Heimskringla - 15.11.1895, Side 2

Heimskringla - 15.11.1895, Side 2
2 HEIMSKRINGLA 15. NÓVEMBER 1895. Hardvara! Allskonar harðvara fyrir alla. Stærsta og bezta upplag af harðvöru og olíu í Cavalier, selt við rajög’ vægu verði. Vér höfum vörur sem allir þarfnast, og yfir höfuð allar þær vörur, sem mönnum getur dottið í hug að spyrja um, og sem tilheyra harðvöruverzlun, ásamt steinolíu, Etc. Heimsækið oss og skoðið vörurnar. Landi yðar, Mr. Chr. Indriðason, vinnur í búðinni. Gangið ekki framhjá. Gáið að yðar eigin hag. John E. Truemner, Cavalier, North Dakota. Lögbergs Bósinn. Heimskringla PUBLISHED BY The Heimskriogla Prtg. & Pabl. Co. •• •• Verd blaðsins í Canda og Bandar.: $2 um árið [lyrirfram borgað] Sent til íslands [fyrirfram borgað af kaupendum bl. hér] $ 1. • ••• TJppsögn ógild að lögum nema kaupandi sé skuldlaus við blaðið. • ••• Peningar sendist i P. O. Money Order, Registered Letter eða Ex- press Money Order. Bankaávis- anir á aðra banka en í Winnipeg að eins teknar með afföllum. • • •• EGGERT JOHANNSSON EDITOR. EINAR OLAFSSON BUSINESS MANAGER. • • •• Office : Corner Ross Ave & Nena Str. P <>. Kox 305. ••••■•••••••••••••••••• Umbætur ýmsar eru í vændum að því er bæjar- -stjórnina snertir. Á fundi fyrir nokkru siðan var kjörin nefnd manna til að at- huga það mál og gera ályktanir, ef til- tækilegt þætti að breyta skipulagi bæj- arstjórnarinnar, Aðal-umbótanefnd- in skipaði svo aftur 10 manna nefnd til að ráða og semja ályktanir, er aðal- nefndin síðan skyldi samþykkja eða fella. Aukanefnd þessi hefir nú lokið starfi sínu og skilaði því af sér á mánu- dagskvöldið. Tillögur hennar eru með- al annars þær, að bæjarstjórnin saman- komin ,'á fundi kjósi einn umsjónar- mann, er kallist “general superintend- ent,” er hafi umsjón á öllu, er að stjórn bæjarins lýtur, hafi heimild til að sitja á öllum bæjarráðsfundum og nefndar- fundum og liafi fult málfrelsi, en ekki atkv.rétt. Mayorinn og formenn fjár- mála- og verkanefndanna skulu mynda Táðaneyti bæjarstjórnarinnar og með ‘gen. suy., hafa á hendi alt fram- kvæmdarvald innan bæjarins. Þessir 4 menn, ráðaneytið og ‘gen. sup.’, skulu tilnefna alla skrifstofustjóra og for- menn, erbæjarráðið á fundi síðan sam- þykkir. e/ ekkert verður út á þá menn -sett, sem tilnefndir eru. Eina undan- tekningin er comptroler aða fjár- gæzlumaður bæjarins. Bæjarráðið í heild sinni ákveður hver hann skuli vera. Alla verkamenn og þjóna bæjar- stjórnarinnar tilnefnir ‘gen. sup.’einn. í sumum greinuin hsfir þessi máður alt að því einvaldsráð, Hann getur rekið menn burtu þegar honum sýnist, en ef ástæða þykir má hinn rekni klaga það fyrir ráðaneytinu. Ef verið er að ▼inna eitthvert verk íyrir bæjarstjórn- ina hefir ‘gen. sup.’ vald til að banna framhald þess, ef honum þykir eitt- hvað að. Ef aðal-nefndin viðtekur þessar til- tögur, á hún að flytja þær fyrir bæjar- stjórnina á fyrsta fundi hennar 1896. Er þá bæjarstjórnin skyld til aðinn- dima þær i bæjarlögin, og skulu þau lög þá samþykt á sameinuðum fundi bæjar ráðsins og aðal-nefndarinnar. Verði þau samþykt á þeim satneinaða fundi, skal bæjarstjórnin biðja fylkisstjórnina um leyfi til að efna til allsherjar kjör- þings í bænum innan þriggja mánaða itil þess kjósendum bæjarins gefist kost- ur á að samþykkja eða fella þessi ’breyttu lög. Við þá almennu atkvæða greiðslu skal hagnýta kjörskrár bæjar- ins, sem nú eru í gildi (1895). Ef al- menningur þá samþykkir þessar breyt- ingar, skulu lögin ganga í gildi þann dag mánaðar, er fylkisstjórnin með .ráðaneyti sínu ákveður. Það voru fáir við þegar þessar til- lögur voru gerðar oþinberar og þegar þetta er ritað hefir aðal-nefndin ekki Ikomið saman til að ræða um þær. Þess -vegna er ómögulegt að segja hvernig hyr þær fá. Aðal höfundar þessara tilrauna, að fá stjórnarskipun bæjarins breytt til bóta, eru verkmanna yfir-félagið og stór- kaupmenn. í nefndinni, sem bjó út þessar tillögur, eru fulltrúar hvort- tveggja flokksins, en færri miklu voru fulltrúar verkalýðsins. Verða þeir því alvarlega ;ið gæta gf S.s, að þeir verði ekki leiddir í gönur. Breytingar til bóta eru nauðsynlegar, en það er ekki sýnt, enda engar skjTÍngar framkotnn- •ar enn, að urabæturnar vorði miklar, þó menn losni við einn einvaldsherra til að fá annan. Eins og nú er, er “City Engineer” sem næst því einvaldur að því er verk öll snertir, og yfir því hefir verið klagað. Það má því búa vel um hnútana, ef væntanlegur eftirmaður hans, þessi ‘general superintendent’, reynist nokkuð betri. Önnur breyting til bóta er það, að skólastjórn bæjarins hefir skipað nefnd til að athuga hvort tiltækilegt er að losa alþýðu við skólabóka-kaup, en að skólastjórnin útvegi þær og leggi verð þeirra afturá alþýðu með hinum almenna skólaskatti. Það er viðurkent að þau bóka og áhalda kaup séu þyngri en svo að fátæklingar, sem mörg börn eiga á skóla þoli þau árlegu útgjöld, en findu lítið til þess þó skólaskatturinn væri aukinn sem svarar bóka- og áhalda- verðinu. Með [þessari breytingu væri og það unnið, að bækurnar yrðu miklu ódýrari. Skólastjórnin vitanlega fengi þær fyrir það verð, sem útgefandinn selur þær heildsalanum. Heildsalinn selur þær ekki smásölunum nema til að græða á þeim og smásalinn auðvitað selur þær ekki ágóðalaust. Öll þessi hringferð bókanna væri af tekin með fyrirhugaðri breytingu. Úrslitin i ríkiskosningunum í Bandaríkjunum um daginn þykja óræk sönnuu fyrír því< að forsetakosningin að árí sé töp- uð demókrötum og að næsti forsetinn þar af leiðandi verði repúblíkani, Þetta er skoðun repúblíka að sjálfsögðu, en það er líka skoðun miklu fleiri manna— allra þeirra, eða flestra, sem ekki eru því strangari demókratar. Demókrot- ar viðurkenna samt ekkert þvilíkt, en þessar síðustu ófarir—og þeim finst míkið til um þær, þar sem töpuð eru 2 þeirra gömlu og góðu demókrata ríki, er aldrei hafa brugðizt, Maryland og Kentucky — þessar seinustu ófarir, eins og þær stóru í fyrra, kenna þeir stefnubreyting, svikum og aðgerðaleysi domókrata á þjóðþingi. Þetta segja demókratar ástæðuna til ófaranna í heild sinni, en svo eru sérstakar ástæð- ur dregnar fram í sérstökum héruðum. Cleveland forseta hefir aldrei verið brugðið um hverflyndi, honum hefir þvert á móti verið hrósað fyrir það, að hann, ásamt J. G. Carlisle, fjármála- stjóra sínum. hafi í öllu og æfinlega framfylgt viðtekinni stefnu demókrata á flokksþingi 1892. Á undirbúnings- fundi í Kentucky var honum og Car- lisle þá þakkaðfyrir stefnufestuna,þrátt fyrir þrætur og hringl flokksins á þingi. Á þeim fundi sást að 2 af hver- um 3 demókrötum í ríkínu voru Cleve- íand hlyntir og svo voru kjörnir sækj- endur í því skyni, að þeir í sinum ræð- um framfylgdu vilja fundarins, en þeir sneru þvert úr leið. Þeir lögðu aðal- áherzluna á að ávita þá Cleveland og Carlisle, en halda fram gerðum ymsra manna, er fjölda demókrata var illa við. Afleiðingin var, að þessir menn voru feldir. Af tvennu illu vildu kjósendur heldur selja ríkið í hendur repúblíka. en í hendur þeirra manna, sem svona ó- svífníslega rufu öll sínheit og genguí öllum aðalatriðum þvert á móti vilja og boðum kjósendanna. Þannig glataðist Kentucky. I Maryland voru ófarirnar aftur greinileg afleíðing af óánægjunni með gerðlr 53. þjóðþingsins. Aðal- höfundar toll-laganna, sem allri óá- nægjunni valda, voru þeir senatorarnir Arthur P. Gorman frá Maryland og Calvin S. Brice frá Ohio. í Maryland er Gorman einn þessi stóri pólitiski “boss”, er með einhverjum brögðum ræður mestu íflokksmálum öllum. Til þess þá að sýna honum hvað allur fjöldi demókratanna'í ríkinu væri hon- uin hlyntur og stefuu hans, kusu kjós- endurnir heldur að fylla flokk repú- blíka en kjósa nokkurn þann mann er Gorman væri hlyntur. Þannig glatað- ist Maryland. ' Meðmælismenn frísláttu silfurs þykjast aftur á móti geta greint kom- andi stórsigur sinn i þessum síðustu kosningum. Þeir eins og fleiri búast við að forseta- og Congress-kosningarn- ar að ári snúist um gull- og silfurmálið fremur nokkru öðru. Og. með nokkr- um undanrekningum þykjast þeir nú sjá sigtirinn vísan haustið 1896. Ber það til þess. að í New York, Massashu- setts, New.Tersey, Pennsylvania, Mary- and, Kentucky. Ohio og Iowa, höfðu demókrafar í heild sinni verið andvígir frisláttti silfurs. og af þvi þeir svo biðu ósiguriöllum þessum ríkjum, þakka silfur-itar það sínum fylgismönnum og telja visan fyrirburð útslitanna að hausti. Einstöku undanteknfngar eru þó til, sem virðast draga úr gildi þess- arar skoðunar. Gerðir alþingis í sumar munu mæta misjöfnum dómum venju fremur. Ber margt til þsss, enn eink- um þó meðferð tveggja mála, sem eru helztu áhugamál þjóðarinnar, enn það er stjórnarskrármálið ogsamgöngumál- ið, — Um stjórnarskrármálið verður síðar talað í þessu blaði, enn þess skal að efns getið, að sundrungin í því máli varð einnig til þess að spilla samheldi þingm. í öðrum málum og aldrei hafa verið aðrar slíkar viðsjár með þjóðkjörn um þingmönnum sem i sumar. Samgöngumálin hafa komizt á góð- an rekspöl hjá þinginu, en ýmsar af þeim samgöngubótum, er fé var veitt til í fjárlögunum, verða víst ekki fram- kvæmdar á fjárhagstímabilinu, enda er hætt við, að grynna tæki í landsjóðn- um, er ofan á annað bættust útgjöldin til landssjóðsleigu-skipanna(170.000kr,) eða kaupverð gufuskips (350,000 kr.), auk styrks til gufubáta á fjörðum og lánveitinga til gufubátakaupa og til skipabryggju í Reykjavik (samtals um 200,000 kr.). Það gæti þannig orðið talsvert yfir hálfa milj. kr. á einu ári, sem notað yrði til samgöngubóta á sjó. —Enn þingmenn létu þó ekki hér við lenda, heldur gerðu þeir einnig ráð fyr- ir, að landið tæki þátt í að leggja frétta þráð til landsins og telefón milli Rvík- ur og Akureyrar, Má þvi með sanni segja, að þetta alþingi sé hið langstór- stígasta. sem háð hefir verið. Þetta framtak þingsins mun alment mælast allvel fyrir, þó misjafnt verði álit á sumum atriðum samgöngumáianna, svo sem því, að landssjóður leigi eða kaupi eimskip til að halda uppi sam- göngum, í stað þess að einstökum manni sé veittur styrkur til þess, eins og æskilegást hefði verið og upphaflega var lagt til í þessu blaði, o. fl.—Gufu- bátarnir er hætt víð að ekki svari kostnaði í byrjun, en einhverntíma verður að byrja með þá. — Um flutn- ingabrautirnar eru sumir þeirrar skoð- unar, að þær verði í rauninni ekki ó- dýrari en járnbrautir, og ætti þing og þjóð að hafa það málefni í huga, sér- stakloga af því að rafmagnsbrautir eru nú stöðugt að fjölga, t. d. í Ameríku, og hér á landi hagar víðast svo til, að flutningabrautirnar geta einmitt legið samhliða straumvötnum, sem gætu knúð járnbrautarvagna. Fjárveiting þingsins til atvinnu- veganna er með ríflegasta móti. Þann- ig er styrkurinn til búnaðarfélaga færð- ur úr 12000 kr. upp í 32000 kr., og ætl- um vér það sé rétt gert.—Á fjárauka- lögum voru veittar 2600 kr. handa norskum dýralækni, er rannsaka skal bráðafárið og er ætlazt til að hann komi í haust. Vonandi er að einhver árangur verði af því. þótt eflaust megi búast við að nokkurra ára reyuslu og æfingu þurfi til þess að almenningur læri að verjast sýkinni. En líklegt er að bændur hér gæti þó Lomízt á lag með bólusetningu gegn br&ðapestinni, áiíka og bændur sumstaðar erlendis bólusetja gripi sína gegn miltisbrandi með góðum árangri. Sjávarútveginum hefir þingið nú gefið nokkuð meiri gaum enn að undan- förnu, þar sem það heflr veitt 5000 kr. styrk til skipaábyrgðarfélaga við Faxa- flóa og gert landssjóðslán til þilskipa- kaupa aðgengilegri, með því að skipin má veðsetja fyrir lánum. Styrkurinn til Bjarna Sæmundssonar mun og vel ráðinn, en naumast má búast við árangri að slíkum rannsóknum fyrr en eftir mörg ár. Við skólana hefir verið bætt ýmsum fjárveitiagum, Sem misjafnlega munu mælast fyrir, Það er ætlast til, að einn kvennasKÓli verði á Norðurlandi úr þeim tveimur sem nú eru, og virðist það munu geta orðið sparnaður. Þá sjáum vér ekki heldur, hvers vegna Austfirðingar þurfa að hafa sérstakan kvennaskóla fremur en Vestfirðingar, sem eru miklu fjölmennari. Eftir því sem samgöngurnar verða greiðari, verð ur síður þörf á að hafa sinn skólann í hverju landshorni. — Flensborgarskól- inn, hefir enn fengið talsverða viðbót þ. e. kennara-skólinn, sem kallaður er, og gegiiT ft rðu nð þingið sktili láta ginn- azt af >liuti ' hunbúggi”, sem kennara- fræðslan í Flensborg er. Um hina ýmsu styi ki til einstakra manna mætti margt segja og sérstak- lega ætti þingið að fara varlega í það, að veita sumum af þessum listamanna- efnum fjárstyrki. — Styrkurinn til skáldsins Þorsteins Erlingssonar er maklega veittur, þvi hvað svo sem sum af íslenzku blöðunum segja um skoð- anir þær sem koma fram í einstökum kvæðum hans og nánar verður um tal- að í þessu blaði, þá munu flestir vera samdóma um hæfileika hans, en því miður hefir hann ekki getað notið sín, af þvi hann hefir átt við svo þröngan kost að búa. Fjárlögin eru nú í mörgum grein- um með myndarlegasta móti, þótt ýms- ir miður þarfir bitlingar hafi slæðzt með. Því hefir verið fleygt, að stjórnin mundi nú ekki samþykkja fjárlögin, sérstaklega vegna 5000 krónanna til Skúla Thoroddsen, en það mun vera á- stæðulaust, að bera kvíðboga fyrir því. Þess munu varla dæmi, að nokkur stjórn hafi leyft sér að ónýta fjárlög, sem samþykt voru af öllu fulltrúaþing- inu. Það var alt öðru máli að gegna með hin mörgu bráðabirgðafjárlög í Danmörku, þar sem ríkisþingið kom sér aldrei saman um fjárlögin, og stjórn in gat því engin f járlög haft fyrir sér til staðfestÍDgar. “Skúla-málið” eyddi miklum tima fyrir þinginu, en árangurinn af því starfi varð enginn, sem við var að bú- ast, nema þýðingarlaus dagskráryfir- lýsing, og svo þessar 5000 kr. til Skúla, sem munu helzt hafa verið veittar í þeim tilgangi, að storka stjórninni. Framkoma Skúla sjálfs í þvi atriði á þinginu vildum vér óska að verið hefði gætilegri, því að engaréttarkröfu hafði hann til þessarar fjárveitingar á hend- ur þinginu (o: landsjóði), og átti það því miður vel við, að hann greiddi sjálf- ur atkvæði í því máli, — Fylgismenn Skúla á þingi voru af báðum stjórnar- mála flokkum, bæði tillögumenn og frumvarpsmenn, og er engin ástæða til að ætla, að þeir sem voru á móti fjár- vpitingunni til Skúla hafi viljað gera stjórninni greiða með því eða verið á bandi landshöfðingja, og aldrei hefir séra Sig. Jenssyni, sem vildi færa niður Skúla-gjaldið um 2000 kr., verið brugð- ið um, að hann væri fylgifiskur stjórn- arinnar. Lög þau sem síðasta alþingi sam- þykti eru fæst mjög þýðingarmikil. Eftirlaunalögin, prestkosningarlögin, lagaskólinn og afnám hæstaréttar eru einna helzt, en líkindi eru til, að fæst af þessu verði samþykt. Af þeim lögum, sem liklegt er að nái staðfestingu og nokkurs eru verð, er að eins að nefna sóttvarnarlögin, sem geta orðið að liði ef vel er á haldíð, lögin um nýja frí- merkjagerð, sem geta áunnið bæði landssjóði og landsmönnum margar þúsundir króna (og hefir þetta blað vak ið fyrst máls á því efni), og lögin um borgaralegt Jtjónaband þjóðkyrkju- manna. Af frumvörpum þeim sem feld hafna verið og vonandi er að aftur komi fram á næsta þingi, og ef til vill umbætt, má nefna frumvarp um fjárráð giftra kvenna, umvarnarþing í skuldamálum, um þurrabúðarmenn og um áfanga- staði. Enn fremur féllu frv. óútrædd, sem nokkurs voru verð. svo sem frv. um flutning þurfamanna. eyðing sela o. s. frv. — Þá er og vonandi, að máhð um söl’i landssjóðsjarða á erfðafestu komi fram á næsta þingi. Sum af þessum málum fengu nú nokkurn undirbúning. Það gæti verið gagnlegt fyrir al- menning, að blöðin flytti hlutdrægnis- laust ágrip af ræðum þingmannaí ýms- um málum, enbæði hetir Fjallkonan lít- ið rúm til gess, og í annað stað eiga ritstjórar hér naumast kost á að ná ræðum þingmanna, þar sem þeim eru engin sérstök sæti ætluð á þingi, eins og annarsstaðar gerist. Að vísu hefir ritstjórunum eitt sinn verið leyft að sitja inni í þingsalnum, og í sumar fékk einn Rvikur blaðamaðurinn það leyfi. en sjálfur forseti neðri deildar var þá eigi frjálslyndari en svo, að hann hafði síðar við orð að reka blaðamanninn á brott. — Af þessu leiðir, að biöðin geta naumast flutt greinilegar eða réttar fregnir af þinginu meðan það stendur yfir. [Eftir Fjallkonunni.] g' / Jón Olafsson og Is- lendingadagurinn. Enn þá einusinni byrjar rithöfund- urinn að Brú P, O. að “vella spóann” og þessa vellu lætur hann vella niður niður dálka Lögbergs 24. f. m. Það lít- ur út fvrir að grein min í Hkr. 4, f. m, hafi orðið til þess að “ergja illt skap”, því Mr. Jón Ólafssou er orðinn alveg bálvondur við mig út af því, að hann er sjálfur flæktur orðinn í sinum eigin mótsögnum, vitleysum og endi- leysum út af þessu íslcndingadagsmáli, sem hann alt af er að burðast með, sjálf um sér til vanvirðu, en öðrum til leið- inda. En í stað þess að gera mér sömu skil og ég honum, að svara með still- ingu og ástæðum og “rita með lipurð”, eins og Mr. J. Ó. hefir sjálfur játað, að ég geri, þá verður nú þessi mikli mann- kærleikans vinur upp með fúkyrði og og persónulegar getsakir um mig. Mr. J. Ó. hefir nú hvorki meirané minna til wiu .ú> segja. eu þaö, að*óg hafi opin- berlega látið í ljósi skoðun mína á einu sérstöku, alrnennu málefni, en þólæt- ur hann sér særaa, að gefa það í skyn, að hann þekki “lífestefnu” mina og "eig- inlegleika", að hann taki sér ekki nærri þó “annar eins maöur" og ég segi þetta eða hitt, að ég hafi gert mig sekann í “þussa-skap” og “ókurteisi” og að það sé vafasamt hvert “heimurinn” só svo —illa?—staddur að eiga nokkurn minn líka. Það mátti nú ekki minna kosta! En af því þetta er svo dæmalaust líkt því, að vera tilraun tíl maunorðsþjófn- aðar, þá væri Mr. J. Ó. nær að skýra hvað hann á við með þessum dylgjum sínum, heldur en að skríða í skúmaskot eins og barinn hundur og ýlfra þar og urra—það er að segja, ef hann kynni að eiga til nokkra vitund af því sem kall- að er drenglyndi. Þá segir Mr. J. Ó. að ég sýnist bera jafna virðingu fyrir lýginni og sannleikanum o. s. frv. Að égekki beri virðingu fyrir sannleikan- um, kristninni. kærleikanum, fróðleikn um og svo frv, hefir Mr. J. Ó. engan rétt til að segja. En hitt getur hann “hengt sig upp á”, að ég ber alls ekki virðingu fyrir “lýginni”, “þussaskapn- um”, hatrinu, fákænskunni, vitleys- unni og drambinu. Það er svo langt frá, að ég hafi nokkurntíma borið virð- ingu fyrir ritsmiðum Mr. J. Ó. og ég ber líka sára litla virðingu fyrir per- sónu hans. Og svo vil ég leyfa mér að segja Mr. J. Ó. hvað ég sérstaklega og fremur flestu öðru álít óvirðingar vert, og það er, að vera æ og æfinlega að slá um sig með biblíunni, kristinni trú og bróðurkærleikanum, en stökkva svo eins og “glepsandi vargur” á menn fyrir engar sakir og ef ekki tekst að bita, þá að reyna að svipta menn mann orði þeirra, með auðvirðilegum róg og lygadylgjum. Það er ekki satt, að ég hafi tekið Mr. J. Ó. nokkrum “tökum” ‘,út af vanheilsu” hans. Ég vissi elcki að hann ætti nú orðið við nokkra vanheilsu að búa, nema ’.hvað rafmagnið virðist hafa æði ill áhrif á skapsmuni hans. En úr því þetta æfisögubrot Mr. J. Ó. eftir sjálfan hann er alt af öðru hverju prent- að í opiníeru blaði, þá sé ég ekki að honum sé gengið of nærri, þótt eitthvað sé minnst á það, sem þar stendur. Ef Mr. J. Ó. er ekki mikið heimskari heldur en fólk 1lest, þá getur honum naumast fallið illa þótt minst sé á heilsu hans eða vanheilsu, en hitt getur vel verið, að honum falli illa að hreyft só við æfisögu hans, — en hann hefði þá ekki átt að láta prentajbrot úr henni. Ég hefi áður látið í ljósi skoðun mína í þessu íslendindingadagsmáli, og finn ekki ástæðu til að fara um það mörgum orðum nú. Það kemur ekkert nýtt atriði fram þvi viðvíkjandi í þess- ari vellu eða “dellu” Mr. J, Ó., nema hvað hann kemur með eitt nafnið enn þá: “Danakonungslegur”, og felli ég mig ekki betur við það, heldur en hin nöfnin, sem hans vizka—eða sérvizka— hefir fundið upp. En þá er það naum- ast fjarstæðara heldur en að velja dag- inn með tilliti til þess, að Guðbrandar- biblía var gefin út, en kalla daginn svo Leifsdag, því vitlausari uppástungu man ég ekki til að ég hafi séð, fyr eða síðar. Og svo skaHíg að síðustu geta þess, að ég vil ekki ræða þetta mál frekar við Mr. J. Ó. að Brú P. O. Maður, sem eys illyrðum yfir mótstöðumann sinn í stað þess, að verja mál sitt með skyn- samlegum ástæðum, hann á ekki skilið að opinbert mál sé við hann rætt. F. J. Menn vilja fá að vita hvað nafnið Bósi þýðir. Nafnið: Bósi hefir hjá fornmönn- um verið haft sem mannsnafn, sjá sögu Herrauðar og Bósa. En með því að BÓ8Í sá var kvennamaður hinn mesti eru þeir nú kallaðir bósar og kvenna- bósar sem leggjast út með blökku dýr- um. Vanalegaerþó nafnið Bósi haft sem nafn á vissum tegundum dýra. Það sem einkennir þessa dýra-tegjmd frá öðrum dýrum, er að þau eru mjög gjörn á ástafa t.g ei.,i . k> t. m (jt'-’i le • Þessi dýr eru ekki horuótt og eklti held-! ur með klaufnm. lieldur atfiiilegf. kollótt með klóm sem þau rífa með og vígteun- ur sem þau bíta nteð, þau eru nokkuð minni en missirisgamall kálfur, haus- inn mjög lítill, frammjór, augabrýrnar upp undir hársrótuin, augun djúpt i hausnum og augabrýrnar hanga yfir þau, kinnbeinin standa hátt rétt niður- undan eyrunum, nefið flatt út á kiitnar efri 8kolturinn hangir yfir þann neðri. tranturinn er framþykkur á Bósa lík- astur sem á‘ ‘Bulldog”; hálstuttur erhann meðhöfuðiðniður í herðum. Þetta bósa- kyn hefir æði langa rófu loðnaáendanum, sem hangir niður á millum afturfóta dýrsins, hún hringast alla jafna uppá við þegar æti er i nánd. Náttúrufar dýrsins er að vilja, gúknayfir öllu, ráða öllu og bola alt undir sig, hefir ]>ó aldrei komið neinu til leiðar nema upp á grimdarfullann dýrslegan liátt. Kemur hann enn! í 41. númeri Lögbergs síns þ. á. Mikil snild er nú á þeim útbúningi! Þar geta nú allir séð Lögbergs Bósann uppntálaðan í sinni eigin mynd, hann sýnir þar sína eigin mynd, hann sýnir þar sína fjölbreyttu hæfileika, framúrskarandi mentun og hversu siðaður ritstjóri hann er. Bós- inn hefir nú reiðst svo af sannleikanum, er óg sagði að hann hefði byrjað rit- deilu þessa, og benti ég á þann stað í Lögbergi, svo ekkert var um að villast. Útaf, þessu bölsótast Sigtr. froðufell- andi og segir eins og heimskinginn, “þú lýgur, lýgur öllu en ég segi allt satt.” Eg sendi Sigtr. áskorun sem flestir halda að hann hafi hlotið að skilja og sjá svo hvað hann gerir! Reynir ekki með einu orði og ekki einusinni með vöflum, að sanna neitt sem hann hafði sagt. Stendur hann því einn uppi eins og ég áður sagði. afhjúpaður mann- orðsmorðingi og níðingur. Sigtr. er því algerlega fallinn í skammakrókinn á sínu eigin bragði sem slúður og rógberi. Það er ósjálfræði sem ætlar að keyra hann lifandi til grafarinnar, með hroka- belging og öllum níðingsverkum á herð- unum.Meira vil ég ekki eiga við skömm- ina hann getur farið með sitt dýrslega æðí hvernig sem hann vill fyrir mér. En ef vel viðrar býst ég við að fá að sjá hann einhvernvegin áður en þessi vetur er úti. Hnausa, Man.,4. Nóv. 1895. Stephan Sigurðsson. Akaflegur munur. Hvernig greina skuli liið ekta frá eftir- líkingum við fyrsta tillit. Paine’s Celery Componnd gerir fólk heilt heilsu. Önnur læknislyí villa og skaða. Það er sannarlega furðulegur mun- ur á því, þegar hin lireina, skíra, þunga, löggilda gulltnynt er borin saman við illa gerða eftirstæling. I fullum trúnaði gengur hin ekta mynt úr einni höud i aðra; allir menn bera traust til hennar. En hvernig er því varið með eftirstælinguna — hina óekta mynt sem gerð er og gefin út af glæpafuilum skuggasveinum ? Hún er gerð á myrkum stöðum ; hún er gefin út, þjófslega til þess, að blekkja og fé- fletta; og allir, sem standa í sambandi við svik þessi eru í sífeldum ótta fyrir lögreglunni. Hin ekta gullmynt hljómar með skæru sömrhl jóði: en óekta myntin hi'lir dimt og skerandt iiljóð fyrir eyrað. En eius og mutiurinu et inikill á hiiini ektrt gull nynt oghinni óokta, eins er mutntrinn míkill á Paiue’s Celery Compound og Celery-eftirsrælingiim þeim, sem menn vanalega eru svikntr á. Pairte’s Celery Compouud hefir al- þýðuhylli, sem eingöngu stafar af því, hvað það reynist vel. Allssiaðar heilsa menn því setn hinu góða lyfi, er stillir kvalir og lækuar sjúkdóina. Læknar sjálfir taka þvl tveím höndnnt á öllu tneginlandi álfu þessaaar. Það er ekta, áreiðanlegt I alla staði heiðarlegt og “veitir fólki heilsuna.” Eftirstælingarnar og alt hitt sullið er gert til þess, að seljast einungis. en ekki lækna, og þeir sem ginnast til þess, að kaupa það. eru vanalega reiðir yfir því, að bafa tapað peninguin sínum. eu sitja með sjúkdótninn hélfu verri en áðttr. Þegar rnentt brúka þessar og þvllt'kar eftirstnTingai i r lífið i veði. Hið ekta Paine’s Celery Compound — lyfið, sem læknar — er auðkent með orðunum ‘Paine’s Celery Compound,” og Celery legg, sem er á flöskmmi og ytri myndiuni. Ef að þér takið eftir þessum einkennum, þá get ð jitir ein- mitt fengið lyf það, sem á v.ð sjúkdóm yðar.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.