Heimskringla - 07.01.1897, Síða 4

Heimskringla - 07.01.1897, Síða 4
HEIMSKRINGLA 7. JAN. 1897. Winnipeg. Einar bókbindari Gíslason í West Selkirk heilsaði upp á oss á mánudag- inn. Hr. ThorlákurlThorfinnsson, Hallson N. Dak., er útsölumaður fyrir “Bjarka” og “Bókasafn alþýðu. — M. Petursson Hra. Rögnvaldur Pétursson frá HaDson, N. Dok., er nýkominn til bæj- arins í því skyni að stunda skólanám um tíma. 1794 sjúklingar voru fluttir á sjúkra- hús bæjarins á siðastl. ári og 1691 sjúk- linga vitjuðu sjúkrahússlæknarnir og önnuðust um þá utan sjúkrahússins. Sendibréf á skrifstofu Hkr. eiga : Miss Vilborg Árnadóttir (frá Rvik), Stephan Hermannsson, Mrs. Ingibjörg Hákonardóttir, Kristján Benediktsson. Meðal aðkomandi landa, sem heim- sóttu Winnipeg um nýjárið, munum vér að nefna (auk þeirra er vér nefndum í síðasta blaði) hr. Árna Sveinsson, bónda í Argyle, og-.hr. B. B. Olson, frá Moun- tain, N. Dak. Til hátiðabrigðis á nýárinu flutti blaðið ‘Minneota Mascot’ 3 nýáiskvæði: “Ring out wild bells”, eftir Tennyson ; “Gleðilegt nýár, göfuga þjóð”, eftir Matth. Jochumson, og kvæði á norsku “Nytaar”, eftir Olav Lofthus. Hr. Teitur Thomas.húsbúnaðarsali, lagði af stað í innkaupsferð til Montreal á laugardaginn var. Hann fór með Northern Pacific og nemur staðar bæði í Minneapolis og Chicago í því skyni að Uta eftir nýjustu tízku þar, að því er húsbúnað allan snertir. Þaðan fer hann svo viðstöðulaust til Toronto og Mon- treal. Hr. Jóhann Pálsson veitir verzl- uninni forstöðu á meðan Mr. Thomas er fjarverandi. Mjólkursalarnir í bænum hafa unn- ið frægan sigur yfir bæjarstjórninni. Lögin um rannsókn mjólkurkúa o. fl. 1 þvi sambandi eru dauð og ómerk. Hin nýja bæjarstjórn tók við taum- haldinu álþriðjudaginn var. Formenn hinna ýmsu nefnda voru kjörnir sem fylgir: í fjármálanefndina A. J. And- rews; verkanefndina C. H. Wilson; elds, vatns og ljósa nefndinni B. G. Chaffey; markaðs-nefndinni C. W. N. Kennedy; löggjafarnefndinni Charles Hyslop. Á seinasta fundi bæjarstjórnarinn ar var ákveðið að veita þurfandi mönn- um atvinnu við að brjóta stein, fyrir 75 cents teningsyard. Þeir sem vilja sinna því, þurfa að snúa sér til formans gust- uka-nefndarinnar, Mr. Polsons, er síðan gefur þeim ávísun á verkfræðing bæjar- ins og hann aftur á formanninn við steinbrotið. Blaðasýkin fer vaxandi á íslandi, ekki síður en gull-sýkin hér um slóðir. Á síðastl. nýári átti að byrja að koma út i Reykjavík eitt vikublaðið enn, "ís- land”, er Þorst. Gíslason ætlar að gefa út. Fyrst um 3Ínn er ætlast til að það komi út einu sinni í viku, en innan skamms á það að koma út tvisvarí viku. Hver örk á að vera um það helmingi stærri en er “FjaUkonu” örkin.— Verða þá í Reykjavík 5 blöð, sem koma tvisv ar i viku og 3 sem koma einu sinni viku. Fundarboð. Ársfundur hluthafa i The Heims- kringla Prtg. & Publ. Co. verður haldinn á skrifstofu blaðsins, Cor. Ross Ave. & Nena St., i Winnipeg, mánudaginn 25. Janúar, 1897, kl. 8 e.h. B. L. Baldwinson, Ritari. , Winnipeg, 22. December 1896. Tíðin hélzt yndæl allan Desember út. Á gamiársdag rigndi allan dag- inn og seig þá snjór talsvert. Byrjaði að rigna af austri, en gekk til suðurs, þá til vesturs og norðurs. Rigningin hélzt alla nyársnóttina, en er leið á nótt breyttist regnið í ís og á nýársdags morgun gekk í norðanhríð, er jókst er kvöld kom og hélzt til þess undif há- degi á laugardag. Á sunnudag skaD á norðanhríð aftur, bjartviðri en ofsi og skafrenningur, er hélzt til þess á mánu- dag. Isiun á sporinu bannaði umferð rafmagnsvagnanna á nýársdag. Járnbrautarmálanefnd sambands- stjórnar sat á fundi í þriðjudaginn til að ræða um leyfið sem Winnipegbæjar- stjórnin biður um til að byggja brú yfir C. P. R. sporvegsklasann á Salter Str. hér í bænum. Það var búizt við að C. P. R. félagið mundi berjast gegn leyfinu, en er til kom sagði það ekkert. Leyfið fæst þess vegna undir eius og bæjarstjórnin og C. P. R. hafa lokið samningi sinum þar að lútandi. Fjórir bændur frá Mountain og Ey- ford, N. Dakota, Matúsalem Einarsson, Sigurjón Jóhannesson og þeir bræður Kristján G. og Sigurður Kristjánssynir, komu til bæjarins snögga ferð frá Pem- bina á nýársdag. Á laugardaginn brugðu þeir sér til Selkirk og héldu heimleiðis aftur á mánudaginn, Sér- stakar fréttir úr bygð sinni höfðu þeir engar að segja, nema hvað þeir höfðu heyrt í þann veginn er þeir fóru af stað að úlfar hefðu drepið tvo menn—karl- mann og konu—í Pembina-fjallabrún- unum vestur af Mountain. En fregnin var ógreinileg til þeirra komin, og gátu þeir því litlar upplýsingar gefið. Til hr. Thomas Klog (eða einhverra landa. er vita utaná- skrift hans). Steingrímur Tómasson, af Seltjarn- arnesi á íslandi, er fór af landi 1867, hefir skrifað mér og beðið mig að útvega sér utanáskrift Thómasar Klog (sem ég hygg sé bróðir hans). Síðast er ég vissi var Thomas Klog í San Francisco, Cal., og vona ég að blað þetta berist honum í hendr, eða einhverjum landa, er geti gefið honum visbending um það. Utan- áskrift til Stgr. Th. er svo : Mr. Stein grim Thomasson. C/o Post Office. Coolgardie. Western Australia.” Jón Ólafsson, Newberry Library, Chicago. Fundarboð. Hinn 12. þ. m. (Janúar) heldur hið íslenzka verzlunarfélag ársfund sinn í húsi Jóns Stefánssonar, 418 Young Str., kl. 8 siðdegis. JÓN STEFÁNSSON, Forseti. Maður að nafni G. B. Anderson var kærður fyrir lögreglurétti í vikunni sem leið, fyrir að hafa gert tilraunir til að fá kjörstjóra hér í bæuum í síðastl. do minionkosningum til að ónýta atkvæði þegar þeir væru vissir um að Martin ætti atkv. (það er ekki framtekið, eu það segir sig sjálft, af því maðurinn á að hafa sagt, að Macdonald mætti til með að komast að). Hann á að hafa kvatt nokkra kjörstjóra til fundar á herbergi á Hotel Leland og sýnt þeim hvernig ónýta mætti atkv., með þvi að fela blýantsbrot undir fingurnögl og gerarispu einhversstaðar á kjörseðilinn þegar menn svo vildu. Málinu hefir verið vísað til hærri réttar. Dánarfregn. Hinn 28. Nóv. síðastl. lézt að heim- iD sínu í Portage La Prairie, Man Ólína Pálmey Einarsdóttir Suðfjörð, nær 33 ára að aldri. Árið 1890 gift’st hún Páli Jónssyni Nordal frá Langhús- um í Fljótsdal í Norðurmúlasýslu, er lifir konu sína ásamt 3 ungum souum þeirra. — Ólína sál. var fædd 18. Des. 1863 á Breiðabóli í ísafjarðarsýslu og ólzt upp hjá Helga Sölvasyni í Tungu í Skutulsfirði, þar til hún flutti til Ame- ríku árið 1889. Meðalið bjargað lífi hans. Mr. G. CaiUoneUe, lyfsali í BeaversviUe, IU., segir: “Eg á líf mitt að þakka Dr. Kings New Disc.overy. E_g fékk influ- enza og reyndi alla lækna í nágrenninu, en það var árangurslaust, og mér var sagt að mér gæti ekki batnað. Ég hafði Dr. Kings New Discovery í búð minni og sendi ég eftir einu glasi, og fór að brúka það, og frá því ég byrjaði á því. fór mér að batna. og þegar ég var búinn úr þremur glösum, var ég orðinn frísk- ur. Ég hefi það ætíð í búðí'nni og heima hjá mér.Fáið að reyna það fyrir ekkert. Til í öllum lyfjabúðum. Úr nýja íslandi eross ritað, að al- ment virðist menn mjög ánægðir með úrslit sveitarkosninganna; þó einkum að því er snertir oddvitastöðuna. Segir svo í bréfinu, að “nú þyki drengur sezt- ur við stýrið, sem kunni að fara með og sem búast megi við að komi fram vel í hvívetna að því er snertir hag sveitar- innar. Hinn nýi oddviti, Jóhannes kaupm. Sigurðsson að Hnausum, var eins og áður hefir verið getið um kosinn á útnefningafundi, þar sém enginn sótti á móti honum. En til hátíðabragðs heimsóttu hann margir vinir hans kosn ingadagskvöldið, til að árna honum heiUa og láta í ljósi ánægju sína yfir úrslitunum. Það þarf ekki að taka það fram”, segir bréfritarinn, “að þeim er þannig komu var veitt rausnarlega um kvöldið, — veitt eins og þeir Sigurðsson bræður kunna svo vel að veita”. þakklætisávarp. Síðan ég misti heilsuna fyrir meira en hálfu öðru ári siðan, svo að ég hefi verið algerlega ófær til aUra verka og er það enn, þrátt fyrir allar lækningatil- raunir. hafa fjölmargir af rainum heiðr- uðu löndum og öðrum rétt mér örugga hjálparhönd á einn og annan hátt. Of- an á mitt eigið heilsuleysi bættist það, að ég misti einu kúna, — eina bjargar- gripinn sem ég átti. En landar mínir, sem fyr og síðar hafa hjálpað mér, voru þá fljótir til og söfnuðu samskotafé sem bætti þann skaða. Þvi miður er hér ekki pláss til að nefna nöfn allra vel- gerðamanna minna, landa minna og hérlendra, og svo veit ég heldur ekki um nöfn þeirra allra. En meðal þeirra eru : hr. G. W. Johnson, sem færði mér $16,20 í peningum; Jón Árnason; Ást- ríður Þórðardóttir; Þorbjörn Guðmson; Sigfús Pálsson ; Jón Finnsson; Eyvind- ur Jónsson. Þetta kærleiksfulla veg- lyndi þessara manna og annara sem ég kann ekki að nafngreina, bið ég guð af alhug að launa þessum góðu drengjum, jafnframt og ég opinberlega votta þeim mitt og minna innilegt þakklæti. Jónas Guðmundsson. Toronto St., Winnipeg, 2. Jan. 1897. Matreiðslubók frítt. “Taðle and Kitchen” er nafn á nýrri matreiðslbók sem Price Baking Powder félagið í Chicago hefir geflð út. Um þetta leyti verður þessi bók send hverj- um sem vill án endurgjalds, ef oss er sent póstspjald með pöntnu og þess er minst á spjaldinu að sá sem pantar hafi séð auglýsingu þessa í Heimskringlu. Bók þessi er ein af þeim hestu af þessari tegund, auk þess sem í henni eru um 400 fyrirsagnir um það,hvernigbúa skal tU ýmsar kökuá, steikja ket o. fl. Þá eru þar einnig ýmsar leiðbeiningar um það, hvernig ganga skal frá á borði og allskonar leiðbeiningar viðvíkjandi mat- artilbúningi og frágangi innahúss. Mun ið eftir því að “Table and Kitchen” verð ur sent hverjum sem vill að kostnaðar- lausu. Utanáskriftin verður að vera greinileg. Bókin fæst á þýzku og dönsku ef menn vilja. Pantanir sendist til: Price Baking Powder co. Chicago, 111. Napóleon vissi þýðingu sig1- ursins. Þýðing hans kernur einnig í ljós á þess- um timum. Napóleon skildi vel hvaða þýðingu sigurinn hafði. Eftir bardagann við AusterUtz virtist heimurinn að tilheyra honum. Frægðin gerði honum auðvelt að afla auðæfa; alt hjálpaðist til að greiða götu hans. Með vaxandi valdi safnaði hann ávöxtum sigursins og þannig hefir þab ávalt verið. Láninu lánast alt. Þetta sannast á sigri þeim, sem Dr. Price Cream Baking Powder hefir unnið á heimssýningunni 93 og Miðsvetrarsýningunni í California 94. Meiri sala er afleiðingin. Fólkið hefir skrifað uudir dóm úrskurðarnefndar- innar sem sagði. að Dr, Price Baking Powdor væri hið bezta. Dómur þeirra þykir heimsfrægur sigur ekki síður en þeir sigrar, sem Napóleon vann. “BJARKI,” ritstjóri Þorsteinn Erlingsson, langbesta blaðið sem gefið er út á ís- landi. Kemur út í hverri viku. Kostar að eins $1.00 um árið. Útsölumenn fá góð sölulaun. Skrifið til M. PÉTURSSONAR, P.O. Box 305, Winnipeg. “ SnnDanfari,” Fræðiblað með mjmdum. Kemur út í Reykjavík einu sinni á hverjum mánuði. Eina íslenzka ritið er stöð- ugt ílytur myndir af nafnkunnum fs- lendingum. Ritstjóri og eigandi Þotsteinn Gíslason. Blaðið kostar í Ameríku, fyrirfram borgað, einn dollar árgangurinn. Nýtt tímarit: “Bókasafn alþýðu. Svo heitir nýtt timarit, sem hr. Oddur Björnsson, í Kaupmannahöfn, er byrj- aður að gefa út. Er svo til ætlast að það komi út i flokkum og verða þrír ár- gangar í hverjum flokki, en hver árg. verður um 300 blaðsíður í venjulegu 8 blaða broti. Hver árgangur kostar, í kápu, 80 cent. Innbundinn í vandað og fallegt band $1.20 —$1.30. Að öllu forfallalausu fæ ég 1. bindj safnsins seint í þessum mánuði og hefir það inni að lialda öll Ljóðmæli Þorsteins Erlingssonar, með ágætri mynd af höfundinum. Má búast við að kvæði þessa alkunna snildarskálds seljist mjög ört, er þau koma, og er því vissast fyrir þá sem vilja eignast þau, að senda pantanir til mín nú þegar ; en ekki þarf að borga fyr en við móttöku bókarinnar. Þar sérstaklega hefir verið vandað mjög til útgáfu Ljóðmælanna, verður þetta bindi nokkuð dýrara en hin önnur bindi Bókasafnsins. Fyrir áskrifendur að “Bókasafni alþýðu” kosta þau : I mjög vönduðu og sterku bandi $1.00 í ágætu skrautbandi, gylt í sniðum $1.20 M. Pjetursson. P.O. Box 305, Aðal-útsölumaður. PYNY-PECTORAL Positively Cures COUGHS and COLDS in a surprisingly short tirae. It’s a sci- entific certainty, tried and true, soothing and licaling in its effects. W. C. McComber & Sow, Couchettc, Que., roport In a lcttor that Pyny-Pectoral cured Mr*. C. Garcea.il of chronic cold in chestand bronchial tuh*», and also cured W. G. McComber of a lonj-BtaiiUiu, cold. . J. II. IIutty, Chemist, 528 Yonge St., Toronto, writes: geueral coul'Ii and lun<r syrup Pyny- ' a most invaluablo prcj.aration. It the utmoat aatisfaction to all who riod it, many havlng ipoken to me of the lieiicfiri dcrived from ita use in their families. lt is miitable íor old or young, being pleasant to tlie t:i.«to. Its a.ile witli me lnis becn M’onderftil. «'i‘l I '••-•n always recommend it as a safo and icli.kblo cougli medicine. “ Larjc IBottlc, 2.í Cfs. K J- n. 1: / 5=8 “Aaageui Y Pectoral is a 1 rj lina glven tiie »j have tried it, n D.YVTS & LAWRENCE CO., Ltd. Sole Proprietors Montreal fcjv: BLUE STORE. MERKI : BLÁ STJARMA. 434 Main Str. VORU-UPPLAQ 25 til 30,000 dollara virdi ! ^cssar^örur^erð^^ðjc\jastT^i^n^áu Og til þess að það geti orðið þarf ein- einhversstaðar að taka æði djúpt í árinni. Vér megum til með að fá inn peninga og sé hægt að hafa þá saman með niðursettu vöruverði, þá stendur ekki á því. Samskonar vörur hafa aldrei fyr verið seldar í Winnipeg með því verði, sem vér nú bjóðum. Komið inn og látið reynsluna sannfæra yður. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ js fO cS eð C I c3 '52 ö C bí o cð a a ci B <0 e3 « c3 r—4 o "O o ♦ o ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ o Ö5 co 7? O' l_t5 V fT a p QX QX & a p <! O. o. 0 ■■ ta z p 2 83 I ð "1 I p i p < X co 2. ♦ pr 0/ ♦ 0 ♦ a p . % 1 X ♦♦♦♦♦♦«♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Nýárs-“ballið.” Það var ein hin skemtilegasta samkoma, sem lengi hefir verið haldin og viðbúnaður forstöðu- mannanna betri en nokkru sinni áður. Hljóðfæraslátturinn var góður, kveld- verðurinn ágætur, og að auki ókeypis alt það “lemonaðe,” sem menn vildu drekka. Um nóttina kl. 3 var borið fram “Ice-cream,” og mátti hver fá af því sem vildi. Þegar flest var á sam komunni voru þar um 200 manns og um 130—140 héldu það út til kl. 5 á nýjárs- dagsmorgun og fannst ekki langt. Þeir sem ekki dönsuðu, skemtu sér við spil o. s. frv. Forstöðumenn samkomunnar voru : O. A. Eggertsson, forseti; M. B, Halldórsson, ritari; Páll Olson, dans- stjóri; S. W. Melsted ; H. Sigurðsson ; K. Johnson; O. Björnson; J. Ander- son; Karl K. Albert. Sem vott um álit hérlendra manna á samkomúnni, má geta þess, að Nor’-Wester segir þessa dans-samkomu eina hina fallegustu á vetrinum. Áþekkur er dómur hinna blaðanna. Skófatnaðar-upplag. Yfir $6.000 virði af skófatnaði allskonar. Ruhher-skór, yfirskór, "Moccasins,” flókaskór, fyrir karla, konur og börn, — þetta fyrir veturinn. Að auki allar tegundir af leðurskófatnaði fyrir unga og gamla, úr fínasta geitaskinni eða grófustu uxahúðum, eftir vild hvers eins. Fatnaðar-deildin. Yfir $10.000 virði af karlmanna og drengjafatnaði. Loð- kápur og alullar yfirkápur. Alfatnaðir, nærfatnaðir, ótal tegundir. MiUiskyrtur, sokkar, vetlingar, húfur, og yfir höfuð alt sem að karlmannabúningi lýtur. Aldrei betra tækifæri að velja úr en einmitt nú. K yennbúnings-d eildin. Yfir $4.000 virði af allskonar kvennbúningi. Jakkar, prjónapeisur, morgunkjólar, húfur, hanzkar og herðaskýl- ur úr grávöru, með ýmsum litum og á öllu verðstigi. Sjöl og treflar, nærfatnaður, sokkar, vetlingar o. s. frv. Enginn vandi að gera öUum til geðs. Álnavöru-deildin. Yfir $6000 virði af álnavöru aUskonar úr alull, hálf-uU, bómull. Kjóladúkar stykkjóttir, einlitir og með öllum lit um, einbreiðir og tvíbreiðir. Flanelette frá 5 cents og upp yd. Flannel frá 12J cts. upp yard, æðardúnsklæði,— ekkert þyí líkt í barnakápur, á 50 cts. yard; ‘Beaver’-klæði J tvíbreitt á $1 og upp yard—afbragðs verð. Tími vinst ekki til að telja meira, en nog er til af bolum allskonar á 35 cents upp, sirz, ginghams, muslin, flos, fiöjel, silki, borðum og kantaböndum o. s. frv. Smávöru-deildin. Það vinst ekki tími til að telja alt sem er á boðstólum í þessari deild, en rétt sem sýnishorn má nefna hárbúnað kvenna, svo sem : hárnet, kamba og prjóna; brossiur, lokuprjóna, títuprjóna, bandprjóna; allskonar skraut- hnappar og almennir hnappar, perlu-trimmings, allavega litt, selt í yarðatali, og í ‘setts’, blanséttur og ’ allskonar bolspengur o. s. frv. Special Nœstu 30 daga böfum vér ákveðið að selja vorar tvíhneptu, húðþykku vetrar- alfatnaði úr ‘-friese,” -‘serg-e” og “tweed” með stór-afföllum, svo sem: Hjá öðrum $10, $12 og $16, — hjá oss $7, $9 og $11. Yfirkápur sem aðrir selja á $9, $11 og $16, seljum vér á $6 50, $8 og $12. Þetta verð stendur mánuðinn út, ef upplagið endist. Það er oss gleðiefni að tilkynna við- skiftavinum vorum öllum, að vér erum búnir að fá alt vort mikla upplag af haust og vetrarvörum. Umboðsmaður vor er rétt heimkominn og færir þær góðu fregnir, fyrir oss, að fatnaðinn fékk hann fyrir það sem linnn band. Er sú orsök til þess, að geypistórt heild- sölufélag í Montreal varð gjaldþrota og seldu skiftaráðendur vörurnar fyrir framboðna upphæð, þegar mikið var tekið í senn. Af þessu leiðir að í Blue Store geta menn nú fengið sönlu vörurnar fyrir HELMINGI LÆGRA verð en aðrir kaupmenn selja þær. Því til sönnunar eru hér talin örfá sýnishorn af vöru- verðinu. $1,75 buxur á ......$1.00; $2,50 buxur á ......$ 1,50; $3,50 buxur á.......$2,00; Drengjabuxur á.......0,25; $1,00 drengjabuxur á 0,50. Alklæðnaður karla $ 6,00 virði á $3,50. “ “ 7,00 “ 4,00 “ “ 8,50 “ 5,00 “ “ 13,00 “ 8 50 Alklæðnaður drengja $3,50 virði á $2,00; “ “ 6,50 “ 3.50 Alklæðnaður barna á 0,75. “Racoon” kápur karla á $20,00 og upp; yfirkápur karla úr Ástralíu bjarn- arskínni á $15,00 og upp; yfirkápur fóðr- ar með grávöru $20,00 og upp. Kvenn-jakkar úr “Persian” lamb- skinnum á $48,00; úr vönduðum “Coon” feldum á $38,50; úr Ástralíu bjarnar- feldum á $18,50; úr rússneskum “Coon” feldum á $20,00. Alt með nýjasta sniði. 434 - - MAIN STR. A. Chevrier. jortta Pacific fy. CANADIAN EXCURSIONS. $40 To Toronto, Montreal and all points west on the Grand Trunk System. Tic- kets on sale Dec. lst to 31st—good for three months with stopover privileges. Choice of Routes. Finest train service. G. JOJHNSOþi, Suð-vestur liorn Boss Ave. 02: Isabel Str. CALIFORNIA EXCURSIONS. Lowest one way and round trips to the Pacific Coast and all California Points. The old established tians-continental route. Through Pulman Tourist Cars to San Francisco for the convience of íirst and second class passengers. Quickest time. Finest equipment. Write for quotations or call upon H. Sn ÍHford, Getieral Agent. Cor. Mine&WaterSt, í Iíotel Manitoha, V íuuipeg, -Uiui.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.