Heimskringla - 08.02.1900, Síða 1
t
íieimskringla.
XIV. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA 8. FEBRÚAR 1900.
18.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Blöðin hafa nýlega fiutt fregnir frá
frá stríðinu í Afríku, sem brezkum
föður- og fósturlandsvinum eru all-ó-
geðfeldar, Það var búist við að Buller
hershöfðingi mundi geta losað Lady
smith úr umsáti Búanna, og í þeim til-
gangi tók hann sig upp frá Frere Camp
sunnan víö Tugela ána, með 30 000
manna, og fiutti yfir ána her og hör-
gögn sin öll og gerði áhlaup á Spion
Kop, Aðsókn hans á þetta vígi Bú-
anna var mjög örðug, með þvi að
margar hæðir voru á leiðinni, og öll
sóknin upp á móti. Voru sumar hæð
irnar um 500 fet á hæð, og því m jög ilt
að koma fallbyssum með sér, sem sum-
>ir voru svo þungar, að það þurfti 36
uxa til að draga hverja eina þeirra.
samt náðu Bretar vígiuu, eða part af
því, og héldu því heilan dag. En með
því að vatnsþurð var þar mikil fyrir
menn og skepnur, og ómögulegt að
koma fallbyssum þangað á staðinn, og
Búarnir þar í bezta vígi með liðsafla
næganoglétu rignanldi og hiýi'yfir
Breta meðan þeir voru á hæðinni. Er
talið að Bretar hafi þann dag tapað
1500 manna. Var þeim því nauðugur
einn kostur. að yfirgefa vigið næstu
nótt. Hélt svo Buller her sínum öllum
suður yfir Tugela-á.
Þessi ósigur Breta kom þjóðinni og
stjórninni á Englandi mjög á óvart,
með því Buller var talin einn með beztu
hershöfðingjum Breta og sjálfur hafði
hann látið þess getið, að hann leyfði
ekki her sinum að hörfa undan óvinun
um. En reyndin varð öll önnur, og
blöðin töluðu harðlega umópigur þenna
með því að það þykir víst að Lady-
smith, með 10,000 herraenn og fjarskan
allan af hergögnum, muni lenda i klóm
Búanna, og væri Bretum það óþægileg-
ur skellur, því að þá yrði útséð um að
hægt verði að binda enda á stríðið á
stuttum tíma. Þyair því algerlega
nauðsynlegt að auka herafia Breta að
mun þar syðra, áður en vonlegt sé að
þeir geti sigrað. Núhefir Mr. George
Wyndham, aðstoðarfjármálaritari Breta
skýrt frá því í ræðu i þinginu, að sam-
anlagður her Breta í Suður-Afríku sé
nú orðin 213.000 manna, og er það
meiri herafli, en þeir hafa nokkurntíma
iður haft á vigvellinum í nokkru striði;
af þeim eru 180,000 Bretar, 7000 Cana-
da- og Ástralíumenn og 26,000 Suður
Afríkumenn. Þessir menn hafa als 452
fallbyssur. Af þessum her eru 10,000
drepnir og særðir og 10,000 inniluktir
í liiadysmith, en 70,000 manna hafa enu
þá ekki getað komizt upp í landið til
herstöðvanna, af þvi flutningsfæri ern
ónóg tíl þess að flytja allan þann fjölda
til orustustaðanna. Af öllum þessum
útbúnaðí er það auðsætt, að Búarnir
eru engin börn i leik, og aldrei fyrhafa
Bretar mætt skæðari mótstöðumönn
um á vígvelli. Er þetta viðurkent af
hermálastjórn Breta og blöðum Eng
lendinga. En það hjálpar Bretum mik
ið, ef sú saga er sönn, að hergagna
verksmiðja Búh i Pretoria, sem býr til
fallbyssukúlur, hafi brunnið til ösku
fyrir nokkrum dögum. því hætt er við
að Búarnir verði bráðlega skotfæralitl
ir, svo að þegar Bretar verða loksins
búnir að koma sér svovel fyrir, að þeir
geta beitt öllu sínu atíi, þá líð,,r að lík
indum ekki á löngu að endi verði
bundinn á ófrið þenna.
Breta stjórn hefir ákveðið að senda
tafarlaust 90,000 hermenn til Suður-
Afríku í viðbót við þær 213 þúsundir
sem nú ern þar. Verða þá rúmlega
300,000 manna *il sóknar á móti Búun
um, og er þá ærið mikill liðsmunur, og
litlar likur til að Búarnir standi lengi
fyrir því ofurefli, þó vörn þeirra hafi
vasklag verið til þessa.
British Columbiastjórnin stendur
ærið tæpt í þinginu um þessar mundir
Hefir að eins 1 fylgismann umfram
andstæ ingana við hverja atkvæða-
greiðslu. Joseph Martin hefir enn þá
ekki tekist að fella hana; en sennilegt
þyklr að honum takist það með timan-
um.
Bretastjórn hofir gefið út yfirlýs-
ingu um að Brezkaveldið sé nú í stríði
við Suður- Afríku-Rúana, og skorar því
á alla góða Breta að hafa engin verzl-
unar viðskifti víð óvinina meðan á ó-
friði þessum stendur.
Sú frétt keinur frá Ottawa að lib-
eralar séu fyrir alvöru tekcir að búa
sig undir næsti^ Domínion kosningar og
að allmarga opinbera fundi eigi að halda
víðsvegar um ríkið meðan þingið stend-
ur yfir, Það er enda býist við að kosn-
ingar muni ef til vill verða látnar fara
fram á næsta sumri.
Bæjarstjórinn í Rat Portage, hefir
verið sekraður um $5.00 og raálskosnað,
fyrir að hafa drukkið og veitt öðrum
vín í gestgjafuhúsi þar í bænum eftir kl.
11 að kvöldi dags. Þá á samkvæmt
lögum öllum hótelum að vera lokað til
7 að morgni.
Hermannasjóðurinn er nú orðinn
yfir $100,000 dollara.
Nefnd sú sem McKinley forseti
setti í sumar er leið til þess að rannsaka
ástandið á Philips-eyjum og gefa
skýrsli* um það, og hvert stjórnarfyrir-
komulag mundi verða heppilegast fyrir
eyjarskeggja, hefir nú seut forsetanum
fyrri helming skýrslu sinnar, og hefir
hann lagt hana fyrir þingið. Nefndin
ræður til að íbúum eyjanna sé veitt
sjálfstjórn i öllum innbyrðismálum.
Segir nefndiu að hún álíti þetta vera
tryggilegt, nauðsynlegt og ákjósanlegt
fyrirkomulag, borgir og sveitir ættu að
hafa samskyns sjálfsstjórn og tiðkan
legt er í sjálfum Bandaríkjunum. Einn-
ig ættu sýslustjórnir þar að vera þær
sömueinsog í Bandaríkjunum, lengra
nær ekki fréttin um þenna hluta skýrsl-
unnar.
Stórkostlegur eldur kom upp í bæn-
um Dayton í Ohio þann 1. þ. m. Skað-
inn metinn hálf millión dollara og
nokkrir menn létu lífið. Annar eldur
í Indianapolis í Indiana ríkinu gerði
$350,000 skaða.
Mr. Elton Yermette andaðist að
heimili sínu í St. Norbert í siðustu ýiku
Hann var 109 ára gamall og talinn elzti
maður i Manitoba.
W. Gobel var svarin í ríkisstjóra-
embættið í Kentucky þegar hann lá á
banasænginni. Hann t andaðist nokkr-
um stundum síðar. .
Ottawa-þingið kom saman 1. þ. m.
Öldruð kona að nafni Mrs Young,
brann til dauða í húsbruna sem varð á
heimili hennar nálægt Cypress River í
Manitoba á miðvikudaginn i síðustu
viku. Hún var 90 ára gömul. Dóttir
hennar, Mrs. Stewart, húsmóðirin á
bænum, brann einnig mikið, og er henni
ekki ætlað líf. Annað fólk komst með
nauminduiíi undan eldinum klæðlaust,
og hafðist við i gripahúsum þar til
hjálp kom.
Islandsfréttir.
Eftir Þjóðólfi.
Reykjavík 22. Desember 1899.
Séra Matthías Jochumsson hetír nú
sótt um lausn frá prestskap til þess að
verða aðnjótnndi þeirra hlunninda eða
heiðurslauna. sem honum eru ákveðin í
síðustu fjarlögum, en það eru 2000 kr
á ári. Mun ena óráðið, hvort hann
tíytur búferlum hingað til Reykjavíkur
eða verður kyr þar nyrðra.
Um Ríp f Skagafirði sæki." séra Jón
Magnússon á Mælifelli, og er talið vist
að hann muni fá það brauð.
Mannalát. Nýdáinn er Evjólfur
Gislason í Nesi í Selvogi, fyr bóndi á
Vötnum í Ölfusi, bróðir Sigurðar he t. á
Kröggólfsöðum, á 78. aldursári (f. 27.
Marz 1822). Faðir hans Gísli bóndi
Eyjólfsson á Kröggólfssöðum (d. 1851)
var bróðurson séra Engilberts JóuS-
sonar, er síðast hélt Saurbæ á Hva'-
fjarðarströnd, en kona Cisla og móðir
Eyjólfs á vötnum var Solveig Snorra-
dóttir merkisbónda í Engey Sigurðs-
sonar samastaðar Guðmundssonar.
í haust hafa látizt þessir merkis-
bændur: Sigurður Ketilsson í Mikla
garði í Eyjafirði (12. Okt.) Ari Guð-
mundsson á Uppsölum í Seyðisfirði
vestra (16. okt.J og Jón Pálsson á Mið-
húsum á Reykjanesi (3. Nóv ) bróðir
Gests heit. Pá.ssonar skálds.
Hinn 10. þ. m. varð bráðkvaddur
Jón Samsonsson dyravörður við latínu-
skólann, röskur maður og knár á bezta
aldri. Hann var af hinni alkunnu Sam-
sonaætt í Húnaþingi. Faðir hans
Samson Ingimundarson, nú í Reykja-
vík, er dótturson Halldóru Samsons-
dóttur sterka á Fjósum i Svartárdal,
Bjarnasonar, en hhn var föðursystir
Jóns Samsonssonar alþingismanns í
Keldudal.
5. Janúar 1900.
“Frækorn” nefnist nýtt blað, sem
sem byrjað er að koma út hér um ára-
mótin. IJtgefandi og ábyrgðarm. David
Östlund. Er það i sama broti og
Kvetinablaðið, og kostar jafnmikið (1
kr. 50 a. árg.) en keinur helmingi oftar
út, tvisvar í m^nuði). Á það aðallega
að verða trúarlegs efnis.
Húsbruni. Aðfaranóttina 19. Des.
brann til kaldra kola timhurhús í Melbæ
Leiru, eign Þorsteins bónda Císlasonar,
bjargaðist fólkið með naumindúm úr
eldinum og misti Jiaralt sitt. Þorsteinn
bóndi skeuidist mjög af bruna á hönd
um og fótum, er hann var að bjarga
einu barni sinu, er einnig skemdist tíl
muna. Liggur hann síðan veikur.
Fjós brann og 2 kýr inni. Húsið var
vátrygt fyrir 2,500 kr.
Heiðursmerki. Þjóðskáldið Stein
grímur Thorsteinsson, yfirkennari við
lærða skólanu og séra Matthias Joch
umson á Akureyri hafa af konungi veri
særadir riddarakrossi dannebrogsorð
unnar. En hversvegua mátti Gröudal
gamli ekki vera með?
Lausn frá embætti hefir séra Matthías
fengið. og verður því aðnjótandi þeirra
2000 kr. launa, er síðustu fjárlög veita
honum.
Dr. Þorvaldur Thoroddsen hefir og
fengið lausn frá kennarembætti sínu
yiðlæiða skólann með 2000 kr. eftir
launum á ári, samkvæmt ákvörðun
síðustu fjárlögum.
Ný lög. Þessi löp frá alþingi hefir
konungur staðlest 6. Des f. á,
17. Um friðun á Hallormsstaðarskógi.
18. Breyting á prestakallalögunnm 27
Febr. 1880 (um Staðarsókn í Súg
andafirði sem sérstakt prestakall).
19. Um ákvörðun verzlunarlóðarinnar
í ísafjarðarkaupstað.
20 Löggilding verzlunarstaðaraðSuð-
ureyrarmölum í ísafjarðarsýslu.
21. Löggilding verzlunarstaðar við
Norðurfjörð í Strandasýslu.
Dáin er hér í bænum 27. Des. f. á,
frú Þuríður Kald, ekkja séra Eirík pró-
fast Kuld’s i Stykkishólmi (d. 1893.) en
dóttir dr. Sveinbjarnar Egilssonar
rek tors, og elzt þoirra systkyna, rúml,
76 ára að alkri (f. 2. Nóv. 1823) af börn-
um hennar lifir eitt: Bryiijólfur stúdent
í Rvík. Ein dóttir hennar. Jóhanna
Friðrika, mesta efnisstúlka, dó upp-
komin; hin dóu ung. Frú Þuríður var
vel gáfað kona, sem hún átti kyn til,
glaðlynd og tápmikil, en átti við erfið-
an hag og andstreymi að búa síðustu
ár æfi sinnar.
Skemtanir hér í bænum um hátíð-
irnar voru með allra fáskrúðugasta
móti í þetta sinn. Leikfélag bæjarins
gat aldrei leikið, sakir þess, að tveir
helztu leikendurnir voru veikir, en
skólapiltar skemtu bæjabúum nokkur
kvöld með því að leika “andbýlingana”
eftir Hostrup, og siðasta kvöldið annan
smáleik þýddan úr dönsku. Þóttu leik-
ir þessir takast vonum fremur, og sum-
ir piltarnir léku dável.
Ný pöstafgreiðsla. Frá 1, April þ.
á. verður póstafgreiðsla sú, er verið
hefir í Arnarholti í Stafholtstungum
flutt að Norðtungu í Þverárhlíð og frá
s. d er Runólfur hóksali Runólfsson í
Norðtungu skipaður póstafreiðslumað-
ur þar.
Fagnaðarár fyrirllæknana og lækna-
efuin íslenzku verður þetta ár, sem nú
fer í hönd. Flestir lækna þeirra, er
kyrrir sitja í embættum fá allálitlega
launahækkun í nýársgjöf. Allir auka
læknar verða efl 'ust lastir læknar með
3—500 kr. launahækkun, og læknaefnin
geta gert sér beztu vonir um, að fá
fljóta og góða áheyrn. Eru nú þegar
aúglýst laus til umsóknar 19 læknis-
héruð, er landshöfðingi veitir og eftii-
launaréttur fylgir ekki. Þessi héruð
eru: Skipaskagahérað, Ólafsvíkurhér-
að, Þingeyjarhérað, Hesteyrarhérað,
Hofsóssbérað, Höfðahverfishérað Reyk
dælahérað, Axarfjarðarhérað. Fljóts-
dalshérað, Mýrdalshórað og Grímsnes-
hérað, hvert með 1500 kr, árslaunum,
en Kjósarhérað, Mýrahérað, Reykhóla-
hérað, Flateyjarhérað, Nauteyrarhérað,
Þistilfjarðarhérað, Fáskrúðfjarðarhérað
og Berufjarðarhérað, hvert með 1300
kr. árslaunum. Umsóknarfrestur til
81. Marz.
Eftir ísafold.
Reykjavík, 9. Des. 1899.
Mannskaði varð á Stokkseyri 4. þ.
m. Tveir menn drukknuðu, form. Þor-
kell Magnússon, nál. 40ára, búsettur
þar og nýlega kvæntur. Ötull sjómað-
ur og heppinn. Hinn var Ögmundur
Jónsson, ókvæntur, um þrítugt; þeir
voru, ásamt mörgum fleiri, að koma
að, og er þeir voru nýbúnir að leggja
á sundið, fylti skipið og öll stjórn á
þvi var ómöguleg, cn brim var talsverl
og lásjáað. Jón Grímsson hafnsögum,
á Stokkseyri komst fyrstur til og gat
bjargað sjö mönnum. Þeir voru níu
áalls. Síðan var hinum björguðu
mönnum skift niður á fleiri skip, er
þá voru komin að sundinu, og var
brimið þá i svip svo mikið, að 2 skip
leituðu til Þorlákshafnar méð þrjá af
hinum björguðu mönnum, þar á meðal
einn er hafði hrokkið útbyrðis. þá
er skipið fylti, og var tií muna þjak
aður, Guðm. Guðmundssou vfnnumaö-
ur á Stokkseyri, er samt búist við að
hann nái heilsu aftur.
Kona varð úti í veðrinu mánudag-
inn 27. f.m., Guðrún Jónsdóttm, frá
Keflavík, 69 ára. Hún ætlaði frá Kefia-
vík inn í Njarðvík,en viltist og fanst
örend miðvikudaginn 29. nálægt Þórs-
höfn.
Þann 2l. Sept. andaðist að heimili
sínu Húnstöðum i Húnavatnssýslu,
eftir langvinna og þungbæra sjúkdóms
legu merkiskonan Þuríður Andrésdótt-
ir. Hún var fædd á Læk í Viðvíkur-
sveit í Skagafirðf 5. Ágúst 1829, og
foreldrar hennar þar lengi.
Dáin ersögð frú Ingibjörg Ebenez-
ersdóttir á Skarði, ekkja Kristjáns sál.
kammeráðs þar, á niræðisaldri.
Hafnar-
öfluðust
vænum
Ufsaveiði var töluverð í
firði, um helgina sem leið;
nokkur hundruð tunnnr af
ufsa.
Bezta veður umliðnaviku, við aust-
anátt en rétt logn, í dag 8. genginn til
útsuðurs með éljum.
16. Des.
Mannalát. Skrifað er af Eyrar-
bakka 6. þ. m.: “í dag er látinn Frið-
rik bókbindari Guðmundsson, Péturs-
sonar frá Minna Hofi á Rangárvöllum,
62 ára að aldri.
Ari Guðmundsson, bóndi að Uppsöl-
um i Seyðisfirði vestra, andaðist 16.
Okt. þ. á,, vart fertugur. Jón Páls-
sou, bóndi á Miðhúsum í Reykhólasveit
lézt 3. f. m. úr lungnabólgu, nær tímt-
ugsaldri, bróðir Gests heitins Pálssonar
Sigurðar fakors Pálssonar á Hesteyri
fl. Albert bóndi Sigurðsson á Ytri
búðum í Bolungarvík andaðist 31. Okt
stakur atorku og dugnaðarmaður, á
bezta aldursskeiði, dó úr lungnabólgu.
Arni bóndi Helgason á Brekkum í
Holtum, bróðursonur Árna prófasts
Helgasonar, er og nýlega dáinn Sömu-
leiðis Einar bóndi Einarsson á Bjólu í
Holtum.áður nndir Eyjafjöllum. Úr
Strandasýslu fréttist lát Lofts bónda
Bjarnasonar í Eyjum, var gildur bóndi
og vel látinu.
Bráðkvaddur varð hér í Reykjavík
sunnud. 10. þ. m. dyravörður við la-
tínuskólann, Jón Samsonson, vaskur
maður á bezta aldri.
20. Des.
Skagafirði, 17. Nóv. Barnaveiki
geisar enn i Fljótum, ^siðan i fyrra
sumar. Hún barst þaðan inn í Skaga-
fjörð á einn bæ, Efra-Ás, og 3 börn 8
til 12 ára dóu þar sömu vikuna. Sá
bær einangraður með banni, er hefir
veriö hlýtt rækilega.
Strandasýslu sunnanv. 9. Desemb.:
Hausttíð hér stöðugt stórhretalaus, en
úrkomur miklar. Nú hefir vikutíma
verið haglaust af áfreða og snjóþungi
talsverður, einkum Innan til í firðinum
(Hrútafirði).
Fiskiafli varð í haust lítill hér í
sýslunni. Inn í Hrútafjörð gekk ekki
fiskur, en á Steingrímsfirði vantaði
lengst af beitu. Þar fekst aldrei síld í
haust og lítiðaf smokk.
3. Jan. 1900.
Norðanveður mikið var hér alla jóla-
vikuna og rúmlega það. frá því á Þor-
láksmessu og fram á nýársdag. bál-
viðri dag eftir dag, en frostlítið að
jafnaði og snjókoma engin.
SPURNINGAR OG SVÖR.
1. Sp. Hvað er maður skyldugur til
að búa lengi á hálfu landi (80 ekrum)
undir núverandi heimilisréttarlögum ?
2. Sp. Er ein Section af landi 640
ekrur, að frádregnum brautarstæðum?
1. Sv. 3 ár; ekki minna en fulla 6
mánuði á ári, að sumrinu.
2. Sv, Já.
Fáfróður.
The Home Life Association
of Canada.
Incorporated by special act of Parliament.
Hon. R. HARCOURT, A. J. PATTISON, Esq,
President. Gen. Manager.
'Höfuðstóll—ein millíón dollars.'
Einn kemur öðrura
vern.
I síðasta blaði gátum vór þess,
að Mr. Young, Liberal þingmaður í
Deloraine-kjördæminu, hefði bréf-
lega auglýst að hann ætlaði að segja
af sér þingmensku undir merkjum
Greenways, og að hann væri búinn
að afneita honum sem leiðtoga. Nú
kemur annar Liberal þingmaður,
sem ætlar að taka sömu stefnu. Það
er Mr. Ennis þingmaður fyrir Beau-
tiful Plains kjördæmið. Hann, eins
og C, A. Young kennir lygum og
prettum Greenways í j&rnbrautar-
málinu um stefnubreyting sína.
Sömuleiðis sterkustu Liberal-blöð-
in hér í fylkinu eru að yfirgefa
Greenway, þar á meðal The Duffe-
rin Leader í Carman, Killarney
Guida, Neepawa Press o. fi. Það
er á orði að Liberal flokkurinn í Ma-
nitoba haldi bráðlega almennan
fund til þess formlega að reka
Greenway frá formensku flokksins,
, Yfir fjögur hundruð þúsund dollars af höfuðstól HOME LIFE félagsins
hafa leiðandí verzluuar- menta og peninpa menn í Manitoba og Norðvestur-
landmu keypt. HOME LIFE hefir þessvegna meiia afl á bak við sig í Mani-
toba og Norðvesturlandinu en nokkurt annað lífsábyrgðarfé'.ag.
Lífsábyrgðarskýrteini HOME LIFE eru af öllum er sjá þan álitin að vera
hin fullkomnustu lífsábyrgðarskýrteini, er nokkru sinni hafa boðist,
Þau eru skírt prentuð, auðskilin, laus við tviræð orð. Dánarkröfur borg-
aðar samstundjs og sannanir um dauða félagslima hafa borist félaginu. Þau
eru ómótmælanleg eftir eitt ár.
Öll skýrtejni félagsii s hafa ákveðið peningaverðmæti eftir 3 ár. og eru pen
jngar lánaðir út á þau með betri skilmálum en nokkurt annað lífsábyrgðai félag
býður.
Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þess hjá
W. H. WHITE, ARNI EGGERTSSON,
MANAGER.
Jlcliifyro ItlocK.
WÍ III) Í|H‘JÍ I’
GENKRAL AGENT.
O Itox 845.
Feykilegur vöru=afslattur!
Takið eftir: 10—35c, af hverju dollarsvirði.
Ladies Jackets 20—85c. Húfur,^kragar og- öll loðvara
Karlmanna yfirhafnir,|*treyjur o. fl, 20c. Flóka-
20c
skór 20c. og ýmsar aðrar skótegundir IOc. ásamt mörgu
fleira. þessar og allar vörur eru daglega að hækka í
vei ði hjá heildsölumönnunum. En þær vörur sem hér
eru boðnar með þriðjungsafslætti voru* keyptar áður en
prísarnir hækkuðu. Fólk ætti að nota 'sér þetta afarlága
verð, sem að eins mun vara stuttan tíma. Komið öll!
Komið fljótt!
Gudmundur Johnson,
Cor, Ross & Isabell.
Jlexandra ob Melatte
'RJOMA-SKILVINDUR.
Ef þú hefir sjö kýr, þá eru þær, með því nota rjómaskil-
vindur þéreins arðsamar og þó þú ættir tíu kýr og enga
skilvindu, og þess utan er tímasparnaðurinn, og sparnað-
ur á vinnu og ilára kostnaði. Bændur sem seldu smjör á
8 til lOc. pundið hafa fengið 16 til 20c. fyrir þaö síðan þeir
keyptu skdvmdurnar og haft einn fjórða meira snijör til
8olu. Ef þú óskar eftir sönnunuii fyi ir þessum staðhæf-
ingum eða vilt fá upplysingar um vei ð og söluskilmála á
þessnm skilvindum sem orka þenna vinnusþarnað
aukna gróða, þa skrifaðu á íslenzku ef þú vilt til
K. A. I.istcr &
KING
°f?
C’o.
232
ST.
Ltfl.
WINNIPEG.
Hujj;suiiarsamar
matreiðslukonur
vilja ætíð vanda sem bezt
það sem þær bera á borð.
Boyd’s brauð ev hið bezta.
Marg-ra ára reynzla heflr
sannað það. Hefurðu ekki
veitt því eftirtekt hvað það
er ágætlega smekkgott ?
W. J. Boyd,
370 Qg 579 Main Str.
MJÖG STÓR
Flaiiiielettes Teppi
Hvít og grá að lit
75C.
parið. Einnig hvít ullateppi
ágæt, 7 pnnd að þyngd
$2.75
Auglýsing.
Eins og að undanförnu hefi ég tvo
lokaða sleða í förum í vetur milli Sel-
kirk og Nýja íslands Annar sleðinn
leggur af stað frá Selkirk á hverjum
fimtudegi kl. 8 f, h, kemur aftur til
Selkirk kl. 6. á mánudagskvöldum.
Hinn sleðinn leggur af stað frá Selklrk
kl 8hvern mánudagsmorgun og kemur
aftur þangað á föstudagskvöld, V’anir,
góðir keysslumenn, þeir Kristján Sig-
valdason og Helgi Sturfögsson.
Geo. S. Dickinson,
HrEST SELKIRK, - MAN.
574 n»in
Telefón 1176.
Úrmakari
Þórður Jónsson,
Itlain Str.
Beint á móti rústunum af Manitoba
Hotelinu.