Heimskringla - 18.02.1897, Blaðsíða 1
XI. AR.
NR. 8.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
FIMTUDAG-, 11. FEBR.
Þess var getið í síðasta blaði, að
Kríteyingar hefðu beðið Grikki um lið-
veizlu og beðið þá að taka eyna undir
sinn verndarvæng. Af siðustu fregn-
um frá Grikklandi að dserna ætla nú
Grikkir ekki að láta standa á sva'nnu.
George prinz fór af stað með flota mik-
iun til eyjarinnar í gær (10. Febrúar) í
þeim tilgangi að híndra tyrkneska her-
menn frá að komast á land. Samdæg-
urs var formaður stjórnarinnar spurð-
ur að því á þingi, hvað væri stefna
stjórnarinnar í þessu máli og livað eig-
inlega væri erindi konungssonar til
Krítar. Stjórnarformaðurinn neitaði
að segja hvert væri hið fyrirsetta verk
prinsins, en lét í ljósi að stjórnin væri
búin að ákveða stefnu og breytti henni
ekki, og bætti því við, að Grikkir og
Kríteyingar væru tengdir svo nánum
ættar- og söguböndum, og hefðu þjáðzt
svo mikið og barizt sameiginlega á liðn-
um öídum, að á Grikklandi væri enginn
sem ekki kæmist við af neyðarópi eyj-
arskeggja.
Hafíshella hefir legið fyrir austur-
strönd Nýfundnalands nú lengi, og í 3
vikur tiefir ísinn bánnað skipagöngu til
St. John. í gær breyttist vindstaða og
rak þá isinn burt.
í gær var það auglýst í efri deild
Bandaríkjaþingsins, að William Mc-
Kinley væri rétt kjörinn forseti Banda-
rikja. Hafl fengið 271 atkvæði, en
Williams Jenning Bryan 170. Varafor-
seta atkvæðin féllu þannig : Garret A.
Hobart fékk 271, Arthur Sewall 149 og
Thotnas E. Vatson 27 atkv.
Efri deild þjóðþings hefir ákveðið
að hætta við Nicaragua-skurðarmálið i
bráðiaa.
Hinn nafnfrægi ungverski málari,
M+chael Muukacsy, tr brjálaður orðinn
og sögð engin von nm bata.
FÖSTUDAG, 12. FEBR.
i>að liefir lengi vofað yfir. að kvikn-
aoi bai í suðaustur-Evrópu. Eins og
nú er komið þykir mörgum likast að
það verði loks Grikkir sem bera kyndil-
inn nð kestinum og kveikja i. Það er
sem sé búizt við að Tyrkjum og Grikkj-
um lendi saman við Krítey. Samtímis
er sagt að sóknar samband eigi
sér stað milli Grikkja og Bolgara, og
að Bolgurum sé ætlað að ráðastá Tyrki
í Macedoniu-héraðinu á meðan Grikkir
þreyta við þá við Krít. Stórveldunum
lízt ekki sem bezt á þessa óvæntu ferð
og tala um að eyða þurfi áhrifum
Grikkja í þessu efni. Þó virðast þau
áh'ta að fyrr eða síðar hljóti Grikkir að
eignast Krít.
18 konur í smáþorpi einu á Ung-
verjalandi hafa nýlega drepið eigin-
menn sina með eitri. Astæða þeirra
var sú ein, að þær voru leiðar orðnar á
hjónabandinu.
Eidur kom upp í einni stjórnarskrif
stofubyggingunni í Ottawa í gærkveldi
og brann allur efri hluti hennar og
þekjan. Skerif-stofurnar í neðri hluta
byggingarinnar eru lítið skemdar af
eldsvöldum, en vatnsflóðið niður um
húsið olli þar miklu tjóni. Nokkur
áriðands skjöl brunnu. Eignatjónið
nemur $1,000,000.
Tillaga um að veita konum kosn-
ingarrétt var í gær feld á Montana-rík-
isþingi með 41 gegj||'27 atkv.
Það er sagt að lýðvaldsstjórnin svo
kallaða á Cuba hafi gefið út í laumi og
selt í laumi í Bandaríkjum 15 miljónir
dollarsvirði af gullskuldabréfum hins
væntanlega lýðveldis á eyjunni. Eru
skuldabréf þessi innleysanleg 10 árum
eftir að Spánverjar hafa yfirgefið eyna.
Verð þessara skuldabréfa er 50 til 51
cts. hvert dollarsvirði.
VKITT
HÆSTU VT2RÐLAUN A HKIMSSÝNINÖUNN
DR
KáNNfi
P0WWR
1Ð BEZT TILBÚNA
óblönduð vínberja Cream of Tartar
powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni,
40 ára reynslu.
WINNIPEG, MAN., 18. FEBRÚAR. 1897.
Væntanlegt þykir að Bandaríkja-
stjórn skipi tvo eða 3 menn í nefnd til
að ræða um viðskifti og tollmál við
samskonar nefnd Canadastjórnar. Hafa
þeir Sir Richard Cartwright, og Davis
kotnið þessu til leiðar, að sagt, er. Sam
timis keppa trjáviðarsalar í Bandaríkj-
um við að fá 2 doll. toU lagðan á allan
aðfiuttan trjávið — $2 á hver þúsund
fet. Hafa þeir skotið saman $120,000 til
að hjálpa því máli áfram á þjóðþingi.
LAUGARDAG, 13. FEBR.
Carter n. Harrison, sonur Carters
H. Harrisons borgarstjóra í Chicago,
sem myrtur var haustið 1893, liefir nú
nú verið kjörinn til að sækja um borg-
arstjóraembættið íJChicagoundir merkj-
um silfurmanna.
Jarðhristingur hefir átt sér stað í
Mexico af og til nú í nærri hálfan máu-
uð. Orsökin er nú fundin, þar sem
fjall eitt er tekið að gjósa ösku og eldi,
fjall sem ekki var kunnugt fyrr að væri
eldfjall.
Weyler herstjóri á Cuba hefir gefið
Spánarstjórn 400 þúsundir dollars af
sínu eigin fó, til að halda uppi sókninni
á Cuba þeim mun lengur.
Diaz forseti i Mexico staðfesti i gær
samning stjórnar sinnar víð Japanstjóru
um að leyfa 5000 Japanítum að flytja
til Mexico og taka sér bólfestu i á-
kveðnu héraði. Tilgangur .Tapanita er
að stunda terækt í nýbygðinni.
Fyrrverandi drottning á Havai-ey-
unum liefir setið í Washington nú í
mánuð og er þar enn. Er sast að hún
sé að leita eftir hjálp Bandaríkjastjórn-
ar til að ná htildi á hásætinu á Havai-
eyjum aftur.
Stjórnlausar æsingar og ofsa gleði í
Aþena yfir lierför George prinz til Krít-
ar og framhaldaridi herbúningi á Grikk
landi. Það er álitið að Grikkir verði
látnir afskíftalausir á eynni og takist
þeim að ná henni af Tyrkjum muni
stórveldin ekkert segja. Það er undir
öllum kringumstæðura líklegt að Grikk
ir hefðu öflugan talsmann á stórvelda-
fundi þar sem er Nikulás Rússakeisari.
Fyrst or það,*Öð jivussakeisari ög Géorg
prinz eru syskinasynir, og svo á Rússa
lteisari þessum frænda sinum líf sitt að
launa, frá því forðum er Nikulási prinz
var veitt banatilræði í Japan á ferð
hans umhverfis hnöttinn.
Indlandshjálparsjóðurinn í Canada
er orðinn rúm $50,u00, og í gær sendi
Aberdeen landstjóri 50.000 dollars til
aðalsamskotanefndarinnar í Calcutta á
Indlandi.
MÁNUDAG, 15. FEBR.
Kristnir menn á Krít tóku að herja
á höfuðborgina á eynni — Candia — i
gærmorgun (sunnudag). Umhverfis
borgina eru hæðir og á þær röðuðu þeir
fylkingum sínum, en virki borgarinnar
vörðu Tyrkir. Hvernig leikslok urðu
er óvíst enn, en sagt að mannfall tals-
vert hafi átt sér stað. Samdægurs
sendu Grikkir af stað til Kritar þrjár
herdeildir á 3 gufuskipura. Þeir sýna
því greinilegaað þeim er alvara.—Hvað
stórveldin gera er óvíst enn. Þýzka-
landskeisari hafði fund með ráðherrum
stórveldanna á laugardaginn, en hvað
þar gerðist er leyndardómur einn. —
Blöðin sum í Englandi segja það óaf-
máanlegan blett á Bretastjórn, ef hún
láti tilleiðast að ganga í félag með öðr-
um til að kúga Grikki.
Ofsaveður með fannburði í Suður-
Dakota, Minnesota og Wisconsin, fyrir
og um síðustu helgi. Umferð á járn-
brautum víða bönnuð vegna snjóþyngsla
og stórfanna.
Salisbury gamli á Englandi verður
gerður að hortoga í vor, ef hann vill
taka því boði, en sem þykir óvíst.
Aðfaranótt hins 13. þ. m. ætluðu
sjóflotastjórar Bandaríkja að sýna, að
með nýjasta útbúningi mætti svo verja
eina eða aðra höfn, að skip fjandmanna
komist ekki innfyrir skipagarðinn. Svo
var öðrum sjóflotastjórum falið á hend-
ur að læðast inn á höfnina.og það gerðu
þeir vandræðalaust. Þetta var á höfn-
inni í Charleston i Suður-Carolinariki.
Efnaöur hjarðmaður, af hollenzk-
um ættum, í Alberta vestra, fyrirfór
sér í vikunni sem leið. Um orsök veit
enginn.
ÞRIDJUDAG, l(i. FEBR.
Stórveldin hafa kunngert Grikkja-
stjórn, að þau séu aum yfir þessu ráð-
lagi hennar, að senda skip og menn til
hjálpar Kríteyingum, og bæta því við,
að þau neiti að bera nokkra ábyrgð af
afleiðingunum. í millitíðinni gengur
Grikkjum vel, þó ekki hafi enn kornið
til orustu. Allir krisnir menn á Ivrít
standa vopnaðir og vígbúnir og sagt að
Tyrkir haldi þar bara þremur bæjum.
Eyjarskeggjum og Grikkjum er því tal
inn vis sigurinn. En svo eru nú væn-
legar horfur á, að Tyrkir vaði með her
sinn úr Macedoniu inn á Grikkland, ef
Grikkir ekki hverfa lieim frá eynni.
Hafa Tyrkir gefið það í skyn og eru nú
að auka herafla sinn í Macedoniu svo
nemur 100.000 mönnum. — Blaöiö
Chronicle í London bað Gladstone í gær
að senda Grikkjum kveðju sína, og er
svar karls (frá Cannes á Frakklandi)
þannig : “Þori ekki að hvetja Grikki
þegar ég get ekki hjálpað þeim, en stór-
lega fagna ég ef þeir sigra. Vona að
stórveldir. muni að þau þurfa að endur-
leysa mannorð sitt.
Svo langt er nú komið með undir-
búning undir aldarerfissýninguna í Pa-
ris, að íastákveðið er að hún byrji 16.
Apríl 1900 og endi 5. Nóvember um
haustið. Sýningarflöturinn -verður i
miðbiki borgarinnar beggjamegin við
Seinefijótið.
Fregn frá Cuba segir að orusta hafi
átt sér stað nú rétt nýlega, og að Cuba-
menn liafi beðið ósigur. Gomez sjálfnr
var i orustunni og særðist, — var skot-
inn í annan fótinn og hestur hans drep-
inn, Hann fékk annan hest og hélt á-
fram að berjast þó hann væri sár.
Skeyti frá Paris segir að stórveldin
hafi ákveðið að banna Grikkjum að taka
þátt í orustu á [Krít. Samtímis kemur
sú fregn að Rússar vilji ekld leyfa
Grikkjum að eignast eyna.
MIÐVIKUDAG, 17. FEBR.
Krítey i höndum Orilckja. Eftir síð-
ustu fregnum úr suðaustur-Eyrópu að
dæma er nú Krítey orðin svo gott sem
eign Grikkja. Sjóliðsmenn Breta,
Frakka, Rússa og ítala, fóru á land í
þremur bæjum á eyjunni á mánudag-
inn og með þeiin flokkur af austurrisk-
um hermönnum. Landganga þeirra
þýddi það, að stórveldin réðu eynni í
bráð, en ekki Tyrkir, er máttu vera að-
gerðalausir, enda blöktu fánar stórveld-
anna á stöngum hvervetna í Candia í
gær. Samtímis og stórveldín gerðu
gong" her :.ienn Grikgja á land í
purpi skamt frá Candia. drógu upp fána
Grikkja, birtu auglýsingar þess efnis,
að þeir ^ækju eyna i nafni og umboði
Grikkjakonungs. Umboðsmenn stór-
veldanna vildu reka Grikki burt, en
gátu ekki, því í fyrirskipun þeirra var
ákveðiö að þeim bæri að verja Grikkj-
um landgöngu í þremur nafngreindum
bæjum að eins og— Grikkir komu
hvergi rtærri þeim bæjum. — Það er
búizt við að stjórn Tyrkja á Krít sé nú
úti um allan aldur, og ætlað að Grikkj-
um muni verða leyft að halda henni-
Það er löngun eyjarmanna og Grikkja
og Grikkir nú búnir að taka eyna án
blóðsúthellinga, sem auðvitað má
þakka því, að séórveldin voru rétt áðr
búin að banna Tyrkjum að hreyfa sig.
Annaðhvort er að Grikkir hafa liér gert
stórveldunum grikk, eða stórveldin
viljandi hafa hjálpað Grikkjum til að
taka eina án striðs og styrjaldar.
Victoria drottning á að vera dóm-
arií landamerkjaþrætu Chili-og Argen-
tinamanna.
Til kaupenda
Heimskringlu.
Þar eð 10. árgangur blaðsins er nú
allur kominn út, er vonandi að kaupend-
ur, sem enn eiga ógoldið fyrir hann,sýni
nú lit á að boraa sem fyrst. Útistand-
andi skuldir blaðsins eru hátt á þriðja
þúsund dollars og má slíkt kalla vanskil
í meira lagi. og vanskil sem koma sér
mjög illa fyrir fátæk blöð.
Það eru nú tilmæli vor, að þeir sem
eiga óroldið fyrir síðasta árgang eða
fleiri árganga, sýni góðan hug sinn til
blaðsins, ekki einungis með því að taka
það, lieldur með því að borga það líka.
Til þess að geðjast kaupendum blaðs-
ins eftir föngum, höfum vér afráðið að
gera þeim eftirfylgjandi kosti: Hver
kaupandi sem sendir oss $2,00, livort
heldur fyrir næstliðinn eða eldri árganga
getur fengið hvort sem þeir vilja söguna
‘‘Kotuiigurinn’’ oða “Mikael Strogoff,”
meðan þær endast (af Strogoff eru til að
eins um 40 eintök), báðar í kápu.
Nýir kaupendur sem borga fyrirfram,
fá Heimskringlu pg Oldina ásamt þeim
f jórum árgöngum sem þegar eru komnir
út af Oldinni og hvort sem menn kjósa
sér söguna Strogoff eða Kotunginn—alt
fyrir $1.50, — Öldin sérstök (4 árgangar)
fæst fyrir $1,25.
Engin blöð send til íslands nema
sorgað sé fyrir fram.
Heimskringla P.P.Co.
Engin koma Islands-blöðin.
[Kveðið um jólin, þegar von var á
Islandspóstinum].
Engin koma Islands bréfin
og því síður fréttastefin ;
allir hættir eru að skrifa
ættingjar á feðragrund.
Ameríka er þeim voði,
ásteitingar hættu boði.
Sælla finst þeim sitja heima
í sæluríkum æskulund.
Heima trúa’ á mátt og megin,
megni alt af sínum eigin
kröftum, en það kennir reynsla
kínversk skoðun sú er tál.
Ef þeir litu yfir um hingað.
óðara þeír feugju þvingaö
venjur þær sem valdið hafa
visnun bæði á lífi og sál.
J. H. Lindal.
Horfin sæla.
Ég minnist þess frá mærri æsku stund,
Þá móðurhöndin strauk mér tár af
hvörmum,
Þá varð svo blíð og Ijúf og hress mín
lund,
—Mér lífið fanst sem mey í vinar örm-
um.
Þá þekti ég eigi heimsins hulda tál.
Né hættu þá, sem ferðamanni’ er búin,
Því margt kann blekkja harnsins unga
sál,
Sem bugast eins og sóley vindi knúin.
En barudómsárin áfram líða skjótt,
Meö öllum sínura glcði’ og sorgar
tímum;
Á miðskeið aldurs áfram barst ég fljótt,
En óvfst er hvort ég og elli glímum.
Nú dreymir mig svo oft um horfna ást
Og yndæl blóm í Júní-skrauti sínu.
Ég held það væri, já, væri jafnvel skást
Að vera genginn yfir heljailínu.
Þá er enduð allskyns sorg og þraut
Og aldrei framarhjarta í brjósti stynur.
En komast heill af þeirri þokubraut,
v- - þt.ö or kúnst sem ég skil ekki,
vinur.
En eitt er víst og það veizt þú að er,
Að þjökuð bein fá hvíld í grafarranni;
En andinn hvort í aðra heima fer,
Er enn þá bundin gáta fyrir manni.
A. J. Skagfeld.
“ Sá er drengur sem í raun
reynist.”
Ég finn mér bæði ljúft og skylt að
minnast opinberlega þess drenglyndis
og velvildar, sem þeir herrar, Halldór
Steinmann og Pétur Tærgeson liafa ný-
lega sýnt mér.
Eins og mörgum er kunnugt, hefi
ég verið veikur sfðan um miðjan Ágúst
síðastl. sumar og hefi ekki getað tekið
hendi til neinnar vinnu. — Þessir tveir
ofangreindu menn stofnuðu svo til sam-
komu fyrir skömmu (grímudans), og
færðn mér að gjöf arð af þeirri sam-
komu, að upphæð $19,00.
Ég þakka þessum heiðursdrengjum
og öllum þeim, sem að samkomunni
studdu, innilega fyrir þessa rausnar-
gjöf og óska þess að góðir drengir verði
til þess að sýna þeim samskonar dreng-
lyndi, ef þeir skyldi einhverntíma með
þurfa.
Winnipeg, 15. Febrúar, 1897.
Sakarías Björnsson.
Þ A.K KLÆTISÁVARP.
Hér með finn ég mér bæði [ljúft og
skylt að votta mitt innilegasta hjartans
þakklæti til allra minna kæru landa,
bæði i Scofield og Spanish Fork, fyrir
alla þeirra hjálp og aðstoö, sem þeir
hafa auðsýnt mér í mínum cinstæðings-
skap og örðugu kringumstæðum, síðan
guði þóknaðist að leggja mér þann
þunga kross á herðar, að verða að sjá á
bak mínum ástkæra eiginmanni Jó-
hannesi Jónssyni, að Castle Gate, Utah.
sem lézt 15. Febrúar 1896. Ég stóð þá
eftir að kalla mátti öreigi, með 3 ung
börn, öll í ómegð. *
Því miður hefi ég ekki leyfi til að
nafngreina neina af þeim, er af veglyndi
sínu hafa rétt mér hjálparhönd og
styrkt mig í stríði mfnu, bæði með fó-
gjöfum og annari hjálp og aðstoð, en
mér verðnr ekki bannað að biðja almátt
ugan guð nf alhuga að launa öllum vel-
gerðamönnum mínum þeirra hjálp og
veglyndi við mig og mína á þann hátt,
sem hann sér þeim fyrir beztu, jafn-
framt og ég opinberlega votta þeim öll-
um mitt og minna barna innilegthiart-
ans þakklæti.
Spanish Fork, 7. Febrúar 1897.
María F. Jónsson.
Frá löndum.
Ur bréfi ýr Nýja-íslandi, dags. 26. Jan.
“Á Nýjársnótt 1897, hélt kvennfé-
lag Mikleyjar mikla og skemtilega sam-
komu, og voru þar um 150 manns og þó
að veðrið væri slæmt á gamlaársdag,
komn margir úr N.-ísl. á þessa sam-
komu, og þar á meðal Sigurðson bræð-
ur með konum sinum, Pétur Bjarnason
og fleiri málsmetandi menn og konur.
Samkoman var haldin í skólahúsi Mikl-
eyjar sem bygt var i haust, stórt og
vandað hús. Um dagsetur voru allir
komnir að félagshúsinu. Inngangseyr-
ir var 20 cents fyrir fullorðna og 10 cts.
fyrir börn. Kvennfélagið tók mjög vel
á móti gestum ; er forstöðukona þess
Oddfríður Þórðardóttir, kona Einars
Þorkelssonar á Öldulandi ; eiga þau
prýðisfallegt hús og eru bæði góð og
gáfuð. Fóhirðir félagsins er heiðurs-
konan Kristjana Sigurðardóttir, systir
þeirra Sigurðson biæðra, en hennar
maður er Bergþór Þórðarson, og er
bygging og risna hjá þeim hjónum (á
Söndum) lík og hjá hinum. Átta aðrar
merkiskonur Mikleyjar eru í félaginu.
Herra Bergþór setti fundinn með vel-
orðaðri ræðu, eftir að forstöðukonurnar
höfðu beðið alla velkomna og veitt kafti
og brauð sem hver vildi. Að því búnu
var hafinn hljóðfærasláttur og Heira til
skemtunar. Sjónarleikurinn Nýjársnótt
eftir Indriða Einarsson, var leikinn og
tókst furðanlega vel, að dómi þeirra er
vithöfðu á. Ræður héldu G. Gíslason,
Pétur Bjarnason, Stefán Sigurðsson,
Kolbeinn Þórðarson og fleiri og sagðist
þeim vel. Kökuskurður fór fram óvið-
komandi kvennfélaginu og mæltu þeir
fyrir honum Bergþór Þórðarson og Stef-
án Sigurðssou og sagðist læim vel. Það
var leikið og skemt sér fram á albjartan
nýársdagsmorgun og þó veður væri
slæmt, fóru allir glaðir og ánægðir heim
til sin og höfðu fengið allar veitingar
gefins.
Ur bréfi frá Keewatin, dags 14. Febr.
Héðan er fáttað frétta, síðan skrif-
að var héðan síðast, en til skýringar við
þá greii; vil ég geta þess að lestrar fé-
lagið heitir “Tilraunin'’. Heldur það
fundi éinu sinni » víku, og er þá ásamt
skemtilegum upplestrum, haldnar kapp-
ræður, og takast þær eftir vonum.
Einn maður hefir farið búrt úr Lestrar
félaginu. Hann vildi ekki bæta á sig
meira af bókviti. hefur vísthaldiðað þá
nivindi flóaútúi . Einbættisiiienn í lestr-
arfélaginu eru kosnir til þriggja mán*
aða. Veðrið hefir verið rnilt í vetur,
frosta lítið enfremur snjóasamt. Allan
Nýársnag var úða rigning. Hér er
fjöldi manns þjáðir af gullsótt, en mis-
jafnt gengúr mönnum að lækna hana ;
helsta meðalið er að grafa í hólana, og
reynist það sumum gott og gagnlegt, en
sumum þvert á raóti. Gullnámurnar
og gullnámunefnurnar umkringja menn
hér á allar liliðar. I Rat Portage er
hyer kofi fullur af fólki. Þar hækka
bæjarlóðir óðum í verði; hér eru þ'ær
farnar til þess líka. Húsarenta stígur
upp og alt er á fljúgandi ferð, nema at-
vinna, hún er hér i vetur sára lítil.
HNAUSA, MAN.,3. FEBR. 1897.
(Til Hkr. frá fréttaritara hennar).
Veðurdtta liefir verið nokkuð ein
kennileg siðastl. 3 mánuði : í Nóv. voru
sífeldar hörkur, í Desember eintómar
blíður, og Janúar hefir verið léttnefnd-
ur illviðra-mánuður, í honum skiftust
á frosthörkur og fannvoður. Snjór er
nú svo mikill á jörðu að margir muna
ekki eftir öðrum eins, er þó vana
legt að talsvort bætist við í jFebrúar og
Marz. Full ástæða virðist þvi til að
óttast fremur venju flóð í fljótum og
ám með vorinu, þegar fer að leysa.
Iíeihufar hefir verið með lakasta
móti um langan tíma, og er ekki gott
enn. Það hefir verið illkynjað kvef,
snertur af lungnabólgu, hálsbólp-a og
mislingar, sem hefir verið og er að
stinga sér niður.
Mannalát. 22(?) f. m. dó Antoníus
Jónsson bóndi í Geysirbygð, ættaður af
austurlandi; var lengi í Seyðisfirði, nýt-
ur maður og hvers manns hugljúfi.
Hann lætur eftir sig ekkju og 3 börn í
ómegð, en 2 dætur lians eru uppkomu-
ar.
/s- og fry»tihús eru Sigurðson bræð-
ur að láta bygsgja langt norður með
Winnipegvatni, til afnota við sumar-
veiði.
Fiskitciðar hafa verið með mesta
móti norður á vatninu í vetur og hefir
það verið mikil auðsuppspretta fyrir þá
sem þá atvinnu hafa stundað, hefði þó
verið meiri ef ekki hefði ’spilzt markað-
urinn úr því sem við var búist í haust,
þegar samningar voru gerðir.
Oull og aðrir málmar eru fundnir
anstanvert við vamið (um dagleið héð-
an) og streymir nú þangað um hávetnr
í hörkuveðrum og illri færð fjöldi
manna til að skoða staðinn og steinana;
nokkrir hafa komið aftur og láta.vel af
útlitiuu. Ég hefi séð stein þaðan með
miklum glansa og gullfiögum, en sjáan-
lega voru þar fleiri málmtegundir sam-
an við. Með vorinu er viðbúið að fjoldi
manna flykkist þangað,að þessum gull-
námum, og fyrst þær eru svona nálægt
nýlendunni (Girali) ætti það ekki að
vera neinn bagi fyrir hana, að minnsta
kosti. Máské þar fengist atvinna og
nýir viðskiftamenn.
O. G, A.
"EKKI ER ALT SEM SÝNIST”.
í 49. nr.lO.árg Hkr. (10. Des.f. á.) sendi
minn garnii, góði kunningi, G. Thor-
steinson, ritari Gimlisveitar, mér
kveðju guðs og sína í nokkuð langri rit-
gerð : “Orsök er til nlls”. (G. þekkir
frepnritann á Hnausum að fornu og
nýju, og hver ætti að þekkja matsmann
sveitarinnar ef ekki ritarinn). Nú hefir
sveitarráðið séð um að hann ritaði mér
aftur, en dálítið öðruvísi, og set ég það
bréf hér orðrétt. Það er opinbert mál:
“Gimli, 11. Jan. 1897.
O. G. Akraness Esq.
Heiðraði herra! Á seinasta sveit-
arráðsfundi 5. þ. m. varst þú skipaður
virðingarmaður Gimlisveitar fyrirþetta
ár, 1897. Um tilhögun á starfi þinu og
hvað yfirgripsmikið það skuli yera,
verður bezt fyrir þig að snúa þér ýtil)
oddvitans Mr. J. Sigurðssonar. ' Ég
skal geta þess að ákveðið var að við-
taka gömlu matskráua, án þess að hafa
nýtt mat um alla sveitina.
Þinn með virðingu
G. Thorsteinsson.
Clerk Mpty Gimli”.
Ég vona 'að menn sjái af þessari á-
kvörðun sveitarráðsins, að því hefir
ekki fundizt ástæöa að taka til greina
vanþekking eða fljótfærni þá, sem rit-
arinn ber mér.
Ég skal geta þess til skýringar, að
þessi ‘gamla matsrá’, sem hann nefnir,
var af m é r lagfærö í fyrra, og að hún
nú er “viðtekin” fyrir Jietta ár, kemur
að öllum líkindum af því, að hún hefir
þótt óvanalega fullkomin. því það er
dæmalaúst i stjórnarsögu Gimlisveitar,
að |>að só óvíst að nokkrar breytingar
verði á matskránni gerðar á árinu.
Sem sagt er grein G. nokkuð löng,
en mér virðist sem mér sé ekki ætluð
hún öll; hefði mér ekki virðzt svo, þá
hefði óg sýnt lit á á að svarn henni ná-
kvtQsaai.' • —
Hnausa, 4. Febrúar 1897.
O. G. Akraness,
matsmaður Gimlisveitar 1896 og 1897.
Kvala-þrenuing.
Margvíslegar kvalir árura
saraan.
Maður 74 ára verður ungur
aftur.
Paines Celery Compound
veitir honum nytt blóð,
fjör og heilsu.
HIÐ ÓBRIGÐULA LYF EYÐIR
ALLRI MÆÐU HANS OG HINUM
ÞUNGBÆRA SJÚKDÓMI .
Friðdómari einn sannar og stað
festir lækning hans.
Mr. Thomas R. Baxter ffá Kars-
dale, N. S., 74, ára að aldri. rétt kom-
inn á grafarbakkann fyrir óttalega sam
blöndun sjúkdóma. Hann hafði heima
komu i 40 ár, blæðandi gylliniæð í 15 ár
og mjaðmagigt ineira en ár, og þó batn
aði honum þetta alt saman, og var það
Paines Celery Compound, sem leysti
hann frá kvölum og dauða, er öll
önnur lyf reyndust ónýt.
Hvernig getur uú nokkur heilbrygð
ur maður, karl eða kona, efast um lækn
isafl þessa Hfsgefandi lyfs, er hann hefir
lesið vottorð þetta ?
Herra Baxter segir svo frá :
‘Mig langar mjög til að gefa yður
til kynna hiua dásamlegu lækning mína
af yðar dýrölega lyfi, Paines Celery
Compound.
Éf? þjáðist af þeim sjúkdómi, sem
gerði lifið þungt og gleðisnautt. Ég
hafði lwimakorau í 40 ár, opna gyllini-
æð í 15 ár og mjaðmagigt í meira en
ár.
Ég reyndi lækna og allskonar lyf,
en ekkert linaði, og gat ég hvorki etið
né sofið. Var inór þá ráðlagt að reyna
Paines Celery Compound, en, ó. sú
b eyting! Fyrsta flaskan kom mór til
að eta og sofa, og þegar ég var búin
með 7 flöskur var ég orðinn alt annar
maður. Eg var allæknaður og sem
ungur aftur. Alt sem ég hefi skrifað
get ég sanna látið kanpmenn, lækna,
yfirvöld og guðspj illabræður þrjá, og
fjölda annara manna. Ég mun ætið
vera yður þakklátur og yðar dýrðlega
lyfl Palnes Celery Compound.
Hér með votta ég að Paines Celery
Compound hefir gert heilan mann úr
Thomas R. Baxter.
James H. Thorne
friðdómari.