Heimskringla - 22.11.1895, Blaðsíða 1
IX. ÁR.
NR. 47.
Heimskringla.
WINNIPEG, MÁN., 22. NÓVEMBER 1895.
FRETTIR.
DAGBÓK.
FÖSTUDAG 15. NÓVÉMBER.
í sumar er leið þesar Edward Blake
dvaldi í Toronto reit erkibyskupinn í
Toronto honum og stakk upp á að alls-
herjarfundur Ira væri haldinn til að
ræða um frlandsmál, þar sem mættu
þjóðvinir íra úr öllum löndum. Blake
tók þessu vel og sendi bréfið formönn-
um írska þingmálaflokksins í Lundún-
um, sem í gær samþykti að boða þenn-
an allsherjarfund. — Á sama fundi var
Tim. Healy gerður rækur úr stjórnar-
nefnd flokksins, með 83 gegn 24 atkv.
Fullri milj. dollars á viku nemur nú
herkostnaður Spánverja á Cuba, eða
um §150,000 á hverjum degi, að sögn
eins blaðsins í Madrid.
Hvalaveiði hefir verið léleg í Davis-
sundi og fyrir suður-Grænlandi í sum-
ar, segja heimkomin hvalaveiðaskip frá
Nýfundnalandi.
Armeníu-menn eru myrtir i hrönn-
um í Konstantínópel. Sem dæmi uppá
aðfarirnar er þess getið, að á einum
degi voru 521 lík þeirra grafið í einum
grafreit og annan daginn fundust yfir
200 lík þeirra á litlu sviði, rist, stungin
og hrend. En nú er soldán lafhrædd-
ur síðan hann heyrði inntakið úr ræðu
Salisbury’s hinn 9. þ. m.
Vegna fádæma þurka er búizt við
svo lítilli hveiti-uppskeru í Ástralíu í
vetur (það er sumar hjá þeim þegar
vetur er hér) að hún verði ónóg til að
mæta heimilisþörfum.
LAUGARDAG 16. NÓV.
8148 milj. er verð skattgildra eigna
i Toronto í ár.
Svo er áætlað, að síðan manndráp-
in í Armeníu hófust í fyrra, hafi Tyrk-
ir drepið yfir 15,000 manns í því héraði
og í Tyrklandi sjálfu. Fylgir það, að
annaðhvort nú eða aldrei þurfiaðbjarga
fólkinu, því horfurnar séu þær, að þar
verði um 30,000 manns hungurmorða í
vetur, ef ekki kemur því moiri hjálp og
það tafarlaust.
Nýr ríkis-erfingi kom til sögunnar
á Rússlandi í gærkvöldi (15. Nóv.), er
það stúlka og hefir þegar verið nefnd
Olga. Er það fyrsta barn Nikulásar
III. og Alix prinzessu af Hesse.
Fátæk stúlka í Philadelphia erfir
$15 milj. í Ástralíu. Hvar er nú barún
eða hertogi ?
Gullsjóður Bandaríkja í gær var
$90£ milj., eða 89J milj. minna en lögin
heimta.
Brezkt vöruflutningsskip fórst við
strendur Danmerkur í gær. Þar drukn-
uðu 15 skipverjar en 7 komust af.
JOr. B. F. MerrilU
Afleiðingarnar gera
Vísindamenn forviða.
AVFD’Q Narstt'
nl Líl O ptcrllla
— metlal —
sem engan jafningja á
Feamburðub alþekts læknis.
“ Ayer’s Sarsaparilla á ekki sinn jafn-
ingja sem blóðhreinsandi meðal og sum-
armeðal og verður ekki nægilega lofað.
Eg hefi tekið eftir verkunum hennar á
langvarandi sjúkdóma, þar sem önnur
meðul höfðu reynst árangurslaus, og ég
hefi orðið forviða á afleiðingunum. Ekk-
ert annað blóðhreinsandi meðal sem ég
hefi reynt, og ég hefi reynt þau öll, er
eins gagnverkandi og bætir jafnmarga
sjúkdóma til fulls, eins sg Ayers Sarsa-
pariUa. — Dr. H. F. Meurill, Au-
gusta, Me.
AYER'S o'ií.". Sarsaparilla
á heimssýningunni.
AYERS PILLS fyrir lifur og innýfli.
cö -SH^/V3$ACKACH&
féel§ §ore. ache§
wiHimu§cularftm§.ai\d
fta§ju§tpur ourhat-
Banigherof Backache§
Mouhol
J. McLaculan, Point au Chene, writes: Noth-
inp better for Lame Back and Lumbapo than the
D. & L. Menthol Plaster.
A. E. MacLean writes from Windsor: “The D,
& L. Menthol Plaster is curinp Sore Backs and
Rheumatism at a preat rate in thia vicinity.
25c. each in air-tight tin hox.
MÁNUDAG 18. NÓV.
Rafmagn-sporvagn í Cleveland, Ohio,
féUniður um 100 feta háa brú yjjr á í
bænum og druknuðu þar 15 manns.
ítalskt farþegjaskiþ á ferð til Suð-
ur-Ameríku strandaði 1 gær nálægt
Gibraltar. Um 20 manns druknuðu, en
um 1200 farþegjar auk háseta komust
af.
Canadastjórn hefir ákveðið að taka
engan þátt í veiðarfæra og fiski-sýn-
ingu, sem haldin verður að Kili á
Þýzkalandi næstk. sumar. Segir þar
sé ekki um neinn markað að gera.
Þýzkalandskeisari hefir verið harð-
hentur á sósialísta-blaðamönnum, sem
ekki hafa þótt tala um hann með til-
hlýðilegri kurteisi og viðhöfn. Einn
þeirra var dæmdur í 4 mán. fangelsi í
vikunni er leið fyrir þá vangá. Þetta
uppþot alt er nú sagt að verki öfugt við
það sem ætlað var — þ. e., að það auki
veg sósíalista og rýri alþýðuhylli keis-
arans.
Heimkominn amerikanskur kristni-
boði lætur hörmulega af stjórninni í
Kongo-fríríkinu í Afríku. Segir ibú-
arnir séu í rauu og veru þrælar, sem sé
myrtir hlífðarlaust ef þeir ekki tafar-
laust hlýða boðum harðstjóranna.
ÞRIÐJUDAG 19. NÓV.
ítalskur stjórnmálamaður segir að
ástæðurnar hafi aldrei verið jafn i-
skyggilegar í Evrópu eins og nú síðan
1867. Segir það rétt kraftaverk ef
Tyrkja-Armeníu-þrætan leiði ekki af
sér allsherjar evrópiska styrjöld. Að
stórveldin eru ekki búin að hjálpa Ar-
meníu-mönnum segir hann komi af því,
að hvert um sig hugsi um það eitt, að
ná í ákveðinn skerf af sundurlimuðu
veldi Tyrkjans.
Bandaríkjamaður staddur á Koreu-
skaga ritar þaðan og segir afdráttar-
laust að japaniskir menn hafi valdið
morði drottningarinnar, í síðastl. Okt.
Drottning var stórráð og umfram alt
hlynt Kínastjórn.
Innan skamms eignast C. P. R. fé-
lagið, járnbraut til Chicago — norðvest-
an fr4 “Soo”-brautinni nálægt Duluth.
Er sagt byrjað á hrautarhyggingunni.
í gærkvöldi var gerð tilraun að
ræna járnbrautarlest á Great-Northern-
brautinni um 40 mílur norðvestur frá
Minneapolis.
Fullyrt er að komandi sumar verði
byrjað að byggja 850 mílna langa járn-
brautnorður um Klettafjöll frá Kam-
loops í British Columbia — tfi Cariboo
— gullnámalandsins nafnkunna.
MIÐVIKUDAG, 20. NÓV.
Herskipafloti stórveldanna ernú að
safnast saman í grend við Tyrkland og
þegar öll skipin eru þar saman komin
er fullyrt, að soldán fái “síðasta boð”
stórveldanna.
Fulltrúi Canadastjórnar á Englandi,
Sir Charles Tupper, fullyrðir, að stjórn
Breta leggist á eitt með Canadastjórn í
að fá stofnaða hraðskreiða gufuskipa-
línu millí Canada og Englands. Árs-
tillag Bretastjórnar verður $375,000.
I gær var svo þykk þoka í New
York, að hún olli bæði lífs og eigna
tjóni á strætunum.
Skattgildar eignir í Montreal hafa
aukizt í verði svo nemur $5 milj. á síð-
astl. ári.
FIMTUDAG, 21. NÓV.
Á fundi miklum í Lundúnum á
þriðjudagskvöldið las Salísbury hréf
frá Tyrkjasoldáni sjálfum. er soldán
hað að lesið væri á opinberum fundi.
Bréf soldáns er bæn nm vægð og loforð
enn um yðrun og yfivhót. og var svar
Salisbury’s á þá leið. að gott væri að
hann sýndi það tafarlaust í verkinu, að
hann vildí bæta sig.
Sjóflotastjóri Bandarikja gengur
hart tram í að útvega fjárveitingar til
strandvarna við Bandaríkin. Honum
lízt illa á hve stórborgirnar eru verju-
lausar.
Frá löndum.
GLENBORO, MAN„ 18. NÓV. 1895.
Héðan úr bygð er fátt markvert að
frétta. Tiðin alt af heldur góð. Snjór
féll hér nokkur fyrir fáum dögum, en
er að mestu leyti farinn aftur. Þresk-
ing hefir gengið vel, að heita má, og er
nú því nær á enda. Uppskera almennt
góð, og mun vera sem næst 30 bush. af
ekrunni til jafnaðar. Hveitiverðið er nú
sem stendur 39 cents fyrir No. 1 hard.
Bændur flestir önnum Lafnir að draga
hveitið til markaðar, og þótt prísinn sé
ekki hár, þá hafa bændur meiri pen-
ingaráð nú, en þeir hafa haft næstliðin
ár. Má því sjá margann í góðu skapi
með glas upp á vasann.
Mr. Theodór Jóhannsson, sem verið
hefir um tima á spítalanumí St. Boni-
face, til að fá bót við meinsemd í háls-
inum, er nú kominn heim aftur heill
heilsu.
Mr. Gísli Johnson hefir nýlega opa
að greiðasöluhús, og eru allir honuia
mjög þakklátir fyrir það, því allir er
til þess þekkja munu viðurkenna, að
honum farist það snildarlega úr hendi.
Allir eru velkomnir til Mr. Johnsons,
háir sem lágir.
Landi vor, Mr. Jónas R. Johnson,
varð fyrir tilfinnanlegu tjóni nú nýlega
á þann hátt, að kálfur er hann átti, af
Aberdeen Anguskyni, hengdist íþvotta
snúru. Kálfurinn var álitinn $50 virði.
Þann 29. þ. á að halda stórskostlega
tombólu hér í gamla prestshúsinu. —
Veitingar verða nægar, og marghreytt-
ar bkemtanir verða um liönd hafðar að
tombólunni afstaðinni. Þar á meðal er
búist við að Mr. S. Thorarensen og Miss
Jenny Finnson syngi solo.
Landi.
Til kjósendanna í
WINNIPEG.
Herrar mínir :
Af því ég hefi gefið kost á mér sem
sækjandi um Mayors-stöðuna, leyfi ég
mér að biðja um atkvæði yðar og fylgi.
Ég álít mayors-stöðuna bæði heiðurs-
stöðu og undireinsábyrgðarmikla stöðu.
Verði ég kjörinn mun ég þessvegna
gera mitt ýtrasta til að leysa starf mitt
af hendi með sannsýni og heiðri.
Mér er ómögulegt að lýsa skoðun-
um mínum öllum hér. En ég vona að
tækifæri gefist til að skýra þær á opin-
berum fundum á undan kosningadegi.
í millitíðinni langar mig til að minnast
á nokkur helztu atriðin.
1. — Ég álít að breyta þurfi skipu-
lagi bæjarstjórnarinnar. Bæjarráðið,
eins og það er nú útbúið, getur ekki
stjórnað bænum ssmkvæmt vilja og
kröfum gjaldendanna. Ef meðferð mála
væri gerð auðveldari gengju þau undir-
eins greiðar og óþörf eyðsla fyrirbygð.
2. — Undir góðri stjórn kæmist
bærinn af með færri skrifstofu þjóna í
City Hall.
3. — Það er skoðun mín að skrif-
stofustjórar allir og skrifstofuþjónar
ættu að vinna átta klukkustundir á
hverjum virkum degi, og fá góð laun
fyrir góða þjónustu. Það ætti að vera
einhvers manus skylda að sjá um að
þessi þjónusta sé veitt.
4. — Stjórnarskipulaginu skyld
breytt þannig, að gjxldendurnir geti
bent á hvar ábyrgðin hvilir.
5. — Það er skoðun min að bærinn
ætti sjálfur að eiga og ráða yfir eignum
sem seldar eru öðrum til umráða, svo
sem vatnsveitingar, stræta-lýsing, o. s.
frv. En áður en nýjir skyldu-baggar
eru látnir á bak bæjarráðsins, þarf að
breyta stjórnarfyrirkomulaginu.
6. — Óháður reikningayfirskoðun-
armaður skyldi yfirskoða reikninga og
bækur bæjarins.
Ofangreind atriði sýna aðeins nokk-
uð af þeiiu málum, sem ég hefi hugsað
mór að ræða ýtarlega á meðau á sókn-
inni stendur.
Vonandi að þér ákveðið ekki að
verða á móti mér fyrr en öll málefni
hafa verið skýrð fyrir yður,
er ég yöar,
D. W. BOLE.
AVinnipeg, 13. Nóv. 1895.
Náttúrusafnið.
(Niðurl. frá 2. bls.)
þetta muni hafa verið beinhákarl, þvi
að hann hefir einkennileg tálkn og afa.r-
stór, svo að maður kemst þar vel fyrir.
en samkvæmt kenningu Darwins getur
beinhákarl eða Selache maxima með
tímanum orðið að hákarli eða Scymnus
microcephalus ega jafnvel skyrhákarli,
svo hér er ekki um neitt efamál oð
ræða: Þessi áminsta ritgerð Gunnerus
byskups er prentuð í Kaupmannhöfn
1768.
Þá er ekki ekki ómerkilegra að safn
ið á köUka, sem einnig ríður í loftinu og
litur nú allþreytulega út eftir öll þau
þrekvirki, sem hann hefir unnið um
aldirnar. Þetta er sá verulegi djöfull,
og þarf nú ekki lengur að segja eins og
stendur í 1. Péturs hréfi 5. kap. 8. versi:
“yðar mótstandari, djöfullinn, gengur
um kring, sem öskrandi ljón, leitandi
að þeim sem hann geti gleypt”; og ekki
þarf heldur að hafa upp afbökunina úr
sálmabókinni (1875): ‘Satan vítt veður
títt um veraldar frón, harður eins og
hungrað ljón’ — í þessum sálmi, sem
Magnús Stephensen hafði gert svo
snildarlega, en var allur afbakaður af
Sálmabókarnefndinni, sem við var að
búast. (I nýjustu sálmabókinni er
þessu slept, því þeir hafa verið of fínir
til að nefna Lúcifer, en svo er bætt upp
með öðrum smekklevsum). En kölski
er á safninu í selslíki, og það er einmitt
sami selurinn sem Sæmundur fróði reið
hingað frá útlöndum, þegar hann kom
úr svartaskóla, og til marks um að
þetta er satt, þá er það prentað í Þjóð-
sögunum, og það með, að Sæmundur
sló kölska í höfuðið með saltaranum, og
það hreif. en ekki heiði hrifið mikið,
hefði kölski verið snertur með nýju
sálmabókinni: og þar sem Sæmundur
sló kölska með saltaranum, þá hlaut
saltarinn að hafa verið yfir kölska, eins
og vænta mátti, því það guðdómlega er
yfir hinu djöfullega ; en nú vildi svo
til, að fjTsta daginn sem safnið var op-
ið fyrir almenning, þá kom þar kona
úr kjrrkju, og hélt á nýju sálmabókinni
og staðnæmdist einmitt undir kölska,
svo að þar sem saltarinn var yfir kolska
þá varð nú nýja sálmabókin undir
kölska. Kölski hefir verið að sveima
mörg ár í selslíki, þangað til Markús
náði honum og gaf hann safninu ; en af
öllu þessu er kölski orðinn lítill og
lúpulegur, og horfir nú með fyrirlitn-
ingu yfir heiminn; en nú geta samt all-
séð bæði að djöfullinn hefir verið til, og
svo hvernig hann leit út þegar Sæ-
mundur fróði reið honum. Annars hef-
ir hann líka sjálfsagt verið á ferð fyrir
löngu i Noregi, því af honum er kom-
inn málshátturinn í Magnússögu ber-
fætta 10. kap.: ‘er-a hlunns vant’ kvað
refr, dró hörpu at ísi’, því ‘harpa’merk-
ir hér hvorki hörpu né hörpuskel
(hörpudisk), heldur sel (phoca groen-
landica), og heitir hann á ensku ‘harp’
og ‘harp seal’; nærri má geta, að refur-
iun hefði ekki þurft að draga hörpudisk
því hann hefði hæglega getað borið svo
lítinn hlut í munninum.
Þriðja furðuverkið á safninu er
hreindýrshöfuðið, sem var kejrpt í sum-
ar. Hreindýrið var skotið i Bláfjöll-
um nálægt Henglinum af Guðmundi
bróður Sæfinns. Þegar ég sá hann á
götunni með hausinn, þá datt mér í hug
ía stafsetningin og sagði ég si sona :
‘Skiturðu vel, Gvendur?’ ‘Já’, sagði
Gvendur,.‘ef ég hef góða bj-ssu’. ‘Þá
held ég komi þruma. þegar þú skítur’,
sagði ég. ‘Þú getur því nærri’, sagði
Gvendur. Og svo fengum við hrein-
dýrshausinn, en vísindamönnunum ber
ekki saman um hvernig á honum
standi. Sutnir segja það hafi uppruna-
lega verið hjörtur, sem hafi orðið fyrir
svo nefndri ‘retrograd Metamorphose’
eða ‘Degeneration’ (afturför), og hafi
það fyrst verið Aktæon, hinn mikli
veiðimaður, sem sá Diönu allsbera í
laug, en gyðjan reiddist og brá honum
í hjartarhki; Grikkir segja raunar hann
hafa verið rifinn sundur af hundum, en
hann mun hafa komizt frá þeim og
flakkað viða um lönd í margar ’aldir,
þangað til hann komst loksins norður
á Lappland og var þá orðinn að hrein-
dýri; þar náðu Danir honum og fluttu
hann hingað 1777, og var það eitt í
“innréttinga’fárinu, þegar átti að sveifla
landinu á einu vetfangi upp úr eymdar-
vilpunni og upp í paradis, en alt ‘fór i
hundana’. Aktæon hjálpaði ekki til
framfaranna og hafðist við á fjöllum
þangað til hann féll fyrir drápgirninni.
—Aðrir segja þetta sé höfuðið af Eik-
þj’rni, sam ‘stendur á Valhöll og bitur
af limum þess trés, en af hornum hans
verður svo tnikill dropi, að niður kem-
ur í Hvergelmi, en þaðan af falla ár’..
en af þessum dropa er alt brennivín
komið, og eiga öll náttúrusöfn tilveru
sína honum að þakka. En aðrir segja
að þetta sé sólarhjörturinn, sem nefnd-
ur er í Sólarljóðum: ‘Sólar hjört leit
ek sunnan fara, hann teymdu tveir sam
an’ (nefnilega Guðmundur og sá sem
með honum var) — ‘fætr hans stóðu
foldu á, en tóku horn til himins’. Með
löngum og flóknum samlíkingum hefir
Bergmann prófessor komizt að þeirri
niðurstöðu, að'sólarhjörturinn’ eigi að
tákna ‘Lucifer eða djöfulinn, svo eftir
YFIRGNÆFANDI
er hún í hvaða skilningi sem er
Walsh’s Mikla Gjafverds-sala.
Á öllum stundum dagsins má sjá stórar lestir af allra stétta fólki rogast
með bögla og bagga burt frá búðinni /uina Wahli — 515 og 517 Main Street,
gegnt City Hall. Sýnir sú uppihaldslausa lest og sannar að þessi gjafvirðúaala
vor hefir náð alþýðuhylii. Það kemur fyrir að í vetrar eða sumarlok selja kaup-
menn vöruafganginn með góðu verði, en þá er ekki nema um mola að gera, stúf
af þessu og slatta af hinu. Hjá osa eru áataðumar alt aðrar. Vér vorum neydd-
ir til að kasta heildsölu upplagi voru í kjöltu viðskiftamannanna i bjrjun vetr-
arins, til þess að losast við alt vörumagnið áður en vér lokum búð og hættum
að verzla. / atað ágóða berum vér tjón eitt úr býtum, eftir haustið og veturinn til
jóla. Þetta stafar af heilsuleysi formanns vors og engu öðru. Yðar er gróð-
inn, vort er tapið. “Seljið alt með hálfvirði” er skipun vor til afhendingarmann-
anna. Yfirhafnir karla fjrrir hálfvirði ; unglingspilta j’firkápur fjrrir hálfvirði;
yfirkápur fyrir börn fyrir hálfvirði; alfatnaðir karla fyrir hálfvirði; alfatnaðir
fyrir unglingspilta fjwir hálfvirði; alfatnaðir fyrir börn fyrir hálfvirði; nærföt
fjwir hálfvirði; sokkar og vetlingar fyrir hálfvirði; jrfirskjrrtur fyrir hálfvirði;
hálshindi og kragar fyrir hálfvirði; hattar, liarðir og mjúkir, fyrir hálfvirði;
axlabönd fyrir hálfvirði ; vasaklútar fjrir hálfvirði; húfur og hanskar fyrir
hálfvirði; — alt í búðinni fyrir hálfvirði.
rir. Joseph Skaptason vinnur í búðinni, og væri honurn stór á-
nægja í að spara löndum sínum nokkra dollara, er þeir þurfa að fá sér föt eða
eitthvað er til klæðnaðar heyrir. Komið inn og spjallið við hann.
Búðin til leign. - - - Hyllur og skápar til sölu.
Walsh’s Clolhing House s,Mai„5,s7tr.
því á safnið hann í ‘dúpló’, og munu
þessa hvergi dæmi annarsstaðar í lieim-
inum, og höfum vér þannig tvær óræk-
ar sannanir fyrir að ekki þurfi að ótt-
ast kölska.
Fjórða furðusjónin er rostungshaus
með tönnum í. Sá rostungur var drep-
inn í Grindavík í Nóvember í fyrra og
heitir sá Ilelgi er at honum vá, en
mun hafa fengið litið fjrir. Rostung-
urinn var sagður 7 álna langur, og er
það venjuleg stærð, þótt sumir verði
stærri. Rostungar voru áður kallaðir
‘rosmhvalir’ og voru tiðari hér fyrrum ;
við þá er kennt ‘Rosmhvalsnes’. Samt
fara ekki margar sögur af þeim, ég
þekki einungis tvær (fyrir utan þá úr
Grindavík): Espólín segir að einn hafi
verið unnin á Miðnesi 1694 og 1190
vann Rafn Sveinbjarnarson rostung í
Dýrafirði, og þótti svo mikill fengur,
að Rafn hét á Tomas erkihyskup hinn
helga, að hann skjddi gefa honum ‘haus
fastar tennr or hval’ ef hann næði hon-
um, og það efndi hann. En þá voru
rostungstennr konungagersemar og
gullvægar. Annars finnast rostunga-
tennur (og stundum bein) ósjaldan hér.
og eru þá orðnar steingjörvingar. í
Skuggsjá er sagt þeir séu 14 eða 15 áln-
ir að lengd, en þær álnir eru miklu
stj’ttri en nú. Tennurnar eru alt að al-
in á lengd. húðin þumlungsþykk og var
höfð í svarðreipi. Rostungar nærast
einkum á sjóarjurtum og þarategund-
um. eða þá líka á smádýrum, fiskum og
kröbbum. Kjötið er sagt vel ætt, og
hafa sjómenn tekið það fram yfir saltað
sauðakjöt. Rostungar eru ófælin dýr,
illir viðureignar ef á þá er ráðist; þeir
eru i stórhópum, og ef ráðist er á einn,
þá koma allir hinir til að hjálpa. og er
mesta hætta að eiga við .þá, því þeir
leggja tennurnar upp á bátinn til að
hvolfa honum, eða reyna til að brjóta
gat á hann, því vit vantar þá ekki.
Tekizt hefir að temja unga rostunga og
verða þeir gæfir og viðfeldnir, en sjó
verða þeir að hafa. Á fyrri öldum voru
þeir algengir í Norðurhöfunum. Nú
eru þeir ekki nema við jrztu strendur
íshafsins.
Vinarlegt ráð
VARÐ TIL ÞESS, AÐ SJÚKLING-
URINN FÉKK HFILSU AFTUR.
Dr. Williams Pink PiUs hjálpuðu, þar
sem læknarnir höfðu ekkert getað
á unnið í þrjátiu ár.-—Sjúklingur-
inn er einn af hinum heiðvirðustu
bændum í Northumberlands hér-
uðum.
Tekiðeftir Trenton Advocate.
Veikleiki Mr. John Frost’s er sér-
lega ertirtektaverður. Hann er einn af
beztu bændunum i Northumbcrland
hér, og hefir inikil verzlunar viðskifti
í nærliggjandi townships. Við höfum
þekt hann persónulega meir en tfu ár.
Síðastl. Febrúar sagði hann okkur sögu
sína á þessa leið : “Ég er fæddur á
Englandi. Tólf ára gamall flutti ég til
Canada með foreldrum mínum, og sett-
umst við að í Prince Edward County
ogdvöldum þar í þrjú ár. Þaðan flutt-
nm við til Rowdon township í grend
við Hasting héraðið. Þrjátíu ár bjó ég
í Rowdon og var þrjú ár í Seymour
towuship. en á nú heima i Murray
township og hefi verið hér hin tíu síð-
astl. ár. I þrjátíu ár hefi ég kvalist af
gigtveiki. Allan þann tima tefi ég
reynt tugi lækna, sem tiltölulega litið
gátu að gert, og á sama tíma reyndi ég
Kveljandi að komaat í vagninn.
ósköpin öll af ýmsum meðulum, en alt
til einskis, ekkert gat læknað mig.
Varlaleið mánuðursvo að ekki væri ég
með köflum ófær til vinnu og lá stund-
um margar vikur rúmfastur og gat
hvorki hrært legg né lið fyrír kvölum.
Tveir læknarnir sögðu mér einu sinni
að það yrði að taka af mér annan hand-
legginn, til að bjarga mér frá bráðum
dauða. Ég segi ykkur satt, að ég hefi
liðið mikið og vildi gefa alt til þess að
mér batnaði. Sökum verzlunaranna er
ég neyddur til að aka, en það er kvöl
fyrir mig að komast í vagninn og úr
honum.
Eftir að hafa hej’rt sögu hans, sem
við vissum sanna, vildum við rejrna
hvert Df. Williams Pink Pills gætu
ekki læknað hann, og hvöttum Mr.
Frost, þvert á móti vilja hans, til að
reyna þær. Hann fékk svo sex öskjur
og byrjaði aðbrúkaúr þeim. í fyrstunni
brosti hann að okkur fyrir trúua á þess
um pillum. Við komum svo að finna
hann eftir að hann hafði brúkað úr
fyrstu öskjunum, oglét hann þá ásann-
ast að hann væri betri og að eitthvað
mundi varið í þetta meðal. Hann hélt
svo áfram þar til hann hafði brúkað úr
sex öskjum og var þá eins frískur og
hraustur eins og nokkur maður getur
verið. Tveir mánuðir eru liðnir síðan
ogviðvitum með vissu. að lækningin
hefir hepnastágætlega. Yið sjáumhann
stöðugt gegna störfum sínum með
dugnnði og þakkar hann heilsu sina
Pink Pills. Enginn sem þekkir Mr.
Frost efar orð hans. í gær ávörpuðum
við hann þannig: “Mr. Frost; ertu al-
læknaður og laus við gigtina fjwir fullt
ogalt?” “Égernú hraustur”, svaraði
hann. “Pink Pills liafa upprætt gigt-
ina algerlega. og ég «r eins og nýr
maður. Þær hafa gefið mér nýtt lif og
ég segi öllum sem ég sé hvað læknaði
nug. Þeir, sera þekkja Mr. Frost og
vita hvað hann hefir liðið í fjölda mörg
ár, og sjá hann nú sistarfandi og eins
og ungan í annað sinn; þausnöggu um-
shifti frá þreytandi veiki til algerðrar
heilsu, meiga álíta að það sé kraftaverk
En við undrumst ekkert yfir því, af
því við heyrum úr öllum áttum sam-
kyns sögur um lækningar með Pink
Pills. Lyfsalarnir hafa tekið eftir hinni
auknu sölu þeirra og ánægju viðskifta-
maunanna.