Heimskringla - 24.12.1896, Page 1
X. AR. WINNIPEG, MAN., 24 DESEMBER. 1896.
NR. 52
Gleðileg jól!
Með þessn blaði endar 10. árgangur
Heimskringlu. Vænt væri ef menn
sem skulda oss vildu nú gleðja prentfé-
lagið með því að senda, ef ekki alt sem
þeir skulda, þá. samt eitthvað af því,
—láta það heita afmælisgjöf.
Hugsjón.
Stend ég alein A strönd, stari heims yflr
lönd.
Lít ég blómskreyttar ljómandi grundir.
Þegar hjartað er heitt, þegar hugsjónin
þreytt
leitar skjóls meiði laufgrænum undir.
Þegar sorgin er sár, þegar svella mér
tár,
þegar brennur mér hjartað í barmi,
eins og drynjandi dröfn, þá hún deyr
inn á höfn,
flnn ég einmana fróun i harmi.
Víkji vinir mér frá, ef það vökvar mér
brá,
ei hirði ég þó fyrnist þá fundir.
Eins og farmaður frár festir seglin við
rár
í ofviðri og gengur svo undir.
Stend ég alein á strönd, stari heimsyfir
lönd,
þar til sólin á loftinu lækkar.
Innra er ólgandi hver, þar til eldurinn
þver,
af því eldsneytis efnunum fækkar.
Myrrah.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
FIMTUDAG 17. DES.
Skaðaveður í Ný-Englandsrikjum.
Félög er verið að mynda hvervetna
í Bandaríkjunum í því skyni að safna
fé og hermönnum til hjálpar uppreistar-
mönnum í Cuba. En eftir að vita hvern-
ig þeim gengur að fá fararleyfi úr land-
inu.
Látinn er í Florence á ítaliu nafn-
frægur ítalskur leikari, Alexander Sal-
vini, sonur hins heimsfræga leikara,
Tomasso Salvini, er oft hefir komið til
Ameríku og leikið þar.
Allsherjar verkamannaþing slendur
yfir í Cincinnati, Ohio.
Á Spáni er nýlokið rannsókn í máli
gegn nálægt 100 anarkistum, sem í síð-
astl. Júni köstuðu sprengikúlum í mann-
þröng á skrúðgöngu í Barcelona. Rann
sóknin var höfð fyrir luktum dyrum og
engum leyft að opinbera dóminn að svo
stöddu. En getið er til að 28 hafi verið
dæmdir til aftöku, en 59 til útlegðar og
æfilangrar þrælkunar í glæpamanna-
bygðum Spánverja.
Tveir bræður i Chicago þykjast hafa
fundið upp ráð til að umhverfa manns-
likama i stein, sem geyma rnegi um ald-
ur og æfi i stað þess að láta líkin rotna í
gröfinni eða brenna í líkbrennslu-ofni.
FÖSTUDAG 18. DES.
Jarðskjálfti átti sér stað í gærmorg-
un am þvert og endilangt England og
kvað svo mikið að sumstaðar að brotn-
uðu háir turnar, húsin hristust og hús-
gögn færðust úr stað og skemdust.
Sumstaðar aftur var hristingurinn svo
lítill, að menn að eins urðu hans varir.
Þar sem hann var mestur flúði fólk úr
húsinu og ein gömul konadóaf hræðslu,
Hinn nafnfrægi töframaður, Her-
mann, varð bráðkvaddur í gær í New
York ríki. Var á ferð með járnbrautar-
lest þegar hann lést.
í tilefni af fregnum þess efnis, að
um þver og endilöng Bandarikin séu
menn að skuldbinda sig til að fara til
Cuba og berjast með Cubamönnum gegn
Spánverjum, hefir utanrikisstjóri Band-
aríkja mint menn á, að hver sem útveg-
ar slíkar áskriftir geti sætt $3000 útlát-
um og 8 ára fangelsi, og hver sem skrif-
ar sig $2000 útlátum og 2 ára fangelsi.
\ CrampaX \ Croap, \
\S\ \%\
niARRlltEA, DVSENTERY,
andall BOWEE COMPEAINTS.
A Bure, Safe, Quick Cure for theso
truubles la
'PrtinKiUevÍ
(PKRBY DAVIS’.)
r’scd Internally and Externally.
Two Sizes, S5c. and BOc. bottles.
“Plágan” eykst í Bombay á Indlandi
Er sagt að sýkfnnar vegna séu nú flún-
ir úr borginni um 200 þúsundir manna.
50 þúsund börn munaðarlaus, innan
12 ára gömul, segir konsúll Bandaríkja
í Erzerorum, að til séu í Armeníu. Er
það til marks um blóðbaðið þar.
LAUGARDAG, 19. DES.
Canovas stjórnarformaður á Spáni
átti i gær tal við fregnrita einn frá
Bandaríkjum og sagði honum að þeir
létu aldrei undan fyrr en buguð væri
uppreistin á Cuba, og að þeir væru alls
óhræddir við Bandaríkin. Cubamönn-
um yrði veitt sjálfsforræði, þó ekki
svipað 'því í Canada, undireins og upp-
reistin væri bæld, en fyrri ekki. Þeir
vildu veita stjórnarbótina af frjálsum
vilja, en að svo væri gætu þeir ekki
sýnt fyrr en uppreistin væri buguð og
kyrð komin á. Ef Bandaríkjastjórn
vildi fara i stríð við Spánverja mundu
þeir reyna að verja sig. en þeir mundu
aldrei byTja. Það yrðu Bandaríkin að
gera.
Hon. Mr. Fisher, formaður akur-
yrkjustjórnardeildarinnar í Canada,
hefir cerið í Washington um undanfar-
ínn tíma og er þar enn í þeim tilgangi,
að fá breytt samningnum um sóttvörð
á lifandi peningi, sem fluttur er yfir
landamærin á víxl. Er sagt að breyt-
ingin muni fást.
Tyrkjasoldán er eflaust orðin hrædd-
ur um sig. Hefir nú látið taka fasta í
einum hóp um 90 háttstandandi menn
og embættismenn sina og að auki
45 stúlkur frá Circassiu í kvennabúri
sínu.
Efrideildar þingmenn Bandaríkja
báru fram í gær ályktun þess ofnis, að
Bandaríkjastjórn beri að viðurkenna
Cubamenn, er í styrjöld standa, sem
sérstaka þjóð. Ef forseti neitar að
staðfesta þetta, segjast efride^ldarmenn
tafarlaust lögleiða ályktunina með §
allra atkv, á þjóðþingi,
Þingheimur barðist. I gær fór í
svo hart á þingi ítala að fjöldi af þing-
mðnnum fór í áflog, Orsökin var að
sósíalisti á þingi andæfði tillögu um að
veita krónprinzinum, sem nú er nýgift-
ur, 1 milj. líra á ári og talaði alt annað
en virðulega um konung svald og
réttindi í því sambandi.
Kaupmannafélagið i New York vill
koma í veg fyrir að bygðar séu hærri
byggingar en 10—15 'tasíur’. Bygg-
ingafræðingunum flestum, sem yflr-
heyrðir hafa verið ber saman um að
hærri byggingar séu skaðr'æði,
MÁNUDAG 21. DES.
Nálægt 50 manns létu lífið við hús-
brennur í Bandaríkjunum frá laugar-
dagskveldi til mánudagsmorguns. Og
nálægt 30 manns finnast ekki og þykir
hætt við að þeir einnig hafi farist í eld-
inum.
Að dæma af fregnum frá Cuba hafa
uppreistarmenn ekki nú lengi verið eins
aðgönguharðir eins og nú. Spánverjar
hafa að sögn aldrei hvíld og þora ekki
að fara út fyrir virkisveggina, því kver-
vetna eru fyrirsát.
Einn elsti og sterkasti bankinn i
Chicago, "Tho National Bank of Illi-
nois,” er gjaldþrota. Stofnfó hans alt
og varasjóður,—um $2 milj. alls,— hvað
vera uppgengið.
Hótelbyggingin stærsta í St. Paul,
Minn., sem Hotel Rayan var í, eyðilagð-
ist til hálfs af eldi aðfaranótt hins 19.
þ. m. Eignatjón um $300,000. Hótelið
sjálft er óskemt.
Viðskifti Canada við útlönd i sfðastl.
Nóv.mánuði voru rúmlega $24} milj.
Aukakosningar fóru fram i 3 kjör-
dæmum á laugardaginn 19. þ. m. Voru
tvær þeirra Dominionkosningar, — í
Cornwall-Stormont í Ont., og unnu þar
“liberalir”; í Saskatehewan vestra og
sóttu þar tveir “liberalir,” Davis og
McPhaiL Er sagt að Davis muni kos-
inn. — Þriðja kosningin var í Manitoba.
i North Brandon. Var kosinn fylkis-
þingmaður í stað Siftons. Sótti þar
“patróna” - höfðinginn Postlethwaite,
gegn J. C. Fraser “liberal,” og varð
patróninn undir í annað sinn.
••••••
©
o 1 ” MENTHOL
aS.B PLASTER
o ®«
I hare prescrlbcKl Menthol Plaster In a number
ofcjme* of neuralgtc aud rlieuníatic pAiu*>aand
ain verf much pleA*©d with the effect* nnd
}>lca*antncs* of ita applicatton.—W, U. Cícpim.
TER, U.D., Hotel Oxford, Boaton.
I hav* ua*d Menthol PluUn in •evcral c*m<
of muscular rheumatUm. and find in everj cnae
that it gave almoat i nitant and permanent reliof.
—J. B. Moork M.D.. Washiugton, D.C.
It Cures Sciutica, Lnxubago, Neu-
r#»lqri», Pnfna in Bnck or Side, or
any Muscular Paius.
Price | Davls & Lawrenro Co., Ltd,
25c. I Sole Proprietora, Montreal.
• ••••ooeoe
oS
ÞRIÐJUDAG, 22. DES.
Um daginn þegar t-kið var til að
safna samskotum og mönnum i Banda-
ríkjunum til hjálpar Cubamönnum, ætl
uðu Spánverjar að tryllast og svo batn-
aði þeim ekki þegar þeir heyrðu um
innihald þingsályktunarinnar, sem ligg-
ur fyrir efrideild þjóðþings. En nú eru
þeir farnir að hægja á sér aftur, er þeir
sjá að Cleveland heldur fast við sitt
stryk, og að Olney utanríkisstjóri er
andvígur þingsályktuninni, eða réttara
sagt, segir hana þýðingarlausa og á-
hrifaiausa.
Ríkismannskona fráNew York var
í gær að ferðast á hestavagni yfir á
Langeyju, skamt frá Brooklyn, þegar
tveir ræningjar róðust á hana og tóku
af henni $4,600 virði af peningum, gulli
og gimsteinum.
Um 20 manns lemstruðust ;og hiðu
bana við kolanámuslys í Pennsylvania.
British ColumKia-menn, sem vilja
fá járnbraut bygða og það tafarlaust
frá Vancouver austur um fjöllin til
Rossland, hafa nú fiutt mái sitt (í gær)
við Hon. Mr.Blair, ráðherra járnbraut-
armála, og hafa nú góða von um að
sambandsstjórnin hluupi undir bagga
með þeim á næsta þíngi.
Good-Templar Stúkan HEKLA heldur
sína árlegu STOIW-IIATID þann
29. þ. m. á North-West Hall
Á samkomunni verða góðar skemtanir,
svo sem söngur, ræður og hljóðfæra-
sláttur. . Einnig verður þar
Jola=trje,
og gefst þar hyerjum sem vill tækifæri
að skiftast á gjöfum. Samkomusalur-
inn verður opinn kl. 10 að morgni hins
29. og verður gjöfum veitt móttaka til
kl. 7 að kveldi.
Inngangseyrir 15c. fyrir fullorðna
og lOc. fyrir börn.
Nýtt tímarit:
“Bókasafn alþýðu.”
Svo heitir nýtt timarit, sem hr. Oddur
Björnsson, í Kaupmannahöfn, er byrj-
aður að gefa út. Er svo til ætlast að
það komi út í flokkum og verða þrír ár-
gangar í hverjum flokki, en hver árg.
verður um 300 blaðsíður í venjulegu 8
blaða broti. Hver árgangur- kostar, í
kápu, 80 cent. ;Innbundinn í vandað og
fallegt band $1.20—$1.30.
Að öllu forfallalausu fæ ég 1. bindi
safnsins seint í þessum mánuði og hefir
það inni að halda öll
Ljóðmæli
Þorsteins Erlingssonar,
með ágætri mynd af höfundinum.
Má búast við að kvæði þessa alkunna
snildarskálds seljist mjög ört, er þau
koma, og er því vissast fyrir þá sem
vilja eignast þau, að senda pantanir til
min nú þegar ; en ekki þarf að borga
fyr en við móttöku bókarinnar.
Þar sérstaklega hefir verið vandað
mjög til útgáfu Ljóðmælanna, verður
þetta bindi nokkuð dýrara en hin önnur
bindi Bókasafnsins. Fyrir áskrifendur
að “Bókasakni alþýðu” kosta þau :
í mjög vönduðu og sterku bandi $1.00
í ágætu skrautbandi, gylt í sniðum $1.20
M. Pjetursson.
P.O. Box 305. Aðal-útsölumaður.
“BJARKI,”
ritstjóri Þorsteinn Erlingsson,
langbesta blaðið sem gefið er út á ís-
landi. Kemur út I hverri viku. Kostar
að eins $1.00 um árið. Útsölumenn fá
góð sölulaun. Skrifið til
M. PÉTURSSONAR,
P.O. Box 305, Winnipeg.
Matur á reiðum höndum dag og nótt.
Stærstur og skrautlegastur “Billiard”
salur í bænum. Ekkert nema vönd-
uðustu vín og vindlar á boðstólum.
Pat. O’Connor,
Eigandi.
MIÐVIKUDAG 23. DES.
I gær þegar verið var að setja erki-
byskupinn nýja af Canterbery á Eng-
landi, Rev. Dr. Frederich Temple, stóð
einn prestur upp, sem var meðal áheyr-
enda, og kærði byskup fyrtr villutrúar-
skoðun og bað að hætt væri við að vígja
hann. Honum var ekki getinn gaumur.
Hvítir menn eru farnir að herja á
svertingja í Kentucky, drepa þá og
brenna býli þeirra. Svertingjar eru að
kaupa vopn og er nú búizt við striði þá
og þegar.
Á útrennandi ári hafa 1802 mílur af
járnbrautum verið bygðar í Bandaríkj-
um,
Reykjavíkurblöð berast oss rétt í
því að gengið er til prentunar. Merk-
ustu tiðindin sem þau fiytja er andláls-
fregn Dr. tírímx Thomsens, —hafði lát-
izt að heimili sínu Bessastöðum 27.
Nóv. 76} árs gamall. — Umhleypinga-
tíð á suðurlandi, en snjólétt. — Dáin í
Rvík Magðalena Margrét Waage, kona
Sigurðar waage, verzlunarstjóra.
Dáinn.
Miðvikudaginn 16. þ. m. andaðist
í West Selkirk Runólfur Magnússon,
bróðir Páls kaupmanns Magnússonar
í Selkirk og þeirra syskina, sonur
Magnúsar Rafnssonar, er bjó á Áslaug-
arstöðum í Vopnafirði. Hann var 41
árs gatnall. Flutti til Ameríku fyrir
rúmum 3 árum og settist að í Selkirk.
Hann var tvígiftur og lifir seinni kona
hans, Jóhanna Jóhannesdóttir og 5
börn. Jarðarförin fór fram síðastliðinn
föstudag.
DÁIN
Emily Guðmn, 6 mánaða gömul, dóttir
Mr. og Mrs. Guðjófts Johnson á Mullig-
an Str. hér í bænum, andaðist 8. þ. m
Fyrir 2} ári síðan rnistu þau hjén 11
mánaða gamlan son, Kjartan að nafni.
Bæði böruin hvíla í sörnu gröf. Móðir-
in minnist þessara barna sinna með
versum þeim, er hér fylgja:
Til hvers er jarðnesk tilvera manns?
Til þess að sigra og strfða.
Til hvers er yon og trúiu hans?
Til þess að kunna að liða.
Til hvers er þjáning, tár og hel?
Til þess að maður læri vel
Lífsins iögum að hlýða.
Hin fögru blóm.isem guð mér gaf,
Mig glöddu i fátækt minni.
Svo tók hann mér þau aftur af,
Eftir velþóknan sinni.
Fyrir hvorttveggja þökk só þér,
Þú mikli guð, sem kennir mér
Að gleðjastaf gæðsku þinni.
Þú hefir flutt mín fögru blóm
I fagurt akurlendi,
Þar sem vetrarins þunga dóm
Þau eiga síst fyrir hendi
Þar sem eilíf lífsþroskun býr,
Þangað ég sjálf—sú von er dýr—
Að vörmuspori vendi.
Unaðsfult hvarma-skúra skin
Skoða ég harmi slegin,
Framundan mér þar farsældin,
Fullkomnast hinumegin.
Mín fara að gróa sorgasár,
Saknaðar brennheit þorna tár.
Vonglöð svo geng ég veginn.
Vin og Vindlar.
BRANDY,
WHISKEY,
PORTWINE,
SHERRY
og allar aðrar víntegundir, sem seldar
eru í Winnipeg. Allskonar öltegundir
æfinlega á reiðum höndum.
Hvergi i bænum betri vindlar.
Alt með lægsta hugsanlegu verði.
H. L. Chabot,
Gegnt City Hall 513 Main Str.
Anyone sendlnjf a sketch and descrlptlon may
quickly ascertain, free, whether an Inventlon la
probably patentable. Communlcationa atrtctly
confldentlal. Oldest airency foraecurinff patenta
in America. We have a WaahinRton offlce.
Patenta taken throu«h llunn A Co. recelra
•pecial notioe in the
SCIENTIFIC AMERICAN,
beautifullr llluatrated, larjrest circulation of
any aclentlflc Journal. weekly, termsf3.00 a year;
Sl.50 six montha. Hpecimen copiea and LLand
Boom ON Patknts aent free. Addreaa
MUNN é. CO.v
301 Ilroadwoy, Ncw Verk.
Jolagjafir.
:
:
:
♦
♦
♦
❖
♦
:
♦
♦
♦
:
*
♦
:
Munið eftir því, að ég hefi alt það gullstáss, úr, klukkur
og hvað annað af gull ogsilvur-stássi sera yður langar til
að eignast. Nóg af vönduðum og ódýrum jólagjöfum
ætíð á reiðum höndum. Komið inn og skoðið þær.
Munið eftir GLERAUGUNUM, þau koma sér
vel í skammdeginu, og enda hvenær sem er. Þau fást
með silfurspöngum, gullspöngum og stálspöngum, rétt
eftir því sem hver vill hafa.
Búðin er opin til kl. 10 á hverju kveldi það sem
eitir er af árinu. Komið inn og skoðið jólagjafirnar.
G. THOflAS,
Manufacturing Jeweller. 598
♦♦♦♦♦
:::«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Main Str.
♦4
♦4
M
1
Skrá
yfir nöfn þeirra, sem gefið hafa peninga
í sjóð til hjálpar því fólki í Árness- og
Rangárvalla-sýslum á Islandi. er urðu
fyrir jarðskjálftunum síðastl. Ágúst og
September :
Áður auglýst $648,55
Ármann Bjarnason, Winnipog, $4,00
Safnað af H. Stefánsson, Marietta,
Wash., $11.50, sem fyleir :
Bernhard Thorsteinsson, Whatcom $1,50
Guðmundur Thorsteinsson " 1,00
Halldór Pálsson, Marietta 4,00
Guðbrandur Sigurðsson “ 1,00
Benjamin Alexanderson “ 50
Hannes Benjamínsson “ 1,00
Mrs. Hólmfríður Guðmundsdóttir 1,00
Hjörleifur Stefánsson 1,50
Safnað hefir Brandur Johnson,
Pembina, $33,75, sem fylgir :
Brandur Johnson Pembina $1,00
OliPaulson “ 1,00
Jónas Thorwardsson “ 1,00
B. F. Walters “ 1,00
Páll Grímsson “ 1,00
G. B. ÁiTinsou “ 1,00
W. ,1. Kneeslmw “ 1,00
Dr. C. B. Harris “ 1,00
M. M. Lockwood, M. D. “ 1,00
T. R. Shaw “ 50
G. M. Ryan “ 1,00
E. D. Booker, Jr. “ 50
N. A. Trudel “ 1,00
Christian Atlason “ 50
Georee Thompson “ 1,00
Ben Tayler “ 50
Robert McBride “ 1.00
Chas. Full “ 1,00
T. L. Price “ 1,00
C. C. Keller “ 1,00
John Gorman “ 50
Knstján Gunnarsson “ 1,00
Karl Grimsson “ 50
Wm. W. Nelson “ 50
W. Bride “ 1,00
W. Douglas “ 1,00
J. H. Anderson “ 1,00
Guntyir Gunnarssou “ 1,00
Ben. Daniels “ 50
M. Brynjólfsson “ 1,00
M. Goodman “ 50
Gísli Gíslason a “ 1,00
Julius Post “ 50
Björn E. Holm “ 25
S. Ormson “ 50
Lárus Guðmundsson “ 50
H. C. Feldman “ 50
Pioneer Express “ 1,00
E. K. Cavileer “ 1,00
C. E. Jackson “ 1,00
Kristján Gíslason “ 1,00
Safnað af Gesti Jóhannssyni
Selkirk, Man., $8,50, sem fylgir:
Ólafur Nordal Selkirk $1,00
Jón ívarsson " 1,00
Hinrik Jónsson " 50
Illugi Ólafsson " 1,00
Einar Jónsson “ 50
Þorgils Ásmundsson “ 1,00
Björn Benediktsson “ 1,00
Guðlaug Jóhannesdóttir “ 50
Margrét Eiríksdóttir “ 50
Sigurbjörn Ásbjarnarson “ 50
Mrs. G. J. Guðmundsson ‘ 1,00
Safnað af Mrs. Christina Josephson,
Watertown, S. D.. $4,50, sem fylgir :
Ole Oleson Henry, S. D, $0,50
John Johnson Watertown 25
Anna Peterson “ 50
Lilian Johnson “ 25
Jolin W. Johnson “ 50
Bína Johnson “ 50
Christian Johnson “ 1,00
Sever Josephson “ 50
Christina Josephson “ 50
Ásgeir V. Helgason, Hekla, Ont.
hefir safnað $12,75, sem fylgir:
Ásgeir V. Helgason, Hekla, Ont. $5,00
Thórólfur Guðnason, Parry Harbor 1,00
Margrét Johnston, Cleveland, Ohio 1,00
Bjarni Snæbjörnsson, Hekla, Ont. 50
Jacob Einarsson “ 50
Páll Snæbjörnsson “ 25
Gísli Einarsson “ 1,00
Solveig Pálsdóttir “ l,oO
Gísli Thómasson “ 2,00
Seselja Einarsson “ 50
Guðrún Bilgrav, Perth Amboy, N.J.
hefir safnað $4,00, sem fylgir :
Bjarni Vilhjálmsson.Perth Amboy $1,00
Eggert Eggertsson “ 1,00
Eyjólfur Snjólfsson “ 1,00
Guðrún Bilgrav “ 1,00
J. S. Thorlacius, Theodore, Assa,
hefir safnað $5,00, sem fylgir :
Jóhann Bjarnason, Theodore.Assa $1,00
Ketill Þorsteinsson “ 1,00
Kristján Helgason “ 1,00
J. S. Thorlacius “ 1,00
Arni Jónsson " 50
Bjarni Þórðarson “ 50
B. D. Vestmau, Churchbridge, hef-
ir safnað $5,30, sem fylgir .
Guðrún Nikulásd. Churchbridge,
Magnús Magnússon “
Árni Hannesson “
Sigurður Jónsson “
Helgi Árnason “
M. A. Magnússon “
V. N. Magnússon “
R. G. Magnúsdóttir "
Heimdallur “
25
“ 25
“ 50
“ 1,00
“ 2,00
“ 10
“ 10
“ 10
“ 1,00
Ingimundur Ólafssen, Westburne,
Man., hefir safnað $2,50, sem fylgir :
Guðmundur Sveinsson, Westburne, 1,00
Mrs. Jóhanna Sveinsson " 25
Sveinn Guðmundsson “ 25
Böðvar Jónsson “ 50
Gnðrún Tómasdóttir “ 50
Samtals $740.35
Winnipeg, 23. Des. 1896.
H. S. Barðal.
Ég hefi þjáast nærri fimm ár af
barkabólgu. Læknar mínir gáfu
mér ný og ný meðöl, en árangurs
laust, og um siðir réðu þeir mér
til að reyna Ayer’sCherry Pecto-
ral. Ég hefi nú tekið sex flöskur
af því og er nú *
fr
I
*
*
Kitlandi.
Hóstinn er ávalt kitlandi.
Hið öfg'afulla orðtæki: “Ég
var kitlaður til dauðs”, kem-
ur 1 engum skilningi nær því
að reynast sannmæli, en í frá-
sögum af kveljandi hósta. Hefir þú reynt þvð? Reynt þessa kitl-
anditilfinning í kverkunum, sem þú hettr engan frið fyiir, fyrri en
hóstakviðan kemur ? Þvi ekki að eyða hóstanum og hafa Yrið og
ró ? Þú gctur það með því að taka
AYERS CHERRY PECT0RAL.
*) Þessi vitnisburður allur er
hundruðum annara.
••«0®®©©
rður allur er prentaður í Ayer’s “Curebook”, ásamt
Ókeypis hjá J. C. Ayer Co. Lowell, Mass.
K>r.