Heimskringla - 11.03.1897, Blaðsíða 2
HEÍM6KRINGT/A 11 MAlíZ 1897.
Heimskringia
PUBLISHED BY
The Heimskringla Prtg. 4 Publ. Co.
•• ••
Verd blaðsins í Canda og Bandar.:
$2 una árið [fyrirfram borgað]
Sent til Islands [fyrirfram borgað
af kaupendum bl. bér] $ 1.
• •••
Uppsögn ógild að lögum nema
kaupandi sé skuldlaus við blaðið.
• •••
Peningar sendist í P. O. Money
Order, Registered Letter eða Ex-
press Money Order. Bankaávis-
anir á aðra banka en í Winnipeg
að eins teknar með afföllum.
• • ••
EGGERTJOHANNSSON
EDITOK.
EINAR OLAFSSON
BUSINESS MANAGER.
• • ••
Office :
Corner Ross Ave & Nena Str.
P O. Iíox »05.
Skólamálið.
Það virðist æði margt benda á að
fram komi spádómarnir á síðastl. vori
og sumri, að í stað þess að vera útkljáð,
sé nú skólamálsþrætan fyrst fyrir al-
vöru að byrja. Laurier auglýsti auð-
vitað síðastl. vor, að fengi hann hald á
stjórntaumunum skyldi hann útkljá
þrætuna innan sex mánaða og útkljá
hana þannig, að öllum málspörtum lík-
aði vel. Og svo auglýsti hann á ákveðn
um degi á'síðastl. hausti, að nú væri
hann búinn að efna loforð sitt í þessu
máli. Skólamálið væri útkljáð. Satt
að segja voru þeir miklu fleiri, sem voru
efasamir eins og Thomas, er þeir heyrðu
þe3sar fagnaðarfréttir. Reynslan virð-
ist líka sýna, að þeir hafi haft fylstu á-
tæðu til að efast um sannleiksgildi
fréttarinnar, því eins og nú er komið
er ekki að sjá að Laurier hafi verið
sannsögulli þá, en hann er endranær
þegar hann er að tala um stjórnmál.
Það kom fram íurðanlega fljótt,
að hinir kaþólsku klerkar voru langt
frá því að vera ánægðir með úrslit
málsins. Vitaskuid verða þeir al-
drei ánægðir nema þeir fái sína sér-
stöku skóla, svo óánægja þeirra og
þar af leiðandi uppþot gegn Laurier
væri ekki tiltökumál undir almenn-
iim kringumstæðum. En í þetta
skifti hafði klerkalýðurinn tvöfalda
ástæðu til að ærast. Það var haft
orð á því í vor er leið, að Laurier-
sinnar í Quebecfylki væru rífir á Iof-
orðum við trúbræður sína og það er
uppvíst orðið nú, að það álit var á
góðum rökum bygt. Það er upp-
komið, að margir af leiðandi mönn-
um Lauriers, sem um þingmensku
sóttu, gáfu klerkum og bvskupum
sínurn ekki að eins munnleg, heldur
skrifleg loforð um að útvega kaþólík-
um í Manitoba fyllri réttarbætur, en
þær, sem ákveðnar voru í umbóta-
lagafrumvarpinu sæla, og ef Laurier
neitaði að efna loforð sín í því efni,
þá skyldu þeir annað tveggja segja
af sér þingmennsku, eða snúast á
móti Laurier á þingi. Eitt þetta bréf
hefir verið birt, það frá Hon. C.
Fitzpatrick meðráðamanni Lauriers
í ráðaneytinu, og fylgir sú fregn, að
samskonar bréf hafi klerkar og bysk-
upar í höndum frá öllum Laurier,-
sinnum í Quebec. Þegar svo kosn-
ingarnar eru afstaðnar, rjúfa þessir
menn heit sín öll og samninga í þessu
efni. Þeir höfðu með loforðum sín-
um og rituðum samningi unnið það
VEITT
H/ESTU VERÐLAUN A HEIMSSÝNINUUNN
DH
BAKINO
POWMR
IÐ BEZT TILBÚNA
óblönduð. vínberja Cream* of Tartar
powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára >-eynslu.
sem þeir ætluðu sér,—umhverft fylk-
inu og með því móti náð haldi á
stjómtaumunum. Mitt í sókninni, í
mesta hitanum, hefir þeim ef til vill
komið þetta svo fyrir, að hér væri
bara um meinlausa kosningdbrellu
að ræða, en jafnvel meinhægustu
kjósendur hvar sem er, mundu álíta
slíka aðferð svívirðilegustu svik.
Þegar á þetta er litið, þá er sizt að
undra þó jafn ofsafullir, ráðríkir og
óbilgjarnir menn eins og kaþólskir
klerkar og byskupar eru, tækju til ó-
spiltra málanna með að láta koma
niður maklega hefnd á svikurunum.
Og það er líka sannast að þeir hafa
ekki látið sitt eftir liggja um undan-
farinn tíma.
Hvað það er sem stendur til, er
nokkuð óvíst, en auðsætt að eitthvað
á að gera, þegar athugað er kapp-
hlaup beggja málsparta á víxl til
Rómaborgar til páfans. Klerkarnir
fara þangað til að klaga Laurier, og
sendimenn Lauriers fara þa.ngað til
að klaga klerkana. Það veit enginn
hver málsparturinn muni mega betur
hver muni að lyktum 'vinna meira
svig áhinum “heilaga föður,” en það
sýnist ekki ólíkleg tilgáta, að það
verði klerkarnir. A meðan á þessu
stendur virðist svo, að Laurier sé orð-
inn hræddur um sig heima í héraði,
hreeddur um að fylgismenn sínir í
Quebec gugni fyrir klerkunum og
annað tveggja snúist á móti sér, eða
segi af sér. Einn þeirra, mikilhæfur
maður. Chas. R. Devlin, að nafnii
hefir nú þegar sagt af sér þingmensk-
unni af því hann getur ekki lengur
mælt með skólamálssamningi Lauri-
ers,—af því, líklega, að hann eins og
fleiri hefir verið nógu rífur á loforð-
unum um kosningaleytið síðastl. vor.
En ónóg og einskisvirði eins og
kaþólsku klerkarnir álíta þau sér-
stöku réttindi sem Greenway býður,
eru þeir ekki svo fáir meðal próte-
stanta hér, sem álíta hin fyrirhuguðu
lög um það efni illþolándi. Hvort
sem það er rétt eða rangt, þá kemur
það mörgum svo fyrir, að þessi lög
séu lítið ef nokkuð betri en lög er
fyrirskipuðu algerlega sérskylda
skóla. Ef til vill eru það einkum
tvö atriði sem þessir menn fetta fing-
ur út í og sem þeir vilja ekki líða,
það, að sé ákveðinn fjöldi kaþólskra
barna í einum skóla, sé skólastjórnin
skyld til að hafa kaþólskan kennara,
og að sé ákveðinn fjöldi barna á ein-
um skóla, sem hefir eitthvert mál
annað en ensku sem móðurmál, skuli
það tungumál kent samhliða ensk-
unni. Það er augsýnilegt, að í því
atriðinu sem hljóðar um kennara, er
kaþólíkum gefið meira en jafnrétti.
Það eru engin ákvæði um að séu svo
eða svo mörg börn lúþersk á einum
skólá, skuli skólastjórnin skyld til að
hafa lúþerskan kennara. í þessu
efni er kaþólíkum gefin einkaréttindi
sem öðrum trúflokkum er synjað um
og í því efni að minsta kosti gengur
Dá Greenwaystjórnin of lai.gt. Og
hún sýnist ganga miklu lengra held-
ur en í raun réttri að máske er, af
dvj, að hún stcfndi í þveröfuga átt
og spanaði alla til að fylgja sér, þang-
að til hún liafði trygt sér völdin um
næstu 4 ár. Þegar borin eru saman
ummæli stjórnarinnar fyrir og um
árslok 1895 og framkoma hennar nú,
pá sýnist ástæða til að halda þvífram
sem allmargir gera, að Greenway-
stjórninni sé og hafi æfinlega verið
hjartanlega sama hvort tvískifitir skól-
arvoru í fylkinu eða ekki, en hafi
tekið þessa stefnu að eins til að festa
sig I sætinu.
Þegar fylkisþingið kom saman
flýtti dómsmálastjóri Cameron sér að
bera fram frumvarp til laga, sam-
hljóða samninginum um úrlausn
skólamálsins við Laurier. Og sam-
tímis gaf hann til kynna, að ekki
væri til neins að koma fram með
breytingaruppástungur, — því yrði.
ekki breytt, en yrði að ganga í gegn
eins og það kom frá hans hendi og
ætti það að gerast án nokkurs.und-
andráttar. Hverju sem það er að
kenna, hefir dómsmálastjórinn síðan
séð sig um hönd, frestað umræðum
dag frá degi og loks látið frumvarpið
algerlega þoka fyrir öðrum máluin.
Sumir geta til að stjórnin sé farin að
hræðast Orangemenn, sem hún áður
spanaði upp sem mest mátti og sem
nú eru farnir að minna hana á stefnu
hennar og orð fyrrum, og að hug-
myndin sé að breyta nú einhverju í
frumvarpinu, breyta því til bóta fyr-
ir prótestanta. Aftur geta aðrir þess
til, að hugmyndin sé að gera enn
meira fyrir kaþólíka og mcð því
bjarga Laurier úr pólitiskum sálar
háska. Þeir sem því spá hafa það
sem ástæðu, að Laurier megi til að
reyna að komast að betri samningum
eða ef það verði ómögulegt, að hann
þá megi til með að efna loforð sín og
koina fram með umbótalöa ogþá full*
komnari en voru umbótalög conserva
tiva, eða, að öðrum kosti, að missa
meginhluta sinna káþólsku fylgis-
manna á þingi, og þá um leið að
sleppa stjórntaumunum.
Undir engum kringumstæðum
sýnist skólamálið útkljáð enn. þrátt
fyrir gum þeirra Lauriers um það í
haust.
/
Islandsrféttir.
EFTIR ÍSLAND.
10. Janúar.
Eitt af pví sem mest er nú um talað
í bænura er málið Þorvaldar lögresJu-
þjóns við Valdimar Fj-konu-mann. Hef-
ur Þorvaldur tvístefnt Valdiraiu' fyrir
ósæmilegt orðbranð. Cand. jnr. líjörg-
vin Vigfússon umboðsm. færir ruálið
fyrir Þorv. hönd. Valdirnar kvað liafa
kvatt 13 vrtni í málinu, ogá vitnaleiðsla
fram að fara 4 fimtudaginn kemur: þar
mætir Kr. Þorgrímsson fyrir Valdimar.
Blisför eða álfadans var haldinn hór
að kvöldi hins 10. þ. m. Þó voru þaðnú
ekki skólapiltar sem gengust fvrir þeirri
skemtun, eins og venja hefir verið, iield-
ur verzlunarrnenn, lærisveinar sjó-
mannaskólans og margit' fieiri. Eitt-
hvað um 50 manns munu hafa tekið
þátt í blisförinni. Hún var haldin á
Austurvelli og fór vel franr; búningar
voru góðir og blisin entust betur en þau
oft hafa gert áður. Alfakóngur var
Gísli Jónsson verziunarmaður.en drotn-
ingin Davíð Jh. Heilmann, prentari.
Skemtanir fyrir börn hafa nýlega
verið haldnar hér ein eftir aðra, og er
það góður siður. Þær hafa haldið :
Revkjavíkurklúbburinn, Verzlunar-
mannafélagið, Hvitabandið (það er
bindindisfélag) og Hjálpræðísherinn.
Á laugardagskvöldið 9. þ. m. héldu
lærisveinar læknaskólans volduga veislu
Hún var haldin í salnum í Vinaminni.
Þeir buðu til mönnum svo að í samsæt-
inu voru milli 20 og 30 manns. Var þar
át og drykkja, söngur og ræðuhöld og
allskonar fagnaður. Nú eru 18 læri-
sveinar á læknaskólanum og er það
miklu meira fjölmenni en þai' hefii' 'áður
verið. Það er að lifna yfir skólanum og
er það gleðilegt. Og vonandi er að því
haldi fram að íslenzk læknaefni sæki
þangað, en láti af Hafnarferðum.
23. Janúar.
Nýtt veiðarfæri til að veiða hnísur
hefir ísólfur Pálsson organisti á Stokks-
eyri fundið upp nýlega. Það er skutull
og er skotið af handbyssu. Hann héfir
nú skotið honum á 8 hnísur og að eins
fyrsta skotið mis’nepnast. Er þetta tal-
ið góð uppfiinding.
Samskot til jarðskjálftasveitanna
halda enn áfram víðsvegar uin land og
ef til vill í útlöndum líka. Er nú vafa-
laust, að skaðinn mun verða fullu bætt-
ur þeim sern fyrir urðu. Það muu nú
vera einróma álit allra hygnari rnánna.
að réttast sé að verja , fafénu til bygg- j
ingar góðra eða viðui iegra hýbýla á|
jarðskjálftasvæðinu. ’að er vafalaust
að á þann hátt yrðu |. ■ „ og varanlegu.s: !
not af fénu.
Sótt verður-til" 'Sta alþingis um
launaviðbót handa pé ifgreiðsiumönn-
um og bréfhirðingai. unum fyrir ó-
maksauka þann, sen. þeir hafa af út-
sending “íslands.” Ri' ast væri að þeir
peningar, 8% af verði 1 ðsius, sem póst-
stjórnin tekur af útgefunda í ómaksluuu
rynni beint til póstmannanria. En þar
sem þeir peningar nú renna í landsjóð,
getur þingið ekki neitað póstmeistara
um tilsvarandi launauppbót handa
starfsmönnum sínum.
I Reykjavík eru nú í Templarafé-
laginu rúm 400 fullorðinna manna.
Það slys vildi nýlega til hér í bæn-
um, að stálpaður drengur, sem var að
renna sér á sleða á götunum, hraut af
sleðanum, beit sundur tunguna, fékk
heilabólgu og dó skömmu síðar.
A fimtudagsmorguninti kastaði sér
maður, Vigt’ús Jónasson að nafni, fram
af Ziemsens-bryggju og drekkti sér.
Samkvæmt skýrslu hr. landsbóka-
varðar Hallgríms Melsteðs, hefir bóka-
safnið árið sem leið lánað úl lK'iS bindi
til 1134 lántakenda, en á lestrarstofuna
4700bindi til 1708 iesenda. Safninu hafa
á árinu bæst 646 bindi; af þeim hefir
próf. Fiske gefiö 32, og er hann þar
hæstuf- 2 handrit hafa verið keypt og
9 fengin í skiftum frá Forngripasafninu.
Gefið hafa handrit: Sig. Sigurðsson liú-
fræð. 1, Páll MeLteð 2 og Eiríkur P»riem
2 máidagabréf á skinni.
EFTIIl BJARKA.
Seyðisfiröi 22. Des.
Framan af síöustu viku var hér
hláka og hlýviðri og orðið nær alautt.
Á fimtud. dreif dálítinn Iausasujó og
hefir frosið síðan, þett 4—■"> gr, R., en
logn og heiður himinn. í gicr Ög i dag j
aftur vorhlýindi.
Úr Austur-Skaftafeilssýslu. Þaðj
verður víst langt þangað til járnbraut-
arskröltið nær hingað, þó að farið væri
að Þggja þær einhversstaðar 4 landinu,
enda lægi nær að koma hór í lag sam-
göngum á sjó, sem eigi þóttu sem best-
ar, þótt “Bremæs” væri á ferðum hér í
sumar, það kom ekki á Hornafjörð á
suðurleið í Okt., og misti hér maður af
ferð þess. sem ætlaði til Fleusborgar-
skólans rg aldrei fékst það til að koma
inn á Papós.
Vitrir hundar. Hér á Austurlandi
eru margir liundar sagðir ákaflega nask-
ir að finna fé í föntium. Þetta kom nú
mjög að góðu haldi eftir fjárskaðabyl-
inn mikla í haust og eru sagðar margar
sögur af viti og nærfærni hundanna að
finna féð í fönnum. Á Arnórsstöðum á
Jökuldal er sagt að rakki græfi upp eða
vísaði til 160 fjár í fönnum eftir bylinn
og var seinast orðinn svo ólmur að lefta
að það varð að byrgja hann inni á nótt-
inni, því annars þaut hann í fannirnar
og varð fénu að skaða og sagt að hann
banaði kirid eina nótt þegar ekki liafði
verið gáð að að byrgja hann nógu vel.
svo hann gat brotist.
Seyðisfirði 8. Jan.
Hér er nú hin mesta veðurbliða,
!ogn og úrkomulítið oftast. Flesta daga
frostleysa og ekki nema eitt stig eða tvö
þó frjósi. Engin markverð tíðindi.
I’allegur siður. Nokkrar frúr hér í
bænum gerðu í fyrrakvöldbindindishús-
ið nð hátíðasal, og fyltu það af dansandi
og brosandi börnum. Það er einskonar
tíska héi' að frúr bæjarins haldi börnum
þessa Iiátið á þrettándakvöld. Salurinn
var allur u: pljómaður og í honum miðj-
um stóðu tvö stór grenitré alsett Ijósum
og hlaðin inargskonar gæðum sem laða
barnaaugun.
Blisför og álfadans var haldinn á
Vestdalseyri. Hafði farið yel fram og
búningar góðir.
Seyðisfirði 22. Jan.
Einstök veðurblíða altaf, hlaðfiski
l>egar róið er, en laugsótt mjög.
Spitalamál Seyðisfjarðar var rætt á
bæjarstjórrinrfundi í gærkvöld. Voru
állir sammála um, að hér væri um mesta
nauðsynjaspursmál að ræða, og sam-
þvkt að bærinn gæfi 200o kr. sem sinn
skerf til spítalans og má það kalla rausn-
arlega framlögu.
Seyðisfirði 30. Jan.
Veðrið skifti hömum með þessari
viku, og á sunnudagsnóttina brast á
rokviðri og snjóburðr og var hér 10 og 11
st. írost sunnudag og mánudag og byl-
ur báða dagana. Síðan hefir frostið far-
ið minkandi og ekki snjóað hér að ráði.
Athugaverð slysför og manntjón
Varð hér á Fjai ðarheiði á laugardaginu
eðá snnnudiigsnóttina var, Vinnukona
hér frá Firði, Margrét Guðmundsdóttir,
ættuð að sunnan. ætlaði kynnisferð upp
í Hérað að Breiðavaði, því þangað ætl-
aði hún vistferlum í vor. Hún fór að
heiman í óleyfi húsbænda sinna og þeim
óafvitaiidi, og slóst í ferð með héraðs-
mönnum, Halli á Breiðavaði og öðrum
manni, sem voru með hesta, og Sigur-
jóni nokkrum Jónssyni frá Tókastöðum
sem var laus. Þau lögðu af stað um kl.
2. Veður var gott, en farið að kólna.
Þeir Hallur voru 4 undan með hestana,
en þau Sigurjón og Margrét voru nokk-
uð á eftir. Sagt er að stúlkan hafi kvart
að um lasleik daginn fyrir og nær ekkert
borðað þá og ekki heldur um morguninn
en á Álfhól borðaði hún nokkuö og var
gefin mjólk að drekka í Fjarðarseli. Er
upp kom í hrekkurnar gengu þau Sigur-
jóu og Margiét fram á þá Hall,ogliéldu
svo áfrara aðia leið en hestamennirnir,
því þeir fóru sem leið liggur yfir heiðina
ea Sigurjóu stefndi með stúlkuna skemri
leið upp með Stafdal, er sá vegur tölu-
vert tilyttri til Tókascaða og Breiðavaðs
Þetta |áu þeir Hallur siðast til þeirra,
e>i umKvöldið kl. 8 kemur Sigurjón upp
að Tókastöðum o. segist hafa skilið við
Margréti,á fjallinu, luifi hún kvarta»‘i
uin að húu væri lasin litlu eftir að þau
skiidu viö þá Hall og nokkru síðar hmg-
ið niður og sagt: “hér verð ég að
de ■ ja." S'.gurjón kveðst þá hafa skilið
við hana og ætlað að ná þeimHalli og fá
hest, cu vilst og ekki fundið þá. Bregð-
ur Sigbjörn bóndi á Breiðavaði, sem sent
hafði verið til, þá strax við, ljær tvo
menn og sendir til næsta bæjar eftir
rnanní og hesti og fara þeir þrír og Sig-
urjón sá fjórði að leita; en þegar þeir
eru komnir á heiðina nær því sem hann
kveðst hafa skilið við stúlkuna, brestur
ú blindbilur, svo að mennirnir, sem
höfðu skift sér, fundu nauðuglega hvern
annan aftur, og komust loks ura morg-
uninn til Héraðs af heiðinni. Morgun-
inn eftir leituðu menn þess við Sigurjón
að hann kæmi með þeim að leita, en
hann kvað veður ískyggilegt og vildi
með engu m.óti fara, oz treystust menn-
irnir þá ekki að hefja leitina án Sigur-
jóns, enda voru þeir menn ekki sem
kunuugastir. Þá voru enn sendir menn
á miðvikudagsmorguninn til Sigurjóns
og varð hann þá að fara með þeim, því
AV«V^is
V> » L- Vrlii'. I'arc-Aclio, Kriatic
Vains Vi iiralyic E*ains,
í' •'■ ■-» in titc Mde« etc;
J*romr.Uy li-lþ.vod and.Curcd by
The “D. & L.”
ílenthol Plaster
I!a» if» ii«p>d your 1> & L. Mcnthol Plaster
f"r: v rejiíHnin !!"■ Lm lC and lumbaKO, I
i.ii<1*^1 tr»tir■ t;íy r< < "imnnnd gjunr as a safe,
(*:■■■(* „j.i. r. i.iij '.y: in f.iut. th*yar; uko
tuvgic.—A. ÍJU' AN iL. EliiabctUtuwn, Ont.
I*rlco íWc*
DA\ 1S Sc LAWRENCE CO., Ltd.
l'roprietora, Montreal.
(þ
%
*
The
The
The 3
Best. Rest. Test.
' Það eru til tvær aðaltegundir af Sarsaparilla : Besta tegundin
S: og hinar. Yandræðin eru að þær eru allar likar að sjá. Og þegar =3
hinar eru í sama búningi og hin besta, hver getur þá þekt þær að ?
» Ja, “af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá,” er gamalt og gott orð- zS
%T- tseki. Þess hærra sem tréð er, þess dýpra standa rætur þess. Það ^
£- einnig er gott til prófs. Hvaðerrótin? Saga þessarar Sarsaparillar.
y*' Su með mesta rótaklasanum er Ayer’s. Tréð mestu ávöxtunum? —^
Það einnig er Ayers. Sagan af Ayers Sarsaparilla er vottorð um lækn- vS
»= ingar í 50 ár; vottorð um marga minnnispeninga og — að lyktum fulh áS
komnunina sjálfa í minnispeningaflokknum.þur semerChicago heims- é35
sýningar minningarpeningurinn. Allar Sarsaparillutegundir voru úti- éí
lokaðar af þeirri sýningu nema Ayers. Það var enda meiri viðurkenn-
S- ing en nokkurn tíma minnispeningurinn. Ef þú vilt fá bestu Sarsa S
parillutegundina hjá lylsalanum þínum, þá er þetta eina óhulta reglan öS
Að biðja um beftu Sarsaparillu og þú fær þá Ayeis, — að biðja um S
Ayers Sarsaparillu og þú fær þá beztu. zS
fMmimmmmrnmummimmummÉ
veður var ágætt, en af því þoka
var nokkur þegar upp á brún vildu
hinir hiða við og kváðu að brátt mundi
létta, en Sigurjón sagði leit til einskis
í sliku veðri og sneri þá þegar aftur og
vildi ekki bíða. Hinum þótti sem alt
væri ónýtt án hans og sneru heim litlu
á eftir. Næsta dag lagði Sigurjón af
stað norður í Borgarfjörð, og hefir því
ekki náðst til hans síðan.
Maður var sendur héðan úr firðin-
um í fyrra morgun, kom hann aftur í
gærkvöld og sagði þessi tíðindi, en ekki
gat hann og þeir menn, sem með hon-
um komu ofan úr Héraði, leitað í gær
sakir bils á heiðinni. Með Héraðsmönn
um voru nú gerðir 4 menn héðan í dag
að leíta, svo nú eru þeir sex í leitinni,
en því miður er nú þoka.
Þessi sorglegi slysaatburður er
hörmulegur að fleiru en einu leyti. Fyrst
er það æði skeytingarlítið að Sigurjón
lætur stúlku illa klædda, hálfsvanga og
þar á ofan óhrausta leggja með sér á
jafnlangan fjallveg, og það undir myrk-
ur, og ófyrirgefanlegt er það, að fara
með hana frá mönnum, sem með hest-
ana voru, og hefðu getað bjargað henni
til bæjar. þó hún hefði bugast á gangin-
um, en út yfir alt tekur þó, og er glæpi
næst, að fara frá henni sjúkri og einni
saman og vestur yfir heiði, þar sem að
allra dómi vel mátti takast að koma
henni ofan i Fjarðarsel úr Neðrastafn-
um, þegar hún fór að kenna lasleikans
og það jafnvel eftir að hún var uppgefin
ekki síst fyrir slíkt karlmenni seití Sig
urjón er sagður, og óskiljanlegt er það
af manni með pllu viti, sé hann ekki al-
veg samviskulaus, að fara ekki ofan í
Fjarðarsel að leita hjálpar, heldur upp á
Hérað, fullum þrem hlutum lengri veg,
Og þó vera kunni aðrar orsakir, þá
hafa menn ofanfjalls dregið þá ályktun
af öllu atferli Sigurjóns við leitina, sem
honum sé lítið ant um að líkið finnist.
En hversu svo sem það er, þá er hitt
víst, að hér er sýnt svo strákslegt hirðu
leysi um lífbjörg mans að það, eftir því
sem er framkomið í málinu, beinlínis
varðar við lög.
þessum bágindum mínumyotta ég hlut
aðeigandi velgerðamönnum mitt alúðar
fylsta þakklæti og bið guði«að láta þessi
mannelskuverk ekki ólaunuð.
Selkirk, 2. Marz 1897.
Jóhanna Jóhannesdóttir.
ÞAKKLÆTISÁYARP.
I siöastl. Des., þegar ég undirskrifuð
varð fyrir þein i þungbæi u í eynslu að
standa Við dáinubeð maunsins mitis sál.
Rúnólfs M»gnús«>tiar, voru kringum-
stæður mfnar mjög erviðar, ekki síst
fyrir þá sök, að maðuriim miun sál.
hafði árum saman þjáðzt af sjúdómi
þeim, er aö síðustu dió hann til dauða.
Við þetta tækifæri réttu góðir inenn
'iiér hjálpaihönd, fyrst í sjúdómsleg-
unni, svo við jarðarförina og síðan með
gjöfum. Leyfi ég mér fyrst að nefna þá
Pál Magnússon mág minn, er auk allra
annara velgerða tók eitt barnið.og Guð-
mund bróðir hans, er stundaði mauninn
minn sál. í sjúkdómslegunni, einnig
Jón ívarsson, er gaf kistuna, svo Sigr-
björn Ásbjarnarson, sem gekst fyrir al-
mennum samskotum meðal íslendinga
hér í hænum er námu að upphæð $19,
50 cents. Auk þess gáfu ýmsir vinir og
nágrannar okkar mér $10,50 og að síð-
ustu sendi stúkanEiningin, Nr.60l. O.
G. T., mér $4,35 cents á aðfangadags-
kvöld jóla, auk $1 frá einum meðlim
stúkunnar, Mrs. G. Anderson.
Fyrir allar þessar gjafir, alt það veg-
lyndi og aðstoð, er mér var auðsýnt- í
©GO@<S O O © © © © @
^ReZief for ♦ °
iLang ©
^Troables ®
EMULSíON
an COVHIIMPTIOÍ/ anú n5S Jl.VNV,
StíöaTrii:«E4 01 hsi.ooíd,
Cí>íl«lí, AD'MPETHTE,
Z>EKX£nrt. thn buueUtxof ttii»
artlcio jíto uohI jiiai.iio.st.
©
@
©
Bv thf’.iiii cfTho "D. & !.." Kmulclon, I baverot
© rld of a hockinj couaU wir.ch Inul cronWnU mofor
ovcr a ye.ir, uml h.ivo uulnod c<»iir.idora'nly in
w<5iffht.. I likcd ihÍB EinnlHÍnn so well í was glad /n
wlivh tho tiiuo camo a .nuid.to tyke it. ^
0 T. II. ’.flNfÍíTAM, C. F.,, Montrral ^
íM)c> nnd 81 per Blnftlc
® DftViS & LAWREM.CE CO., Lto., Montheal •
09900) 09 09909
J)ýðingarmikið bréf.
SEGIR FRÁ ÞVÍ HVERNIG MAÐ-
UR SEM ÞJÁÐIST AF MJAÐMA-
GIGT LÆKNAÐIST.
Fregnriti fráblaðinu Orilli News-Letter
fékk leyfí til að opinbera þetta bi óf
Því verður eflaust tekið vel af
þeím hinum mörgu sem þjást af
slæmum kvillum.
Tekið eftir The Orilli News-Letter.
Eftirfylgjandi bréf hefir oss verið
sent frá fregnrita vorum í Coldwater,
Ont., og höfum vér ánægju af að birta
það.
Coldwater, Sept. 25th 1896.
Fyrir fáum vikum varð ég mjög las-
inn af mjaðmagigt, og þar eð ég mundi
eftir því að vinur minn Mr. C. T. Hop-
son frá Fesserton, sem er fáeinar mílur
héðan, hefði þjáðst mjög af þessum
sama kvilla, datt mér í hug að það væri
hyggilegt að spyrja liann ráða, því ég
vissi að hann var nú heill heilsu, og
vann stöðugt við trjávinnueins og hann
var vanur. Hann gaf mér allar r.auð-
synlegar upplýsingar, og skrifaði upp
eftirfylgjandi meðmæli, sem hann hefir
hug á að séu gerð almenningi kunnug.
Þetta bréf hans sendi óg til yðar í þeirri
van, að þér komið því fyrir almennings
sjónir.
Fesserton, Sept. 18th 1896.
Mór er mjög mikil ánægja að því að
skýra frá, hvernig t)r. Williams Pink
Pills læknuðu mig. Árið 1892 varð ég
mjög slæmur af mjaðmagigt. Eg hafði
læknishjálp á ýmsum tímum, en hætti
við hana þar eð mér batnaði ekkert. Ég
reyndi ýms meðul sem voru auglýst að
ættu við mjaðmagigt, en batraði ekkert
af þeim. Því næst reyndi ég rafur-
magnslækningar, en það var eins og
annað árangursdaust. Mér batnaði ekk-
ert. Þjáningarnar voru óbærilegar og
ég var farinn að verða vonlaus um bata.
Ég gat hvorki setið eða gengið án þess
að finna sárt til, og ég hafði ekkert við-
þol nema liegar óg lá og rétti úr fótun-
um. I þeim stellingum var ég dag
einn er ég af tilviljun fór að lesa í blaði
sem hjá rnér var og sá grein frá manni
seui hafði læknað í sór mjaðrasgigt með
Dr. Williatns Fink Pills for Pale People.
Þar eð ég hafði æfinlega haft, litla
trú á pat°nt meðölum hefði mér ekki
komið til hugar að reyna pillurnar nema
af því að konan mín lagði að mér með
það og útyegaði nokkuð af þeim þegar.
Þegar ég var búinn með fyrstu öskjurn-
ar fanst mér ég vera betri svo óg hélt
áfram með þær, og þegar ég var búin
með sex öskjur var ég alheill. Ég var
búinn að vera veikur í fjóra mánuði áð-
ur en ég fór að brúka Pink Pills og ég
ætla mér að halda áfram með þær við
og við því ég veit að þær eru góðar og
ég skal ætíð mæla með þeim.
yðar
Charles T. Hopson.
Fregnritin bætir þvf við að þessi maður
sé í svo miklu áliti í Fesserton að orð
hans sé tekin trúanleg af öllum.
Posiíively Cures
COUGHS and COLDS
i"i a Rurprisingly short time. It’s a scl-
cntiiic certainty, tried and true, soothing
cnd healing in its effects.
V/. C. McComber & Son,
Bouchette, Que.,
ronort Jn a Mfer that Pyny-Foctoral uured Min.
L. Carc< aii ol chronic «'ol<| jn chontnnd broncliial
titb< 8. nu<l h!ho curud W. G. McCowber of u
Ioiiy-atandin_, gold.
M'. J. II. IIutjy, Chemist,
528 Yonge St., Toronto, writes:
" As n y^ueralcuu'rh nnd lunjj syrttp Vyny-
FP'.'tn Jtl lf'. n m<>3t invuluablo pro|>urution. It
fiiv/'.t th*» ufrnout sntisraction to u!l tvho
h.iv.? Migdit, many liavlng tpokfín tnmn oftho
iKilic*! ;s d”.iv.d from jl.< v.no in fh.-ir IhmiIí-s.
>í is s I*aLlo for olU or youny. h< lti^ pleas'int to
\lio t;.<■[<>.. l!.s 811 lo with nif‘ hiut 09 wvmferfjiiJ. •
f*’vl f < :in nhvayá rucoinnioxid ífc as a aád
oou;i< medioine.
L:tr-c BoCtlo* 2.1
DAYI3 & LAWRENCE CO., Ltd.
So'.e Proprictors
Montreal