Heimskringla - 13.08.1896, Page 4
HEIMSKRINGLA 13. ÁGÚST 1896.
Winnipeg.
Austurrísk nýlenda verður í sumar
stofnuð meðfram Roseau-River austur
frá Dominion City.
Verzlunarfélag íslendinga hér í
bænum er að koma á fót kjötmarkaði í
sambandi við verzlun sína á Young St.
Miss G. Johannsson sem verið hefir
skólakennari á ísafoldar-skóla brá sér
til Pembina N. D., á þriðjudaginn var.
Japanisk prinzessa, Kayo Shimi að
nafni, kom til bæjarins á sunnudaginn
var, á heimleið. Hún stóð við sólar-
hring í bænum.
Dr. Valtýr Guðmundsson kom til
bæjarins aftur úr Dakotaferð sinni á
laugardaginn var og hélt af stað heim-
leiðis á sunnudaginn.
Hveitisláttur byrjaði víða í suð-
testurhluta fylkisins í fyrstu vikunni í
Agúst. Að þvi er kunnugt er, varð
bóndi nálægt Souris fyrstur að byrja.
Hann byrjaði 1. Ágúst.
A aukafundi bæjarstjórnarinnar á
mánudagskvöldið var, var ákveðið að
skatturinn í ár skuli vera 2 cents á doll-
arinn, eða $20.00 af hverri $1.000 eign.
Félagið sem í vor gumaði mest af
því, hvað mikið og skrautlegt leikhús
það ætlaði að bj-ggja í sumar, hefir nú
lagt árar í bát. í Winnipeg er því eng-
in von'á myndarlegn leikhúsi enn.
-------------•-----
TJm 3,000 manns fóru héðan úr
bænum í skemtiferð til Portaga la
Prairie, á fimtndaginn var, með þremur
stórum járnbrautarlestum,— til að taka
þátt í skemtunum matarsala allra hé r
bænum.
Hra. Guðmundur Ólafsson, bóndi í
Garðarbygð í N. Dak., heilsaði upp á
oss í vikunni er leið. Hann segir upp-
skeruhorfur í bygð sinni hvergi nærri
vænlegur, einkum sökum ryðsins í
hveitinu.
Minneota “Mascot” segir að tveir
Chicago-Islendingar séu að heimsækja
vini og vandamenn í Minnesota-nýlend-
unni. Eru það þeir Sveinn Magnússon
fótógrafi og Grímur R. Guðmundsson
prentari.
Framvegis gengur lestin til West
Selkirk á þriðiudögum, fimtudögum,
föstudögum og laugardögum, kl. 7.15 e.
h., og kemur þaðan á mánud., miðviku-
dögum, föstud. og laugard., kl. 10.10
fyrir hádegi.
Li Hung Chang með föruneyti sínu,
fer um Winnipeg í næstk. September, í
sérstakri járnbrautarlest, á heimleið
sinni til Kína. Hann tekur sér far með
C. P. R. gufuskipinu: “Empress of
China”, frá Vancover 14. Sept.
Þó ekki liti út fyrir að hveiti-upp-
skeran í Manitoba í ár verði meira en
helmingur á móti þeirri í fyrra, verða
samt í sumar bygðar um eða yfir 30
kornhlöður í fylkinu, er til samans taka
talsvert meira en 1 milj. bushel.
Aðfaranótt hins 10. þ. m. lézt hér í
bænum eftir stutta legu, úr veiki sem
sagt er að mjög hafi líkst kóleru, ungfrú
Þóra Iljörleifsdóttir, prófast Einarssonar
á Undirfelli, og systir Einars ritstj.
Hjörleifssonar í Reykjavík.
Þó bærinn sé fullur af atvinnulaus-
um verkamönnum hafa þeir sem eru að
byggja Dauphin-brautina tekið upp á að
útvega sér verkamenn sunnan úr Banda
ríkjum. Á fimtudaginn var komu 50—
60 menn í einum hóp austan frá Duluth.
6. þ. m. gaf séra Hafst. Pétursson
saman í hjónaband Edw. Crampsey og
Miss Jennie Johnson, bæði til heimilis í
Rat Portage, Ont.
Hra B. B. Olson fór suður til Dak.
í fyrri viku og dvelur þar fyrst um sinn.
í sambandi við það er vert að geta þess,
að þar sem um daginn var sagt að hann
hefði útskrifast af verzlunarskóla hér
eftir 2 vetra lærdóm, þá er sannleikur-
inn að hann gerði það eftir 7 mánaða
lærdóm.
Menn hér í bænum, sem senda oss
bréf með pósti, eru ámintir um að setja
2 centa virði af frímerkjum á þau. Ef
þeir láta bara 1 cent á þau, þurfum vér
að kaupa út bréfin og borga 2 cent fyrir.
Vér höfum þannig fengið mörg bréf
undanfarnar 2—3 vikur.
Hra. Benidikt Freemanson, er að
undanförnu hefir haft kjötmarkáð á
Ross Ave. hér í bænum, hefir nú selt
verzlunina fyrirverandi eigand hennar,
hra. Þorarin Breckman, er heldur henni
áfram á sama stað. Mr. Breckmann
hefir að undanförnu búið úti í 'Alfta-
vatnsnýlendu og komið þar upp all
miklum gripastól; hefir hann því heim-
alið sláturfé að bjóða á markaði sínum.
Þrír islenzkir bændur úr Qu’Appelle
dalnum vestra, Páll Jónsson, G. Frí-
mann og G. Kristjánsson, komu til
bæjarins í vikunni. Eru þeir í vinnu-
leit, þvi haglið eyddi sem næst allri
þeirra uppskeru,—sama élið sem mestu
tjóni olli í suðvestur-Manitoba.
Ný ljósmyndastofa á
Mountain.
Frá 10. Ágúst til enda mánaðarins
verð ég á Mountain P. O., N. Dak., og
tek ljósmyndir í nýja samkomusalnum
þar, sem hefir verið smíðaður með sér-
stöku tilliti til þess, og verður eins góð
myndastofa og í stærri bæjum gerist.
Þó sumir af skiftavinum mínum
þurfi nú lengra að sækja til mín en að
undanförnu, þá vonast ég eftir að geta
bætt þeim það upp með þeim mun betri
myndum, sem ég hef nú betri tæki tij
að gera þær en áður.
J. A. Blöndal.
Kennara
vantar við Baldurskóla frá 1. Nóvem-
ber þ. á. til 1. Maí 1897, = 5J mánuð.
Umsækjendur geti þess hvort þeir hafi
tekið kennarapróf, eða hafi timabils-
leyfi, og tiltaki mánaðarlaun. Tilboð-
um veitt móttaka af undirskrifuðum
til 1. Október næstkomandi.
Hnausa, Man., 20. Júlí 1896.
O. Q. Akrane»8,
Sec. Treas.
Tveimur bjargað.
Mrs. Phoebe Thomas, í Junction
City, 111., var sagt af lækninum, sem
stundaði hana, að hún hefðitæringu, og
að það væri engin lífsvon fyrir hana, en
tvö glös af Dr. Kings New Discovery
læknaði hana, og bjargaði lífi hennar.
Mr. Thomas Eggers, 139 Florida Str.
San Francísco, leið af vondu kvefi, sem
leit út fyrir að mundi verða að tæringu,
hann reyndi ýms meðul, en ekkert dugði
fyr en hann fékk Dr. Kings New Dis-
covery, sem læknaði hann á tveimur
vikum Svona löguð sjúkdómstilfelli
eru það sem sanna hversu óyggjandi
þetta meðal er við kvefi og hósta. Ein
flaska til reynslu ókeypis. Vana stærð
50c. og $1.00.
Aldrað fólk.
Aldrað fólk sem þarf medöl til að
halda ínnýflunum i reglu íær ekki betra
meðal en Eleetric Bitter. Þetta meðal
er ekki æsandi og inniheldur ekki Wis.
key eða áfengi. en er að eins örfandi og
styrkjandi. Það hefir áhrif á magann
og þarmana og hjálpar líffærunum til að
vinna verkið. Electric Bieters eykur
matarlyetina og bætir meltinguna. Það
er einraitt meðalið, sem gamalt fólk
þurf.
Verð: 50cts. óg $1 flaskan, i öllum
lyfjabúðum.
Sjerstakt.
Vér erum svo fegnir að hala nú fengið steintröð slétta
og göða fyrir framan búð vora að vér ætlum nú að
minnast þess með því að gefa öllum viðskiftavinum
sem kaupa
Hneppta kvennskó, sem kosta $ 1,50
Reimaðir skór fyrir kvenfólk 75c.
Kvennskór, 3tærð 4 til i\, fást með sérlcga góðum kjörum
þar eð vér höfum nýlega kepyt mikið upplag af þeim.
Karlmannaskór stærð 7 fást með sömu kjörum.
KOMIÐ TIL
E. KNI6HT& 60.
351 nain Str. Andspænis Portage Ave.
Gáið að merkinu : Maður á lirafni,
Mrs. Benedictson biður oss að geta
þess, að hún tekur að sér að skrifa með
skrautletri (Automatics haded) allskon-
ar, svo sem afmælisrísur, lukkuóskir,
eftirmæli, heimboð og vinarkveðjur.
Einnig fögur einkunnarorð, sem menn
vildu hafa í umgjörð og hengja upp á
vegg. Líka nöfn undir myndir. Svo
fyrir piltana hattamerki, og bókmerki
fyrir alla, með þeim orðum er þeir sjálf-
ir kjósa er panta.
Allar pantanir verða afgreiddar ná-
kvæmlega eftir beiðni. Það borgar sig
að heimsækja Mrs. Benedictson til að
sjá hennar fögru skugga-skrift. Hún
er sú eina í borginni og þó víðar sé leit-
að í Canada, sem kann þessa íþrótf.
46 Winnipeg Ave.
Fáeia orð til Einars
Hjörleifssonar.
Eftir S. B. Jónsson.
Niðurl.
Á fyrirlestri Jóns prests Bjarnason-
ar um “Forlög” má einnig sjá það, að
hugmynd k.fél. með skólastofnunain sé
sú, að hún verði “prestaskóli jafnframt
(‘Aldamót 1895).
Þar stendur meðal annars :
“Vér höfum á liðnum árum gertall
miklar tilraunir til að útvega oss presta
frá íslandi. 03S fanst það einusinni
myndi vera reglulegt lífsspursmál fyrir
kyrkjufélag vort. Tilraunirnar mis-
heppnuðust, og lá þá mörgum við að
örvænta um framtíðarhag kyrkju vorr-
ar hór. En jafnfrarat höfum vér feng-
ið nýjar og nýjar sannanir fyrir því, að
forlagaútreikningur vor hafði verið
rammskakkur. Eftir þvi sem er kom-
ið fram, eru allar líkur fyrir því, að
vér hefðum í kyrkjulegu tilliti verið enn
verr farnir en er, hefðum vér fengið
þann prestaforða frá Islandi sem vér
upphaflega óskuðum eftir. Langlíkleg-
ast að þetta vesalings kyrkjufélag Isl.
í Vesturheimi hefði þá ekki lifað fram á
þennan dag, heldur lægi nú niður brot-
ið og andvana í sinni gröf”. Og enn
fremur: ‘,Vér getum með guðshjálp
hrifið fólk vort undan hinum hættulegu
áhrifum vantrúarmentunarinnar ís-
lenzku. Vegurinn til þess er þegar
lagður út og ákveðinn. Hin fyrirhug-
aða skólastefna kyrkjufélags vors leiðir
oss inn á þann veg”.
Hér er berlega gefið í skyn að vegna
þesshve kyrkjufélagið hér só óþjóðleg
stofnun (?) er ekki geti, eða mundi hafa
getað lifað fram á þennan dag, hefði
þvi auðnast að fá þann _ “prestaforða”
að heiman frá ættjörðunni “sem vér
óskuðum eftir”, þá sé nú þegar “veg-
urinn lagður” með skólastofnuninni.
til að frelsa fólkið, með hér framleidd-
um “prestaforða”, frá hinum voðalegn
menningarforlögum, sem sýnilega vofi
yfir vorri al-lúterslcu þjóð á ættjörð-
unni.
Séra Jón segir enn fremur í þessum
sama fyrirlestri:
“Vel veit ég það, að islenzk þjóð-
ernistilfínning hefir að sumu leyti all-
mikið glæðst fyrir vistarveru íslenzkra
námsmanna úti í Kaupmannahöfn. En
bæði er það, að sú glæðing hefði átt að
geta fengist á annan hátt, og að minsta
kosti þarf ekki nú lengurað sækja hana
þangað”.
Hér má virðast sem höf. eigi við
það, að með stofnun kyrkjufélagsskól-
ans hér sé allareiðu séð fyrir því, að ís-
lenzkir nálhsmenn þurfi “nú ekki leng-
ur” að sækja Kaupmannahafnarháskól-
ann að heiman, jafnvel þótt svo takist
til að ekkert verði úr stofnun guðræki-
legs háskóla á íslandi.
I árssliýrslu forseta kyrkjufólags-
ins, eins og hún var flutt af honum
sjálfum á kyrkjuþingi í Júní 1890, þar
sem hann er að vandræðast 'út af hinu
voðalega prestleysi kyrkjufélagsins,
stendur meðal annars þetta :
“Ég hygg að það sé nú lífsspursmál
fyrir kyrkjufélag vort, að það fái sér
sem allra fyrst presta er gengið hafa á
guðfræðisskóla hér í landinu, Það þarf
að fá unga og efnilega menn af vorum
þjóðflokki, til þess að ganga guðfræðis-
námsveginn á einhverjum góðum lút-
erskum skólum þessa lands, upp á það
að þeir siðar taki til starfa sem prestar
meðal sins eigin þjóðflokks hér í hinni
ameríkönsku dreifing. Og kyrkjufélag-
ið þarf að styðja að þessu með öllu móti
Það sem auðvitað er bezt af öllu er það,
að komist gæti upp innan kyrkjufélags-
ins sjálfs mentunarstofnun fyrir tilvon-
andi presta”.
Og enn fremur :
“í ársskýrslu forseta frá kyrkju-
þinginu 1891, þar sem verið er að sýna
fram á hve lífsúauðsynlegt það só fyrir
kyrkjufólagið að stuðlaaðþví, að fá
unga menn úr vorum hópi til að ment-
ast til préstskapar á hórlendum lútersk-
um kyrkjuskólum, vegna þess hve
herfilega líti út með presta útveganir að
heiman, stendur meðal annars sem
fylgir : “Það er eini sýnilegi vegurinn
til þess að tryggja framtíð kyrkjufélags
vors, að framleiða presta á hérlendum
kyrkjuskólum, meðan hin fyrirhugaða
skólastofnun þess (k.fél.) ekki getur orð-
ið að virkilegleika”.
Ég hefi nú framsett nokkurnvegin
gild rök fyrir því, að ekki einasta allur
þorri fólks hér skoði skólamál k.fél. sem
“business”-stofnun,þess félags eingöngu
heldur og fyrir því, að eftir því sem séð
verður af hér framsettum umm. æðsta
prestsins hérna.um það mál, að þá sé til-
gangur stofnunarinnar frá hans sjónar-
miði einmitt sá, að hún verði sáluhjálp-
legur lærði skóli fyrir hina íslenzku þjóð
alment, austan hafs og vestan; og jafn-
framt ev. lút. prestaskóli fyrir k.fél.,
svo fljótt sem kringumstæður leifa, hvar
framleiddur verði allur sá “prestaforði”
sem framtíðarþörfin krefur.
Alt sem ég hefi tekið eftir öðrum i
þessari grein, er orðrétt tekið eftir vest-
ur-íslenzku blöðunum, (þeim er E. H,
vitnar til gegn því er ég sagði um skóla-
stofnunarhugmynd k.fél. Má vera að
hra. E. H. haldi þvi fram næst, að það
sem hér er tilfært eftir forseta k.fél. um
skólamál þess, eigi að skiljast á alt ann-
an veg en orðin liggja til beinlínis: það
eigi að skiljast eins og biblian, eftir
lærðum kyrkjulegum útskíringum, í
beinni samhljóðan við alt það (bókstaf -
lega tekið), sem sagt hefir verið um það
mál og tilgang þess, þessu mótsett.—
Þvi að ólíklegt, er að hann álíti forseta
kyrkjufél. vera einn af þeim mönnum,
sem ekki botni lifandi vitund í málinu.
Það skal og tekið fram til vara, að það"
sem hér er tilfært eftir þeim nöfnunum,
um skólamálið, eru sjálfstæðar máls-
greinar (framsettar 1890 og síðan), tekn-
ar, eins og þær koma hér fyrir, í bók-
staflegu samræmi við ðll önnur þar
fram sett ummæli um það efni, um það
geta allir lesið sér til sjálfir.
Ég hirði ekki um í þetta sinn, að
færa fleiri rök fyrir því, er ég sagði um
skólamál k.fél. í athugasemdum mínum
í Þjóðólfi, með þvi að þetta ætti að
nægja. Að vísu get ég búist við því að
einhverjir kunni að segja, að tilgangur
kjjrkjufélagsins með skólastofnunina,
sé ekki að sjálfsögðu samkvæmur því
tem vaki fyrir séra Jóni með þá stofn-
un, því aö hann sé ekki sama sem k.fél.
Gegn þess háttar mótbárum vil ég fyr-
irfram taka það fram, að séra Jón
Bjarnason, er leiðtogi k.fél., og ef svo
mætti að orði kveða: “lífið og sálin” í
þeim félagsskap, auk þess sem hann er,
að því er ég veit best, höfundur skóla-
málsins, og jafnframt maðurinn, sem
einna mest hefir lagt í fölurnar til þess
að afstýra hinni voðalegu prestleysis-
neyð, sem kyrkjufél. hefir haft við að
stríða fyrr og seinna. Það er því ofur-
líklegt að tilgangur hans, að því er
skólahugmyndina snertir, sé aðallega
sá, að bæta úr prestaskortinum. Það
er ekki heldur gott að sjá af hvaða á-
stæðu að vert væri að dyljast þess gagn
vart almenningi, að hugmyndin með
skólann sé sú sem hún er, n.fl. sú, að
hann verði kyrkjufélagsins en ekki þjóð-
flokksins stofnun, og jafnframt presta-
skóli ef efnin leifa, úr þvi að fólkið hefir
nú einu sinni skilið að svo er, og að
nokkru leyti þess vegna dregið sig í hlé
að því er fjárframlög snertir. Með því
lika að það er svo sem ekki mikil mink-
un að því fyrir kyrkjufélagið, þótt það
einnig á þennan hátt reyni til að afstýra
prestleysls-vandræðunum, og hverri
annari kyrkjulegri óáran, úr því að út-
litiðmeð prestaútveganirnar að heiman
er eins og það er nú orðið.
Ef hinn háttvirti hra E. H. vildi
gera rökstudda grein fyrir því næst,
hvað hann hefir eiginjega meint með
fyrirl. “Vestur-íslendingar”, mótsett
því, sem í honum felst, bókstaflega tek-
ið, þá tel ég víst að hann gerði fólki með
því talsverðan greiða. Einnig kæmi
mér þá vel, að hann sýndi heiminum
fram á (með rökum), á hvern hátt að at-
hugasemdir mínar um fyrirl. hans, voru
bygðar á skilningsskorti á “öllu þjóð-
stjórnarlffi í heiminum”. En meðan
hann gerir það ekki, þá er ég stoltur af
að hafa fengið eins rqklaus og ósvífin
ámæli frá honum, eins og sendingin i
Isafold hefir inni að halda,— þvi ósvífni
og dónaskapur bera jafnan vott um
vondan málstað.
Boginn í keng.
SAGA ALÞEKTS MANNS
FRÁ DELHI.
0 i
Þjáðist af gigt í nærri tuttugu ár. —
Eyddi stór summum í ónýtis til-
raunir. Hvernig honum batn-
aði.
Tekið eftir The Delhi Report.
Það eru fáir kvillar algengari og
enginn örðugri að lækna, en gigt. Sjúk-
lingurinn þolir ekki við og óskar sér
enda að hann sé dauður, svo óbærilegar
eru kvalirnar. Á meðal þeirra, sem
þannig hefir verið ástatt með, er Mr.
Scott frá Delhi, og þar eð hann hefir
nú fengið bót meina sinna, er honum
ant um að aðrir fái að heyra sögu sína.
Mr. Scott vinnur fyrir Quance Bros.,
mylnueigendur, og er í miklu áliti hjá
öllumsem þekkja hann. Þegar einn
af fregnritum blaðsins .Report heim-
sótti hann, sagði hann honum sögu
sína með eftirfylgjandi orðum : ‘Hann
hafði þjáðst af gigt frá því hann var
hér um bil átján ára gamall. Stundum
var hann rúmlægur, og aldrei losaðist
hann við þrautirnar. Það bar þó við
að hann gat stundað vinnu sína með
köflum, en oft varð hann að gefast upp
ímiðju kafi og fékk þá stundum svo
megn flog að hann varð aftur að leggj-
ast í rúmið. Öll þessi ár var hann að
brúka meðul og lækna, en batnaði ekki
af því nema um stundar sakir, jafnvel
þó kostnaðurinn væri voðalegur. Þeg-
ar hann sá að sér ætlaði ekki að batna
heima, fór hann til Simcoe til að
reyna lækningar þar, en það kom fyrir
ekkert, og skömmu síðar kom hann
heim engu betri en áður. Það var auð-
PAIN-KILLER
THE GKEAT
Family Medicine of the Age.
Taken Internally, ItCures
Diarrhœa, Cramp, and Pain in the
Stomach, Sore Throat, Sudden Colds,
Coughs, etc., etc.
Used Externally, ItCures
Cuts, Bruises, Burns, Scalds, Sprains,
Toothache, Pain in the Face, Neuraigia,
fíheumatism, Frosted Feet.
LJJLiLU
Murray &
Lanman’s
No nrtlcle ever attaincd to such unbounded popular-
ity.—Salem Obserrtr.
Wocanbear testimony to the efflracy of tlio Paln'
Killcr. Wehavese-n its mnKÍc cffocts in tne
scverest pnin, aud know Ulc be a good article.—otnctn-
* Nothinp has yet surpasscd tho Pain-Killer, 'J^hich is
tho moBt valuablo family inodicine now in use. Tennessee
0r°'lt hnB real merlt,; as a moans of romovinp pain, no
medirine has arquired a reputation equal to rerry Davis
Pain-Killer.—NcirpoTt Neus.
Bewaro of imitations. Buy only tho gcnuine
Daví8.'' öoid evorywhero; large bottlc, 25c.
Very iaigo bottle, 60c.
vitað að hann fór nú að missa kjark-
inn og skoða sig ólæknandi.
Að lokum fékst hann til að reyna
Dr. Williams Pink Pills þrátt fyrir það
þó hann áliti það að að eins peninga-
eyðslu, sem enga þýðingu hefði. Þegar
hann var búinn að brúka úr sex öskj-
am eða svo var hann í engum efa um
að sér væri að batna, og úr því fór
hann að brúka pillurnar með meiri lyst.
Þegar hann var búinn með eina öskju-
tylft var hann orðinn alveg heilbrigður
Verkirnir vorn farnir og styrkleikur
í liðamótunum kominn aftur og nú gat
hann unnið vinnu sína eins og áður.
Hann hefir nú um svo langan tíma
ekkert fundið til kvilia sins að hann er
alveg viss um að batinn er viðvarandi,
og lofar hann Dr. Williams Pink Pills
mjög fyrir það. . Hann segist mælast
til þess að allir sem veikir séu eins og
hann reyni þær, og segist hann vona
að aðrir hafi eins míkið gagn af þeim
eins og hann hafi haft.
Dr. Williams Pink Pills uppræta
sjúkdómana og styrkja likamann svo
sjúklingurinn verður heill. Við lima-
fallssýki. mænuveiki, riðu, mjaðmagigt
gigt o. s. frv., eru þessar pillur óyggj-
andi. Þær eru einnig ómissandi við
sjúkdómum sem eru einkennilegir fyrir
kvennfólk. Þær hreinsa blóðiðog gera
útlitið fallegt; fyrir karlmenn sem hafa
ofþreytt sig á andlegri eða líkamlegri
vinnu eru þær einnig ágætar. Þær eru
seldar hjá öllum lyfsölum og fást með
pósti fyrir 50 cents askjan, eða sex
öskjur fyrir $2,50, frá Dr. Williams
Medicine Co., Brockville. Ont., eða
Schenectkdy, N. Y. Varið ykkur á eft-
irstælingum, sem sagðareru ‘alveg eins
góðar’.
BUCKLENS ARNICA SALVE.
Bezta smjrrsl sem til er við skýrðum,
mari, sárum. kýlum, útbrotum, bólgu-
sárum, frostbólgu, líkþornum, og öll-
um sjúkdómum á hörundinu. Læknar
gylliniæð, að öðrum kosti ekki krafist
borgunar. Vér ábyrgjumst að þetta
meðal dugar í öllum þeim tilfellum sem
talin hafa verið, ef ekki borgum vér pen
ingana tii baka.—Áskjan kostar 25 cts.
Fæst í öllum lyf jabúðum.
MICA ROOFING-
Hr. W. G. Eonseca. í haust er leið
var eitt ár liðiðsíðan ég þakti heflimyln-
una mína með Mica-þófa, sem þér hafið
til sölu, og tjarga.ði ég það ekki fyr en
nærri sex mánuðum eftir að það var
lagt, en þrátt fyrir það þó rigningasamt
væri bar ekkert á leka og ekkert hafði
þekjan skemst við tjöruleysið. Þetta
þak þolir bæði hita og kulda. R. D.
Paterson. Þetta Miea á ekkert skylt
við hið svokallaða Metal Brand Ready
Roofing. W. G. Fonseca.
Allir á siglingu til beztu
Skraddarabúðarinnar
peace & 00.
566 JTIain !Str.
horninu á Facific Ave.
Fötin sniðin, saumuð, ogútbúin
eins og þér segið fyrir.
Peace & Co.
566 Main Str.
FLORIDA WATER
THE SWEETEST
MOST FRAGRANT, MOST REFRESHING
AND ENDURING OF ALL
PERFUMES FOR THE
HANDKERCHIEF, TOILET OR BATH.
ALL DRU0GÍST8, PERFUMERS ANB
GENER&L DEALERS.
mm
ÍSLENZKK LÆKNIB
DR. M. HALLDORSSON,
Park River — N. Dak.
0LD G0LD
Yirgina Flake Cnt
Reyktobak
W. S. KIMBALL & CO.
Rochester, N.Y., U.S.A.
17 Iíæstu verðlaun.
• ••••••••*• ® eoo®ö'9ae«®»c 00® ©o a® oo®oc««s?oo»» •<»»«•••
y m:.
: im
L' fym
«.2í 6' \a
TH ^ V
r r. o»
\si n
tf« f.up
Y.
“Nlonsoo.. J
oftho 5eafrrowevs.au
- a s'aup.etv thc m •
a ;>ndsold by thorft
*•... 'ii;. sci *n<Jian and CnyJon
n tb ■. o ibat 'ione but the
vJry Crcnli leavra go iato / . -,n
1a\ t-v “ 'ínns^oM,’ tbr? p* rv.ctTsv, canhe
s,iM ;*t t’-.-e sam« price && \nuri.*r .
1« i* pi:t up i>. >: » "> -"<>
5IV,- . ancaoM L tLrce l'..>-.-»rs at ff., s< i 6,c.
If your ( r-rr.n<., >-ep •> t-.1 i. «-rit»
tn STfcEL. IIAVT-li .i •■■ 0 . • :•>- ' Jl'
^ast, Toronto
Kosta minna en ódýrasta blýhvíta. Endast 5 ár
Hammar Paints
eru þótt í sér. Þau eru sett saraan á réttan hátt úr blýi og zinki, eru
endingargóð og fást með öllum iitum. Þú gerir málið þitc hremt, end-
ingargott og fallegt moð þvi að hræra saman við það nýja Lmseed oliu.
Engin önnur olia dugar. 4 pottar af þykku (Hammars) máli Og 4 pott-
ar af hreinni Linseed olíu gera 8 potta af bezta máli, sem kostar að ems
fl.lO fyrir hvbrja 4 potta.
O. DALBY selur alls konar húsgögn, veggjapappír, málolín og gler
etc. Ég kaupi heil vagnhlöss af varningi í emu og spara þanmg við-
skiftavinum mikla peninga. Komið og talið við mig.
O. DALBY,
Edinburgh, N. Dak.