Heimskringla - 29.06.1899, Síða 2
HEIMSKKÍNGLA 29. JÚNÍ 1899.
Háiuskriiigla.
Verð blaðsins í Canada ojí Bandar. $1.50
um árið (fyrirfram borgað). Sent til
tslands (fyrirfram borg&ð af kaupend-
im blaðoins hér) $1.00.
Peningar sendist í P. 0. Money Order
BeKÍstered Letter eða Express Money
Order. Bankaávísanir 4 aðra banka en í
Winnipee að eins teknar roeð afföllum
B. Ii. Baldwinson,
Uteefandi.
Office : 517 Jíain Street.
P O BOX 305
Hvorugur lýgur.
Lögberg- heldur því fram, að ann-
aðhvort hljóti B. L. B eða W. G.
Simons að ljúga um það, hvor þeirra
hafi haft hönd í bagga með að leið-
beina skrásetjaranum í Mountain
kjördæmi, til að útbúa réttan lista yfir
nöfn íslendinga þar. En í þessu veð-
ur ritstjöri J-ögbergs reyk, sem að
vanda, því hvorugur þeirra lýgur.
B. L. B. var einn af þeim sem fór
þess 4 leit við Mr. Simonson, að hann
liti eftir tilbúningi kjörskránna og
hafði hann óbundnar hendur að gera
það á þann hátt, sem hann á leithent-
ugast og réttast. Þetta hefir hr.
Simonson gert óaðfinnanlega og sam-
vizkusamlega, og það er það sem
ritstjóra Lögbergs svíður sárast.
Lögberg heldur því fram í sam-
bandi við tilbúning kjörskránna, að
það geri “engan skaða” þóaðdauðra
manna nöfn séu á kjörskrám fylkis-
ins, og vfir höfuð nöfn fleiri manna
en þar eiga að vera. Þetta fer eftir
því frá hvaða hlið málið er skoðað.
Fylkisstjórnin verður að borga vissa
upphæð fyrir hvert nafn sem prentað
er á listunum, og að því leyti eykur
það fylkinu kostnað að prenta íleiri
nöfn en þörf er á. En svo er þetta
auðvítað dálítill hagnaður fyrir þá
sein prenta þessa lista (Lögberg
prentaði einn þeirra) En það er
jafmangt fyrir því, þótt einn tapi og
annar græði peningalega. Vér höf-
um ekkert talað um þá hlið málsins
heldur að eins fundið að því, að list-
arnir væru skamuiarlegailla úr garði
gerðir, og því getur ritstj. Lögbergs
ekki neitað, þó hann skammist. og
slúðri í heilan hundsaldur.
Lögberg er enn að japla um það,
að B. L. B. hafi haft $8.50 á dagþeg-
ar hann fór til fslands síðast, og mun
það eiga að benda á, hve eyðslusöm
eða örlát Conservativa stjórnin hafi
verið á fé almeunings. Náttúrlega
mundi maður álíta, að hin núverandi
liberal stjörn mundi vera miklu spar-
samari og borga umboðsmönnum sín-
um talsvert minni dagpieninga, held-
ur en B. L. Baldivinson fékk þegar
hann gengdi umboðsstörfum fyrir
gömlu stjórnina. En það fer í þessu
efni sem mörgum öðrum, að það verð-
ur ininna um ef'ndir loforðanna um
sparsemi fjárins, en kjósendur ætluðu
að mundi verða. Til dæmis má geta
þess, að á árinu 1898, þegar W. H.
Paulson fér til Isiands, hafði hann
alls $6.92h fyrir hvern dag, eða
nokkuð á þriðja þúsunð dollars fyrir
rúma 9 mánuði. Vér getum þessa
aðeins lesendum til fróðleiks, svo að
þeir geti því betur áttað sig á spar-
semi (!) liberala. Ef Lögbergi er
nokkur þægð í því, þá getum vér
auglýst reikninginn lið fyrir lið.
Hann finst á bls. II 17 í skýrslu rík-
isreikningayfirskoðunarmannsins í
Ottawa. Á næstu bls. á eftir sjáum
vér, að Lögberg hefir fengið á þessu
sama ári nálega $100 viðbót viðdús-
una sem það fékk hjá Greenway.
Og nokkrum biaðsíðum f amar sjá-
um vér að hr.S. Christopherson hefir
fengið ofurlítinn slatta af skildingum
fyrir að uera “innflutninga-agent f
Winnipeg. Vér getum þessa aðeins
til að sýna hina lofsverðu sparsemi
liberal stjórnarinnar.
Það er gott sýriishorn af göfug-
lyndi ritstj. Lögbeigs, þar sem liarin
í síðasta blaði ræðst á hr. Benedikt
Rafnkelsson ineð brígslum útaf því,
að hann er af guði gerður lítið eitt
kverkmælt.nr—að eiris nf því, að
Benedikt getur ekki verið samdóma
eða samdauna Lögbergi í öllum grein
um. Það er orðið ‘•fi.tt nm fína
drættí”, hvað röksemdir snertir hjá
Lögbergi, þegar það hefir ekki ann-
að að finna að einum manni en það,
sem honum er með öllu ósjálfrátt, og
sem í sjálfu sér eru ekki nein lýti.
Það má mikið vera, ef blaðið vex í
áliti hjá lesendum þess við þetta
strákslega heimsku-frumhlaup gegn
hr. Benedikt Rafnkelssyni.
Fyrirlestur
um verðmæti lands og vinnu.
Niðurlag.
En þegar vér tölum um verðmæti
bæjarstæðis, þá verður annað ofaná
Verð landbletta þeirra sem Lundúna-
borg eða Rómaborg standa á, fór að
hækka fyrir öldum síðan, og ár frá
ári heldur það verð áfram að aukast.
þar sem 4 hinn bóginn verðgildi á
vörum fer stöðugt minkandi. En
verðgildi lands ekki að eins stendur
í stað, heldur eykst stöðugt.
Hefi ég nú ekki sýnt yður mismun-
inn á verðgildi á landi og vörum ?
Það er ekki einasta stigmunur, held-
ur einnig eðlismunur. Það sem er
játað í öðru tilfellinu, því verður að
neita í hinn. Hið fyrra er afieiðing
af erfiði einstaklinganna; hið síðasta
orsakast af samsafni manna 4 vissa
staði. Mismunurinn á verði bygg-
inga í þessum bæ frá tugum til millí-
óna, bendir 4 meiri gnægðir húsa,
meiri auðæfi, en verðhækkun lands-
ins bendir á roeiri þurð,—meiri land-
fátækt. Annað verðmætið er breyti-
legt, en hitt er það ekki. Verðgildi
varnings getur lækkað við notkun
véla, en verðgildi lands er ekki háð
slíkn skilyrði. Alt það sem vérköll-
um siðmenningarlega framför, miðar
til þess að færa verðgildi varnings
niður, en verðgildi lands upp. H vern-
ig sem vér skoðnm þetta mM, þá er
mismunurinn eins mikill eins og
menn geta hugsað sér hann, eins
mikill eins og munurinn er á norðri
og suðri, myrkri <>g birtu. Það er
eins mikið miliibil 4 milli verðgildi
lands og varnings, eins og bilið á
milli heimskautanna. Hvað mund-
um vér seg.ia um þann skipstjóra,
sem ekkert skeitti um áttirnar, eða
um talnafræðinginn, sem engan mun
gerði á samlagningar eða frádráttar
merkjum, eða prestinn, sem ekki
gerði neinn greinarmun góðs og ills ?
Þér munduð umsvifalaust telja menn
þessa viti sinu fjær.
Hér er oss því lögð á herðar sú
helga skylda, að efla siðmenninguna,
að byggja upp áreiðanlegt þjóðfélags-
fyrirkomulag. Undir þeirri bygg-
ingu er komin framför og fullkomn-
un eða niðurlæging og eyðilegging
mannkynsins. Það er þessi skylda
sem er æðri öllum lagasmíðum, en
sem vér vannrækjum, þrátt fyiir all-
ar vorar tilraunir að kristna heiminn
Vér tölum um trúfræði og reynum
að skilgreina rétttrúnað frá villutrún-
aði, og eyðum tímanum í þras um
smá trúaratriði, y€em ekki eru virði
fimm mínútna umtals. En við göng-
um þegjandi fram hjáþeim villutrún
aði, sem er efni ræðu minnar í dag,
og skeitum aðengu hættu þeirri fyrir
trúarlíf vort og siðmenningu, sem sú
villutrú hefir í för með sér.
Við lok síðustu aldar keypti Þjóð-
verji einn að nafni Astor, land, þar
sem nú er miðpunktur New York
borgar. Þessi maður, sem síðan hefir
orðið nafnkunnur, var gabbaður af
nábúum sínum fyrir að hafa verið
svo heimskur, að bori'a hartnær $100
fyrir hverja ekru, því að land var
iá selt fyrir $30 ekran þar sem nú
stendur Central Park. En gamli
Astor sagði bara: “Bíðið þið við,
piitar, bíðíð þið við.” Svo fjölgaði
fólkið í bænum og gamli Astor fór að
Ieigja út land sitt, fyrst fyrir $5.00
hverja ekru, svo fyrir $10, svo $50,
svo $100, svo $1000. Eftir því sem
fólkið fjölgaði, eft.ir því hækkaði leig-
an, alt upp í $10,0<X) hver ekra. I
dag fæst engin af þessum ekrum
keypt fyrir minna verð en eina milj.
dollars og sumt af þessu landi kostar
nú 6 og upp í iO milj. dollars ekran.
Nú mælist ég t.i' að þér athugið
nákvæmiega afstöðu þessa manns
gagnvai t öðrum meðbræðrum hans.
Fyr.st gat hann látið leiguliða sinn
borga $5 fyrir ekruna á ári. En þeg-
er fólkinu fjölgaði, gat hann heimtað
$100, og þannig hélt hann áfram að
ha kka leiguna upp í $10,000 fyi ir
hverja ekru. Þessi maður bað aldrei
þingið að lögákveða 8 stunda vinnu-
tíma, og ekki gerði hann heldur verk-
fall til þess að fá 30 centa kaup um
klukkutímann. Auðæfi hans jukust
ár frá ári, án þess hann hefði nokkuð
fyrir því, án þess að beita nokkrum
dugnaði og án þess að mynda nokk-
urn iðnað. En hvernig var það með
þá sem urðu að borga honum land-
skattinn ? Fyrst borguðu þeir $5
svo 10, þá iOO og 1000 og svo áfram
upp f miljón dollars árlega leigu.
Því meira sem þeir borguðu, þess
meir hækkaði leigan. Og því ineira
sem þeir borguðu, því meir jukust
skuldbindingar þeirra, og þessar
skuldbindingar jukust ekki aðeins í
hlutföllum við aukinn fólksfjölda,
heldur einnig við hverja umbót sem
gerð var á framleiðslufærum og sem
miðaði til þess að lækka verð á varn-
ingi þeim, sem þeir framleiddu.
Með þessu móti hreykjum vér
vissum flokki manna upp á hátinda
sællífis og munaðar og iðjuleysis, en
þrýstum hinum með síþyngdum álðg-
um niður í djúp fátæktar og armæðu.
Þetta er ávöxturinn af 2000 ára sið-
menningu, síðan Kristur bauð oss að
láta kærleikann vera hina æðstu
dygð lífs vors. í miðpunkti sið-
menningarinnar, þar sem öll fram-
Jeiðslufæri eru fullkomnust og vöru-
skiftin ganga greiðast, þarsem korn-
hlöðurnar og önnur vöruhús eru troð-
full af allskonar nauðsynjum, þar
sem bankarnir geyma miljónir aí
peningum, — þar sjánm vér einnig
menn, konur og börn ráfandi eins og
rándýr í leit eftir björg, tib þess að
fyrrast hungurdauða, og kasa sérsvo
þétt saman á nóttunum, svo þau
frjósi ekki í hel. Eg bið yður að
dvelja við þessa hugsjón,—hugsjón-
ina utn hallir inillíónaeigendanna 4
aðra hlið og hreysi allsleysingjanna
á liina. Svo komum vér safnan í
kvrkjum voruin og Ibænahúsum og
hrópum “elskið bræður yðar og syst-
ur”, um leið og vér fyrirlitum mann-
jöfnuð, og fleygjum sanngirnis og
réttlætistilflnningum vorum út í veð-
ur og vind. Vér sviftum manuiun
göfgi sínu, konuna indi sínu og börn-
in gleðinni, og svo sendum vér
kristniboða út um allan heim. Eg
býst nú við að þér munið spvrja
hvernig vér getum korjiist l^já þessu
ástandi ; hvernig vér getum fengið
samhuga fvrir sundurlyndi; hvernig
vér fáum komið því til leiðar, að
hver og einn fái það sem honura her,
fái sinn tiltölulega aðgang að vinnu
og tullan arð atorku sinnar og erfið
is. Eg hefi sýnt yður, að það er ei-
lífur og ákveðinn munur á verðgildi
vinnuafurða og lands, allstaðar þar
sem fólk þyrpist saman.
Þegar bóndinn sáir í akur sinn eða
vinnur að því að hreinsa illgresi og
ýmislegt annað sem getur hindrað
eða eyðilagt uppskeru hans ef það er
ekki hreinsað burtu, hver á þá þessa
uppskeru ? Þegar vér sjáum verka-
menn í þúsunda og jafnvel millíóna-
íali vinna dag frá degi að því, að^
breyta allsleysi upp í gnægtaforða,
hver ætti þá að eiga þennan forða ?
Þetta er eitt af hinum þýðingarmestu
spursmálum sem mannkynið hefir
nokkru sinni Jeitað úrlausnar á. Vér
höfum beinteftirgrennslunarafli voru
að myndun fjarlægra hnatta, aðaldri
klettanna, að upptðkum dauðra
tungumála, sem töluð hafa verið af
löngu dauðum mönnum. En hér er
spurning, sem framför mannkynsins
og sigurvinningar trúarinnar hvíla 4
að rétt sé greitt úr. En þó, ef vér
leitum upplýsinga í þessu efni bjá
vorum lærðustu mönnum, þá fáum
vér ekkert fullnægjandi svai. Og
nú segi ég í nafni alls þess sem rétt
er og heilagt að allar afurðir ættu
að vera eign þeirra sem framleiða
>ær með handafla sínum. Þegar
maður byggir hús, sem er afleiðing
af hans eigin starfsemi, þá er það
ekki mannfélagið sem hefir bygt það
fyrir hann. Þess vegna ætti húsið
að vera hans en ekki mannfélagsins
eign.
Mannfélagsheildin fremur stóran
glæp, þegar hún gerir kröfu tíl hlut-
deildar í þeim eignum mannsins sem
hann héfir framleitt með handafla
sínum, með því að leggjaskatt á þær
umbætur eem hann gerir.
Á hinn bóginn held ég þvl fram
að þegar land hækkar í verði fyrir
starfsemi einnar mannfélagsheildar
iá gerurn vér rangt í því leyfa ein
stökum gróðabragðamönnum að
hremsa til eigin afnota allan arðinn
af þeirri verðhækkun. Verðgildi
landsins er eign þjóðarinnar, og á það
eingöugu ættu skattarnir að vera
lagðir.
Enn um brögð Green-
ways.
ínæst siðasta blaði sýndum vér
hvernig M>-. Greenway fór að svikja
$12,500 út úr Manitoba Central járn-
brautarfólaginu, til þess að nota við
kosningarnar 1887, raeð þvi að lofa fé
lagsstofnendum að selja réttindi fylkis-
ins og éauðárdalsbrautina i hendur
þeirra strax óg hann væri korainn að
völdum, og hvernig hann síðar sveik
það félag að öllu leyti, eftir að hafa eytt
peningum þess en snerí sér að því fé-
laginu. sem betur bauð, og gerði þvi
samninga við Northern Paf'ific félagið
um lagningu á brautum þeirra hér inn
í fylkið. í þeim samningum var grein
um það, að fylkið veitti $500 4 hverja
milu “organisation” kostnað, en það
var alls að npphæð $93,000.
Það er ekki ófróðlegt að lesa sögu
þessa máls og kynni sér vottor^ þau,
sem Mr. A. F. Martin og Mr. F. W.
Luxton gáfu fyrir rétti um það, og
staðfestu með eiði. Þessir menn báru
það báðir, að Jos. Martin, sem þá var
dómsmálaráðgjnfi í fylkinu og gerðist
frarosögumaður brautarsamningsfrum-
varpsins i þinginu, hefði haldið því
fram á leynifundum Liberala, að þeir
mættu til með að fylgja þessum samn-
ingum fram af alefti, því að þessi $93
þúsund ættn að vera til þess að mynda
kosningasjóð fyrir Liberala. Þetta sór
A. F. Martin fyrir rétti, og það með,
að hann hefði þá sem nú verið Liberal
og átt sæti á trúnaðarráðstefnum Li-
beralstjórnarmanna. En þessi $93,000
mútU'jóð>Viugmyi d varðaldroi að lög-
nm, því að Conservatívar í þinginu
gerðu klækjabragð þetta svo óvinsælt
meðal alþýðu. að stjórnin sá sér ekki
fæi t að hald.i því frara til stieitu. Það
var þvi hætt við að gera þennan samn-
ing við N. P.-félagið, og í stað þess
gerður nýr samningur við það. Við
þessa brevtingu tapaði mútusjóður Li-
þerala $93 000. að þvi er sáð varð og
þeir sjálfir játuðu. En með því er ekki
sannað að ekki hafi eitlhvað kotnið i
staðinn. TJridir siðari samningnnm
veirti stjórnin ’N, P. félaginu $1750
styrk á Viverja mílu af Portage la Prai-
rie- og Rauðárdalsbrautmn þess. 1 alt
veitti það félaginu um $650,000. En í
þeim samningi var ekkert nkvæði gert
um það. hve mikið af því fé ætti að
leggjast í Liberal kosningasjóð, og svo
var málið drifið gegn um þingið. Litlu
síðar veitti Greenway $160.000 styrk til
C. P. R. félagsinsog var það látiðheita
svo, að það væri fyrir byggingu Souris-
brautarinnar. En i sannleika var þetta
að eins kosningamúta til félagsins, því
það var áður búið að fá land tillag sitt
frá Ottawastjórninni, t.il að byggja
þessa grein, oa stjórneridur fólagsins
voru búnir að segja það og auglýsa, að
þeir ætluðu að byggja hana. og ekkert
var þátalað um styrk frá fylkinu í því
sambandi. En Greenway lá á hjálp
við þær kosningar, og C. P- R. félagið
hafði margra manna ráð og mikil
kosníngavöld þá, eins og nú, og það var
atriðið sem lá til grundvailar fyrir fjár-
veitingu þeirri. Fylkissjóðurinn var
ræntur $160,000 til að gefa Greenway
pólitiskan styrk C. P- R- félagsins.
Það fékk skildingana, og Greenway
aíkvæðin.
Svona er þessi saga I fáum orðum.
Það er með þessu móti að fvlkinu hefir
verið sökt í hart nær f 3 milíón dollara
skuld á fáum árum. þrátt fyrir það þó
að inntektir þess séu um £ milíón doll-
ars á ári.
Það má ganga að því vísu að þegar
sumir af Grsenwayseigin mönnumyfir-
gáfu hann út af þessum málum, þá hafi
eitthvað verið gruggugt i pokahorninu
hjá karli. En eiris og Mr. Martin tók
frain í réttinum, þá urðu 1 .iberalar að
segja já og amen til als þess undit hót-
nnum ráðgjafans, að segja af sér, ef
þetta yrði ekki samþykt. Það kemur
margt upp þegar bjónin deila, og þó að
inargrætt sé um Mr. Greenway, þí er
það ekki ne:na sm&ræöi eitt í saman-
burði við það sem verður leitt í Ijós
þegar farið er að rekja og rannsaka
stjórnarferil hans, eftir að búið verður
að velta bonum úr vöUum við næstu
kosningar.
Heima og erlendis
NOKKUR LJÓÐMÆLI eftir Guð-
muud Magnússon. Prentuð i Rvík, að
ísafoldar prentsmiðju 1899. Kver þetta
er 3 arkir að stærð í 12 bl. broti. Telur
72 blaðsiður. Kvæðin eru 19 að tölu, og
sura all-löng.
Ytri frágangur.
Málið á kvæðum þessum er látlaust
og yfirleitt lipurt og auðskilið. Þó er
meiri ný íslenzku för á því, en nauð-
syn krefur. Þetta Ijóðakver er fyrir-
mynd margra annara ljóðabóka, að
því er útlendar orðslettur áhrærir. Að
vísu finnast þær, en mjög fáar. Aftur
á móti bólar dálitið á dönsku kynjuð-
um orðatiltækjum og setningaskipun.
A bls. 61 stendur: “þá hefir smalinn
gott”. "Hann var fæddur upp í byrjun
aldar”, á bl. 67. Prentvillur eru fáar.
Þessar eru þær helztu: Á bls. 6. “hvi
Asinn, er stýra skal ári og ferð”, mun
eiga að vera: "Því Ásinn, er stýra skal
ári og ferð”. Á bls. 11 er “sjóuhevrf-
ingi-spil”, fyrir sjónhverfinga-spil. Á.
bls. 30 er: “ekkiert”, fyrir ekkert. A
bls. 59 stendur r-ið á höfði í orðinu
bænir. Á bls. 62 stendur: ' “hlýð” í
staðinn fyrir hlíð (fjallshlíð). Á bls. 68
stendur: “Heiðurslaunin hvítu ennið
krýndu”, á liklega að vera: hvíta ennið
krýndu(?)
Samkvæmni í rithætti má heita í
bezta lagi. Þó er ábendingarfornafnið
þessi, ýmist rið&ð: ‘þennan’ eða ‘þenna’
i þolfalli eintölu karlkyns.
Miður heppileg orð, og orðatiltæki
virðast þetta vera, á bls. 28 “yfirstrá-
ist”. Á bls. 36. “Að fleygja sér i þeirra
uppspenta giu”. Á bls. 62, “Þaðbirtir
yfir brjósti mér”, og á 19, “til gleði
skotið er frá borðum hans”.
Bragfræðin er fremur góð, en brag-
hættir eru ekki ákjósanlega valdir sum-
staðareftirefni kvæðanna.
Sýnishorn skáldskaparins.
Oll þessi kvæði ná meðal einkunn
að skáldskapargildi, og sum þeirra
hæðstu einkunn: “Kvöldstundir við
Eyrarsutid” er stærsta kvæðið og bezta
í þe-sum Ijóðmælum. Skiftis* það í
tvo aðalflokka. I. Undir beykitrján-
um”. Og II. “Sjónleikar næturskugg-
anna”. Fyrri partur þessa kvæðis er
hugsjóna siniði. Seinni parturinn er
gruiidvhHroiii' á sögulegum viðburðum,
og sve'pað silkislæðuin skáldlegra hug-
sjóna. Og víðast hvar fer höf. snildar-
h>ga að stiufi sinu. Það er efamál
hvoitskáld. sem i hlvegum eru höfð
oí eru góð skáld, fara fram fyrir höf. í
þessum visum hans.
“Mörg svo inndæl og unaðsrík kvöld
hefi ég áður á Fróni séð heima.
Kvöld, sem aldrei mér unt er að gleyiria,
Kvöld með guðdómleg, geislarík tjöld;
Kvöld er söngfuglar kvökuðu létt,
K' öld með ljósblik á sundum og vogum,
Kvöld, með blikandi norðljósa logum,
Kvöld, sem yndi á alt höfðu sett.
Þá var alt fyrir atigum mér bjart,
frá því efsta og niður að ströndum,
ofið glitofnum. blikandi böiidum,—
og migdreymdi svo margt—og’svomargt
Þá sig hóf fyrir huga mér sjón,
fjær.i hylling,sveipt ljósrauðum skýjum
líkt og ásarnir yfir hjá Svíum—
Það var framtíðaivorianna frón.
0
Nú er æs’knnnar draumalíf eytt,
Nú mig alvaran kveður til starfa,
ég skal vinna 4 vegum hins þarfa,
nú er útsýnið alt saman breytt.
Ekki lengur nú lokkast ég af
hinuin ljóskviku skýborga myndum,
ei af gyltum gnæfandi tindum,—
ei af löndunum handan við haf.”
I seinnipartinu’n gane.a þessar vís-
urnæstar, þó þær jafuistekki við þessar
ljómandi fallegu visur 4 undan :
“Eg líka. Eg er einn og uni hér.
þar ægis strönd er hlaðin báruin frá,
og sjórinn liggur lygn að fótum mér—
ég legg mig fram hið trausta handrið á,
og skorða í minum hönduin höfuð mitt,
og horfi, sjór. í dularríki þitt.
Að baki mér er óinur. Alt er kátt,
og ótal hópar ganga t.il og frá.
cg þar er hvíslað hljótt og hlegið dátt,
og helgi kvöldsins allir notið fá.
Að baki mér—en allir fram hjá fara,
svo frið ég hef frá glaumnum burt að
stara.
Ég stari fram í þenna þoku-hyl,
og þenna víða dularfulia sjó,
og sæii fram hans sjónhverfinga spil,
og sé þær vnxa og rr.inka í kvöldsins ró.
Ég hvili í mínum höndum höfuð mitt,
og horfi. sjór, i draumaríkið þitt.”
Bugðast og beygja sig,
bærast og lyfta sér
lognöldur, leikandi Iiníga ;
myndir fram teygja sig,
myndastog skipta sér.—
Viðburðir stærri frain stíga.
Helborn hitnnaryel
Er sú hezta viðarhrennsluvél sem til er.
Clare Brothers
CO.
Eldstór, hitunarvélar og hitaleiðarar
180 Harket St Winnipej;
Odörasti staðurinn í bænum.
Cash Coupons.
$3.00 i peningum gefnir fyrir alls ekki
neitt. Th. Thorkelsson, 539 Ross Áve,
G. .Tohnson, corner Ross & Isabel Str.,
og Th. Goodman, 539 Ellis Ave, hafa
þessar Coupons og gefa viðskiftamönn-
um sínum þær fyrir hvert 10 centa virði
sem keyjrt er í búðum þeirra og borgað
út í hönd. Coupon bækur fást i þessum
búðum, eða hjá
The Buyers and Merchants
Benefit Association,
Room N Ryan Blk. 490 Main St.reet
H. W. A. Chambre,
landsölu- og- eldsábyrgðar-
umboðsmaður
373 Main St., Winnipeg.
Mjög ódýrar bæjarlóðir á Sherbrook St.
50 + 132 fet. Verð að eins $200.
Peningar lánaðir móti veði í hæjarlóð-
um og bújörðum. Lán sem veitt eru á
hús í smíðum eru borguð út smátt, eft-
ir því sem meira er unnið að smíðinu.
Eldsábyrgð. Hús til leigu
Ariiiy and Navy
Heildsala og smásala á
tóbaki og vindlum.
Vér höfurn þær beztu tóhaks cg vindla-
byrgðir sem til eru í þessum bæ. og selj-
um þær ódýrara en aðrir. Enda gerum
vér meiri verzlun en nokkur annar.
Vér óskum eftii viöskiftnm ycar.
flf. Brovn & Co.
511 Main Str.
á horninu á Jarnes St
Oanadian Pacific
RAILWAY-
EF ÞU
hefir í hyggju að eyða
vetrinuin í hlýrra lofts-
lagi, þá skrifaðu oss og
spyrðr. um farnjald til
California,
Hawaii-eyjanna,
Japan,
Bermuda og
Vest-Indía eyjanna,
eða heim til gamla landsins
Niðursett far.
Snúið ykkur til næsta C. P. R, um -
boðsmanns. eða skrifið til
Robert Kerr,
Traffic Manager,
Winnipro, Mah,
lortrn Pacíflc R’y
Samadags tímatafla frá Winuiþeg.
MAIN LINE:
Morris, Emerson. St.Paul. Chicago,
Toronto. Montreal. Spokane, Tacoma,
Victor'a. San Francisco..
Ferdaglega......... 1,00 p.m.
Kemur 1( .......... 1,50 p.m.
PORTAGE BRANCH.
Portage la Prairie and inte-
rmediats points .........
Fer dagl. nema á sunnud. 4.51 p. m.
Kerour dl. „ 1( (1 10.45 a. m.
MORRIS BRANDOF BRANCH.
Morris. Roland. Miame, Baldr,
Belmont Wawanesa, Brandon
einnig Sonris River Branch,
Belmonl til Elc>n........
Lv. Mon.. Wed.. Fvi..10,55a.m.
Ar. Tuos. Tur., Sat.. 3,55 p.m.
CHAS. S. FEE. H. SWiNFORD.
G. P. & T. A .St.Paul. General Ar
Portago Ave., Wirmipeg.