Heimskringla - 31.12.1896, Blaðsíða 1
56
3AV -xoiv
UOBS0UUBH BBUUBH
Heimskríngla.
XI. ÁR.
WINNIPEG, MAN., 31 DESEMBER. 1896.
NR. 1.
Fundarboð.
Ársfundur hluthafa í Thb Hbims-
krinoLíA Prtg. & Publ. Co. verður
haldinn á skrifstofu blaðsins, Cor.
Ross Ave. & Nena St., í Winnipeg,
mánudaginn 25. Janúar, 1897, kl. 8 e.h.
B. L. Baldwinson,
Ritari.
Winnipeg. 22. December 1896.
FRETTIR.
DAGBÓK.
PIMTUDAG 24. DES.
Regnfallið á Indlandi um undan-
farinn tíma hefir ekki enn haft þau áhrif
sem vonað var. Verð á öllum korn- og
mjöl-tegundum er enn svo hátt, að fá-
tæklingarnir hafa ekki ráð á að kaupa
og líða þvi sult.
Ríkismaður í Montreal, Roliert
ReiAað nafni, hefir ákveðið að fá smíð-
uð svo gangmikil gufuskip tíl flutninga
á milli Cape Breton í Nova Scotia og Ný
fundnalands, að þau fari hafna milli á
3 kl.stundum. Verður það búbót mik-
il fyrir eyjarskeggja.
Eftir fregnum frá Washington að
dæma, er von til að innan fárra vikna
verði íullgerður samningur milli Breta
og Bandaríkjamanna áhrærandi frið-
samleg úrslit altra þrætumála, sem upp
kunna að koma milli þeirri þjóða. Upp-
kastið af fyrirhuguðum samningi kvað
vera fullgert og i höndum Bretastjórn-
ar, sem á að senda það til Washington
svo snemma, að það verði borið fram á
þjóðþingi undir eins eftir að þing kem-
ur saman eftir nýárið. — I samningn-
um er gert ráð fyrir, að hann verði í
gildi fimm ár að eins og er það með vilja
gert, að hafa reynslu tímann ekki lengri,
en tilgangur beggja málsaðila er að
lengja tímann um óákveðinn tima, ef
vel þykir ganga. Það þykir vel viðeiga
að auglýsa þetta einmitt um jólin, af
því að alt bendir á að samningurinn
verði samþyktur og gangi í gildi.
Svjóin Itússaleyft tússnesku
félagi að byggja járnbraut frá Síberíu-
braut sinni austur um Kínland norð-
anvert, — til ákveðins staðar í Man-
churia-héraðinu. Hluthafar í félaginu
verða allir að vera annaðtveggja Rúss-
ar eða Kínverjar.
í Sofía í Búlgaríu var hinn 22. þ. m.
hafin rannsókn í morðmálinu gegn þeim
eða nokkrum af þeim mönnum, sem 15.
Júlí 1895 veittu Stambouloff stjórnfræð-
ingi Búlgara banasár á strætunum í
Sofía. Hermenn eru á verði umh-verfis
réttarsalinn og almenningi er bannaður
aðgangur.
Uppþotið gegn samningi Breta og
Bandaríkjamanna um úrlausn landa-
merkjaþrætunnar, er nú óðum að eyð-
ast, segja síðustu fréttir frá Veneeuela,
og öll von til að hann verði staðfestur á
Venezuela þingi þegar það kemur saman
Febrúar næstk.
FÖSTUDAG, 25. DES.
Japan-þingið korn saman í dag.
Tyrkjastjórn er peningalítil um þess-
ar mundir. Um undanfarinn tima hef-
ir hún ekki getað goldið þjónum sínum
og embættismönnum launin og þá auð-
vitað ekki hermönnunum. Nokkrir
þeirra sýndu það líka núna í vikunni
tír þeir hættu starfi og neituðu að hlýða
boði yfirmannsins fyrr en þeir fengju
laun sín greidd. Þeir fengu að lyktum
150 þús. pjastra—einn fjórða af upphæð
inni, sem þeim bar, og gerðu sig á-
nægða með það í bráðina. — I Konstan
tínópel er enn haldið áfram að taka
menn 'fasta, einkum unga menn og
framgjarna. Er nú búið að hneppa yf-
ir 400 þeirra í fangelsi.
Fregn frá Washington sagir kunn-
ugt orðið að meðal stjórnarbóta sem
Spánverjar lofi Cubamönnum sé það,
að Cubamenn sjálfir kjósi alla (30) full-
trúana á fyrirhuguðu þingi Cuba, og
að það þing skuli hafa fult vald að því
er snertir toll-löggjöf.
EyjanJuan Fernandez, vestur af
Chili í Suður-Ameríku — eyjan sem Ro-
binson Crusoe var í sögunni látinn
dvelja á, er sögð sokkin í sjó. Jarð-
skjálfti á að hafa orðið henni að grandi.
Er það haft eftir skipverjum sem ný-
lega fóru suður fyrir Araeriku.
Þrír bankar í St. Paul, Minn., og
einn í West Superior hjá Duluth, urðu
gjaldþrota núna í vikunni.
LAUGARDAG, 26. DES.
■ Bandaríkja-skip, “Three Friends”
=(Þrír vinir) var tekíð fast á höfninni í
Key West í Florida í fyrradag. Skipið
var nýkomið fráCuba; hafði farið þang-
að rncð vopn og skotfæri handa Cuba-
mönnum og lent i orustu við tvö smá
herskip Spánverja fram við eyna, en
þurkað sig af báðum og kom farminum
á land og til viðtakenda. — Eftir síð-
ustu fregnum frá Cuba eru Spánverjar
nú ekki lengur ánægðir með að leggja
eignir Cubamanna í rústir, en taka nú
einnig og drepa fólkið sjálft, þó það sé
að hversdags störfum heima hjá sér. Á
einum stað t. d. réðust Spánverjar á 5
menn við vinnu, föður og syni, drápu 3
umsvifalaust, bundu 2 við hest foringj-
ans, sem dróg þá fil þess báðir voru
lamdir í hel og tættir sundur. Áþekkar
þessu eru margar sögur um hernaðar-
aðferð Spánverja á Cuba.
Á fundi í Uancouver núna í vik-
unni sagði Blair, járnbrautarmálastjóri
Lauriers, að há-tollarnir hlytu að halda
áfram um tima enn, að vesturhéruðin
krefðust fjárframlaga og þeim kröfum
þyrfti að fullnægja. Af því og fleira
leiddi að stjórnin þyrfti fremur að
auka en rýra tekjurnar.
Jóladagurínn var venju fremur
kaldur í New York. Þar kom eldur upp
i stórhýsi miklu og gekk illa að slökkva
hann, af því vatnið varð að ís undir-
eins og það kom við húsveggina.
' í norðurálfu er talað um að Japan-
ítar séu i kyrþey að búa sig til að herja
á Kínverja í annað sinn. Rússar að
sögn halda flota miklum í Vladivostok
í því skyni að taka í strenginn ef til
kemur.
Kyrkjufélav eitt í New York (The
Gospel Tabernacle) hélt í gær hátíðlega
minningu þess, að liðin væru 1900 ár
frá Krists fæðingu. Félagsmenn sem
sé halda því fram, að 19. öldin sé að
enda að hin 20, byrji 1. Janúar næst-
komandi.
MÁNUÐAG, 28. DES.
Járnbrautarlest hljóp af sporinu á
hundrað feta liárri brú í Alabamaríki í
gær og hentist niður í gjána. Áætlað
er að á lestinni hafi verið 30—35 far-
þegjarog fórust þeir allir nema 7 og ó-
víst að þeir lifi — svo eru þeir meiddir.
Vagnarnir afllr fðru í mjol.
Maður á Englandi, Ch. A. Parson
að nafni, bróðir nafnfrægs stjóinfræð-
ings,*hefir fundið upp gufuskipavél ó-
líka öllum sem til eru. IHún er mjög
fyrirferðalítil, einföld, sterk og fer 3
snúninga á sama tíma og beztu vélar
nú fara 1 snúning. Vélin helir verið
reynd á skipi úti fyrir Tyne-ármynn'
inn og knúði hún það áreynslnlaust 34
mílur á klukkustund. Vélin er bygð á
sama prinsipi og vatnshjól.
öbyskupar kaþólsku kyrkjunnar i
Quebec fyrirbuðu í gær af stólnum safn
aðarmönnum sínum að kaupa eða lesa
blaðið ‘L’Electeur’, af því það mæli
með skólamálssamningi þeirra Lauri-
ers og Greenways. Blaðið hættir að
koma út, eða öllu heldur breytir nafni.
Kom hið nýja blað út í morgun eins og
ekkert hefði í skorizt. Næst verður
sjálfsagt að bannfæra það:!
Allir flokkar Ira eru nú samtaka
alt í einu og lofa að vinna saraan. Or-
sökin er að sannað þykir að írar borgi
miklu hærri skatt en rétt er í sjóð
Breta og hafi gert það um mörg undan-
farin ár.
12 menn biðu bana í kolanámu í
Indiana á laugardaginn; hafði kviknað
í kolastufi.
75 manns létu lífið í felliveðri og
flóði á Jamaica-eyjunni í vikunni sem
leið. x
Kyrkjustjórn Rússa ráðgerir að
brennimerkja Tolstoi sem villitrúar-
mann, taka ritverk hans og banna út-
gáfu þeirra og sölu í Rússlandi.
Ekkja Stambouloffs Bolgarastjórn-
skörungsins myrta sagði á laugardag
inn var fyrir réttinum, að mennirnir
sem þar væru í haldi og kærðir, væru
saklausir, og að dómararnir vissu það.
eins víst og þeir vissu hverjir væru
hinir seku.
ÞRIÐJUDAG, 29. DES.
í dag er gamli Gladstone 87 ára
gamaU, færist nú yfir á 88 árið. Hann
er heima hjá sér enn, þó læknar hans
fyrir skömmu réðu honum að fara til
suður-Frakklands og dvelja þar um
tíma. Karl er sem stendur sagður hinn
heilsubezti og situr viðað lesa og skrifa
á hverjum degi.
Ferð gamla Li Hung Changs í sum
ar er leið er nú þegar farin að bera á-
vexti. Það boð er sem sé ný út gengið,
að enska skuli kend á öllum helztu skól
um í Kínaveldi og allar vísindalegar
fræðigreinar, sem kendar eru i vestur-
löndum. Er þetta sagt nauðsynlegt til
þess Kínverjar geti staðið vesturlanda-
búum jafnfætis í hverju sem er.
Washington-blaðið ‘Post’ segir að
þegar þjóðþing komi saman aftur (5.
Jan.) verði samningur lagður fyrir það
áhrærandi Cubastyrjöldina. Samiíing-
urinn er þess efnis, að Spánarstjórn
taki boði Bandaríkjastjórnar að gerast
sáttasemjari. Þar verður greinílega
sýnt hvaða kosti Spánverjar bjóða Cuba
mönnum. Það fylgir fregninni, að al-
gert stjórnfrelsi eins og í Canada fáist
aldrei á Cuba, en viðunanlegt má ætla
boðið, ef satt er að Bandarikjastjórn
gangi að því og takist á hendur að
binda enda á styrjöidina.
Tveir bankar í Bandaríkjum gáfust
upp í gær og lokuðu dyrunum: Atlas-
bankinn íChicago og Scandia-bankinn i
Minneapolis.
Frá Mexico kemur sú saga, að
stúlka sem lá í bólusóttinni hafi, sér til
hressingar fengið sér blöndu gerða úr
hunangi og vatni, og að henni hafi und-
ireins farið að batna. Svo á blandan að
liafa verið gefin •> hermönnum, er einn-
ig lágu í bólusótt, og þeim einnig fór
undireins að batna.
MIÐVIKUDAG. 30. DES-
Eftir stócfelda rigninguKljóp fram
í fyrrinótt mótekjumýri á Irlandi með
ógurlegum dunum og dynkjum. Hún
seig áfram að sögn svo mílum vegar
skifti og er hlaupið lj míla á breidd.
Sópaði hún öllu sem fyrir var, húsum,
brúm, fólki og fénaði, Hvað mikið lifs
og eignatjónið er, er enn ekki víst.
Þrír bankar urðu gjaldþrota í gær
í Bandaríkjum. í St. Paul, Minn., í
Batavia, Illinois og í Norfolk. Virginig.
—Bryansmenn gera sér glatt af þessu
hruni bankanna og segja það sýni upp-
haf velgengninuar, sem lofað hafi verið
undireins og McKinley væri kosinn for-
seti.
H. Beaugrand, ritstjóri blaðsins La
Patrie, í Montreal, hefir tekið að sér að
hefja stríð gegn klerkavaldinu í Quebec-
fylki. Skorar hann á alla “liberala” að
beygja sig ekki undir þetta ok, en ganga
fram og berjast gegn ánauðaroki páf-
_________. , , r - <, - <k»' . k.
Rvík 24. Nóv.
Dýralæknir er nú loks fenginn hér í
iandið, sem hefir verið dýralæknislaust
síðan Snorri Jónsson dó. Það er Magn-
ús Einarsson, sem kom nú með ‘Vesta’.
Hann er sagður efnilegur maður og dug-
legur, og er því ekki ólíklegt, að hann
gæti unnið bug á fjárkláðanum, ef ráð-
um hans væri lilýtt, og ef til vill bráða-
pestinni líka.
Holdsveikisspítalinn. Samskotin
til hans halda áfram, og hefir séra Jón
Sveinsson fengið yfir 20,000 franka. Mað-
ur úti á Jótlandi hefir gefið holdsveikis-
samskotanefndinni ‘villa’, sem ætlast er
til að verði flutt til Islands og sett upp
i einhyerjum kaupstað, sem einangrun-
arhús.
Dáinn 8. þ. m. séra Sæmundur
Jónsson prófastur í Hraungerði, úr
taugaveiki, 64 ára.
Rvík 1. Des.
-Skipsbruni. Fyrir skömmu brann
þilskip (‘Neptunus’) er uppi stóð í Gufu-
nesi. Hafa verið gerðar rannsóknir út
af þvi, sein enn er ekki lokið.
Bráðkvaddur varð { tukthúsinu hér
nótt 25. f. m. Jens Jafetsson, sjómaður
úr Keflavík um sextugt; tók Þorv. lög-
regluþjónn hann kveldið fyrir lítið eitt
drukkinn og dró í tukthúsið votan í fæt-
ur og illa til reika, og hefir að likindum
orðið innkulsa og beðið bana af þyí.
(Efti.r “Þjóðólfi.”)
Rvik 23. Okt.
Mannalát. í þessum mánuði hafa
andazt tvær úætur Páls heitins amt.
msuis Melsted. Onnur þeirra var frú
Guofcún Stephensen, kona séra Stepháns
Stephensens i Vatnsfirði. Hún var fædd
29. Ágúst 1825, giftist 1855 og dó 3. þ
m. Af börnum þeirra hjóna eru 5 á
lífi: Ragnheiður, ekkja Einars Guð-
jónsens, Þórunn, kona Davíðs læknis
Thorstpinsons í Stykkishólmi, Ástríður
kona Ólafs Petersens að Svalbarði. Páll,
prestur að Kyrkjubólsþingum og Ólafur
læknir í Ameriku. Frú Guðrún var tal-
in merk kona og sómi sinnar stéttar. —
Hin systirin var Margrét Melsteð, fædd
6. Maí 1821. Re.yndi hún heilsubrest
mikinn og lá rúmföst nær 40 ár, unz hún
andaðisthér í bænum 18. þ. m.
íslands-fréttir.
(Eftir “Fjallkonunni.”
Rvik 6. Nóv. 1896.
Breyting á Mýrdalsjökli. Svo segja
skýrir menn og sannorðir, aðaustan, að
Mýrdalsjökull hafi nú lækkað stórum
(eftir flóðið í Markarfljóti eða jarðshjálft
ana), raest þó að austanverðu, þar sem
Kötlugjá er. “Þetta sést á þvi, að upp
úr jöklinum hafa komið hnúkar, þar
sem ahlrei áður hefir sézt á dökkvan díl.
Það er ekkí hægt að segja, hve háir þes-
ir hnúkar eru, en ekki er ofmikið þótt
giskaO sé á, að þeir standi 10 faðma upp
úr jöklinum”. Þannig skýrir meðal
annars Markús Loftsson í Hjörleifshöfða
frá, nákunnugur maður, sem á heima
nálægt jöklinum, og hefir þar að auki
talsvert kynt sér yfirleitt jöklana þar
eystra (sbr. rit hans ‘Um jarðelda’.)
Börnin úr jarðskjálftasveitunum.
Hér um bil helmingur af tökubörnum
úr jarðskjáiftasveitunum verður vetrar-
langt hér i Reykjavík. En nú um þess-
ar mundir eru hin að fara heimleiðis.
Sláturfé vantar nú til Reykjavíkur
venju fremur, og sér ekki á að illa hafi
heyjast í sveitunum, þótt það muni því
miður vera svo alment. Munu margir
nú setja djarflega á, og væri betur að
ekki hlytist vandræði af. Bændur í
jarðskjálftahéruðum sem búizt var við
að mundu verða að farga fé sínu með
mesta inóti, hafa þvert á móti selt færra
íé-í haust en oft að undanförnu,
Rvík 17. Nóv.
Skagafjarðarsýslu, 2. Nóv.: ‘Síðan
í Sept. hefir verið versta tíð, ýmist snjó-
komur eða rigning. Hey allviða úti. í
áfellinu í byrjun Oktm. fenti fé á nokkr-
um stöðum. — Heyskapur hefði orðið j
meðaflagi að vöxtum, ef hey hefði öU
náðst, en þau eru víða illa verkuð. —
Hætt er við að menn setji djarft á hin
hröktu hey. — Bráðapestin er talsvert
farin að gera vart við sig. — Góður
fiskafli hefir verið að þessu hér á firðin-
um, en litt orðið notaður vegna ógæfta.
— Verzlun er í versta lagi. Kjötvorð :
30 pda 10 au., 40 pda 12 au., 50 pda 14.,
þyngra 16 aur.; gærur 20 au., mör 18
au. — Fé pöntunarfélagsins komst nær
hálfum mánuði síðar en áætlað var. og
var þá orðið illa útlítandi sumt af þvi.
Ekki eru enn komnir peningar þeir til
pöntunarfélaganna, sem yon er á. Er
því peningaskortur með mesta móti’.
Norður-Þingeyjarsýslu í Okt. :
‘Haustið hefir verið mjög hretviðrasamt
og hefir orðið úti mikið af heyjum, eink-
um í Þistilfirði’.
Jiyik. 13. Növ .
Jolagjafir.
t
♦
♦
♦
:
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Munið eftir því, að ég hefi alt það gullstáss, úr, klukkur
og hvað annað af gull og silvur-stássi sem yður langar til
að eignast. Nóg af vönduðum og ódýrum jólagjöfum
ætíð á reiðum höndum. Komið inn og skoðið þær.
Munið eftir GLERAUGUNUM, þau koma sér
vel í skammdeginu, og enda hvenær sem er. Þau fást
með silfurspöngum, gullspöngum og stálspöngum, rétt
eftir því sem hver vill hafa.
Búðin er opin til kl. 10 á hverju kveldi það sem
eitir er af árinu. Komið inn og skoðið jólagjafirnar.
G. THOflAS,
ttt Manufacturing Jeweller. 598 Main Str. Xt t
♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦ ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦::::♦:
umfram áætlun í þessari ferð, nfl. Eski-
fjörð, Vopnafjörð, Húsavik, Dýrafjörð,
Arnarfjörð, Patreksfjörð, Flatey og
Stykkishólm, og þykir mönnum það
miður heppileg ráðstöfufi um þetta leyti
árs og eigi fjárvænleg fyrir landssjóð,
því að sárlitlar vörur munu hafa verið
í skipinu til sumra þessara hafna, (10
króna “frakt” á einn staðinn að sagt
var).
Safnað hefir Magnús Hinriksson,
Churchbridge, $5,00 sem fylgir :
Magnús Hinriksson,Churchbridge$ 2,00
Guðbrandur Narfason “ 2,00
Hinrik Gíslason “ 1,00‘
Eldsvoði. I fýrradag kl. 4 e. m.
kom upp eldur inikill í húsi nokkru í
Þingholtsstræti, sem er eign kaupmans
H. Th. A. Thomsens. Hafði kviknað í
reykháfnum; brann þekjan af efraloft-
inu, og skemmdist húsið mjög; auk þess
ónýttist þar talsvert af matvælum,
fatnaði o. fl.
Aflabrögð. Afli er sagður góður '
Höfnum, Grindavík og á Miðnesi. Net
hafa verið lögð { Garðsjó og nokkuð afl-
ast í þau. Botnvörpuveiðendur munu
nú vera farnir, en líklega vitja þeir hing
að aftur snemma. Hefir þeim gengið
veiðin hér svo að i ráði var á Englandi
að gera út hingað 100 botnvörpuskip
næsta ár og er það ægilegur floti og
horfir til hins mesta tjóns fyrir fiski-
veiðar vorar.
Rvík 20. Nóv.
Þilskipa-afli. 3 þilskip sunnlenzk,
er verið höfðu við fiskiveiðar á Arnar-
firði fyrir vestan (með róðrarbáta), eru
fyrir nokkrum dögum komin heim með
góðan afla. ‘Hjálmar’ (frá Hrólfsskála)
með 30,000, ‘Komet’ (trá Melhúsum) 34,-
000. ‘Gunna’ (frá Nesi) 16.000.
Bráðapest er nú farin að gera vart
við sig hér á sumum bæjum nærsveitis,
enda er veðurátta hin umlileypingasam-
asta og hraksamasta fyrir skepnur.
Rvík 27. Nóv.
Nýr gufubátur er í vændum að
komi á Faxaflóa næsta sumar. Það er
Christjansen timbarkaupmaður í Man-
dal, er býðst til að halda honum úti með
8000 þúsund kr. styrk frá hlutaðeigandi
sýslufólögum. Báturinn er 80 tons að
stærð og er því nærri þrefalt stærri en
“Elin” sáluga, sem Fischer & Co. skild-
ist svo heiðarlega við, sællar minningar
Það hefði verið meira en meðai hneysa
hefðum vór setið uppi bátlausir hér á
flóanum næsta sumar, þótt Fischer
gengi úr skaftinu,
Fríraerkjalögunum frá síðasta ai-
þingihefir stjórnin synjað staðfestingar.
Kvað henni þykja ótilhlíðilegt að land-
sjóður afli sér peninga á þennan hátt.
“Vesta” kom hingað loks að kveldi
hins 20. þ. m. eftir 7 daga ferð frá Leith.
Hreppti ofsaveður mest alla leiðinamilli
Skotlands og íslands, einkum 3 síðustu
dagana. Farþegjar með henni voru :
Wilhelm Paulson agent Canadastjórnar.
Bergsveinn Matthíasson Long (ættaður
af Seyðisfirði) og Jón Kristjánsson úr
Þingeyjarsýsla. hinn fyrnefndi snöggva
ferð hingað, en hinn alkominn. — Sakir
illviðurs komust farþegar með naum-
indum í land af höfninni, og 3 daga lá
“Vesta” hér, svo að eigi varð skipað upp
neinum vörum úr henni. Hún fór héð-
»n aftur fyrradag austur og norður
utn land. Á að koma á 8 viðkomustaði
Skrá
yflr nöfn þeirra sem gefið hafa peninga
í sjóð til hjálpar því fólki i Árnes- og
Rangárvallasýslum á Islandi, er urðu
fyrir jarðskjálftunum síðastl. Ágúst og
September:
— AðuÁaúglýst **$ 745,3o
Jóhaun Jóliannsson, Grund, 1,00
Ant. Þor.steinsson, Baldur, 50
Sigmund ir Bárðavson “ 1,00
M. J. Borgfjörö Winnipeg 2,00
Benedikt Arason, Húsavík, Man.,
hefir safnað $2,50, sem fylgir :
Benedikt Arason, Húsavík, 1,00
St. Ó. Eiriksson “ 1,00
Sveinn Sigurðsson “ 50
J. B. Johnson, Seattle, Wash., hefir
safnað $15 sem fylgir :
J. B. Johnson, Seattle, 5,00
G. J. Borgfjörð “ 5,00
Thomas Goodtnan “ 5,00
A. Guðmundsson, Detroit Harbor,
Wis., hefir safnað $27, sem fylgir :
John Gíslason, Detroit Harbor, 5,00
Oddur Magnússon “ 1,00
Guðm. Guðinundsson, Washington 5.00
Þorl. Jónsson “ 1,00
Jón Thoihallson “ 2,00
Sigurður Jónsson “ 1,00
ÁrniGuðmundson, Detroit Harbor, 1,00
Th. Guðmundsson “ 1,50
Sig. Sigurðsson “ 1,00
Hannes Jónsson “ 1,00
Kristófer Einarsson “ 1,00
Ólafur Hannesson “ 1.00
Ólafur Einarsson “ 50
Bérður Nikulásson “ 1,00
Mrs. Guðný Helgadóttir “ 2,00
Jón .Tónsson “ 1,00
Á. Guðmundsson “ 1,00
Safnað af Kristjáni Benediktssyni,
Point R'berts, Ladners, B. C. $12,50,
sem fylgir : Sigfús Hjálmarsson, Point Rob. 1,00
Helgi Thorsteinson “ 1,00
Árni S. Mýrdal tt 50
Sigurgeir S:gurðsson 11 50
Ch. Severt “ 1,00
Mrs. Sigibjörg Guðmundsd“ 50
S. P. Scheving ti 1,00
Bent Severt tt 50
Salam. Severt l t 25
Gísli Guðmundsson tl 25
Jakop Jackson tt 50
Eiríkur Anderson “ 50
Guðmundur Saraúelsson It 50
Mrs. Hviling II 50
Fred. Hanson “ 1,00
Miss Guðlaug Johnson “ 1,00
Anna Benson “ 1,00
Jónas Samúekson “ 50
S. A. Mýrdal 11 50
Mass., $57, sem fylgir :
Þórarinn Þorsteinsson, New York 1,00
Dr. H. Torfason tt 2,00
Ónefndur •> 5,00
Miss Dóra Guðmundsd., Rockport 50'
Ónefnd v “ 1,00
Guðra. Johnson Boston 1,00
Miss Rína Samuels • t 100
Flóvent Jónsson, Gloucester 1,00
Rev. Emanuel Charleton II 2,00
Dr. Hale tt 1,00
Jónas B. Johnson 11 5,00
Einar Einarsson “ 3,00
Guðmundur Johnson tt 2,00
Miss Regina Indriðadóttir 11 5,00
Thomas J. Knudsen tt 10,00
Ónefndur “ 2,00
'atagiiÖS Kristjáiísson * ■>;irr
Fdmund Anderson tt 1,00
Indriði Indriðason tt 1,00
Guðjón S. Friðriksson “ 1,00
Óskar Anderson 11 1.00
Miss Dóra Peterson “ 1,00
Mrs. G. Jakobsen , tl 1,00
Mrs. Emma Norman t! 1,00
Mrs. F. Christien “ 1,00
Miss Guðrún Guðmundsd. ti 1,00
Miss Inga Sigurðardóttir tt 1,00
Miss Anna Hall “ 1,00
Miss Helga Sigurðardóttir 11 1,00
Mrs. Stefanía Petersen tt 50
Safnað af 0. Olson, $4, sem fylgir: Russel, Man.,
Jóhann Kárason, Russel, 25
Einar Olson tt 1,00-
Mrs. G. Olson “' 1,00
Einar Olson tt 55
O. Olson tf 1,00
Miss G, Olson 11 10
Elias Olson tt 10
Safnað af Jóni Ólafssyni, Brú, $28, sem fylgir : Man.,
Jón Halldórsson Brú, 1,00
Skúli Árnason tf 1,00
Halldór Árnason It 1,U0
Torfi Steinsson 1 i 1,00
Jón Hjálmarsson 11 50
Hannes Sigurðsson tt 1,00
Sigurgeir Friðfinnsson “ 1,00
Jóhannes Sigurðsson “ 2,00
Sigmar Sigurjónsson 11 1,00
Sigtryggur Sigurðsson tt 1,00
Andrés Andrésson 11 1,00
Björn Stefánsson tt 1,00
Stefán Björnsson f l 50
María Árnadóttir “ 50
Björn Andrésson tf 2,00
Björn .Tósephsson “ 1,00
Jósafat Josephson tf 50
Hólmkell Jósephsson ft 50
Hallgrímur Jósephsson It 50
Hallgrímur Jósafatsson tf 50
Snæbjörn Andrésson 11 1,00
Þorsteinn Jónsson tl 2,00
Guðmundur Norðmann tt 25
Björn Sigvaldason tf 2,00
Albert Oliver “ 1,00
Andrés Jóhannesson •• 50
Jón M. Nordal tt 2,00
Jón Ólafsson 11 75
Samtals Winnipeg, 30. Des. 1896. $912.85
Safnað af séra Birni B. Jónssyni,
Minneota, Minn., í viðbót við þá $37.25
er hann áður hefir safuað, $17,00, sem
fylgir :
Jósef Jósefsson, Minneota, 10,00
Björn Gislason, “ 2,00
St. Glibertsson “ 1,00
V. Anderson “ 1,00
Jóhann Jóhaunsson “ 1,00
O. G. Anderson & Co. “ 1,50
Sigurbjörn Kristjánssou “ 50
H. S. Babðal.
u
lll
• D
■5
Fræðiblað með myndum. Kemur
í Reykjavík einu sinni á hverjr
mánuði. Eina íslenzka ritið er stí
ugt flvtur myndir af nafnkunnum !
lendingum. Ritstjóri og eigandi
Þotsteinn Gíslason.
Blaðið kostar í Ameríku, fyrirfrt
borgað, einn dollar árgangurinn.