Heimskringla - 16.12.1897, Blaðsíða 6

Heimskringla - 16.12.1897, Blaðsíða 6
HEIMSKRINGLA, 16. DESEMBER 1897. Winnipeg. G. Johnson (Cor. Ross and Isabel) hefir ljómandi jólagjafir. Vegna ófyrirsjáanlegra orsaka varð blaðinu ekki komið út á réttum tíma, og eru menn beðnir afsökunar á þvi. í kvöld hafa nemendur við lækna- skólann saup á Manitoba, til að byrja jólafríið með. Dr. Hinman hefir opin fund á Cent- ral Hall, Cor, Pacific og Isabol St., í kvöld, tilaðtalaum bæjarmál, Herra Eggert Jóhannsson, fyrver- andi ritstjóri Heimskringlu, var hér á ferð í þessari viku ; lagði af stað heim- leiðis i gær. Herra Thorsteinn Sigurðsson frá 690 Maryland St., Winnipeg, er nú kom inn til Radway P. O., Man., og verður þar í vetur. Hr. J. P. Sólmundsson frá Gimli og Jón Sigvaldason frá Icelandic River, voru hér í verzlunarerindum fyrri hluta vikunnar, fóru heimleiðis i gær. Þeir herrar J, B. Holm og S, Her- mannsson frá Pembina, N. D., komu til bæjarins á þriðjudaginn. Þeir búast yið að dvelja hér um nokkurn tíma. Þeir láta vel yfir líðan landa í Pem- bina. Herra H. J. Gauti frá Hallson, N. D., kora til bæjarins á sunnudaginn var; hann býst við að tefja um viku i bænum. Vel lætur hann af líðan landa fyrir sunnan. Tíðin góð, og snjór tölu vert minni en hér. Kvæðið “Minni karlmanna”, eftir Mrs. Benediktsson, sem flutt var á ís- lendingadaginn á Hnausum, er til sölu á skrifstofu Heimskringlu og kost- ar 10 cts. Það eru fjórar síður tí stóru áttablaðabroti, laglega prentað, dável ort og frumlegt að hugsun. Um þessar mundir hættir blaðið Pionöer Express í Pembina að koma út daglega, og verður framvegis að eins vikublað eins og áður. Orsökin er sú, eftir því sem blaðið segir, að dagblaðið borgar sig ekki, og kemur í bága við vikublaðið. Hr. Stefán Jónsson, kaupmaður, sem lengi hefir verið veikur og ekki get- að sint verzlun sinni, er nú kominn svo til heilsu að hann getur verið í búð sinni (corner Ross & Nena St.) Hann verður því að hitta þar núna um hátiðirnar og vonast hann til að íslendingar skoði vörubyrgðir þær er hann hefir, áður en þeir kaupa annarstaðar. Senator Hoar lagði fram bænarskrá í efridideild þingsins í vVashington frá Hawaii búum um það, að Hawaii verði ekki innlimað í Bandaríkin, Bæna- skráin er mikið skjal með 21,269 nöfn- um, Um þessar mundir er líka í Was- hington nefnd manna frá Hawaii. sem er að bera fram mótmæli gegn innlim- uninni. Hjólreiðarbrautin í Madisongarðin- um, þar sem hjólreiðarnar miklu hafa farið fram, er 285 fetum of stutt fyrir mílu hverja, og munar það um 53 míl- um á hverjum 1000 mílum.. Þetta hefir New York World nýlega grafið npp með því að láta mæla brautina, og kom það mörgum ó'vart. Hr. B.E. Dalmann, frá Selkirk, var hér á ferð í síðustu viku. Hann var að kaupa verzlunarvarning fyrir jólin. Búð hans er á horninu á Aðaistrætinu og Clandeboye Av., Selkirk, og þar geta menn fengið hjá honum 8J pund af bezta kafíi fyrir dollarinn, og fínasta brauð frá Guðmundi bakara. Tollsvik þýkja nú all-tíð við línuna hér fyrir sunnan og suðvestan. Mest er af þeim í nánd við Pembina. Sendi- maður frá Washington, R. S. Faresman. hefir um tíma verið að rannsaka þetta, og þykist hann hafa komizt að því að all-mikið af gripum hafi á ýmsum stöð- um verið flutt inn í Bandaríkin án þess að tollur væri borgaður. Demorest Silver Medal Contest fer fram á næsta fundi Goodtemplara-stúk- unnar Heklu, fðstudagskveldið kemur á North West Hall. í þessari Contest taka þátt 6 eða 7 félagar stúkunnar, Prógram mikið og gott með söng og hljóðfæraslætti. Allir velkomnir. — Inngangur ókeypis, en samskot verða tekin. Samkoman byrjar kl. 8.30 e. h. í þetta sinn verða engar sveítar- stjórnarkosningar í Nýja-íslandi. Allir þeir sömu sem voru i sveitarstjórniuni í fyrra halda áfram að vera þar næsta ár, því engir nýir buðust. Þetta er gott fyrir sveitina, að svo miklu leyti sem það sparar henni kosningakostnað- inn, og það er vottur þess að annað- hvort er somkomulagið orðið framúr- skarandi, eða þá að áhuganum hefir runnið dúr á auga. Mr. S. G. Northfield, sem nýlega er kominn hér til bæjarins, heldur nú til að 458 Balmoral St. Mr. Northfield lætur þess getið að þeir sem vilja fá uppdrætti til að sauma eftir geta feng- ið þá hjá honum. Einnig málar hann fallegar jólagjafir með olíulit, vatns- lit og Pástellit fyrir þá sem það vilja,og gerir það bæði fljótt og vel. Hann gef- ur einnig lexiur í málaralist, — Munið eftir jólagjöfunum og húsnúmerinu : 458 Balmoral St. City. Heilbrigðisnefnd fylkisins. hefir í nokkur ár reynt til að fá leyfi til að senda sjúkdómsefni með pósti. Nú er þetta leyfi nýfengið, en öll þess konar sýnishorn verða að yera geymd í sér- staklega gjörðum tvöföldum sínk bauk- um og mega þeir að eins sendast til heíl- brygðisnefndarinnar eða til bakteríu- fræðings í opinberri stöðu. Þetta leyfi hefir þá þýðingu að hægt er að senda sjúkdómsefni frá fjarliggjandi stöðum til rannsóknar. Dr. Patterson, forseti heilbrigðis- nefndar fylkisins, fór út til St. Johnsá laugardaginn var, til að grenslast eftir hvað difþerinsýkinni, sem þar kom upp, liði. Hann varð þess var að fólk úr húsum sem sýkin var í var mjög ó- varkárt, og hafði samgöngur við ná- granna sína eins og ekkert er að, Þetta hefir þeim nú verið fyrirboðið, og hótað lögsókn ef út af væri breytt. Difþeria er nú töluvert algeng í bæn- um. oger óvarkárni kent um. Nú þykist rýtstjóri Lögbergs vera orðinn herra tímans, Hvað skyldi hann verða næst—herra yfir sjálfum sér? Hann segir í siðasta blaði, að hann hafi “gefið” ritstj. Heimskringlu 6 vik ur til að gera “bragarbót” við frétt um það, að nýlendur hér í fylkinu, sem að eins hafa staðið opnar fyrir íslending- um (Reserves) hafi nú verið opnaðar fyrir öllum. Hér var ekki þörf á neinni bragarbót, því það sem sagt var er satt og pláss þau sem hafa að undanförnu verið lokuð fyrir öðrum en Islending- um eru Nýja ísland og Mikley. —Hvað skyldi ritstjórinn þurfa margar vikur til að melta þetta. Ljómandi boðseðlum með glansandi snjókrystallsmyndum, eins og vel á við um vetrartímann, hefir nú verið út- býtt af forstöðumönnum hinnar sjöttu nýársdanssamkorau, sem haldin verður 81. Desember í Oddfellows Hall. Ný- árs-ball þetta verður sjálfsagt vandað og skemtilegt, eins og öll þessi nýárs böll hafa verið, og að líkindum verður mörg sál farin að dansa löngu áður en ballið byrjar. I forstöðunefndinni eru þeir herrar: H, Johnson, M. B. Hall- dórson, Dr. Ó. Björnson, B. J. Brand- son, J. Jonston, S. W. Melsted, B. Ól- afsson og C. B. Júlíuz. í næsta blaði kemur frásagan af meðferðinniá Miss Evangelinu Cisneros meðan hún var í fangelsi á Cuba, og hvernig manni sem sendur var af New York Journal^ókst að ná henni þaðan. Sagan sem er sönn frá upphafi til enda, er líkari skáldsögu, en jiokkru öðru, og hún er merkileg mest fyrir það, að ef það á eftir að ligrja fyrir Spánverjum að lenda i styrjöld við Bandaríkin eða önnur lönd út af gjörðum þeirra ó Cuba, þá er það mikið fyrir hluttöku þá í kjörum þessarar stúlku, sem vakn að hefir hjá almenningi út af meðferð hennar meðan liún var í fangelsi þar. Sögunni fylgja myndir af Miss Cisneros eins og hún leit út áður en hún var sett í varðhaldið. og eins og hún leit út þeg- ar hún kom úr því aftur. Orsökin til þess að mönnunnm frá Dakota, sem sakðair voru um hveiti- þjófnað, var sleft íér. var sú, að Mr. Miller State Attorny gaf út skipun um að hætta málsókninni. og fer Pioneer Express um það orðum á þessa leið- “Eftir að Sheriff Truemner var [bú- inn að ná saman vitnum sem hefðu dugað til að fá þá McKay og McLeod framselda, og eftir að vitnin voru kom- in saman í Cavalier, og búið var að geyma mennina i tvær vikur í Winni- peg, komu orð frá State Attorney um að bezt mundi vera að hætta málssókn- inni ’— ’Það var búið að eyða töluverðu í kostnað, og einir $100 hefðu að líkind- um dugað til að fullgera verkið—. "Þetta er að voru áliti rangt, því marg ir bændur eru þannig settir að þeir verða að geyma hveiti sitt langt frá húsum sínum og þurfa því á vernd lag- anna að halda. Stjótnin á að vernda fólkið. Til þess er hún og til þess er henni haldið við”. Mr. William Small hefir fund með kjósendum í Ward 4, í Unity Hall, cor. Pacfic Ave. & Nena Str., föstud. 17. þ. m. kl. 8 e. h. Stúlkubarn, sem stolið var hér í bænum fyrir fimm árum síðan, liefir nú fundizt í Buffalo, N. Y. Það var frændkona stúlkunnár sem stal henni, og átti hún þá heima fáeinar milur hér frá bænum. Hafði hún beðið foreldr- ana að mega hafa hana heima hjá sér nokkra daga, og var það leyft. En er farið varað vitja hennar var húsið autt og enginn vissi hvað af fólkinu var orð- íð. Mr. og Mrs. Harris, foreldrar barns- ins, leituðu allra ráða til að hafa upp á því, en það lukkaðist ekki fyr en fyr- ir nokkrum döt'um, að þau fengu frétt frá Buffalo um að barnið væri þar hjá fólki því er tók það á burt. Móðir stúlkunnar lagði þegar af stað eftir henni, eg eru þær nú báðar komnar til Winnipeg aftur eftir 5 ára aðskdnað. Stúlkan er 6—7 ára gömul og hefir verið farið vel með hana í útlegðinni, en eng- ar útskýringar um það hversvegna hún hafi verið numin á burt fást hjá kon- unni sem tók hana. Spítalasamkoman sem höfð var í lútersku kyrkjunni hinn 8. þ. m. var allvel sótt; þó vantaði mik- ið á að húsfyllir væri. Það var líka naumast við öðru að búast,- því ef sam- koman hefði ekki verið í hjálparskyni, þá hefði hún ekki verið þess verð að fólk kæmi þangað, og ýmsir hafa máske haft grun um það. Prógrammið var lélegra en vánt er að vera á íslenzkum samkom- um, styttra en góðu hófi gegndi, og dauft eins og blávatn, og þetta alt af þeirri góðu og gildu ástæðu, góðu og gildu reglu, eða góðu og gildu undarleg- heitum, að ekki má ‘klappa' i kyrkj- unni Það var hreinn og einskær lík- fararbragur á öllu saman. og þó sumir af skemtendunum reyndu til að setja dá- lítið‘púður” í það sem þeir báru fram, þá dugði það lítið, því eldinn vantaðj til að kveikja í þvf; og það hafa |þeir ef' laust sjálfir fundið eins vel eða betur en tilheyrendurnir, Þó menn hefðu verið beðnir að koma þarna saman bara til að sitja þar steinþegjandi einn klukku- tíma eða svo, eg gefa fyrir það 25 cents til spítalans um leið , þá er oss næst að halda að menn hefðu farið þaðan með fulteins glæsilegum jhugmyndum um spítalasamkomureinsoggert var í þetta sinn, Yið öðru er heldur ekki að búast því þessi regla eyðilagði að mestu pró- grammið fyrir tilheyrendunum, þar eð þeir gátu hvorki örfað þá sem skemtu, né kailað þá fram oftar en einu sinni, og um leið gerði hún þeim er skemtu ó- mögulegt að beita sér,vegna þess aðall- ir sátu eins og múmiur, rétt eins og verið væri að kveða upp yfir þeim dauðadóm, og gátu ekki gefið nokkra bendingu um að þeir svo mikið sem heyrðu það sem fram fór, nema helzt með því að sníta sér og hósta ögn við og við — því allir mega víst gera það ? Það veít hver maður sem nokkuð veit að það er hjálp fyrir þann sem kemur fram opinlerlega að honum sé- sýnt að honum sé veitt eftirtekt, sér- staklega þegar um skemtisamkomu er að ræða, og það var alt sem hér þurfti við, þvi á þessari samkomu komu fram ýmsir af þeim sem bæði geta og hafa skemt einna bezt á íslenzkum samkom- um hér, og þeir hefðu óefað gert það í þetta sinn líka, ef skilyrðin hefðu verið fyrir höndum, og ef menn hefðu fengið að njóta þeirra. Ræða forsetans var engin, en það talar rnaður ekki um. Hitt var verra, að fólk skuli hafa ástæðu til að hafa lakarí hugmynd um spítalasamkom- una heldur en flestar aðrar samkomur. DAUÐAFREGN. Hér með tilkynnist vinum og yanda- mönnum austan hafs og vestan, að síð- astliðinn 27. Oktober þóknaðist guði að burtkalla minn elskulega eiginmann, Einar Árnason Friðrikssonar frá Rjúpnafelli í Vopnafirði, eftir rúmra 14 ára ástúðlega sambúð í hjónabandi. Dauðamein hans var gallsteinn og lá hann þungt haldinn í 3 vikur. Hinir heiðruðu ritstjórar Austra og Bjarka ern vinsamlega beðnir að geta um þessa dánarfregn í blöðum sínum. Marshall, Minn., 1. Des. 1897. Ólafía Ólafsdóttir. »»»»»»»»»»»»»#»»»»»»»»»»»»#»»»»»»»»# ####»# # # # # # m # # # # ############################## # # 9 9 # # # i.v # # # # # # # *»V #£ ## # # # # # £ ## ## • * #* #2 # # •***' #2 #Í2[ ## #fl| # # # # # # # # # # # # # # # # # # # # # # # # Hvad Það getið þið fengið að vita ef þið komið inn í búðina til G. THOIVIAS, 598 MAIN STREET. Og svo er hann einnig til með að láta ykkur taka klukku meðykk- ur, svo þið þurfið ekki að vera að spyrja náungann Hvad er klukkcin ? Ég hefi nú hinar fullkomnustu og og langbeztu byrgðir af r Urum og klukkum af öllum mögulegum tegundum og sel ég alt saman með af'ar- miklum afslætti núna fyrir jólin. Gullskraut. Ég hefi aldrei haft eins fullkomn- ar og ágætar byrgðir af því eins og nú. Það er sannarlega þess virði að koma inn og skoða þess- ar vörur, þó menn ekk'i kaupi neitt. Og auðvitað sel ég alt þetta gullskraut með afarmiklum afslætti núna fyrir jólin. Klukkan ? Gleraugu. Það er sannarlega þess vert að minnast hér með fóum orðum á hin alkunnu Ég vel þau eftir sjón hvers eins, með þeim fullkomnustu verkfærum sem þekl . eru. Ef augu ykkar eru mjög veik, þá komið til mín. Ég seg ykkur skýlaust hvort þið þarfn ist læknishjálpar fyi ir augun, eð£ hvort að eins góð gleraugu nægjí Ég hefi ákaffega mikið af fyrir taks gleraugum, og sel þau eins og annað, langt fyrir neðan hi2 vanalega verð. Það borgar sig líka fyrir ungu piltana að kaupa hjá mér Giftmgar-hringina. Ég sel þá sérstöku tegund al hringum mikið ódýrara en nokk- ur annar í borginni. G. Thomas, 598 Main Str. P. S. PANTANIR eða AÐGERÐIR ut- an af landsbygðinni afgreiddar fljótt og vel.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.