Heimskringla - 17.11.1894, Blaðsíða 2

Heimskringla - 17.11.1894, Blaðsíða 2
2 n RTM.qKMNftLA 17. NÓYEMíER 1894. HeiEHlu'iiigla kunr út á Laugardögum. The HeÍMskriugla Ftg. & Publ. Cö. útgefandr. [Pulilátkeiw.] UlUtJárÍBB geymir akki gíBíoai, *»■ eigi T*ría upvtekaaí, og aaitoanik þœr »igi Baua fyri* «bíb- sendiug fylgi. liitstjórÍBB iTarat eng- um bréfam ritstjórB riíkoBaaBdi, í blaðiaa. NafBlausuu brífuaa ar enginn gaamr getB.n. Bn ritatj. *Tar- ar höfundi undir m#rki eða bókatóf- um, ef böf. tiltek. <dík* merki. Uppsögnógild að lögam,nema kaup- andi sé alveg skuldlaus við blafiið. Ritsjóri (Editor): EGGERT JÓHANNSSON. Ráðsmaðr (Busin. Manager): EINAR ÓLAFSSON. OFFICE : Cor. Ross Ave. & Nena Str. Ráðsmanna-skifti. Kri ngumstæðanna vegna hefir herra J. IV. Finney verið knúður til að segja af sér ráðsmennsku prentfé- lagsins, en taka aftur við eiginstjórn á verzlun sinni. Það er ekkert gum þé sagt sé, að enginn hafi áður stað- ið betur í ráðsmennsku-stöðu sinni við hlaðið enn hann. Það er enda •óhætt að segja, að í sumum atriðum að minnsta kosti hefir hann gert bet- ur en nokkur fyrirrennari hans. Það ræður því að líkum, að forstöðu- nefndin sakni hans af starfssviði blaðsins, enda þött hún að sjálfsögðu tæki uppsögn hans gilda, þegar kringumstæður hans voru teknar til greina. Jafnframt og nefndin tjáir hon- um þakklæti sitt fyrir drengilega af hendi leyst starf í þjónustu blaðsins, «r henni ijúft að kunngera vinum blaðsins út í frá, að framvegis öld- ungis eins og að undanförnu mun hún eiga kost á hans góðu [ráðum og samvinnu í nefndinni. Eftirmaður hans sem ráðsmaður prentféiagsins er hr. Einar Ólafsson, flestum kaupendum blaðsins að svo góðu kunnur, að meðmæli vor eru óþörf. Hann hefir áður gengt þeim störfum og leyst þau svo vel af hendi, að þegar Mr. Finney fór frá var það einn maður, og einn einungis, er nefndinni datt í hug sem eftirmaður hans, og það var herra Einar Ólafsson. Að hann fékzt til að takast verkið í fang, er gleðiefni fyrir félagsmenn alla ekki síður en nefndina, sem stjóm félags- ins hefir á hendi. Framvegis eru því viðskifta- menn blaðsms heðnir að snúa sér til herra E. Ólafssonar með öll mál sem blaðið eða félagið snerta og sem ekki koma ritstjóranum við. Bandaríkja-kosningarnar. Hvað var það sem bruggaði de- -mókrötum þennan ægilega ósigur fyrra þriðjudag ? Þessari spurn- ingu vill hver flokkurinn fyrir sig svara upp á sína vísu. Repúblíkar eegja. að almenningur hafi á þessum kjörþingum sannað að rétt sé það, sem þeir halda fram, að demókratar séu ekki menu til að stjóma lýðveld- isheildinni. Populistar segja, að fyrir tveimur árum, þegar atkvæða- skriðan hljóp yfir repúblíka og lagði í rústir, hafi alþýða hugsað að demó- kratar og popúlistar væra eitt og hið sama, nema að nafninu. Á þessum tveimur árum hafi hún nú sannfært um, að það hafi verið grófur mis- skilningur og að hún í hefndarskyni hafi látið atkvæðaskriðuna leggja demókrata í rústir nú. Hvað snertir ummæli repúhlíka, þá má virðast að alþýða hafi ekki •fremur ástæðu til að treysta lýðveld- Isheildinni í þeirra hendur, en í hendurnar á demókrötnm, þegar lit- ið er á stefnuleysi þeirra í þessarri síðustu sókn. Þegar athugaðar eru ræður aðal-leiðtoga repúblíka og sem íbáðir ætla sér forseta-stólinn svona tíö tækifæri, T. B, Reed og Wm. McKinley, þá kernur í ljós, að þeir sögðu aldrei að McKinley-lögin eða önnur slik, skyldu lögleidd aftur. Þeir sögðu skýrt og [skilmerkilega að stjóm demókrata væri óhafandi, en þeir sögðu aldrei, og fóra þeir þó viða og fluttu margar ræður, að þess- ar breytingar eða hinar yrðu gerðar við núverandi toll-lög. Þeir gengu framhjá því atriðiuu og það svo greinilega, að það getur sjálfsagt enginn sagt hverjar fyrirætlanir eru að því er löggjöf snertir. Hvað það mál áhrærir verður þess vegna ekki séð fyrir hverju alþýða hefir geng- ist. Þá gengu og þessir repúblika- jötnar báðir með þögn fram hjá málinu um frísláttu silfurpeninga. Því hefir verið fleygt fyrir endur og sinnum, að Reed sé frísláttunni með- mæltur og að McKinley mundi ekki óviljugur, en þar við situr. Það er engum kunnugt hvort svo er í virki- legleikanum eða ekki, Sú þögn her cinníg vott um vandræði, en sú þögn tjáir eklri lengi, því silfurmálið er stærra mál en svo að framhjá því verði gengið þegjandi, Eftir því sem haldið er á því máli í vestur og suðvestur-ríkjunum, verður ekki langt þess að híða, að það skipar öndvegið, en toll-spurnsmálið óæðri bekk í kosningamálum. Þó sneiddu þessir tveir flokksforingjar hjá því. Má vera þeir hafl ætlast til að dylgj- ur um meðmæli þeirra með fríslátt- unni mundi útvega þeim atkvæði silfur-manna og má vera að sú von liafi rætzt. En víst er það ótrúlegt, að silfur-mennirnir hafi gert sig á- nægða með óljósan orðasveim. Vist er það og, að ekki gat alþýða geng- izt fyrir stefnufestu repúblíka í þessu máli. í austurríkjunum flestum er tekjuskatturinn, sem demókratar lög leiddu á síðasta congressi, óþokka- sæll mjög, Á meðan það frumvarp var fyrir þingi og alt framundir haust andæfðu repúblíkar því tiltæki og gátu aldrei valið þeim lögum nógu ill orð. í öllum ræðum sínum minntust þeir McKiley og Reed al- drei á þessi lög nema í sambandi við alla misgerðaheild demókrata. Þeir sögðu ekki eitt orð um stefnu fiokks- ins í þessu máli, því síður að þeir hugguðu menn með þeirri von, að þessari gjaldbyrði skyldi létt af herð um þeirra undireins og repúhlíkar tækju við taumhaldinu. Þessi þrjú mál, toll-málið, frí- sláttumáiið og tekjuskattsmálið, hafa óneitanlega valdið skörpustum um- ræðum og þrætum í Bandaríkjunum á síðastlíðnu ári, en af ræðum þessara flokksskörunga og viðurkenndra leið toga er ómögulegt að sjá hvað repú- blíkar ætla sér að gera þau áhrær- andi. Stefna demókrata aftur á móti er ákveðin að því er þau snertir. Þar sem þá alþýða hefir svo grimmd- arlega steypt demókrötum úr völd- um eftir tveggja ára stjórn og eftir að hafa barizt við að koma honum í völdin í samfleytt 30 ár, eða um það bil, þá má í fljótu hragði virðast, að hún vilji heldur óvissu, en vissu, stefnuleysi fremur en stefnu. Þó væri það sjálfsagt ekki sanngjörn til- gáta. Sannleikurinn er að líkindum sá, að ekkert sérstakt mál, hversu þýðingarmikið sem það annars er fyrir þjóðina, hefir valdið þessari stórkostlegu byltingu. Það hittist svo á, að um leið og demókratar tóku við stjórntaumunum, gekk harðæris- kafli í garð, og honum fylgdu verzl- ana-hrun, atvinnuskortur og peninga þröng, ef til vill meiri en nokkru sinnl áður, í landinu. Þetta tæki- tækifæri notuðu repúblíkar og allir andvígismenu demókrata, hverju nafni sem nefnast. Harðærið átti að stafa af væntanlegum toll-byltingum demókrata, og mundi það vara svo lengi sem sá fjandaflokkur hafði yfir- hönd á þjóðþingi. Það er enginn efi að þessum sögum trúðu fjölda marg- ir, án þess að athuga 4 hverju þær voru bygðar, og greiddu svo atkv. samkvæmt þessari trú sinni. Þetta mun hafa valdið byltingui.ni fremur en nokkurt flokksspurasmál. Leiði nú eins gott af lögleiddnm tollbreyt- ingum, eins og demókratar vona, er eins líklegt að haustið 1896 byltist repúblíkar úr völdum á sama liátt og demókratar nú. Það má virðast að Canada-menn megi einu gilda hvor flokkurinn er í völdum í Bandaríkjunum, og vitan- lega gcta þeir farið sínu fram, án til- lits til þess, hvernig toll-mál standa í Bandaríkjunum. Eigi að síður er það deginum ljósara, að þeir menn eru engir föðurlands-vinir, er mæla með afnámi tolls í Canada, meðan vemdartollur hannar aðgang að Bandaríkjunum. Vilji Canadamenn halda sínu, eru þeir neyddir til að hafa tolla á meðan Bandaríkjamenn viðhalda sínum toll-múr. Þeir Ca- nadamenn þess vegna, sem æokjaeft ir afnámi tolla, en sem ekki viija búa til annað ísland úr Canada í til- liti til iðnaðar og verzlunar, þeir hljóta að þrá þann dag, að demókrat ar nái meiri festu á veldisstóli Banda ríkja en enn er orðið. Orða-belgrinn. [Öllum, sem sómasamlega rita, er velkomið að “leggja orð í belg;” en nafn- greina verðr hver höf. sig við ritstj., þótt ekki vilji nafngreina sig í blaðinu. Engin áfellis-ummæli um einstaka menn verða tekin nema með fullu nafni undir. Ritstj. afsalar sér allri ábyrgð á skoðun- umþeim, sem koma fram í þessumbálki]- EIN AF TRÚARRATINUM BANDAMANNA. Þegar þingskörungurinn í Cana-. da, Wil fred Laurier, flutti töiu sina i Emerson að kveldi 23. Október síðastl. gátu ritstjórar vors járnklædda hátolla- blaðs—The “Pioneer Express”, með steyptu koparaugun—ekki á sér setið, svo þeir fóru jiorðuryflr b'nuna til að “hlýða orðum hans”. 26. sama mán- aðar gefur blaðið svo látandi skýrslu ■' “Mr. Laurier is a fine speaker, and se- veral of the others, who addressed the audience, made good addresses. Mr, Laurier's orguments for Canadian tree trade, excellent and convincing as tliey were. equally proved the admntage of pro- tection on this side of the line". Greinin ej hér látin óbreytt frá frummálinu, svo að menn geti lagt hana út, hver eftir sínu höfði—hvort sem að betur á við þá “trú” eða skyn- semi! "Sælir eru þeir sem ekki sjá, en trúa þó ”! Democrat. Hnetu-brot. tínd upp af G. A. Dalmann, Minneota Minn. “Það er mín sannfæring að banka- félög einstaklinga séu frelsi voru skað- legri en setulið”, Thomas Jepferson. “Þegar einhver stjórn hefir* sökkt þjóð sinni í skuldir undir vissum forða af löglegum gjaldmiðli og svo vísvitandi dregur saman, minkar téðan gjaldmiðil þá hefir sú stjórn drýgt hræðilegan glæp gagnvart þegnum sínum. Abraiiam Lincoln. “Hefir ekki alríkisþingið va!d til að gefa út peninga samkvæmt grundvallar lögunum? Þvi skyldi þá ekki þingið brúka þessi réttindi allri þjóðinni til gagns og blessunar, heicfur en afhenda þau einstökum fjárglæframönnum, landi og lýð til minnkunar og skaða. Andrew Jackson. “Hafi nokkur ráð á gjaldmiðli ein- hverrar þjóðar, þá hefir sá hinn sami í hendi sinni hennar viðskiftalegu og verklegu framfarir”. James A. Garfiei.d. Han. David A. Wells segir meðal annars í bók,er hann hefir ritað og heit- ir 'The Deciine of American Shipping’, “1856, og þar nm kring, fluttu Banda- ríkjaskip J af öllu vörumagni heimsins og meir en 76% af vorum eigín skipum; síðan!860 hefir þessi auðsuppspretta veri ð dregin úr höndum vorum og held- ur enn áfram. 1881 var að eins 16% af vorum innflutta varningi fiuttur á amerískum skipum; sama ár sýna skýrslur stjórnarinnar, að 73 milj. hush af kornvöru var sent frá New York, en ekki eitt hush. var sent með vorum skipum, En þó er þetta ekki það versta. Vér erum enn verr farnir í til- liti til skipasmíða 1860 áttum. vér skips- rúm í þjónustu útlendra þjóða, er báru 1,300,000 tons. Vér höfum ekki ein- göngu tapað þessari atvinnu fyrir sjó- menn vora, heldur einnig borgum vér útlendingum nú árlega fyrir aðflutning á 84% af því sem við hrúkum af erlend- um varningi. Margir munu segja, að skipasmíði borgi sig ekki, og hafi þvi verið dregið úr höndum vorum að oss viljugum. Því til sönnunar, að það sé ekki rétt á iitið, vil ég benda á árs- sSýrslu þeirra Moss & Co., er fremstir standa af skipasmiðum Breta; þeir segja svo : “Vér þekkjum énga atvinnu grein, er borgar sig betur en gufuskipa- stóll vorra tíma”. Samkvæmt stjórnarskýrslum 1881 má sjá að verzlun heimsins er 14J billí- ón dollars. Ef vér hefðum að eins hald- ið voru og flutt i af þessu vörumagni, eins og vér gerðum frá 56—61, þá hefði vor hluti verið 5 bilj. doll. Nú er viðr- kent af hagfræðingum, að hurðargjald áhyrgð og þessháttar nemi 15%, og liefði oss verið sú inntekt liðlega 730 miljón doll. virði. Til að framkvæma þennan starfa, hefði þurft 3—4 milj. manna, er mundu hafa höggvið stórt skarð í tölu hinna atvinnulausu landsmanna vorra. Hvað veldur svo þessu hræði- lega tapi þjóðar vorrar?” spyr höfundur inn, og svarar svo á þessa leið . “Ástæðan er, að á löghók vorri stendur hin heimskulegasta og um leið hin ranglátasta löggjöf viðvíkjandi sigl- ingum, er nokkru sinni hefir sézt í lög- um nokkurrar siðaðrar þjóðar, Annað atriðið er það. að auðkýfing ar og fjárglæframönnum hefir tekizt með svikum og undírferli af verstu teg- und, er annaststaðar f heiminum mundi hafa verið hegnt sem landráðamönnum —að takmarka peningaforða þjóðarinn- ar svo hægt sé að kreista út úr alþýðu gífurlegri peninga-leigur en á sér stað í nokkru siðuðu landi. Skipasmiðir Bretlands geta lánað peninga fyrir 2 af hundraði, en í þessn landi, landi frelsis og frægðar, þurfa skipasmiðir að horga í peningum leigur 5—8 af 100. Það reiknast svo til, að alfært gufuskip eins og þau eru hygð nú og úthúin kosti því sem nær \ miij. doll. Af því getur hver maður, er kann að reikna, dregið sína eigin ályktun; hann getur séð hvað erviðar kringumstæður skipasmið- ir vorir er u settir í og hversu óhugs- andi það er að þeir geti keppt við Breta í þessari iðn”. Casca, St. John, C. kH. segir í nið- niðurl aginu á riti sínu : “Why are we poor”. “Hver ein og einasta löggjöf, er samþy kkt hefir verið af alþingi þjóðar- innar vi ðvíkjandi gjaldmiðli vorum síð- a n 12. Febrúar 1862, hafa allar stemmt í sömu áttina, að selja frelsi og réttindi nlþýðu samvizkulausum okurkörlum. Ég skal að eins henda yður á fáein af þessum lógutn, er öll hafa verið keypt fyri r vellíðan l.inda minna. Lög viðvíkjandi þjöðar-bönkum, lög, er fyr- irskipuðu eyðilegging stjórnarinnar hréfpeninga og hreyttu þeim í skulda- bréf, er lögðu ógurlega leigubyrði á herðar þjóðarinnar, lög,er lokuðu mint- inni fyrir dollarnum, lög, er sviftu silfr- ið sínu gjaldmiðilslega valdi. en fyrir- skipuðu að gull væri hinn eini lagalegi gjaldmiðill o. s. frv. í nær því það ó- endanlega. Þessi lög með mörgum fleiri hafa gert það að verkum, að klafi hins brezka auðvalds hefir þrengt æ meir að hálsi þjóðarinnar; þau hafa lokað óteljandi atvinnustofnunum og svift miljónir ráðvandra manna heiðar- legri atvinnu. Þau hafa slitið brauðið frá munni harna og kvenna, þau hafa hjálpað til að fylla myrkvastofur lands- ins með mönnum, er var fyrirmunað a ð neyta hrauðs í sveita síns andlitis. Þeirra glæpur var fátækt. Þau hafa drjúgum aukið tölu vitskertra manna. Þau hafa fjölgað sjálfsmorðum og getið af sér glæpi af allri mögulegri tegund, þau hafa hjálpað samviskulausum okr- urum með skattfríum ríkisskuldabréf- um að draga undir sig mestan hluta hinnar framleiddu auðlegðar framleið- andans. Hefir þú nokkru sinni spurt sjálfan þig. hvernig á því stendur að fólk skuli deyja úr hungri í hinu bezta landi heiinsins. þar sem forðabúr eru troðfull af ódýrri matvöru. Hefir þú nokkurn tíma hugsað um það, hvers vegna oss er sagt, að of mikið sé framleitt af þess- ari eða hinni lífsnauðsyn, svo lengi sem fjöldi meðbræðra vorra líður nauð af vöntun þessara sömu nauðs.ynja. Það hlýtur eitthvað aö vera bogið við þessa kenning. Það getur ekki verið of mik- ið til af brauði í landinu, svo lengi að ei tt einasta af börnum þess grætur af brauðleysi og þessi vöntun verður ekki uppfylt. Og svo að endin.u, hefir þú nokkru sinni spurt sjálf in þig, hvað langt fram í tímanum er það, að þú eða börnin þín er þú elskar. líði nauð vegna skorts á lífsnauðsynjum. Hugsaðu vinur, hugs aðu alvarlega, mundu það, að hvert at- vik er þú verður var við í viðburðanna rás, hefir einhverstaðar orsök. Leitaðu óhræddur að orsökinni. Hugsunarháttur, er vill ekki laða sig eftir tímans brennandi kröfum, er skaðlegur eigindómur. Ejöldinn er fæddur og alinn upp í fátækt og niðuriæging. N okkrir erfa auðlegð og eyða dögum sínum í mun aði og iðjuleysi.og enn aðrir eru gerðir stór ríkir með sérplægnum lögum. Vér hallmælum Gyðingum fyrir gullkálfssmíðið og tilbeiðslu hans, en höfum ekkert að setja út á gullkálfs- dýrkendur vorra daga. “Sjáandi sjá þeir ekki”. Hve sláandi sannleikur. Annaðtveggja verður innan skamms, að stjórn þessa lands tekur járnbraut- irnar undir sína umsjón, eða járnbrauta félögin gleypa stjórnina með öllu sem henni tilheyrir. Hvort vildir þú heldur kjósa sfcm meðlimur stjórnarinnar ? Hæsti dómstóll landsins hefir ný- lega úrskurðað, að Philadelphia & Erie járnbrautarfélagið skuli ekki greiöa ríkinu eignaskatt, er lagður var á inn- borgaðan liöfuðstól þess og nam með rentum $200,000. Taktu vel eftir þessu og athugaðu hvað þér þykir ísjárvert við þennnan úrskurð. Getur þú bent á atriði í sögu landsins þar sem bóndi eða daglaunamaður hafa ekki þurft að greiða skatt af sínum skattgildu eign- um ? og jafnvel þó eignirnar væru veð- settar einhverjum auðkýfing? Og samt segir þú að lýðveldinu sé engin hætta búin frá hendi miljóna-eigend- anna. Það kostaði járnbrautarfélög vor síðastliðið ár $14,000.000, að undir- halda lögmenn til að koma í veg fyrir að alþýða næði rétti sínum. $10.000,- 000 fleygðu þau í stórblöðin, til þess að draga sinn taum og fela sannleikann fyrir lesendunum. Getur þú bent á nokkurt atvik, er likist þessu? í sam- bandi við póstafgreiðslu-athöfnina, sem er þó mörgumsinnum yfirgripsmeiri en nokkurt járnbrautarfélag, eitt er at- hugavert og það er, hinn fátæki þarf ekki að borga meira fyrir póstmerki en liinn ríki, í einu orði sagt, hinum fá- tæku er þjónað eins vel og auðkýfing- um. Væri ekki vel til fallið, að alþýöa hugsaði nokkuð alvarlegar um þetta efni ?” St. Paul Globe. (gnllkálfs-hlað). Þ að eru í Bandaríkjunum 8190152 fjölskyldur, er ekki teljast með hænd- um. Af þessari upþhæó eru lítið fleiri en 2000000 er búa í sínum eigin húsum og þess utan má taka það til greina, að f jöldi af hinum síðasttöldu eiga he:mili sín að eins að nafninu, þar þau eru veð- sett einhverju okurfélagi. Skyldi það vera fjarri sanni að spyrja: Hvar munum vér lenda ? St. Paul Globe. Þeir lögmenn, ritstjórar, prestar og stjórnmála-skúmar, er feröast með járnbrautum fyrir ekkert, hafa ekki nokkuð að setja út á núgildandi fram- komu félaganna gagnvart almenningi. Skyldi það ekki eiga sér stað, að þeir selji sína sannfæringu fyrir lítilfjörleg- an greiða ? Ekki alls fyrir löngu heyrði ég á taj prests nokkurs. Hann var ungur og gáfulegur maður og mjög fríður sýnum. Hann var nýkominn úr langferð og hafði dvalið um tvær vikur i Chicago, þegar mest var talað um' verkfallið m ikla. Honum fórust orð á þessa leið: “Þaðeru margar þúsundir í horginni, er ekkert hafa að lifa af yfir næst- komandi vetur, og ekkert geta fengið a ð gera, því félögin, er þeir unnu fyrir áður, vilja ekki taka þá í þjónustu sína. Þau hafa fyrirkomulag, er þau kalla “Black list”, sem hver maður er settur á. er mestan þátt tók í verkfalhnu eða var embættismaður í einhverri deild vinnufélaganna, og hver sá maður, sem var settur á þennan “Black list”, getur ekki fengið atvinnu hjá nokkru járn- brautarfélagi um þvert og endilangt landið. Ég hefi enga meðlíðun með þessum mönnum. Þeir hafa engan rótt til að gera verkfall, Auðvaldið hefir réttindi er verður að athugast fyrst og síðast. Það eru auðfélögin, er hafa gert land vort það sem það er”. Það er san narlega merkilegt”, svaraði ég •‘að heyra iærisvein hins fátæka meist ara tala eins og þú talar. Þú hefir enga meðlíðun með hinum hungruðu meðbræðrum þínum, þú finnur ekki til neinna ónota, þó þú hugsir þá klæð- 1 ausa, hrakta stað úr stað í hinu vægð- arlausa vetrarfrosti, sem erþó í sann- leika talað töluvert mildara en hjarta sumra þeirra dýra, er vér köllum mann. Þú álítur glæpi þeirra stærri en •að þeir séu fyrirgefanlegir. Og hvaða gl æpi hafa svo þessir menn drýgt ? Þá, að þeir reyndu að verjast með vopnum þeim, er fóndur þeirra brúkuðu, þeir gerðu samtök í því skyni, að varðveita auðjegð sína—vinnukraftinn—gegn auð valdinu, er myndað heíir verið með sveita fyrirrennara þeirra og þeirra sjálfra, og hlutdrægri löggjöf. Vinur minn! Berðu afstöðu þína gagnvart þeim er*lifa á handafla sínurn saman við orðin, er þú að öllum iíkindum les daglega : “Fyrirgef oss vorar skuldir o. s. frv.”. Þcgkr ég sleppti þessum orðum, stóð nann upp, bauð okkur góða nótt og sagði um leið og hann gekk út: “Þó ótrúlegt þykí, þá hefi ég aldrei skoðað málið frá þessu sjónar miði”. Ég er sannfærður um að mað' urinn var að náttúrufari góðmenni, en hið viðhjóðslega aldarfar hafði deytt í honum tilfinninguna fyrir þvi sem helg- ast er í mannfélaginu—bróður-kærleik- ann—* Þú sem ert andvígur hinum nýja flokki, hefir þór nokkru sinni komið til hugar, að enginn járnbrautarkonungur enginn kola-barún. enginn bankaeig- andi, enginn, sem heldur fram, að ein- okun sé affarasælasta aðferð fyrir al- menning, enginn, sem safnar auð fjár af ólaunuðu erviði meðbræðra sinna ; enginn þeirra er populisti, þeir bann- færa fjTi- og seinn hinn nýja flokk. Getur það skóð, vinur, að þú, sem ’innur fyrir lífi þínu sem heiðarlegur borgari, byggir hatur þitt á sama grundvelli og íðjuleysingjarnir í Wall Street gera ? Heldur þú það geti ekki skeð, að þú hafir verið svíkinn í trygð- um? Hugsaðu alvarlega um það, hvort það geti skeð, að velferð þín og iiugur iðjulausra auðkýfinga sé hið sarna. At- hugaðu söguna og vittu hvertþú finnur dæmi þar, að auðvaldið hafi nokkru siuni beinlínis gert nokkra réttarbót. Það er skylda þín sem borgara að byggja þína pólitísku trú á eigin rann- sókn, en ekki annara sögusögn. Legtu það sem allar liliðar hafa að segja, en um fram alt hugsaðu. Hvort boðið verður tekið? Hinar canadisku húsmæður þurfa að framkvæma lieilmörg nauðsynja- verk á tveimur eða þremur næstu mán- uðum. Þær gera verkið sjálfar, en efnið verða þær að fá að. Þaðeru margir, sem bjóðast til að leggja það til og þó undarlegt sé, allir fyrir sama verð. Það sem þá liggur næst fyrir að skoða, er efni og innihald þessara til- boða. Margir lofa Iþessu eða hinu, en þegar til framkvæmdannn kemur, geta þeir ekki staðið við þau, og við það lirynur álit almennings á þeim og þeirra boðum. Það er samt til eitt tilboð—frá Diamond Dye—, ohætt er vegna reynsl- unnar að reiða sig á það. Vilji þið reyna Diamond Dye, sem margsannað er að só hinn bezti litur. eða ættu þið að reyna eitthvað nýtt, er engin sönnun er fyrir að sé að neinu gagni. Frásaga prestsins. EITIRTEKTAVERT SAMTAL VIÐ SÉRA W, J. CHAPLIN. Af áreynslu í prédikunarstólnum var hann orðin heilsulaus.—Hvernig sjukdómnnm var hagað og hvernig hann komst til heilsu og gat sint skyldum sínum. Tekið eftir Springfield Journal. í hinu fagra þorpi Chatham, 111., býr baptista prestur einn, sem ekki ber á sér önnur merki þess að hann sé yfir sjötugt en hinar snjóhvítu hærur sínar. Hin skarpa sjón hans, fjöruga sál og hi n hkamlegi kjarkur bera öll vott um reglusamt líferni, Þessi frumherji i drottins víngarði er séra W. J. Chaplin, sem nú er 72 ára gamall og e» frum- smiður að mörgu kristilegu góðverki. I samtali við blaðamann einn, sem mæltist til að fá að heyra eitthvað af æfisögu séra ChaplÍDs; Jsagði hann að þrátt fyrir það þó hann liti hranstlega út nú, hefðisamt enganvegin altsittlif verið sólskinsdagar. “Eins og bygging mín sýnir var það uppr unalega mitt hlutskifti aðhafa hraustan og sterkan hkama. En eins og oft kemur fyrir, hrepti ég oft mjög mikla áreynslu á heilsu miua og gáði um seinan að því að ég hafði því nær tæmt heilsu mínnar bykar. Þetta var fyrir átján árum. Um það leyti þurfti ég að gegna prestsverkum i prédikunar- stólnum, en ég varð að hætta áður en ræðan var ó enda. Sjúkdómurinn var skaðlegt taugaveiklunar-aðsvif, og nm langau tíma var mér mér ekki ætlað hf. Eg varð algerlega að hætta öllu starfi og til reynslu afréð ég og Mrs Chaplin að taka okkur stutta ferð á hendur til hressingar. Mér skánaði svo að ég gat tekið til starfa aftur, en náði mér þó enganveginn til fulls. Mér fanst ég vera andlega og líkamlegt þrot. Ég hafði mist svo vald yfir sjálfum mér að ég misti stundum pennann úr hendi mér máttvana. Síðastl. vor bættist þar ofan á, ég fékk ákafa influenza. Ég náði mér nokkuð aftur, en þjáðist samt alt af annaðslagið af árásum þessarar veiki og hinum slæmu afleiðingum henn ar. Ég leitaðist við að fá mér meðul við þessu og að lokum sá ég frásögu um Dr. Williams Pink Pills for Pale People Þær áttu við mig svo ég fór að brúka þær, þær styrktu mig þegar frá byrjun og læknuðu svo hina áköfu taugaveikl- un svo ég gat farið að gegna prestsverk um aftur. Batinn var stór-merkilegur, og algerlega að þakka Dr.Wilhams Pink Pills. Mrs. Chaplin var viðstödd og sagði: “Ég heid að Mr. ChapHn hefði aldrei orðið fær til að sinna prestverkum eftir að hann fékk influenza-aðsvifið, hefði hann ekki farið að brúka Dr. Wifiiam’s Pink Pills. Þær bættn honum svo vel, að ég afréð að reyna þær sjálf. Eg hefi í mörg ár þjáðzt af því sem læknar kalla gigtarflog, en síðan óg fór að brúka pillurnar, hefi ég verið laus við þær þjáningar að kaila má. Við höfum ætíð pillur á heimilinu og brúkum þær vlð og við til að liressa og styrkja lik- amann. í öllum iíkum tilfellum er nú liafa verið nefnd eru Pink Pihs óyggjandi; þær hafa beinlínis áhrif á blóðið og taugakerfið.—Seldar af öllum lyfsölum og sendar með pósti fyrir 50 cents askj- an, eða $2,50 6 öskjur, frá Dr. Williams Medicine Company. Brockville, Ont., eða Schenectady, N. Y.—Varið ykkur á eftirstælingum, sem sagðar eru “al- veg eins góðar”. KIRKJUBLAÐIÐ mánaðarrit handa íslenskri alþýðu, 15 arkir á ári auk 5 nr. af Kristileg- um Smáritum (gefins) árg. 60 cts. Útgefandi Þórhallur Bjarnarson, forstöðumaður prestaskólans í Reykja- vík. Sendið 1 dollar til útgefanda og þér fáið næsta árg., 1895, með Smáritunum, og að auki sent um hæl alt sem út er komið af Kbl. og fylgiritinu. Samtais um 75 arkir. Þetta boð stendur til Janúar- loka næsta árs. Reykjavík, 16. Okt. 1894. ÞÓllHA LL UR BJA RNA ltSUN.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.