Heimskringla - 27.12.1895, Blaðsíða 1
0
Heimskríngla.
IX. ÁR.
WINNIPEG, MAN., 27. DESEMBER 1895.
NR. 52.
Fundarboð.
#-#
Ársfundur hluthafa allra 1 The
Heimskringla Printing & Publ-
hibing Company verður haldinn &
skrifstofu félagsins, Cor. Ross Ave. &
Nena Str., í Winnipeg, Márudaginn
13. Janúar 1896, kl. 8 e. h.
J. W. Finney,
forseti.
Winnipeg, 18. Des. 1895.
Fundlnum frestað.
Ársfundi prentfélags Heims-
kringlu er hér með frestað til mánu-
dags 20. Janunr n<ndk., &
sama stað og tíma og að ofan er
skráð.
J. W. FINNEY,
Forseti.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
FÖSTUDAG 20. DESEMBER.
Krit-eyjarbúar eru i illu skapi og
sagt von á almennri uppreist þá og þeg-
ar. Astœða engin er gefin, en sagt að
Armeniu-menn séu að blásaaðóánægju-
kolunum.
í gær var lokið máli Erastus Wi-
mans, sem fyrir nokkru var fundinn
sekur um ritfölsun og dæmdur í 5J árs
betrunarhússvinnu. Þessi dómur var
ÓHýttur og er nú Wiman frjáls maður.
Þjóðþing Bandaríkja er beðið um
24J milj. dollars til herskipasmiða. Fyr-
ir það fé á að koma upp 20 torpedo-bát-
um, er kosti $175,000 hver og 6 bryn-
skipum, sem kosti $4 milj. hvert, auk
vopnabúnings alls.
í efrideild þjóðþings Bandaríkja var
helzt ekki um annað talað í gær en her-
búnaðv styrjöld og Monvoe-regluna.
Einkenniiaga atvikið um daginn var
það, að mitt í þessu vopnaglami var
borin fram bænarskrá dags. 19. Febrirar
1895 frá mörg hundruð þingmönnum
Breta, þess efnis að Bretar og Bandarík-
in leggist á eitt til að fá sáttarétti á
komið hvenær og hvar sem tveimur
Þjóðum eða fleiri ber eitthvað á milli.
Bænarskráin var lesin, en að öðru leyti
var henni enginn gaumur gefinn.
LAUGARDAG 21. DES.
Cleveland forseti sendi boðskap til
þingsins aftur í gær og er aðalefni hans
að bráð þörf sé á löggjöf, er leysi ríkis-
heildina úr fjármála vandræðum sínum.
Eftir acWiafa hlustað á boðskapinn var
þingi frestað til þess eftir nýár. — Rétt
áður samþykti efrideild i einu hljóði
frumvarpið, sem leyfir forseta að senda
landmælinganefnd til Venezuela.
Félagshlutabréf öll, sem Englend-
ingar eiga nokkuð i, féllu í verði unn-
vörpum á New York-markaði i gær.
Er það ein afleiðingin af umtalinu öllu
um strið og styrjöld.
Eitt pappírsgerðarverkstæðið enn er
verið að koma upp skamt frá Montreal.
Á það að fullgera 100 tons af pappír á
hverjum sólarhring.
Af blaðafregnum að dæma halda
hryðjuverkin í Armeníu áfram uppi-
haldslaust, en nú um nokkra daga heyr-
ist ekki eitt orð um aðgerðir stórveld-
anna, fremur en þ^u væri ekki til.
C. P. R. félagið hefir heitið vinnu-
mönnum sinum á verksmiðjum félags-
ins i Montreal launahækkun, er nemur
15%, frá 1. Jan. næstk.
VEITT
HASSTO VBRÐLAUN A HBIM88ÝNINGUNN
-DR'
BAKING
POWDÍR
IÐ BEZT TILBÚNA
Óblðnduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
ðnnur óhell efni.
40 ára reynslu.
MANUDAG 23. DFBEMBER.
í Paris er sagt að ítalir hafi boðið
að skera úr þrætu Bandarikja og Breta
út af Venezuela-þrætunni.
Uppreistarmenn i Cuba eru að sækja
sig og eru nú farnir að nálgast Havana,
svo að bæjarmenn eru hræddir orðnir.
Tyrkjasoldán er í sjöunda himni af
ánægju ytir Venezuela-þrætuftni, segir
telegrafskeyti þaðan, og hjartanlega
þakklátur Cieveland forseta Bandarikj-
anna'fyrir að hafa þannig hjálpað sér og
snúið allra augura frá Armeniu vestur
til Venezuela. Rússastjórn þykir og að
sögn vænt um þessa nýju deilu og
mundi hún fagna, ef herskip Breta
eystra yrðu send burtu þaðan og vestur
til Venezuela.
Ofviðri svo mikið við Englands-
strendur i gær, að hafskipin lögðu ekki
út af Liverpool-höfn. Tvð skip rákust
á 80 milur und&n Englandri gærmorgun
og sökk annað, en menn allír, að undan-
teknum hafnsögumanni, komust af.
Það harðnar sóknin i Philadelphia.
Þar er ekki einn strætisvagn á gangi.
Mennirnir láta ófriðlega, en hafa þó
engin spell gert enn.
ÞRlÐJUDAG, 24. DES.
Það er efri deild þjóðþings að eins,
sem frestað hefir verið fram yfir nýár.
Fulltrúadeildin heldur áfram störfum
að undanteknum máské jóladeginum.
A annan dag jóla verður lagt fyrir þing
ið frumvarp er ákveður toll-hækkun og
samdægurs annað áhrærandi hinn sí-
þverrandi gullsjóð. A að taka fyrir út-
straum gullsius.
Strandferðaskip C. P. R. félagsins á
Kyrrahafinu, Isi.ENDER, hljóp í strand
1 gær milli Victoria og Vancouver og
sagt það muni liðast sundur.
Tyrkir og ArmeniumeDn háðu or-
ustu mikla í borginni Zeitoun i vikunni
er leið. Hermenn Tyrkja voru 10,000
alls, en Armeniumenn til varnar ein
1500. Úrslitin eru því auðsæleg.
Flóð mikið í suðvestur Bandaríkj-
ura. Lestagangur sumstaðar í Mis-
souri hefir verið bannaður vikulangt
vegna vatnagangs og eyðilegging spor-
anna,
MIÐVIKUDAG, 25. DES.
Búizt við áhlaupi áHavana á hverri
stundu. Spánverjar sjá ekki við upp-
reistarmönnum og skilja þeim eftir
greiða braut til höfuðstaðarins á Cuba.
Millbilsmaðurinn í flokki Dalton
McCarhys náði kosningu í Cardwell
í gær, með 216 atkv. urufram stjórnar-
sinna,
Suðurríkjamenn fengu þá jólagjöf
hjá Þjóðþingi Bandaríkja í gær, að sam-
þykt var í einu hljóði tillaga um að
nema úr gijdi þau lög, er bönnuðu suð-
ur-ríkjamönnnm jafnræði við norður-
ríkjamenn f öUu sem að hernaði lýtur.
FIMTUDAG 26. DES.
Yfir 12,000 manns í Litlu-Asíu
drápu Tyrkir í orustu er þeir háðu um
borgina Beirut, hinn 21. þ. m.
12,000 uppreistarmanna hermenn
eru á hraðri göngu til Havana. Borg-
armenn mjög óttaslegnlr.
Útfluttur varningur úr Bandaríkj-
um á siðastl. fjárh. ári, til Bretlands og
útríkja Breta allra, nam samtals S617J
mUj.
I dag eða á morgun verður Banda-
rikjastjórn leyft að taka til láns $50
milj. til að mæta gull-þurðinni.
Frá Alberta.
TINDÚSTÓLL P. O. 18. DES, 1895.
Það hefir dregist letigur en skyldi,
&ð ég sendi yður fáorða fréttagrein héð-
an, úr þossu bygðarlagi, sumpart vegna
annrikis míns, en einkum af því að ég
bjóst við, að mér fróðari og færari
menn, myndu löngu síðan gera það.
Veðvrátta. Siðastliðið vor var tíðin
fremur þur og köld, fram um Maímán-
aðarlok; þá brá til hlýinda og votviðra,
svo alt sem i jörð var sáð tók miklum
þroska; aðfaranótt 22. Júni kora hér að
vísu griramt írost, en sem þó skeradi
óvíða korntegundir. Svo hélzt góð tíð
fram um miðjan Júli; þá kom aftur
næturfrost, sem koUv’arpaði allri upp-
skeru von á korntegundum, enda höfðu
svo sem engir uppskeru uran margir
hafa gott gripafóður af sáningu sinni.
þó helzt til ofmargir eyðilegðu þau af-
not, einkum enskir, með því, að slá ekki
akrana fyrii en i ótíma. — Grasvöxtur
varð hér i betra lagi víðast hvar, og
heyskapartíðin rajög hagkvæm.yfir Júlí
og Ágúst mánuði. En svo koro Sept.
meðvondaog óhagkvæma tið til þess
27. að aftur breyttist veðurátta til batn-
aðar. Af þessnm vonda tíðarkatía
leiddi; að h"y hirtist ekki hjá sumuin
fyrri en í Okt. Yfirleitt er heyafli góð-
ur, sumstaðar í bezta, lagi eftir þotta
sumar. Frá 27. Sept. ril Nóv. mánaðar
loka, var ósUtin áframhaldandi ágætis
tið svo vart hefir komið jafngott haust
siðan Isl. komu í þetta pláz. Um mán-
aðarmótin síðastliðnu. gerði vikutima
býsna liart hríðakast méð miklu frosti
og féll talsverður snjór; síðan breyttist
tiðin aftur til batuaðar, og nú næstl.
viku. hafa verið þíðviðri um daga, með
litlum næturfrostuni, svo snjór hefir
talsvert minkað.
Uppakera úr sáðgörðum var víðast
rýr; kartöflur hatst, sem ég veit til
fimtánfalt; viðast, eigi nema 8—10 falt.
Vtnlun er og hetir verið þetta ár,
hvimleið qg dauf; vövnr hænda i lágu
verði. en flest dýrt á móti. — Hér í
Innisfail, sem er aðal markaðsstöð ís-
lendinga, hefir verðíð verið og er hér-
umbil þetta : hveitinijöl (strong Baker)
frá $2.45—8.U0 (nú $2.50); haframjöl
$8.75; kaffi (grænt) 8 pd. $1.00; mola-
sykur 8—10 pd. $1.00; raspaður sykur
11 pd. $1.00; hveitikorn frosið og lélegt
bush. 60—75 cts. hafrar frosuir 25—40
cts.; aUt annað, sem bændur þurfa að
kaupa er þessu likt, að verölagi.—
Vörur bæuda eru ekki alveg sarasvar-
andi að verðha'ð í markaðiiium.
Ull var borguö í sumar liér í Ai-
berta, frá 7—11 cts. pd.; egg tylftin í
sumar 10—15 cts.; heimatilbúið smjör
10—12J cts. pd.. ef það var annars tokið
i búðunum. Nú eru egg 25 cts. tylftin.
Góðir sokkar 80—40 cts. parið. — Kjöt
liefir verið í markaðnum : 7—9 cts. pd.
af kindakjöti; 4—5 cts. af góðum slát-
urgripum. — Helzti og skásti markaö-
urinn i haust um tíina, var á slátiir-
gripum á fæti. — Fyrir uxa 4. ára og
eldri: $40—45 eftir vænleika. Fyrir
"stíra” 2. til 3. ára $25; fyrir ungviði á
öðru ári $14—16 ; mylkar kýr $20—30;
fyrir kálfa á 1. ári $6—10. Að vísu var
þetta oflágt veið, með tilliti til vænleika
nautgripanna, sem yfir liöfuð eru hér
vænir og af bættu kyni hjá niörgum, en
þó hafði þessi sala þann kost með sér,
að bændur fengti verðið að miklu le.yti
í peningum.
Ateinnn hefir verið lítil og lágt
borgnð i Alberta þetta sumar. í Cal-
gary, sem befir verið aöal atvinnu at-
hvarf íslendingu fieiri ár, voru svo
daufir timar, að nýtii og vanir atvinnu-
leitendur gát.u aðeins slitið þar upp
vinnu yfir beztu sumarmánuðina, með
fremur lágu kaupi,
Landnurliny hetir st aðið yfir í sumar
hér í vesturparti nýlendunnar og vestur
og norður frá henni; alls hata verið
mæld hér í grendinni þetta sumar, 5
township; þeirri mælingu er nú lokið
þessa dagana, að öðru leyti en því, að
vötn og ár eru enn ómæld; og stendur
sú mæling yfir langt fram í næsta mán-
uð. Tveir eða þrir íslendingar komust
aðþeirri vinnu næstliðna tvoruánuði,
með góðum kjörum. A þessu svæði
sem mælt hefir verið er víða. byggilegt
og nýtilegt land, handa innflytjendum ;
að minsta kosti geta menn nú ekki bor-
ið það fyrir, sem ástæðu, aö hingað sé
ekki flytjandi, i óiuælt laud; uú er þeim
steini úr vegi velt.,
Skólahérnð hefir verið myndað hér í
vesturparti bygðarinnar í sumar, mest
fyrir ráð og framkvæmd Mr. St. G.
Stephansons sem hefir verið driffjöðrin í
þessu nauösynjaiuáli voru frá þvi
fyrsta; skólahúsið stendur ábanslandi;
skólinn heitir Hóiaskóli. — Hvenær
skólakensla byrjnr, er enn eigi ákveðið.
Skólanum að Swan Lake (í austurparti
bygðarinnav), var sagt upji 29. f. m.
hafði staðið í 8 mánuði. Sagt er, að sá
skóli hafi fariö frain ágætlega og borið
góðan árangur.
Beilnvfar hotiv hvergi nærri verið
gott, sízt í haust og það sem af er vetr-
inura; sérslaklega hafa yngri börn
veikst, sum nijög tilflnnanlega. Aðfara-
nótt, 8. þ. m. dó bnrn, seiu Mr. og Mrs.
J. Roinholt áttu; aðrir ekki dánir á
l>essii missiri i þessari bygð. Fyrir
Fyrir nokkrum tíipa vildi það slys tii,
að hestur féll, þó á hægri ferð, undir
bónda, Mr. Christinn Cbristinnson, sem
viðbe.ins brótnaöi af þeirri byltú.' Sem
betur fer er nanu nú á góðtim bntavegi,
og farinu að geta tekið hendinni til.
Yér Islendingar bér, hðfðum þann
heiður, að hafa Mr. W. H. Paulson frá
Winnipeg fyrir gest í haust. I’að ,er;
hvorttvegpja aö vér liöfuin sjnldan
langt að komna vii'ðingarverða gesti.
enda dreg ég mikinn efa á. að vér höf-
um jarn liprum og skemtileguni gesti að
fagua. seiu Mr. Puulson; aðaleriudi
hans niun hafa viirid að taka nienn inn
í lífsábyrgðarfélag ■ ,það; sem hann er
umboð.smaður fyrtr, og fóv hann með
]iað erindi kurteislega sem beiðvirðum
manni sómdi./ Vjórtán eða tíintán
bændur sveitivjwnnar, munu hafa keypt-
lífsáb.'Tgd. *
Fleinv man ég ekki aö skrifa að
sinni.
JÓNAs' ,] ,• Ht'NfOUIJ.
“Og enn ”
Sökum anna hefi ég ekki s”arað
hinni síðari árás Mr. W. Paulsonar á
bræðra- eða verkamanna-félögin í heild
sinni og "Anc.ient Order of United
Workmen” sér í lagi. Því miður hefi ég
ekki við hendina blöð þau, sem ritgerðir
okkar stóðu (. Mig minnir þó að Mr.
Paulson stuðluefði í siðari grein sinni,
að stórdeildin i Tennessee hafi 1891—1892
borgað fyrir hvert þúsund af lífsábyrgð
$22.46. Míg minnir lika ekki betur eh
að hann játaði það sem ég reyndi að
halda fram, að bað væri minna nú. Ann-
aðhvort hefar nú þessi staðhæfing verið
óviljandi léislestur eða misskilningur
lijá Mr. Pa'ilson, eða prent.villa í Lög-
bergi. Hið sanna er, að deildin ( Teu.
nessee hetir al.diei, nénokkurönnur stór-
deild í A. 0, U. W. Orðunni,, borgað til-
færða upphæð fyrjr eitt þús.
Þau ár sem Mr. Paulson tiltekur,
n. fl. 1891—92, borgaði Tennessee stór-
deildin :
1891 : Mánaðárgjöld $24.00
Aukastyrk 1.70 = $25.70.
1892: Má naðargjöld $24.00
Aukastyrk 0.65 = $24.65,
eða 1891 $12.85 pr. 1 þús. og 1892 $12.32J
pr. 1. þús. Hiðhæ8tasem Tennessee
stórdeildtn hefir borgað á einu ári á síð-
astl. 6 árnm, er $32.25, eða $16.12J pr.
1 þús. Hér er ekki talið með $3 eða $4
stúkugjald á ári, sem gengnr til ýmis-
legs, svo sem bókasafna, sjúkrastyrks
o. s. frv.
Þótt Mr. Paulson hefði nú skýrt
rétt fré, og upphæðin í Tennessee verið
einsog hann sngði, þá sannaði það ekki
máistað hans í atriði því sem um var
ritað. Haris eigin orð sönnuðu fremur
mál raitt. Tennessee stóideildin hefir að
undanförnu verið liin veikasta í allri
orðunni. en er nú é framfai'Hvegi. Op
Mr. Paulson veit vel, að það ev náttúru-
lögmál hjá þjóðum, ríkjum, félögum eða
einstaklingum, að ef ekki væri unnið til
frainfara, hyrfi velmegan, en hnignun
kæmi í staðinn. Euginn hlutur stend-
ur í stað sem menn ráða við. Framför
og afturför togast á, ef svo má að orði
kveða Mr. Paulson ætti að skilja, að
eðlilegt er að það kosti að minsta kosti
alt að helmingi minna fyrir hvert þús.
í norðvesturrikjunum þar sem loftslag
er he'Viærnara og hættnminui atvinnu-
vegir, og framfarir meiri yfir höfuð. En
allar stórdeildir hjálpa hver annari að
bera byrðina. þannig að það sem upp á
kann að vanta uð hver stórdeild beri sig
sjálf, er jafnað niður á alla í félaginn.
Þetta er auknstyrkurinn, sem sýndurer.
Á þennan hátt slanda yfir 345 þúsundir
manns á bak við hvern einstakling í
félaginu.
Ennfremur ætti Mr. Paulson að vita
ef hann er eins kunnugur málum "The
Ancient Order of United Workmen,”
eins og hann lætur, oð þeir eru í stór-
kostlegri framför á hvet ju ári, að þeir
hafa aukist um 90 þús. á siðastl. 5 árum
«8 það hefir ekki kostað yfir $10.43 á ári
til jafnaðar í síðastl. 16 ár fyrir hvert
þús., að engir meðlimir né deild er látin
líða nauð, < ð þeir fæða og klæöa hina
nauðliðandi, hjúkra og ala önn fyrir
hinum sjúku og nauðiíðandi bræðrum
sínum, að þeir horga iðgjöld fyrir þá
sem ekki eru færir um að ganga að
vinnu, og íitvega öreiganum vinnu ef
hægt er, «ð "Ancient Order of United
Workmen” er elzta félagið af þeirri teg-
und í Ameríku, sterkasta, besta og fjöl-
mennasta af þeirri tegund í heiminum.
Onnur félötr af sömu tegund í þessu
meginlamli eru yngri, en hafa sama
augnamið, að gefa hinum fátæku sömu
vermd og þeim ríku, nð lyfta þeim lágu,
að hjálpa þeim bágstoddu. Þau eru öll
hygð á kærleika og mannúð. Aðferðin
er tnismunandi. tilgangurinn sami.
J. V. Leifur.
Glasston, 17. Doc. 1895.
PAIN-KILLER
THE GREAT
Family Medicine of the Age.
Taken Internally, ItCures
Diarrhœa, Cramp, and Pain In the
Stomach, Sore Throat, Sudden Coldi,
Coughs, etc., etc.
Used Externalty, It Cures
Cuts, Bruiscs, Burns, Scalds, Sprains,
Toothache, Paln In the Face, Neuralgia,
fíheumatism, Frosted Feet.
No artlrla rrrr ntUlned to *uch ucbounded popuUr-
Hy. —SaJi'm Obncn'rr.
Wocanbear tcsthnony to tho offlmcy of the Pain<
Killrr. WohaceM-u iu inajrk- effe* t* la (oothlns tbe
ecvoreet paln, aud know it to be ft good erticle.—iWin-
tuUi IHarxiU h.
NoUiintc hneyet ntrpeseed the Paln-KUIer, which !•
the mo$t vaJuable famiiy mudicine now ln ojm,—Ttnn
Organ.
It hai real merit; as a means of remorlng pein, no
modicine has aorjulrvil a repuuttlon eguul to Perry Darie*
PUin-KilIer.**'N'xii<7vrf Kt.ut.
petrere oí lmiuUion*. Htty only the genulM "PKKJIT
Davis." Sold eYet ywbcre; Urge bottles, 'íbn.
Ekki Eilift!
Vöruhirgðirnar hjá honum WALSH geta ekki endst um allar aldur.
Það er einn hlutur ómögulegur, því nú þegar hafa.
Þúsundir manna hagnýtt sér
kjörkaupin dæmalausu i búð vorri. Far þú og ger slíkt hlð sama I Það býðst
ekki fyrst um sinn annað eins teekifæri til að græða. Það er nú hver dagurinn
seinastur og þess vegna áriðandi, að menn byrgi sig þessa dagaua fyrir ókom-
inn tima með alt sem að klæðnaði lýtur.
Það er í þessari verzlun einni að það er virkilegur
sparnaður að kaupa klæðnað nú, því
WALSH er ad hætta verzlun!
60 cts. kaupa dollarsvirði !
50 cts. kaupa dollarsvii’ði !
40 cts. kaupa dollarsvirði !
Upptalning þýðir ekki. Komið og lítlð á safnið.
••••••••••••••••••••
Búðin til leigu. — — — Hyllur og skápar til sölu.
Walsh’s Clothing House.
515 og 517 Main Str. Gegnt City Hall.
Allrahanda.
ÓKKNNILEGUR FUGL hefir ný-
lega verið fangaður i Californiu. Á hon-
um eru engar fjaðrir, en í þeirra stað
svart, stíft og stórgert hár. Nefið er
blóðrautt, en fæturnir grænir.
700 MIIjJÓNIR ensku mælandi
manna verða í heiminum árið 1920, seg-
ir ritari einn í tímaritinu “Contempo-
rary Review, Samtímis segir hann að
Kinverska tungu mæli 500 miljónir
manna, rússnesku 200 miljónir.
BJÓLRKIÐARMANNA-éibyrgd gegn
meiðslum oglíftjóni er nýjasta stofnun-
in í landinu. Er það félag til orðið í
Westfield, Massachusetts.
170 FET i jörðu niðri fanst sedrustré
nýlega í þorpinu Eureka Junction (
Washington-riki vestra. Svo vel hafði
tréð geymst að gárar allar i viðinum
voru greinilegir. Menn sem voru að
grafa brunn fundu tréð og náðu upp
parti af því lítt skemdum.
10,000, DOLLARS hefir stjórn Frakka
goldið konungi Persa fyrir leyfi til að
grafa i jörð niður þar sem henni sýnist
i ríki hans eftir fornleifum. Er það
ástæðan, að þar eru rústir fjölda
margra horga, sem biblían getur um og
þar gera Frakkar ráð fyrir að fá marg-
ar merkilegar leifar.
Þýzkalands-keisari viU verða
konungur Breta.
í hlaðinu Frankfurter Zeitung, {
Frankafurðu á Þýzkalandi hirtist ný-
lega grein, er hlaðið segir sér hafi verið
send frá einni stórborginni (ekki samt
Lundúnum) í Evrópu, og sem blaðið
gerir óvægið gys að. Greiu þessa birtir
blaðið "Literary Digest” í enskri þýð-
iugu og er hún á þessa leið :
“Margir verða eflausthissa, er þeir
heyra að til sé óútrætt mál áhrærandi
rikiserfðir á Englandi, en það mál er
þó til. Prinzinn af Wales er fæddur
1841; systir hans, ekkjufrú Þjóðverja
«r fædd 1840. Það er venjulegt að
hugsa sér að sonurinn gangi fyrir dótt-
urinni hvað ríkiserfðirsnertir. En þessu
er ekki þannig varið á Englandi. Rík-
iserfðalögin, að svo miklu leyti, sem
þau eru nokkur til, gera engan mun á
syni og dóttur, en tala um börnin ein-
göngu. I’essa áhrifamiklu uppgötvun
hljóta menn að tileinka sagnafræðingn-
um sálaða, Froude, og á meðal hinna á-
köfustu verndaia þessarar skoðunar á
Englandi má nefna lávarðana Lons-
dale og Methuen, og að lyktum. og um
hann munar mest, hinn nftfnfræga rit-
höfund og útgefanda William T. Stead,
útgefanda timaritsins Revieic of Reviewn.
Hinn síðasttaldi leiðir athygli að því,
að England hafi ætið verið betur komið
undir stjórn drotninga sinna, en kon-
unga sinna, og gerir ráð fyrir að Vie-
toria II. mundi verða alþýðu mjög kær.
En þó einkennilegt sé, er samt líkast að
elzta harnið, ekkjudrottning Þj'ðverja
mundi neita rikisstjórn á Englandi, ef
til vill vegna þess, að eftir fráfall henn-
ar mundi kórónan falla i skaut elzts
sonar hennar—ViUgálm* II. Þýzk&lands
keisara og vegna þess hún mundi álíta
ómögulegt að sameina tvö svo feikna
mikil veldi. Ekkjufrúin hefir þess vegna
afráðið að yngri sonur sinn, Henry
prinz af Prússlandi, skuli taka viðrik-
isstjórn á Englandi i sinn stað. En
Vilhjálmur keisari mun krefjast réttar
sins, sem elzta barn elzta barns, þvi
þannig tilheyrir erfðarétturinn honum
og engum öðrum. Hann er sannfærð-
ur um að sameining þessara tveggja
keisaradæma yrði til hagsmuna fyrir
bæði Bretaveldi og Þýzkalandi, og ekki
þeim löndum einum, heldur einnig öll-
um heiminum. Vilhjálmur keisari er
ekki þannig gerður, að hanti láti skerða
rétt sinn, en hann er jafnframt of lipur
til að minnast á slíkt á meðan amma
lians [Victoria drottning á Englandi]
lifír. En máské að nú verði ljósari
meiningin i orðum hans, þegar hann
sagði, að land- og tjóher Þjóðverja mnndi
d sínum tíma fara yfir hafið. Þangað til •
nú nýlega var ofangreind uppgötvun
Froudes ekki nema fáum kunn, en Mr.
Stead mun gera sitt til að sú hugmynd
nái áliti alþýðu. Þegar Victaria drottn-
ing deyr—sem guð gefi að ekki verði
fyrr en eftir mörg ár—eiga Englettding-
ar undir öllum kringumstæðum von á
mörgu, sem þeim kemur á óvart”.
Ritstj. blaðsins ‘Lit. Digest’ getur
þess, að enn þá gangi öll blöð á Þýzka-
landi með þögn fram hjá þessari grein,
og að hlöðin á Englandi hafi að eins
minst hennar ógreinilega, og þannig,
helzt sé að ráða, að Þyzkalands keisari
hyggi á ófrið við Breta,
AYER’S
Hair
VIGOR
Restores natnral
color to tho hair,
and alao jpreveut.o
It tallinar out. Mrs.
H. W. Ronvriclr, oz
Dlgby, N. 8., saya:
“A littlo mor®
than two years ogo
mv hair
b ó g a n
to turn
g r a y
and fall
otit. Af-
ter tlio
_ use of
ono bottle of Ayer’s Ilair Vigor my
liiiir wim rest'ired to its original
color and ceased falling out. An
occasional application has since kept
tlie Itair in good condition."—Mrs,
U. F. Fenwick, Dighy, N. S.
Hárvöxtur ....
“Fyrir átta árum lá ég i bólunni og
misti þá alt hárið, sem áður var mikið.
Ég reyndi ýms lyf, en það kom fyrir
ekkert, og hugsaði ég ekki annað, en að
ég yrði æfinlega eftir það sköllótt. Fyr-
ir hér um bil sex minuðum, kom ég
heim með eina flösku af Ayers Hair Vi-
gor, og fór ég þegar að brúka það, Að
stuttum tima liðnum fór nýtt hár n ð
vaxa, og það er alt útlit fyrir, að ég fái
eins mikið hár eins og áður en ég veikt-
ist.” — Mrs. A. Wbrbbb, Polymnia St.,
New Orleans, La.
Ayers Hair Vigor
TILBÚINN AF
Ðr. J.C. Ayer & Co., Lowell, SIuss
u. s. A.
Ayers pillur lækna höfuðve- V