Heimskringla - 04.08.1894, Side 1
NR. 31.
Heimskríngia.
WINNIPEG, MAN., 4. ÁGtJST 1894.
Minni.
Snngin a Islendingadaginn 2. Agust 1894.
/
Island.
Þú hafi girta hnjúkaland,
Þú Heklu’ og Geysis móðir,
Með eldhraunsflóð og ísaband
Og ösku’ og jötun-hlóðir,
Og kolsvört hella geysi-gin
í gljúfra feikna rönnum,
Sem aldrei hafa átt að vin
Nema’ ögn af mosa’ og hvönnum —
Og jökulfold, úr jökulkyrð
Af jeljafingrum klipin,
Þú ert vor móðir, ströng og stirð
Og stórhreinleg á svipinn.
Og þú ljær stormum þrumuróm
Og þungann mararkvæðum,
Og þú átt söngsins sólarblóm
Og sól á Bragahæðum.
Nú skin þig sumarsólin á
Og sveipar fjöllin blossum,
Og Ægir vill sig vin þinn tjá
Með votum, söltum kossum,
Og dalir hjúpast blíðum blæ,
Þær bernsku vorrar slóðir,
Og hýrt er yfir bóndabæ,
Sem blessar nafn þitt, móðir !
Hve fegin varstu, feðra storð,
Er féllu járn af höndum.
En hvað skal hálfmælt hjálparorð ?
Þitt hjarta’ er enn í böndum.
Hvert mæðutár á móður-kinn
Og myrkvi’ á svipiium bjarta,
Og harmasköp og skaði þinn,
Það sker oss inn að hjarta.
Ef hyggin ert og hugsanber,
Þinn horfna dýrgrip færðu;
Og rendu augum yfir ver
Til Ameríku og lærðu.
Við vitum nú þú veizt oss af,
, Þó við ei árlangt flnnumst,
Og við hér fyrir handan haf
Þín hjartanlega minnumst !
Kuistixn Stetansson.
Canada.
- A. - *
Þú, mikla fold, með fjöllin há,
Er fjölium öðrum gnæfa hærri,
Og breiðast flestum fjöllum stærri,
Þér tign er skrifuð enni á.
Þú, mikla fold, er laugað lætur
I lagaröldum þína fætur
Við þriggja sæva samstemmt lag.
Nú syngjum vér þér gleðibrag.
Þú. ljúfa fold, með frið og ró,
Með fiskivötnin stærri og smærri,
Með himin öllu hreinni, og tærri,
Og sléttu-breiðu bjartan sjó,
Sem úthaf, kysst af logni’ og ijóma,
En líka þakinn dýrstum blóma —
Heill þér, vor nýja fósturfold,
Með frjóa, dðkka gróðrarmold.
Þú, fold, með æsku’ og frelsi’ á kinn,
Svo full af heimsins dýrstu vonum,
Gef þínum dætrum, þínum sonum
Svo tæran hug sem himin þinn.
Þinn frelsisbikar fram oss réttu.
Ger frjótt vort starf, sem þína sléttu,
Og eflt, sem heimsins undra-tröll,
Þín ógnum þrungnu Klettafjöll!
Einaií Hjörleifsson-
Vestur-Islendingar.
Vér nú í nýju landi
Oss numið höfum byggð.
Með hlýju bróðurbandi
Sú byggðin skyldi tryggð,
Með rækt þess rótta og sanna
Og rækt við fóstur-mold,
Með 4st til allra manna
Og ást við þessa fold.
Þvi alt hið göfga og góða,
Sem gróðursett ég veit
Við yndi æsku ljóða
í okkar hjartareit.
Skyldi’ aldrei liða’ úr lundu,
En laga allan hug
Og hefja á liverri stundu
Enn hærra vængjaflug.
En sundrung öll hin illa
Á oss ei vinni svig,
Né hjáræn heimsku-villa,
Sem heldur vizku sig.
í sundrung fræ er falið,
Sem fljótum þroska nær,
Og heimskan að eins alið
Sér umskiftinga fær.
Og þá er lán í landi
Og lifsins byr á skeið,
Er frjáls og framgjarn andi
Hver fylgist sömu leið.
Og þá mun þjóðlíf dafna
Hjá þessum unga lýð,
Og andans arði safna
Mun okkar nýja tíð.
Gestur Palsson.
í slendinga-dagurinn.
Veðrið var hið ákjósanlegasta.
Heldur svalt allan daginn. Skúradrög
í lofti fram að hádegi, en eftir það
heiðrikt loft, þéttingskaldi á norðan
fram undir kl. 6, en eftir það logn.
Afls munu hafa verið í garðinum 1500
til 2000 manns, og yfir höfuð munu
flestir hafa farið heim ánægðir yfir
skemtun dagsins.
Af hjólreiðinni gat því miður ekki
orðið í þetta skifti. Þegar til kom
vildu engir taka þátt i henni nema A.
F. Iieykdal einn. Vonandi betur gangi
næst.
Frá löndum.
Frá N. Dak. er oss ritað 30. Júlí:
•‘Á útnefningafundi óháða flokksins
(The Independents) í Pembina Co., er
haldinn var í Hamilton 24. þ. m., voru
3 íslendingar kvaddir til sóknar : Steph-
án Eyjólfsson, Garðar, sem þingmanns
efni, F. F. Björnsson, Mountain, sem
County Commissioner, Páil Jóhannsson,
Carlisle, sem County-dómari (Justioe).
MINNEOTA, MINN., 18.JÚNÍ.
(Frá fréttaritara vorum).
Tíðarfar er fremur þurt og foeitt,
hiti núj sumar licfir eigú allsjaldin kom-
izt yfir 100 stig i skugga.
. Akrar og engi muinu hér yfirleitt
vera með lakara mótiá hálendi eru
þeir víða brunnir, tóbur út fyrir að hey
afli manna muni verða með iniima móti
i haust.
Manndauði: I síðastl. mánuði
andaðist úr taugaveiki Guðnún Sigfinns
dóttir, dóttir Sigfimns bónda Pétursson-
ar frá Hí.konarstöðum á Jökuldal í
Norður-Múlasýslu og Sigwfibjargar Sig-
urðardöttir frá Refsstöðum í Vopna-
firði.
Prestamál: Flestir hér fagna
prestaskiftunum tilvonandi, enn flestir
munu kenna í ferjóst. iw -séra Níels S.
Þoriáksson, ef hann fær ekki atvinnu,
en menn búast við að ha®n muni fá at-
vinnu l»Lrna í prestsnauðarbj'gðunum
uyrðra.
FéJagsmál: 8. þ. m. var kvennfé-
lagsfundur í Norðuflbygð og á þeim
fundi var kvennfélag nefndrar bj'gðar
uppleyst.
Skaði varð aðfaranótt hins 11. þ.
ma., brann nautafjós og kornbindari hjá
Arngrimi G. Vestdal. 'Tjjón $3—400.
4. Júií var að tilhlutun Norður-
bygðar kvennfélapps gleðisamkoma að
Hákonarstödum hjá JGunölaugi bónda
Péburssyiii.
Orða-belgrinn.
[ðdlum, sem sómasamilega rita, er
velkomið að “leggja orðí hélg;” en nafn-
greina verðr hver höf. sig við ritstj.,
þótt ekki vilji nafngreina sig i blaðinu.
Engin áfellis-ummæli um einstaka menn
verða tekin nema með fullu nafni undir.
Ritstj. afsalar sér aflri ábyrgð á skoðun-
um þeim, sem koma fratn í þessum bálki].
FRF.TT FRÁ AKRA, N. BAKOTA.
(I.ítið er lítið, en eigi ekkert).
Ný endurbót er enn þá erðin í trú-
brögdum hins íslenzka lúterska kyrkju-
félags. Séra Jónas A. Sigurðeson er
hættur að hræða “íslenzku skjátuimar”
i söfnuðum sínum með þtí lielvíti i trú-
arjátning vorri, sem Jesús “steig niður
til” hérna um árið.
Presturinn hefir aðdáanlega kanm-
ast við það, að vort gamla helvíti er nú
orðið mjög svo máð og hrjáð af sífcldri
brukun vorrar heilögu kyrkju og enda
orðið oftroðið lika, en menntun og nátt-
úrlegt buvit hefir sagthonum, að gríska
helvitið “Hades” hefir legið ónotað um
margar aldir og er nú eins og nýtt í
samanburði við hitt hylkið. Hann
skar því niður þenna bragðvonda há-
karl úr trúarjátningunni og lét “Hades,
á öngulinn aftur.
Þessi lærði maður, sem þekkir jafnt
“Fenrisúlfinn” ogalla guðfræði, álítur
það miklum mun betra fyrir börnin, er
hann “ondurfæðir með vatni og anda”,
að vera og verða heldur tilheyrandi
þessum nýupptekna kvalastað, ef til
Þess kæmi fyrir þau. Það er líka svo
ástatt, að í “Hadei” er “afkráningur”,
sem heitir “EJysium”, fyrir hina út-
völdu, rétt í sama herberginu, sem ó-
neitanlega er miklu skemtileira, svo
hvorirtveggja geta talast við og kynnst
hver öðrum, enda virðist og líklegt, að
I “faðir Abraham” hefði gefið ríka qiann-
5 inum einn dropa af vatni til að kæla
með tungu sína, ef hann hefði haft
svona þægilega afstöðu, þótt æfinlega
hefði hann viðrað fram af sér sendiför-
ina til að frelsa fimm bræður hins ást-
ríka og skyldurækna bróðurs frá kvöl-
unum.
Það er sannarlega bæði fagurt og
þakklætisvert, þegar ungur prestur,ný-
kominn til embættis, gerir þvílika bún-
aðarbætur í guðsríki, en mikill skaði er
það, éf málið um þessa endurbót hefir
ekki verið borið upp á kyrkjuþinginu.
Páfar og kardinálar ! “Eftir er yð-
ar hluti! ”
Stutt svar
til ritstjóra Heimskringlu.
Kæri herra!
Útafþví, sem ég sagði i fregnbréfi
minu í 27. tr. Hku. þ. á. um brezku
stjórnina í sambandi við vígcirðingarn-
ar hér á eynni, hefir þú ritað dálitla
grein í 28. nr. Hkr., með fyrirsögninni:
“Kínverja-þrætan”. Með því ég get
ekki að öllu leyti fallist á skoðun þína í
nefndri grein, þá finn ég ástæðu til að
svara henni með nokkrum orðum.
Þú segist “ekki” vera mér “sam-
dóma í því, að það sé stórvægilegt
“kjaftshögg fyrir Canada”, að stjórn
Breta vill að haldið sé áfram að ráða
Kínverja til vinnu Jvið víggirðingarnar
á Vancouver-eynni”. Það er svo! En
hvað er það þá, þetta athæfi stjórnar-
innar, ef það er “ekki” kjaftshögg fyrir
hvita T-erkmannojUikkinn * í Cauada, en
þó sérstaklega í B. C,, eins og ég komst
að orði í fregnbréfinu ? Þess er jafn-
framt vert að geta, að það eru fleiri en
ég einn, sem þú ert ekki “samdóma” í
þessu efni, þvi í hraðskeytinu, sem ég
tók upp í fregnbréfið, stendur þetta
meðal annars : *Þaö er af öllum dlítið,
nema fjamka afturluiIdsmörtnum d Eng-
landi, að þetta sekjaftehögg fyrir Canada".
Eftir þessu hraðskeyti að dæma, ert þú
þvi alls engum “sauidóma” í máli þessu
nema fjarska afturfealdsmönnum á Eng-
landi. Mér og mörgum öðrum vinum
þínum og blaðs þíns, mundi þykja mjög
leiðinlegt, ef þú færir nokkuð til muna
að aðhyllast og útfereiða römmustu aft-
urhaldsskoðanir afturhaldsflokksins á
Englandi. eða hvers annars afturhalds-
flokks sem væri, en ég vona að naumast
þurfi að óttast það til muna, þó að þú í
þetta sinni virðist hafa villst inn á viflu-
stigu þeirra.
Fyrir þessu. undarlega afturhaldsá-
liti 'þínu færir þú þá ástæðu, að ekki
hafi nema “einú” af 8 samþingsmönn-
um frá B. C. “minnst á málið”—þ. e.:
að Kinverjar yrðu ekki ráðnir til vinnu
við víggirðingarnar, og að hægt væri að
fá meira en nógu marga hvita verk-
menn innan fydkisins”—, og því “naum-
att að búast við öðrum undirtektum”
hjá stjórninni en þeim, sem mál þetta
fékk”. “Þaðvantar «vo mikið á”, seg-
ir þú enn freanur, að áttundi hluti sé
meiri hluti, a§ stjórnin hlautað virða það
að engu, en hugsa heldur um þann vilja
meiri hlutans, -sem æfinlega er vís, aö fá
öll opinber verk unnin fyrir svo lágt
verð sem fengist getur”.
Af þessu má meðal annars ráða það
að þér sé talsvert betur kunnugt um
hvað brezka stjórnin “hlýtur” að gera
og láta ógjört, höldur en sambandsþings
manni þessa ibæjar, Col. Edward Gaw-
ler Prior. Þvá ef honum hefði verið
jafnkunnugt um þetta og | ér virðist1
vera, þá hefði 'honum að öllum likind-1
um aldrei dottjð í hug að hreyfa þessu
máli, á þann feátt sem hann gjörði það,
þar sem hann hefði þá fyrirfram vitaði
það fyrir vist, “að stjórnin hlyti að
virða það að etigu”—að minnsta kosti,
ef hann fengi ekki aifla samb.þingmenn
héðan úr fylkinu, og fleiri eða færri af
meðlimum Canadastjórnar, til þess að
fallast á skoðun íána.
Það hefðiauðvitaðverið mikið betra
og æskilegra, að aMir sambandsþing-
mennirnir úr þessu fylki hefðu lagzt á
eitt með að hrinda þessu þýðingarmikla
málefni áfram, þó það hefði aldrei orðið
til annars en þess, að ekki hefði verið
Iiægt að afsaka stjórnina með því, að að
eins “einn” þeirra hafi “tniíinst á mál-
íð”. En þó að þeir hefðu nú aflir gjört
það, þá er samt sem áður enginn vissa
fyrir því að brezka stjórnin hefði svarað
öðruvísi en hún gjörði, úr því hún tók
alls ekkert tillit til þess þó Col. E. G.
Prior vekti athvgli hennar á málinu, en
sem margir álita að átt hefði að vera
næg bending fyrir hverja mannúðlega
og siðaða stjórn til að fara eftir, í svona
serstöku tilfelli að minnsta kosti. Og þó
að aliir (8) samb.þingmenn héðan, ásamt
fleiri eða færri meðlimum Canadastjórn-
ar, hefðu unnið að þessu máli með Col.
Prior, . en brezka stjórnin þó svarað
eins og hún gjörði, þá mundir þú ekki
hafa kallað það neitt “stórvægilegt”,
eða yfir höfuð fundið ástæðu til að vera
sérlega óánægður með svarið, því þú
segir í ofannefndri grein þinni, viðvíkj-
andi því ef |svo ihefði farið : “þá vár
•) Allar leturbreytingar í þessari
grein eru eftir mig. 'A, J, L.
heldur ástæða til að kalla þetta svar frá
Englandi “kjaftshögg”. Það skinút úr
lessari setningu, að þér þykir það "held
ur” vafasamt, hvort það svar stjórnar-
innar hefði réttilega getað heitið kjafts-
högg fyrir Canada !
En hvaða nafn mundir þú þá hafa
viljað gefa því ?
Hrað það nú snertir, að það sé
“vilji meiri hlutans”, að fá öll opinber
verk unnin fyrir svo lágt verð, sem
fengist getur, þá er það, eins og allir
vita, venjulegast svo, enda þótt að út af
þvi geti ef til vill brugðið í vissum til-
fellum. En hvað um það. Eruð þið,
þú, brezka stjórnin og þessi blessaður
“meiri lfiuti”, viss um það, að víggirð-
ingarnar kosti minna með þvi, að láta
Kínverja vinna við þær, heldur en ef
hveitir verkmenn hefðu eingöngu feng-
ið vinnnna ? • Mér þykir ekki ólíklegt
að það yrði talsverðum örðugleikum
bundið fyrir ykkurjað sanna það. Eg
býzt nú við að þú munir ef til vill glæp-
ast á mismun kaupsins, eins og sv«
margir aðrir, og segja því að lítill vandi
sé að sanna þetta, þar sem að Kínverj-
ar hafi fast að því helmingi lægra kaup
en almennir hvítir verkmenn hafi hér í
fylkinu, en ég vil £á stynga því að þér,
að það eitt sannar alls ekkert. Til þess
að sanna að víggirðingarnar kosti minna
með því að hafa Kínverja, þá verður þú
að sýna og sanna, að hvitir menn vinni
ekki eins vel fyrir sínu hærra kaupi eins
og Kínverjar fyrir sínu lægra kaupi.
Og ef svo skyldi tiltakast, eftir að þú
hefir ýtarlega rannsakað þetta, að þú
komist að þeirri mjög svo líklegu niður-
stöðu, að hviti verkmaðurinn hafi full-
komlega unnið fyrír $2 á dag, þar sem
Kinverjinn hafi laklega unnið fyrir 81,-
25 á dag, þá færi óneitanlega að verða
í meiralagi lítið úr öllu sparnaðartali
þínu úm það, “að stjórnin” hafi “hlot-
ið að virða að engu” tiflögu þessa “eina’
manns, Col. Prior’s, “en hugsa heldur
um þann vilja meiri lilutans, að fá öll
opinber verk unnin fyrir svo lágt verð
sem fengist getur”.
En setjum nú svo, að brezka stjórn-
in hefði vitað það fyrir vist, að víggirð-
ingarnar mundu kosta nokkrum dollars
meira, ef hún eingöngu hefði hvíta verk-
menn. Hvað þá ? Átti hún þá endi-
lega að láta Kínverja fá alla vinnuna?
Mátti hún ekkií þessu einstaka tilfeifli,
breyta út af reglunni, með “að fá öll op-
inber verk unnin fyrir svo lágt verð
sem fengist getur ? Ég segi jú! Ég á-
lít að hún hafi ekki einungis mdtt það,
heldur að það hafi verið siðferðisleg, ef
ekki lagaleg skylda hennar að gjöra það,
þar sem svo sérstaklega stóð á. Því
hér var og er spurningin blátt áfram
um það, hverjir verðugri sé að fá
mavgra ára stöðuga stjórnarvinnu,
hvítir verkmenn, brezkir þegnar, sem
árlega borga allar þær skyldir og skatta
til stjórnarinnar hér, sem þeim eru á
herðar lagðar, og þeir eru færir um að
borga, sem einnig kaupa hér allár sínar
lífsnauðsynjar og á þann hátt styðja að
fjörugu viðsktftalifi í landinn, |sem í
einu orði að segja eiga meiri og minni
þátt í öllum nytsömustu og beztu fyrir-
tækjum og framförum rikisins, — eða
Kínverjar, sá lang-óþarfasti, leiðinleg-
asti og skaðlegasti mannflokkur, sem
nokkru sinni hefir stigið fótum á strend
ur þessarar heimsálfu, mannskepnur,
sem senda alla þá peninga er þeir græða
hér yfir til Kína, ýmist fyrir nauðsynj-
ar sínar; því þessar skepnur kaupa all-
ar sinar nauðsynjar í Kína þó þeir
dvelji hér, til að leggja þá inn á banka
þar, eða þá til þess að hjálpa öðrum
engisprettum i mannsmynd til að kom-
ast liingað, til að lijálpa sýr til að eyði-
leggja, eftir megni, alla lífsbjargar út-
vegi hvíta verkalýðsins, sem telja má
víst að þær e.yðileggi alveg á endanum,
ef ekkert er gjört til að stöðva innflutn-
iag þeirra og yfirgang, heldur alt látið
reka á reiðanum, eða öflu heldur hlynnt
að hvorttveggja (sbr. vinnunni við víg-
girðingarnar). því þeim fjölgar hér nærri
því eins stórkostlega og bakterium í
hæfilega miklum hita !
TJm þetta er spurningin, og í raun
og veru um ekkert annað; því alt tal
um það, að verkið hefði orðið miklu dýr
ara með því að láta eingöngu hvita
verkmenn fá vinnuna, er algjörlega ó-
sannað, og því að engu leyti til greina
takandi.
Hverjir eru svo verðugri fyrir vinn-
una? Hvórn þessara mannflokka var
þá liklegra að Breta (og Canada) stjórn
styrkti til efnalegs sjálfstæðis, styrkti
til að ná fótfestu í landinu, með þessari
miklu víggirðinga-vinnu ? Sýnist þér
nú virkilega, þegar þú íhugar málið
betur, að það hefði átt að þuija að
knýja brezku stjórnina áfram á réttlæt-
isveginn (þó það hefði verið liægt), með
stjórnar- og sambandsþings-ákvörðun-
umfráOttawa? Og að endingu þetta :
Heldur þú i alvöru, að Bretastjórn hafi
látið sér detta sú f jarstæða í hug, að
það yrði á móti “vilja meiri hluta”
sinna hvítu þegna, ef hún léti þá sjálfa
eingöngu njóta vinnunnar við þessar
oft nefndu víggirðingar, þó aldrei nema
verkið kynni þá að kosta dálítið meira ?”
Noi, svona hraparlega lieimska og
illgjarna ínátt þú naumast ímynda þér
brezku stjórnina,því síður “meiri hluta”
af þegnum hennar.
Ég vona að þessar fáu skýringar
minar geti nokkurn veginn sannfært
þig um það, að ég hefi ekki litið mjög
skakkt áþetta mál í fregnbréfi mínu, og
að þú hatir því ekki haft neina verulega
ástæðu til þess að vera mér “ekki sam-
dóma” um það.
Victoria, B. C., 24. Júlí 1891.
Þinn
Ásgeir J. Líndal.
Misskilningur.
er það hjá vini vorum, Ásgeir J. Lín-
dal, að ímynda sér að vér ætlujn að
fara að “aðhyllasi og útbreiða römm-
ustu afturhaldsskoðanir afturhalds-
flokksins á Englandi” etc., að því er
snertir Kínverja vinnuþrætu í British
Columbia. Allur seinni liðurinn í grein
þeirri í Hkr., er herra Á. J. L. hefir
orðið að svo grófum ásteytingarsteini,
er órækur vottur um skoðun vora á
Kinverjum. Öll málalengingin um það
hvaða álit vér höfum á kostnaðarmis-
muninum, ef hvítir menn ynnu verkið,
en ekki Kínverjar, er ástæðulaus.
Vér höfðum aldrei neitt um það sagt,
en getum nú tekið fram, að samkvæmt
almennum mælikvarða hér.vinnur með-
almaður hvítur á móti tveimur meðal
Kínverjum. Vort álit er því, að kostn-
aðurinn sé og verði engu minni þó Kín-
verjar vinni meginhlut verksins. Eigi
að síður er afsakandi þó stjórnarráðs-
menn Breta (sem enganveginn eru tald-
ir afturhaldsmenn) kunni að “glæpast á
mismun kaupsins, og undir kringum-
stæðunum ber að skoða þetta mál frá
þess, en ekki voru sjónarmiði.
Það eru kringumstæðurnar og sam-
bandið, sem þarf að skoða, en ekki ein-
stöku atriði. Það vita allir og viður-
kenna, að réttlæti og manirúð <etli að
ráða gerðum hverrar stjórnar sem er,
en það vita líka allir, að ekkert slíkt á
sér stað, nema ef vera kynni í einu
dæmi af n^flíón. Þess vegna er alveg
óhætt að segja, að það þarf “að knýja
brezku stjórnina áfram á réttlætisveg-
inn”, öldungis eins og hverja aðra
stjórn. Án þeirrar svipu, sem knúð
getur eina eða aðra stjórn áfram, geng-
ur ekkert eða rekur með að fá nauðsyn
legar réttarbætur fyrir einn eða annan
flokk manna. Og sú eina svipa, er til
þess útheimtist er órækur vottur um
vilja fjöldans. Þann vott vantaði alveg
hér, þar sem einn maður einungis lét til
sín heyra, en átta voru til. Frá póli-
tísku sjónarmiði gat stjórn Breta þess
vegna ekki greint nema vilja áttunda-
hlutans í héraðinu og enda hann efasam
an, þvíaldrei eru allir í kjördæminu á-
nægðir með gerðir fufltrúa sins. Frá
þessu sama pólitíska sjónarmiði gat þá
stjórnin ekki heldur gert annað réttara
en ganga framhjá beiðni hans og halda
áfram með Kínverjana, sem hún að
sjálfsögðu liugsar að vinni verkið ódýr-
ar en hvítir menn mundu gera, af því
þeir heimta hrerra kaup. Alt þetta
hefði Col. Prior átt að sjá og vita fyrir-
fram og hegða sér samkvæmt því. Af
framkomu hans í þessu máli má ætla
hann pólitískt þöngulhöfuð, sem ekkert
erindi hefir á þing eða i stjórnmálaþref,
þar sem pólitík ræður öllu, en réttlæti
og mannúð litlu eða engu.
Hvað snertir ummælin um álit allra
á fregninni í Victoria-blaðinu, þá eru
þau bókstaflega einskis virði. Þau sýna
ekkert eða sanna nema orð þess, er rit-
aði hraðskeytið. Því það er öflum
kunnugt, að allar sérlegar fregnir eru
sniðnar samkvæmt vilja þess blaðs er
kaupir. Blaðið veit hvað lesendunum
lætur bezt i eyrum, og svo skipar það
fregnrita sínum í fjarlægum stað, að
sniða fregnina samkvæmt þeirri þörf.
Þetta er leyndardómur, sem öllum
mönnum um þvera og endilanga Ame-
ríku er opinber. Meira að segja, fjöld-
inn af svo nefndum hraðskeytum eru
mestmegnis rituð á skrifstofu blaðsins,
er flytur þau. Blöðin fá beinagrindina
af fréttinni, en sjálf klæða þau hana og
færa þá náttúrlega í þá mynd, er þeim
þykir hentast.
Ristj. Hkr.
Frá vanheilsu til heilbrigðis.
REYNSLA GÓÐKUNNS BÓNDA
í BRUCE COUNTY.
Hann segir sögu af veiki
þeirri, er hann þjáðist af, og
hvernig hann fékk heilsuna
aftur, til þess að þeir, sem
þjást af líkum sjúkdómi, geti
einnig fengið bót meina sinna
Tekið eftir Tees Water “News”.
Það eru liklega fáir sjúkdómar, er
heimsækja mannlegan flkama, sem eru
þjáningameiri og verra að útrýma, en
sjúkdómur sá, sem kallaður er Sciatica.
Það eru engin orð til, sem geti lýst
þeim þjáningum, eins og þær eru, ef
þær annars eru á háu stigi, og það eru
naumast þeir sjúkdómar tii, sem ervið-
ara er að lækna, en einmitt þessi veiki.
Þegar fregnin um afturbata Mr.
William Baptist barst út, fór fregnriti
blaðsins “News” af stað til að hitta að
máli Mr. W. Baptist, sem er heiðvirður
bóndi í Culrose Township, til að fá frá
honum sjálfum áreiðanlega vissu fyrir
fregn þessari. Mr, W. Baptist er mað-
ur skynsamur og vel efnaður bóndi, er
hann alkunnur í því bygðarlagi og al-
menn álitinn mjög vandaður og áreið-
anlegur maður í afla staði. Hann er á
bezta aldri, og hans núverandi ásig-
komulag virðist ekki bera neinn vott
um að hanu hafi nokkurntíma þjáðzt af
lungum sjúkdómi. MrjW. Baptist tók
vingjarnlega móti fregnrita blaðsins, og
með mestu ánægju og lipurð sagði hann
honum frá, hvernig hann hefði fengið
heilsuna aftur, og hann bætti því við,
að hann skoðaði það skyldu sína að
gera það, svo að þeir sem þjáðust eins
og hann hefði þjászt, gætu einnig feng-
ið bót meina sinna.
Þangað til haustið 1892, sagðist Mr.
Baptist hafa verið hraustur og heilsu-
góður maður, en einmitt þá hefði hann
veikst af þessum slæma kvilla Sciatica,
rétt um uppskerutimann ; tiðin var þá
votviðrasöm og köld. Einungis þeir,
sem reynt hafa slíkar þjáningar, geta
bezt borið um, hversu mikið hann varð
að líða. Hann sagði að kvalirnar hefðu
verið rétt óþoiandi. Þrautirnar voru
svo miklar með köflum, að svitinn
streymdi af honum, og marga nótt kom
honum ekki dúr á auga ; dagarnir voru
angurs og þjáninga dagar og næturnar
veittu honum enga hvíld.
Ýmsra ágætra lækna var leitað og
mismunandi meðul reynd, en alt kom
fyrir það sama, og honum fór síversn-
andi. Sá hluti líkamans, sem veikin
var í, fór að visna, og holdið eins og að
losna frá beinunum ; mátturinn fór smá
þverrandi, og að siðustu eins og dauði
komin í alt. Tíminn leið og vonin um
bata hvarf með öllu, þrautirnar héldust
við allan veturinn. enumvorið fór hann
að reyna Dr. Williams Pink Pifls. Þeg-
ar hann hafði brúkað nokkuð af pillun-
um, fann liann að þær bættu honum;
vonin um bata vaknaði h?á honum, og
þegar hann hafði brúkað upp úr þrenn-
um öskjum, voru þrautirnar horfnar,
iíf fór að færast i hinn aflvana part Hk-
amans og hann að ná aftur sínu heil-
brigðisástandi. Hann hélt áfram að
brúka pillurnar. þar til hann hafði tek-
ið upp úr tólf öskium, eftir það var
hann orðinn svo frískur, að hann gat
gengiðað vinnu, og nú, þann idag í dag,
er hann orðin heifl heilsu sinnar. Síðan
hefir Mr. Baptist ráðlagt öðrum að
brúka Dr. William’s Pink Pills, og á-
rangurinn hefir orðið affarasæfl.
Efnafræðislegar rannsóknir sýna,
að Dr. William’s Pink Pifls hafa alla
þá eiginlegleika inni að halda, sem út-
heimtast til að styrkja taugakerfið og
hreinsa blóðið. Þær eru óbrygðular
við öllum þeim kvillum, sem orsakast
af spilltu blóði eða veikluðu taugakerfi,
lystarleysi, þreyttri hugsun, vöðva-ó-
styrk, svima,minnisleysi, liðagigt, mátt
leysi, mjaðmagigt, riðu, Lagrippa og
þær eru einnig óyggjandi við kirtla-
veiki og heimakomu o. s. frv., og svo
eru þær sérstaklega góðar við öflum
kvennsjúkdómum, gjöra þá rjóða sem
fölir eru; enn fremur eru þær ágætar
við alla þá kvilla, sem orsakast af of
mikilli áreynslu, hvort heldur andlegri
eða líkamlðgri ásamt öllu óhófi af hvaða
tegund sem er.
Dr. William’s Pink Pills eru búnar
til af Dr. William’s meðala-félaginu í
Brockville, Ont. og Scheuectadz, N. Y.
og eru seldar einungis í öskjnm með
merki félagsins á umbúðunum, á 50 cts.
askjan, eða G af þeim fyrir 82,50; þær
fást ihjá öllum lyfsölum eða með pósti
frá Dr. William Medicine Co.
Varið yður á aflri eftirstælingn.
Sumar, vetur, haust og heiðskírt vor
ef hamingjunnar viltu rekja spor,
og helgar vit þitt húsi þínu’ og bæ, ,
þá hafðu ætíð frægan “Diamond Dye,”
Vor góðfræga drotning umgrundog sæ,
það gott er að hafa í minni,
oss sagt er að hrósi mjög Diamond
hjá dáðríku þjóðinni siuni. [Dye