Heimskringla - 01.03.1900, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA, 1. MARZ 1900.
Winnipeg.
Rafmagnsbeltin góðu fist á
Btofu Heimskrinelu. verð$I.‘25,
skrif-
B. L. Baldwinson er við rúmið i
Influenza-veiki siðan 4 sunnudaginn
var, en er nú á batavegi.
Hra. Jóhann Bjarnason kom úr
höfuðskoðunar ferð sinni í Dakota á
laugardaginn var.
Herra Matthias Þórðarson, frá Sel-
kirk, kom snögKva ferð til bsejarins i
siðustu viku, Enn fremur komu þeir
Klemens Jónasson og Stefán Oliver,
báðir fulltrúar Selkirkmanna á stór-
stúkuþingi Forestersfélagsins, sem hér
var haldið.
Hra. Guðmundur Nordal, frá
Hnausum, var hér á ferð í vikunni
Sagði alt tíðiudalaust þaðan að norðan
Hra Jóhannes Sigurðsson, kaupm
frá Hnausum, var hér i bsenum í vik
unni. Kom hann úr verzlunarferð
austur til Detrc.it, Michigan.
Takið eftir skemtisamkomu og “Box
Social” Goodtemplaranna á mánudags-
kvöldið kemur. Mönnum gefst þar
tækifæri að horfa á gamanleik, hlusta á
söng og hljóðfæraslátt. fara áfiskiveið-
ar o. s. frv. Málefnið er þess virði að
styrkja það og prógramið er gott.
Vér viljum benda kaupendum vor-
um á stóra auglýsing í þessu blaði frá
The Bankrupt Stock Bying Company.
Það er áreiðanlegt að þeir selja vörur
sinar mikið ódýrar en samskonar vör
ur eru seldar annarsstaðar. Menn ættu
að koma til þeirra og skoða vörurnar
Það getur borgað sig vel. Hafið með
yður Hkr. og sýnið |reim blaðið, þá fá
ið þér enn þá betri kjörkaup en hér er
auglýst.
Af öllum þeim mörgu skemtisam
komum, sem nýlega hafa verið á boð-
stólum; munu fáar hafa verið eins vel
sótte.r eins oggrímudansinn á mánu
dagsavöldið í siðustu viku. Danssal
urinn var troðfullur af fólki og yfir 60
karlar og konur voru með grimur og
tilhlýðilega kladdir. Það væri erfitt
verk að gera nokkurn greinarmun
búningi stúlknanna. þær voru flest allar
svo Ijómandi skrautlega klæddar.
Af piltunum mun Jóuatan Steinberg
hafa verið einna skrautlegastur. Hann
klæddur sem austurlenzkur prinz.
Dansinum var prýðisvel stýrt af
hra. Paul Olson.
Nokkrir menn og konur é HnauS'
um og við íslendingafljót gengust fyrir
því að haldin var ágæt dans-samkoma
(Fancy Ball) við fljótið 23. þ. m Mun
þetta hafa verið að öllu leyti hin mynd
arlegasta og bezta danssamkoma sem
haldin hefir verið í Nýja-ísltndi.
Séra Bjarni Þórarinsson heldur fyr
irlestur um bindindi (undir umsjón
stúkunnar Heklu) á Northwest Hall
laugardagskvöldið 9. Marz. Hljóð
færasláttur og söngur verður einnig á
prógraminu. Alt frítt. Allir vel
komnir. —'Byrjar kl. 8.
Stjórnarnefnd almenna spítalans
(The Winnipeg General Hospital) hefir
komist að raun um að gestagangur
spítalanum standi sjúklingum þar fyr
ir fljótum bata. Nefndin hefir því á-
kveðið að veita miklu færri gestum að
gang á sunnudögum hér eftír, en átt
hefir sér stað að unkanförnu. .
Um 200 manna nefnd, frá bindindis-
félögum hér í fylkinu, höfðu fund með
Hon. H. J. Macdonald á föstudaginn
var, og mæltust til þess að hann gæfi
út vinbannslög hér í fylkinu. Stjórnar-
formaðurinn kvað slik bannlög ómögu-
leg, þar eð þau komi í bága við ríkis-
vínlögin. En á hinn bóginn kvaðst
hanu skyldi leggja lög fyrir næsta þing,
til takmörkunar á vínverzlun. Svar
Mr. Macdonalds var svo vel tekið af
nefndinni að nefndin kyrjaði upp einum
rómi andlegan þakklætissálm, og kvaddi
siðíiu forsætissáðherrann og þakkaði
fyrir undirtektir hans.
Það er á orðí að það verði bráðum
borið undir atkvæði kjósenda, aukalög
um $300,000 lántöku af hélfu bæjarins
til þess að koma upp gas og rafmagn-
stofnunum hér, til þess að lýsa hús og
til eldsueytis og einnig til þess að knýja
vélar sem notaðar eru við iðnaðarstofn-
anir hér. Það er trúlegt rð áætlun um
tekjur og útgjöld við þessar gas- og
rafmagnstofnanir verði auglýstar síðar
og að málið í heild sinni verði rætt all
ítarlegu, og kjósendum gert það svo
ljóst sem unt er, áður en það verður
borið undir atkvæði þeirra.
Hra. Hans Einarsson frá Garðar,
N.-Dak., kom hiagað til bæjarins á
þriðjudaginn var. En á miðvikudags
kvöldið ge’ck hann að eiga ungfrú Ellu
Kjærnested, til heimilis hér í bænum
Voru þau gefin saman af séra Jón
Bjarnasyni, í f. ísl. lút. kyrkjunni
Brúðhjónin fara suður til Dakota í dag,
þar sem þau hafa heimili framvegis,
Heimskringla óskar brúðhjónunum
allrar gæfu og blessunar.
Næsti kafli er skrá yfir þau hjón
sem séra Hafsteinn gifti meðan hann
var prestur hér vestra, og nær sá listi
ytir 9 blaðsíður. Uppsagnarbréf og
öonur bréf frá séra Hafsteini til safn
aðarins. kvonfang séra Hafsteins og
sálmar tveir, sem sungnir voru við þá
athöfn, Síðast eru myndir af lijónun-
um. Bæklingurinn er prentaður á góð-
an pappir ísnoturri kápu.og er frágang
ur allur góður, eins og vænta mátti af
séra Hafsteini.
Hr. Björn Jónsson frá Vestfold
Man., varð fyrir mjög sorglegu slysi
nýlega. Hann var á ferð til Stonewall,
en einhverstaðar á leiðinni varð hann
fyrir þyi að hestur sló hann fyrir brjóst
ið og meiddist hann mikið. Hann
komst svo heim á enskt heimili þar
skamt frá og beiddist gistingar. en þar
varhonum úthýst. Varð hann svoað
dragast þaðan 10 mílur, til Stanewall,
og liggur nú þar hættulega veikur af
meiðslinu.
Taflleikir þeir (Chess Tsurnament),
sera ensku taflfélögin hér hafa verið
að há undanfarnar vikur, enduðu á
þriðjudaginn var. Eins og vér höfum
áður skýrt frá, þá var þetta hin venju-
lega árssamkoma skákmanna hér i fylk
inu, og var öllum taflmönnum í Mani-
toba boðið að reynasig á þeim fundi.
22 skákmenn gáfu sig fram og
reyndu “kunst” sína. En svo fóru
leikar, eins og við mátti búast, að tafl-
kappinn Magnús Smith vann 1. verð-
laun, M. O. Smith vann 2. verðlaun og
K. Morrison 3. og A. H. Rooke 4
Jón Júlíus vann það sem kallað er
Consolation prize”.
Verð á gasi til hitunar og lýsingar
Winnlpeg hefir verið sett niðurúr úr$2 50
í $2.25 hver 1000 fet og 10% af hinu nið-
ursetta verði er einnig dregin frá fyrir
skilvíslega borgun í gjalddaga.
Gísli Jónsson, póstafgreiðslumaður;
að IFild Oak P. O., Ben. Rafnkelsson,
Radway P. O-. Jón kaupm, Sígvalda-
son, Baldvin Halldórtson og Sigfús
Björnsson, Icelandic River P. 0., voru
hér í bænum í þessari viku.
Húsbruni varð hjá Asmundi Þor-
steinssyni, að Wild Oak. á föstudaginn
i síðustu viku. Mr. ThorsteinSon og
kona hans voru við útiverk, en börn
voru inni, er tóku eftir að kviknaði
í rjáfrinu út frá ofnpípunum. Hlupu
þau út og gerðu aðvart, en húsið var
þá orðið fult afreyk. og varð ekki
bjargað nema litlu af sængurfötum og
einni kommóðu. Alt annað brann til
,ösku með húsinu. íslendingará vest
urströnd Manitobavatns hafa þegar
gert samtök til þess að hjálpa til að
koma upp íveruhúsi handa Thorstein
son og fjölskyldu hans tafarlaust.
Major H. M. Arnold héðan úr bæn
um, sera særðist hættlega f bardagan
um við Modder-ána í Suður-Afríku fyr
ir skömmu síðan, lézt af sárum nú um
helgina. Major Arnold var mjög vel
kyntur hér í bænum og átti hér fjölda
vina, og hefir þetta fráfall hans eðii
lega ollað þeim mikillar sorgar.
A þriðjudaginn 20. þ. m. var stór
stúkuþing ForestersfélagsinsI.O.F. sett
hér í bænom. Átta íslendingar tóku
sæti á þessu þingi, 6 þeirra voru frá
stúkunni ísafold hér í bænurn og í
voru frá Selkirk. Capt. Krisján Paul
son frá Gimli átti einnig sæti á þing-
inu, og kom hingað í þeim erindum fyr
ir fáum dögum, en af því þinginu hafði
verið frestað um viku tíma án þess að
hann hefði fengið tilkynning um það
þá gat hann ekki beðið hér og var því
fjarverandi.
Eitt af þeim málum sem kom fyrir
þing þetta, var um það, hvort kvenn-
stúkum félagsins skyldi leyft að senda
erindsreka á stórstúkuþing, og var það
samþykt með miklum meirihluta allra
atkvæða á þinginu.
Brynjólfur Jónsson, frá Mountain
P. O., og Stefán Tomasson, frá Hallson,
N.-D., voru hér á ferð í síðustu viku,
Þeir brugðu sér snöggva fer* til Sel-
kirk og héldu heimleiðis um helgina.
fréttum sögðu þeir að Park River-búar
og aðrir úr Norður Dakota hafa nýlega
myndað félagskap til að láta stunda
námagröft í Kootenay-héraðinu í B. C.
Eiríkur H. Bergmann á Garðar, Skapti
Brynjólfsson á Hallson og Þorsteinn
Þorláksson á Mountain «ru i tölu þeirra
Islendinga sem tilheyra félaginu. Fé-
lagið hefir 3 námalóðir þar vestra með
gull og kopar málmi, og er það talin á-
litleg eign. Grjótið í uámum þessum
gefur af sér $11.00 virði úr hverju “ton”
af grjóti. Hlutir í félaginu hafa hækk-
að um 50% síðan á nýári og fastlega bú-
ist við að þeir hækki um 300% innan
fárra vikna frá því sem þeir seldust
fyrirog um jól siðastl.Allmargir íslend-
ngar eru að kaupa hluti í þessu félagí
meðan þeir eru ódýrir, Sagt er að fé-
lagsstjórnin hafi í hyggju að bjóða ísl.
hér nyrðra að kaupa hluti í félaginu og
er trúlegt að niaður verði sendur hing-
að norður í þeim erindum innan skams.
Hra. Skapti Brynjólfsson hafði nýlega
farið vestur í British Columbia í erind
um þessa félags og leist honum þar
mjög vel á framtíðarhorfurnar, Enda
hafði hann sjálfur tekið 5000 hluti i
hluti i þessu félagi. Síðar vonum vér
að geta gefið nákvæmari upplýsingar
um félag þetta og framkvæmdir þess.
“Á ferð og flugi”
EFTIR
»
Stephan Q. Stephansson.
Þetta er ný 1 j ððabók eftir þenna
alkunna höfund, sem ég hefi fengið
til útsölu. Útgefandi er herra Jón
Ólafsson, ritstjóri, og er útgáfan öll
prýðilega vel vönduð.
Bókin er 64 hls. í stóru 8 bl.
broti og kostar í kápu 50 cts.
Blöðin ísafold og Fjallkonan
hafa lokið verðugu lofsorði um þessa
bók.
Eg hefi og enn eftir óseld nokk-
ur eintök af Ijóðabók Páls Olafssonar;
verð, í kápu, $1.00. Bækurnar sénd-
ar hvert sem vera skal kaupendum
að kostnaðarlausu.
M. PÉTURSSON.
P. O. Box 305, Winnipeg.
LJÓÐMÆLI.
. Ný útkomið er ljóðmælasafn eftir
Kristinn Stefdn*soi% og er til sölu hjá
höf. að 789 Notre Dame Ave. West, og
hjá H. S, Bardal að 557 Elgin Ave
Winnipeg. Kostar í kápu 60 cts.
Til sölu
537 Sherbrooke St. 4 herbergja íbúð-
arhús með skúr áföstum, með 33 feta
lóð, rétt hjá Tjaldbúðinni. Strætis-
vagnar renna eftir strætinu. Listhaf-
endur snúi sér til B. L. B. á skrifstofu
Heimskringlu.
Ég undirskrifaður bið alla þá sem
knnna noákuð að vita um það hvar
Guðrún Guðnadóttir. úr Aðal-Reykja
dal á Islandi, er niður komin hér í
Ameríku, að láta mig vita það. Húu
varð eftir af mér 27. Ápúst árið 1888 í
New York,
Brú P. O. 15. Febrúar 1900.
Andrés Jóhannesson
Skemtisamkoma
og Box Social
Til arðs fyrir sjúkrasjóð stúkunnar
Heklu, á Northwest Hall, 5. Marz 1900.
PROQRAMHE:
Instrnmental music (4 hljóðfæri.)
Uppboð á kössum, (með svuntum
og allskyns sælgæti i).
Ræða, K. A. Benediktsson.
Fiskdráttur — (ný uppfundin
skemtun.)
Solo :—Mr. St. Anderson.
’wr
JÉH.
>***-
-*«<■
m
v?
»**«■
m
-*e
JÉÉL
■***«■
JÉK.
w
*
#
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
náöir þ“«>sir drykkir er seldir i pelaflöskum og sérstaklega ætl- Íf
aðir til neyzlu í heimahúsum. — 3 dúsin flöskur fyrir $2.00. Fæst *
hjá öllum vín eða ölsölum eða með því að panta það beint frá #
m
m
m
m
m
DREWRY’S
nafnfræga hreinsaða öl
“þ’reyðii’ einsog kampavín.”
Þett er óáfengur og svalandi sælgætis-
drykkur og einnig hið velþekta
Canadiska Pilsener Lager-öl.
Ágætlega smekkgott og sáínandi í bikarnum.
REDWOOD BREWERY.
EDWARD L- DEEWRY
llniinfaefnm' & Inipoi'ter, WIAMrtlG.
•••«tt»»«««»««»»a»»««000<£t9
fllexandra Melotte
RJOMA-SKILVINDUR.
F.f þú hefir sjö'kýr, þá eru þær, með því nota rjómaskil-
vindur, þéreins arðsamar og þó þú ættir tíu kýr og enga
skilvindu, og þess utan er tímaspariiaðurinn, og spaniað-
ur á vinnu og íláta kostnaði. Bændur seni seldu stnjör á
Stil lOc. pnndið hafa fengið 16 til 20c. fyrir það síðatftþeir
kevptu skilvindurnar og liaft einn fjórða meira sinjjr Wilv
söhi. Ef þú óskar eftir sönnunun fyrir þessum staf'þæf-
íngnrn eða vilt fá upplýsingai- um vetð og söluskilmák á
þessura skilvindum sem orka þenna vinnusþarnað og
aukna gróða, þá skrifaðu á íslenzku ef þú vilt til
K. A. Lister & €».
232 KING ST.
Ltd.
WINNIPEG.
MJÖGr STÓR
Fliiimeiettes Tepi»i
Hvít og grá að lit
75C.
parið. Einnig hvít nllateppi
ágæt, 7 pund að þyngd
$2.75
574 Kain
Telefón 1176.
m*.
Gamanleikur í einum þætti.
Persónur i leiknum eru :
Caleb Clovertop (piparsveinn)
Wm. Anderson.
George Clovertop (bróðursonur hans)
St. Andeison.
Samantha Scoopington ) _.
Henrietta Hooker j P>parmeyjar
Miss Guðrún Jóhansdóttir,
Mis. Fr. Merrile.
Saley Swingleton (ekkja),
M iss Guðrún Hákonardóttir.
Instrumental Music.
Inngangur 15c.
Byrjar kl. 8.
ALT BKITT !
Ég skerpi skauta fyrir 15c. rak-
hnífa 25c., skæri 10c., hnífa 5c., og ýms
önnur verkfæri fyrir sanngjarnt verð.
SVEINN BJÖRNSSON.
5fií) Alexandcr Ave, Wí imipeg
Landar góðir!
Hér með tilkynnist yður, að ég
undirritaður vinn virka daga við skó-
aðgerð á verkstæði mínu, yfir kjöt-
markað Islendiiiganna í Cavalier North
Dakota. Aðgeróirnar svo vandaðar
sem nokkurstaðar annarstaðar, en mun
feldar í verði. Afgreiðsla svo fljót sem
unt er.
Inpim. Leví Guðmundsson.
Hugsunarsamar
matreiðslukonur
w.
vilja ætíð vanda sem bezt
það sem þær bera á borð.
Boyd’s brauð er hið bezta.
Margra ára reynzla heflr
sannað það. Ileíurðu ekki
veitt því eftirtekt hvað það
er ágætlega smekkgott ?
J. Boyd,
370 og 579 Main Str.
Auglýsing.
Eins og að undanförnu hefi ég tvo
lokaða sleða í förum í vetur milli Sel-
kirk og Nýja íslands. Annar sleðinn
leggur af stað frá Selkitk á hverjum
fimtudegi kl. 8 f, h , kemur aftur til
Selkirk kl. 6. á mánudagskvöldum.
Hinn sleðinn leggur af stað frá Selklrk
kl 8 hvern mánudagsmorgun og kemur
aftur þangað á föstudagsk völd, Vanir,
góðir keysslumenn, þeir Kristján Sig-
valdason og Helgi Stur]ögsson.
Qeo. S. Dickinson,
IFEST SELKIRK, - MAN.
Nói dansaði á brókinni.
Það var ekki sama vínið sem Nói
dansaði blindfullur á brókinni af, sem
II’. J Bawlf. IFholesale & Reatale vín-
sali á Princess Street selur.
Hann selur gott vín. sterkt vín,
dauft vín, ódýrt og dýrt vín, og vindl-
arnir alveg fyrirtak.
W. J. BAWLF.
Kniiii Kxelinnge Itnilding.
PRINCESS ST. TPTNNIPEG.
302 Drake Standish.
varð ungfrú Ravary að orði. Það var aðdáun-
arvert hve vel hún t-eysti frönsku aðsóknar-
mönnunum, ef að eins Bergelot væri þar með.
‘ Ég vildi að við gætum horft á orustuna”,
sagði ég. “Þetta getur orðið langur bardagi.”
“Nei, þeir eru aldrei lengi að slíku,” svaraði
ungfrú Ravary. “Þessir Arabar herjast aldrei
lengiíeinu. Þeir annaðhvort vinna strax sigur
eða fiýja að öðrum kosti.”
Það var að minstn kosti víst, að skothríðin
færðist stöðugt nær.
“Þeir eru að hörfa til baka,” mælti ég.
“Frakkar reka þá á undatt sér”.
“Já. en þarna ríður önnur hermannasveit af
stað hinum til aðstoðar,” svaraðí ungfrúÍD.
Það var orð og að sönnu, að annar allstór
illþýðaflokkur þeysti af stað i bardagann. Og
nú varð enn meiri æsingog óhljóð í herbúðunnm,
og skotrnðu margir til okkar hatursfullu
augnaráði.
Mér gat ekki dulist það, að afstaða oklar
▼ar nú mjög hættuleg.Það var mjög sennilegt.að
ef Arabar biðu ósigur á vígvellinum, þá mundu
þeir ráða okkur hana áðnr en herdeildinni frá
Algiers tækist að hjálpa okkur.
Við gátum ekker aðhafst, og lét ég þrí ekkert
á þvibera,aðmér byggi nokkuróttií skapi. Og
mérþóttivænt um, aðþeim Carlos og ungfrúnni
datt ekirert slíkt í hug. Carlos þekti ekki lyndis-
einkunnir eða dýrsnáttúru þessara manna. og
gat því ekki búist vid neinu slíku. En ungfrú
Ravary þekti þá vel, og óttaðist ég að hún yrði
dauðskelkuð, ef henni dittí þetta í hug.
Drake Standish. 307
um þar i gisling fyrir nokkra yfirmenn þeirra,
sem voru í varðhaldi í herbúðum okkar. Hann
trúði þeim og sendi því eftir þér. því hann hélt
að þú værir óhultari þar hjá sér, heldur en í
litla gistíhúsinu, sem kynblertdingur hafði um-
ráðyfir. Þú veizt nú þegar hvernig Abdullah
narraði þig, Eg þarf að jafna reikninginn við
þann náunga síðar. En ég trúði ekki Márunum
eins vel og faðir þinn, svo ég réðist á tjaldbúðir
þeirra að þeim óvörum, náði föður þínum og
rak þá á fiótta.
Þegar hann svo komst að því að þú varst
horfin, varð hann utan við sig af harmi. Ég
tók því stjórnartaumana tafarlauso í míuar eig-
in hendur. Kallaði samau dálitinn hermanna-
flokk úr varnarliðinu, sem var á landamærun-
um, og höfum við síðan verið að elta óaldar-
seggina. En ég fékk rnig fullreyndann í þetta
skifti. Ég bjóst aldrei yið að hitta hér þvílkan
herafla”.
“Já, og þetta cr harðsnúið lið, lautenant”-
mælti ég. “Við treystum því að þér munduð
frelsa okkur. Og við erum jafuvel ekki voulaus
enn, þótt svona færi. Eruð þér vonlausir ?”
“Vonlaus ! Eg vonlaus! Aldrei ! Colonel
Ravary lemur þessa þorpara sundur og saman
þegar minst varir. En leyfið mér. monsieur, að
segja, að við hittumst hér aftur undir einkenni-
legum kringumstæðum. Mér veittist sú ánægja
að kynnast yður fyrst úti á hafi, og nú hittumst
við aftur sem fangar í herbúðum Araba. En ég
man líka. að þér eruð ötull og ófyrirleitinn æf
tyramaður”.
306 Drake 8tandish.
Carlos lá við olnboga nálægt Bereelot og
hafði ekki augun af honum. Hann vat ftillur a
aðdáun yfir kjarki og karlmensku þessa manns,
sem liafði riðið fremstur og eggjað menn sína til
atlögu á móti slíku ofurefli og sem ekki mælti
æðruorð af vörum eftir jafn tilfinnanlegan ósig-
ur.
“Ég vissí vel, monsieur”, mælti Bergelot,
“að ég mundi finna Victorine hér í herbúðunum.
Við vissum hvað þessi þrælmenni ætluðu sér.
Það líður sjaldan svo mánuður að ekki sé ein-
hver uppreist eða ófriður á meðal þeirra. Et
þeir ekki fá tækifæri til að berjast við aðra, þá
liíígja þeir í ófriði sín á meðal. Þeir gera aldrei
á sárshöfði setið”.
“En Dulon”, tók ungfrú Ravary fram í.
“Þú slapst með naumindum hjá því að láta lífið
á vígvellinum”.
“Ó, hvað það snertir, þá er það t’.k: umtals-
vert”, svaraði hann léttilega.
“En hvað segirðu mér um föður minn ?”
“Hann er í Algiers. Haun ætlaði sjálfur að
hefja eftirförina með mér. En rétt í því fékk
hann skipun um að koma óðara til Algiers, til
að hefjast þar handa á móti foringjum Arab-
anna”.
“En hvernig komst hann úr klóm þeirra ?
Þeir náðu honpm á vald sitt, var ekki svo?”
“Jú. Bréfiðsemþú fékst var frá honum
sjálfum. Hann var í varðhaldi i dálítilli tjald-
stöð hjá Márum frá Algiets, og höfðu yfirmenn-
irnir lofað bonum að honum hkyldi ekki verða
neitt mein gert. Þeir sögðust að eins halda hon
Drake Standish. 303
"Þarna sést revkur!” hrópaði Carlos alt
í einu.
\ ið höfðum setið niður, en stukkum nú á
fætur. Sáum við nú glögt púðurteykinn. Skot-
hríðin dundi nú í sífellu og var þetta eflaust
hintt skæðasti bardagi.
Að stundarkorni liðnu sáum við nokkra
tiddara þeysa út úr reykjarsvælunni, voru þeir
eltir «f fémennum riddaraflokki.
Þeir þeystust í áttina til herbúðanna. Ara-
bisku flóttamennirnir hertu reiðina alt hvað af
tók, Frakkar, sem nú voru að líkindum þreyttir
og dasaðir, fylgdu þeim fast á eftir. Við sáum
þá skýrt og greinilega og gátum vel aðgreint
franska einkenisbúninginn. Já, þeir höfðu á-
reiðanlega sigrað.
En alt í einu gullu við ógurleg köll og há-
vaði í herbúðunum. Allir Arabarnir sem ekki
höfðu áður tekið þátt í bardaganum, stukku nú
á fáka sína og þeystust eins og óstöðvandi stór-
straumsflóð á móti hinni fámennu Frakkasveit.
“Ég óttast afleiðingarnar”. varð mér nú að
orði. ‘‘Frakkneska hersveitin hlýtur að vera
orðin þreytt og þjökuð”.
“Ó ef Dulon er í broddi fylk ngar, þá óttast
ég ekki úrslitin”, svaraði ungfrú Ravary, og var
hin hugrakkasta.
Já, það getur verið, að Dulan fylgi einhrer
yfirnáttúrlegur styrkur”, svaraði ég brosandi.
En þetta óvenjulega traust hennar á Dulon
jók mér samt hughægð undir kringumstæðun-
um. Mér datt ósjálfrátt í hug, hvort Inez
mundi nokkurn tíma hafa borið slíkt traust til