Heimskringla - 26.05.1898, Page 2
Heiiskrinda.
Verð blaðsins í Canada og Bandar. $1.50
ttm árid (fyrirfram borgað). Sent til
íslands (fyrirfram borgað af kaupend-
-m blaðsins hér) $1.00.
Peningar seudist í P. 0. Money Order
Registered Letter eða Express Money
Order. Bankaávísanir á aðra banka en
Winnipeg að eins teknar með aSöllum
B.
F. Walters,
Útgefandi.
Office: Corner Princess & James.
P.o. BOX 305
England og Bandaríkin
Það m& kallast gleðilegt fyrir
alla velunnara sannra framfara, að
sjá og taka eftir hvernig hugir Breta
og Bandamanna eins og ósjálfrátt
dragast saman; einkum hefir það
verið nú á síðari tímum, sem glöggt
hefir mátt sjá þann bróðurhuga og
velvild, sem hefir iegið til grund-
vallar fyrir flestum viðskiftum þeirra
En aldrei hefir það sést eins glögt,
eins og einmit.t síðan að ófriðurinn
hófst milli Bandamanna og Spánar,
Það má svo að orði kveða að allir
helstu skörungar Breta hafi kepst
hver við annan um að geta látið í
ljósi hluttekningu sína með kjörum
Bandamanna og hafa þeir um leið
að eins fært í orð tilfinningar alls
fjöldans af þegnum hins hrezka rík-
is. Einna mest áhrif hafa samt orð
þeirra Salishury lávarðar og Mr.
Chamberlains.nýlenduráðherra Breta
haft á alþýðu manna, og mikil áhrif
hafa þær haft á hin önnur stórveldi
Evrópu, að því leyti, að þau þykjast
sjá eins og í draumi framundan sér,
hvaða þýðing það mundi hafa fyrir
mörg þeirra, ef Bretar og Banda
menn tækju höndum saman.
Sérstaklega er það ræða Mr.
Chamberlains, sú sem hann hélt í
Birmingham fyrra föstudag, sem hef
ir vakið stórveldin upp frá draumór-
um sínum. Hann lét í ljósi í þess
ari ræðu það álit sitt, að Bretar
myndu áður en langt liði mega bú-
ast við að mæta sameinuðum kröft-
um sumra stórveldanna 1 Evrópu,
og það væri því sjálfsögð skylda fyr
ir þá að sameina krafta sína, og ný-
lenda sinna sem bezt, og um leið
treysta vináttuböndin milli sín og
frænda sinna hérnamegin við hafið.
Mr. Chamberlain sagði að stríð og
blóðugir bardagar væri mjög svo
leiðinlegt og hörmulegt, en með öll*
um sínum blóðugu skelfingum væri
stríð við óvinaþjóð sem ekkert, ef
það gæti orðið til þess að fánar
Breta og Bandamanna fengju að
blakta báðir á sömu stöng, sækjandi
eða verjandi rétt og háleitt málefni.
Bretar haía eins og aðrir tekið
eftir því, hve stórstígir Bandamenn
hafa verið í framfaraáttina, og að það
var að eins tímaspursmál, hve lengi
þeir sjálfir yrðu viðurkendir sem hin
mesta verzlunarþjóð heimsins, ef þeir
þyrftu að keppa við frændur sína í
Ameríku.
Það hefir verið eitt af því sem
kom Mr. Chamberlain til að tala eins
ótvíræðlega eins og hann gerði, að
hann hefir séð, að það var ekki ein-
ungfs í stríði og styrjöld, sem þessar
þjóðir hefðu stóran hagnað af sam
vinnu, heldur miklu fremur á friðar
tímum. Hann hefir séð það, að ef
þær héldust í hendur og ynnu í sam-
einingu, þá gætu þær á friðsamlegan
hátt ráðið lögum og lofum nær því
um heim allan. Þá væri ekkert það
afl sem gæti kept við þær, hvorki í
friði né ófriði. Slíkt ástand
hlyti um leið að hafa betrandi áhrif
á allan hinn mentaða heim. Hinar
undirokuðu þjóðir, sem nú stynja
undir keisaravaldi og hervaldi,
myndu með tímanum fá næga djörf-
ung og þekking, til þess að heimta
réttindi sín. Þær myndu heimta að
fá að lifa og þroskast undir sömu
skilyrðum eins og Bretar eða Banda-
menn, eða þá að öðrum kosti hrynda
harðstjórunum algerlega af höndum
sér. Hinir dramblátu keisarar og
konungar Evrópu, ef þeir vildu halda
hásætum sínum, yrðu þá að rýmka
um böndin sem þeir nú þrælbinda
þegna sír.a tneð ; þeir yrðu að veita
þeim óhindrað tækifæri til þess, að
beita öllum sínum kröftum og öllu
sínn hugviti til góðs fyrir þjóðirnar,
ef þær ættu að geta kept við hinai'
meiri frg mfaraþjóðir heimsins,—hi’nn
Engil-Saxneska kynflokk.
Það er óefað álit margra hinna
mestu manna nútímans, að samband
milli Breta og Bandamanna, hlyti að
mynda nýtt tímabil í sögunni. Það
hlyti að hafa í för með sér, eins og
vér höfum sagt hér að framan, ann-
aðhvort mjög endurbætta stjórn, eða
)á algert lýðveldi í mörgum ríkjum
Evrópu.
Vér vonum og óskum að bróður-
böndin tengist enn fastar milli Breta
og Bandamanna. Og vér erum þess
fullvissir, aðafþví mundi leiða bless-
un, frið og framfarir, ekki einungis
fynr þessar þjóðir sjálfar, heldur fyr-
ir allan heiminn.
Posen-skurðurinn.
Það er auðheyrt á ræðu Mr
Chamberlains, að hann kann að sjá
og meta það mikla afi sem liggur
sem ósnortið hjá þjóð Bandaríkj-
anna, hann kann að meta það afl,
sem svo lengi er búið að liggja hreif
ingarlaust og ónotað, að þjóðin sjálf
er sér vart meðvitandi um að slíkt
afl sé til; hann kann að meta það afl
sem þrisvar sinnum er búið að sýna
heiminum að það sé óbeygjanlegt;
og hann kann að meta það afl sem
nú með lítilli fyrirhöfn hefir eitt
konungsríkið í Evrópu að leiksopp
sínum.
Hann sér og viðurkennir að það
þyrítu ekki að líða margir mánuðir
þangað til Bandaríkin heíðu útbúinn
sjóflota, sem jafnast geti við flota
hvers Evrópu stórveldisins sem væri
að undanskyldum, ef til vill, brezka
flotanum. Og hann eins og aðrir
hlýtur nú að sjá, að þó Bandaríkja-
menn samanstandi af mönnum frá
nær því öllum þjóðflokkum heimins,
þá eru þeir allir sem einn maður,
þegar til þass kemur að verja heiður
fósturlands síns.
En það er einnig auðséð hvaða
áhrif slíkt samband mundi hafa á
heiminn í framfaralegu tilliti. Allir
hljóta að viðurkenna að Bretar og
Bandaríkjamenn skara langt fram
úr öðrum þjóðum heimsins hvað
dugnað og framfarir snertir. Það
mundi því verða ósegjanlegur hagn-
aður fyrir báðar þjóðirnar, ef þær
gengu í sem nánast sambanu, og
"eyndu heldur að greiða veginn
hvor fyrir annari, heldur en að tog-
ast á um hvað eina, eins og hefir
Btundum átt sér stað fyr meir.
Eitt af þeim málum, sem ollað hef-
ir talsverðu umtali og óánægju meðal
nokkurs hluta hinna íslenzku kjósenda
hér í fylkinu, er hið svonefnda Posen-
skurðarmál, En það mál er svo tíl
komið, að nokkru fyrir fylkiskosning-
arnar 1892 fann Greenwaystjórnin þörf
á því, að tryggja sér atkvæði Islend-
inga, sem búa í Alftavatnsnýlendu, til
þess að koma Mr. Burrows þingmans-
efni sínu inn á þing. En aðkvæðin
voru því að eins vís, að stjórnin léti ein-
hverja þóknun koma í staðinn. Hún
vissi að landar vorir þar nyrðra höfðu
allan á huga á því að lönd þeirra
gætu orðið uppþurkuð og þeim arðmeiri
til griparæktar, En það er aðal at-
vinnuvegur þeirrar nýlendu. Stjórnin
lét því lofa íslendingum því, að — ef
þeir vildu fylgja þingmannsefni hennar
að málurn við kosningarnar, þá skyldi
hún láta grafa skurð einn mikinn í
gegn um miðja bygð þeirra, er þurkaði
upp löndin. Til staðfestingar þessu lof
orði lét hún verkfræðing mæla út skurð
stæðið, og samkvæmt þeirri mælingu
átti skurðurinn að liggja um miðbik
bygðarinnar og verða til hinna mestu
nota fyrir ekki einasta þá búendur sem
áttu lönd liggjandi að honum, heldur
einnig fyrir lönd hinna sem fjær voru.
Mönnum var talin trú um það, að þar
sem áður voru fen og foræði, þar
mundi strax og skurðurinn væri kom-
inn, myndast skinandi fjölgresis harð-
velli, svo að hver þuml. landanna sem
áður var lítt eða einskis nýtur, mundi
á svipstundu breytast í ilmsætar engj-
ar og jurtareiti, og að við þessa stór-
kostlegu breytingu myndu lönd land-
anna vaxa svo í verði og áliti allra jarð-
fróðra manna, að sveitin mundi á fáum
árum verða þéttskipuð hinum beztu
mönnum svo að vellíðan og auðsæld
mundi framvegis umfaðma sérhvert ís-
lenzkt mannsbarn þar í sveit og mundi
þetta verða hinn stórkostlegasti og ó-
gleymanlegasti minnisvarði hinnar á-
gætu Greenwaystjórnar. Skurður þessi
hinn mikli, sem öllu þessu áiti að
koma til leiðar skyldi bera nafn sveit-
arinnar, og heita “Posenskurður”, eð&
“Posen Canal”, því að ásamt því a3
þurka upp löndin, átti hann að verr
nokkurskonar þjóðvegur til að- og frá-
flutninga. Þeir sem vildu sér til dægra-
styttingar skemta sér við fiskiveiðar í
Manitobavatni, þurftu ekki annað ei
að vinda upp segl að morgni og komi
heim hlaðnir að kveldi og var það ekk-
ert smá hagræði fyrir bændur þarí
nærliggjandi héruðum.
Reyndar voru þeir nokkrir, sen
leyfðu sér að efast um fullan framganj;
þessa fyrirtækis og þennan mikla á-
rangur af því, svona alveg strax. Þeir
höfðu alizt upp heíma á íslandi og ekki
átt góðu að venjast, og sízt af ölln
höfðu þeir nokkra reynslu fyrir slíkrí
dásamlegri umhyggju af hendi valds'
mannanna þar á landi. En það va:
fljótlega þaggað niður í þessum mönn-
um. Þeir voru látnir skilja það, aí
þeir væru ekki annað en ómentaðir
“emigrantar”, og hefðu ekkert vit 4,
landsmálum eins og þeim hagaði til
hér í landí, og að þeim bæiiallsekki
að draga neinn efa á hina dásamlegt
umhyggju sern Mr. Greenway ber fyri
þegnum sínum hér í Manitoba. Þeir
skyldu að eins lofa því, að kríta kross
inn við kosningaborðið fyrir aftan nafa
Greenway kandidatsins, og svo kæmi
skurðurinn eins og af sjálfu sér: löndia
þornuðu. bygðin blómgaðist og þei
sjálfir yrðu ríkir, Það mun óhætt ad
fullyrða, að þessar fortölur böfðu þaa
áhrif að talsverður meirihluti kjósendt
í Alftavatnsnýlendunni hafa greitt at-
kvæði með Mr. Burrows víð kosning
arnar. Enda náði hann fleirtölu at-
kvæða, og gerðist þingmaður landa
vorra þar í sveit.
En svo leið tíminn. Burrows komst
á þing, en Posenskurðurinn kom ekki
Landar biðu með þolinmæði í þrjú heil
ár. En skurðurinn kom ekki að heldur
Löndin héldu áfram að vera blaut, fen
og forræði voru í sarna stað og áður, en
barðvelli og háslétturnar létu ekkert á
sér bera. Það leið að næstu almennum
fylkiskosningum, er skyldu fara fram
1896. Það var enginn efi á þvi, að
kosningarnar mundu fara fram á rétt
um tíma. En skurðurinn virtist enn
þá vera í eins mikilli fjarlægð sem að
hann hafði nokkru sinni áður verið
Þetta sveið landanum. Honum leidd
ist þóf þetta, og hann varð óþolinmóð
ur, og gerðist nú kurr mikill íbændum
þar í sveit, og það rak að því að þeir
þeir færu að haldaóánægjufundi. Nefnd
ir voru kosnar er skyldu fara,—og fóru
til Winnipeg. Það var hið mesta úr
valalið þar úr sveitinni. Þeir gengu
fyrir Mr. Greenway og hirð hans aila
og ráku þar erindi sitt röggsamlega
Kváðust þeir ásamt með sveitungum
sínum hafa verið á tálar dregnir með
skurðloforðum. og létu á sér skilja að
ef stjórnin efndi ekki loforð sitt i þessu
máli, þá myndu bændur þar ytra al
ment taka upp það ráð að fylgja fram
vegis sannfæringu sinni við kosningar
S jórnin veitti þau andsvör, að hún
hefði ekki að svo stöddu efni á að tak
ast svo stórkostlegt verk í fang, enda
hefði hún sem stjórn ekki bundist nein-
um loforðum um að byggja skurðinn á
þeim tíma sem sendinefndin vonaðist
eftir honum, En hún kvað að hún á
liti verkið nauðsynlegt, og að það mund
verða gert einhverntíma ! Nefndin fór
nú heim og kvað sínar farir ekki slétt-
ar orðið hafa. TJndirtektir stjórnarinn
ar hinar daufustu um framkvæmdirí
bráðina. En bændur þar voru íslenzk-
ir, “þéttir á velli og þéttir í lund”.
Þeir sendu aðra jiefnd til höfuðstaðar
ins og sögðu nú stjórninni, að þeir
mundu allir fara úr sinni Liberal póli-
tisku sannfæringu og íklæðast andstæð
ingagerfi, ef þeir fengju ekki skurðinn
tafarlaust, Þetta þoldi stjórnin ekki.
Hún sendi ráðgjafa opinberra verka
tafarlaust út í Posen-sveit, og þar lof-
aði hann i eigiú persónu fyrir hönd
Greenwaystjórnarinnar, að þeir skyldu
fá skurðinn þá strax, ef þeir vildu enn
þá vera í Liberal-sannfæringunni um
stund eða þartileftir næstu fylkiskosn-
ingar, að ininsta kosti.
Svo var fenginn nýr verkfræðingur
til að mæia út skurðstæðið að nýju, en
þó ekki fyr en eftir kosningarnar 1896.
Þá var búið að fleka íslendinga skamm-
arlega við tvennar kosningar á þessu
skurðfargani, svo að þeirra þurfti ekki
framar ^jð í bráð. Það var því óhætt
að liaga skurði þessum og vinnunni við
hann eingöngu eftir höfði stjórnarverk-
fræðingsins, án nokkurs tillits til þess,
hvort hann kæmi íslendingum að not-
um eða ekki, og það var gert. í staðinn
fyrir að lát.a skurðinn liggja um miðja
íslenzku bygðina, þar sem hann hefði
getað orðið þeim að talsverðum notum,
þá komst verkfræðingur stjórnarinnar
(sem sjálfur býr þar ytra) að þeirri nið-
urstöðu, að heppilegast væri að hafa
skurðinn svo míium skifti fyrir sunnan
alla íslenzku bygðina, til þess að áreið-
anlegt væri, að hann gæti ekki orðið
nokkrum bónda þar að hinum allra
minstu notum, og var hann þvi látinn
liggja frá 1 til 3 mílur fyrir sunnan ís
lenzku bygðina, þar sem hann gerir
gagn að eins til að þurka upp land verk-
fræðings þess sem mældi hann út, og
bróður hans, því þeir eru báðir góðir
Liberalar. Én þessi skurðgerð er alger-
lega gagnslaus íslenzku bænd-. aum aa
öðru lej en því, að m-Kkrir þeirra
fengu ta. jrð vr • við »ð ^raiahann
og var þa^ L mrðar
hagnaður fyrir þá a sem gu
var sá galli á góðu þingi, að allmargir
þeirra manna sem höfðu atvinnu við
þennan skurð, hafa ekki ennþá fengið
borgun fyrir þá vinnu nema að litlum
parti, og sumir alls ekkert. Þess hefir
oft verið farið á leit við stjórnina. að
hún sæi um að þessnm fátæku verka
mönnum væri borguð vinnulaun sin
Eu hún skelti skolleýrum við því, kvað
sér ekki bera að borga. þar eð skurður
inn hefði verið unninn á “contract.”
Þessir sviknu fjölskyldufeður leituðu
fulltingis hinna islenzku liberölu stjórn
málagarpa, en alt fór á sömu leið,— það
ienti alt í undandrætti og svikum með
kaupgjaldið. Bændur kváðust mundu
leita aðstoðar Mr. Roblins og annara
andstæðinga stjórnarinnar í þessu máli
ef stjórnin sæi ekki sóma sinn i því að
borga þeim fyrir vinnu sína. En þá
var þeim sagt það, að ef Mr. Roblin
hreyfði við málinu fyrir þeirra hönd, þá
yrði það til þess, að sljórnin borgaði
þeim aldrei neitt. En bændur sátu við
sinn keip. Þeir létu hvorki kúgast né
hræðast við hótanir hinna Liberölu
Þeim þótti það alveg nóg að hafa verið
sviknir á skurðinum, þó að þeir væru
ekki einnig sviknir um vinnulaunin
Enda reyndust þessar Liberal-sögur
(eins og flestar slíkar)lygar tónar, því að
það var þá fyrst þegar Mr. Roblin bar
þetta mál upp á þingi síðast, að stjórnin
skammaðist sin, og lofaði hún að sjá
svo til, að þessum mönnum yrðu borg
uð vinnulaun sín að fullu, og á Mr.
Roblin þakkir skilið fyrir að hafa kreist
það loforð út úr stjórninni.
Að vísu er ekki ennþá farið að borga
þessum mönnum, sem eru flestir annað-
hvort atkvæðislausir menn eða Con
servativar. En það mun mega telja víst
að það verði gert einhverntíma, þó ekki
verði það fyr en um næstu fylkiskosn
ingar. Eftir annari framkomu fylkis-
stjórnarinnar í þessu máli getur maður
raunar hugsað sér, að hún dragi að
borga fram að þeim tíma, og brúki það
þá fyrir keyri á Islendinga, að ef þeir
ekki greiði atkv-æði með henni—hver
einasti maður—þá skuli hún stela af
þeim vinnulaununum.
B. L. Baldwixsox.
Ha waii-eyj arnar.
Lýsing á eyjunum og innbúum þeirra
og atvinnuvegum þar.
Eftir (J. (>ooilniaii.
borgun fyrir þess ’-innu sína En pao
Niðurlag.
Þar sem sykurræktin er hin helzta
atvinnugrein hér, þá vil ég fara um
hana fáum orðum Flestir lifa beinlínis
eða óbeinlínis af henni hér ; mest alt
láglendið, þar sem jarðvegur er góður
og vatn nóg, er undir sykurreir. Þessi
ræktun var ekki byrjuð fyrir alvöru þar
til 1876, eða eftir að eyjarnar fengu hið
svonefnda “Reciprocity Treaty" og
hráu sykri var leyft tollfrítt héðan inn í
Bandaríkin, og þessvegna meðfram eru
nú eyjarnar að berjast fyrir inngöngu í
Bandaríkin. að þeir óttast að missa þau
hlunnindi sem hafa gert marga hér milí-
ónera. Það er sagt að hér fáist þrefalt
meira sykur af ekrunni en í Louisiana.
Sem dæmi þess hvað sykurræktin gefur
af sér, má nefna næstu “plantation” hér
er byrjuð var fyrir 9 árum ; hún liggur
17 rnilur héðan út með brautinni. Það
er hlutafélag sem á hana og þegar þeir
byrj-iðu var hluturinn 8100, en nú er
hann $300 virði ; hún nefnist Ewa og er
hér sem fyrirmyndarbú að öllu. Alt er
þar ræktað með “artesian” brunnvatni;
er vatn þetta hið ágætasta, kalt og tært
og laust við allar bakteríur.
Sykurreirinn þarf eitt ár til að vaxa
og lítur hann út sem mais á öllum
þroskastigum, vex hann í 10 ár upp frá
rótinni, en eftir það verður að planta
upp á nýtt. Bezti reirjnn er valinn til
útsæðis og eru sumir hér sem að eins
rækta reirfræ. Fyrst voru innlendir
menn notaðir við þetta starf, að plægja
og hirða um akrana, en vegna þess hvað
það fólk er óáreiðanlegt og seinvirkt, þá
voru Kínverjar fluttir inn hingað. Fyr-
ir 15—17 árum síðan voru 1300 af Norð-
mönnum og Þjóðverjum flutt inn hing-
að. Það fólk gafst misjafnlega og flest
af því þekti ekkert til landræktar. Það
var ráðið upp á contract fyrir 3—5 ár :
fékk það frian flutning hingað, húsnæði
hér, læknishjálp og eldivið og $16—$20
um mánuðinn, og landblettur gefinn á
sumum stöðum þeim er þess æsktu.
Kvennfólk sem vildi gefa sig í þessa
vinnu. fékk $10—$12 um mánuðinn.
Það gafst ekki vel með margt af þessu
fólki, svo landeigendur urðu fegnir að
ónýta skilmálana löngu fyr en hinn á-
kveðni tími var útrunninn. Eg held að
helmingur þess hafi flutt til California
meðan “boomið” var þar, fyrir 7—8 ár-
um. Þó er það síðan að smátýnast til
baka, því þau undur fylgja litlu Hawaii
að flestir koma aftur sem hafa hér dvalið
þó hér sé ekki gull eða aðra dýra málma
að finna. — Þar næst var byrjað að
flytja hingað Portúgiskt fólkfrá eyjunni
Madeira, í Atlantshafinu ; nær 7000 var
flutt hingað, en nú munu þeir vera hér
yfir 14,000. Það er sparsamt og kyrlátt
fólk, en mjög fáfrótt og fæst af því
þekkir staf á bók, en úr því bætist nú
óðum i g er hér af barnaskólum.
i a „elje b-'ð 3Íðasta og versta
af „ auttu fólkx, oaníta. Fyrir 8
árum byrjaði fyrst fl. 'ngur þeirra
hingað. Þeir vinna i„-gódýrast, c
fyrir að eins $12
að öðru ’
euði og sömu kji.
- skýrt frá. Þeu
draga fram lífið á $4—5 um mánuðinn,
borða mest hrísgrjón og te og lítið af
hvorutveggia. Hvítu fólki llkar betur
öll viðskifti við Kínverja. Þeir lifa
miklu betur hvað matarhæfi snertir og
svo eru þeir áreiðanlegri sem verkamenn
Það er sagt að Japinar þekki ekki neitt
viðskiftasiðferði. Þeir hafa fjölda af
smábúðum hér í bænum, og er óhætt að
segja. að smærri verzlun er að helming
í höndum Kínverja og Japana, og er t.d.
öll verzlun við innlenda í þeirra hönd
um. Allur þvottur er sjálfsagt starf
Kinverja hér sem annarstaðar. Öll hús-
verk meðal ríks fólks eru unnin af Kín
verjum og Japönum.
Þá er að minnast lítið eitt á kaffi-
ræktina. Það er nýlega byrjað að leggja
rækt við hana hér og hefir gefist mis-
jafnlega, því fáir kunnu til þesser byrj-
að var. Kafifið vex á tré sem verður 25
feta hátt ef það er látið eiga sig. en því
er haldið í skefjum svo 10—12 fet er
veniuleg hæð þess. Það eru þrjú ár þar
til baun vex á því. en 5-7 ár áður full
uppskera fæst, sem er 3—6 pd. af trénu.
Bezta kaffi er sáð í gróðurbeð og eru 2
þuml. á milli baunanna ; þar er það sex
mánuði, en á meðan er landið hreinsað
af öllum trjám og grasi ; síðan eru hol-
ur gerðar, 2 fet á hvern veg, og moldin
muliu vel og tágar og rusl tekið burt og
er ho!a.n síðan fylt með jarðveg og plant
an sett í miðja holuna. Ef landið er vot-
lent eru skurðir grafnir um það. Alla
tíð verður að halda þyí hreinu frá ill-
gresi og lagfæra limina, og eru greinarn-
ar beigðar á tvo vegu og standa beint út
svo sól komist að jarðveginum. Einn
maður getur að eins hirc um 10 ekrur,
svo vel sé. Ekki þrífst kaffið á láglendi
og ekki nálægt sjó og ekki of hátt, svo
sjá má, að ræktun þess er ýmsum örð-
ugleikum bundin. Það eru um 12,000
ekrur samtals hér undir kaffirækt og
altaf bætt við, og. er það víst sú bezta
atvinnugrein hér fyrir þá, sem hafaefni
og þolinmæði til að halda sér að því.
Land er selt og leigt hér af stjórn
inni upp á ýmsa skilmála. Hefir hún
landspildur hér og þar, einkum á eyj
unni Hawaii og er það mest skógland
Það kostar 8—15 dollara ekran eftir
gæðum. en plöntuð með þriggja ára
gömlu kaffi kostar ekran $300.
Þá er að minnast á ástand Kana
kanna. eða innfædda fólksins eins og
það er nú. Hér um bil þriðji partur af
því á heima hér í bænom eða í kringum
bæinn. (Áður en því var leyft að kaupa
víuföng, átti flest af því heima út um
landsbygð). En þar sem flest vinnu
brögð láta þeim illa, þá eru þeir auðvit
að allir fátækir. Þeir hafa nú veðsett
hér um bil síðasta landblettinn af því
sem þeim tilhej-rði, og er sagt að þeir
reyni aldrei að innleysa landið, úr því
þeir hafa einu sinni fengið lánið. Þeir
bera alls engar óhyggjur fyrir morgun
deginum og þurfti enga guðspjalla-
gauka til að kenna þeim það því það er
þeim eiginlegt. Þeir skifta bróðurlega
þessa heims góssi á milli sín og hafa ótal
skyldmenni. Það er gömul vinaregla
þeirra að skiftast á um krakkana, og er
því stundum ekki þægilegt fyrir þá að
rekja ætt sína. Þeir eiga ekkert orð er
tákni skýrlífi kvenna eða þakklæti. Þeir
hafa einlægar samkomur eða dansleiki
og drykkjuveizlur, er þeir kalla “túan”
og er ekkert til sparað að veita eftir
föngum. Þjóðdans þeirra nefnist "hula-
hula” og þykir vera heldur grófur
Kristniboðar hafa reynt að fá þá til að
leggja niður dansa sína, en hefir ekki
tekist það enn. Hin svonefnda Taro-
planta er þeirra aðal-læða ; það er líkt
og stór gulrófa, hvít á lit og ræktuð á
sama hátt. Þeir mylja rót þessa á flöt-
um steini með barefli úr járnvið. gera
svo deig úr mélinu, láta það síðan súrna
og þegar borða skal þynna þeir það út
með vatni. Þeir brúka fingurna í spón
stað. Allan fisk éta þeir ósoðinn með
ýmiskonar sjóslýi eða mosa. Steikt
villisvín eru í mesta afhaldi hjá þeim ;
hundar eru aldir til sláturs á laun, þv;
þeir vita að hvítt fólk hefir viðbjóð á
þeim sem fæðu. Alt er þetta fólk les-
andi og skrifandi á sitt eigið mál, og
fjöldi talar ensku, eru þeir fljótari að
nema að meðaltali á skólunum en aðrir
þjóðflokkar. Hér eru tveir skólar fyrir
þetta fólk, sinn fyrir hvort kynið, og
eru þeir því nær ókeypis, $50 um árið
fyrir kenslu, fæði og húsnæði. Auk al
mennra fræðigreina eru þar kend ýms
handverk ; stúlkurnar læra húshald og
matartilbúning og drengirnir t.ré- eða
járnsmíð o. fl. Einkennilega er Kanaka
þjóðin söngfróð, og spila þeir allflestir á
gítar ; “The Native Band,” sem ferðað-
ist um Bandaríkin fyrir nokkrum árum,
fékk 1. verðlaun í San Francisco. Margt
af þvf er laglegt tilsýndar, flest heldur
stærra en hvítt fólk, með mikið og slétt
kolsvart hár. Víst er það, að stúlkurn-
ar eru betur vaxnar og liðlegri á fæti en
hinar hvítu systur þeirra. Sumu af nú-
tiðar mentafólki hefir látið sér vel líka
háttu þessa fólks, þar á meðal R. L.
Stevenson, skáldsöguhöfundur, og hið
svonefnda "fjallaskáld” Californiu (Poet
of the Sierras) Joaquin Miller, Kate
Field og fleiri. Stevenson átti hérheima
af og til; heimili hans var á Samoa-
eyjunni; hann talaði máli þeirra og
lifði eins og Kanaka að fiestum hætti,
Bærinn hér mun telja 25—30 þús.
“ 'illu samtöldu. Tekur hann
j jr 6 miiu. trandlengis, en er nokkuð
mjór, því fell lítið, 500 feta hátt, skerst
út frá- aöalfjöllunum og út í bæjarstæð-
ií' Flest af ríkarr fólkinu hefir stór-
■i, garð i kring um hús sín, og alt er
plantað ýmiskonar skraut-trjám
„ 70 yfir að lítr er bærinn að sjá sem
einn stór aldingarður, lýstur með raf-
magni. Fegurst allra blóma hrr er hið
fagra “Victoria regía” blóm. Það er
hárautt að lit og vex á stórum trjám,
sem eru alsett þúsundum af þessum
yndisfögru blómum. — Flestar bygg-
ingar hér eru að eins tvíloftaðar, en þó
eru nú í seinni tíð bygðar nokkrar tví-
loftaðar og ein 5-loftuð er nú í smíðum.
Fólk hér er mjög gefið fyrir að baða sig
og sinda í sjónum, sern er altaf um 75
gráður, vetur og sumar. Hér koma við
4 gufuskipalínur, auka seglskipa og ó-
reglulegra gufuskipa. — Fargjald tij
Ameríku er $25 á 2. plássi, til San
Francisco eða Vancouver, en $75 á 1.
plássi, og er vegalengdin um 2000 mílur.
} Photo=
ígraphs
*
*
*
Það er enginn efi á því að A
vér getum gert yður á- \
nægða bæði hvað snertir \
verðið og verkið.
PARKIN— ^
^ 490 flain St.
BEN SAMS0N,
—J árnsmiður.—
<^West Selkirk, Man.
Gerir við og smíðar að nýju vagna,
sleða, “bugy’s,” “cutters,” reið-
hjól, byssur, saumavélar og yfir höf-
uð gerir við flest sem aflaga fer, svo
það lítur út sem nýtt væri
Hann selur einnig tvær tegundir
af Steinoliu með mjög lágu verði
Stríðs-kort.
af heiminum með landafræðislegum upp
lýsingum um Cuba, Spán, Bandaríkin,
Puerto Rico, Kanari-eyjarnar, Cape
Verde eyjarnar, Havanahöfn, Tortugas
eyjarnar, Key West, Philippine eyjarnar
o. s. frv.; þetta er Ijómandi fallegt og
stórt kort og ættu allir að eignast það.
Verðið er að eins 10c., í silfri eða frí-
merkjum. Ágæt mjmd af Bandaríkja-
herskipinu “Maine” lOc. Hnappa með
Baudaríkja og Cuba-flöggum, lOc. Alt
þetta frítt sent fyrir ein 25c.
' J. LAKANDER,
Maple Park, Cane Co., III., U.S.A.
Canadian Paciíic
Railway.
Austur yfir stórvötnin Mikið niður-
sett fargjald.
Þessi gufuskip fara frá Fort William.
Alberta hvern Föstndag
Atliabasca hvern Sunniíd.
Manitoba hvern Þriðjud.
Lestin kemur frá Winnipeg til Fort
William kl. 8.50 e. h. hvern Fimtudag,
Laugardag og Mánudag.
Lítið á eftirfylgjandi verðlista á
hinni nafnfrægu Lisk’s Blikkvöru,
sem er ábyrgst að riðga aldrei. Hún
fæst í harðvörubúðinni hans
TRUEMNER,
i Cavalier.
Mr. Truemner ábyrgist vöruna sjálfur
og lofar að gefa ykkur nýjann hlut fyrir
sérhvað eina sem þið kaupið af Lisks
Blikkvöru og sem riðgar hjá ykkur með
sómasamlegri brúkun.
Áður seldar Nú á
16 potta fötur 90 cts. 67 cts.
14 potta fötur 75 “ 55 "
12 potta fötur 70 “ 52 “
14 “ “ með sigti $1,10 78 “
17 potta diskapönnur 90 ct. 70 “
No. 9 þvatta Boilers $2.50 $1.90
J. E. Truemner,
Cavalier, N-Dak.
Kaupið þér
gott brauð ?
Það er spurning sem hver heimil-
isfaðir ætti að íhuga nú, þegar
brauð er svo ódýrt, ekki nema
5-6 c. braudid.
Því þá ekki að kanpa það bezta
brauð sem búið er til í Canada,
sem er áreiðanlega brauðið hans
Boyd’s
Þá fyrst finnur þú mismuninn
sem er á brauðum ýmsra bakara.
Kallið á einhvem af keirurum
vorum og verzlið við hann.