Heimskringla - 02.12.1897, Side 2
HEIMSKRINGLA, 2. DESEMBER 1887.
Ileiniskriiigla.
Published by
Walters, Snainton & Co.
"Verð blaðstins í Canada og Bandar, $1.50
nm árid (fyrirfram borgað). Sent til
íslands (fyrirfram borgað af kaupand-
"<m blaðsins hér) $1.00.
Peningar seudist í P. 0. Money Order.
Registered Letter eða Express Money
O’-der. Bankaávísanir á aðra banka en í
Winnipeg að eins teknar með afföllum.
Einak Ólafsson,
Editor.
B. F. Walters,
Business Manager.
Office : Corner Princess & James.
P O BOX 305
Kosningarnar.
Þingmannsefni konservatívá-
flokksins vann aukakosningarnar í
Turtle MounJ;ain A föstudaginn var,
með 141 atkvæðum fram yfir mót-
sækjandann ,Mr. Nicol, liberal, þrátt
fyrir það þó Greenwaystjórnin gerði
sitt bezta tíl að halda kjördæminu,
og þrátt fyrir það þó þrír af ráðgjöf-
um Greenways, ásamt ýmsum ræðu-
mönnum frá liberalhliðinni gerðu
sitt ýtrasta til að bjálpa þingmanns-
efni stjórnarinnar. Þetta kjördæmi
hefir alt af verið liberal, þó atkv.
munur hafi stundum verið lítill —
23 við síðustu fylkiskosningar — og
er þessi sigur konservatíva því
töluvert stórfeldur og þýðingarmik-
ill, því þegar það er athugað, að af
753 atkv. sem greidd voru, fékk
þingmannsefni stjórnarinnar að eins
297 á móti 456 fyrir þingmannsefni
konservatíva, þá er auðséð að skoð-
anir kjósenda hafa breyzt stórkost-
lega, síðan um síðustu kosningar.
Þeir sem hjálpuðu Mr. James John-
son þingmansefni konservatíva í
þessíhn kosningum voru þeir Hon.
Hugh J. Mcdonald, Roblin og Hast-
ings, og er það sjálfsagt mikið þeím
að þakka að þessi skoðanabreyting
heflr komist á. Síðan Hon. Hugh
J. Macdonald varð leiðtogi konser-
vatíva hér í fylkinu og síðan hann
fór að ferðast um,og halda þólitiskar
ræður og gefa fólki bendingar um
gallana á núverandi stjórn, og
bemdingar, um hvað gera þyrfti til
að bæta úr þeim, hefir fylgi kon-
servatívaflokksins aukizt stórkost-
Jega og allur flokkurinn í heild sinni
fengið nýtt starfsþrek og nýja von
um sigur við næstu kosuingar. Al-
menningur er nú farinn að sjá að
hér er leíðtogi, sem flestum mönnum
fremur er fær til að handleika stjóm
mál, og um leið leiðtogi sem er
“gentlimaðnr“ í orðsins fylsta skiln-
ingi, hvar sem hann kemur fram;
og á því persónulega skilið virðingu
pólitiskra móthaldsmanna sem með-
haldsmanna.
Mr. Nicol, sem sótti af hálfu
stjóruarinnar, er maður vel Iátinn,
og er af því auðséð að hann tapaði
ekki af því að kjósendur hefðu nokk
uð persónulega út á hann að setja,
heldur augsýniiega af því að hann
hafði aðrar skoðenir á málum fylk-
isins, heldur en kjósendurnir gátu
'felt sig við, og cr siguf konserva-
tíva enn meiri fyrir það.
Liberalar reyndu að hampa
skólamálinu og Duluth-brautinni
fiamini fyrir kjósendunum, en hvor-
ugt dugði. Menn eru farnir að hafa
litla trírá Duluth-brautar-bollalegg-
ingum Mr. Greenwoys, og loforðum
um niðurfært flutningsgjald etc, og
skólamálsgrýlan hafði öíug áhrif við
það sem ætlast var til, enda er við
því að búast, og má niikið vera, ef
liberölum verður ekki hált á því
máli áður en langt lfður, ef þeir
halda áfram að brúka það sem póli-
tiska vofn lengur. Það er aðgæt-
andi að afstaða pólitisku flokkanna
við þetta mál heíir breyzt æði mik-
id f seinni tíð. Konservatívar héldu
því fram að kaþólskir menn hér í
fylkinuættu heimtingu á sérstökum
skólum samkvæmt stjórnarskránni;
og konservatíva stjórnin 1 Ottawa
gerði þar af leiðandi tilraun til að
gefa þeim aftur þessi réttindi, sem
hún Aleit vera, en henni enfist ekkí
aldur til þess. Þingið var uppleyst
6ð ir en lögiu gengu í gegn, og ein
mii t r;purningin um það hvort Do-
’mii. orstjórnin ætti að rétta hluta
kaþólskra manna hér í fylkinu á
þ uii, i Kátt, að gefa þeim aftur sér-
staka skóla var aðal epurningin sem
kjósendur áttu að svara við síðustu
Dominion-kosningar. Þessari spurn
ingu svörgðu þeir með því að setja
konservatívu stjórnina frá völdum,
stjórnina sem einmitt hafði lofast til
að rétta hluta kaþólskra, og þeir
sem aðallega riðu baggamuninn voru
kaþólskir kjósendur í kaþólska fylk-
inu Quebec. Með þessu hafa þeir
sýnt að þeim var ekki eins mikið á-
hugamál að fá umbótalögin eins og
þeir létu, og svo er þá ekki lengur
ástæða fyrir konservatívaiflokkinn að
berjast fyrir þeim málum- Hjálp
þeirra var ekki þegin þegar hún var
boðin, og svo bjóða þeir hana ekki
framar án þess beðið sé um. Liber-
alar hafa aftur á móti geflð kaþólsk
um mönnum, hér og öðrum, réttindi,
sem þeir áftu enga heimtiugu á sam-
kvæmt stjórnarskránni, og sem geta
valdið ómetanlegum kostnaði og
þvælum ef þau væru notuð, og þar
eð páflnn er nú óánægður með þau
réttindi sem þeir hafa fengið, þá eiu
líkur til að þeir biðji um meira, og
um leið ástæða til að halda að reynt
S-rði að gefa þeim dálítið meira af
réttindum sem þeir eiga enga heimt-
ingu á, því stjórnin í Ottawa veit ó-
sköp vel að ef hún tapar fylgi kaþ-
ólsku þingmannanna, þá er hún
bara blátt áfram dauð, og það er svo
mikið samband milli fylkisstjórnar-
innar og Ottawastjórnarinnar, að
þær munu gera sitt bezta til að
þóknast hvor annari.
Eins og sterdur er þá orðið því
sem næst hausavíxl á málunum. Li-
eralar eru búnir að veita kaþólskum
mönnum réttindi sem þeir áttu enga
heimtingu á, og það eru líkur til að
þeir auki þau réttindi enn meir til
þess að halda fylgi kaþólsku þing-
manna. Þeir ern þannig orðnir er-
indsrekar kaþólskra, og óþægilega
háðir þeim; en á hinn bóginn geta
konservatívar nú setið hjá og látið
þessi mál afskiftalaus, því fyrir að-
gerðir Ifaþóiskra manna. við síðustu
Dominionkosningar er konservatívi
flokkurinn undanþeginn öllum sKyld
um við þá, og hefðu enda ástæðu til
að mótmæla þeim réttindum sem lí-
beralar hafa gefið, því þau eru fyrst
og fremst kák, sem ekki kemur að
notum, og svo ná þau til fleiri en á-
stæða var til.
Konservatívar þegja nú og
skoða málið dautt í bráðina, að
mlnsta kosti. Þeir vilja gjarnan að
það komi ekki upp aftur, þvf fæstir
þeirra börðu*t með sérstöku skólun-
um af þvl þeim þætti svo vænt um
þá, heldur af því þeim fanst kaþólsk-
ir menn eiga heimtingu á þeim sam-
kvæmt stjómarskránni, en ef liberal-
ar halda áfram að kreista þennan
“kerlingareld” lengur, þá er hætt
við að konservatívar noti sér kring-
umstæðurnar, sem síðustu Dominion-
kosningarnar settn þá I.
Þessar nýafstöðnu kosningar
virðast vera forboði þess að lífdagar
Greenwaystjórnarinnar séu nú farn-
ir að stytiast, og sumir segja að þær
minni á aukakosningamar sem fóru
fram í St. Francois Xavier nokkru
áður en Harrisonstjórnin byltist úr
völdum héma um árið.
Aukalögin.
Aukalögin sem gengið var til at-
kvæða um á miðvikudaginn í fyrri
viku, og sem heimila bæjarstjórninni
að taka til láns $700,000 til að gera
nýja vatnsleiðslu fyrir bæinn, gengu f
gegn með miklum atkvæðafjölda fram
yfirþaðsem þurfti; að eins 83 atkv.
voru á móti. Það dugði ekkert þó
gamla einokunar vatnsleiðslufélagið
sendi út tilkynningu um að það mundi
selja vatn sitt því sem næst 75% dýrara
heldur en það hefir gert, ef aukalög
þessi væru samþykt, og er það hrós-
vert að menn skyldu taka svona hik-
laust fyrir kverkarnar á þessu einveldi
sem hefði getað; orðið bænum til hins
mesta háska. ef þvi hefði verið leyft að
búa um sig betur, og gera bæinn háð-
ari sér heldur en enn er orðið. Það
getur verið að félagið standi við orð sín
og hækki' verðið á vatninu, — bæði því
vatni sem það leiðir inn í prívathús, og
eins því er bærinn kaupir af þvi til að
skola með lokræsi á götunum —, upp í
hæsta verð, sem leyft er i réttindaskrá
þess, og gæti leitt af því töluverð-
an kostnaðfyrir bæinn, scm uadir ðll-
um kringumstæðnm yrði aÓ fá hjá því
vatn til að skola flest lokræsi á götun-
um, en það væri heimska fyuir félagið
að gera slíkt. Það sem félagið langar
til fyrst og fremst, er aðhafa algert ein-
veldi, og það sem það langar til næst,
ef það getur ekki komið því fram. er að
selja bænum þau áhöld (vatnsleiðslu-
pipurnar að minsta kosti), sem það hef-
ir, en því meir sem það þröngvar kost-
um bæjarins nú. því minni likur eru til
þess að hann kaupi nokkuð af áhöldum
þess, enda hvílir engin skylda á honum
að gera það. Félagið hefir að eins leyfi
til að starfa um vissan árafjölda, og á
þeim tíma hefði það átt að sjá svo um,
að það yrði ekki í bapi þó það þyrfti að
hætta að þeim tíma liðnum, og það
mun það líka hafa gert; en alt um það
er auðvitað ekkert á móti því, að bær-
inn kaupi áhöld þessi sanngjörnu verðí,
ef þau reynast brúkleg, og ef félagið
setur bænum ekki neina afarkosti,
þetta sem eftir er af starfstíma þess, en
brúki það ósvífni, er engin ástæða til að
geðjast því,
Hin nýja vatnsleiðsla kostar bæinn
afar-mikið í fyrstunni, en eftir þeirri
reynslu sem fengizt hefir annarsstaðar.
þá margborgar hún sig með tímanum;
fyrir utan það sem vatnið ætti að vera
betra, ef þær rannsóknir sem gerðar
hafa verið eru nokkurs virði, og svo
mikið að það dygði bæði til húsa og til
þess að skola ræsin, sem hingað tilhafa
verið hreinasta pestaruppspretta í bæn-
um sökum vatnsleysis, Yfir höfuð
virðist heppilegast að bærinn eigi sjálf-
ur öll þau áhöld sem þarf til ljósa,
vatnsleiðslu og annars, er kemur að
sameiginlegum notum, og hafi sjálfur
umsión á því. Með því móti mundu
fieiri geta notið þessa útbúnaðar og
kostnaðurinn hlyti að verða minni,
heldur en hann yrðí ef félög hafa ráð
yfir þessum málum, þar eð allar álög-
ur i sambandi við það rynnu í bæjar-
sjóð. og bærinn fengi þannig ágóðann,
sem annars rennur í einstakra manna
vasa, en sá ágóði gæti aftur orðið til
þess að skattsr á eignum manna lækk-
uðu í bænnm. Að það sé ástæða til að
halda þessu fr^uu. sést af því, að t. d. í
Glasgow á Skotlandi eru engir skattar
borgaðir af fasteignum í bænum, því
bærinn fær allar þær tekjur sem hann
þarf fyrir ljós, vatnsleiðslu og ánnað,
sem til saraeiginlegra nota heyrir, Það
er auðvitað að þessu verður ekki komið
á alt í einu. í ungum og hálfbygðum
bæjum, en að voru áliti ætti að halda i
áttina til þess eins fljótt eins og tæki-
færi gefast; og það er vonandi að hin
röggsamlega framkoma Winnipeg-
manna í þessu máli sé byrjunin en ekki
endirinn á því að losast algerlega úr
höndum einráðra einveldisfélaga, sem
hingað til hafa haft íöglin og hagldirn-
ar, og eru reiðubúin að stiga á hálsinn
á bæjarbúum hvenær sem er.
Leiðarþingið.
(Niðurlag.)
Stj órnar skrár niálið.
Jón frá Sledbrjót skýrði í örfáum orð-
um frá gangi málsins á þingi, en kvaðst
ekki finna ástæðu til að fara lengra út, í
það, með því að fundarm. væri ljós
stefna þingmanna f málinu.
Þoret. Erl.: Það er rétt, við þekkj-
um úr blöðunum gang málsinsog stefn-
ur þingmannanna. En hitt er oss óljós-
ara, hvað ráðið hefir þessum stefnum.
Um framkomu þess þingmans, sem hér
er ekki staddur, skal heldur ekki talað
hér, en Jón frá Sleðbrjót vil ég spyrja að
þessu : Hvernig stendur á því, að hann
greiðir atkv. móti fry. efrid., þegar
þingmálafundur hér í vor fer eindregið í
miðlunar átt og sjálfur þingm. lýsir því
að hann sé kosinn miðlunarmaður?
Þetta gæti þingm. skýrt fyrir okkur.
Ji'rn. frá Slb.: F.g hefi verið miðlun-
armaður og er það enn, en ég tek ekki
miðlun svo sem það sé sjálfsagt að gleipa
við hinu fyrsta og versta sem stjórnin
býður, og auk þess skoða ég þetta frv,
ekki einu sinni sem stjórnartilboð held-
ur biður þingið um þetta, og auk þess
sem lítið væri unnið, þá væri þetta bein
uppgjöf á kröfunni um, að mál okkar
vseru utan ríkisráðsins þegar þetta væri
samþ. orðalauat, og gengist eins og þegj-
andi undir skilyrði stjórnarinnar í ráð-
gjafabréfinu. Þannig skildi ég og fleiri
þetta bréf og samband þess við frv. En
með þessu væri aftur gefin upp sú aðal-
krafa sem öll okkar stjórnarbarátta
hefði snúist um. Ráðgjafinn sæti eftir
sem áður í ríkisráðinu, væri búsettur í
Danmörku og yrði fyrir áhrifum Dana.
Eg álít þjóðina ekki svo þreytta, að svo
þurfi gjörsamlega að hopa á hæi og
leggja árar í bát.
Þ. Erl.: Hvað er gefið npp og Uvar
komur sú nppi |öf fiam ? G t'ir nokkur
raannlegur ki,.ft"r bannað mér, þing,-
manninum eða nckk-’im öörum að láta
dynja á ráðgjafauum J;ogar á íyrsta
þingi ailar okk.ir stj; r.rbót "ki öfur
fullor, o'i bækkaðar uia l. fliui^gef /ið
viljum ? Og ráðgjafinn getur hvergi
vitnað í orð eða eið þar sem þessar kröf-
ur séu t efnar upp, og því síður í ráð-
gjafabréfið. Sú þræta er dómstólamál.
sem löggjöfin þarf ekki að mótmæla.
Þessi uppgjöf er því ósönn og ekki rétt
að beita slíkum vopnum. — Ég sé ekki
beldur að neitt sé satt í þvi, að lausnin
úr ríkisráðinu hafi verið kjarninn í
stjórnarskrárbarátiu okkar. Ég hefi
skilið hana alt öðruvísi, og meira að
segja, ég sé ekki að við værum hótinu
bættari þó mál okkar væru nú alger-
leva laus við ríkisráðið, en væru þó i
hðndunum á dómsmálaráðgj. danska
eftir sem áður. Það er þvi svo langt frá
að vera kjarninn, að það er einu sínni
ekki aðalkrafan. — Stjórnin bauðst ein-
mitt sjálfkrafa til að ganga að þessu
frumv. Dr. Valtýs. Það er miðlnn sem
engu spillir en eetur vel orðið til mikils
góðs, og móti henni hefir þingm. greitt
atkv.
Jón frá Slb.: Ég átti að eins við það
að þjóðin gæfi upp bardagann fyrir því
sera hún hefði barizt fyrir hingað tll o?
tæki nú það sem hann áliti mjög lítið
gagn að.
Þorst. Erl.: Ég hefi skilið svo alla
okkar stjórnarskrárbaráttu, og það er
mín skoðun og mín stefna, að við höf-
um barist og eigum framvegis að berj
ast fyrir því. að ná löggjöf og landstjórn
sem mest undan áhrifum Dana, en til
þess er fyrsta stigið að við finnum veg,
sem við hrincLum ekki hver öðrum út af
og getura sern flestir fylgst á. Það
mætti stefna béiná leið að algerðri sjálf-
stjórn í einhverri mynd, svo sem frest-
andi neitunarvaldi. skorðuðum st.aðfest-
ingarrétti Iandstjóra. eins og í nýlend-
um Breta, eða þá algerðu þingræði.
Þessi stefna er mér kærust, og þó get
ég ekki fylgt henni, og ég skal segja af
hverju : Leiðin er afarlöng og dýr, og
ég sé engan þann foringja, sem geti
haldið hernum saman á þeim öræfum.
Eg sé þar ótal tvístranir, ótal miðlanir,
ótal bríxl og illyrði, og á meðan bíður
þjóðin í hers höndum með öllum at-
vinnuvegum í ólagi.
Hin leiðin er að fara það sem kleyft
er, þar er hægra að fylgjast að, og
hvernig sem fer höfum við heldur unnið
en tapað. Verði ráðgjafinn okkar megin
getur hann gert okkur stórgagn, en
svíki hann okkur ætti það að verða nóg
til þess að þjóðin sameinist móti honum
sem einn maður, ef hún er ekki dáðlaus.
Hvorugri þessari stefnu hefir þingm.
orðið að liði, og því köllum við hann
hafa illa að verið. Frv. neðri d. á jafn-
langa leið til sigurs eins og algerð sjélf-
stjórn, en launin að lokum ærið mögur
fyrir þær þrautir, svo mögur, að um
þau verður Islendingum aldrei safnað,
og engri þjóð annari.
Fundnretjóri : Allar ástæður móti
þvi, að ráðgjafinn sitji i ríkisráðinu, eru
óþarfar. Ég veit engan Islending sem
því hefir haldið frarn og stjórnarfkráin
segir að sérmál íslendinga eigi þar ekki
að vera. I ráðgjafabréfinu sést að eins
skilningur annars málspartsins á því at-
riði, og getur ekkí verið bindandi fyrir
skilning okkar né löggjöf, því stjórnin
veit eins vel og við að þetta er laga-
skýringarspursmál og úr því eiga dóm-
stólar að skera en ekki þing eða stjórn.
Hugsunargangur þingmannsins um að
frv. efri d. lögleiði ríkisráðið, er mér ó-
skiljanlegur.
Jón frá Slb.: Ég get ekki við því
gert. en svona skildi bæði ég og fleiri
bréfið. Mér þótti aðstaðan 111 að báðum
þessum stefnum sem Þorsteinn benti til
Eg er miðlunarmaður og hallaðist því
að frumvarpi neðri deildar. Af tvennu
illu taka það skárra. (Þorst. Erl.: Betra
að ganga en að ríða flókatrippi).
Sknfti Jón.: Gaman að heyra ástæð-
ur Jóns i Múla fyrir sinni stefnu af því
hún var svo skyld stefnu hins þingm.
okkar; skora á þingm. að gera það þó
það sé reyndnr ekki skylda hans að gera
það hór.
Þoret. Erl.: Altaf gott að heyra
Jón í Múla tala, en ég vil þó sérstaklega
skora á Skafta að standa upf» aftur og
segja sína skoðun á málinu, sem hann
hefir lofað okkur og við bíðum eftir.
Hór er hvorttveggja ágætt, stund og
staður. (Skafti: nei, ekki núna).
Fundnntjóri : Frv. neðri d. vand-
ræða frv., rangt að gefa Dönum það
undir fótinn, að við álítum ákvæði
stjórnarskrár okkar marklaus eða ónýt.
JónfráSlb. spurði hvort fundar
stjóri áliti S"tu ráðgjafa í ríkisráðinu
þýðingarlausa ?
Fundurstj.: Mjög þýðingarmikla á-
lít óg hana ekki, en einkum legg ég á-
herzlu á það, að hefði frv. efri d. orðið
að lögum, þá hefðum viðfljótt fengið að
sjá hvort hann átti að sitja þar eða ekki
Jón frá Sl. Það er einmitt þýðing-
armesta atriðið í stjórnarskrárbaráttu
okkar eins og ég hefi tekið fram. það
sést bezt á því, að Danir haldadauða-
haldi í þetta atriðið sem sterkasta band
ið millí ísl. og Danm.
Þont. Erl.: Þetta er engin sönn-
un. Það eitt að Danir halda fastast á
einhve ju er engin óræk vissa fyrir því
að okktir ríði mest á að ná einmitt í
það, Okkur getur verið miklu betri ísl.
ráðgjafi i ríkisráðlnu, en danskur ráð-
gjafi. sera ekki er í því, og hvar er þá
sönnunin;?
Jón i Múla: Eg hafði ekki ætlað
hér að gera grein fyrir stefnu roinni á
þingi eða ástæðum mínum, óg skýti
Niðurhg á 3. bls.
Fyrir Hatidirnar
seljum við allar tegundir af yíni með
óvatialega lágu verði, svo sem
SPÍRITUS,
ROMM
BRENNIVIN,
WHISKEY, o. fl.
Einnig höfum vér það sem kallað er
NATIVE WINÉ,
Ijómandi dryakur, fyrir 25c pottinn.
E. Belliveau & Co.
620 Main Street.
Sérstök Kjörkaup
----A ALLSKONAR - —
CHINA HALL.
572 Tlain Str.
L H COMPTON,
ráðsmaður.
THE——
Hart Comyany <>-«)
Bóka og rit-
fanga-salar.
Farið til þeirra þegar þið þarfnist bóka
og ritfanga. Númerið er
364 Main St.
WINNIPEG.
Munið eftir Því
að beza og ódýrasta gistihús (eftir
gæðum), sem til er í Pembina Co. er
Jennings House,
Cavalier, N. Dak.
PAT. JENNINGS, eigandi.
Bnmswick Hotel,
á horninu á Main og Rupert St.
Er eitt hið ódýrasta og bezta gistihús í
bænum. Allslags vín og vindlar fást
þar mót sanngjarnri borgun.
McLaren Bl'O’s, eigendur.
THE GREAT
NORTH-WEST
SADDLERY HOUSE
er staðurinn þar sem hægt er að
kaupa alt sem Jýturaðaktýgjum
og hnökkum, einnig leður og
allan útbúnað sem brúkaður er
við hesta, og svo kistur, töskur
og svipur og stígvélaleður af
öllum tegundum.
Sendið eftir verðlistanum okk-
ar. Það kostar ekkert.
Corner Main og
Market Street.
WINNIPEG, MAN.
$40
ANNUAL
EXCURSIONS
til allra’staða í; Austur Canada fyrir
vestan Montreal. Til staða fyrir austan
MoAtreal tikölulega jafnlágt fargjald.
Farbréf verða seld frá 6. til 31. Des.
Tíu dagar leyfðir til ferðarinnar austur
og 15 dagar til baka. Farbréf gild fyrir
ÞRJÁ MÁNUÐI frá söludegi, og fram-
lenging á þeim veitt ef um er beðið.
Menn geta kosið um hvaða braut sem'er
TIL - -
EVROPU.
Farbréf seld með sérstaklega lágu verði
og sérstök hlunnindi í sambandi við þau
CALIFORNIA
EXCURSIONS.
Farbréf með lægsta verði aðra eða báð-
ar leiðir til Kyrrahafsins^og allra staða
I Californiu. — Umboðsmenn Northern
Pacilic félagsins gefa allar nánari upp-
lýsingar, munnlega eða skriflega.
H. SWINFORD.
Aðal-agont • - Winflipeg.
Ward 4.
E. D. Martin,
forseti Martin Bole & Wynne fé-
lagsins, gefur hér með kost á sór
til þess að sækja um bæjarfulltrúa-
embættið í Ward 4, og gerir hann
það fyrir beiðni flestra skattborg-
enda í þeirri kjördeild.
Þeir sem þurfa að
kaupa - harðvöru,
ættu að’ sjá okkur
áður en þeir kaupa.
Við seljum meðal annars
HITUNARVELAR,
HUSBUNAÐ,
LKIRTAU.
GLERVARNING, &c.
Alt með lægsta hugsanlegu verði.
W. J. Craig & Co.
Cor. Main & Logan St.
Islending’ar !
Þegar þið komið til Pembina, þá
munið eftir því að þið fáið þrjár góðar
máltíðir á dag og gott og hreint rúm fcú
að sofa í, alt fyrir $1.00, á
Headquarters Hotel,
H. A. Murrel, eigandi.
Pembina, N. Dak.
-tSteinoliar-
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Ég sel steinolíu hverjum sem hafa vill
odýrara en nokkur annar 1 bænum. Til
hægðarauka má panta olíuna hjá G.
Sveinssyni, 131 Higgin Str.
D. McNEIL,
38 MCDONALDST.
OLI SIMONSON
MÆLIR MEÐ SÍNU NÝJA
Fæði $1.00 á dag.
718 Jluiit 8tr.
Lítið á eftirfylgjaudi verðlista á
hinni nafnfrægu Lisk’s Blikkvöru,
sem er ábyrgst að riðga aldrei. Hún
fæst í harðvörubúðinni hans
TRUEMNER,
i CavalieR.
Mr. Truemner ábyrgist vöruna sjálfnr
og lofar að gefa ykkur nýjann hlut fyrir
sérhvað eina sem þið kaupið af Lisks
Blikkvöru og sem riðgar hjá ykkur med
sómasamlegri brúkun.
16 Áður seldar Nú á
potta fötur 90 cts. 67 cts.
14 potta fötur 75 “ 55 “
Ið potta fötur 70 “ 52 “
14 “ “ með sigti $1.10 78 "
17 potta diskapönnur 90 ct. 70 “
No. 9 þvatta Boilers $2.50 $1.90
J. E. Truemner,
Cavalier, N-Dak.
F (J FOI’d 81» WainSt-
L. U. 1 VI U, WINNIPEGi
er nýbyrjaður að verzla með
Leirtau og Glervarning,
og langar hann til að fá að sjá ís-
lendinga í búð sinni og lofar að
gefa þeim betri kaup en nokkur
annar í bænum getur gert á sams-
konar vöru. Muniðeftir númerinn
819 Main Street.
Béttfyrir norðau C P.R. járnbrautina.
E. Gr. FORD.
“Rétt eins gott
eins og brauðið hans Boyd’s”
hafa margir af Winnipegmönnum heyrfc
sagt hvað eftir annað. Þetta þýðir að
leggja á tvær hættur með það sem þið
borðið, en að gera það er ætíð viðsjár-
vert, og alveg ónauðsynlegt.þc^r verð-
ið er eins lágt eins og hjá öðrum. Candy
Kökur og Pastry fæst eins ódýrt hjá
Boyd eins og i lélegustu búðum í bæn-
um. Þvi ekki að kaupa hjá honum ?
Bezta brauð í Canada.
W. J. Boyd,
S70 og 579 Main öt.