Heimskringla - 17.11.1898, Side 4
HMMSftRlJrOLA, 17.NOVEMBER l«98.
Hurra Fyrir Vetrinum!
Húrra fyrir yfirhðfnunum, hlýju fötunum,
húfunum, vetlingunum, nserfötunum, og
öllu sem hjilpar til að halda manni hlýjum.
Hér er búðin sem er troðfull upp undir loft
af allskonar karlmanna og drengjafatnaði.
Altsaman það bezta i landinu, og það sem
mest á ríður : með undur lágu rerdi.
The Commonwealth,
HOOVEE Sc CO-
COENER MAIN STR. & CITY HALL SQUARE.
ber með sér. En hinir upphaflegu að-
göngumiðar verða samt notaðir, þótt
dagsetningin á þeim sé ekki rétt.
Winnipeg\
Hr. B. F. Walters kom heim aftur
frá Dakota á sunnudaginn var.
1
Grimudansinum, sem auglýstur er
hér í blaðinu, hefir verið frestað til 29.
þ. m.
Tjaldbúðarsöfnuður hefir ákveðið
að halda 4. afmælishátíð Tjaldbúðarinn-
ar með Concert og Social fimmtudaginn
15. Desember næstkomandi.
Séra Magnús Skaptason biður kaup-
endur nýja mánaðarritsins að vera ró-
lega. Það er nú verið að prenta 1. núm-
erið og verður það sent til kaupenda
fyrir lok þessa mánaðar.
Paul Brown, svertinginn sem skaut
til dauðs W. E. Burton, annan svert-
ingja, hér i bænum í sumar, hefir nú
verið dæmdur til að hengjast 23: næsta
mánaðar.
Gestir á skrifstofu Heimskringlu
Sigfús Benedictson, Ben. Samsonarson,
Sveinn Tómasson og Þorv. Guðmunds
allir frá West Selkirk ; J. H. Goodman,
Garðar; Runólfur ísleifsson, Oak Bluff;
G. Árnason, Akra; Halldór Karvelson.
Gimli ; Kr. Hermannson. Pembina ;
bræðurnir Þorst. M. og Jón Borgfjörð,
Geysir. __________________
Það slys vildi til hér í bænum á
laugardaginn var, að 11 ára gamall
piltur að nafni Norman Springgate,
datt ofan um ísinn á Rauðá og drukn-
aði. Hann var að leika sér á skautum
með bróður sínum. en lenti á stað þar
sem isinn var of veikur til að halda
honum uppi. Straumarinn í ánni bar
hann undir ísinn áður honum yrði
bjargað. Líkið hefir ekki fundist.
Það er nú talið áreiðanlegt að Mr.
John Winram ætli að sækja um sæti i
bæjarstjórninni fvrir 4. kjördeild. Hann
segist þegar hafa fengið loforð um nógu
mörg atkvæði til að eiga vísa kosningu
Mr. H. A. McLean, aðstoðarmál-
sóknari fylkisins. hefir nú ákveðið að
þiggja boð Mr. Joseph Martins, dóms-
málastjóra i British Columbia, og gerast
aðstoðarmaður hans þar.
Bæjarráðsmaður G. W. Bell hefir
fengið áskorun, undirskrifaða af fjölda
mörgum velmetnum kjósendum. um að
sækja á ný um sæti í bæjarstjórninni
fyrir 2. kjördeild, og hefir hann ákveðið
að gera það.
$10.00 föt, hvergi betrí en hjá
Commonwcnlth.
Samkoman sem Fort Rouge kon-
urnar héldu á Albert Hall á föstudags-
kvöldið, var mjög vel sótt. Húsið var
troðfult. Prógrammið var allgott, en
helzt mun það hafa verið dansinn sem
fór fram A eftir, sem laðaði unga fólkið
þangað. Forstöðukonurnar biðja Hkr.
að flytja öllúm þeim er sóttu samkom-
una beztn þakkir fyrir komuna.
Hr: Matthias Þórðarson frá Selkirk
var hér á ferð í fyrradag. Hann hefir
nú sett upp trésmíðaverkstæði á Aðal-
strætinu í Selkirk, áfast við járnsmiðj*
Baldvins Helgasonar. Mattías tekur
framvegis að sér aðgerð á allskonar tré-
smíðum og hefir auk þess ýmsa gagn-
lega húsmuni til sölu við mjög lágu
▼erði. Landar vorir þar i bænum ættu
að skoða verkstæðið og búshlutina.
Þessir eiga bréf á skrifstofu Hkr.
frá J. E. Éldon : Árni Jónsson, Furby
St., John Thorsteinsson, Nellie Ave.,
Ólafur Ólafsson, Esphælingur.
Utanáskrift til Eldons er nú :
S I Sayward Ave, Spring Ridge,
Victoria, B.C.
Skemtisamkoman sem nokkrar is-
lenzkar konur ætla að halda i gömlu
Wesley kyrkjunni miðvikudagskvöldið
í næstu viku, 30. þ. m., til arðs fyrir al-
menna spitalann hér í Winnipeg. ætti
að verða vel sótt. Þetta verður að lík-
indum eina samkoman sem ísl. halda
á þessu ári til arðs fyrir þessa lofs-
verðu stofnun, og þar sem íslendingar
njóta svo afarmikils góðs af þessum
spítala á ári hverju, þá er það aannar-
leg siðferðisskylda þeirra að sýna það í
verkinu að minsta kosti einu sinni á
ári að þeir kunni að meta sem verðugt
er þessa ágætu stofnun. Vér höfum
gert oss ^það að reglu á undanförnum
árum að leggja svo sem $100 til spítal-
ans, og eftir því sem vér f jölgum að töl-
unni og efnahagur vor lagast, eftir því
ætti styrkurinn frá oss til spitalans að
aukast. Konurnar sem standa fyrir
þessari samkomu, eiga þakkir skilið
fyrir framtakssemina. Þær bjóða fólki
góða skemtun og vér mælum hið bezta
með samkomunni og óskum að landar
vorir fylli húsið.
Forstöðukonnr samkomunnar höfðu
í fyrstu ákveðið að halda hana 23. þ. m.
oglétuprenta aðgöngumiða með þeirri
dagsetning. En þar eð ýmsir af þeim
sem skemta á samkomunni gátu ekki
komið það kvöld, þá urðu þær að fresta
henni til 30. þ. m., eins og prógrammið
Bandaríkjakosningarnar eru afstaðn-
ar oí hefir lítil breyting orðið á afstöðu
flokkanna frá þvi sem áður var, að því
er snertir sambandsstjórnina. Næsta
Congres í Washington hefir 182 Repú-
blika, 169 Demókrata og 6 Popúlista. —
í Senatinu verða 54 Repúblíkar, 27
Demokratar, 5 frísláttu-Demókratar og
4 Popúlistar. — Roosvelt (Rep.) náði
ríkisstjórastöðunni í New York ríki
með 24,821 atkv. umfram gagnsækj-
anda sinn. — Minnesota hefir kosið
Demókrat fyrir rikisstjóra. — Nebraska
hefir kosið Repúblikana nálega eindreg-
ið og er það talið tap mikið fyrir Bryan
og silfurmálið. — í Pembina County
hefir landi vor Jón Thorðarson náð
kosningu með 225 atkv. umfram þann
er á móti honum sótti. County kosn
ingarnar fóru þannig, að Fred Farrow
náði Sheriff-embættinu með 8 atkv
McBride Treasurer-stöðunni með 90
atkv, og Chisholm Registrar-stöðunni
með 407 atjcv. Þessir þrír eru Demó
kratar. Hin embættin eru skipuð
Repúblíökönum.
Þessa viku byrjaði stórkostleg af-
sláttarsala í deildabúðinni Cheapside
578 og 580 Main St., og hafa auglýsing-
ar þess efnis verið sendar út um bæinn
íslendingar ættu að lesa þessar auglýs-
ingar með gaumgæfni því að í þeim eru
taidar ýmsar vörutegundir sem fólk
þarf nauðsynlega að kaupa um þennan
tíma ársins. Geta menn með því að
hagnýta þetta tækifæri keypt skótau
álnavöru, karlmanna og drengjafatnað
og yfirhafnir fyrir minna en innkaups-
verð. Spyrjið eftir C. B. Julius þegar
þið komið í stóru búðina
CHEAPSIDE.
GEO. íl. RODGERS & CO.
578 og 580 Main Str.
MINNEOTA, MINN., 8. NÓV. 1898
(Frá fréttaritara Hkr.
Tiðarfar hefir nú um tíma verið hið
ákjósanlegasta. — Pólítík er hér nú á
sfnu hæsta hitamarki. Hinn nafnkunni
snjalli mælskumaður, Sidney M. Owen
frá Minneapolis, var hér síðastl. laugar-
dag og flutti i ss pólitiskan fyrirlestur.
—Mannrlát: Síðan ég skrifaði. síðast
hafa hér dáið þessir: Jón Þorvarðar-
son, bóndi úr Papey, 84 ára gamall;
Sigurlaugur Sigurðsson, austfirzkur;
Guðný Einarsdóttir, úr Þingeyjar
sýslu; Ingibjörg Björnsdóttir, kona
Guðm, Guðmundssonar stýrimanns, úr
Vopnafirði. — Þresking er því nær bú-
in og maiskorn hirðing almennt langt
komin.
Lag: Þú bldfjalla geimur.
Opnaðu landi minn augun á þér
Og yfirlíttu búðina’ okkar smáu,
Því alt sem í fatnaði fegurst til er
bú færð hjá oss með innkaups-
verði lágu.
Og ætlirðu’ að gera augunum skil,
Sem æfinlega nokkuð þurfa’ að hafa
Og klæða þig betur en buddan
lætur til,
Þá borgar sig við okkur hérna’
að skrafa.
John Stephanson,
630 riain 5tr.
AÐSENT.
Hr. Árni Sigvaldason náði kosn-
ingu sem þingritari fyrir Lincoln Co.,
Minnesota, og er það vel farið, þvi Árni
er drengur hinn besti og góður flokks-
maður (Popúlisti). Hann hefir séð
hvernig alþýða og mál hennar hafa ver-
ið meðhöndluð og hefir eytt tíma og
peningum til hjálpar hinum undirokuðu
og barist dyggilega fyrir sinni pólitisku
sannfæring. Hann er vel fær um að
gegna þeim störfum er embættinu til-
heyra og mun gera það sér og þjóð sinni
til sóma. Kosningaúrslitin eru enn ó-
ljós; loftið er fult af ryki eftir orustuna
og þar við bætist nályktin af dauðum
embættismannaefnum auðvaldsins, því
böðlar alþýðu eru ekki mönnum sinn-
andi og hafa ekki rænu á að hreinsa val-
inn og greptra þessi andvana óskabörn
kúgunar og yfirgangs. Eitt er víst, Mr.
Lind er kosinn rikisstjóri fyrir Minne
sota, og er það hinn fyrsti ríkisstjóri
hér á næstliðnum 40 árum sem ekki
hefir verið á bandi stórþjófa og einok-
enda ríkisins. Hann er öllum óháður
og mun gæta réttar ríkisins þegna.
G. A. Dalmann
P
rogram
Fyrir samkomu til hjálpar
almenna sjúkrahúsinu í Winniþeg,
í gömlu Wesley kyrkjunni,
Miðuikudaginn 30. Nóv. ’98.
1. Instrumental Music Nokkrir ungir menn.
2. Nokkur orð um sjúkrahúsið Forsetí samkomunnar, M. Paulson
3. Duet.... Misses Herman & Hördal
4. Recitation. ..
5. Solo Mrs. W, H. Paulson
6. Piano Solo .. ... Miss Th. Herman
7. Ræða ..SéraH. Pétursson
8. Solo
9. Ræða . Mr. W. H. Paulson
10. Instrumental Music Nokkrir ungir menn
11. Recitation... Mr. F. Morris
12. Cornet Solo.. .... Mr. H. Lárusson
God save the Queen.
Byrjar kl. 8 e h.
Inngangur 25 cts.
GODIfí LANDAfí.
Þar eð eigandi verzlunarinnar sem ég
vinn við hefir leyft mér að selja yður
löndum mínum með mjög lágu verði,
þá finn ég það skyldu mína að láta yður
vita af því nú þegar, svo þér getið keypt
það til fata sem þér þarfnist fyrir vet-
urinn, meðan þetta kostaboð varir. Þér
getið t. d fengið ágæta loðkápu fyrir
að eins $8.00, sem æfinlega og alstaðar
hafa verið seldar fyrir $15 og $16 ; einn-
ig alfatnað úr góðri ull fyrir $5.75, sem
seld eru alstaðar fyrir 9—10 dollara.
En þetta verð varir ekki lengi, og því
ættuð þér að sinna þessum kjörkaupum
nú strax á meðan þau gefast.
Yðar einl. landi og vinur.
Guðm. G. íslelfsson.
Fyrir The PALACE
CLOTHINQ STORE,
458 Uain St.
Hvergi fallegra hálslau í bænum
en hjá €«mmouwcaIth.
“B.TÖRK,”
nokkur ljóðmæli eftir Svein Símonarson
að Akra, N. D., er nýkomið út, prentað
hjá G. M. Thompson á Gimli. Rit þetta
er 52 bls., í kápu og með mynd höfund-
arins framanvið, en efnisyfirlit á síðustu
bls. Efni kvæðanna er talsvert breyti-
legt og kveðskapur líkur því sem var á
“Vinabros” er sami höf. gaf út fyrir
tveimur árum. Kverið kostar 15 eða
20 cts. Höfundurinn er fátækur og
heilsulítill maður, og kæmi eflaust vel
að sem flestir keyptu kverið.
Enginn selur betri drengjaföt en
Commonwe.ilfll.
TIL ATHUGUNAR
fyrir nýlendumenn getum vér þess. að
herra Þorsteinn Þorkelsson, 49 Aikin
St. hér í bænum, kaupir og selur mjólk
urkýr og aðra nautgripi. Hann kaup-
ir fyrir hæsta verð, en selur fyrir
lægsta. Gleymið ekki að finna hann
að kúa-málum
Greiðasala.
Ég undirskrifaður sel ferðamönnum
og öðrum allan greiða, svo sem fæði,
húsnæði og þjónustu, með mjög sann-
gjörnu verði. Einnig hefi ég stórt og
gott hesthús fyrir 16 gripi, sem er ný-
gert við og dyttað að að öllu leyti, og
er hvergi betra gripahús í öllum vestur-
bænum. Munið eftir staðnum—gamla
greiðasöluhúsið, 605 IIomn Ave.
Sveinn Sveinsson.
Sólskin að síðustu !'
The BLIIE STORE,
435 Ma!n Street.
Nerki: Blá Stjarna.
Ætíð hin ódýrast.
Sólskin að síðustu segjum vér, eftir hin skaðlegu votviðri í landinu. Það
er ekki til neins að neita því, að það hefir algerlega eyðilagt fatnaðar og grá-
vöruverzlunina í Manitoba á þessu hausti. Og þessvegna verðum vér að segja
fólki, að vér höfum þrisvar sinnum of miklar vörubyrgðir í búð vorri. Vér
verðum að koma þessum vörum í peninga og það nú strax. Eftirfylgjandi
verðlisti mun sýna yður að oss er full alvara.
Karlmanna Tweed Buxur $7.50 virði nú á $4.75
1« góður slitfatnaður 8.50 it it 5.00
li Nýmóðins alfatnaðr 9.50 ii il 6.00
ti Aalu 11 ar fatnaður 13.50 ii it 8.50
il Skozk vaðmálsföt 16.50 li ii 10.50
tl Léttar yfirhafnir 9.00 ii ti 5.00
it Léttar skrautkápur 15.00 it tl 9.00
Karlmannabuxur af öllum mögulegam tegundum, frá $1.00
og þar yflr ; allar fyrir helming vanaverðs.
Drengjabuxur frá 50c. til 82.75; allar fyrir minna en
helming vanaverðs.
Drengjaföt fín og þykk......$6.50 virði nú á $4.00
“ sterk úr alull..... 5.50 “ “ 3.50
“ úr gráu vaðmáli.... 4.00 “ “ 2.50
“ Sailor-föt......... 1.75 “ “ 90 cts.
Drengja Stutítreyjur í þúsundatali.
Drengja Yíirhafnir í þúsunnatali
Grávara ! Grávara ! Grávara !
Kvenna selskinnsyflrhafnir $30—$35 virði, nú á $20—$22.50
“ Bulgariu lambskinns-yfirhafnir $38 virði, nú á $27
“ Tasmaniu Coonskinns-yfirhafnir $35.50 virði, nú á $25
“ ágætar Coonskinns-yfirhafnir $48.50 virði, nú á $37.50
Karlmanna Coonskinns-yflrhafnir $25—45 virði, nú á $18—$35
“ Victorian Va.laby yflrhafnir $16.50—28 virði,nú $12—28
Karlmanna Badger yflrhafnir og svartar skrautyfirhafnir á $10
Ágætir Geitaskinns og Buffalo-feldir við mjög lágu verði.
434 Tl V IN STIt., WI.VMri’b
A. CHEVRIER-
BECHTEL & PRATT,
HENSEL, N.=DAK.
Verzla með
Álnavöru. Matvör, Stígvél, Skó,
Fatnað, Hatta, Húfur og allar
mögulegar tegundir af Harðvöru
Þeir hafa betri vörur og selja þær með lægra verði en nokkrir aðrir í nágrenn-
inu. Sérstaklega óska þeir eftir verzlun Islendinga. Gleymið þeim ekki.
Bechtel & Pratt,
— 58 —
drukknir. Þó kðstuðust þeir á kveðjum og sett-
ust svo við borð eitt í horninu yzta og létu færa
sér þangað brauðoe vin.
En þegar þeir voru langt komnir að matast
og ætluðu að fara að leggjast fyrir á bekkjunum
til þess að þurfa ekki að spjalla við hermennina,
þá stendur einn þeirra upp, gengur til Prestons
ogspyr hann heldur myndarlega :
“Dedonde van senores ?” (Hvert ætlið þér í
fyrramálið),
“Tíl borgarinnar Puesta Principe”, svaraði
Preston.
“Þið eruð Cúbamenn ?”
“Já”.
“Uppreistarmenn ?”
“Eg er verzlunarmaður. Ég þekki lítið til
uppreistarmannanna, sem þú kallar. Er nokkur
hætta á því að við rekumst á þá á leiðinni, se-
nor ?”
Þá hló lautenantinn hryssingslega, því að
þetta var staða hans.
"Nei”, sagði hann, “því að þið fáið ekki
tækifæii til þess. Mér er skipað að taka fasta
alla grunsama menn. Þú getur gert grein fyrir
þár á morgun, en þangað til verður þú í haldi,
og ef að þú þá getur ei gert mér grein fyrir því
hver þú ert, þá skulum við sýna þér hvernig
spánskir hermenn fara með uppreistarmennina á
Cúba”.
Hann beið ekki eftir svari, en fór til kunn-
ingja sinna aftur og var þar hátalaður um það
hvernig hann hefði farið að taka höndum og láta
skjóta á fyrri dögum, og svo hvað hann ætlaði
— 63 —
að saman í lágnm hljóðum, án þess þeir heyrðu,
“ertu mikíð meiddur?”
“Nei, senor”, var svarað.
“Getur þú hreyft þig ?”
“Ekki vitundarögn. Ég er bundinn svo
fast að böndin særa mig”.
Preston stundi þungan, Hann var eins
staddur, og hvernig sem hann reyndi. þá gat
honum ekki hugsast nokkurt ráð að losa sig..
“Það er lítið liðið af miðnætti”, hvislaði
hann svo aftur, “Þeir geta ekkert fyrr en dag-
ar. Og við skulum vona, að þangað til beri eitt-
hvað það að höndum, sem frelsi okkur. Vertu
hughraustur”.
“Eger að biðja um hjálp, senor. Guð mun
ekki yfirgefa okkur”.
"Þú ert hraustur drengur, Chiqnito. Éf að
við eigum að deyja, þá vona ég að þsir skjóti
okkur, án þess að fara að spyrja okkur”.
“Það er ég einnig að biðja um, senor”.
Svo þögðu þeir stundarkorn, en þá fór Chi-
quito ’ að hvísla aftur. Það vareinsog hann
vildi segja Preston eitthvað, en hann var hraust-
ari en svo, að hann færi að auka á hörmungar
þeírra, með því að játa eitthvað, sem hnnn hélt
að Preston vildi ekki. En þó langaði hann svo
til að minnast [eitthvað á Anitu við hann.
“Senor”, sagði hann. “Þegar timinn kem-
ur að við deyjum, ef það liggur fyrir okkur hér,
viltu þá muna eftir, Anitu systurminni? Við
erum svo samrýnd, að hvað sem annað hendir,
snertir hitt. Þegar ég dey, þá deyr hún
líka”.
— 62 —
Það voru ekki meira en tvö hundruð fet
milli þeirra og staðar þess, er þeir höfðu geymt
hesta sina. og hlupu þeir þangað á svipstundu.
En söðlar þeirra og allur farangur var inni í
veitingahúsinu, en það var enginn tími til að ná
því. '
Þeir stukku á bak hestunum og hleyptu út í
myrkrið, en vissu ekkert hvert þeií fóru; þeir
vissu það eitt að þeir voru sloppnir.
En tæplega voru þeir komnir hundrað yards
þegar hestur Chiquitos steig i holu eina, hrasaði
og féll og fleygði Chiquito af sér, lá hann þar
meðvitundarlaus og hálfrotaður,
Preston stöðvaði hest sinn, stökk af haki og
ætlaði að setja félaga sinn á hestbak hjá sér, en
áður hann gæti það voru óvinir þeirra komnir
og gáfu honum högg, sem gerði hann meðvitund-
arlausan með öllu, og þegar hann opnaði augun
aftur þá lágu þeir Chiquito og haun hvor við
hliðina á öðrum á gólflnu í veitingahúsinu,
bundnir og bjargþrota og algerlega i höndum ó-
vinanna.
Svo heyrði hann þá vera að tala um að lieu-
tenantinn, tem Chiquito hafði skotið, væri dauð-
ur, og vissi hann þá að hinar verstu pintingar,
sem Spánverjar gætu upp fundið, mundu bíða
þeirra.
7. KAFLI.
Jose Marti fellur.
“Chiquito ?*’ hvíslaði Preston, því að her-
mennirnir voru svo fjarri þeim að þeir gátu tal-
— 59 —
að gera eftirleiðis við menn, sem ekki gætu skýrt
frá erindum sínum eða hverjir þeir væru.
“Hið eina sem við getum gert”, hvíslaði
Preston að Chiquito “er það, að láta sem vit)
sjáum þá ekki. Vefðu utan um þig ábreiðnnni
og legstu niður á bekkinn, en sofnaðu ekki, Lík-
lega þarf ég að berjast til að sleppa héðan, og
fari svo, verður það torsótt nokkuð”.
Að fáum augnablikum liðnum voru þeir
steinsofnaðir, að því er virtist, en þeir höfðu
eyrun opin, og brátt varð Preston þess vísari að
hermennirnir voru orðnir æstir af víninu og ætl-
uðu þeir ekki að láta rannsóknina bíða morguns.
"Við skulum skilja þá að”, heyrði Preston
lieutenantinn segja, “og vita hvort þeim ber þá
saman. Ef að það verður ekki, þá skulum við
æfa okkur á að skjóta til marks þegar morgnar”,
“Það erenginn efi á því, að þeir eru upp-
reistarmenn”, sagði þá annar. “Og ég sting
upp á því, að við skjótum þá fyrst og spyrjum
þá svo á eftir”. En við það hlógu þeir hjartan-
lega allir saman, því að þetta var spánskt glens-
yrði, sem enn þann dag í dag þykir ákaflega
fyndið. Á sömu stundu risu þeir allirá fætur
og ruddust eins og einn maður væri að bekkjun-
um, sem þeir Preston og félagi hans lágu á, að
því er þeir ætluðu í fasta svefni.
“Vaknið !” kvað við í eyrum þeirra og hrökk
Preston upp sem hefði hann sofið fasr, og spurði
drungalega hvað þeir vildu.
En Syánverjinn svaraði með því að hrifsa í
Chipuito fólskulega, draga hann ofan af bekkn-
um og fleygja honum í fang einum manna sinna.