Heimskringla - 04.05.1899, Blaðsíða 4

Heimskringla - 04.05.1899, Blaðsíða 4
HEIE8KRINGLA, 4. MAI 1699. Winnipeg. Hr. J. P. ísdal fró, Keewatin, Ont., var hér á ferð í vikunni. Ritstjóri Hkr., hr. B. L. Baldwin- son fór vestur til Argyle í fyrradag. Hann verður í burtu um vikutíma. jslenzkir Oddfellows ætla að halda samkamu og dans á Northwest Hail 17. þ. m. Program í næsta blaði, Þeir félagar Jóhann Stefánsson og ÍngT^r Ólafsson komu aftur frá Nýja ísiandi á þríðjndagínn. Og fara af stað vestur að Winnipegoosisá morgun. Hr. H. S. Helgason frá Milton, N. D., fór ekki heim til sín í fyrri viku eins og hann hafði gert ráð fyrir. En þau hjón lögðu af stað heimleiðis í fyrradag Jón A. Blöndal, myndasmiður í Winnipeg, hefir verið settur Commis- sioner til þess að taka eiða af mönnum hér í fylkinu. Nú fer hver dagur að verða siðastur til þess að komast á kjörlistana. Þeir eiga að verða fullgerðir þann 16. þ. m. Þeir sem ekki hafa enn þá fengið sér borgarabréf, ættu að gera það tafar- laust. Annars tapa þeir atkvæðinu við kosningarnar. Hr. Magnús Smith hefir beðið oss að flytja í Heimskringlu innilegustu þakkir sínar til allra íslendinga, sem af hlýjum þjóðernishug studdu þaðað hann kæmist til Montreal til þess að vinna taflkappaheiðurinn, og sömuleiðis þakk- ar hann fyrir þann velvildarhug og heiður, sem honum var sýndur rneð gullúrsgjöfinni á Albert Hall, sem vér gátum um í síðasta blaði. Ruby Foam maðurinn á Notre Dame Ave. hefir tilkynt oss að hann sé vel ánægður með árangurinn af aug- lýsingu sinni í Hkr. og grein þá er vér létum fylgjahenni. Segir hann að 87 stúlkur hafi leitað atvinnu hjá sér sem afleiðing af greininni. Hann er sann- færður um að fólkið lesi blað vort og taki tillit til þess sem það segir. Hann mælir satt. Þessir unnu Royal Crown Soap saumavélarnar í vikunni sem endaði 29. AprílE. A. Sutter, 666 Ross Ave. Winnipeg; Thos. H. Slack, Baldur.Man. og Mrs. John Mowat, Prince Albert. Félagið heldui áfram fyrst um sinn að gefa 3 saumavél&r á viku fyrir sápu- umbúðir. Nú er búið að gera áætlun um kostn- aðinn við endurbygging á Manitoba hótelinu. Það á að standa á sama grunni og áður og vera 6-loftað. Bygg- ingin og allur útbúnaður á að vera miklu betri en áður var, og er ætlast til að byggingin kosti $238,000. Á sunnudaginn var fermdi séra Hafsteinn Pétursson 15 börn í Tjald- búðinni. Mr. A. E. Richards, Q.C., hér i bænum, hefir verið skipaður dómari í yfirréttinum, í stað Killam dómara.sem gerður var að yfirdómara hér i fylkinu. Mr. Richards hefir verið í félagi með Mr. Bradshaw, og hefir hr. Thos. H. Johnson lesið lög hjá þeim. Mr. Heuback, formaður sýningar- innar hér í Winnipeg, hefir fengið ríkis- stjórnina til þess að lofa að veita $1000 tii i^ÍJ að byggja sérstakt hús liér í sýningargarðinum, til þess að syna í muni frá öðrum fylkjum ríkisins. Mr. Heubach segir að sýninginísumar verði stórfenglegri og betri en nokkru sinni áður. Virðingamaður bæjarins Harris hefir lækkað virðing á eignum Winni- pegbæjar fyrir þetta ár, og metur hann nú land og húseignir bæjarins á 23J miljón dollars, að undanteknum öllum opinberum land- og húseignum og öðr- um eignum, svo sem kyrkjur og blettir þeir, er þær standa á, sem ekki er skatt- skylt, og er það til samans metið nálægt 5 milj. dollara. Hann telur að í bæn- um séu rúmlega 40,000 ibúar. Fréttir frá Andrée. —- Kaupmanna- höfn 30. Apríl. Þær fregmr komu frá íslandi i dag, að flaska hafi fundist með miða í, í hafísreki nálægt Húsavík á Norðurlandi. Miði þessi er frá norður- fara Andrée. Finnandinn sendi þessa flösku til Reykjavík með þeirri ráðstöf- un, að senda hana tafarlaust til Kristj- aníu í Noregi.—(Vér seljum þessa fregn ekki dýrara en hún er keypt.) Talsverðar umbætur eru fyrihugað- ar í 3. kjördeild bæjarins í sumar, svo sem saurrenna á Nellie Ave frá Sher- brook Str. til Toronto Str., áætlaður kostnaður $5,500. Saurrenna á Toronto St., frá Nellie Aye. til Sargent, áætlaður kostnaður $3,600. Saurrenna á Mary- land Str., frá Nellie til Sargent Avenue, áætlaður kost.naður $3,700. Ýmsar smærri umbætur verða gerðar þar í deildinni á þessu sumri. Þeir herrar Sumarliði Kristjánsson og Halldór Egilsson, báðir frá Mouse River, N. D., komu til bæjarins í sið- ustu viku, Þeir voru á leið til Swan River að skoða landið þar í dalnum og umhverfís. Voru þeir sendir í för þessa af bændafélaginu í Mouse River hérað- inu. Þeir búast við að um 16 landtak- endur — flestir af þeim familíufeður— muni flytja norður yfir landamærin ef sendimönnunum lízt vel á sig. Þeir segja almenna velliðan þar syðra og góða framför hjá þeim bændum öllum, sem búnir eru að ná þar fótfestu. Þeir búast við að verða um 2 vikur að skoða landið þar nyrðra, og gefa þeir eflaust opinbera skýrslu um ferð sína þegar þeir hafa lokið starfinu. Útsölumenn “Hjálmarskyiðu” eru vinsamlega beðnir að borga ritlinginn hið allra bráðasta. Jón Hannesson. P. O. Box 305. Winnipeg. Þá útsölumenu Valsins, sem ekki hafa gert mér neina skilagrein enn þá, um útsölu sína, bið ég svo vel gera, og láta það ekki dragast lengur Vinsamlegast. Kr. Ásgeir Benediktsson. B50 Toronto Str. Tveir eða þrír menn geta fengið fæði og þjónustu að 358 Pacifíc Avenue. Húsið er þægilcgá sett i bænum, stór og rúmgóð herbergi og gott fæði. Hús- næði, fæði og þvottur að eins $12 um mánuðinn. En sérstök borgun fyrir að slétta og stífa skyrtur og hálstau. Mrs. Ingibjörg Johnson, 358 Pac'fic Ave. Góð ráð dýr. Það hefir flogið fyrir að það muni vera fyrirhugað að stela atkvæðum ýmsra Mikleyinga af kjörlistauum og enda sumra manna annarstaðar í Nýja tslandi, sem eru ákveðnir Conservativ- ar. Með þessu móti hyggjast þeir menn að gera stjórninni dálitla þægð sem hún hefir alið á mútufé í mörg ár. En Mikleyingar og Ný-íslendingvr yfir höfuð ættu að koma í veg fyrir, að þessi svik tækjust. Þess hefir áður verið getið hér í blað- inu, að Mr. Stefán B. Jónsson hafi feng- ið Capt. Wm. Robinson í West Selkirk í lið með sér. til að koma hinni nýju upp- götvun sinni,—gluggalásnum—til fram- kvæmda. Formleeir samningar liér að lútandi hafa nú verið gerðir, og s&m- kvæmt þeim tekur Mr. Robinson að sér alla umsjón og framkvæmd fyrirtækis- ins hér í landi frá 25. þ. m., upp á viss- an hlut af öllum hreinum ágóða. Bræðurnir Haildór J. og Björn J. Austfjörð frá Cavalier, N. D., komu til bæjarins á fimtudaginn var. Þeir segja bleytur talsverðar syðra og að sáning fyrir þá sök gangi seinna en i meðallagi Allmargir islenzkir bændur eru að selja lönd sín þar. Þykja þar landþrengsli of mikil og vilja bændur komast þang- að sem rýmra verður um þá. Aðallega stefnir hugur manna þar hér norður til Canada. Halldór Borgfjörð seldi Mr. McCabe í Cavalier land sitt, en Björn seldi sitt land til Guðjóns Sæmundsson- ar. Samkoman sem “Gleym mer ei” kvennfélagið í Fort Rouge hóltá Albert Hall á fimtudagskvöldið var, var mjög vel sótt. Það mun hafa verið um 300 manna þar inni og þvínær öll sæti skip- uð. Vér minnumst ekki að hafa i ann- an tima séð jafnmargt af hérlendu fólki á íslenzkri samkomu, eins og þar var viðstatt, og má eflaust álíta það vott þess, að þær konur sem stóðu fyrir þessari samkomu, njóta hylli og virð- ingar meðal hérlends fóiks. Samkoman fór í alla staði vel fram, Það var og mjög sraekklegt, að allar félagskonurn- ar voru eins búnar og höfðu allar félags einkenni sitt á brjóstinu (blómið ‘Gleym mér ei’).— Ágóðinn af þessari samkomu hefir eflaust verið talsverður, og er það vel farið, þar sem honum verður varið til hjálpar nauðstöddum fjölskyldum. llnion menn! FLEURY ^ hefir Hoover’s utanhafnar strigabuxur, búnar til undir umsjón verkamannafélagsins. Komið og kaupið þær. W. 564 Main Str.cí Andspænis Brunswick Hotel. Trésmiðir og blýsmiðir (plumbers) hér i bænum gerðu verkfall 1. þ. m. Heimta trésmi',ir minst 30c. um klst.og 9 stunda vinnu á dag. En blýsmiðir vilja fá 40c. um klst. Það munu vera allvænlegar horfur á, að verkgefendur verði að ganga að þessum kröfum. Enskir tatímenn hér hafa skorað á Islendinga að reyna við sig taflþrautir á morgun (trjáplöntudaginn). Tefla þar 25—30 á hvora hlið. Það verður teflt í “Business College” herbergjunum á Portage Ave. og byrjar kl. lj e. h. Það er skorað á alia íslenzka taflmenn að mæta þar, svo að flokkurinn verði sem liðsterkastur. Hr, Nikulás Össurarson, bóndi i Nýja íslandi, kom til bæjarins i gær, Er hann að reka erindi sín við eldsá- byrgðarfélag hér, sem hafði í ábyrgð hús hans og innanhússmuni, sem alt brann til kaldra kola fyrir skömmu. Væri óskandi að félagið reyndist honum æriegt og borgaði honum þá upphæð, sem hann með réttu á tilkall til. — Hr. Össurarson hafði heyrt óljósa fregn’um það, að elding hefði nýlega slegið niður í hús eitt við íslendingafljót, og hefði íslenzk kona beðið þar bana af. En ekki gat hann frætt oss um nafn hennar Vél sú er St. B. Jónsson hefir í ó- leyfi mínu látiðstanda á landeign minni á Selkirk Street síðasti. 2 ár, verður flutt burtu þaðan á kostnað þeirra sem hlut eiga að máli, nema öðruvísi sé um samið fyrir 15. þ. m. Winnipeg, 3. Maí 1899. Gunnar Sveinsson, BICYCLE. Mr. A. Cohen, 555 Main Str., rétt hjá prentsmiðju Heimskringlu, biður oss að geta þess, að hann hafi ágætt $85 hjól, litið brúkað, sem hann selur fyrir $25. Þeir sem vildu sinna þessu, ættu að gera það tafarlaust. Hver er sendir mér pöntun fyrir Alex- andra-rjómaskilvindu, ásamt $10—$15 niðurborgun fyrir 10. þ. m. (Maí), fær hana flutta frítt á næstu járnbrautar- stöð. (Aanars kostar kaupandi flutn- ingsgjaldfrá Winnipeg íöllum vanaleg- umtiifellum.) Önnurnauðsynlegsmiör- gerðaráhöld sem tiiheyra, fást lánuð með skilvindunum til langs tima, án sérstakrar niðurborgunar. Minstu vél- arnar, sem aðskilja 16 gallónur á klst., kosta$50, og þær næstu, fyrir 25 gall. á klst., $75. — Þetta tilboð fæst ekki aftur þetta ár. 869 Notre Dame Ave. Winnipeg 30. Apríl 1899. S. B. JÓNSSON, Aðal-agent meðal íslendinga í Canada fyrir R. A. Lister & Co., Ltd. Winnipeg, Man. 1.0.F. andi heldur stúkan ísafold næsta þriðjudagskvöld (9 Maí), áNorth west Hall. Meðlimir beðnir að mæta ; margir nýir meðlimir verða teknir í stúkuna. S. Sigurjónsson, C. R. I.O.F. VANALEGAN FUND sinn heldur “Fjailkonan” laugardagskvöldið 13. Maí á Northwest Hall. Meðlimir beðnir að mæta því það er áríðandi mjög. Munið það að fund- urinn er á laugardag, en ekki þriðjudag, eins og vant er. Rósa Egilson, C.O. WELLANI) VALE BICYCLES Eru beztu hjol sem buin eru til i Canada. KEÐJULAUSIR, PERFCT, ^ GARDEN CITY, DOMINION. og yfir. Áður en þér kaupið reiðhjól á sumrinu ’99, þá gerið svo vel að líta á hjólin okkar. Þau hafa allra nýustu “Twin Roller” keðju, “Internal Expanders”, færanleg handföng, “Crank hangers”-ístöð í einu stykki og sjálf-ábomings ása. Eftir að hafa skoðað hjólin okkar nákvæmlega, munuð þið sannfærast um að við erum á undan öðrum hvað snertir til- búning reiðhjóla í öllu Canadaríki. Umboðsmenn í Winnipeg TURNBULL & MACMANUS* Umboðsmaður í Vestur-Canada Sílö McUei'inott Ave. Walter Jackson, P. O. Box 715 Winnipeg. THE WELLAND VALE MANUF. CO. St. Catherines, Ont. Ef þér viljið fá yður ágætan alfatnað, þá komið til vor. Vér búum tilallan fatnaðinn sjálfir og getum því ábyrgst að hann fari vel og sé úr góðu efni. Takið eftir þessum verðlista : Vaðmáls alfatnaður frá $8.50. Navy Blue alfatnaður frá $6.50. Svört ullarföt frá 6.50. Vér höfum miklar byrgðir að velja úr með hvaða sniði sem þér óskið. J' GENSER, eigandi. NOKKUD NYTT! ÞESSI MYND SYNIR PART AF ELDREDGE B VELINNI. "Ball Bearings” í saumavélum. Sú þróttlausasta kona getur unnið með þcssari vél án þess að skaða heilsuna eða þreytast. Fyrir heilbrigða konu er það að eins skemtun að vinna með þess- um vélum. Þær ganga hljóðlaust, hafa sjálfþrædda skyttu og spóla sig sjálfar. Þeim fylgja öll nauðsynleg áhöld. Þetta er fullkomnasta vél, á lrgu verði og með 5 ára ábyrgð. Engin önnur jafngóð fæst með líku verði. Kaupið aðeins Eldrcdgc II. Útsölumenn eru fc hverjum bæ. —Búnar til hjá — NATIONAL SEWING MACHINE CO. New York og Chicago. önnur stærsta saumavélaverksmiðja í heimi. Smíðar 760 vélar á dag. Eftir- komendur Eldredge verksmiðjufél. ▼▼▼▼▼▼▼VVffVVfffVfTVfVTffVWWWWWWWWW“VWWWWV' 1 I*Our “Model” Wood Cook Stoves have for yea*s been the leaders iu this claM of stove i, to which tnany thousand users will gladly testify. This year we_ have produced a” new stove called the “ Fnmous Model” andwhilefollow- ing tlie lines of the old pattem have added sev- eral original features, which v,-i 11 still further commend them. Theritiometer In oven door shows exact heat of oven at all tlmes, every cook wIH appreciatsthls. Oven ventilated and cemented, top and bottom, ensuring even cooking. Steel oven bottom. Steel nickled edge. Safety expansion top. Agitable flre grate. 3 The MeClary Mfg. Co , T I* your local dealer cannot aupply yon, wrlte our nearest house. ♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦❖♦♦^♦♦♦❖♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦» —102 — Michaels prins, þá var mér kunnugt um aðhann var ákaflega lundstór og ofsa bráður. Ég var hálfhræddur um, að vegna þess að ég varð hon- um ekki samferða til hallarinnar, þá yrði hann ef til vill búinn að færa keisaranum einhverjar þær fréttir, sem gætu komið mér í hálfgerð vand- ræði. Strax og ég kom til hallarinnar, var mér sagt að prinsinn biði mín í herbergjum sínum, og hraðaði ég mér þegar á fund hans, Hann stóð upp þegar ég kom inn og hneigði sig kuldalega, án þess að heilsa mér með handa- bandi, eins og hann var ætíð vanur. Svo tók hann til máls fremur óvingjarnlega : ‘Þú kemur seint. Mr. Derrington. F.g bjóst við þér fyrir meira en klukkustundu síðan’. ‘Mér þykir mjög fyrir því, prins’, svaraði ég, ‘að hafa látið þig bíða, en óhjákvæmileg störf töfðu mig’. ‘Má ég spyrja: hefir þú verið heima hjá mér síðan ?’ ‘Ég var heima hjá sjálfum mér’. Það var auðséð að hann trúði mér ekki, og ætiaðist hann til þess að ég sæi það á sér. En ég vildi ekki fara í orðahnippingar við hann og þagði því. Mætti ég biðja þig að að skýra fyrir mér þetta makalausa tiltæki þitt í kvöld’, mælti hann með þóttasvip- ‘Jú, þú átt rétt á því- En er ekki betra að finna keisarann að máli fyrst? Yið getum svo talað saman í næði á eftir’- ‘Hans hátign er það kunnugt, að þú átti — 107— hann í höfuðið með henni. Hver er það sem ekki mundi hafa orðið á að gera hið sama ? Hinn eiginlegi glæpamaður i sögunni af Yvonne var Durinef. Það var hann sem ég hataði og hugði á hefndir við, og var nafn hans eitt á meðal þeirra, sem ég lét lesa upp fyrir mér áður en ég lagði af stað til hallarinnaJ' Ég gaf einnig sérstakar skipanir honum viðvíkjandi. En það verður sagt frá þeim síðar. Ég verð að játa það, að um leið og ég nú gekk með prinsinum til keisarans, varég í nokkr um vafa um það, hvernig viðtökurnar yrðu, því ég vissi ekki hvað prinsinn kynni að hafa sagt honum, og ég vissi mjög vel, hvað honum var gjarnt til að ljá þeim sögum eyru, sem voru f- skyggiiegar, og einkum ef það snerti þá, sem voru honum handgengnir. Ég hefði hvenær sem var getað komið illu af stað milli hans og prinsins, og ég efaðistekki um að prinsinn gæti gert mér það sama. Prinsinn gekk á undan mér inn, og stóð keisarinn upp ámóti okkur. Hann var einn í herberginu, og gekk ég þeg- ar fram og rétti honum höndina, eins og var venja mín er víð hittumst í einrúmi. En hann lést ekki sjá það og að eins hneigði sig kuida- lega. Ég staðnæmdist þegar, horfði framan í hann með djörfung og beið svo eftir að hann tæki til máls. ‘Þér komið seinst’. mælti hann. ‘Ég hefi beðið eftir yður’. ‘É-g vissi ekki að yðar hátign byggist við - 106- klíkan hataði mig hjartanloga, en þorði þó ekki að sýna það opinberlega eða reyna t.il þe3S að gera mér nokkurt mein. S aða mín og starf á Rússlanni var þeim alt af ráðgáta, og því óttuð- ust þeir mig. Jafnvel hin hrvllilega saga sem piinsessan var nýbúin að segja mér. breytti ekki að neinu áliti mínu á keisaranum. því ég skyldi mikið bet- ur en hún, hversu mikill rógburður og fortölur hafði verið látið gjalla í eyrum á honum, til þess að telja hann frá því að fyrirgefa þessari stúlku, sem citrið hafði fundist hjá. Ég trúði því ekki, að hann hefði skipað svo fyrir, að hún skyldi send til eyjarinnar Shagalien, og því siður datt mér i hug að kenna honum um allar þær hörm- ungar og smán, sem veslings Yvonne vavð að líða i Síberiu. Hann trúði þvt, að hún hefði ætlað að brugga sér eiturbikar, og fyrir þá sök rak hann hana í útlegð til Síberíu. Þar með enduðu afskifti bans af málinu. Hann vissi ekki hót um hinar voðalegu hörmungar, sem þessir ólánssðmu Síberíufangar urðu að þola, því að enginn einasti af vinum hans, að méreinum undanteknnm, þorði aðsegja honum sannleikann. Ég var meira að segja oft heyrnarvottnr að þvi, að sjálfur prinsinn skrökvaði aðhonum. Og hvað viðvíkur því, er hann drap Stanis- laus, þáer tæplega hægt að áfelja hann bart fyr- ir það. Stanislaus reyndi að drepa hann, — hleypti tvívegis af skammbyssunni beint framan i hann. *og miðaði henni á hann í þriðja sinn, þegar keisai inn reif hana af honum og barði - 103 — að koma til mín fyrst. Viö getum orðið sam- ferða til hans eftir aðég hefi heyrt sögu þína’. ‘Á ég að skilja orð þín svo, prins, að þú haf- ir þegar sagt keisaranum nokkuð um það, sena gerðist í kvöld ?’ ‘Já, þú átt einmit að skilja það svo. Ég; hefi sagt honum alt af létta sem ég vissi’. ‘Einmitt það. Fyrst að svo er, þá skulum við verða samferða til lians. Þær afsakinir sem ég hefi fram að færa. verða að eins sagðar i hans návist. Þessar afsukanir eru að eins fyrir hönd prinsessunnar, og ég sé nú eftir þvi, að ég trúði þér til þe»s að bíða þar til ég kæmi. Hún þakk' ar þér eflaust sjálf að verðleikum við tækifærl siðarmeir’. Ég sá að hann átti mjög bágt með að stilla skap sitt. Æðarnar blánuðu og þrútnuðu á enn- inu á honum og hann ikrefti fingurnar inn í lóf- ana.^ Við stóðum svo þegjandi og horfðumst i augu. Svo vatt hann sér á hæl og gekk áundan til herbergis keisarans. ‘Prins Michael’, sagði ég rétt óður en við gengum inn í keisarasalinn, ‘þú hefir enga á- stæðu til að vera mér reiður. Mundu það á með an á þessum viðræðum stendur’. Hann stanzaði alt í einu, sneri sér við og horfði á mig. 'Ertu alveg viss um það?’ spurði hann. 'Já, það er engum efa bundið. Ég man vel eftir öðrum fnndi mínum við keisarann, þegar þú gafst mér holl ráð um það, livað ég skyldi ekki gera. Vertu þess fullviss, prins. að þú átt engan betri vin í Rússlandi. en Daníel Derring- ton’.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.