Heimskringla - 01.03.1900, Side 1
XIV. ÁR
Nr. 21.
o>q
Heimskríngla.
WINNIPEG, MANITOBA 1. MARZ 1900.
Lesid eftirfylgjandi:
Hjá Stefáni Jónssyni er alskonar dúavara seld með 25%, 33%, 50%
Þessi afsláttur er að eins fyrir stuttan tíma á ýmsum dúkum til að fá rúm
fyrir nýjar vörur. Allar þessar vörur voru keyptar áður en þær stigu
upp. Missið ekki af þessum kjörkaupum, ef yður er mögulegt að
sæta þeim.
Enn fremur 20% og 25% af öllum karlmanna yfirhöfnum, drengja
yfirhöfnum, kvenn Jackets, loðhúfum og ýmsum öðrum vetrarvarningi,
alt með niðursettu verði á meðan það hrekkur.
Undra upplag af alskonar sumarvarningi daglega að koma inn í búð
S. Jónssonar, gleymið ekki að koma og skoða, vörurnar eru góðar og
með verði sem allir geta keypt.
Komið sem fyrst og sem flestir.
Virðingarfylst yðar
S. JOHNSON.
N. E. HORN líOSS AVE. OG ISABELL ST.
The Home Life Association
of Canada.
Incorporated by special act of Parliament.
Hon. R. HARCOURT, A. J. PATTISON, Esq,
President. Gen. Manuger.
'Höfuðstóll—ein millíón dollars.'
Yfir fjögur hundruð þúsund dollars af höfuðstól HOilE LIFE félagsins
hafa leiðandi veisílunar-rnenta og peninga, menn í Mairtoha og Norðvestur-
landin-u keypt. HOME LIFE hefir þessvegna meira afl á bak við stg í Mani-
toba og Norðvesturlandinu en nokkurt annað lífsábyrgðarfé'ag.
Lifsábyrgðarskýrteini HOME LIFE eru af öllum er sjá þau álitin að vera
hin fullkomnustu lífsábyrgðarskýrteini, er nokkru sinni hafa boðist,
Þau eru skírt prentuð, auðskilin, laus við tviræð orð. Dánai kiöfur borg-
aðar samstundis og sannanir um d.iuða félagslima hafa borist félagicu. Þau
eru ómótmrelanleg eftir eitt ár.
Öll skýrteini félagsit s hafa ákveðið peningaverðmreti eftir 8 ár. og eru pen
ingar lánaðir út á þau með betri skilmálum en nokkuit aunað iífsábytgðai iélag
býður.
Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þes- hjá
W. H. WHITE, ARNI EGGERTS50N,
MANAQBR.
ílcliityre Rloolt, Winnipeg.
GENERAL AGENT.
p.o itox a-iö.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Gufuskipið Milwaukee sigldi frá
Halifax þann 21. f. m. áleiðis til Suður
Afriku. Það er 4. skipið sem flytur
canadiska hermenn til Afriku.
Málið sem danska stjórnin lét höfða
móti skipshöfninni á gufuskipinu Roya
list, sem með Qfbeldisverkum sínum
varð 3 íslendingum að bana á Dýra-
firði i haust er leið. hefir verið útkljáð
þannig: að kapt. Nielsen hefir verið
dæmdur í 1 árs fangelsi; Holmgreen
stýrimaður er dæmdur f 30 daga
fangelsi við vatn og brauð, og Rug-
gaard matsveinn f 30 daga fangelsi, —
Dómar þessir mega teljast hneykslan-
lega vægir, og eru þegjandi vottnr
þess, hve Danir meta lítilsvirði manns
lffin á íslandi.
G. E. Tuckett, einn af eigendum
T & B tóbaksverksmiðjunnar í Hamil-
ton Ont. með mestu verzlunarntönn-
um í Canada, andaðist að heimili stnu
þann 19. f. m.
Ottawastjórnin er að hugsa um að
breyta kjörseðlunum svo aðþeir verði
auðskildari hér eftir, en þeir nú virðast
vera. Enn fremur á að breyta kosn-
ingalögunum svo að krossinn megi vera
hvar sem vera vill framan á kjörseðl-
unum, og skuli samt talin sem gildur,
svo lengi sem hægt er að sjá hverjum
hann er ætlaður.
Vindstormur sá sem getið var um í
síðasta blaði að hefði gert mikinn skaða
á Bretlandseyjum og Frakklandi. hefir
einnig ollað miklum skemdum og mann
tjóniáSpáni. Fimm skip hafa farizt
og mörg strandað og fjöldi sjómanna
misti lífið. Mörg skip eru einnig týnd.
sem áttu að vera 'komin á ýmsar hafn-
ir, og er talið víst að )>au hafi öll farizt.
R. L, Riohardson, ríkisþ ngmaður
fyrir Lisgar-kjördæmið og ritstjór1
biaðsins Wiuuipeg Tribune, lagði uý
lega spurningu fyrir stjórnina um það.
hvenær tími væri kominn til þess að
leggja skatt á land C.P R. félagsins, og
yar honum svarað þvi í þinginu að það
væri spursmál sem dómstólarnir yrðu
að skera úr.
Richardson Jagði þá fram frum-
varp til laga þess efnis aðlönd félagsins
skyldu skattgild straxog 2(> ár eru lið-
in frá því þau urðu eign félagsins. En
sá tími er nú hér um bil út runninn.
Nái frumvarp þetta lagagildi, þá
verða lönd félagsins i Manitoba og
Norðvesturlandinu, allsnotur inntekta-
grein fyrir hin ýmsu sveitafélög sem
félagslöndin liggja í, og hlýtur að hafa
þau áhrif að lækka skatta á gjaldþegn
um sveitanna. Það verður gaman að
sjá hvað þingið gerir víð þetta frum-
varp.
British Columbia-stjórnin er fallin.
Hún varð undir á föstudaginn var, við
atkvæðagraiðslu um breytingu kjör-
dæmanna þar í fylkinu. Hún var bú-
in að sjá það jafnan síðan Jóseph
Martin gekk á móti henni í þinginu, að
hún mundi verða skammlíf, og til þess
að vera sem bezt bútn undir næstu
kosningar, ætlaði hún að gera kjör-
dæmabreytingu, og lagði fram frum-
varp til laga um það mál, en féll á því
bragði.
Húsbruni varð i bóndabæ, 3 mílur
frá Blackwater í Ontario, 3 ungmenni
brunnu þar til dauðs.
Eldur kom upp í frímúra höllinni í
London, Ontrio, á föstudaginn var. Er
það stórhýsi mikið og leikhús bæjarins
í parti af byggingunni ásamt ýmsum
skrifstofum auðfélaga. Byggingin
brann til ösku og er skaðinn metinn
yfir eitt hundrað þúsund dollara.
420 húsbrannu í baenum Ataqnines
á Spáni, þann 21. þ. m. Margt fólk
brann til dauða. Er þetta talinn stærsti
eldur sem komið hefir upp á Spáni á
þessari öld.
’Það eru fleiri en C, A. Young, sem
eru búnir að tapa trú á frómlyndi gamla
Greenway’s og stefnu liberalfiokksins
undir leiðsövn hans, Mr. Ennis í
Neepawa hefir sagt af sér þingmensku,
og það er talið víst að Mr. Davidson,
ráðgjafi akuryrkjumála og fylkis fé
hirðir í nýju stjórninni verði kosinn
gagnsóknarlaust, með því að liberal
flokkurinn hefir hvorki þrek né þor til
þess að setja út mann á móti honum.
Þeir virðast nú loksins farnit- að ráma
i það sem flestir aðrir vissu fyrir tveim
mánuðum, að það er gersamlega þýð-
ingarlaust fyrir þá að reyna að fá
nokkurn liberal kosinn í þessu fylki
eins og sakir standa nú.
Herfréttir síðan i fyrri viku segja
að Bretar séu nú fyrir alvöru búnir að
koma ar sinni svo fyrir borð, að þeir
eru farnir að skjóta Búum skelk í
bringu. Síðan Bretar leystu Kimber-
ly úr umsátinu 16. þ. m. hafa þeir
uunið hvern sigurinn á fætur öðrum.—
Þann 17. þ. m. náðu herdeildir Breta,
undir forustu Kelly-Kenny hershöfð-
ingja. nær 80 vögnum frá Búum; voru
þeir hlaðnir með vopn og vistir; 2 vagn-
arnir voru hlaðnir með Mauser-rifflum.
Þar fengust einnig 8 kassar af rifflakúl-
um, 10 tunmtr af sprengiefni og mikið
af allskonar matvælum og. Einnig
náðist talsvert af hergögnum og fall-
byssum frá Búum við Kimberly og Ma-
gesfonten. Cronje herioringi hélt liði
sínu og hergögnum áleiðis til Koffy-
fontain, norðan við Modder ána, og er
sagður að hafa þar öflugt vígi. Nokkr-
ar brezkar riddaradeildir (um 2000
manna) voru sendir á eftir honum til
Kiyp Drift, eu gátu ekki stöðvað ferð
hans. En börðust við hann heilan dag.
Um síðir urðu þeir að hverfa frá þegar
nóttin skall á. Ein af hersveitum Ca-
nadamanca tók þátt í bardaganum við
Jacobsdal og dugðu vel. og þóttu
standa jafnfætis hinum hraustu og æfð-
ustu hermönnum Breta. Fimrn þeirra
gáfust samt upp um daginn og urðu
fráskila aðal hernum, er talið líklegt
að þeir hafi verið teknir til fanga af
Búunuru. Blöðin í London hælamjög
herkænsku Roberts og Kitcheners. en
viðurkenna þó að þeir hafi bygt breyt-
inga áform sín á reynzlu Bullers og
þeirra sem með honum hafa unnið.
Þeir hafa því getað varast alt það sem
honurn varð til tftlmunar í sóknutn síu-
um á óviuaherinn. En Bullur með liði
sínu hafði barist 5 daga samfloytt í
hæðunum 10 milur norður frá Coheve-
ley og hafði rekið Búaliðið frá nokkr-
um vígum þar, annars er ekki getiö
um hvað mannfall hafi orðið af Bretum
ué Búum f þessum bitrdöguin. Einn af
skæðustu bardögunum, og sem hefir
haft sorgleg áhrif, sérstaklega fyrir Ca-
nada, var háður við Modder River á
sunnudaginn 18. f. m. í þeim bardaga
var 1. Canada-herdeildin, og misti þar
margt af mönnum sinum — um eða yf-
ir 60 þeirra sreirðust, 20drepnir, 7 tekn-
ir fangar og 2 hurfu í bardaganum.
Með þessu eru um 90 Canadamenn úr
sögunni fyrst um sinn, og þó það sé
eins og ætíð má búast við í bardögum,
þá er missirinn eigi að síður sár og
sorglega tilfinnanlegur fyrir ættingja
þeirra og vini hér í landi. Einn her-
maður frá Winnipeg féll í þessum bar-
daga og annar maður, Major Arnold,
héðan úr bænum, særðist hættulega
og er i lífshættu. Ekki er þess getið að
Bretar hafi unnið þennan bardaga, og
er talið að þeir mnni als hafa tapað þar
um 600 manna. Ekki er getið þar um
mannfall í liði Búnnna og hefir það þó
hlotið að vera mikið. I þessum bar-
daga mistu Bretar 2 foringja særða. —
Það þykir markvert. að Gen. Roberts,
sem sendi hermáladeildinni i London
fréttina um þennan bardaga, skyldi
ekki geta um hvorir unnu sigur. En
vera má að bardaginn hafi ekki verið
afstaðinn þegar fréttin var send, með
því að siðan hefir frétzt að orustan hafi
staðið yfir frá föstudegi til mánudags
Fréttir frá Búum segja, að þeir hafi
háð orustu við herdeildir Bieta, undir
Gen. French, og náð þar 180 vöguum
með vopnum og vistum, og að auki
2,800 uxum og tekið 58 menn fanga. A
þetta að hafa skeð hjá Riet River um
sama leyti sem Gen. Roberts og Cana-
dametin háðu orustuna við Modder Ri-
ver. En fréttir um þetta eru enn þá
óljósar. Sagt er að Gen. Buller með
herdeildir siuar sé nú á hæðum nokkr-
um nálægt Ladysm'th, og að herdeild-
ir hans sjáist frá bænum. Það er því
talið víst, að honurn muni takast að
frelsa þann bæ innan fárra daga.
Síðustu fregnir :
STÓRKOSTLEGUR SIGUR FYRIR
BRETA. Á þi iðjudagsmorguninn var
flugu þrer fráttir hvervetna um hinn
meutaða heim, þar sem ritsíminn nær
til, að hinn nafnfrægi hershöfðingi Bú-
auna t Afríku, Cronje. hefði orðið að
gefast upp með allar þær hersveitir, er
hotium fylgdu. Þessi fregn hefir reynzt
áreiðanleg. Cronje gafst upp skilmála
laust, eftir frrega vörn og .,ær því 10
daga samfleytta orustu móti ofurefli
liðs. Sagt er að Bretar hafi tekið
þar fanga um 4000 — 6000 hermanna,
auk skotfæra og alskonar herbúnaðar.
ÞesSi stórkostlegi sigur Breta. þótt
hann kremi ekki með öllu á óvart, var
mjög ^hugðnæraur hvervetna f hinu
brezka veldi. Því þótt menn sjái enn
þá ekki fyrir endann á þessu striði í
Suður Afriku, þá er það þó vist, að
jafn stórkostlegur sigurvinningur og
þetta, hlýtur að flýta mikið fyrir hin-
um einu hugsanlegu úrslitum á stríð-
inu, þeim sem sé, að Bretar vinni að
lokum fullkominn og skilyrðislausan
si >ur á Búunum.
I siðasta bardaganum við herfylk-
ingar Cronje á mánudaginn var, gekk
canadiska herdeildin hraustlega fram
í fyrstu röð, enda féllu þá 8 af þeim og
30 særðust. Hefir þessi herdeild siðan
fengið hrós mikið fyrir hreysti og katl
mensku, hvervetna i enskum blöðum
.og ræðiitn.
Frönsk, þýzk og ítölsk blöð sjá
auðvitað ofsjónum yfir þessnm sigri
Breta. og telja það illa farið að Cronje
skyldi ekki geta sloppið úr herkví Breta
með allan liðsafla sinn.
Nýtt lyf við “blóðtær-
ii)gu“
(Anœmi).
Frá Pasteurs efnarannsóknastöð-
inni í Paris hefir komið fregn um ný-
fundið lyf gegn sjúkdótui þeiin, sem á-
íslenzku máli heflr oft ~erið nefndur
hinu fjarstæða nafni “Jómfrúgula”, en
nú i seinni tið hefir hann helzt verið
kallaðiir ' blóðskortssjúkdómur” eða
"blóðtæring”, sem er lítið eitt nær
sanni. Hvað sem nöfnum þessum líð-
ur, þá er sjúkdómur þessi svo algengur
hér vestan hafs, að hin sérstöku á-
kveðnu einkeuui baus eru næstum
hverjum manni eða konu knnn, og þarf
því eigi að skýra þau freknr hér.
Professor Metcanikoff, sá er lyfið
fann, hefir sjálfur ekki enn gefið em-
bættisiega skýrslu um fundinn. svo
kunnugt sé, en fregnriti blaösins Lon-
don MorrtinK Post hefir sent blnði sinu
(frá Paris) skýrslu um þetta efni, og
hafa eigendur | ess aftur jafnskjótt sím-
að hana til dagblaðanna víðsvegar um
Ámeríku. Hefir meðalinu pegar verið
gefið nafnið “lífvökvi” (Elixir of life),
og er það réttnefni, ei meðalið skyldi
reynast það, sem spáðhefir verið fyrir
því nú þegar. "Lífsvökva” þessum er
lýst sem blóðlegi (Serum), er hindri
eyðslu hinna ýmsu liffæra-efna á þanu
hátt að hann eins og veki eða “hvetji”
hvítu blóðagnirnar (Phagoeytes) til æst
ari árása á sýkifrumlurnar. Misrnu í-
andi tegundir þessa blóðlagar eru hver
fyrir sig einhæf (specific) fyrir sérstök
líffreri. Er heil sérstök deild af rann-
sóknarstöðinni nú fyrir alvöru að lita
eftir sórhæfi hvers einstaks liffæris, svo
haga megi efni “lífsvökvans” eftir
hvers þeirra þörfutn. Hafa rannsóknir
þessar þegar framleitt ákafiega víðtæk-
ar sannanir fyrir séreðli líffreranna og
einkalyfja þeirra.
Blaðið Morning Post segir þannig
frá uppgötvaninni :
“Árið 1898 lét M. Bordett, einn af
lærisveinum professói anna í Paris,
prenta skýrslu um árangurinn af hin-
urn fróðlegu tilraunutn. er hann hafði
gert við “innspýtingu” íshéra blóðs í
drafnsvin (guineapig). Síðar “inn-
spýtti” hauu drafiiBviiishlóði í íshéia og
varð það héranum að bráðum bana.
Þetta atvik kom próf. Metohnikoff til
að rýna eftir orsökinni til dauðsfalls-
ins. koinst, hann fljótt að þeirri niður-
stöðu, að drafnsvínsblóð, sem spýtt er
inn í íshéra eða önnur hryggdýr, fram-
leiði banvæni. sem veiki svo rauðu blóð
agnirnar (járnkynjuðu) að þær verði
hvítu hlóðögnunum eins og að her-
fangi. Hélt professórinn því þegar
fram, að þar eð nefnt hanvæni væri
í stórskamti bráðdrepandi. þáhlyti það
að sjalfsögðu að vera hressandi og lífg-
andi viðhaft í smáum skömtum. Á
þeirri frumreglu er bygð verkunarhæfni
allra lyfja, t. d. refa eitur (Strychnin)
og músa eiturs (arsenicum). Byrjaði
professor Metchnikoff því á að innspýta
þyntu drafsvínsblóði, er áður hafði ver-
ið innspýtt, i íshéra. Fyrir innspýt-
inguna voru í hverjum tenings milli-
meter af ishérablóðinu 3.000,000 rauðra
blóðagna, en eftir 3 daga var fjöldi
þeirra orðinn 8,000,000.
Blaðið Philadelphia Press flytur
sérlega velritaða ritstjórnargrein um
þetta merkilega efni. Segir þar meðal
annars svo :
“Hin nýjasta uppfinding próf. Met-
chnikoffs virðist að vera sérstök breyt-
ing á blóðagnalæknisaðfer? (Phagocy-
tosis process) þeirri sem hatn fann upp
fyrir nokkrum árum síðan. Hann
heldur þvi fram, að i staðteknum (loca-
lized) sjúkdómum muni hann geta
“upplífgað” svo blóðagnirnar túeð sér-
stökum blóðsöfum (lymhe) að þær fái,
yfirbugað liin banvænu áhrif sjúkdóm-
anna á trefjaefnin og fært ásigkomulag
þeirra til náttúrlegrar heilbrigði. Það
mættl reyndar segja að vanaleg nútiðar
meðul geri þetta að nokkru leyti með
algengum eða einhæfum (specific) lækn-
ismáta. En það er og sagt að prófess-
orinn stigi feti framar, og að hann þyk-
ist munu geta “upplífgað” svo líkams-
frutnlur (cells) aldurhniginna marna,
að alt ásigkomulag blóðsins og trefja-
efnisins verði lífmeira og fjörugra, og
þar af leiðandi muni lífið lengra verða
—aldurinn hærri. Mfeð öðrum orðum:
eins og koma má blóðinu til að verjast
og yfirbuga kverkaskóf (Diptheria) með
innspýttu “Antitoxin", eins verður með
þessari aðferð blóðefnunum komið til
að verja eyðslu trefjaefnanna og endur
næra þau, jafnharðan og þau verða að
bucast viðaldur og ofraunir”.
(Þýtt af J. E.).
Frái löndum
TINDASTÓLL.ALTA. 10. FEBR.1900.
Frá fréttaritara Hkr.
Veðráttan htn ágætasta, er htigs-
ast getur allan síðastl. mánuð, svo ég
ætln óhætt tið segja, itð við íslendingar
höftim ekki lifað í Albevta eins framúv-
skarandi góða tíð i Janúar; staðviðri,
frostlitið og hér um bil alauð jörð. Nú
um mánaðamótin brá til kaldara. með
talsverðu frosti og nokkru snjófalli,
hrest frost 7. þ. m. 32 stig fyrir neðan
zero; nú í dag aftur frostlaust, með
snjókomu og stormi.
Séra R. Marteinsson fór héðan al-
farinn 5 þ. m. Það er óhætt að segja,
að liann með fram omu sinni í þessari
bygð ávann sér sem fyrri virðingu og
hlýan hug bygðarbúa. Hann vann
kappsamlega að prestverkum meðan
hann dvaldi hér, þótt það kostaði hann
mikla fyrirhöfn. —Söfnuður er mynd-
aður hér í bygðinni, en hve margir i
honum standa, er mér ekki kunnugt.
Skólar byrjuðu fyrstu dagana af
þessum raánuði, bæði aðHóla og Tinda
stól, og munu þeir eiga að standa ytír
sex manuði. — Að öðru leyti tídindji-
lausi; almenu heiibrygði og vellíðan.
"nýja ÍSLENZKA BYGÐIN.
Það hafa eflaust margir heyrt talað
um landflákana suðvestar frá Morden,
sem var bygður sumpart »f Mennonit-
um, en sumpart ótekið land, af því aðr-
ir þjóðflokkar fengu ekki að taka það,
fyrr en í fyrra, að )iessi landspilda var
af stjórninni gefin upp til landtöku
hverjum sem vildi. Létu þá íslending-
ar ekki standa á sér, en tóku þar land,
og er óhætt að segja að margir hafi ver-
ið um hvert eitt, enda eru nú landnem-
ar þar milli 30 og 40, sem annaðhvort
hafa keypt lönd eða tekið heimilisrétt-
arlönd, eftir rúmt ár, og alt af eru að
bætast við fleiri og fleiri, en Meunonit-
að fara burt og rýma fyrir íslending-
um, oe búast þeir við sem þar eru. að
alt verði bygt þar af íslendingum eftir
2 til 3 ár.
Landið kvað hafa verið í litlu áliti
og lágu verði, þangað til Islendingar
fluttu þangað á síðastl, sumri. Nú ei
alt orðið umbreytt, nýlendan að verða
Þéttbygð, og mikið talað um umbætur
á nresta sumri: vegabætur og skólabygg
in.Lar, enda eru lönd öll nú helmingi
dýrari, en þau voru fyrir þremur
mánuðum síðan. og búist við enn
meiri verðhækkun á næsta sumri. Þar
eru nú þyí nær eugin heimilisrétta
lönd, en æði mikið af löndum til sölu,
oger verðið frá $400—$800 á löndum,
sem ekkert eða litið eru unnin, en frá
$600—$1400 á löndum, sem dálítil verk
eru á, svo sem nokkrar byggín„ar.
Það er búist við að ekki verði í
þessari nýlendu nema íslendingar eftir
2—3 ár, því tneiri parturinn af Mennon-
itum er þegar fluttur burtu, og þeir
sem eftir eru vilja selja, og flytja burt
eins fljótt og tækifæri gefst, svo ís-
lendingar verði þar einir eftir stuttan
tima. Og fagna hérlendir ntenn yfir
því, af því þeir búast við góðri fram-
för af hálfu íslendinga, þegar fram í
sækir.
Það má segja um landið, að það
ætti að verða affarasælt; • heyskapur
allgóður og gott akuryrkjuland, sum
staðar æði seinunnið vegna skóga. Vatn
fæst þar víðast á 5—15 feta dýpi. Mjög
óvíða sjést þar grjót i jörð. Lands-
lagið er mikið til slétt. ofurlítið öldu-
myndað, með skógarbeltum eða kjörr-
um hingað og þangað, en sem löndum
minum fanst ekki n.ikið til utn, enda
eru þeir fiestir úr N. Dak Eg get, því
iniður, ekki lýst landinu eins vel og ég
hefði viljað, því yfirferð mín um ný-
lenduua var of lítil til þess, og þessi
tími árs ekki góður.
Að síðustu votta ég þeim herrum:
Tomasi Johannssyni og Sigfúsi S.
Bergmann, innilegt þakklæti fyrir
gestrisni sína og góðar leiðbeiningar.
S. J.
HECLA t>. O., MAN., 17. FEBR. 19o0.
B. L. Baldwinson ritstj. Hkr.
Heiðraði herra.
í 18 nr. Hkr., er út kom 8. þ. m,
er dálítil fréttagrein um Þórð Árnason
frá Mikley. Og með því að hún skýrir
ekki rétt frá, leyfi ég mér, herra ritstj.
að segja sögu mina sjálfur, og biðja
yður að ljá henni rúm í blaði yðar.
Ekki fyrir það, að hún sé svo markverð
eða viðburðarik, heldur af því að ég á-
lít að lesendum blaðsins þyki nokkru
skifta hvort blaðið segir sannleika eða
eigi.
Það atriði er rétt^, að ég fór frá
Bull Head 28. f. m. á leið til Mikleyjar.
Var þá logn og veður fagurt. Enn er
ég hafði gengið hér um bil 9 mílur, eða
miðja vegu millum Bull Head og Big
Grindstone Point, skall á suðaustan
stórviðri með skafhrið og ofanhrið, svo
hvergi sá til lands. En með því að ég
vissi ógjörla rétta vindstöðu, hafði ég
breytt stefnu minni til austurst svo
mikið, að ég kom að norðausturhorni
Dear Island, sem ég þá hélt vera Big
Grindstone Point. Veðrið var ákafiega
mikið, svo ég sá mér ekki fært að halda
lengra. Fór ég upp á eyna og kveikti
mér þar eld, því skógur var nægur, er
ég gat brotið með höndum, því enga
hafði ég exi. Var ég þar alla nóttina,
þar til birta tók. Hafði vindstaðan
breytzt svo að þá var komið ofsa norð-
anveður með fannkomu og hörku frosti
Tók ég þá stefnu eftir vindi, sem ég
hélt rétta vera til Mikleyjar. En í
stað þess að komast þangað, lenti ég
vestur í Blackeyju. Eun á þeirri leið
varð fyrir mér opin sprunga, svo ég
varð votur í báða fætur. Og með því
að ekki var hægt að glöggva sig á land*
inu, þar eð hriðin var svo svört, og fæt
ur mínir tóku að frjósa, afréð ég að
stanza þar á eyjunni og ætlaði að
kveikja eld sem fyrri, en sú eina eld-
spíta. sem ég átti eftir, hafði vöknað og
reyndist ónýt. Góð ráð tóku að verða
dýr, og hið eina sem ég gat fundið var
að grafa mig í fönn.
Kl. mun hafa verið nálægt 2 e m.,
þegar ég gróf mig og dvaldi ég þar það
sem eftir var dagsins og næstu nótt.
þar til fullbjart var á þriðjudaginn, 30.
Ég var heitur af ganginum þegar ég
fór i fönnjua, að undanteknu þvi, að
fæturnir voru freðnir, en brátt kólnaði
mér þó sro að ég vil ekki þui ía að lifa
kaldaii nótt. Vindur og frost var
engu miuua þenna dag, en ofanhiíð
engin, og því ratljóst. Þegar ég haföi
gengið svo seni tr.ílu vegar, þekti ég
hvar ég var, og voru þá hér um bil 3
niílur að Grund, sem er norðarlega á
MiUleý. Föt min tóku að frjósa svo að
ég átti örðngt með að ganga. Samt
komst ég að Grund kl. 9 f. h. Var óg
þá búinn að vera nokkuð á 5. dregur
matarlaus, ov nálregt 19 tímura fieðinn
á fótum. Úlfiiðir voru einnig freðnir
mjög og andlit.ið tnlsvert lika, en ekki
mjög djúpt. 7 tíma var verið að þiða
úlfliðina og 11 tíma að þíða fæturna (í
snjóvatni), og hafði heimilisfólkið nóg
að gera að sjá um að það verk tækist
vel, enda var ekkert til sparað. Strax
var sent eftir Jóhanui Strauinfjörð, er
þá var staddur þar suður á eyjunni
Lét hann mig hafa meðöl og var hjá
mér til næsta dags.
Það, að ég misti ekki fætur og jafn
vel hendur lika, þakka ég meðölum
Jóhatins Straumfjörðs og þeirri ágætu
meðferð, sem ég hefi notið hjá Mr, og
Mrs. Johnsou á Grund og heimilisfólki
þeirra. Og ég tek tækifærið til að
votta þeim öllum mitt innilegasta
þakklæti fyrir alla meðferð á mér.
Ég er nú á svo góðum batavegi, að
öll hætta sýnist vera horfin og líklegt
að ég verði bráðlega albata.
Að endingu vil ég benda á, að það
getur verið að saga mín, fió hún sé
ekki margbrotin, geti gefið ferðamönn-
um áminningu um að gleyma eki<i að
búa sig vel út með eldspítur, og l íta
ekkí hugfallast. þó þeir frjósi dálitið,
þvt hættan er ekki svo voðaleg, ef rétt
er með farið.
Staddur að Grund, Hecla P. O., Man.
17. Febrúar 1900.
Thorður Árnason.
MANITOBA
and
Northweslern R’y.
Time Card, Jan. lst. 1900.
ffltid Eb’d
WinnipegLv.Tues.Thurs.Sat II 15
Winnipeg Ar. Mon. Wed Fri. 20 45
Portage la Prairie Lv. Tues
Thurs. Sat 13 25
Portg la Prairie Mon.IFed. Fi 18 35
GladstoneLv.Tues. Thur.Sat 15 05
Gladstone Lv.Mon. Bred.Fii 1815
Neepawa Lv.Tues Th.tr. Sat 16 03
NeepawaLv. Mon. Hred. Fn. 15 55
Minnedosa Lv.Tues.Th ir.Sat 17 00
Minnedosa Mon IFed. Fii. 15 15
RapidCity Ar. Tue« Th írs 18 20
Rapid City Lv. Wed. Frr 13 15
Birtle Lv. Sat 19 15
Birtle Lv. Tues Thurs 19 30
Birtle Lv.Mon.IFed Fii 12 30
Binscarth. .Lv. Tues. Thnrs. 20 50
Binscarte Lv. S.it. 20 31
Bínscarth Lv. Mon. 11 25
Binscarth Lv. IFed. Fri. 11 05
Russell Av. Tues Thur. 2140
Russell Lv. Wed Fri. 9 40
Yorkton.... Arr. Tues. Thur 120
Yorkt.on Arr. Sat. 23 3o
Yorkton Lv. Mon. 8 30
Yorkton Lv, IFed. Fri. 700
W. R. BAKER, A. McDONALD,
General Manager. Asst. Gen. Pas. Agt