Heimskringla - 24.12.1896, Page 4
HEIMSKRINGLA 24 DES. 1896.
—
Winnipeg.
Hra, Kristján Jónsson að Baldur,
Man,, náði kjðri sem oudviti sveitar-
stjórnarinnar í Argyle, hinn 15. þ, m.
Ef þú kemur í islenzka bakariið í
dag eða á morgun, geturðu fengið alis-
lenzkar jólakökur fyrir 10 cent stykkið.
Tíðin hefir verið góð það sem af er
mánuðiuum. Marga daga og enda næt-
ur ýmist alveg frostlaust, eða því sem
næst.
Mrs. Hallson. kona Vigfúsar Hall-
sonar i Glasston, N. Dak., fór heimleið-
is á mánudaginn var, eftir 3 vikna dvöl
hér í bænum.
Vér þökkum hér með Bromley &
Co., sem búa til tjöld, rúmsængur o. s.
frv, hér i bænum, fyrir ljómandi fall-
egan Calendar fyrir árið 1897.
Úr prívatbréfi frá Chicago fréttum
vér, að í Kanpmannahöfn sé3 menn
búnir að skjóta saman í jarðskjálfta-
sjóðinn íslenzka milli 80 og 90 þúsund
krónum.
Leitið uppi auglýsingu hr. Alfred
Andersons í Minneapolis, á öðrum stað
í blaðinu, og skrifið honum svoum frek-
ari upplýsingar. Það má skrifa honum
á ísienzku.
Hr. Pat. O’Connor, sem leng’ hélt
Nicollet Hotel, hefir nú tekið við stjórn-
inni á English Chop House,—skamt fyr-
ir sunnon pósthúsið. Sjá augl. á öðrum
stað í blaðinu.
Good-Templar stúkan Hekla heldur
sína venjulegu árshátíð í North-West
Hall á þriðjudaginn kemur, 29. Des.
Þar verður Jólatré og skemtanir góðar
og margvíslegar. Sjá auglýsinguna.
Bóluveikin. Hún útbreiðist ekki
meir að því er séð verður. Uppþotið
hefir haft það gagn í för með sér, að nú
er búið að bólusetja öll börn á skólaaldri
sem ekki höfðu verið bólusett áður.
Leiðrétting. í skránni yfir nöfn
gefenda í jarðskjálftasjóðinn, í Hkr. 10.
þ. m., var fyrir misskilning sett nafnið
Björg J. Thorkelsson. Wpg., þar átti að
standa : Mrs. Guðleif Jónsdóttir,
Scotsview, Man.
Jólatrés-samkoma í Tjaldbúðinni í
kvöld (Jólanóttina). Á móti gjöfum á
tréð verður tekið í dag í kyrkjunni frá
kl. 10 f. h. til 5 e. h. Allir eru boðnir
og velkomnir. — Guðsþjónusta í Tjald-
búðinni á morgun (jóladag) kl. 3 e.h. og
fer þá fram altarisganga.
Til þess að fyrirbyggja misskilning,
skal þess getið, að Ljóðabók Þorsteins
Erlingssonar verður að eins seld hér
vestra í bandi (ekki í kápu), og kostar
fyrir áskrifendur að “Bókasafni alþýðu”
$1.00—$1,20. Bandið verður vandað og
fallegt, og mundi samskonar band kosta
hér 50—75 cent. — M. Pétursson.
Hr. J. P. Sólmundsson á Gimli kom
til bæjarins á mánudaginn var. Tíð-
indi segir hann engin sérleg, að undan-
teknu því, að í vikunni sem leið (á fimtu
dag) hafðihr. Syeinn Thomson, aktýgja-
smiður í Árnesbygð, slasast. Hvernig
hann meiddist eða hvað mikið, var ekki
vist, en álitið að hann hefði kviðslitnað.
Hefirðu fengið þér alt sem þú þarft
til jólanna? Ef ekki, dragðu þá ekki
lengur að líta inn i aldínadúð Jsns
Hall, 405 Ross Ave. Auk aldina alls-
konar, sætmetis, vindla o. s. frv. hefir
hann enn mikið af barnaglingri af öll-
um tegundum, sem hann vill losast við
fyrir nýár, ef mögulegt er.
Northern Pacific járnbrautarfélagið
gefur vanalegan afslátt á fargjaldi um
hátíðirnar, til allra staða innan Mani-
tobafylkis. Maður borgar fult far aðra
leiðina en ekki nema einn þriðja til baka
Þessir farseðlar verða til sölu frá 21. til
24. og frá 28. til 31. þ. m., og eru gild-
andi þar til 2. Janúar.
. Ég hefi nú aftur nýfengið nokkur
eintök af hinni nýju útgáfu af Ljóðabók
Jóns Ólafssonar. Kostar hún, eins og
áður var auglýst, í mjög snotru bandi,
gylt á kjöl og hlið, að eins 75 cent. Mjög
lagleg vinagjöf um nýjárið og hugðnæm
fyrir alla þá, sem kunna að meta vel
kveðin ljóð.
M. PÉTURSSON.
W. W. Ogilvie, aðaleigandi Ogilvie-
mylnufélagsins stóra, hefir gefið $1,000
í byggingarsjóð sjúkrahússins hér i bæn
um. Sjúkrahúsið er of lítið enn og er
þetta fyrsta innleggið í sjóðinn sem þarf
að safna áður en það verður stækkað
meira. Samdægurs gaf Mr. Ogilvie
sjúkrahúsinu í St. Boniface $500.
Hr. Gunnsteinn Eyjólfsson náði
kjöri sem sveitarráðsmaður í Fljótsbygð
(3. kjördeild sveitarinnar), hinn 15. þ.
m. Fékk 29 atkvæðum fleira en gagn-
sækjandi hans, fyrverandi sveitarráðs-
maður Pétur Bjarnason.
George H. Campbell, ráðsmaður
strætisbrautarfélagsins hér í bænum.
segir af sér þvi starfi í lok þessa mán-
aðar og flytur til Inámubæjarins Ross-
land í British Columbia, sem nú er að
þjóta upp. Fyrst um sinn 'ætiar hann
að gefa sig við gullnámuverzlun, þvi í
sumar komandi er búizt við að þar
verði meira æði, en nokkurntíma i
Winnipeg sællar minningar 1881—’83.
Fyrir ári siðan var Rossiand ekki til,
sem bær, en nú eru þar um 8000 íbúar
og tiltölulega vel bygður bær, raflýst-
ur og með flestum áhöldum sem þéna
til gagns, þæginda og ánægju. Og
þangað verður í sumar komandi bygð
járnbrautin frá Lethbridee um Hrafna.
hreiðursskarð, ef unt verður að koma
svo miklu í verk á einu sumri. Vega-
lengdin frá Lethebridge til Rossland er
um 800 milur eft ir fyrirhugaðri braut,
en um 500 mílur eins og nú þarf að
fara, — um Calgary og þaðan til Revel-
stoke.
Dagatöflur (Calendar) fyrir árið 1897
eru farnar að koma á gang. Fyrstu töfl-
urnar sem Hkr. bárust og sem hún hér
með þakkar gefendunum fyrir, eru frá
Gísla Ólafssyni, mjöl og fóðursala á
King Str. og John Anderson, kjötsala
á Portage Ave.,— báðar töflurnar mikið
eigulegar.
Þarf islenzkan umboðsmann til að
selja "Our Native Herbs”, hið mikla
blóðhreinsandi lyf, $1,25 virði endist í
200 daga. Ef meðalið kemur ekki að
halði er peningunum skilað aftur.
Allar upplýsingar fást að 486 Pacific
Ave. Winnipeg.
Alt-læknandi meðal.
James L. Francis, bæjarráðsmaður
í Chicago, segir: “Eg álít Dr. Kings
New Discovery óbrigðult meðal við
hósta, kvefi, og lungnaveiki þar eð ég
hefi hrúkað það á heimili mínu i næst-
liðin fimm ár, og aldrei þurft á lækni að
halda.”
Séra John Burgus, Keokuk, Iowa
skrifar : “Eg hefi verið prestur í bysk-
upakyrkjunni í 50 ár eða meira, og hefi
ég aldrei haft neitt meðal sem hefir haft
jafngóð áhrif á mig og bætt mér eins
fljótt eins og Dr. Kings New Discovery.’
Reynið þetta frábæra hóstameðal þegar
Flaska til reynslu ókeypis í öllum lyf ja-
búðum.
j Ny=fengin
•
• 60 pör af hneptum kveDnskóm, ljómandi fallegum, með “patent”-leður
• á tánni. Venjulega verðið á þessum skóra er $1.25, en vér látum þá
2 fara fyrir $1,00.
5 ENNFREMUR
• 60 pör af flókaslippers kvenna, með saumuðum leðursólum, fóðraðir
J með ullardúk, með þykkri táverju. Meðan upplagið hrekkur fara þeir
• fyrir 80 cent. — Það eru enn eftir nokkur pör af 20 centa vetlingun-
^ um góðu, fyrir karlmenn.
j E. KNIQHT & CO. j
• 351 nain Str. Andspænis Portage Ave. •
• Gáið að merkinu : Maður á hrafni, ;
• Lá við slysi!
: Hann Jón Tóusprengur var nærri kafnaður hér um daginn svo mikill
• asi var á honum að láta Björn nábúa sinn vita hvað góð kaup og vandaða
• vöru hann hefði fengið á 131 Higgin Str. hjá W. KIiACKADHU.
Slíks kvaðst hann engin dæmi vita !
• _____________
Hinn 12. þ. m. gaf friðdómari Pét-
ur J. Skjöld, að Hallson, N. Dak., sam-
an í hjónaband hra Krisrjan Indrioa-
son og ungfrú Sigrím Brynjólfsson,
systur þeirra bræðra Magnúsar mál-
færslumanns og Skafta. Hjónavígslan
fór fram i húsi hr, Sigurðar Jónssonar,
tengdasonar Brynjólfs, og þar búa hin
ungu hjón í vetur. Hkr. árnar hinum
ungu hjónum allra heilla.
Einn stærsti hveitikaupmaðurinn
hér í bænum. N. Bawlf, fékkámánu-
daginn telegrafskeyti frá kaupmanni í
Buenos Ayres í Argentínu, er áður var
til heimilis hér í bænum. Segir hann að
þar sé ekki til nema 20 milj. bush. af
hveiti til útflutninga og hveitið slæmt.
Er það þýðingarmikil frétt, er sést af
því, að i fyrra voru þaðan send til út-
landa 40 milj. bushel og 1894 60 milj.
Jólagjafir að gagni og sem öllum
koma vel eru fáanlegar í búð Guðm.
kaupmauns Jónssonar á suðvestur-
horni Ross Ave. og Isabel-str. ekki síð-
ur en niðri á Aðalstræti, og dýrari eru
þær ekki. Hver sem vill getur sann-
færst um það með því að spyrja um
verð á silkiklútum, fingravetlingum,
“fur-suits” fyrir kvennfólkið o. s, frv.,
í búðunum á Main Str. og koma svo til
Guðm. JónSsonar, Reynið það rétt til
fróðleiks. — Nýárs-ballið er fyrir hendi
og hall-kjólaefni, o. s. frv., er við allra
hæfi hjá Guðm. Jónssyni.
Mikilsverð forskrift.
Morrison ritstjóri “Sun” Worthing-
ton Ind. skrifar : “Electric Bitters er
gott meðal. og ég get með ánægju mælt
með því. Það læknar óhægðir og höf-
uðverk, og kemur líffærunum í rétt lag.”
Mrs. Annie Stehle 2625 Cottage Grove
Ave. Chicago var orðin mjög af sér
gengin, gat ekki borðað eða melt nokk-
urn mat og hafði slæman höfuðverk,
sem aldrei linaðist, en sex flöskur af El-
ectric Bitters læknuðu hana algerlega.
Verð 50c. og $1.00. Fæst í öllum lyfja-
búðum.
Fundarboð.
Ársfundur hluthafa í Thr Hrims-
kringla Prtg. & Publ. Co. verður
haldinn á skrifstofu blaðsins, Cor.
Ross Ave. & Nena St., í Winnipeg,
mánudaginn 25. Janúar, 1897, kl. 8 e.h.
B. L. Baldwinson,
Ritari.
Winnipeg. 22. December 1896.
Þrír menn voru teknir í vikunni
sem leið hér i bænum, kærðir fyrir að
ræna raenn á alfaravegi. Undanfar-
andi kvöld hafði sem sé verið ráðizt á
menn sem voru seint á ferð á afviknum
stöðum og af einum þeirra náðu ræn-
ingjarnir $23. Sá sem þeir seinast réð-
ust á var harður í horn að taka, sleit
sig af þeim, náði í lögregluþjóna er
gripu þá. Maðurinn sem rnisti pening-
ana þekkir að tveir þeirra eru þeir sem
réðust á hann. Einn þessara ræningja
er Michael Joyce, unglingspiltur um
tvitugt, alkunnur hér í bænum, sem
útmetinn fantur.
Hra. Kristján Ólafsson kom heim
til sin úr ferð um Nýja íslaod um síð-
ustu helgi. Var það í fyrsta skifti sem
hann hefir komið þangað og leizt hon-
um langt frá því illa á sig. Húsakynni
virtust honum miklu betri en hann
hafði gert sér hugmynd um. I því efni
áleit hann að nýlendan stæði alls ekki á
baki hinum bygðunum, en búnaðarað-
ferðin virtist honum að þola myndi
breytingar. — Ekki leizt honum sem
vænlegast á hestakaupa-æðið, sem nú er
í nýlcndunni. Á meðan hann stóð þar
við voru svo hann vissi seld 9 hesta-
‘team’.
FUNDUR.
Næstkomandi laugardag. 26. Des.,
heldur íslenzka Verzlunarfélagið hlut-
hafafund i húsi Jóns Stefánssonar, 418
Young Str. kl. 8 siðdegis. Áríðandi mál
fyiir fundinum.
Winnipeg, 22. Desember 1896.
Jón Stefánsson.
Hinn 20. þ. m. hvarf héðan úr bæn-
um Ófeigur Ófeigsson (Oliver Olson
kallaði hann sig), sem um undanfarin
2—3 ár hafði verið forstöðumaður við
verzlun hins íslenzka Verzlunarfélags
og árlangt eða meir bókhaldari barna-
sparisjóðsins íslenzka og veitt innleggi
þeirra móttöku. Að hann hafi farið
með peninga þessara stofnana er ekki
gott að segja sem stendur, en óhrein-
lega skildi hann við bækur allar. Al-
ment álit er að hann sé á ferð til Is-
lands. — Ábyrgðarmenn sparisjóðsins
héldu fund á þriðjudagskvöldið og af-
réðu þar að hvernig sem alt færi skyldu
þeir sem eiga inni fá alt sitt útborgað,
verða börnin að framvísa bækur sínar,
því bankabókin (innleggsbókin) fiust
hvergi. Bækurnar eru börnin því beð-
in að afhenda B. L. Baldwinson, Cor.
William Ave. & Nena Str., ekki seinna
en á föstudag 30. þ. m.
I. O. F.
Stúkan “ísafold” I. O. F. hefir á-
kveðið að halda mánaðarfundi sina nú
fyrst um sinn síðasta laugardagskveld
hvers mánaðar kl. 8 á NorthWest Hall.
Næsti fundur verður þvi á laugardags-
kveldið kemur 26. þ. m. A þeim fundi
kemur til umræðu og úrslita málefni
nokKurt sem stúkan hefir ekki haft til
meðferðar fyrr á þessu ári. Embættis-
menn stúkunnar fyrir árið 1897 verða
kosnir á þessum fundi. Embættismenn
hástúkunnar verða á fundinum. Allir
meðlimir stúkunnar eru beðnir að koma
á fundinn.
Stephan Thordarson C. R.
BUCKLENS ARNICA SALVE.
Bezta smyrsl sem til er við skýrðum,
mari, sárum, kýlum, úthrotum, bólgu-
sárum, frostbólgu, líkþornum, og öll-
um sjúkdómum á hörundinu. Læknar
ylliniæð, að öðrum kosti ekki lcrafist
orgunar. Vér ábyrgjumst að þetta
meðal dugar í öllum þeim tilfellum sem
talin hafa verið, ef ekki borgum vér pen
ingana tii baka. —Askjan kostar 25 cts.
Fæst í öllum lyfjabúðum.
VÖRU=UPPLAQ
25 til 30,000 dollara virdi !
^essar^vöru^voroa^9^se\jastJ^ri^^ái\ Og til þess að það geti orðið þarf ein-
einhversstaðar að taka æði djúpt í árinni. Vér megum til með að fá inn poninga
og sé hægt að hafa þá saman með niðnrsettu vöruverði, þá stendur ekki á því.
Samskonar vörur hafa aldrei fyr verið seldar í Winnipeg með því verði, sem vér
nú bjóðum. Komið inn og látið reynsluna sannfæra yður.
Skófatnaðar-upplag.
Yfir $6.000 virði af skófatnaði allskonar. Rubber-skór,
yfirskór, “Moccasins,” flókaskór, fyrir karla, konur og
hörn, — þetta fyrir veturinn. Að auki allar tegundir af
leðurskófatnaði fyrir unga og gamla, úr fínasta geitaskinni
eða grófustu uxahúðum, eftir vild hvers eins.
Fatnaðar-deildin.
Yfir $10.000 virði af karlmannaog drengjafatnaði. Loð-
kápur og alullar yfirkápur. Alfatnaðir, nærfatnaðir, ótal
tegundir. Milliskyrtur, sokkar, vetlingar, húfur, og yfir
hðfuð alt sem að karlmannabúningi lýtur. Aldrei betra
tækifæri að velja úr en einmitt nú.
Kvennbúnings-deildin.
Yfir $4.000 virði af allskonar kvennbúningi. Jakkar,
prjónapeisur, morgunkjólar, húfur, hanzkar og herðaskýl-
ur úr grávöru, með ýmsum litum og á öllu verðstigi.
Sjöl og treflar, nærfatnaður, sokkar, vetlingar o. s. frv.
Enginn vandi að gera öllum til geðs.
Álnavöru-deildin.
Yfir $6000 virði af álnavöru allskonar úr alull, hálf-ull,
bómull. Kjóladúkar stykkjóttir, einlitir og með öllum lit
um, einbreiðir og tvibreiðir. Flanelette frá 5 cents og
upp yd. Flannel frá 12J cts. upp yard, æðardúnsklæði,—
ekkert þvf líkt f barnakápur, á 50 cts. yard; ‘Beaver’-klæði
tvíbreitt á $1 og upp yard—afbragðs verð. Tími vinst
ekki til að telja meira, en nóg er til af bolum allskonar á
85 cents upp, sirz, ginghams, muslin, flos, flöjel, silki,
borðum og kantaböndum o. s. frv.
Smá vöru-deildin.
Það vinst ekki tími til að telja alt sem er á boðstólum í
þessari deild, en rétt sem sýnishorn má nefna hárbúnað
kvenna, svo sem : hárnet, kamha og prjóna; brossiur,
lokuprjóna, tituprjóna, bandprjóna; allskonar skraut-
hnappar og almennir hnappar, perlu-trimmings, allavega
litt, selt í yarðatali, og i ‘setts’, blanséttur og allskonar
bolspengur o. s. frv.
5pecial !
Nœstu 30 daga höfum vér ákveðið að
selja vorar tvíhneptu, húðþykku vetrar-
alfatnaði úr ‘-friese,” “serge” og “tweed”
með stór-afföllum, svo sem: Hjá öðrum
$10, $12 og $16, — hjá oss $7, $9 og $11.
Yfirkápur sem aðrir selja á $9, $11 og $16,
seljum vér á $6.50, $8 og $12. Þetta verð
stendur mánuðinn út, ef upplagið endist.
G. JOjHNSOJM,
Suð-vestur horn Ross Ave. og Isabel Str. '
PYNY-PECTORAL
Positively Cures
COUGHS and COLDS
in a surprisingiy short time. It’s a scl-
entiCc certainty, tried and true, soothing
and healing in its effects.
W. C. McComber & Soh,
Bouchette, Que.,
roport In a l**tt«r that Pyny-Pectoral cured Mr$.
<Garccau u( chronic cold in chest and bronchlal
tiib*-». Hii*l hIho cured W. G. McComber of a
lon^-staiuiin^ cold.
M:t. J. II. IIutty, Chemist,
528 Yonge St., Toronto, writes:
” A$ a j,-cneral couch nnd lung syrup Pyny-
PecÞniiI íh a most invaluable preparation. It
iias givcn the utmost satisfaction to all who
have ti ied it. inany having spoken to me of the
i«‘ri*!fits d.erived from its use ln their families.
it ia suitable for old or young:, b*-inj{ pleasant. to
th.) tasie. Its snlo wlth me has tx'en wonderfhl,
i'nd I cvin nlways recommend it as a safe and
íLilahle cougii modicine.’'
Lirgc Bottle, 25 €t«.
DAVI3 & LAWRENCE CO., Ltd.
Sole Proprietors
Montreal
BLllE STORE.
MERKI : BLÁ STJARMA.
434 Main Str.
Það er oss gleðiefni að tilkynna við-
skiftavinum vorum öllum, að vór erum
búnir að fá alt vort mikla upplag af
haust og vetrarvörum. Umboðsmaður
vor er rétt heiinkominn og færir þær
góðu fregnir, fyrir oss, að fatnaðinn
fékk hann fyrir það sem hnnn band.
Er sú orsök til þess, að geypistórt heild-
sölufélag í Montreal varð gjaldþrota og
seldu skiftaráðendur vörurnar fyrir
framboðna upphæð, þegar mikið var
tekið i senn.
Af þessu leiðir að í Blue Store geta
menn nú fengið sömu vörurnar fyrir
HELMINGI LÆGRA verð en aðrir
kaupmenn selja þær. Því til sönnunar
eru hér talin örfá sýnishorn af vöru-
verðinu.
$1,75 buxur á ....$1.00;
$2,50 buxur á ....$1,50;
$3,50 buxur á.....$2,00;
Drengjabuxur á....0,25;
$1,00 drengjabuxur á 0,50.
Alklæðnaður karla $ 6,00 virði á $3,50.
“ “ 7,00 “ 4,00
“ “ 8,50 “ 5,00
“ “ 18,00 “ 8 50
Alklæðnaður drengja $8.50 virði á $2,00;
“ “ 6,50 “ 3.50
Alklæðnaður barna á 0,75.
“Racoou” kápur karla á $20,00 og
upp; yfirkápur karla úr Ástraliu bjarn-
arskinni á $15,00 og upp; yflrkápur fóðr-
ar með grávöru $20,00 og upp.
Kvenn-jakkar úr “Persian” lamb-
skinnum á $48 00; úr vönduðum “Coon”
feldum á $38,50; úr Ástralíu bjarnar-
feldum á $18,50; úr rússneskum "Coon”
feldum á $20,00.
Alt með nýjasta sniði.
»$«$$»»»
434 - - MAIN STR.
A. Chevrier.
Rfortliern Pacific fy.
CANADIAN
EXCURSIONS.
$40
•
To Toronto, Montreal and all points
west on the Grand Trunk System. Tic'
kets on sale Dec. lst to Slst—good f°r
three months with stopover privileges.
Choice of Routes.
Finest train service.
CALIFORNIA
EXCURSIONS.
Lowest one way and round trips to the
Pacific Coast and all California Points*
The old established trans-continental
route. Through Pulman Tourist CarS
to San Francisco for the convience of
first and second class passengers.
Quickest time.
Finest equipment.
Write for quotations or call upon
H. Nwinford,
General Agent.
Cor. Mincát Water St, í Hotel Manitob**
Winnipeg, Man.