Heimskringla - 08.02.1900, Qupperneq 2
HEIMSKRINGLA 8. FEBRÚAR 1900.
Beiiiiskríiigla.
PUBL.ISIIED BY
Thc Ileimikringla News & Publishing Co.
Verð blaðnin'í í Canarla 0(r Bandar. $1.50
um árið (fyrirfram borgað). Sent til
Islands (fyrirfram borgað af kaupenle
«n blaðsins hér) .00.
Peningar sendist í P. O. Money Order
Secistered Lett.er eða Express Money
Order. Bankaávísanir á aðra banka en i
Winnipeg: að eins teknar með affðilum
Managing Editor :
R. Ií. Baldwinson,
Office . 547 Main Street.
P O BOX 305-
Ráð":jafa-kosninp;arnar
Þegí\r síðustu fylkiskosningar
fóru fram, ogallir þeir sem “sjáandi
rildu sjá”, vissu að liberalflokkur-
inn var búinn að tapa trausti kjós-
•ndanna, þa voru samt til menn sem
héldu því fram að Greenway mundi
miundi halda völdum áfram, að kosn-
ingarnar í Dauphin og Gimli mundu
ganga á móti conservativum, og að
þegar nýju rftðgjafarnir leituðu end-
srkosninga, þá væri svo sem sjálf-
•agt að þeir tópuðu kosningunni og
»vo væri alt búið með vesalings con-
servativa, en Greenway, góði gamli
■parsami liberal Greenway héldi
áfram að stjórna Manitoba um mörg
ókomin ár, eins og ekkert hefði ískor-
ist. Þeir hughreystu hver annan
þessir liberalar og blöð þeirra héldu
uppi sama söngnum. Free Press
Barði stóru flokks-trumbuna en Lóg-
berg þá litlu, og svo hélt liberal-
flokkurinn áfram út í kosningarnar í
Dauphin og Gimli með öllu því póli-
tiska herafli sem þeir höfðu ráð á, en
ferð sú varð þeim ekki til fjár, og
þeir neyddust til að játa að það gæti
verið tvísýnt um flokksigur sinn. En
■vo kom það fyrir að Mr. Greenway
fékk meðvitund um það að hollast
mundi vera fyrir hann að berja ekki
lengur höfðinu við steininn, en játa
hreinlega að hann væri unninn í
bardaganum, og segja af sér stjórn-
arvöldum . Þetta gerði hann mán-
uði eftir kosningarnar og eftir að
hafa breitt sem mest mátti hann yfir
það allra óhreinasta í fjármálastefnu
sinni og öðrum stórnar athöfnum.
Nú var það eina von flokksins að
búa sig sem bezt undir ráðgjafa-
kosningar og gera sína síðustu og
sterkustu tilraun til þess að sigra H.
J. Macdonald og D. H. McFadden,
ef þetta tækist, sem þeir töldu efa-
laust. Þá væri ekki að sökum að
spyrja. Greeway héldi enn þá á-
fram að stjórna. En þá kom það
fyrir að þessir ráðgjafar Ijóstruðu
upp um Greeway klíkuna þeim
glæpuin sem gersamlega sneru kjós-
endunum á móti þeim. Það var
sýnt að á nýári síðastl. var fjárhirzla
fylkisins ekki að eins tóm helkur I
skuld um nálega einn fjórða úr
millión dollars, þrátt fyrlr það að
leigutól liberala höfðu haldið því
fram við kjósendurna á opinbeberum
fundum, að fjárhagurinn stæði mjög
blómlega. Þessi uppljóstur kom því
fylkisbúum mjög á óvart og það
varð kurr mikill í herbúðum liber-
ala. Menn fóru að efast um að Green-
waystjórnin hefði verið eins spar-
söm á almenningsfé, eins og þeim
hafði verið sagt að hún væri. En
næst kom upp annað verra. Ráð-
gjafar Greenwaystjórnarinnar höfðu
talið kjósendum um þvert og endi-
langt fylkið, trú um það, að ýmsar
járnbrautir, sem lagðar hafa verið
hér f fylkinu á síðastl. ári, hefðu ver-
ið lagðar án þess að fylkis legði svo
mikið sem einn dollar til þeirra. En
»vo sönnuðu nýju ráðgjafarnir að
þessu hafði verið logið og að allir
ráðgjafarnir hefðu verið samtaka í
að blekkja kjósendurna í þessu máli,
því að í stað þess að hafa ekkert lagt
til þessara brauta, þá höfðu þeir á
stjórnarráðsfundi f sumar f Júlímán.
skuldbundið fylkið til að veita um
150 þúsund dollars styrk til þessara
sömu brauta, sem þeir svo síðar
sögðu að væru lagðar án fylkis-
styrks. Nú sáu kjósendurnir að
Greenway-réðgjafarnir voru sam-
safn af svlvirðilegum lygurum og að
þeim var ekki lengur trúandi fyrir
fylkismálum, enn þá vissu þeir þó
ekki allan sanDleikann, því að nýju
ráðgjafarnir gerðu það síðar opin-
bert að síðasta verk Greenway-glæpa-
klikunnar, eftir að þeir voru orðnir
undir í kosningunum og búnir að
tapa tiltrú kjósendanna, en áður en
þeir flugu úr hreiðrinu, var að binda
fylkið meira en þriðja úr millión
dollars ábyrgðum fyrír braut sein
bygð er suður í Iþmdaríkjum, án
þess að fá nokkur hlunnindi ístaðin.
Þegar þet-ta kom upp, og Greenway
varð að játa þetta væri svona, þá var
kjósendum ofboðið. Ýmsir þeir sem
áður höfðu verið sterkir með liberal-
flökknum, létu nú opinberlega í Ijósi
óánægju sína með hann og vantraust
sitt á honvyp fyrir þetta athæfl. Og
svo varð þessi óánægja megn að einn
af nýkosnu liberal þingmönnunum
ritaði bréf til formans liberalfélags-
ins og tjáði honum að hann ætli að
segja af sér þingmensku undir merkj
uin liberala strax og þing kemur
saman, með því að hann hatii tapað
tiltrú á Greenway fyrir lygar hans og
sviksemi við sig og* kjósendurna.
Alt þetta heflr, sem vonlegt er, haft
þau áhrif á liheralflokkinn að hann
befir mist móðinn og er nú ekki ba.P-
dagafær um stund Þess vegna
þorðu þeir ekki að setja út menn á
móti nýju ráðgjöfunum þegar kom
til endurkosninga, og alt grobb þeirra
um hreysti og sigurvinningar í fylk-
iskosningum valt um sjálft sig og
varð að engu. Það er víst alveg ó-
hætt að ætla að Mr. Greenway verði
ekki aftur stlórnarformaður f þessu
fylki. Hann er búinn að fyrirgera
öllum rétti til vírðingar og tiltrúar
kjósendanna í þessa fylki, og þeir
sem hafa fylgt honum fastast að und-
anförnu eru nú óðum að yflrgefa
hann og flokk hans. Það er. af þess-
um á8tæðum að ekki voru settir út
menn á móti nýju ráðgjöfunum, og
af sömu ástæðu er það að engin lík-
indi eru til þess að'liberalar fál kos-
ið nokkurn þingmann í þessu fylki
um nokkur komandi ár.
Ráðgjafar Manitoba-
fylkis.
I síðasta blaði gátum vér með
örfáum línum um hverjir væru ráð-
herrar í nýju conservative stjórninni
í Manitoba. Nú viljum vér gera
það nokkuð nákvæmar. Með því það
er tilhlýðilegt að Heimskringla sem
eindregið heflr stutt að því að koma
flokknum til valda skýri nú lesend-
um sínum frá hverjir menn þeir eru
sem nú ráða löguin í landi hér.
Fyrstur er formaður flokksins
og stjórnarinnar, Hon. Hugh John
Macdonald. Um hann er óþarfl að
ræða því hann er allra manna bezt
þektur um allan Canada. Þó má
geta þess að hann er sonur gamla
Sir John A. Macdonald, mesta stjórn-
fræðingsinn sem Canada heflr átt og
sem var fortnaður ríkis-'tjórnarinnar
um samfleyttan fjórðung aldar, þar
til hann dó. Hjá honum kyntist
Hugh John fyrst stjórnmálum. Mr.
Macdonald er fæddur í Kingston,
Ontario 13. Marz 1850 og er hann
því nú nálega 50 ára gamall. Hann
útskrifaðist af Toronto háskólanum
1869, eftir það stundaði hann lög-
fræðisnám þar til hann útskrifaðist
sem lögmaður 1872. Hann heflr búið í
Winnipeg síðan 1882. Hann var
tvisvar kosinn til ottawa þingsins og
var um tíma innanríkisráðgjafl þar
til hann tók við formensku conserva-
tiveflokksins i Manitoba fyrir 3 árum.
Hon. John A. Davidson,
ráðgjafi akuryrkju- og innílutnings-
mála ogfylkisféhirðir, heflrverið hér
f fylkinu síðan 1871. Hann er fædd-
ur í Tamesíord, Ontario 1852 og
mentaðist í skólanum í Brussells í
Ontario. Mr. Davidson hefir mest-
an tíma æfl sinnar gefið sig við verzl-
un, fyrst í þorpinu Gladstone og ?íð-
ar í Neepawa, og hefir haldið á-
byrgðarmiklum stöðum f þeim sveit-
um sem hann hefir haft aðsetur f.
Hann er um fram alt annað, góður
“business" maður. Hann heflr gegnt
þingstörfura síðan 1881, og var um
tíma leiðtogi conservativa-flokksins
hér í fylkinu.
Hon. David McFadden
heflr verið þingmaður síðan 1883.
Hann er fæddur í Peterboro í Ont-
ario 17. Febrúar 1856. Mentun
sína fékk hann í skólanum í Bruce
County og síðar f Toronto. Hann er
dýralæknir. Hann hefir haldið á-
byrgðar stöðum f sínu héraði og ver-
ið borgarstjóri í Emerson um undan-
farin ár. Hanu er gáfumaður góður
og rel látinn
Hon. Colin H. Campbell
embættislaus ráðgjafi, er fæddur í
Burlington, Ontario, á Jólum 1858,
og útskrifaður úr háskólanum í
Toronto sem lögfræðingur 1881.
Hann kom til Manitoba 1882 og heflr
stundað hér lögfræði jafnan síðan.
Campbell er maður gáfaður og inikil-
hæfur, og það má vænta þess að
hann verði ráðhollur í nýju stjórn-
inni.
Hon. James Johnson,
embættislaus ráðgjafi, er fæddur í
Michell, Ontario 18Nóv. 1855. Ilann
heflr verið mörg ár hér f fylkinu og
stundað verzlun. John:-on er hæfi-
leika maður mikil). Hann var kos-
inn þingmaður fyrir Turtle Moun-
tain-kjördæmið í Nóv. 1897, og var
sú kosning fyrsta dauðamerki Green-
way stjórnarinnar, sem fylkisbúar
fengu nokkra vitneskju um. Hann
verður óefað góður ráðgjafl í hinni
sýju stjórn.
Annars kom það mörgum á ó-
vart að Mr- R. P. Roblin var ekki
settur í ráðaneytið, því að fylkisbúar
vfirleitt líta á hann—og það að
réttu—sem einn af allra hæfustu
stjórnmálamönnum þessa fylkis. Mr.
Roblin átti að sjálfsögðu kost á að
taka hverja þá stöðu í ráðaneytinu
sem hann óskaði eftir, en hveiti-
verzlun og annað starf hans er nú
orðið svo umfangsmikíð að hann gat
ekki losað sig við það að svo stöddu,
og gat því ekki þegið boðið f þetta
sinn.
Sigurðar-málið.
Mr. Geo. A. Elliott, lögmaður,
hefir sent oss eftirfylgjandi skjðl:
B. L. Baldwinson. Esq.,
City.
Deer Sir:—
As requested by you, I beg to
hand you herewúth, copy of my
letter to Lögberg, demanding an
apology, on behalf of Mr. Sigurður
Guðmundsson, for the article bubl-
ished in their paper, at the time the
charge of personation at the last
elections was dismissed. I also hand
you herewith the apology, which
was afterwards translated into Ice
landic and published in the Lög
berg paper. This is I trust a satis-
factory setthment of this matter.
Yours faithfully.
Geo. A. Elliott.
B. L. Baldwinson Esq.
City.
Kæri HERRA:—
Samkvæmt tilmælum yðarsendi
ég yður hér með afskrift af bréfl
mínu til Lögbergs. Hvar í ég heimt-
aði, fyrir hönd Sigurðar Guðmunds-
sonar, afturkall á ummælum í grein
sem prentuð var í blaði því um það
leyti sem sökinni móti honum um að
hafa greitt atkvæði í annars nafni
við síðustu kosningar, var vísað frá.
Eg sendi yður einnig afturkallið,
sem síðar var snúið á íslenzku og
j'rentað í blaðinu Lögbergi. Þetta
vona ég sé ákjósanleg endalykt
æssa máls.
Yðar einlægur,
Geo. A. Elliott.
The Lögberg Ptg. & Publ. Co.
City.
Dear Sir:—
1 beg to notify you on behalf of
Sigurður Guðmundsson, that it is
his intention to bring an action
againsl you for damages, for a libel
contained in the issue of your paper
the Lögberg, issued from your Oflice
in Winnipeg, on the 4th day of
January instant. The Iibel com-
plained of by Mr. Guðmundsson, is
contained in an article printed partly
at the bottom of the second column
and continued upon the top of the
third column of the 8th page of that
issue. The language specially com-
plained of, is as follows:
“Það er leitt að svona fór, því sé
“hinn kærði saklaus væri æskilegt
“að það sannaðist, og sé hann sekur
“—sem nijög sterkar líkur eru til—
“þá er eins nauðsynlegt aðþað sann-
“aðist. Lagabrot af þessu tagi er að
“verða alt of tíð og ætti að
“vera hegnt hvenær sem hægt er.
“Það, að maðurinn er gamall, er
“engin málsbót, þó Hkr. gefi það í
“skyn. Menn ættu þvert á móti að
“verða varkárari með ald i og
“reynslu. Gamall málsháttur segir:
“Grfsir gjalda, en gömul svfn valda”,
“Ef málshátturinn væri viðhafður um
“þetta m&l, þá yrði að snúa honum
“við f aðalatriðinu”.
The underlined portions of which,
contain the objections particularly
complained of. This notice is given
you, in order that you may have an
opportunity of publishing a full
apology, for said libel, within 10 days
from this date. If such apology is
not made within that time, Mr.
Guðmundsson will commence an
action for libel, against you, in re-
spect of the language complained of.
This notificatiou is given by me as
Solicitor for, and on behalf of the
said Sigurður Guðnmndsson.
Yours truly,
(sgd.) Geo. A. Elliott.
Solicitor for
SlGDRÐUR GuðMUNDSSON.
WÍDnipeg 8. Janúar 1900.
Til Lögbergs útgáfu og prentfél.
City.
Kæru HERRAR:—
Ilér með tilkynni ég yður, fyrir
hönd Sigurðar Guðmundssonar, að
það er áform hans að höfða skaða-
bótarnál á móti yður fyrir ærumeið-
andi ummæli sein eru í blaði yðar
Lögbergi, gefnu út frá skrifstofu
yðar f Winnipeg þann 4. dag Jan.
yfirstandandi. Ærumeiðandi um-
mæli þau sem Mr. Guðmundsson
kvartar undan eru í grein sem prent-
uð er að nokkru leyti neðst f öðrum
dálki og áfram haldandi efst I þriðja
dálki á öftustu blaðsíðu þess blaðs.
Ummæli þau sem sérstaklega er
kvartað undan, eru sem fylgir:
“Það er leitt að svona fór, þrf sé
hinn kærði saklaus væri æskilegt að
það sannaðist, og sé hann sekur—tem
nijön miklar líkur eru til — þá er eins
nauðsynlegt að það sannaðist. Laga
brot af þessu tagi nru að verða alt of
tíð og ætti að verða hegnt hvenær sem
hægt er. l>að að maðurinn er gamall
er engin málsbót, þó Hkr. gefi það í
skyn. Menn ættu þvert á móti að verða
varkárari með aldri og reynslu. Gam-
all málsháttur segir: “Grísir glalda en
gömul svín valda”. Ef múlshátturinn
væri viðhafður um þetta mál, þá yrði
að snúa honum víð i aðalatriðinu.
Það eru undirstrikuðu kaflarnir
í þessum ummæluin sem undan er
kvartað.
Þessi tilkynning er gefln yður
til þess að þér skuluð hafa tækifæri
til þess að auglýsa afturköllun þeirra
innan 10 daga frá dagsetningu þessa
bréfs. Ef slík afturköllun er ekki
gerð innan þessa tíma, þá ætlar Mr.
Guðmundsson að hefja sakamál á
móti yður, útaf þeim ummælum sem
kvartað er undan. Þessi tilkynn-
ing er gerð af mér sem umboðs-
manni fyrir hönd nefnds Sigurðar
Guðmundssonar.
Yðar einlægur,
Geo. A. Elliott.
Umboðsmaður fyrir
Sigurð Guðmundsson.
Lögbergsfélagið sendi þá lög-
manni Elliott svo látandi fyrirgefn-
ingarbæn á ensku:
Mr. Sigurður Guðmundsson takes
exeption to certain portions of the
article published in our paper on the
4th instant that refers to the charges
vvhich had been made against him in
connection with the recent eleetion.
We may say that it was not our in-
tention topass judgement in any way
on the case, which had been before
the Conrts, or to indicate or insinuate
in any way that Mr. Guðmundsson
was guilty of the offence charged.
We hereby beg to withdraw all
imputations against Mr. Guðmunds-
son and regret that anyone should
have taken such a construction from
our article.
Á íslenzku svona í Lögbergi:
“Mr. Sigurður Guðmundsson fiunur
að vissumkaflaí grein þeirrier vér birt-
um í blaði voru hinn 4. þ. m., sem ræð-
ir um sakir þær er bornar voru á hann
1 sambandi við nýafstaðnar kosn-
ingar. Utaf því viljum vér segja, að
það var ekki tifgangur vor að leggja
uokkurn dóm ámálið, sein hafði komið
fyrir dómstóla . eða að sýna eða gefa í
skyn á nokkurn hátt að Mr Guðmunds-
son væri seknr i misgerð þeirri, er haun
var kærður um. Vér leyfum oss því að
afturkalla allar getsakir móti Mr. Guð-
mundssyni, og þykir auðvitað fyrir að
nokkur skuli hafa lagt þann skilning í
grein vora”.
•Leiðrétting.
Það er bara eitt nýtt atriði í síð-
ustu Lögbergs samsuðunni, sem Hkr.
má ekki láta ósvarað. Þar er sagt
“að það sé alkunnugt að ritst, B. L,
B. hafl eitt tíma sínum í kosninga-
brask nieðan hann var embættis-
maður sambandsstjórnarinnar á töst-
um launura. Lezt vera að ferðast í
embættiserindum og setti stjórninni
reikninga fyrir ferðakostnað þegar
hann var að smala atkvæðum fyrir
sjálfan sig”. Þatta er algerlega ó-
satt. B. L. B. sagði af sér stöðunni í
hvortveggja skiftið, og ferðaðist þess
vegna í sínum eigin tíma og á sinn
eigin kostnað, og gerði stjórninni
enga reikninga, hvorki fyrir þann
tíma sem hann var í þjónustu stjórn-
arinnar nétheldur fyrir ferðakostnaði.
Þetta getum vér sannað með vott-
orðum frá yfirmönnum B.L.B. í hvor-
tveggja skiftið, Thos. Bennett hafði
umráð í fyrra skiftið og H. H. Smith
í siðara skiftið yfir þeim skrifstofum
sem B L.B. vann á. Þeir eru mál-
unum kunnir, og vita að vér höfum
hér rétt mál.
Frá löndum,
KEElkATIN. 24. JAN. 1900.
Kæra Heimskringla!
Eigi erutn ,við Keewatin-búar fjör-
menn miklir til ritstarfa, því vart get-
ur heitið að héðan hafi sést lína í viku-
blöðum ykkar í IVinnipeg, en úr flest-
um öðrum stöðnm heyrast raddir við
og við, þar sem Islendingar búa, um
landsins gagn og nauðsynjar, og frétta
greinar. En sanngjarnt finst mér
að einnig héðan séu fréttir ritaðar.
Ekki er hér stór hópur íslendinga.
Hér eru 13 fjölskyldar, en tala alli a
íslendinga hér er 56, — Helztu atvinnu
vegir eru daglaunavinna, og stunda
hana allir landar nema 1, sem Jstundar
fiskiveiðar og liggur úti á vötnum ná-
lega vetur og sumur, og er vikingur
mikill í þorskabygðum. En sumir
landar hafa hér einnig dálitla landbletti
og stunda garðrækt, spretta garðávext-
ir hér ágætlega og eru í háu verði. En
erfitt er að rækta þá hér, því landið er
afar grýtt. Heylandhafa landar ekki,
og þurfa þvi að kaupa nálega alt hey
sem þeir þurfa handa kúm sinum.°,en
sem ekki eru margar, — 1—2 og 3 hjá
einum. Þó má vera að þeim takist
með tímauum að rækta bletti til hey-
skapar, sem nægi til fóðurs 1 eða 2
gripum. Hey er hér mjög dýrt, 10—12
dollara tonið, þá það er ódýrast.
Atvinna hefir verið hér nægileg sið
astl. ár. Því nær allir íslendingar haf a
hafL stöðugi atvinnu til þessa dags og
hafa liklega veturinn út.
Efnahagur Islendinga hér mun
vera í betra lagi, ef miðað er við landa
vora í öðrum bæjum, sem sömu at-
vinnu stunda. Af þessum 13 fjölskyld-
um, sem hér eru, eiga 12 húsin, sem
þeir búa í og sumir fleiri en eitt. Ekki
er þó sagt að allir eigi húsin skuld-
laus, sem eigi er heldur von, þar þeir
hafa bygt þau, sumir þeirra, síðastl.
suma, en sumir fyrir 1—2 árum, en all-
ir eru þeir komnir vel á veg með að
eignast þau, og margir eiga þau ger-
samlega skuldlaus. Og stórum st'ga
þeir fram árlega hvað efnahaginn snert
ir. Og vel má vera, að sumir þeirra
verði gullkóngar, áður en hérvist þeira
likur. Því gullnáma eiga þeir sumir,
þó arðlausir séu enn þá, því skort hefir
þá peninga til aðláta vinna í þeim.
Þeir hafa að sönnu borað skráargatið,
en lykiliinn er í smíðum, og enginn
veit hvað iður jarðar geyma. Þar við
situr.
Verzlun. Hér eru stöðngt tvær
verzlanir og msð köflum fieiri, er selja
matvöru og fatnað, og dýr er sú vara
öll. Hór er ein kjötverzlun, og dýrast
er þar drottins orðið; getur ekki heitið
að ætt kjöt fáist þar fyrir minna en
8—lOcts. pd.. jarðepli 50c. bush., þegar
það er ódýrast. Það hygg eg að hér
mundi gott tækifæri fyrir kjötsala, að
setjast hór að, það er að segja ef hann
vill ná í peninga.
Heilbrigði: Fremur hefir hér verið
kvillasamt síðastl. ár. Og þar af leið-
andi hafa ýmsir landar orðið fyrir ærn-
um kostnaði. Af fullorðnum hafa mest
vanbeilindi beðið: Sigurðjir Pétursson
og Gísli Jónsson, sem báðir hafa legið
tiðuin síðastl. ár, og hefir hvorugur
þeirra en fengið bót. meina sinna. Það
er grönnum þeirra sorgarefni, því þeir
eru dugandi menn og drengir góðir.
Einnig hefir gengið ýms vesöld í börn-
um, mest kíghósti og tanntökuveiki.
Engir hafa hér ástvinamissi beðið síð-
astl. sumar, nema Mr. og Mrs. Þor-
steinson; þau mistu 12. Ágúst síðast.
son sinn 8 raánaða gamlan, úr tann
tökuveiki og kíghósta.
Félagsskapur. Helzti félagsskap-
ur hjá oss er Lestrarfélag. Það stend-
ur með hiuum mesta blóma. Þó hefir
það oft mátt liða súrt og sætt, eins og
flestur anuar félagsskapur. sem fæðzt
liefir í þessari gömlu og grályndu ver-
öld. En þegar mikið hefir heyrzt af
hinu kynlega glamri, sem Jónas talar
um, þá höfum við ætíð hóað í ‘'lætin”,
og hefir þá vanalega Htið orðið úr
sköinminni. I gegn um súrt og sætt
hefir það vaxið, og aldrei hefir það ver-
ið þroskameira en nú. Það á nú orðið
uml70bindi af bókum.
Félagið heitir “Tilraunin”. Em
bættismenn félagsins eru 5: forseti,
skrifari, bókavörður, gjaldkeri og fjár-
málaritari. Þeir eru kosnir árlega, en
fundi heldur félagið 4 á ári.— Ýmsan
fleiri félagsskap höfum við reynt að
mynda meðal vor, svo sem pöutunar-
félag, málfundafélag og kappræðufélag.
En ekki hafa þau geta þrifist. Hafa
þnuöllfengið gulu af ergelsi og oltið
ut af i sokkabolunum, og óp hinna
æðstu presta fylgt þeim til grafar.
Skemtanir. Um þær er lítið hjá
oss. Lestrarfelagið hafði hlutaveltu og
skemtisamkomu 9. Desember f. á Það
varð rneð storum ágóða fyrir félagið.
Einnig skemtu menn sér vel. Hið
helzta til skemtana var: ræður og flutt
kvæði og söngur, upplestur og síðast
hoppað (dansað). — Á jólanóttina var
hér höfð jólatréssamkoma. Það var
allgóð skemtan; ræður og kvæði flutt
(íslendingar yrkja hór sem aunarstað-
ar). Ekki hafa aðrar samkomur verið
haldnar hér í vetur. Þó ekki sé mikið
um samkomur hér hjá oss, þá er þó fé-
lagslífið all fjörugt; og ekki hefir það
víða verið betra, þar sem ég hefi verið.
Pólitik, Um hana er ekki mikið
að skrifa. Við erum engir ofsamenn í
þeim greiuum, en flestir fylgja hér Con-
servatívum, fáir Liberal. Og glaðir
erumviðyfir kosningaúrslitum Mani-
toba-fylkis. Og nýja islenzka þing-
manninum óskum við til hamingju og
hann uppfylli vonir landa sinna og
verði þeim og sór til sóma á þingi.
Húrra fyrir B. L. Baldwinson.
Hór skal staðar numið. Og vona
ég að þú, Heimskringla mín, flytjir
leseridum þínum þessar fréttir, og fyr-
irgefir þó ófimlega sé ritað og eins þó
að bréfið só nokkuð langt, þar sem svo
sjaldan er ritað.
Hljóttu langa lífdaga og hilli manna.
Gellir.
MOUNTAIN, N. DAK.,25. JAN. 1900.
Frá fréttaritara Hkr.
Frost og hreinviðri þessa dagana
og alveg snjólaust.
Þeir herrar Dr. Ólafur Björnsson og
H. S. Bardal frá TVinnipeg hafa verið
hór f kynnisför til vina og vandamanna
Hr. Jóhann Bjarnason höfuðskeljafræð-
ingur frá IVinnipeg, er hér í kynnisför
til systkyna sinna, og svo að reka iðn
SÍna.
I Cements-námunum hefir verið
hætt vinnu um tíma, sökum vatnsleys-
is. Félagið segist byrja aftur með vor-
inu og vinna þá nótt og dag.
Herra J. V. Leifur á Mountain hef-
ir verið settur agent hér til að selja far-
bréf fyrir hinar ýmsu skipalínur, hvert
sem er til norðurálfunnar. Hann seg-
ist geta selt þau ódýrar en menn geti
keypt þau í St. Paul eða annarstaðar.—
Það væri sanngjarnt að landar vorir
sem hafa í hyggju að heimsækja gamla
Fron 1 sumar; eða þá Parisar-sýning-
una, vildu finna herra Leif að máli áð-
ur en þeir kaupa sér farbréf fannarstað-
ar.
Hveitiverðið helzt alt-af lágt (51c.),
og eru bændur að skeggræða um, að
farn að stunda meiri kvikfjárrækt, og
svo að sá meiru af "Flax”, sví það er í
afarháu verði, nú $1,50 búsh., og allar
líkur tii að gott verð haldizt á því fram-
vetris, því bæði Linseed Oil Mills og
Flax Fiber Mills er verið að reisa víðs-
vögar um ríkið.
Góð tíðindi
hljóta það að vera öllum, sem veikireru
að rafmagnsbelti mín (Electric Galvao-
ic Belt) eru þau undraverðustu belti í
heiminum, þar eð þau lækna sjúkdóma
betur en önnur belti, sem kosta $5 til
$30. Þessi belti mín endast æfilangt og
ganga aldrei úr lagi. Það eru áreiðan-
legaðlækna liöaveiki, gi.t, tnnnpínu,
kirtlaveiki, alskonar verk, sárindi og
kvalir. svefnleysi, hægalðeysi, lifrar-
veiki, hjartveiki, bakverk, nýrnaveiki,
magaveiki, höfuðverk, kvefveiki, La-
Grippe, andarteppu, taugasjúkdóma og
alskonar kvensjúkdóma. Engar á-
stæður að vera veikur, þegar þér getið
orðið læknuð. Þér verðið varir við
✓erkanir beltisins eftir 10 mínútur.
Af því ég vil að allir kaupendur
Heimskringlu eignist þessi belti, þá sel
ég þau á $1.00 hvert, eða 6 belti fyrir
$4.50 um næstu 60 daga, eftir 60 daga
hækkar verðið.
J. Iiiikander.
Maple Park,
Kane County,
Illinois, U. S. A.
Anny and IVavy
Heildsala og smásala á
tóbaki og vindlum.
Vér höfum þær beztu tóbaks og vindla-
byrgðir sem til eru í þessurn bæ, og selj-
um þær ódýrara en aðrir. Enda gerum
ver meiri verzlun en nokkur annar.
Vér óskum eftii viðskiftum yðar.
f. Brovn & Co.
541 Main Str.