Heimskringla - 06.05.1897, Qupperneq 1
V-
XI. ÁR.
WINNIPEG, MAN., kMAl. 1897.
NR. 19.
FRÉTTIR.
Ekkert stórmarkvert að frétta af
Grikkja-Tyrkja stríðinu síðan Larissa
féll. Síðan hafa Tyrkir tekið sjóstaðinn
Volo, um 30 mílur suðaustur frá Larissa
og eru þar af leiðandi komnir þeim mun
nær Aþerxu. Þeir gerðu og tilraun til
að taka bæinn Valestino, er stendur við
járnbrautamót 10 mílur vestur frá Volo
og 15—20 mílur frá Pkarsalos, aðalstöð
Grikkja nú, en þar unnu Grikkir fræg-
an sigur. í Pharsalos vann Cesar sinn
mikla sigur yfir Pompeyusi fyrir 20o0
árum síðan, enda er bærinn svo vel sett
ur, að hann sýnist illvinnandi, ef vel er
stjórnað. Þó er nú búizt við að Tyrkir
taki þann stað vandræðalaust. Her
Grikkja sýnist að vera stjórnlaus og þar
við bætist að sagt er að hermenn beri
helzt ekki við að hlýða skipuuum yfir-
maun'a, þegar í orustu er komið.—1 dag
(mánudag) eru því horfurnar þær, að
stríðið sé bráðum á enda, af þeirri ein-
földu ástæðu, að Grikkir geti ekki stað-
ið á móti Tyrkjum. Bæði Grikkir og
Tyrkir neituðu um daginn að leggja nið-
ur vopnin, þegar stórveldin stungu upp
á því, og fá þeir því að líkum að berast
á banaspjótum þangað til annar hvor
gefst upp og það sýnist ætla að verða
hlutverk vesajings Grikkja. Að vísu
halda Grikkir enn þá 8 bæjum innan
landamæra Tyrkja, en lítil von til að
þeir megni að halda þeim til lengdar.
Aftur halda Tyrkir Larissa og Volo, en
báðir þeir staðir eru mjög mikilsverðar
herstöðvar Grikkja. í Aþenu halda æs-
ingarnar áfram og bágt að segja hver
verður eúdirinn. Sú eina breyting er
þar á, til batrxaðar, að konungur hefir
rekið Delyaunes stjórnarformann frá og
alt hans ráðaneyti, en tekið tvo and-
stæðingaflokka í staðinn. Heitir stjórn-
arformaðurinn Ralli og hefir með sér úr-
valalið í ráðaneytinu. Hvaða ráð Ralli
tekur er nokkuð óvíst, en ein fregain
segir að liann ætli að kalla til vopne
livern einasta vopnfæran mann á Grikk-
landi.
•Vilhjáhnur Þýzkalandskeisari vill
eignast mikilfenglegan sjóflota, en geng-
ur illa að fá fé til þess, sem þarf. Þing-
ið togar í á móti. Nú er upp komið að
hanrx hefir í kyrþey sent bvéf til yfir-
valda í hinum ýmsu héruðum ríkisins
og sýnt þar fram á, hve verjulaust
Þýzkaland sé að þessu leytinu. Bróf
þetta er þannig útbúið, að hefði einhver
annar en keisarinn samið það, mundi sá
hinn sami hafa verið kærður fyrir land-
ráð.
Alexandra prinzessa af Wales hefir
skrifað LordrMayor í London óg xnint
hann á að það hafi til þessa verið gengið
framhjá öllum hinum aumustu mexðal
fátæklinganna í Louilon, í uppástung-
uniTm öilura um að gleðja menn á fiOára
krýningarhátíð Victoriu. Hún skorar
á menn að skjóta nú saman til að gleðja
þessa aumingja og sendir 100 pund sterl-
ing til að byrja með.
Eimm menn viðriðnir “Globe”-spari-
bankann í Chicago hafa nú verið teknir
fastir, kærðir um fjárdrátt. I þeim
flokki er Spaldiug, forseti bankafélags-
ins sem er augsýnilega þokkapiltur.
Það er víst orðiö að hann gaf stúlku sem
var prívatritari hans, 75,000 og sagð
henni að geyma þangað til hann fengi
h jónaskilnað; því þá ætlaði hann að
kvongast henni.
Fjármálastjóri Brot.a ílutti ársskýrslu
sína 29. f. m. og sýrxdi að tekjurnar á
fjárhagsárinu voru nærri 12J milj. doll-
ars rneiri en gjöldin, og að á árinu var
þjóðskuldin rýrð svo nam nærri 38milj.
dollars.
Grískur auðmaður í Parfs, M. C
Averoff, hefir gefið Grikkjastjórn 30
milj. franka (6 milj. dollufs) í lxerkostn-
aðarsjóðinn. Þvk i' það laglega af sér
vikið.
McKinley Bandaríkjaforseti hefir
útnefnt prest einn. lsaac Hopkins, i
At'anta, Georgia, fyrir ráðherra Banda-
ríkja á Grikklandi. Er það víst alt að
því dæmalaust í sögiinni að prestur
verði ráðherra stjórnar í öðru ííki.
Enn einusiuni gýs upp sú frétt, að
Great Northern forsetinn, James J. Hill
sé búinn að ná haldi á Northern Pac.ifíc
félaginu.
Af síðustu fregnum frá Aþeuu að
dæma, þykir stjórrx Grikkja óálitlegt að
halda áfram stríðinu. Tveir ráðherr-
arnir voru sendir til Tiharsalos á laug-
ardaginn og sögðu álit sitt á fundi í
ráðaneytinu hinn 4. þ. m.
Um 50 manns fórust og undir 200
slösuðust við húsbruna í Paris á þriðju-
daginn 4. þ. m. yikóli ruikill, sem verið
var að halda bazar í, brann til í-úst.a
með öllum yarningrxum. Þegar eldur-
inn kom upp voru í honum 1800 manns.
Grikkir.
Hvað þeir vilja. Hvað þeir
starfa.
Það er svo mikið talað og ritað
um þessar xnundir um þessa litlu,
fornfrægu þjdð, sem fyrrum réði lög-
um og lofum á öllum Balkanskaga og
víðar, og sem svo lengi hefir varð-
veitt eina sttírkvíslina úr Mímis-
brunni, er allir hafa viljað drekkaaf,
að það á ekki illa við að minnast
hennar lftið eitt betur, að því er nú-
tiðavsögu hennar snertii,) en gert er
alrnent í fréttablöðunum.
Eins og flestum er kunnugt er
konungdæmið gríska að eins lítill
hluti af hinu forna Grikkjaveldi, og
liggur á suðurbluta Balkanskagans,
með öðrum orðum á suður hluta aust-
asta skagans (þeir eru 3 alls), sem
gengur úr Norðxirálfu suður í Mið-
jarðarhafið. Á Bal kanskaganum svo
nefnda, eru þessi ríki, auk Grikk-
lands: Tjrrkland, Serbía, Búlgaría,
Montenegro, Bosnia og Hersegovnia.
Allur þessi landfláki liggur sunnan
Ðunár, en fyrir norðaTi það fijót ligg-
ur Rúmenía, er einnig er italið eitt af
Balkanskagaríkjunum. Nyrðstu hér-
uð Grikklands eru Epirus og Þessalía
og liggja þau samhliða suðvestustu
hóruðum Tyrkja: Þrakíu, Mace-
doníu, og Albaníu. 011 fyrnefnd
Balkanskagalönd lutu fyrrum veldi
Grikkja, enda er ekki alllítill hluti
fölks í þeim ríkjum óblandnir Grikk-
ir, er viðhalda sinni gömlu grísku
tungu og skoða sig Grikki og ekkert
annað. Beint suður af Grikklandi,
—-örmjótt sund á milli—liggur eyjan
Krít og er þaðan að eins fárra stunda
sigling til Piræus, en frá l’iræus,
hafnstaðnum, til Aþenuborgar, eru
að eins 5 mílur enskai-. Grikkland
alt liggur þannig milli Tyrklands og
Krítar. Þegar á það er litið og ú^það,
að eyjarskeggjar eru Grikkir að ætt
og eðli, að þeir eiga Grikkjum alt
gott að þakka, en Tyrkjum alt ilt og
að Grikkland er þeirra þrautalend-
ing, og að þar og hvergi annarstað-
ar eiga þeir vfst bæði skjól og hlíf,
þá er sfzt að undra þó Grikkir hafi
hug á að eignast eyna, og það því
t'remur sem eyjarskeggjar sjálfir vilja
það og ekkert annað.
Hið tiltölulega víðlenda hérað
Þessalíu er það sem kallað er slétt-
iendi og er ágætasta akuryrkjuland,
enda framleiðir það land mikið af
kornmat á ári hverju. En þegar
Þessalía er talin, er lika akurland
Grikkja alt talið, eða því nær alt.
Grikkland er fagurt land, fjöll og
dalir skiftast á og firðir hvervetna
inn í land, en í þess orðs almennu
merkingu er það ekki akuryrkjuland.
En beitiland er það ágætasta á fjöll-
um og liæðum og niðri í dölunum er
landið einkar frjósamt og þrífast þar
ýmsir suðrænir ávextir, þó einkum
sóu kúrennuvínberin grísku nafn.
kunn fyrir ágæti sitt. Olíutré og
mórberjatré vaxa þar hvervetxna, svo
og bómullarhrfs, m. fl.
Það eru nú liðin 65 ár siðan
Grikkla.nd í'ékk sjálfsforræði að nafn-
inu, en virkilega eru ekki nema 34
ár síðan. Sjálfsforræðið komekki að
tilætluðum notum á meðan Grikkir
sátu með Otto hinn bæverska sem
konung. Búbótin fór fyrst að verða
sýnileg eftirað Georg konungur hinn
danski tók við ríkinu, en það gerði
hann árið 1S63. Konungdæmið er
smávaxið, ekki nema eitthvað 25
þfts. ferhyrningsmílur, en þó var það
ekki nærri svo stórt, er Georg kon-
ungur kom til ríkis. Epirus og
Þessalía—* ‘kornforðabúr Grikkja’ ’—
voru ekki fengin Grikkjum til endi-
legrar eignar og umráða fyrri en
1881. Konungdæmið, eins ogþaðer
nú merkt á landabréf'unum, er þess
vegna ekki nema 16 ára gamalt. Það
er þess vegna á þroskaskeiði enn,
sem sjálfstajtt ríki, eins og auðsætt er
þegar þess er gætt, að 6. Apríl 1821
sögðu Grikkir sig undan Tyrkjum
og kröfðust að mega stjórnasér sjálfir
Sú bæn var þeim veitt að nafninu
1827, og f virkileikanum 1832,
er hinn óvita sóði Ottar prinz
var skipaður konungur þeirra.
Á þessum 65 árum, eðaöllu held-
ur á stjórnarárum Georgs konungs^
hefir miklu verið afkastað á Grikk-
landi. Það gat ekki heitið að alþýðu-
skóliværi til þar 1832. Nú eru þar
2278 alþýðuskólar, eð barnaskólar,
um 320 æðriskólar, akuryrkjuskólar,
herskóhir, kvennaskólieinn með 1500
til 2000 námsmevjum; fjölfræðaskóli
þar sem allskonar listir eru kéndar
og allskonar smíðar; og háskóli með
120 kennurum og 3500 nemendum.
Öll börn á Grikklandi og grísk börn
til heimilis utan Grikklands líka, eru
velkomin á hina ýmsu alþýðu og æðri
skóla.
Fyrir 60 árum síðan var ekki til
faðmslengdarstúfur af akbraut á öllu
Grikklancíi, ekkert nema slóðir og
troðningar, þar sem laus fénaður og
rlðandi menn höfðu farið hver á eftir
öðrum. Nú eru þar vfir 2000 mílur
af akbrautum, sem alls hafa kostað
fullar 10 milj. dollars. Og margar
af þessum brautum liggja yfir kletta
og klungur og háfjallabálka, sem áð-
ur voru ókleifir uinfarendum. Fyrir
25 árum síðan voru til í Grikklandi
einar 5 mílur af járnbraut, — frá
Aþenu til hafnstaðarins Piræus. Nú
eru þar 700—800 mílur af fullgerð-
um járnbrautum «g er hin síðasta, en
seru tæplega er fullgerð enn
norður um land til Larissa,—kölluð
Piræus-Larissa-braut, þrekvirki mik-
ið frá verkfræðiiegu sjónarmiði. Á
sinum fáu sjálfstjórnarárum hafa og
Grikkir unnið það þrekvirki, er Peri-
ander hinn harðráða Korinþumann
(uppi um 400 f.K.) dreymdi um, og
sem Nero síðar lagði hönd á að vinna,
— en það er skipaskurðurinn vfir
Korinþu-eiðið. Þá hafa og Grikkir
á seinni árum rist fram stöðuvatn
mikið — Kopais — og fengið þar til
notkunar 60000 ekrur (94 ferhyrn-
ingsmílur) af figætlega frjósömu landi
auk þess er þeir með þeiin fram-
skurði leiddu fram í dagsljosið rústir
löngu týndra og gleymdra bæja, sem
fornfræðingar hafa glatt sig við að
raimsaka. Skipastóli Grikkja er og
álitlegur og allurtil orðinn vitanlega
á síðastl. 60 árum. VerzlunarHoti
þeirra árið 1893 samanstóð af 116
gufuskipum, er báru 83508 tons, og
944 seglskipum, er báru 250 þúsund
tons. Það er Ifka sannast, að Grikk-
ir eiga tiltölulega fleiri skip í förum
en nokkrir aðrir meðfram Litlu-Ásíu
ströndum og enda á Duná sjilfri,
—mitt á meðal hrafnanna allra, sem
vaka yfir hræinu, ef hin gríská þjóð
verður lögð að velli. Hvað herflota
Grikkja snertir, þá er það viðurkent,
að hann sé miklu betur búinn að
mönnum og vopnuxn en floti Tyrkja,
þó ekki séu herskip þeirra nærri eins
inörg. Standandi her Grikkja er
smár aðtölunni til, rétt um 25000 alt
talið, ogtil herkostnaðar verja Grikk-
ir á friðartíma um $2,600,000 og fxr
landherinn af þeirri upphæð $2 milj.
en sjóherinn $600 þúsundir. Her-
mannalaunin eru lág, er ráða má af
því, að hæztiaunaði herforingi og að-
míráll fá að eins $1200 laun á ári.
Þessi herkostnaður er mikill þegar
atliugað er, að þjóðin er íámenn og
landið fátækt, en þó er auðsætt að
hann getur ekki verið minni þegar
athugað er, hvílíka hundingja Grikk-
ir hafa fyrir næstu nági'anna. Það
er enda sannað orðið á undanfornum
dögum, að Grikkir hafa varið oíiitlu
fé til herkostnaðar. •
í búnaði öllum hefir framförin
einnig verið mikil á stjórnarárum
Gteorgs konungs. Er svo talið að
jarðargróði allskonar sem þar er
framleiddur á ári hverju nú í seinni
tíð nemi 22—24 milj. dollars, en það
er sem næst hundraðfalt meiri upp-
skera en þar fékst 1830. Þó þurfa
Grikkir enn að kaupa $5 til $7 milj
virði af kornmat og öðrum slíkum
efnum í fæðu á erlendum markaði á
ári hverju. En svo smálíður að því,
að taki fyrir þau innkaup, því Þessa-
líuvellirnir geta framleitt allan þann
kornmat og enda meira. Það sem
stendur á, er járnbrautabygging um
það hérað, og að því verki er nú unn-
ið svo ört sem efni leyfa. Sem sagt
hafa Grikkir aukið framleiðslu jarð-
ar hundraðfalt á síðastl. 60 árum og
samtímis hafa þar sprottið upp gufu-
knúnar verksmiðjur, er samtals hafa
kostað um 7 milj. dollars. Þetta
hvor tveggja er órækur vottur um
alvarlega framíör í búnaði öllum og
verknaði.
Það heíir stundum verið kvart-
að um og, ef blöðunum sumum má
trúa, ekki máske ab-eg að ástæðu-
lausu, að Islendingar áltti landsmcnn
sína og frændur ekki íslendinga held-
u ’ útlendinga, frá þeirri stundu er
þr ir festa sér bú í öðrum löndum.
Grikkir hafa nokkuð öðru vísi álit í
þýí eíni. Það cr löngu síðan viðtek-
id sem hefð á Grikklandi, frá hinum
æðsta valdsmanni til hins lægsta, að
skoða alla gríska menn, livar í heimi
s< n þeir eru, sjálfsagða þegna Ge-
ox gs konungs og sanna syni gamla
Giikklands, svo fraraarlega sem þeir
sj v.lfir vilja heita grískir menn. Að
sarneina alla gríska menn í al-grikkja
v< !di (Pan-Hellenie power) er löngun
þ' 'i’ra. Hvort sú hugmynd nokk-
ui a tíma verður meira en draumhýr
vtn, það er eftir að vita. En einu
sinni að minsta kosti liafa þeir gei’t
virkilega tilraun til framkvæmda 1
því efni. Það gerðu þeir þegar kjósa
sWyldi konung í stað Ottars og semja
ný a stjórnarskrá, eða öllu heldur,
þe:;-ar umsteypa skyldi stjórnar-
skrána, er Grikkir loks þröngvuðu
Ot-tnr konungi til að gefa þeim árið
1843. Þá var kallaður saman “al-
heHeniskur” þjóðfundur og var svo
ák eðið, að hvar sem saman væru
ko.nnir 100 gi’lskir menn, mættu þeir
sei’da einn fuiltrúa á þjóðfundinn til
að ræða sérstök þjóðmál Grikkja. Og
á þeim fundi mættu síðan fulltrúar
grlskra borgara i ýmsum Norðurálfu-
löndum, frá Litlu-Asíu ströndum og
frá Egyftalandi og sátu á sama bekk
og Aþenumenn, Þebumenn og Spart-
verjar. Þessum mönnum kom svo
vci saman um það, hvað þjóðinni
væri fyrir beztu, að af 241,202 at-
k\æðurn, sem fundarmenn framvís-
r.ðu fékk Gcorgc Danaprinz 230,016
atk ’æði sem konungur Grikkja. Og
a peTín lunui vai' saniín’ og samþyat
stjórnarskráin sem enn er í gildi.
ITve frjálsleg hún er,má rneðal annars
ráða af því, að á Grikklandi hafa 311
af hverjum 1000 manns kosningar-
rétt, en á Englandi hafa þann rétt
ekki nema 166 af 1000 og á Frakk-
landi, þar sem þó er talið að allir
hafi atkvæði, ekki nema 270 aí hverj-
um 1000 manns. Með þesájim þjóð-
fundi sýndu Grikkir að það er meira
en meiningarlaust orðaglamur, að
allir grískir menn séu grískir þegnar
ef þeir vilja nýta það.
En á hverju byggist þá þessi
al-grikkjaveldis hugmynd? Það
er ekki anðið að segja, en víst cr
það að, eldgömul þjóðtrú á ekki all-
lítinn þátt í að þessi hugmynd helzt
við Ilði og verður skýrari og greini-
legri eftir þvl sem árin li'ða. Þessi
gamla þjóðtrú er þess efnis, að þeg
ar Grikkir í annað sinn eignist kon-
ung sem Konstantinus heiti og drotn
ing hans heiti Sophia, þá hnígi
Mikligarður (Konstantinopel) í skaut
Grikkja á ný og allar þær landeign-
ir, sem þeirri borg fylgja. Nú heit-
ir ríkiserfingi Grikkja Konstantinus
og kona hans heitir Sophia (systir
Vilhjálms á Þýzkalandi), og fari alt
með feldu verða þau á sínum tíma
konungur og drottning á Grikklandi
Eftir er að vita hvort þjóðtrúin þá
rætist að því er Milclagarð snertir.
Það sýnist enganveginn óhugsandi,
þó víst verði .Konstantinus þá að
verða sigursælli í orustum, en hann
hefir verið undanfarna daga, því
ekki verður betur séð en veldi
Tyrkja hljóti bráðum að verða af-
máð úr Evrópu, og þá sýiiist enginn
standa nær eignunum, en hinir upp-
runalegu eigendur þeirra—Grikkir,
Þeir eru virkilega betur komnir að
allri landeiguinni sunnan Dunár en
annaðtveggja Rússar eða Austurrík-
ismenn, en báðir vilja ná landeign
Tyrkja undir sig, eða þeim hluta
hennar, em þeir ekki nú þegar hafa
náð haldi á til hálfs, ef ekki að öllu
leyti. Að vísu er langt frá að stór-
veldin viðurkenni rétt Grikkja til
síns forna veldis. Þvert á móti hafa
þau ekki enn afbent Grikkjum alla
landspilcluna, sem þeim var veitt
með Berlínar-samningnum 1878.
Cheapside,
Abatast a reynslunni.
Centa afslattur
i fatabud vorri.
Hver sem sýnir oss þessa auglýs-
ingu, á heimting á því að 20% sé
sleginn af öllum alfatnaði sem hann
kaupir ef verðið er ixpprurialega
meira en $5,00. T. d. föt sem eru
merkt $6,00 fást fyrir $4,50 og föt
sem kosta $10,00 f.ist fyrir $8,00.
Vér höfum eitt hið stærsta og bezta
upplag af fatnaði sem til er hér í
Winnipeg, og verðið er mjög lágt.
CHEAPSIDE,
578 og 580 Main St.
Rodgers Bro’s
CCO.
P.O. Box 639.
Það var ekki fyrri en 1881 að þeir
fengu Þessalíu og Epirusog enn eiga
þeir eftir að fá sneið allmikla þvert
yfir landið. Landamerkjalína sú
sem nú er látin heita í gildi liggur
nokkru sunnar en Olympusarfjall,
en samkvæmt Berlínar-samningnum
liggur húnæðispöl fyrir norðanfjallið
Að til er bandalag stórveldanna til
að halda Tyrkjum við líði innan
Norðurálfu—þessum austrænu bar-
börum, sem ekki hafa meiri rétt en
Kínverjar til að ráða ríki í Norður-
álfu, það er sú skömm sem seint verð
ur þvegin af hinum kristnu stórveld-
um. Og enn á þessum allra sein-
ustu árum upplýsingaaldarinnar
verður ekki betur séð en að stórveld-
in ætli að leyfa Tyrkjum að strá-
drepa Grikki, ef þau ekki beinlínis
hjálpa þeim til þess, er nokkuð ligg-
ur nærri að sé. En ein* (g nóttiu
er myrkust rétt fyrir aftureldinguna
eins vona, Grikkir xið á eftir myrkr-
iiiu, sem nú er umhverfis þá, omi
innan skamms bjartur dagur heilla-
ríkrar framtfðar. Og sú von þeirra
er ekki algerlega fistæðulaus Ilvort
sem hin nýbyrjaða styrjöld heldur á
fram eða ekki, er útlit fyrir að
bandalag stórveldanna sé um það að
rofna, er ciginlega rofið nú, nema í
orði kveðnn og í orði kveðnu haxigir
það saman að eins vegna alinennrar
löngunar að fyrirbyggja allslierjar
Norðurálfustríð, en sem liæpið er að
komist yrði hjá, ef það rofnaði alger-
lega. En sem sagt er.það svo gott
sem rofið nú og er þá þannig skifi,
að með Grikkjum eru undir niðri, ef
ekki á ylirborðinu, Bretar, Frakkar
og Italir, en með Tyrkjum, Rússai,
Þjóðverjar og Austurrfkismenn. Það
leynir sér ekki að Grikkir og veidin
þrjú með þeim gætu á stuttri stund
tekið Konstantínópel og lokað Ilellu-
sundi. Það leynir sér heldur ekki,
að það er hagur þessara þriggja
ríkja að aftra Rússum frá að hremma
og verða alvöldum yfir innsigling-
unni á Svartahafið og þess vegna
auðvitað eru þau nú undirniðri með
Grikkjum. Þessi afstaða tekur að lík
um lítilli breytingu, þó svo færi nú
að gengið yrði á milli Grikkja og
Tyrkja og friði á komið um stund.
Af því leiðir svo, að þegar loksins
Tyrkinn verður flæmdur austuryfir
sundið, og að því líður óðum undir
öllum kringumstæðum, að það er
enganveginn ólíklegt, að þessi þrjú
veldi, sem nú eru með Grikkjum í
anda, kysu þá heldur að fá þeim
Miklagarð’en Rússum 0g þá að lík-
um mesta ef ekki alla hina forn-
grísku landeign sunnan Dunár.
Það er valt að treysta því, að
ein eða önnur þjóðtrú rætist, en
margt hefir komið fyrir ólíklegra en
að hún rætist hjá Grikkjuin. Það er
öll von lilað Konstantinus og Sophia
verði stjórnendur Grikklands innan
í;'.rra ára, þaðw OH voti vil að
inn verði flæmdur úr Evrópu innan
fárra ára og þá er það enganveginu
ólíklegt að Grikkir, fremur en Rúss-
ar, fái hina svo kölluðu tyrknesku
landeign til umráða. Verði það,
rætist þjóðtrú Grikkja.
Eins og Grikkland er nú af-
markað telur það í mesta lagi 3
milj. íbúa, 0g er að flatarmáli 25,000
ferhyrningsniílur. En eins og Grikk-
ir vilja að það verði og vona stað-
fastlega að þxxð verði, þegar Duná
vcrður landamerkjalínan, telur það
21 milj. íbúa og er að fiatarmáli 193,
000 ferhyrningsmílur, Fylgjandi
skýrsla sýnir stærð og fólasfjölda
Balkanskagarikjanna sunnan Dunár
og sem Gaikkir rvona að verði sín
viðurkend eign'fyrr eða síðar:
Nöfn ríkjanna Ferh.mílur íbúatal
Bosnia og
Ueizegovri'a 57,000 4,700,000
Montenegro 3,500 300.000
Búlgaría 24 500 3,500,000
Serbia 19.000 3,000,000
Tyrkland 64,000 6,500,000
Grikkland 25,000 3,000.000
193,000 21,000,000
Tlfi PÉfifi cifitií Stl'fi,
458 MAIN STREET.
---*---
Hver sem kemur í búð vora til að kaupa
eitthvað og hefir með sér þessa auglýsingu
eins og hún stendur f Ileimskringlu til
sýnis, fær 20% afslátt af öllu sem hann
kaupir, — alfatnaði og yfirhðfnum, buxum
og öðru fatnaði tilheyrandi-------------------------
Góð kaup á höttum, húfum, skyrtuin, hálsbindum,
krögura og öðru þessháttar.
The Palace Olothing Store,
458 >1 A.IINT STBEET.