann 27. þ. m. kom hingað gufu-
skipið “Egill”, skipstj. Tönnes Watline,
frá Skotlandi, en þangað hafði það kom-
ið frá Höfn.
“Egill hefir töluvert af Vörum hing
að og á Suðurfirðinaog til Norðurlands-
ins.
Skipið er nýtt og mjög vandað, hef-
ir 2 þilför, og ágætt farþegjarúm og
gengur 8J—9J mílu á “vakt” (4 tímar).
“Egill” fer eftir 4 daga héðan norð-
ur með vörur og farþegja, og kemur viö
á Vopnafirði, Húsavík, Akureyri og
Siglufírði, en í bakaleiðinni einungis á
Raufarhöfn.
O. Wathne hefir nú og keypt lítinn
gufubát, er hann mun ætla á Lagar-
fljót.
Það mun mikið að þakka góðum
tillögum O. Wathne, að hin danska
vitastjórn hefir gefið vita til Dalatanga
hér við Seyðisf jörð, sem sjálfsagt hefir
mjög mikla þýðingu fyrir alt Austur-
land.
O, Wathne er orðinn “Assurance
Agent” Frakka og Dana á öllu íslandi
með 4000 kr. föstum árslaunum.
. Nú er hér sólbráð og sunnanvindur
á degi hver jum.
7. Apríl.
Þann 30. f. m. kom strandferða-
skipið “Thyra” og fór aftur norður um
land um morguninn þ. 81.
Með skipinu voru, kaupm. Popp
frá Sauðárkrók, og Valdimar Davíðsson
Sveinn Brynjólfsson og Sigurður Jó-
hannesson frá Winnipeg o. fl.
Með skipinu tóku sér far héðan til
Akurej’rar, skólakennari Arni Jóhanns
son með konu sinni og syni, og skó-
smiður Anton Sigurðsson.
Þann 3. þ. m. fór gufuskipið ‘Egill”
héðan til Vopnafjarðar og ýmsra hafna
á norðurlandi og nokkrir farþegar með
honum.
Vöruskipið “Skírnir”, skipstjóri
Andersen, kom hingað 5. þ. m. alfermt
til V. T. Thostrups verzlunar.
Þessa dagana hefir hér verið ös eins
og mest í Kauptíð af Héraðsmönnum,
sem flestir hafa verið að sækja pöntun-
arfélagsvörur Iiingað.
Á annan í páskum andaðist kona
séra Jóns Halldórssonar á Skeggjastöð-
um, Ragnheiður dóttir séra Daníels
Halldórssonar á Hólmum, eftir 23
vikna þunga legu.
Frú Ragnheiður var síðari kona
séra Jóns, hin ástríkasta og elskuleg í
viðmóti og vel látin af öllum.
Eftir Stefnih.
Akureyri 14. Marz.
Unglingmuiönr vtirð úli 4. f. m., Jón-
as Benediktsson að nafni, frá Einars-
stöðum í Rej'kjadal. Var liann á ferð
með öðrum pilti yfir að YTstafelli í Kinn
og ætlaði að vera þar urn tíma að
mentast hjá Sigurði bónda .Jónssyni.
Þegar þeir voru komnir upp á Kinnar-
fellið. stall á þá ofsnlegt dimmviður
af vestri. Hröktust þeir þá austur af
fellinu og austur j-fir Skjálfandafljót,
þar féll Jónas niður örendur, líkast
sem liann hefði fengið slag; hafði hann
í bjrrjun veðursins mist höfuðfat sitt.
Hinn pilturinn náði bæjum um morg.
uninn eftir mjög þrekaður.
Jónas heitinn var greindur og efni-
legur piltur.
31. Marz.
Sýslanefnd Skagfirðinga hefir að
sögn ákveðið að taka 20 000 kr. lán til
að koma á stofn tóvinnuvélum ; er svo
til ætlast, að SigurðurÓIafsson á Hellu-
landi í Hegranesi taki að sér stjórn vél-
anna. Á hann að sigla i ár og læra að
vinna á vélarnar, og koma svo með
þær og húsið næsta vor. Vélarnar á
að setja á Sauðá við Sauðárkrók.
Ákveðið er að brúa Austurvötnin
nólægt Ási, en svifferjuna, sem á þeim
hefir verið, á að flytja upp á póstleiðina.
Skagfirðingar ætla að halda i vor
almenna skoðun á hestum og sauðum,
og eru sérstakir menn kosnir til skoð-
unarinnar.
Svo er til ætlast, að haldið verði á-
fram með öldubrjótinn á Sauðárkróks-
höfn, sem talað var um á sýslufundi í
fj-rra.
Tiðarfar. Þessi mánuður bj-rjaði
með snjóburðarhríðum, er liéldust ná-
lægt viku ; þá blotaði ofurlítið og gerði
alveg jarölaust fyrir nllar skepnur. Síð-
an bj rjaði aftur að snjóa, en vanalega
var snjóburður ekki mikill og frost oft-
ast nær mjög lítið. Hélzt þessi tíð þar
til á pólmasunnudag að brá til þíðu, er
hefir haldizt lengstaf siðan. Er nú
koinin næg jörð víðas; hvar, enda mun
ekki af því veita, því hejrtæpir eru
margir bændur orðnir nú ; einkum er
kvartað um lieyskort í Höfðahverfi og
framarlega i F'njóskadal. Samt er von-
andi, ef þessi bati helst framvegis, að
menn komi skepnum sinum allvel af,
því margir eru vel byrgir af heyi.
Ti'o menn kól nýlega til stórskaða,
Bjarna Bjarnarson frá Grenivík í Höfða
hverfi og vinnumaim frá sama bæ. Þeir
voru á ferð á Flateyjardalsheiði, náðu
ekki til bæja sökuin óveðurs, og urðu
að hggja úti.
16. Apríl.
Kerðameun. Með Thyru kom hing-
frá Höfn kaupmaður Valdimar Dav-
íðsson, er fer héðan aftur til baka
með Thyru er hún kemur að sunnan;
enn fremur S. J. Jóhannesson (ætti
aður úr Húnavatnssýslu), sem leng-
hefir dvalið í Winnipeg og komizt
þar í góð efni; hann kom nú skemti-
ferð til að hitta forna vini og kunn-
ingja. Ymsir fleiri farþegjar voru og
með skipinu.
Héðan sigldi með “Agli” Skúli
Skúlason, sem þingið síðasta veitti
styrk til að læra mj-ndasmiði, og
ætlar hann nú að komast á verk-
stæði í Kaupmannahöfn.
Tíðarfar hefir verið einstaklega
blítt og stillt það sem af er þessum
mánuði.
Afli hefir verið nú nokkur inn-
arlega á Eyjafíröi.
Too agenta frá Manitobastfórn eig-
um við »ð hafa hér í sumar. Magnús
Paulson og Sigtrj-gg Jónasson.
Með komu gufuskipanna var korn-
vara hjá kaupmönnum á Akurej-ri
sett niður í: rúgur 7J eyri, rúgmjöl
með poka 8£ eyri, bankabjrgg 10 og
11 a. eftir gæðum, baunir 11. a. og
hrísgrjón 12 a. pd. Svo mun og sykur
hafa lækkað að minnsta kosti niður
í 35 a. og róltóbak í 1,50 a. Um
aðrar prisabreytingar höfum vér ekki
heyTt getið.
Eftir Þjódólfi.
6. Apríl.
Fólksjtutningar til Ameríku héðan
af landi verða að líkindum ekki mikl-
ir þetta ár. Það er ekki svo glæsilegt
að frétta af ástandinu þar vestra. Einn
landi í Manitoba skrifar t. d. til kunn-
ingja sins hér á þessa leið . “Eg hef
varla rænu á því að skrifa neinum
heim núna, þegar alt gengur eins illa
og nú á þessum tímum; hér um bil
engin vinna fengizt í alt sumar og það
sem af er vetrinum. Allir kvarta og
bera sig illa, og atvinnulejrsið um alt
landið svo mikið, að ég hef aldrei heyrt
né sóð neitt þvílíkt. Héðan fór mesbi
sægur af fólki til Norðurálfunnar í
sumar, af því atvinnulejrsiö var svo
alment, og enn er enginn vottur um
neina breyting til hins betra.--------
Eg vil því eigi ráða neinum að fljrtja
sig hingað til álfu að heiman, og tel
það vitlej-su, því hér tekur ekkert ann-
að við en sultur og eymd.”
í bréfi úr Norður-Þingeyjarsýslu
til ritstjóra þessa blaðs. dags. 28. Jan
þ. á., segir svo :
— — — “Eg get sagt yður það
héðan með rökum, að Sigurður Krist-
ófersson narraði tvo bræður sína, Sig-
urjón og Pétur, báða mjög vel virta
dugnaðar- og efnamenn í Mývatnssveít
íneð sér til Ameríku með konu og börn-
um. — Nú hafa merkir menn eftir úr
bréfum frá þeiin fyrri, að hann hafi
engan blett fundið í Ameriku sem hann
vilji festa jrndi við, eftir langa leit, en
þeim siðari, að svo só honurn gengið,
að hann eigi ekki meira eftir af öllum
eigum sínum, en gripsvirði, en konan,
sem hér var hin hraustasta, liggur veik.
Ekki virðast þær svo girnilegar
þessar lýsingar af lifinu vestra, að þær
ættu að hvetja landa vora að fljrtja
héðan að þessu sinni.
Hinn 18. f. m. andaðist að heimili
sínu Bjgðarholti í Sandvíkurhreppi
Gunnar bóndi Bjarnason Jónssonar
Bjarnasonar frá Grímsfjósum í Stokks-
ej-rarhreppi, 56 ára að aldri.
19. s. m. lézt merkiskonan Guðný
Jónsdóttir á Ytra-Hólmi á Akranesi,
kona Póturs Ottesen. Hún var 76 ára
að aldri.
Látinn er hér í bænum Nikulás Sig-
valdason, faðir séra Ingvars í Gaul-
verjabæ.
Hvalrekar. Tvo hvali hefir rekið i
Hornafirði, annan 16. f. m. 30 álna
langan og hinn 20 s. m. 34 álna. og
var hvorttveggja eign Bjarnaneskj-rkju.
Injluenzatcikin mun nú hér um bil
um garð gengin hór í bænum eftir
rúman mánuð, og svo mun einnig
vera í sjóplássunum hér við sunnau-
verðan Faxaflóa.
13. Apríl.
Hinn 2. þ. m. andaðist að Velli í
Ilvolhrepp Hermanníus Elías Johnson
fj-rriim sýslumaður Rangvellinga.Hann
var fæddur á ísafiröi 17. des. 1825.
7. þ. m. andaðist hér í bænnm Guð-
ný Gísladóttir Möllor ekkja Hans Möl-
lers kaupmanns í Rejrkjavík 86 ára
gömul.
5. þ. m. andaðist Ivristin Eggerts-
dóttir (stúdents Magnússonar Waage’s
hér í bænum og húsfrúr Kristinar Sig-
ui'ðardóttur stúdents á Stóra-Hrauni)
kona Helga verzlunarstjóra Jónssonar í
Borgarnesi, góð kona og vel látin.
NR. 20.
30. f. m. andaðist í Skálholti í Bysk
upstungum Pé’.i Ejrjólfsson gullsmiður,
er lengi átti neima hér í bænum, og var
um hríð veitingamaður á Gejrsi, en áð-
ur útgefandi “Tímans” og “íslendings
yngra”.
2. febr. andaðist t»ð Réttarholti í
Skagafirði Helga Þorvaldsdóttir ekkja
Ara knnselliráðs Arasonar á Fugumýri.
í f. m. andaðist Magnús Sæmunds-
son óðalsbóndi á Búrfelli í Grimsnesi og
litlu fyrr kona hans Guðrún Gisladóttir
frá Kröggólfsstöðum Ejrjólfssonar bæði
hnigin á efra aldur.
Látinn er úr heilabólgu Jóhann
Sæmundsson ungur og efnilegur bóndi
í Lækjarbotnum á Landi.
Slysfarir. 4. febr. varð úti unglings
piltur frá Gestsstöðum í Steingrímsfirði.
28. f. m. drukknaði í Norðurá skammt
frá Arnarholti Árni Jónsson frá Flóða-
tanga—Stykkishólmspóstur frá Arnar-
holti—; hröklaðist í vök þar í ánni.
Nafni hans Arni Gíslason vestanpóstur
fór á undan jríir ána og komst klaklaust
yfir.
Oeysir og Strokkur voru fjTÍr fullt
og alt seldir 9. þ. m. írskum manni Ja-
mes Craig (yngra) í Belfast fjTÍr 3000
kr. I kaupinu fylgja og hverirnir
‘ Blesi” og “Litli Geysir” eða svonefnd
“Óþerrihola” ásamt dálitlu svæði kring
um hverina, alls um 6 500 ferh. faðmar.
Ábúandinn á Haukadal hefir áskilið sér
rétt til að hafa umsjón hveranna, gegn
hæfilegri þóknun, þá < r eigandi er ekki
viðstaddur, enn fremur forkaupsrétt að
hverunum, ef þeir verði seldir aftur.
Hann á að annast hestagæzlu fjTÍr
ferðamenn, eins og að undanförnu, því
að ekkert beitiland fylgir með í kaupinu
Seljendur hveranna : Sigurður bóndi
Pálsson á Laug og syifir hans Greipur
og Jón bændur í Haukadal verða alls
ekki ásakaðir fyrir þessa sölu, því að
þeir höfðu boðið landssjóði hverina til
kaups, en þingið vildi ekki, hefir líklega
þótt viðkunnanlegra að hverirnir lentu
í höndum útlcndinga, enda er það nú
orðið og i jáir ekki um það að fást. Það
getur vel verið, aðhinn nýi eigandi sýni
hverunum meiri sóma, en landssjóður
hefði gert, reisi þar gistihús o. s. frv.,
en talið er það mjög óvíst, af þeim er
kunnugastir eru.
Skipstrand. Aðfaranótt 7. þ. m.
strandaði á Býjaskerjum skipið “Fran-
ciske”, hlaðið salti til kaupfélagsins í
Garðinum. Mönnum varð bjargað.
Gufubáturinn “Elin” hóf hinar
reglulegu ferðir samkv. áætluninni 10.
þ. m. til Borgarness og Straumfjarðar
en hafði farið áður nokkrar aukaferðir.í
bjrrjun þ. m.
ScWurprófastur í Norður-Múlapró-
fastdæmi er sém Einar Jónsson á
Kyrkjubæ, í stað Sigurðar prófasts
Gunnarssonar,
Manntjón varð á Eyrarbakka 7. þ.
m., drukknuðu 3 menn, en 7 var bjarg-
að af Magnúsi Magnússyni I Túni á
EjTarbakka, er oftar hefir bjargað
mönnum úr lífsháska og hlotið verð-
la in fyrir. Þeir, sem drukknuðu voru t
Oddgeir Vigfússon (sýslumanns Sigurðs-
sonar Tiiorarensens) frá hæli í Ej-stra-
hrepp, Þórarinn sonur Arnbjarnar
bónda á Selfossi og Sigurður Árnason
í Mörk á Ej’rarbakka.
16. Apríl.
Hinn 21. f. m. andaðist Jakob Rós-
inkarsson óðalsbóndi í Ögri, fæddur í
Æðey 23. Júní 1854.
Aðfaranótt 8. þ. m. andaðist að
Bræðratungu i Biskupstungum ekkjan
Þuríður Pálsdóttir.
(Framh. á 4. bls.)
Við harðlífi AYER’S PILLS
Við meltingarlejsi
AYER’S PIL LS
Við gallsýki AYER’S PILLS
Við höfuðverk AYER’S PILLS
Við lifrarveiki AYER’S PILLS
Við gulu AYER’S PiLLS
Við ljstarieysi AYER’S PILLS
Við frifit AYER’S PILLS
Við köhlu AYER’S PILLS
Við hitasótt AYER’S PILLS
ilbúið af Dr. J. C. Ayer & G o., Lowell
Miiss. Selt bjá ölhun lyfsölum.
SERIIVER INNTAKA VERKAR.