Heimskringla - 17.11.1894, Blaðsíða 1

Heimskringla - 17.11.1894, Blaðsíða 1
VIII. ÁR WINNIPEGr, MAN., 17. NÓVEMBER 1894 NR. 46. WINNIPEQ Business College. Verið yiðbúin að nota ykkur kveld- skólann, sem haldinn verður í sam- bandi við Winnipeg Business College og Shorthand-skólann, 482 Main Str. Þar verður kennt, þeim sem vilja, ensku-lestur, réttritun, málfrœði, reikn- ingur og skript. — Skólinn byrjar snemma í Nóvember. Viðvikjandi kennsluskilmálum snú- ið ykkur bréflega eða munnlega til kennaranna. C. A. Fleming & Co. FRÉTTIR. GHEFTllUNAKATIIÖFN RÚSSA- KEISARA byrjaði á mánudaginn 12. þ. m., en ekkiverður líkið lagt í grafhvolfið mikla, hjá feðrum sínum og ættbálki, undir Péturs og Páls dómkyrkjunni í Pét- ursborg fyrr en um eða eftir næstu helgi. Er svo sagt að á seinni árum hafi ekki sézt svipuð útfarar-viðhöfn og sú í Mosk\öi. A laugardaginn og enda á sunnudaginn var unnið kappsamlega að því að tjalda húsin og strætin í svörtum og hvítum slæðum, og afla mánu- dagsnóttina og fram á dag unnu 10,- 000 manns þvi verki, enda mátti svo að orði kveða að öll borgin væri hul- in svörtum og hvítum tjöldum þegar járnbrautarlestin með likið og lík- fylgdina staðnæmdist í útjöðrum bæj- arins kl. 10J f. m., eftir ferðina, sunn- an frá Sebastopol. Alla mánudigs- nóttina unnu og yfir 1,000 manns að því, að bera mulið grjót á þau stræti er likfylgdin fór eftir frá vagnstöðv- inni til Kremlinnar, en það var 21 mílur vegar, — Ilétt fyrir utan veggi Kremlinnar eru 4 kyrkjur í hóp og staðnæmdist líkfylgðin þar á meðan salmar voru sungnir og bænir fiuttar ar. Var kl. orðin 1. e. h. þegar lik- ið var borið í dómkyrkjuna, Var þar fyrir manngrúi mikill. Eftir að lík- ræðan hafði verið flutt var kyrkju- dyrnnum slegið opnum og almenningi gefið tækifæri til að líta hinn látna keisara í síðasta skiíti. Var mönnum leyfður aðgangur eftir vissum reglum eftir því hvaða stétt maðurinn til- heyrði. — Svo mikið af blómhnöppum var geíið á líkkistuna aö þ.iu komust ekki öll inn í hina miklu kyrkju. — Hermannagarður var óslitinn íneð- fram veginum til Kremlinnar og á undan líkvagninum, dremnn af 8 hest- um, fór fremst lierfylking mikil, er samanstóð af lierflokkum úr öllum stór-herdeildum veldisins, þiónar með merki keisarans og ýmsa menja gripi, borgarstjórnin og borgarlýður án stétta skiftingar, þá biskupar og prest- ar, Rétt á eftír líkvagninum reið Nikulás keisari annar, einsamall, þá yfirmaður hirðarinnar og lífvarðar- foringjar, þá prinzinn af Wales, ein- samall, þá stórhertogi Mikael (yngr bróðir keisarans), þá tveir stói'hertog- ar til, þá Grikkja konungur, þá ýmsir hertogar og furstar og á eftir þeim varðmanna-flokkur, þá ekkja keisarans og tengdadóttir hennar tilvonandi, og stórhertoga frú, þrjár saman í vagni með varðlið umhverfis, þá prinz- essan af Wales og Grikkja-drottning með tveimur stórhertoga-frúm í vagni. — Líkfylgdin sjálf var sögð hin stór- kostlegasta, er sézt hefir í Moskva. Á þ-iiðjudaginn var líkið flutt til Péturs borgar og stendur það þar uppi til þess um lielgi. KÍNA OG JAPAN STRÍDIÐ. Það þykir nú sannfrétt að Japanítar séu búnir að vinna stórborgina og kastalana miklu, Port Arthur, við Gulaflóann gegnt kastalanum Wei- Hai-Wei. Þykja það tíðindí mikil, þvi það er sagt rammgervast vígi Kín- verja og var af þeim talið óvinnandi. Eru þar hergagnasmiðjur miklar, er Kínastjórn hefir reist og sagðar að miklu leyti oins stórar og fuilkomnar og járnsmiðjur Krupps á Þýzkalandi. Þar eru og skipasmíðiskvíar Kínverja hinar stærstu og fuflkomnustu í veld- inu. — Er sagt að sigurinn hafi verið auðfenginn, því Kínverjar hafi flúið undir eins og þeir sáu Japaníta og sumir enda verið flúnir áður en þeir náðu þangað. Þeir sem ekki komust burtu í tíma beiddust griða og gengu Japanítum á liönd. Síðustu fregnir að austan segja, að nú þessa dagana muni lier Japaníta umkringja og hei*- taka borgina Mukden i Manchuria- héraðinu, því ekki er búizt við neinni nýtilegri fyrirstöðu þar fremur en ann- arstaðar. Skeyti að austan segja og að Kínastjórn áliti keisara sinn ekki lengur óhultan í stjórnarsetrinu Pek- ing, og að nú sé í bruggi, ef- ekki byrjað, að flytja hann og hirðina yfir 200 mílur suður í land, frá Peking. Kínverjar augsýnilega viðurkenna nú vanmátt sinn til að verjast á- hlaupum “dvergþjóðarinnar,” því þeir hafa nú sent áskorun tvisvar eða þrisva til stórvelda Norðurálfu og til Banda- ríkjastjórnar um að hlaupa nú undir bagga með sér og stöðva æðisgang Japaníta. hvað sem það kosti. En eftir fregnum að dæma taka stórveld- in þvi þurlega, að undanteknum Bandarikjamönnum, Bretum og Rúss- um. Þessar stjórnir eru sagðar fúsar til að taka til starfa og skakka leik- inn, en hendur þeirra eru að nokkru leyti bundnar, ef hin stórveldin vilja ekkert til leggja. Er mælt að Banda- rikjastjórn sé til með og hafi jafnvel boðið að dæma í málinu. ákveða skaða- bætur o. s. frv., ef Norðurálfuþjóðir fá Jnpaníta til að ganga að þeim kostum og halda uppi friðskildi. Bandaríkjastjórn lcvcðst ekki hafa boð- ið slíkt, en viðurkennir að liún hafi gefið kost á sér til sáttasemjara ef bæði Kínyerjar og Japanítar æskja þess. Kínverjar liafa að sögn lofað að auglýsa tafarlaust að Kórea sé ó- háð ríki og að þeir aldrei framar skuli skifta sér af málum á skaganum. Þoir eru og boðnir og búnir til að borga Japanítum skaðabætur, en hvað mikla upphæð er enn óákveðiö. Jap- anítar hafa látið í Ijósi, að þcir sætt- ist ekki upp á minna en $t00 milj. skaðabætur og sjálfstæði Kóreu, en svo óttast þeir að sáttasemjarinn, hvort heldur Bandavíkjastjórn eða aðr- ir, dæmi sér ekki svo mikla upphæð. Á hinn bóginn eru þeir hræddir við afieiðingarnar ef þeir þrjóskast, þar sem Kínverjastjórn ktýpur biðjandi. því ef Norðurálfuþjóðir á annað borð taka sig til að stilla til friðar, geta þær kúgað Japaníta til lilýðni, án nokkurra verulegra skaðabóta, ef þeir neita því sem franr kann að verða boðiö. — Þannig stendur þessi styrjötd nú, samkvæmt siðustu skeytum að austan og úr Norðurálfu. DAGBÓK. LAUGARDAG, 10. NÓVEMBER. Á 4 mánuðunum, sem liðnir af eru fjárhagsári Bandarikja nemur tekjuhafli stjórnariunar $15 miljónum. I síðastl. Okt. voru tekjurnar $5| milj. minni en á sama mánuði í fyrra. — Sagt er að Bandaríkjastjórn sé um það að taka til láns $50 milj. af gulli, gegn skuldabréfum. Telephone-samband er nú komið á á milli Vancouver í British Columbia og San Francisco í California. Vega- lengdin er nálægt 1,000 mílur. I sumar er leið, alt til Okt.-loka var lifandi peningur sendur til Evrópu frá Montreal, sem fylgir : 81,775 naut- gripir, 5,279 hestar og 126,6^5 sauð- kindur, Frá þeim tíma til þess sigl- ingum á fljótinu er hætt, voru þó eftir 17 skipsfarmar af lifandi peningi til Evrópu-flutnings. MÁNUDAG. 12. NÓV. Samkvæmt siðustu fregnum helga repúbllkar sér 243 af 356 þjóðþingmönn- um Bandaríkja í neðri deild. Ef svo er, liafa demókratar ekki komið að nema 102 þingmönnum, því báðir flokkarnir gömlu viðurkenna að populistar hafi komið 11 sínum mönnum að. Á síðasta Þingi sátu 216 demókratar, 206 repú- blikar og 12 populistar (2 sæti auðþ í ríkisþingskosningunum í Minne- sota unnu repúblikar sigur mikinn eins og hvervetna annarstaðar. í efri deild eru 37 repúblíkar, 9 demókratar og 8 populistar, en í neðri deild 80 repúblík- ar, 19 demókratar, 15 populistar.— Knútur Nelson fékk 60,292 atkv. fram yfir næst hæsta mótsækjanda sinn. Ráðaneyti Breta hefir afráðið að halda í hernað gegn lávarðadeildinni tafarlaust, og á [næsta þingi heimtar stjórnin samþykkt lög, er aftaka neit- unarvald lávarðanna. Auk þess heíir ráðaneytið ákveðið að leggja fyrir það þing frumvarp til nýrra kosningarla va um aðskilnað kyrkju og ríkis á Wales og um landkaup.o. þvl. á írlandi. Sambandsstjórnar-tekjurnar í sið- astl. Október voru $175,000 minni en í fyrra. Á 4 mánuðunum, sem af eru fjárhagsárinu eru tekjurnar $1J milj. minni en í fyrra, ÞRIÐJUDAG, 13. NÓV. : Brygeja mikil og vöruhús full af baðmuil brann til kaldra kola í New Orleans í gær, Eignatjón $| milj. Skógareldar valda stórmiklu eigna- tjóni í Tennessee. Tyrkir drepa og myrða um 3000 manns i Armeniu. Fregnirnar eru ó- Jjósar og ekki getið um ástæður fyrir þessu níðingsverki. Whitwayingar i New Foundland hafa unnið sigur í 5 aukakosningum. Af því leiðir að Goodridge-stjórnin er nú í minnihluta á þingi. Hún hefir heitið að sitja samt,- til næsta sumars, hvað sem nú verður, er til kemur að skora úr. MIÐVIKUDAG, 14. NOV. Bandaríkjastjórn auglýsir að hún taki á móti boðum um kaup á $50 milj. virði af skuldabréfum til 24. þ. m. Rannsókn í mútumáli gegn bæjar- ráðsmönnum í Toronto er nýlokið og var einn þeirra fundinn sekur. Hafði farið þess á leit við ýms félög að þau gæfu sér eitthvað til að tryggja sér at. kvæði sitt. Dómarinn, sem stýrði rannsókninni æskti eftir að fá aukið vald til að halda rannsókninni áfram og veitti bæjarstjórnin það. Englendingar, Þjóðverjar og Rúss- ar hafa að sögn ákveðið að vera sam- taka í að stilla tii friðar með Japanítum og Kínvetjum. Frakkar eru óráðnir enn. Utflutningur svertingja úr suð- ur-Bandaríkjum er býrjaður til Liberia i Afriku. FIMTUDAG, 15. NÓV. Stjórn'.n í Japan hefir enn ekki fengið tilboð um friðarsamuinga frá Ivinverjum. Páfinn sér sér ekki fært að bannfæra verkamanna-félagsskap i Bandaríkjunum. Að sjálfsögðu ev það gleðifregn fyrir verkalýðinn! Sagt er að þeir Cleveland forseti og Carlisle fjármálastjóri séu saupsáttir orðnir. en Cleveland neitar því. Beaver-línu-félagið hefir viðurkent sig gjaldþrota. Eru nú eignir þess í höndum dómstólanna. Landsala bæjarins fyrir óvoldnum skatti er afstaðin. Áður en salan var liafiu, hafði um helminguréignanna ver ið innleystur. Skattupphæöin, sem hvíldi á eignunum, er seldar voru, var afls rútnlega $10,000, en í eignirnar var boðið $83,590. Á aukafundi 14. þ, m. afréði bæj«r stjórnin að draga til þess eftir nýár að veita leyfi til gas-veitinga um bæinn. Lægsta boð framkomið er $2,65 fyrir 1000 fetin. FÖSTUDAG, 16. NÓV. Ofsaveður og steypiregn hefir ætt yfir England undanfarandi daga. I gær fórzt’við strendur landsins gufu- skip með 22 mönnum, ^ Skógareldur veldur $11 milj. eigna- tjóni í Colorado. ' Ekkert er afráðið enn að því er snertir dómsúrskurð Bandarikja í Kína Japaw-málinu. En nú segir skeyti frá Berlín, að Kínar hafi beðið Þjóðverja að dæma í málinu. ÍSLANDS-FRÉTTIR. Eftir Stefnir. Akureyri, 10. Sept. 1891. 25. Ágúst síðastl. var holdsveik- islæknirinn danski, Dr, Ehlers, búinn að fara um 15 sýslur og finna alls 138 holdsveikamenn. Skýrslan er birt í “Stefnir” og fylgir henni stutt bréf til skýringa frá lækninum. Segir hann þar meðal annars : Holdsveikin er i hlutfafli við fólks- fjölda meir en helmingi útbreiddari á íslandi en í Noregi, sem hefir verið orðlagður fyrir veiki þessa. Holdsveikin er í sumum sveitum, t. d. í Gullbringusýslu, Barðarstrand- arsýslu og ísafjarðarsýslu heldur að minnka. en aftur á móti er hún ó- efað mjög að aukast i Rangárvalla- sýslu, Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjar- sýslu, Þar er veikin nýbyrjuð á sum- um og á mörgum mjög svæsin. Af sjúkdómi þessum er öllu land- inu voða hætta búin, það er því mál til komið að vara þjóðina við slíku. llerra ketmari Stefán Stcfánsson á Möðruvöllum kom heim úr rannsókn- arferð sinni um síðastliðin mánaða- mót. Ferðaðist hann í sumar um nokkurn hluta Rangárvallasýslu og meiri hluta Skaptafellssýslna, alt aust- Stórkostlegur afsláttur! Betra verd en adrir geta bodid. Um nokkrar næstkomandi vikur fást vetrarföt og yfirhafnir með óheyrilega lágu verði í búð WALSH’S 515 og 517 Main Str. BUXUR. — Um 1,700 ALLS. — 200 af þeim verða seldar á 95 cents. Á meðal þeirra eru buxnr úr kanadisku vaðmáli Union vaðmáli (til slits) og Ameríkönsku Worsted, sem uppruna- lega átti að seljast fyrir $1,50. 300 góðar vaðmálsbuxur á $1,50 upprunaverð $2.00. 350 enskar oikanadiskar Hair Line buxur, og úrvals vaðmálsbuxur fyrir $2.70 vanaverð $1,00. Og enn 500 buxur út skozku vað- máli og West of England-buxum á $2,95 og $3.50. Vanaverð $5.00 og $6.00. KARLMANNA ALFATNAÐIR. — Um 1,100 ALLS. — Um 100 gamlir vaðmálsfatnaðir verða seldir á $3.00. Um 125 alullar fatnaðir úr kana- disku vaðmáli nf ýinsu tagi fyrir $5.85. Upprunaverð $7.50 til $10,00. Um 285 vandaðir fatnaðir úr cana- disku vaðmáli á $5.75 en kostaði upp- runalega helmingi meira. Um 500 fatnaðir úr skozku vaðmáfl og Worsted af beztu gerð fyrir $8.5 0 $10.50 og $11.50. DRENGJA FATNAÐIR. — Stórkostlegt upplag. — Nærri 3.000 “Sailor suits” fyrir drengi á 95 cts. til $1.75. Vaðmálsföt $1.50 til $3,50. Worsted föt $2.75 og yfir. Velvet fðt. Sergeföt. Jerseyföt, og um 100 fatnaðir af ýmsu tasi $2. Upprunaverð frá $3.00 til $5.00. Stuttbuxur 40, 50 og 75 cents. Reefers $2.00 $2.50 og $3.00. Yfirhafnir með slagi eða hettu á $2.50, $.300, $4.00 og $5.00. Y F I RHA"FN I R . Mildo upplag til að velja úr. Ileitar og góðar yfirhafnir verða seldar yrii’ lítílræði ÁGrÆTAR VETRAR-YFIRHAFNIR úr ensku “Rolling Nap” með kraga og belti og af beztu gerð, verða seldar fyrir að eins ^7,50. IMikið upp- ag af vatnsheldum Melissa kápum. 515 & 51? lain Slr, iept Citj Hall. ur i Lón. Þaðan hélt hann með fjörðum austur á Djúpsvog og brá sér þaðan út í Papey- Leið þangað er ifl sökum liinna hörðu strauma í álunum milli eyjar Qg skerjaklasa þess sem liggur milli lands og eyjar. Frá Djúpavogi fór hann inn með Berufirði, Berufjarðarskarð, Breiðdalsheiði og niður í Skriðdal. Siðan skoðaði hann Hallormastaðaskóg og fór um héraðið allt út að Eiðtjm; þaðan hélt hann póstleiðina í Mývatnssveit dvaldi þar í tvo daga; fór svo niður í Bárðar- dalinn og þaðan heim. Góður árangur mun verða af ferð þessari, því bæði var veður í sumar að jafnaði liið bezta til slílcra rann- sókna, og líka er jurtagróður mjög einkennilegur og áður lítt rannsakað- ur víða í Skaftafellssýslum; þar við bætist og að horra Stefán er mjög duglegur grasafræðingur og hefir lif- andi áhuga á þeirri vísindagrein, enda hefir þekking manna aukizt mikið á gróðrarríki landsins síðan hann byrj- aði að ranusaka, þótt margt sé enn ógjört, sem við er að búast, því til nákvæmra rannsókna um alt land þyrfti marga menn í mörg ár. Vér vonum að “Stefnir” geti áður langt um líður fært lesendum sinum ýmislegt til fróðleiks og skemtunar um rannsóknarferð þessa. Til bráða- byrgða setjum vér hér kafla úr pri- vatbréfi til vor frá hr. St. Stefánssyni: “Gróður á Suðurlandi og þeim hluta Austfjarða, sem ég fór um, er allmikið frábrugðinn gróðri hér nyrðra, bæði að því er gróðurlagið snertir, en þó eimkum að því leyti, að ýmsar plöntur eru þar algengar, sem ekki sjást liér, og sumar liinar algengustu plðntur hér sjást ekki syðra, Eg fann þar margar sjald gæfar og nokkrar áður alveg óþekkt- ar plöntur hér. En okkert spaug er að ferðast um Skaftafellssýslur sakir vatnanna, og alldýrt, þótt Skaptfell- ingar séu allra manna gostrisnastir og greiðvíknastir. — Maður kemst elA- ert fylgdarlaust. Markaðsverð á sauðfé hér í hausl hefir almennt verið þett.a: Vetur- gamflr sauðir 8—10 kr., veturgamlar ær 7—9 ltr, tvævetrir sauðir 13 — 15 kr., geldar ær 10—12 kr. Verð á slálurfé er þetta: Kjöt 12—18 aura pd., mör 17 au. pd., gærur 22 au. pd., haustull 38—40 au. pd. Tcö gufuskip hafa komið hingað til að sækja fé, annað frá Zöllner, fór með 8000 fjár frá pöntunarfélög- unum o. fl. hitt frá Slimon, fór með ri'im 5000. Alt útskipað af Oddeyri. Sama ágœtistiðin lielzt enn, opt- ast þurviðri, aðeins stundum nætur- frost. Eftir AUSTRA. 13. Oct. Dauðs manns líkami kom upp á línu hér utarlega í firðinum þann 2. þ. m. og var síðan fluttur hér inn i bæinn eftir ráðstöfun sýslumanns Axel Tuliniusar og nákvæmlega skoðaður af honum og síðan krufinn upp af þeim læknunum Jóni Jónssyni og G. B. Scheving, er sögðu liklegast að maðurinn hefði verið dauður áður en hann kom í sjóinn. en það þykir sýslumanni fullsannað að maður þessi hafi verið Englendingur. Andlitið á líkinu var mjðg skaðað og ókennilegt, en fötin voru óskemd og í vösum hins dauða fundust enskir smápening- ar. Ljósmynd var tekin af líkinu og verður hún ásatnt fötunum síðar send til frekari eftirlits og rannsóknar af hinu íslenzka ráðaneyti. Sýslumaður og hinn broski vici- konsul I. M. Hansen gerðu útförina mjög heiðarlega. Það þykja miklar líkur komnar fram fyrir þvi, að þetta muni líkami þe?s manns, er enska stjórnin gerði fyrirspurn um í sumar til landshöfð- ingja og áleit að hefði verið drepinn í vor úti á skipi hér á firðinum. Fundið lík. Fjárleitarmenn af Hólsfjölluin fundu í haust mannslík í gljúfragili á takmörkum Fjalla og Áistilfjarðarafrétta norðaustur frá Fjallbygðinni. Líkið var að mestu sandorpið en bakið bert, skinin beinin því fötin liöfðu fletzt fram yfir höf- uðið af leysingarvatnsstraum að vor- lagi, þótt nú væri þar þurt. Fötin voru arfafúin og hold alt liorfið af bein- unum og beinin brotin annarsvegar. í eyfinu af fötunum fanst þó peninga- budda heilleg og lokuð, með 5 kr. seðli og 8 kr. í silfri og fáeinum aurum, en engin bréf eða neitt annað, Skamt frá fannst stafur og 1 skíði, samkynja skíði og fundist hafði á sama sræði í fyrra haust af Fjallamönnum og þeir þá þótt- ust þekkja að væri skiði Hrólfs nokk- urs Hrólfssonnr, sem vetrinum áður hafði farið austur um fjöllin og niður í Vopnafjörðinn; og liafði skömmu síðar lagt á stað aftur heim á leið og farið síð ast frá Haukstöðum í Vopnafirði, en ekkert spurzt til hans síðau-.. 22. Okt. Tíðarfar má heita altaf ágætt, þó dálítið sé nú farið að kólna og grána í fjöllum, en engin snjókoma má heita að hafi enn verið, og er það æði mikill munur á því og værið hefir undanfarin haust um Jietta leyti. SíklarhUiup kom hér töluvert inn á Seyðisfjörð þann 15. þ. m. og veiddist bæði í lagnet og vörpur. Á Suðurfjörðunum hefir og nokkuð veiðst af síld, og hefir O. Watline sent aftur töluvert út af henni með “Vaag- en” ag nú þann 18. þ. m. fór fiskiskipið danska, “Cambria” með c. 500 tunur af nýrri sild í ís til Englands. Spurning. Hvað kemur til að ein verzlun blómgast meir en önnur undir sömu kringumstæðum ? SVAR: Til þess getur margt borið, en þó ekkert eins og blátt áfram hrein, óhlutdræg og samvizkusamleg viðskifti við alla og æfinlega. Það er sú. lifernis- regla, sem ég hefi settmór og fundið borgá sig. Með hana hefi ég fleyzt oft gegn um harðar kringumstæður í full sjö ár við verzlun, og alloft þokast áfram, fet fyrir fet. Hér eftir mun óg halda henni því fastar. Tímar hafa aldrei verið eins harðir og nú, og er því meiri hvöt fyrir mig að skifta sann gjarnlega við alla. Kæra þökk fyrir viðskifti ykkar að undanförnu. Munið að ég hefi nú vör- ur meðlangmesta, bezta og billegasta móti. Munið að gera ykkar bezta með að borga mér það sem þið skuldið, og munið að ég lána ekki nú sem stendur. Með vinsemd, T. Thorwaldson. AKRA N. D. VEITT HÆSTU VERÐLAUN A HEIMSSÝNINGUNNI IÐ BEZT TILBÚNA. Oblönduð vinberja Cream of Tartar Powder. Ekkert álún, ammonia eða önnur óholl efni. 40 ára reynzlu.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.