Heimskringla - 13.12.1895, Side 1
IX. ÁR.
WINNIPEÖ, MAN., 13. DKöEMBER 1«95.
NR. 0
FRETTIR.
DAGBÓK.
FÖSTUDAG 6. DES.
Ilinn naínkunni Canadiski skáld
söguhöfundur, Gilhert Parker, kvong-
aðist í gær í New York.
Sigling um efravatn til og frá Port
Arthur, var hætt i gær vegna ísa.
Seint í síðastl. Okt. var gerð til-
raun til að hrífa borgina Canton í
Kína undan yíiiTáðum keisarans, í
því skyni að mynda þar óháða stjórn.
En samsærið komst upp áður en nokk-
uð varð að gert. Kristnum mönnum
er kent um og mun nú ekki batna
hagur þcirra í Kínaveldi.
f efrideiid þjóðþings Bandaríkja
er framkomið frumvarp (W. E. Cha-
ndler, repúblíkan, höfundur) þessetn-
is, að fríslátta silfurs verði viðtekin í
Bandaríkjunum undir eins og Bretar
og Þjóðverjar viðtaka samskonar lög.
LAUGARDAG 7. DES.
Stjórn Kínlands hefir fyrirskipað
járnh”autarbygging milli höfuðborg-
arinnar og sjóstaðarins Tien-Tsín. Á
sporið að vera tvöfalt á allri þeirri
leið.
•avanxNojái ‘sjojaudojfj
•axT ‘ OD aDN3HAWT SIAVŒ
•nao ‘nMoamBqTjrnH ‘S.LNloáV'I 'V—‘úlfltTTU
OJIH •ubj u(: Xpotuaj pi'Itu ptnt o :ti8
‘0Jt!8 v BV 0(11 us puatttuiojaj Íl3(ltJBJI8Jt[im
I •o«T!qiuni pUB 3[juq oqi u{ njiiú o.ioajs joj
J0J8VIJ [OllJUJHl l V a -iaoá postt JÍU[A1{1I
sB|d |0i|;yei
«"ira» m
Xq poano pmi poAaiRii ÁuduioJj
‘apis «1 u?v,5
‘snpta j[í[tunjx ‘siuty
ailtffag ‘at|jv-ðwj ‘oqavil’1 -
þings Bandaríkja í gær, er eitt sem
fyrirskipar fjárútlát og fangelsi fyrir
hvern mann sem þiggur titil, nafn-
bét eða heiðursmerki frá erlendii'
stjorn,
Félag eitt í Bandaríkjum hefir
að sögn tekið að sér að byggja 200
mílur af járnbrautum í Kínaveldi,
Canadiska ‘Soo’-skurðinum hefir
verið lokað til þess á komanda vori.
Á 3 mán. sem hann var opinn fóru
um hann 1189 skip, er báru til sam-
ans f milj. tons.
Það er mælt að Sir W. C. Van
Horne, forseti C. P. R. fél, sé um
það að segja af sér.
Frosthörkur víða eystra, — alt
að 20 fyrir neðan zero.
Grísk-kaþólska kyrkjan í Rúss-
landi ætlar að fara að hugsa um
sauði sína í Bandaríkjum. Nafnkunn-
ur byskup þeirrar kyrkju er kominn
vestur og ætlar, til að byrja með, að
byggja dómkyrkju mikla í Chicago,
er kosti ekki minna en milj.
Maður einn á áheyrendapöllun-
um í þinghúsi Frakka, skaut tveim-
ur skammbyssuskotum út í loftið, í
gær. Dyrunum var lokað og hann
tekinn fastur.
Á fyrstu 5 mánuðunum á yfir-
standandi fjárhagsári voru tekjur
Canadastjórnar $1.344,000 meiri og
gjöldin $1.800.000 minni en á sama
tímabili I f'yrra.
MÁNUDAG 9. DES.
Hinn nafnkunni blaðamaður og
rithöfundur á Englandi, George Au-
gustus Sala, lézt í gær í Lundúnum
eftir langa legu, 67 ara gamall.
Einn af ráðgjöfum Tyrkjasoldáns,
Said Pasha, er flúinn, og heldur nú
Sir Pliilip Currie, ráðherra Breta í
Constantinopel, verndarhendi sinni
yfir honum. Ástæðan til flóttans er
sú, að Said Pasha fylgdi umbótum og
stjórnarbyltingu fast fram og var því
í lffsháska.
Vonzkuveður á Bretlandseyjum
um undanfarinn tima. Af því hefir
leitt skipaskaða allmikinn.
Eldsumbrot mikil eru sögð f
fjallinu St. Augustine í New Mexico
í suðvestur Bandaríkjum. Fyrsta
gosið á að hafa átt sér stað 3. þ. m.
ÞRIÐJUDAG, 10. DES.
Þjóðverjar eru Bandarfkjastjórn
reiðir og hefir utanríkisstjóri þeirra
látið það ótæpt í ljósi á þinginu.
Þóttust þeir verða varir við hótanir í
ræðu Clevelands, af þvf Þjóðverjar
bönnuðu innflutning nautgripa frá
Bandaríkjum m. m. Utanrfkisstjóri
Þjóðverjasegir hótanir þýðingar-
lausar.
Meðal frumvarpa til laga, sem
fram voru borin í efri deild þjóð-
VEITT
HÆ8TU VKRÐtiAUN A HBII188ÝNINQUNN
DEt
BAKING
WDB
IÐ BEZT TILBÚNA
Óblðnduð Tfnberja Cre*m of Tartar
Powder. Ekkert Alún, ammonm eð»
Onnur ðhoil efni.
40 in reynsla.
MIÐIKUDAG, 11, DE8.
Kvennmorðinginn Hemy Hay-
ward, sem fyrir rúmu ári síðan
myrti Catharine Ging, var hengdur
í Minneapolis aðfaranótt hins 11.
Des.
I gær loksins leyfði Tyrkjasol-
dán að herskip þau, er stórveldin
vildu fá inn á höfnina í Konstantinó-
pel, fengju fararleyfi um Ilellusund.
Um þetta hefir verið jagast á hverj-
um degi síðan 19. Nóv.
Havai-stjórn hefir gefið flestum
sínum pólitisku fóngum. sem tóku
þátt í uppreistinni í fyrra, upp allar
sakir og gefið þeim frelsi. Aföllum
hópnum, sem tekinn var fyrir upp-
reistartilraunir, eru nú ekki eftir
nema 8 menn í fangelsi.
Fannburður og ofsaveður á
Þýzkalandi olla stórmiklu eignatjóni.
Blfiðin á Englandi og Frakk-
landi segja að Suður-Ameríku lýð-
veldin litlu séu að leiða Bandaríkja-
stjórn í ógöngur, sem erfitt verði fyr-
ir hana að losa sig úr, í sambandi
við Venezuela-þrætuna.
í Boston er talað um að safna
samskotafé handa Armeníu-mönnum
í Ameríku. Er talað um að mynda
félag er standi fyrir því og skuli
það vinna í einingu með samskonar
félagi, sem nú er að starfa á Eng-
landi.
FIMTUDAG, 12. DES.
Stjórnarformaður Nýfundnalands-
manna, Sir Wm. Whiteway, hélt af
stað til Canada í gær. Sagt hann
ætli að tala um inngöngu eyjarinnar
í fylkjasambandið.
Fyrir skfimmu flutti ráðherra
Bandarikjanna á Englandi, Thos. F.
Bavard, ræðu í veizlu í Edinborg og
talaði hann einkum um hagfræði.
Repúblíkar í Bandaríkjum kæra
hann nú fyrir að hafa flutt pólitiska
ræðu, og vilja hafa hann burtu og
liggur nú þess efnis ályktun fyrir
þinginu.
Tvö gufuskip rákust saman í
gær á Liverpool-höfn og skemdust að
mun. Farþegjar allir og skipverjar
komust af.
Sagt er að N. Clark Wallace,
comptroller of customs, í ráðaneyti
Canadastjórnar, hafi sagt af sér, af
því hann telji víst orðið að dominíon
stjórnin láti þingið samþykkja um-
bótalög fyrir kaþólíka í Manitoba.
Þýzka gufuskipafélagið: Ham
burg Amerícan Packet Co., ætlar f
vetur að kotna upp nýrri gufuskipa-
línu milli New York og Rio Janeiro
f Brazilfu.
Atcheson, Topeka & Santa Fe’
jámbrautin f Bandaríkjum, 10,000
mllur alls, með öllu tilheyrandi, var
í g*er seld við uppboð fyrir $60
milj.
Allan G. Thurman, hinn nafnfrægi
demokrata leiðtogi, er látinn, 82 ára
gam&ll.
Smjörgerðar-skóliiin.
Nú hefir fylkisstjórnin gefið útj
auglýsingu, er sýnir alt fyrirkomulag-
ið.
Skólinn byrjar 6. Janúar ogheld-!
ur áfram hvern virkan dag til 27.
Janúar. Byrjar aftur.3. Febrúar og
heldur áfram til 24. Febrúar. Á
þessum tíma verður smjörgerð kend
einn daginn, en ostagerð hinn, og á
þessum skóla er ætlast til að verði
þeir einir, sem ætla sér að vinna að
smjör og ostagerð í þess konar verk-
smiðjum.
Kennsla í smjör og ostagerð og
meðferð mjólkur o. s. frv.. til nota á
heimilinu, byrjar 2. Marz og helzt til
30. Marz. Á þessu tímabili er ætl-
'ast til að bændadætur og synir, sem
ekki gera ráð fyrir að vinna á smjör
og ostagerðarhúsum, en búazt við að
stunda búið, — á þessum tíma, í
Marzmán., er ætlast til að bændalýð-
urinn sæki skólann. Eins og gefur
að skilja verður tiisögn öll og kcnslu-
aðferð meira og minna frábrugðin
þegar verið er að sýna aðferðina á
heimilinu, og þess vegna þýðingar-
lítið fyrir þá sem búast við að halda
kyrru fyrir á bújörðinni, að ganga á
skólann f Janúar og Febrúar.
Þessi tími er svo stuttur, einn
einasti mánuður, að allur þorri ís-
ienzkra bænda getur hagnýtt hann.
Setjum svo að 3 eða 4 þeirra .samein-
uðu sig og sendu skýran pilt eða
stúlku. Þá yrði kostnaðurinn ekki
tilfinnanlegur fyrir hvern einn.
Kostnaðurinn verður þá: eins mán-
aðar fæði í bænum, flutningsgjald
(með járnbraut eða öðruvísi) til bæj-
arins og frá honum, og verð einkenn-
isbúningsins hvíta, sem allir nemend-
ur verða að vera í á skólatímanum á
hverjum degi og sem fæst iijá for-
stöðumanni skólails, hr. C. C. Mac-
donald, fyrir mjög lágt verð og fyr-
irhafnarlaust. Allur þessi kostnaður
er svo lítill, að væri honum jafnað
niður á milli 3 eða 4 bænda, setn
vildu vinna í saralögum, fyndu þeir
alls ekki til hans. En sé nemandinn
sem þeir senda skýr og láti sér um-
hugað að neina, getur hann á þessu
tímabili numið svo mikið, að tiikostn-
aðurinn borgi sig á einu sumri, þann-
ig, að þeim mun meira verð fáist fyr-
ir smjörið, sem þá verður búíð til
samkvæmt fyrirsögn nemandans.
I Aprílmánuði öllum verður Jit-
ið yfir alt sem gert hefir verið á 3ja
mánaða tímanum. Er það gert í þeim
tilgangi. að nemendunum verði alt
sem þeim heflr verið kent í fersku
minni þegar vorannir og smjörgerð
byrjar á bújörðinni. I því yfirliti er
öllum nemendum boðið að taka þátt,
kvert iteldur þeir hafa stundað nám-
ið í Janúar, Febrúar eða Marz. Það
er enginn efl, að það er gagnlegt að
nemendurnir taki þátt í þessu starfi í
Apríl. Kostnaðurinn eykst þá að
vísu sem nemur eins mánaðar fæði
en sá kostnaður er sjálfsagt meir en
tilvinnandi.
Eins og vér mintumst á fyrri,
þessu skólanámi viðkomandi, gætu
ísl. bændur eflaust komist létt út af
að borga fæðiskostnað nemendanna.
Fyrst og fremst eiga margir vini eða
ættingja í bænum, er mundu fúslega
ljá lið sitt, og í öðru lagi gætu þeir
samið við húsráðendur nú þegar, um
að taka að sér nemanda í Marz eða
I Marz og Apríl, og borgað fæðið fyr-
irfram, eða nokkurn hluta þess, í
PYNY-PECTORAL
Positively Cures
COUGHS and COLDS
ln a surprisingly short time. It's a scl-
entifie certainty, tried and true, soothing
and healing in its effects.
W. C. McComber 8c Son,
Bouchette, Que.,
npori tn s letUr that Pyny-Peetorsl eured Mrs.
C. Gsrceau of chrenle cold In cheet snd Þronchisl
tuhoe. and also rured W. G. McCombor of a
long-etanding cold.
Mr. J. H. Huttt, Chemist,
528 Yonge St., Toronto, wrltes:
“ As a goueral cou«h and lun* syrup Pynr-
Poctoral Is a inost iiiTaluablo pr«i>aratlon. It
has glTon tho utrao«t satlsfacuon So all who
havii iriod it. nianr haring spofeen to rae of the
beoofita derÍTod from 1U uae in thoir fauiliea.
It ia aulUhle for old or yonnc. being ploaaant to
tho taate. IU aale with ra« haa bœn wundovftU.
and I can alvaya reeorataand it aa a aafo and
rélUblo ooogh maálcino. *
br,c BolO*. fef C1».
DAVIS & LAWRKNCE CO., Ltd.
Sole Proprietore
Momtrku.
kjöti, smjöri o. s. frv. Að minsta
kosti er það reynandi, og því von-
ai\di að Islendingar sleppi ekki þessu
tækifæri án þess að gera tilraun að
hagnýta það.
Formaður skólans verður C. C.
Míiedonald, Dairy Superintendent
fvlkisstjórnarinnar. Fyrirlesarar
verða þeir herrar, fylkisþingmenn-
irnir: John Hettle í Boissevain og
J. G. Rutherford í Portage La Prairie
og S. J. Thompson, dýralækna-um-
sj-inarmaður fylkisstjórnarinnar og
Richard Waugh í Winnipeg.
ÚR ARGYLE-BYGÐ.
Mánndaginn 25. f. m. fór séra Haf-
steinn Pétursson vestur í Argyle til þess
að vera við jarðarför Bjarna Jósefsson-
ar, er andaðist þar 21. f. m. Bjarni sál.
var myndarmaður og vellátinn. Hann
átti fyrir konu Lilju I. Chr stopherson,
systur Sigurðar Christophersonar á
Grund og þeirra systkina. ( Þau höfðu
gipzt 5. Agúst síðastl. suraar. Jarðar-
förin fór fram þriðjdkv. 26. f. m.
Séra Hafsteinn dvaldi viku tíma í
Argyle. Hann prédikaði í kyrkju safn-
aðanna sunnudaginn 1. þ. m. Þá voru
liðin 6 ár síöan hann pródikaði þar í
fyrsta sinn (1. Des. 1889). f þessari ferð
skírði hann 8 börn og gaf saman tvenn
hjón. Þau eru: Mr. Sigurður Guð-
brandsson og Mjss Guðný Þorbjörg
Guðjónsdóttir; Mr. Andrés Helgason
og Miss Elín Jósafatsdóttir. Giftingar
þessar fóru fram 2. þ. m.
Kvennfélag Argylgbygðar er í
tveimur deildum eða skift í tvö félög, er
vinna saman i mestu einiugu. Kvenn-
félög þessi héldu nýlega tvær arðber-
andi samkomur, aðra í austurhluta en
hina í vesturhluta nýlendunnar. Báðar
þær samkomur fóru í alla staði vel fram
Séra Hafsteinn var ó annari þeirra og
hélt þar tölu. —Kvennfélag Argyle-
bygðar hefir unnið mikið og margt í
þarfir Argylesafnaða. Ilið seinasta, sem
það hefir gert fyrir kyrkjuna, var að
láta mála (varnissa) hana að innan. Til
þess kostaði kvennfélagið $15.
Mr. Bæring Hallgrírnsson hefir
s-uiðað ljómandi fallegan ræðustól og
gehð íslenzku kyrkjunni i Argyle.
Séra Hafsteinn heinrsótti allmarga
af sínum göinlu viuum í Argyle, en þó
voru þeir auðvitað miklu fleiri, er hann
vegna tímaleysis eigi gat komið til.
Allstaðar var honum tekið ágætlega,
eins og vant er. Hann er Argylemönn-
urn einkar þakklátur fyrir hina marg-
reyndu trygð þeirra og ást til hans.
Eins og kunnugt er, þá hafa Argyle-
menn haft Agæta uppskeru í ár, enda er
hagur þcirra með langblómlegasta móti.
Þótt hveitiverð sé nú lágt, (38—39 cts.),
þá fá þó margir þeirra mikið fé fyrir
hveiti sitt, og geta þannig að meira eða
minna leyti losað sig úr skuldum. Fram-
tíðarhorfur manna þar eru því yfir höf-
uð mjög góðar.
Mr. Friðjón Friðriksson hefir reist
sér ágætlega vandað og mjög fallegt
ibúðarhús í Glenboro. Undir því er
steinkjallari með hitunarofni í (Furnace)
Björn Sigvaldason bóndi í Argyle hefir
og komið sér upp í sumar vönduðu íbúð-
arhúsi með steinkjallara undir.
A seinasta kyrkjuþingi var vígður
nýr prestur til Argyle-safnaða, séra
Þovkell Sigurðsson. Hann var orðinn
veikur þegar hann tók vígsluna, 1 g hef-
ir verið sjúkur ávalt siðan. Dr. M.
Halldórsson i Park River tók hann þá
til lækninga og hefir séra Þorkell verið
undir læknishendi hans síðan. Með því
að séra Þorkell er svo langt frá söfnuð-
um sínum, þá eiga þeir erfitt med að fá
greinilegar og áreiðanlegar fréttir af
sjúkdómi hans. Það væri óskandi og
vonandi, að séra Þorkell kæmist sera
fyrst til heilsu og gæti tekið til starfa
hjá söfnuðum sínum r Argyle. Söfnuð-
irnir þrá heitt og innilega að fá prestinn
til sín.
Það er útlit fyrir.að póstmeistarinn
á Baldur standi eigi vel í stöðu sinni.
Að minsta kosti reyndist séra Hafsteini
það svo. Hann ætlaði að senda 3 ''Post
Cards til Winnipeg fimtudaginn 28. f.
m. Þessi "Post Cards” voru lögð inn á
pósthúsið á Baldur í tækan tima. Þar
lágu þau yfir tvær póstferðir til Winni-
peg. Og að síðustu sendi póstmeistar-
inn þau, ekki til Winnipeg eftir utaná-
skriftum læirra, heldur sendi hann þau
öll til Grund P. O. Slík axarsköft ætti
póstmeistaranum á Baldur eigi að liðast
óátalin.
Halló, íslendingar!
Hór með læt ég mína góðu og gömlu
viðskiftavini vita.að ég hefi opnað mína
rakarabúð aftur, með öllum útbúnaði
betri en áður. Prfs sami og áður, núm-
erið 617 Aðalstrgeti, að austanverðu,
milli Alexander og Logan Ave.
Á. Thordarson.
Tiltru almenninp
sýnir sig í vorri stór-miklu verzlun á dejri hvorum.
WALSH ER ADHÆTTAVID VERZLUN!
Eng'ir þvílíkir prísar áður þektir í Winnipeg.
Peningasparnaður almennings ómetanlegur.
Aftur og aftur kemur folkid.
Allir hlutir í búðinni seldir með stór-niðursettu verði. Stór afsláttar á yfir-
kápum, rlfatnaði buxum, skyrtum allskonar, ullaruærfötum, vetl-
ingum og hönzkum, húfum, hálstaui, manshettu.skyrt-
um, krögum, axlaböndutn, o. s. frv. o. s. frv.
Alt í búðinni fyrir hálfvirði.
Alt fer fyrir 40, 50, og 60 cts. dollarsvirðið.
rtr. Joseph Skaptason vinnur í búðinni, og væri honum stór á-
nægja í að spara löndum sínum nokkra dollara, er þeir þurfa að fá sér föt eða
eitthvað er til klæðnaðar heyrir. Komið inn og spjallið við harm.
Búðin til leigu. - - - Hyllur og skápar til sölu.
Walsh’s Clothing House ^vSn^tr.
Jolagjafir
handa börnum er
eitt af því sjálfsagða. Það má ekki
gleyma þeim og þess er heldur engin
þörf því
JOHN HALL
hefir jólagjafir handa börnum við allra
hæfi, í öllum myndum, er kosta frá 5c.
upp. Alt fallegir munir, sem gleðja litlu
hjörtun. En svo þurfa menn fleira en
leikföng barna til að gleðja sig með á
jólunum, og
PT alt er til hjá Hall
sem þar að lýtur. Epli og aldini og
Candy allskonar, hnetur, sætabrauð, o.
o. frv., alt með lægra verði en í stóru
búðunum niðri í bænum.
Komið inn, landar ! Sjáið og skoð-
ið vörurnar og fregnið um verðið.
JOHN HALL,
405 Ross Ave.
Ivomið í Bakaríið fyrir jólin.
G. P. THORDRRSON
tekur af ykkur alt ómak með að baka
til jólanna. Hann lætur ykkur fá jóla-
köku góða og ljómandi fallega, fyrir
ekki öllu meira en þið þurfið að borga
fyrir efni i góða köku. Auk þess gefur
hann hverjum sem kaupir fyrir $5.00 frá
því í dag og til aðfangadagskvölds kl. 11
$1 00 Jólaköku.
Þeim sem á þessum tima kaupir fyrir
$3.00, gefur hann 50 centa köku; þeim
sem kaupir fyrir $1.50, 25c. köku; þeim
sem kaupir fyrir $1.00, 1 pd. af góðu
mixt Candy, og þeim sem kaupir fyrir
50c. 1 kassa af Candy. Sama er hvort
keypt er brauð, brauð-tickets eða Cakes.
Komið strax og semjið við
G. P. Thordarson
Gleðileg Jól!
Allir á siglingu til beztu
Skraddarabúðarinnar
PEACE & CO.
50« .Tluin Str.
horninu & Pacific Ave.
Fötin sniðin, saumuð, og útbúin
eins 0g þér segið fyrir.
Peace & Co.
566 Main Str.
Til kjósenda!
Um atkvæði yðar
og fylgi er virðingarfyllst beðið fyrir
James Scott
sem skólanefndarmann frá 4. kjördeild
bæjarins fyrir árin 1896 og 1897,
Þegar ég bið um atkvæði yðar ætl-
ast ég til að þér eingöngu farið eftir
því, hvernig ég hefi komið fram í skóla-
nefndinni á síðastl. 2 árum.
Yðar.
JAHES SCOTT.
“Chris.” Sigvaldason
hefir nú hafið hraðflutniny milli Selkirk
og Islendingafljóts.
Eer frá Selkirk á þriðjudaysmorgrui
kl. 9, undireins og lestin (vestan Rauð-
ár) er komin og kemv.r samdagurs að
Giwli. Á 10 kl.st. komast menn þannig
fi á Winnipeg að Gimli og — altaf í ofn-
hitnðum sleða með mjúkum sætum. Til
Selkirk koma menn aftur frá N. ísl. á
föstudagskvöid eða laugardagsmorgun,
eftir vild, og ná i laugardagslestina.
vestan árinnar til Winnipeg.
Sama, Idga fargjaldið og fyrrum.
Frekari upplýsingar fást hjá hr. J.
W, Finney, 535 Ross Ave,, og á skrif-
stofu Hkr.
Kr. Sigvaldason,
WEST SELKIRK.
ATH. Tek farþegjana á vagnstöðinni,
eða sæki þá hvert i bæinn sem vill.
Kr. S.
Gullrent úr fyrir $7.50
Viltu fá góð kaup ?
Viltu fá hið besta
úr sem fæst fyrir
þetta verð? Hik-
aðu ekki við að
segja já. Sendu
okkur þessa aug-
lýsingu med nafni
þínu og utanáskr-
ift, og líttu okkur
v'ta hvort þú vilt.
kvenmanus eða
karlmaiitis, open
eða hunting Case-
úr, og viðskúlum
seudu þér hið besta
úr sem hægt er að
fá fyrir þetta lága
verð. — Úrin eru
gullrend með 14 k. gulli, og verkið gott
Ámerican Nickel verk, sem ver ábyrgj-
umstaðendi8t20ár. Úrið gengurréglu-
lega <ig vel og lítur út eins og $50 00 úr.
Þú skoðar úrið hjá Express Agentinum
og ef það er eins og því er lýst og þú á-
lítur það kaunandi, þá borgar þú hon-
um $7 50 (heildsöluverð), og burðargjald
á því.—Ef þér lýzt ekki á það, þá taktu
það ekki . Við vrljum selja fljótt og mik-
ið með litlum gróða á hverju fyrir sig.
Við seljum að eins góð úr.
Þegar þú biður um úr, þá strykaðu
út það sem þú vilt ekki hafa af því sem
á eftir kemur :
Send me—llunting—OpenFaee—Gents
—Ladies—Watch. — Ef þú vilt fá $3.50
festi með úrintt fyrir 50c. þá láttu þess
getið. — Sendið til
The llDÍTcrsal Witeh i Jewelery M&nuf. Co.
Depot 68—508 Schiller Theatre.
(Verðlisti fri.] Chicago, 111.