Heimskringla - 25.10.1895, Blaðsíða 1
IX. ÁR.
WINNIPEGr, MAN., 25. OKTÓBER 1895.
NR. 43.
FRETTIR.
DAGBÓK.
FÖSTUDAG 18. OKTÓBER.
Gufukatlar sprungu í skipi við
strendur Kínlands í gær og fórust þar
600 manns.
Óánægja megn meðal conservativa
í Montreal af því sambandsstjórn skip-
aði írsk-kaþólskan mann, J. J. Curran,
yfirréttardómara í Quebec. Móntreal-
menn vildu fá prótestanta í það em-
bætti.
í þorpinu Dartmouth (fyrir handan
fjörðinn gegnt Halifax í Nýja Skot-
landi) á hver landeigandi sjálfur að
meta eign sína til skatt-álögu. Þar til
búin eyðublöð verða send hverjum land-
eiganda og er hann skjddur að fylla þau
upp eins og fyrir er sagt og staðfesta
framburð sinn um virðinguna með eiði.
Fregn frá Konstantínópel segir að í
gær hafi soldán staðfest samninginn við
stórveldin áhrærandi stjórnarbætur í
Armeniu. — Samtímis kemur þaðan
fregn þess efnis, að veldi Tyrkja sé
komið að því að grotna sundur sökum
innbyrðis ófriðar. Óánægjan með alt
stjórnarfyrirkomulagið er sögð að fara
dagvaxandi og þá og þegar von á al-
mennu upphlaupi. Stjórnin hvað vita
um fyrirætianirnar og býr sig til að
verjast og hneppir menn nú í fangelsi
hópum saman fyrir samsæristilraunir.
Formenn heimssýningarinnar, sem
fyrirhugað er að halda í Parísarborg ár-
ið 1900, eru þegar farnir að senda út
boðsbréf til annara þjóða um að taka
þátt í sýningunni. Fjölda margir Par-
ísarbúar vilja ekki hafa sýninguna og
vinna móti henni af alefli.
Allsherjarfund til að ræða um
stjórnmál m. fl., héldu svertingjar
Bandaríkja í Washington síðastl. daga.
Þar var samþykt að fylla flokk repúbl-
íka.
LAUGARDAG 19. OIvT.
Þrjátíu Mormóna-prestar fóru af
stað frá New York til Evrópu í dag.
Eiga þeir að boða trú sína í Norðurálfu
um næstu 2 ár.
Bretastjórn heimtar $200,000 að
Belgíu-stjórn fyrir Englendinginn,
Stokes, sem drepinn var í Kongo-land-
inu í Afríku í sumar. •
Spánverjar eru farnir að óttast að
Bandaríkjastjórn viðurkenni uppreist-
arflokkinn á Cuba og eru nú að búa sig
undir að senda þangað herskipaflota
undireins þegar eyjarskeggjar hafa
fengið viðurkenniugu.
Eftir því sem tyrknesk blöð segja
verða stjórnarbæturnar í Armeníu, sem
Tyrkjastjórn þorði ekki annað en lofa,
þó seint væri, meiri í orði en á borði.
Thotnaa A. Johns*
Algengur sjúkdómur,
Læknast til fulls með
Sarsa-
AYER’S
SAGA ÖKUMANNSINS.
Ég þjáðist í átta ár af útbrotum. Á
þeim tíma reyndi ég mörg meðöl sem
höfðu fengið orð á sig, en mér batnaði
ekkert við þau. Að lokum var mér ráð-
lagt að reyna Ayer’s Sarsaparilla, og var
mér sagt að ég þyrfti að minsta kosti sex
flöskur og að ég yrði að brúka meðalið
samkvæmt forskriftum. Ég lét undan,
keypti sex flöskur og brúkaði úr þremur
þeirra án þess að ég findi til bata. Aður
en óg var búinn úr fjórðu flöskunni,
voru hendurnar á mér orðnar
útbrotalausar
eins og þær voru áður. Vinna mín, sem
er keyrsla, útheimtir oft að ég sé úti í
kulda og vosi vetlingalaus, en samt hefir
sjúkdómurinn ekkert gert vart við sig
af nýju.— Thomas A. Jonbs, Stratford,
Ont.
AYRR’S nw thn—maparilla
VIÐRKEND Á HEIMSSÝNIGUNNI.
Ayers Pills hreinsa innyflin .
Selaveiðafélögin helztu í Bandaríkj-
um og Canada, hafa nú gert út mann
einn, Capt. Hughes frá Victoria, B. C.,
til að athuga selaveiðastöðvarnar í suð-
urhöfum. Fer hann til Ástralíu, leigir
þar skip og menn og heldur suður í ís-
haf. Er tilgangurinn að hafa veiði-
menn félagsins í Behringssundi og fyrir
norðan Japan á sumrum, en í suðurhafi
á vetrum.
Stigamenn eru á hverri þúfu í Chi-
cago og ræna menn í hópum á kvöldin.
Svo mikið kveður að þessu að 300 manns
hafa verið teknir fastir og lögregluþjón-
arnir hafa fengið skipun um að hafa tal
af öllum mönnum er þeir sjái á ferð eft-
ir miðnætti.
MÁNUDAG 21. OKT.
Rín-fljótið á Þýzkalandi hefir ekki
í manna minnum verið eins vatnslítið
og það er nú.
Fyrrverandi forseti Grand Trunk
járnbr. fél. í Canada, Sir Henry Tyler,
segir að Panamaskurðinn megi fullgera
fyrir $100 milj. Hann er nú í Panama
á ferðinni til Venezuela þar sem tilgang-
urinn er að byggja járnbraut í bratta
miklum og sem ætlast er til að raf-
magnslestir eingöngu gangi eftir.
írski óróaseggurinn Timothy Healy
hefir nú verið gerður rækur úr þing-
mála-flokki McCarthys, en Tim. upp-
gefst ekki fyrir það. Nú er hann að
efna upp á félag til að gefa út dagblað
í Dublin, er svikalaust á að halda fram
hans sérstöku skoðunum í írlands-mál-
um.
Kínverjar eru farnir að hugsa um
járnbrautarbyggingu. Verkfræðingur
frá Belgíu, Paul de Hees, kom að aust-
an til Victoria, Brit. Col. í gær. Hefir
hann fullgert 15 mílur af járnbrautum í
Hankow, til notkunar við járnver^
smiðju mikla. Hann hafði og gert
uppdrætti af braut með öllu tilheyrandi
og áætlun um kostnaðinn við að byggja
hana á milli Canton og Peking. Gerði
ann það að boði Kína keisarans.
í stað þess að draga burtu lið sitt
af Liao Tung-skaganum eru Japanítar
að auka herinn og byggja stórkostlega
hermannaskála að Wei-Hai-Wei. Jap-
anstjórn segir þetta stafi af því Rússar
hvorki greiði $30 milj. eða framleggi
tryggingu fyrir því að upphæðin verði
greidd undireins og herinn fari.
Peningarnir til að byggja British
Pacific járnbr. (frá Victoria norður
Vancouver-eyju og austur um fjöll til
Edmonton) eru nú sagðir til. Stendur
aðeins á því að British Columbiu-stjórn
og Victoria.bæjarstjórn ábyrgist vöxtu
um ákveðið tímabil af ákveðnum hluta
höfuðstólsins.
Venezuela-þræta Breta er vand-
ræðamál orðið fyrir Breta og Banda
rikjamenn. Hvorug stjórnin vill láta
undan.
ÚRIÐJUDAG 22. OKT.
W. B. Scarth frá AVinnipeg var í
gær kjörinn eftirmaður John Lowe’s
sem aöstoðarráðherra akuryrkjumál-
anna, í Ottawa. Hann tekur við starf-
inu 1. Des. næstk.
Nú er uppkomið að í sumar þegar
Englendingurinn, Stokes, var drepinn í
Kongo-ríkinu í Afríku, var Bandaríkja-
maður einnig drepinn, að boði Bclgíu-
herstjórans.
Fellibyljir valda stór-miklu eigna-
tjóni á Cuba. — Ofsa veður meðfram
Nýja Skotlandsströndum og á Law-
rence-flóa, orsakar skipreka marga.
Jónatan md vara sig! Eitt málgagn
Spánverja á Cuba segir að undireins og
þeir hafi yfirbugað Cuba-uppreistina
ætli þeir að senda herskipaflota til New
York og herja á “barbara-þjóðina!
Segir óumflýjanlegt að kenna ‘ ‘Yankees”
éina lexiu!
í gær voru liðin 90 ár fráþviNelson
sjóvíkingur Breta féll í Trafalgar-or
ustunni. I minningu þess var minnis-
stöpull hans á Trafalgar-torginu
Lundúnum skrýddur blómsveigum
Skip hans: “Victory,” sem viðhaldið
er á höfninni í Portsmouth, var einnig
skreytt blómum hátt og lágt. Er þetta
í fyrsta skifti að þessarar orustu hefir
þannig verið minst.
Bretar segja að þeir einir geti samið
við Venezuela-menn og að Bandaríkin
geti ekkert aðgert og hafi heldur enga
ástæðu til þess.
MIÐVIKUDAG, 23. OKT.
Sannfrétt er að Koreu-drottningin
sem hvarf um daginn, var myrt. Fað-
ír konungsins er valdur að því og öllum
óeirðunum. Sem stendur er hann ein-
valdur, og konungur sjálfur ráðalaus
og hræddur um lif sitt fyrir karli.
í gær afréðu Kínverjar að borga
Japanítum lausnargjald Liao Tung-
skagans—$30 milj. Áður en þeir borga
leita þeir samtsamþykkis stórveldanna.
Auka-kosningar til fylkisþings fóru
fram í einu Montreal-kjördæminu í gær
og unnu liberals með 1254 atkv.mun.
V’ið síðustu almennar fylkiskosningar
unnu conservatívar í sama kjördæmi
með 461 atkv.mun.
Nafnkunnur ítalskur visindamaður
Ruggerio Bonghi að nafni, er látinn í
Rómaborg, 67 ára gamall,
Stjórn Rússa hefir samið við Car-
negie-járnsmíðisfélagið í Pittsburg, Pa.
um að smíða mörg hundruð tons af her-
skipa-brynjum fyrir sig á ákveðnu
tímabili. Vegna óeirðanna eystra ætla
Rússar að auka herflota sinn að mun og
hafa þeirra eigin verksmiðjur nú ekki
undan að búa til brynjurnar fyrir
skipin.
I gær varð alsnjóa á Skotlandi og í
norðvesturhéruðum Englands.
Kólera er óðum að réna í Japan,
en þó drepur hún svo hundruðum
manna skiftir á sólarhringnum enn.
FIMTUDAG, 24. OKT.
Leó páfi 13. er heilsulasinn mjög og
segja læknar hans að hann muni ekki
lifa af næsta vetur.
Sagt er að Canadastjórn hafi ákveð-
ið að senda rannsóknarnefnd norður að
Hudsonflóa næstk. sumar,
Jafnvel Arkansas-menn vilja ekki
liða barsmíð þeirra Corbetts og Fitzsim-
mons og virðist nú engin von til að
þeir fái að reyna sig á þeim tíma, er á-
kveðinn var—31. Okt.
Eitt félagið enn ertilorðið, að nafn-
inu, í St. Paul, Minn., sem ákveður að
byggja járnbrautfrá Duluth til Winni-
peg. Höfuðstóll þess félags er $100.000
og nær heldur skammt.
Tyrkir eru nú farnir að vinna að
umbótum þeim í Armeniu, sem þeir
um daginn neyddust til að lofa.
Fregn frá Port Townsend í Wash-
ington-ríki segir að eldsumbrot séu í
Olympic-fjallgarðinum norðvestarlega,
en sá fjallgarður liggur eftir skaganum
milli Puget-fjarðar og Kyrrahafs.
Glatid ekki
timanum.
Breytilegt liaustveður
eyðileggur oft meðöllu
hcilsu gigtveikra.
Celery Compound
læknar gigtina, ekk-
ert jafnast á wið það,
að útrýma þessari
voða veiki.
Gamlir menn, sem leno i
hafa þjáðst af sjúkdómi
þessum, verða hraustir
og heilbrigðir.
Herra William McWilliams frá
Bradford, Ont., skrifar á þessa leið um
sjúkdóm sinn:—
“Án þess nokkur óski þess, rita ég
vitnisburð þenna um Paine’s Celery
Compound Ég er roskinn að aldri, og
var mjög þjáður af gigfveiki, og keypti
ég loksins og tók inn þrjár flöskur af
meðali yðar og er nú oröin alveg lieil-
brigður., Gigtin öll er farin.
Hið ofanritaða er að eins sýnishorn
af sönnunum þeim. sem læknað fólk
kemur með í hverri viku.
Vér viljum að eins tala fáeinum að
vörunar orðum til allra þeirra, sem
kveljast af sjúkdómi þeim, sem gerir
lífið að hörmunga byrði.
Hinn hættulegasei timi ársins stend-
ur nú yfir; þaðþarfekki að eyða orðum
um það. Vindarnir eru nístandi kaldir,
loftið er saggasamt, þungt og óhreint
og verkar það á allar tegundir gigtveiki
og kemur mörgum manninum í gröfina
eftir þungar og langar kvalir.
En herðið upphugann allir þér.sem
gigtveikir eruð. Þó að læknarnir og hin
vanalegu meðul hafi brugðist, þá skul
uð þér minnast þess, að þér hafið enn
ekki reynt Paine’s Celery Compound
Þetta undursamlega lyf hefir gert að
nýjum körlum og konum þúsundir
manna, sem læknarnir voru húnir að
segja að væri ólæknandi. Það bæði get
ur og mun færa yður sönm blessun, ef
að þer reynið það og brúkið það rétti
lega um tíma. Sjúkdómur herra Mc
Williams lét ekki undan neinum öðrum
meðulum, en Paine’s Celery Compound
þaðbar algerðan sigur úr býtum og
teisti hann upp til nýs og farsælls lífs
Far því og fylg dæmi hans.
Jotyt^ jof ft^e í^eumati^m
ar|d JMugcula
Paing agaiqe^
" V/hy rjof” MJ
, jr7rHc2)YL.f'
\ f»(enti|ol Plagfer.j
1 ray wifcjot me
1 one. il'cured
like magic
For a lonjj lime I sufTered with Rheumatism in
the Bnok so severely tiiat I could not even sit
straijrht. Mv wife ndvised a D. & L. Menthol
Plaster. 1 tricd it and was booii jtoíiij; about all
rijrht.. S. C. Huntkr, Sweet’s Corners.
Prico 25c.
Islenzk smásaga.
Eftir Frey.
Niðurlag.
hefð mín.....”, “og höggin sem leiðstu
hressa mig.....” o.' s. frv. Messan
var afar-löng og ekki trútt um að fólki
væri farið að leiðast. En ég notaði
tímann til að virða fólkið fyrir mér, og
svo gerðu fleiri. Ég t. d. mætti oft
augum sem sýndust vera að leita að
mér. Ég sat upp á söngpallinum rétt
hjá organistanum og hafði þaðan bezta
útsýni,
Eftir messuna skeði það vanalega,
fólk fór að heilsast. síðan að taka af sér
bryddu skóna og láta upp leðurbullutn-
ar og fara í utanhafnar-leistana og
brjóta upp á buxnaskálmurnar, eða
láta þær ofan í leistana. Stúlkurnar
að brjóta upp á yzta pilsið, svo milli-
pilsbekkurinn sást með sínum mörgu
og fögru litum. Þau bekkjapils gáfu
lítið eftir hvítu millipilsunum hérna,
sein vér sjáum stundum niður undan,
einkum þá þau eru á ferð í for. Þegar
fólk var ferðbúið fór það að sammælast
og áttu þá ýmsir ssmleið, sem nærri
má geta.
Ég átti samleið með hóp af fólki.
og þar var vina mín ein á meðal. Ég
tók í hönd hennar og studdi hana yfir
þýfða móana og grýtt holtin. Samtal
okkar var blátt áfram, og skal ég segja
yður það helzta af því með sögunni, það
er guðvel komið. Hún sagði við mig i
sinum vanalega milda róm : “Og í
vor fjarlægist ég, vinur minn”. “Það
er rétt”, svaraði ég og dróg niðri í mér;
mér þótti litið til þessarar fréttar koma
Þú verður að halda áfram að skrifa
raér; viltu muna það ?” mælti hún og
þagnaði svo, einsogliún hefði sagt alt.
“Ég get ekki gleymt því, þó þú bæðir
mig”, svaraði ég henni, “en þú skrif
ar mér aftur, ég þarf ekki að minna
þig á það”, bætti ég við. “Nei”, svar-
aði hún lágt, og þrýsti fast um hönd
mína og hallaði séi þéttar en áður upp
að síðu minni. Eg leit framan i hana
og mætti augum hennar bláum og
blíðum, sem tindruðu eins og þau voru
vön. En þó hafði mér aldroi fundizt
þau eins innihaldsrík og um leið dular-
full og nú. Og aldrei hafði tillit þeirra
gengið eins í gegnum mig og nú. Mér
varð hverft við, er við vorum komin
heim að bænum. Ég hefði kosið að við
hefðutn verið á miðri leið. Svo fannst
mér ferðin skemtileg þetta sinn; það
hefir kanske verið af því, að þetta var
í seinasta sinni sem ég átti von á að
verða henni samferða fyrst um sinn.
Svo leið óttalegur eilífðar tími alt
fram á útengjaslátt. Vina mín var
fjarlæg, ég fór aldrei til kyrkju, en
erfiðaði dag hvern fyrir lágu kaupi, og
strangasta erfiðið var að þreyja sunnu-
dagana. Eitt kvöld er ég kom af
engjum fékk ég bréf; ég las það undir
skitna glugganum við púltið mitt; það
var frá vinu minni. Eg bjóst til aö
svara því strax áður sólin gengi undir.
Ég var sem sé búinn að borða mig sadd
ann af 3 mörkum af íslenzkum mjólkur
graut, sem er kallaður vökvun þegar
hann er þunnur. Húsfreyja hafði lok-
ið við að skamta og var að taka til í
rúminu sinn. Vinnukonan, sem hafði
orðið að hlaupa svo tindilfætt með skál-
arnar alla leið framan úr búri og inn í
baðstofu um kvðldið, mátti nú fara
fram aftur og gefa hundinum. Hann
hafði ekki verið viðlátinn, er skamtað
var, því þá riðu sóknar-presturinn og
hreppstjórinn hjá, og gelti rakkinn
meö lengra móti sem von var, við
svona dýrðlegt tækifæri. Húsbóndinn
sem var sannkristinu síðskeggur, vildi
ekki kalla hundinn inn, honum þótti
æfinlega ánægja að því að heyra hann
Umhugsunarefni
Fyrir alla!
Það er ekki það sem menn innvinna, heldur það sem
menn leggja upp, sem dregur um. Ef þér leggið
trúnað A þetta, þá er gagnlegt að lesa alla eftir-
fylgjandi auglýsingu. Hún sýnir yður mörg
tækifæri til að leggja upp peninga.
Drengja yfirhafnir úr þykku “nap”-
klæði, i dag á $2.50—$3.00; venjulegt
verð þeirra $4.00 og $5.00.
Drengja j firhafnir með “cape.” í dag á
$2.75; venjulega verðið $4.50.
Yfirhafnir fyrir unglingspilta, með
stormkrögum á, í dag $3.90; venju-
lega verðið $6.50.
Haust yfirfrakkar fyrir unga menn,
með flöjelskraga, á $4.50 að eins, —
eru $7.00 virði.
Karlmanna yfirhafnir, fengnar til
reynslu, á $5.00, —eru $8.00 virði.
Alklæðnaðir karla úr “Serge,” alull,
góðra $10,00 virði, á $6.00.
Alklæðnaður karla, úr “Union Serge,”
er aðrir fatasalar selja á $5.00—í dag
á $3.50.
Alklæðnaður karla, úr þykku canad-
isku vaðmáli, vel $10.00 virði,— i dag
að eins $6.00,
Alklæðnaður úr sérlega vönduðu
skozku vaðmáli, er aðrir fatasalar
selja á $15.00,—í dag bara $9.00.
Alklæðnaður, skraddara snið, úr svörtu
“Worsted,” er aðrir selja á $17.00,—
í dag bara $11.00.
Yfirkápnr úr írsku “Freize,” vel $17.00
virði,— í dag bara $11.00.
Yfirkápur úr canadisku ‘Freize,’ er áð-
ur voru seldar á $7.50—í dag $5.00.
Alklæðnaður unglingspilla úr 'Tweeds’
og ‘Cheviots’; vel $8.50 virði — vér
seljum þá í dag á $5.00.
Stakar drengjabuxur úr ‘Tweed’ og
‘Serge’; í dag bara 50c., vel 75c. virði.
Alklæðnaður drengja úr ‘Tweed’; al-
ment seldir á $2.00,—í dag bara $1.50
“Sailor Suits” fyrir drengi; venjulega
verðið $1.75; —í dag að eins 90 cts.
“Pea-Jackets” fyrir drengi, venjulegt
verð $3.00 ; — i dag bara $1.90.
Verkamannabuxur í dag á 90 cts.,
venjulega verðið á þeim er $1.25.
Þykkur og hlýr nærfatnaður, parið á
90 cents.
Úrvals allullar nærföt, parið á $1.00,
að eins í dag.
Ágætu röndóttu nærfötin. parið vel
$2.00 virði,— í dag bara $1.35.
Hin óviðjafnanlegu nærföt úr skoskri
lambaull, — parið á bara $1.75, vel
$2.50 virði.
YFÍRHAFNM.
Vér höfum keypt stórslatta af vöra-upplagi
J. W. Mackedie, auk birgðanna frá hinum
öðrum nafnkunnu verkstæðisfélögum, alt fyrir peninga út í hönd, og þar
af leiðandi með stór-niðursettu verði. V(>r erum þess vegna í beztu kring-
umstæðum til að gefa bæði óvanaleg kjörkaup og bjóða úrvals-vörur á
komandt haust og vetrarmánuðum.
nr. Joseph Skaptason vinnur í búðinni, og væri honum stór á-
nægja í að spara löndum sínum nokkra dollara er þeir þurfa að fá sér föt eða
eitthvað er til klæðnaðar heyrir. Komið inn og spjallið við hann.
515
og
517 Main Str.
/ while
PYNY - PECTORAL
brinps quick relief. Cures all ir.-
flairunation of the bronchial
tubes, throat or ohest. No un-
certainty. Relieves, soothes,
heals promptly.
A Large Bottlc for 25 Cents.
SAVIS d LAWRENCE CO.: LTO.
PROFRIETORS.
MONTREAU
gelta. Smalamaður, sem var aldraður
matunnari, lá nú upp á rúmi sinu rop-
andi, en ætlaði að fara að hátta. Ég
sat sem fyrr sagt undir glugganum
mínum og ætlaði að fara að skrifa. Ég
bjrjaði á að svara vinu minni, og á-
varpaði hana: Vina mín. Ég var
aldrei vanur að hafa margbreyttar
kveðjur, [en orðaði sérlivað eins blátt
áfram og ég kunni. Orðið, vina, var
mitt helgasta orð, því það bezt, sem ég
þekkti, var vina mín. Og ég unni
henniþá meir en nokkru öðru í heimin-
um. En kviklyndið er aðal-kostur
æskunnar; að geta gleymt er nauðsyn-
legt fyrir heiminn. Annars væri lífið
sífeld sorg og söknuður. — Og nú hefi
ég gleymt henni hér um bil, og hún lík-
ast til mér; þó g®ti það verið, að hún
ætti enn þá litla kvæðið sem ég orti um
hana, áður eu ég fermdist, og- hún
rændi af mér.
Ég gat ekki skrifað meira. Mér
fanst mér leiðast lífið þá stundina og
hugrenningar minar væru langtum
myrkari en svo, að ég gæti skrifað um
þær. Um sjálfan mig reyndi ég þó að
skrifa henni, því engar voru fréttir.
Nei, ómögulega gat ég skrifað nieira og
studdi hönd undir kinn og heyröi varla.
er griðkonan bjástraði við að búa
rekkjurnar eða þrifa til. Birtan var að
þrjóta; ég hætti við að skrifa langt
bréf og sagði henni í eftirfarandi ljóði
hvernig mér leið :
Á loftinu geislarnir lækka við æginn
og liður á blessaðann sólfagra daginn,
og senn dregur húm yfir hauður og lá.
það huga minn myrkvandi verkar á.
Ég get ekki mælt, því mig málið þrýtur
ég megna ekki að rita—-af sama flýtur ;
neitt orðin tóin þýða það ég fæ séð.
ef ei getur hjartað talað með.
Mittþrælbundna, f jötraða.hjarta hlýtur
sem hvergi á jörðunni yndis nýtur,
að bera nú dulda þá ást, sem mér er
ekki auðið að sýna, en helguð er þér.
Ég skrifaði nafnið mitt neðan und-
ir og braut bréflð saman og sendi það
svo einhverntíma : óg neld ég hafi kan-
skó sent þaö með einhverri iiökkukerl-
ingunni, sem var á ferð um hreppinn,
til að fiska sögur um náungann, segja
frá því hve margir voru trúlefaðir í
sveitinni, hve margar konur óléttar og
á hve mörgum lausaleiks-krökkum von
það árið.
Nú er orðið langt síðan ég skrifaði
fallegu stúlkunni. og ég oft búinn að
uppfylla boðorðið, sem býður, “að elska
allar fallegar stúlkur”. Það er þó ekki
ætíð tóm fegurð, sem dregur til vináttu
manna. Það er frefnur sameiginleg-
leiki sálnanna. SkiljTði fyrir að geta
átt vin, er að geta gert honum skiljan-
anlegt djúp hjarta manns. Það eru
hagjrðingarnir—skáldin—, sem hrífa
stúlkuvnar. Það eru skj’nsömu og ást-
ríku stúlkurnar, sem hrífa skáldin, en
ekki einvörðungu mjótt mitti og vel
sniðnir kjólar. Góð stúlka vill ætíð
endurgjalda skáldinu ljóðin hans og
hún gerir það í ‘því bezta sem hún á til,
og það er kossinn. Ekkert skáld lifir
til ónýtis, og—engin stúika ann skáldi
til ónýtis. Kossinn er verðlaun ástar-
innar.
*
* *
Og sólin var gengin undir og skuggi
jarðarinnar huldi litla bæinn minn, eins
og sorgin hylur lífs-vonirnar. Nóttin
varð dimm eins og dauðinn, og lagðist
miskuunavlaus yfir veslings heiininn
með öllum hans sjuidum. “Vindurinn
var logn,” og einhver dularfull kyrð
ríkti yfir öllu.
VKITT
HÆSTU VERÐLAUN A HEIMSSÝNINGUNN
IÐ BEZT TILBÚNA
Óblönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára reynslu.