Heimskringla - 25.03.1897, Blaðsíða 1
XI. ÁR.
WINNIPEG, MAN., 25 MARZ. 1897.
NR. 13.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
MIÐVIKUDAG, 17. MARZ.
Bólusóttin er að stinga sér niður í
New York.
Sjóflotastjórar stórveldanna hafa
fengið skipun um að taka nú þegar til
að loka höfnum á Krít og Grikklandi.
Rlóðið í Mississippi eykst en rénar
ekki. Ersagtað í mannaminnum liafi
ekki sézt annað eins flóð í fljótinu.
Tjónið þykir ómetanlegt enn sem komið
er.
James J. Corbett og Robert Fitzim-
mons háðu einvígi með hnefunum í Car-
son, Nevada. í dag og vann Fitzimmons
sigur í 14. atlögu. Kom þá einu þessu
heljarhöggi, sem hann er nafntogaður
fjrir, á hjartastað Corbetts, sem þá
hneig niður aflvana og yfirbugaður.
Fitzimmons fær $38,000 fyrir orustuna
02 Corbett $13,000. Aðgöngumiðar
kostuðu frá $5 til $40, og áhorfendur
voru um 5,000. Corbett er Baudarikja
maður, frá California, en Fitzimmons
er jCstraliumaður.
Konstantinus krónprinz Grikkja er
yfirherstjóri Grikkja í Þessalíu, þar sem
meginher Grikkja er nú samankomin.
Voru honum fengin þau völd í gær.
FIMTUDAG, 18. MARZ.
Ritari Byron-félagsins í London
fékk í gær skeyti frá Aþenu þess efnis,
að til að forðast styrjöld bióði Tyrkja
soldán að sleppa Kritarey við Grikki og
taka burt þaðan hermenn sína nú taf-
arlaust, Skilyrðin eiga að vera þau, að
eyjarskeggjar gjaldi Tyrkjum litilfjör-
legan skatt á ári hverju. Fregninni
fylgir og að Grikkjastjórn séu hæst-á-
nægð með boðið og eyjarskeggjar að
sjálfsögðu, því þeir vilja gríska stjórn
á eynni miklu fremur en sjálfræði það,
sem um hefir verið talað. Samtímis
koma aðrar fregnir frá Aþena, er segja
að hinn gríski lýður sé orðinn rétt óvið-
ráðanlegur af hernaðarlöngun. l’að sé
ekki um annað talað en stríð við Tyrkja
og að fjöldinn vilji ekki annað þýðast;
er sagt að í mannaminnum hafi ekki
sézt annar eins ofsi á Grikklandi.
Bretar búa sig nú kappsamlega í
stríð. Senda skipsfarm eftir skipsfarm
af hergögnum til eyjarinnar Malta í
Miðjarðarhafinu og til Cape Town í
Afríku, því þar syðra þykir útlitið
nokkuð ófriðlegt.
Frá Evrópu koma þær fregnir, að
útlit sé fyrir að Vilhjálmur Þýzkalands
keisari sé að missa vitið. Er það meðal
annars höfð sem ástæða, að hann klípi
gesti sína og reyni að fella þá með því
að bregða sverði sínu fyrir fætur þeirra
Dominion-aukakosningar fóru fram
í Bonaventure-kjördæminu í Quebec í
gær og náði stjórnarsinninn Jean F,
Guite kjöri með nærri 800 atkv. um-
fram gagnsækjanpa sinn. Fagnar Lau
rier yfir þessu og segir vott um sigur
yfir klerkunum. Kjördæmi þetta losn-
aði fyrir skömmu síðan, en annað kjör-
dæmi í Quebec fylki—Champlain—hefir
verið laust svo mánuðum skifti, en þar
er ekki farið aðefna til kosninga enn.
Fnðþjófi N ansen var á þriðjudag-
inn 16. þ. m- veitt heiðursnafnbótin
“doktor í vísindum” á hásKÓlanum í
Cambridge á Englandi.
Col. John Hay i Washington verð-
ur ráðherra Bandaríkja á Englandi
framvegis, — í 4 ár.
FÖSTUDAGINN, 19. MARZ.
A sunnudagsmorguninn 21. þ. m.
er auglýst að stórveldin byrji að loka
höfnum á Krít. Að loka höfnunum þýð
ir það, að frá kl. 8 á sunnudagsmorgun
fær ekkert griskt skip að lenda við
eyna og skip annara þjóða fá það ekki
VKITT
HÆSTU VERÐLAUN a heimssýninqunn
DR
BáKING
POWBIR
ID BEZT TILBÚNA
°blönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
öflnur óholl efni.
40 ára ’-eynslu.
heldur, nema þeir fyrst fái leyfi flota-
foringjanna. — í gær skutu Austurrík-
ismenn á griska duggu fermda vistum,
og sökktu henni úti fyrir ströndum
Kríteyjar. Skipverjar komust allir ti 1
lands á sundi.
Flóðið í Mississippi rénar ekki hið
minsta enn, en eykst heldur. Sex eða
sjö eyjar i fljótinu sem stórir búgarðar
eru á eru nú í kafi, fénaður allur og
eignir yfirgefnar, og fólk alt flúið. 60
manns liafa látið lífið í flóðinu svo vist
sé og þúsundir manna eru húsviltir og
allslausir.
Blaðinu London ‘Times’ er telegraf-
erað frá Cape Town, að vist þyki nú að
Orange friríkið gangi í bandalag með
Transvaal-rikinu.
Skiprekar. Eitt Allan-linuskipið
kom til New York i gær með skipverja
alla, að 1 undanteknum, er dó, afskipi
einu sem fórst á miðju Atlantshafi. Sam
dægurs náði og til New York lítið gufu
skip, er gengur með ströndum Banda-
ríkja suður í Georgia. Kom það með 4
menn nær dauða en lífi af frönsku
skipi, sem fórst á hafinu áferð frá New
York til Vest Indía eyja. Á því skipi
höfðu verið 37 menn alls, en 4 að eius
eftir.—Talið er víst að farizt hafi með
öllum mönnum, 100 alls, hollenskt gufu
skip á ferð til Java.
Salisbury hefir stungið ftpp á að
stórveldin gefi $50,000 hvert, til að
borga kostnaðinn sem leiði af að koma
á sjálfsstjórn á eynni Krít.
LAUGARDAG, 20. MARZ.
í gær hóf Konstantinus prinz á
Grikklandi hergönguna norður í Þessa-
líu og hafði með sér 4,700 hermenn. A-
þenumenn létu sem óðir af fögnuði, er
fylkingiu seig af stað. — Núna rétt ný-
lega var sagt að Rússar væru undir
niðri með Grikkjum, með því skilyrði
að þeir fái Konstantinopel til umráða.
Nú segir önnur saga að Rússar séu ein-
dregnir með Tyrkjum og séu tllbúnir
að hjálpa þeim á ýmsan hátt. Fyrir
það eigi þeir svo að fá umráð yfir hafn-
stöðum nokkrum, við Miðjarðarhafið.
Þetta er litið sýnishorn af sögunum er
berast af þessum ófriðarstöðvum á
hverjum degi. Af því geta menn séð
hve ervitt er að vita hvað er satt eða
ósatt í þeirri frétta-þvögu. — 3,600 her-
menn sendu stórveldin til Krítar núna
um helgina, sem þar eiga að sitja og
halda eynni á meðan sjálfsstjórnin er
sett á laggirnar, en sem eyjarskeggjar
ekki vilja nýta.
Sáttaréttarsamningur Breta og
Bandaríkjamanna var aðal-umræðuefn-
ið í efri deild þjóðþings í gær.
Nýtt gufuskipafélag byrjar að senda
skip sín til Montreal í Aprílmán. næst-
komandi. Ganga þau skip beint á milli
Montreal og Manchester á Englandi.
Til að byrja með verða 6 skip í förum.
Tveir menn háðu hnefaleik í Phila-
delphia í gærkveldi, og datt öðrum í
hug að reyna aðferð Fitzimmons, og sió
gagnsækjanda sinn högg mikið í hjarta-
stað. Sá sem höggið fékk hneig niður
aflvana og var dauður innan hálfrar
klukkustundar.
MÁNUDAG, 23. MARZ.
Flóð allstaðar. Sögur um ómuna-
leg flóð berast nú úr öllum áttum. Stór-
kostlegast er það vitanlega í Mississippi
dalnum sunnanverðum, en svo er það
litlu betra nú í Ohio-dalnum, í Wis-
consin hvervetna muna menn ekki ann-
að eins flóð og þar er nú. og áþekkar
eru sögurnar úr Iowa og Ulinois sunn-
verðu. — í Ontario-fylki e'ru og flóð
farin að valda s’órmiklu eignatjóni.
Frá Havana kemur sú fregn, að
Salvador Cisneros forseti hins svokall-
aða Cuba lýðveldis só dáinn, og Barto-
lome Masso, varaforseti, tekinn við
stjórninni í hans stað. Aðrar mark-
verðar fregnir engar af Cuba. — Frá
Phdippineeyjunum aftur kemur sú
fregn, að þar hafi Spánverjar rétt ný-
lega unnið sigur yfir uppreistarmönn-
unum.
Á Krít stendur alt við það sama,
nema hvað stórveldin nú banna innsigl-
ing á hafnirnar, síðan í gærmorgun.
Herstjóri Grikkja á eynni, Vassos ó-
bersti, situr þar enn og kveðst hvergi
fara. Aftur á móti er útlit fyrir að her
menn Tyrkja verði látnir fara af eynni;
um annað verði ekki að gera, ef friður
eigi að fást.
Serbar eru að safna liði 'nálægt
landamærum Tyrkja til heræfinga, að
þeir segja. Tyrkjum líst illa á það og
búast við að senda herafla þangað á
hverri stundu.
Sambandsstjórnin hefir að sögn gert
formlegan samning við Mr. W. Peter-
son frá New Castle-on-Tyne á Englandi
um að hafa fullgerð 4 skip að tveimur
árum liðnum, er beri 10,000 tons og
gangi yfir 20 sjómílur á klukkustund.
Stjórnin á að borga félaginu $J milj. á
ári og stjórn Breta J milj.—Skipin oiga
að ganga milli Quebec og Liverpool.
ÞRIÐJUDAG, 23. MARZ.
Það eitt er nýtt frá Krít, að nú eru
stórveldin að sögn farin að líta svo S,
að það sé gagnslaust verk aö loka höfn-
unum,—að Vassos herstjóri Grikkja hafi
svo mikinn yistaforða f virki sínu, að
hann geti setið í það óendanlega, en að
Tyrkir aftur búi við sult og seiru og
komist ekki af nema stutta stund. Ef
til vill verður þvi næsta stigið það, að
flytja burtu hina tyrknesku hermenn
og þá fyrst er von til að Grikkir muni
rýma. — Hermenn Tyrkja í Macedoniu
svelta og hefir herstjóri þeirra bannað
stjórninni að senda sér fleiri menn,
vegna fæðuskorts.
Fellibylur braut skólahús í agnir og
varð 12—14 börnum að bana í Arling-
ton, Georgia, í gær.
Presby terian-kyrk j ust jórnin kærir
hinn nafntogaða skozka prest ogrithöf-
und Dr. John Watson (ritnafn: Ian
MacLaren) fyrir trúarvillukenningu.
í gær setti sambandsstjórnin firam
menn í þjónustu sinni á eftirlaunalist-
ann. Einn þeirra, J. R. Balderson, er
bara 38 ára gamall, og hefir beztu
heilsu.
Ein síðasta fréttin frá Krit segir,
að Grikkir séu nú að hugsa um að
kaupa Krítarey, eða bjóða Tyrkjum og
stórveldunum það.
Holdsveiki
er korain upp meðal Islendinga hér i
bænum og það í stærri stýl en æskilegt
er. Fyrst er að telja konu úr Qu’Appelle
nýlendunni og að auki 2 karlmenu til
heimilis hér í bænum. Hafa þesslr þrir
sjúklingar nú verið settir í afskekt hús
og i dag er von hingað á yfirlækninum á
holdsveikrastofnuninni í Tracadio í New
Brunswick, -scm tekur sjú-klingana moð
sér austur, þar sein þeir svo eyða æfinni
Það er almenn skoðun lækna hór í landi
að í almennum skilningi sé sjúkdómur
þessi ekki smittandi, þó hann undir
vissum kringumstæðum geti borist frá
einum til annars. Ættingjar og vanda-
menn þessara sjúklinga þurfa heldur
ekki að láta það hrella sig, að sjúkling-
arnir fara svo langt í burtu. Það fer
um þá svo vel Sem bezt m á verða.
Fylkisþiugið.
Á þriðjudaginn 16. Marz sat þingið
að eins klukkustund og gerði ekkert
markvert. Helztu umræðurnar voru
um járnbrautarlagning um suðaustur-
fylkið til Skógavatns, en ekkert varð
þar endilegt. Greenway sagði stjórnina
tilbúna að gera eitthvað ef fáanleg væri
braut alt til Efravatns, annars ekki.
Á miðvikudaginn 17. var leidd til
lykta umræðan um skólalögin, en ekki
fyrri en seint um kvöldið. Tillaga Robl-
ins, að frumvarpið yrði ekki yfirfarið í
annað sinn fyrri en að 6 mán. liðnum,
var feld með 32 atkv. gegn 5. Breyting-
aruppástunga er Pare framsetti, þess
efnis, að umbótalög skyldu satnin sam-
hljóða úrskurði leyndarráðsins brezka,
var feld með 32 gegn 3 atkv. Með þeirri
breytingu voru að eins frönsku þing-
mennirnir : Pare. Marion og Lauzon.
Á fimtudaginn 18. urðu snai par um-
ræður um meinsærismál W. G. Kings,
er Roblin bar fram þá uppástungu að
þingið lýsti óánægju sinni yfir að dóms-
málastjóri ekki tók það mál fyrir og
kærði King. Uppástungan var feld með
27 atkv. gegn 5, eins og við var að bú-
ast, en illa kom hún stjórninni, og ald-
rei fyrri á þinginu reiddist dómsmála-
stjórinn.
Á föstudaginn 19. gekk þingt íminn
aðallega til að yfirfara lagafrumvörp,—
14 talsins er þá komu til umræðu. Þá
lýsti og þingið yfir söknuði sínum yfir
óvæntu andláti Crosby þingmanns frá
Dennis. Greenway framsetti þá yfir-
lýsingu og uppástungu um að þingi
væri þegar siitið, svo að þingmenn • * ti
fylgt hinum látna meðlim áleiðis til
grafar. Roblin studdi uppástunguna.
Sirrett þingmaður talaði og nokk r orð
um hinn látna, en aðrir ekki og var npp
ástungan samþykt í einu hljóði.
Á mánudaginn 22. Marz voru frum
vörp mörg yfirveguð og urðu helztu
umræðurnar um hagl-ábyrgðarfrumv,,
er ákveður að sveitastjórnir leggi á
menn aukaskatt til að bæta fyrir skaða
af völdum haglélja. Þingmenn voru
fleiri á móti en raeð þessu frumvarpi,
og er lítil von til að það verði samþykt.
Detta úr sögunni.
Kaupmenn og lyfsalar selja vona-
lega deildaliti eru farnir að verða varir
við það að þeir eru að detta úr sögunui
Þegar einu sinni er búið að svíkja
út við konu ónýtan lit, þá fer hún ekki
í sömu búðina til að kaupa aftur.
Þeir sem fá viðskiftavinum sínum
Diamond Dye þegar þeir biðja um liti
eru menuirnir sem halda áliti sínu sem
verzlunarmenn í öllurn hlutum Canada.
Diainond Dyes eru ágætir í öllu tiiliti
þe r eru fallegir og endurgóðir, og hinir
eihu lítir sem kaupmaðurinn getur með
góðri sannvisku gefið meðmæli sitt með
AUir sem sem kaupa liti ættu að muna
eftir að gá að þvi að á umbúðunum
standi “Diamond” þá fyrst mega þeir
yera öruggir.
Frá löndum.
'*tr
MARSHALL, 15. MARZ 1897.
Herra ritstjóri,
Af því að ég man ekki eftir að ég
hafl séð þessa bæjar eetið í blöðunum,
og hafa þó landar búið hér lengi, þá
ætla ég að biðja þig, minn gamli góði
kunningi, að lofa eftirfylgjandi línum
að .slæðast með í Hkr. En jafnframt
skal ég taka það fram, að ef þér þykir
ég rausa helzt til of mikið rúmsins
vegna, þá blessaður notaðu blöðin fyrir
íkveikju, og er það öldungis reiðilaust
af minni hendi.
Og nú að efninu.
betur við þau; þau eru viðkunnanleg í
allri framgöngu.
Sex kyrkjur eru hér i bænum, tveir
barnaskólar og einn lærði skóli (High
School), sem svo mörgum hættir við að
kalla háskóla, en sem þó er varla á við
latínuskólann í Reykjavík, sem engum
kemur til hugar að kalla háskóla. A
þennan skóla ganga í vetur 5 landar, 3
stúlkur og 2 piltar. Gestgjafahús eru
4 og Lyon Co. ráðhúsið, stór og smekk
leg bygging úr múrsteini. Götur bæj-
arins eru breiðar og beinar og trjám
plantað fram með þeim flestum og er
skógurinn hin mesta bæjarprýði. Hér
eru gefin út 3 vikublöð: “The News
Messenger”, “The Reporter” og “The
Lyon Co. Leader”.
Eins og áður er sagt er þetta vín-
laus bær,og verðamenn nú að iifa þurra
búðarlífi hvað það snertir alla leið
fram með Norhwesternsbrautinni frá
Trace til Canby,eða um 50 mílur. Eng
in furða þó menn þoli illa gaddinn og
grimdina, hríðarnar og hretviðrin.
Landar eru hér. eins og áður er
sagtum 60 talsins, ungir og gamlir,
13 búendur, og eiga 10 þeirra húsin sem
þeir búa i að meira og minna leyti og
og sumir að öllu leyti. Þegar tillit er
tekið til þess hvað kaupgjald er hér lít-
ið og óstöðug vinna, þá getur maður
ekki annað sagt, en að þeir hafi barizt
góðri baráttu, því hús þeirra eru góðar
eignir og allstór sum þeirra, vel búin
-utan og innan og allir þeir hýbýlaprúð-
ir menn.
Stöðuga atvinnu hafa að eins 7 éða
8 menn þeirra, 1 við verzlun, 1 við
skóla, 2 á járnbraut og 4 að mylnunni:
3 eru .iðnaðarmenn og vinna annars
hvaða vinnu sem er.
Kjólasaumur.
Mrs. W. A. Johnson,
96 McDonald Str.
tekur að sér að sníða og sauma kvenn-
kjóla og annan kvennfatnað, gegn
lægsta verði.
TIL SOLU
ÁBÝLISJARÐIR alstaðar í Manitoba,
HUS cg LÓÐIR með lágu verði í öllum
pörtum bæjarins. Aðgengilegir skil-
málar fyrir kaupendur.
Nares & Robinson.
Financial & General Ag3nts,
Basement Livingstone Block,
VVinnipeg, Man.
W.Brown & Co.
verzla með
Tóbak, Vindla, Pípur
og annað tóbaki tilheyrandi. Hórlendur
og útlendur varningur fáanlegur.
Army & Navy 541 MAIN STR.
heildsölubúð, Winnipeg,
Auglýsing
Þeir sem vilja eignast hið ágæta íyf
“Our Native Herbs”
sem er heilsustyrkjandi og gott fyrir
blóðið, geta fengið það hjá undirrituðum
eða hjá Mr. Gunnlögi Helgasyni, i búð
Á. Friðrikssonar. sem einnig hefir það
til sölu.
Jóh. Th. Jóhannesson,
392 Fonseca Str., Winnipeg.
Abýlisjörð.
Ef þig langar til að eiganast 75 ekrur
af ágætu plóglandi, hesta og aktýgi og
sleða og yms jarðyrkjuáhöld, aðsins 9
mílur frá Winnipeg, þá getur þú fengið
það mjög billegt — fyrir peninga, eða
skuldlausar fasteignir í bænum, hjá
Guðm. Jonssyni, So. West Cor. Ross
Ave. og Isabel Str.
“ISI.ANi I>.” Blað þetta er gefið
út í Reykjavík. Ritstjóri er Þorsteinn
Gislason. Laugstærsta og ódýrasta
blaðið, sem gefið er út á íslandi. Kem-
ur út einu sinni í viku, í atóru arkar-
broti. Áskrift að eins bindandi fyrir
einn ársfjórðung. Verð ársfjórðungsins
er 35 cent. Borgist fyrirfram. Menn
snúi sér til
H. S. BARDAL,
613 Elgin Ave., Winnipeg.
Fluttur.
Ég hefi flutt flutt frá Notre Dame
Ave að 561 Elgin Ave. (Jemima Str.) og
er mig þar að hitta með alslags góðgæti
sem öllum er kunnugt. Ég vonast eftir
að sjá mina fyrrum skiptavini, og
marga nýja.
HANS EINARSSON
561 Elgin Ave. (við endan á Kate Str.)
Bmnswiclx Hotcl, á horninu á
Maine og Rupert St, Winnipeg. Hvergi
í bænum betri viðurgerningur fyrir $1
á dag. Bestu vín og vindlar. Frfflutn-
ingur að og frá járnbrautarstöðvum.
McLaren Bro’s, eigendur.
“BJARKI,”
ritstjóri Þoesteinn Erlingsson,
langbesta blaðið sem gefið er út á ts-
landi. Kemur út í hverri viku. Kostar
að eins $1.00 um árið. Útsölumenn fá
góð sölulaun. Skrifið til
M. PÉTURSSONAR,
P.O. Box 305, Winnipeg.
“ Siuinanfari,”
Fræðiblað með myndum. Kemur út
K Reykjavík einu sinni á hverjum
mánuði. Eina íslenzka ritið er stöð-
ugt flytur myndir af nafnkunnum ís-
lendingum. Ritstj'óri og eigandi
Þotsteinn Gíslason.
Blaðið kostar í Ameríkn, fyrirfram
borgað, einn dollar árgangurinn.
Matur á reiðum höndum dag og nótt.
Stærstur og skrautlegastur “Billiard”
salur í bænum. Ekkert nema vönd-
uðustu vín og vindlar á boðstólum.
Pat. O’Connor,
Eigandi.
Marshall er litill, snotur bær og
liggur beggja megin við Chicago &
Northwestern-brautina, 12J mílur í suð
austur frá Minneota, binum íslenzka
“Metropolis” i Minnesota. I vestur-
jaðri bæjarins sker Great Northern-
brautin Northwestern og er því kross-
járnbraut, í bænum. Á báðum þessum
brautum er allmikil umferð þegar bæri-
legt færi er, en f vetur hafa eimlestir
því nær engri reglu getað bundizt, sök-
nm snjóa norðurundan. Samkvæmt
reglunnm koma og fara hóðan tvær
maimtíutníngsíestir og tvær vöruflutn-
ingslestir á dag á Chicago & North-
western og eins á Great Northern, eða
tieiri.
Verzlan er rekin hér allmikil þegar
vel lætur í ári og sækja hingað menn
býsna langt að stundum. Hér fæst
margt sem ekki er til í smærri bæjum
hér um slóðir, og svo eru bændur hér í
kring 1 góðum efnum, enda gott land
og frjótt í nærliggjandi héruðum.
fhúar í bænum eru um 1800, flestir
innfædd'r Ameríkanar, nokkrir Frakk-
ar og Þjóðverjar, fáeinir Belgíumenn
og Skandinavar og 60 íslendingar.
Atvinnuvegur manna er verzlun og
landbúnaður; litill er hér iðnaður og
verksmiðja engin sem teljandi sé. Ein
stór hveitimylna er þó hér og hafa all-
margir raenn þar atvinnu við, þar á
ineðal 4 landar; gengur hún nótt og dag
árið um kring; kaupgjald þar eitthvað
um $1,25.
Að koma hingað ;frá Chicago, þar
sem ég hefi dvalið um undanfarin 12
ár, er líkast þvi að koma úr kóngsríki í
garðshorn, og fátt sem minnir mann á
stórborg, nema ef vera skyldi rafmagns
liósiii á götum og í búðum. vatnsverk-
ið, ein ‘Department-store’, 1 hveiti-
niylua, dálítið alþýðubókasafn og svo-
lítil lækjarspræna, sem Marshall-ingar
kalla á, en sem væð er hverri meðal
rnús, nema í leysingum á vorin; en
þá kvað hún vera heljarmikið vatnsfall
og ekki fær nema jötnum einum.
En “Margt er það í karlsins koti,
sera kongs er ekki á ríku sloti”. I Chi-
cago var kvartað undan hvað vatnið
væri vont og það ekki að orsakalausu ;
hér Jiarf Jiess ekki.hér er bæði gott vatn
og mikið, og loftið auðvitað ágætt;þess
sknl |ió um leið getið, að í Chicago er
að luinni hyggju betra loft enn í
nokkurri annari stórborg í Ameríku
eða að íuinsta kost,i eins gott.
F,l> kom hér fyrir eitthvað 13 árum
á ferð minni frá gömlu mömmu Winni-
peg i il Chicago, og þekti ég varla þetta
garðshorn aftur. Karl og kerling hafa
talsvert stækkað hornið sitt og nú oru
þar snotrar húsaþyrpingar sem þá var
auðn ein og óræktarblettir.
Þau gömlu hjónin berast allmjög á
og kotið í hengjandi skuld, mest fyrir
Jiessa stóru vatusdælu sína og skóla og
önnur nauðsynjaverk. Ekki eru þau á
hausnum fyrir það að J au gjaldi svo
ríllogft verkalaun; ég heyri sagt að þau
eins og skeri livert cent framan af fing-
urgómunum á sértil útgjalda. En þau
eru stakir bindindismenn bæði tvö og
selja e.kki diopa af nokkru áfengi, og
það auðvitað rýrir að mun tekiurnar.
Mér fanst fyrst er óg kom hér, ein-
hver oddborgaraþefur að þeim, en þeg-
ar ég fór að kynnast þeim betur, þá
[ annaðhvort vandistég honum, eða hann
j hvarf með öllu, og kann hverjum degi
Flöstir landar hér eru vopnfirðing-
ar; hinir eru hingað og þangað að af
Islandi. — 20—30 manns eru í söfnuði,
og svo er hér líka dálítið kvennfélag, en
lítið ber á þessum félögum í vetur, lík-
lega vegna kuldans og snjóarins, en
samkomulagið er gott og það er óhætt
að segja, að friður og góður vilji só
ríkjandi landa á milli.
Kjn-kja safnaðarins er laglegt hús
og rúmar um 150 manns; stendur hún
á hæð einni vestan til í bænum. Hún
er ekuldlaus mtð öllu og allvei úr garð*
gerð bæði utan og innan.
Jólatrés-samkoma var haldin i kyrkj-
unni í vetur og var hún löndum hin
mesta ánægjustund.
Veikindi hafa ekki gengið til muna
hér meðal landa síðan ég kom hór á
siðastliðnu suinri. — Þau Kristjén
Vopnfjörð hjónin mistu á jólaföstunni
í vetur ungt og efnilegt stúlkubarn, og
svo hafa þær konur Jóns Daviðssonar
og Hallgríms Þorkelssonar verið mjög
lasnar, og barn Hallgr. verið veikt í
allan vetur. Miss Jónína Edvarðsdótt-
dóttir, sem lengi hefir stundað kjóla-
sauma hér í bænum, varð hættulega
veik rétt eftir jólin af brjóstveiki, og
varð að hætta að sauma. Er hún nú
komin heim til móður sinnar Mrs. Se-
selju Edvarðs (dóttur Jóns frá Papey),
sem býr í austurbygð íslendinga. Hún
var á batavegi þegar hún fór, og er það
ósk vor hér. að hún megi ná heilsu
siiini aftur og fylla flokk vorn enn ura
langa stund.
Oestur var hér í sumar, góðkunn-
ingi okkar Grímur R.. Guðmundsson
prentari frá Chicago. Hanu hvarf
austur aftur í haust og tók til sinna
gömlu starfa og fer hann nú að verða
mosavaxinn hjá Skandinavanum. Hing-
að kom í vetur Miss Guðrún Pálsdóttir
Snæbjarnarsonar frá Duluth, og er um
það leyti á förum þangað aftur.J— Rétt
fyrir skömmu kom og hingað Mrs. Ól-
afsson [móðir Jóns Ólafssonar í Chica-
go] og dvaldi hér nær hálfan mánuð,
Hún var á ferð frá Chicago til Ólafs
bróður síns, sem býr hér eitthvað 18
mílur hér suðvestur af. Ætlar hún að
vera úti á landi næsta sumar sér til
heilsubótar.
Nú er gamli kunningi okkar Sveinn
Magnússon alveg seztur að í Minneota
og byrjaöur að taka myndir. Ég þyk-
ist vita að þið vinir hans þar nyrðra
óskið honum eins og við hér alls góðs
gengis með þaö fyrirtæki, og vonið að
landar reyni þennan eina íslenzka
myndasmið hér syðra. Það er óhætt
að fullyrða það, að hann er ekki einu-
sinni góður, heldur er hann afbragðs-
góður ljósmyndasmiður, þar sem hann
í 14 ár hefir unnið i einu hinn bezta
myndatökuhúsi í Chicago.
Það er hægðarleikur fyrir hann
Svein litla að breyta öldurmenni í ung-
ling og karlægri kerlingu í korn-unga
stúlku rétt á svipstundu, en hann getur
lika gert alveg náttúrlega mynd, ef
hann er beðinn þess — færri sem gera
það.
Með óskum allra heilla og hamingju
til þín og Hkr. set ég hér langt þagn-
arstryk og stórau punkt.
Þinn einl.
S. Paulson.