Heimskringla - 07.06.1900, Blaðsíða 4

Heimskringla - 07.06.1900, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA, 7. JÚNÍ 1900. Winnipeg'. A sunnudaginn kemur, Trin>.íat's hiun 10. þ. m. prédikar séra Bjarni Þórarinsson é Nortb. W^st Hall kl. 4 siðdegis, Öamskot tekin. Allmikill húsbruní Varð iier í been- um á föstudagskvöldið var, á Notre Dame Ave. Það hafði kviknað í nýju húsi sem verið var að byggja og brann það til kaldrakola á svipstundu, og jafn- framt kviknaði £ öðru stóru og góðu í- búðarhúsi, þar rétt hjá, og brann það einnig gjörsamlega með öUum innan- húsmunum. Skaðinn á báðum husun- um metinn »5000. — Sagt er aðeldurinn hafi orsakast þannig, að litlir drengir hafi legið inni í húsinu sem verið var að smíða. að reykja sígarettur, og fleigt svo stubbunum á gólfið um leið og þeir fóru út. TTinn fagri útfararsálmur ‘‘Alt eins og blómstrið eina” byrtist í síðustu út- gáfu “Sameiningarinnar” í enskri þýð- ingu, eftir meistara Eirík Magnússon í Cambridge Þessi þýðing er að voru á- liti sannnefnt meistaraverk. Vér höf- um borið þýðinguna nákvæmlega sam- an við frummálið, og getum borið um, að hún er svo nákvæm sem frekast má verða, Hver einasta hugsun i þessum stórmerkílega sálmi er nákvæmlega sett fram í þýðingunni, og það sem meira er og vandasamara, er það, að íslenzka orðalagið eða framsetning málsins er einnig látið halda sér að mestu alveg ó- breytt. Það getur ekki hjá því farið að þessi meistaralega þýðing veki eftirtekt á íslenzkri ljóðagerð, hjá þeim ensku- mælandi mönnum, sem sjá hana og kunna að meta slíkt. fylkistakmarka. Eins geta menn og pantað vín utan fylkisins til nautnai'} heimahúsum, en ekki til að selja það eða gefa. Lögin ©iga að koma í gildi 1. ouiií 1901" Síðar getum vér nánar um þessi lög. Eimreiðin VI. ár, 1—2. hefti, er ný komið hingað vestur. Er það að vanda með góðum frágangi og fræðandi. Efn- ið í þessu hefti er margbreytt, sögur, fyrirlestrar, kvæði og gagnrýni. Meðal annars er þar alllöng grein eftir Bened. Gröndal : “Reykjavik um aldamótin.” Fylgja henni nokkrar myndir. Tilraunir hafa verið gerðar með dínamit til að finna líkið af Birni Gil- bertssyni, ísl. drengnum sem druknaði hér i Assiniboine ánni i síðustu viku. En þessar tilraunir hafa verið árangurs- iausar og er likið ófundið enn. Herra Pétur Gíslason frá Joliette, N.D., kom hingað til bæjarins á mánu- daginn var, úr 6 vikna landskoðunar- ferð til isl. nýlendunnar í Albérta. Hefir hann tekið sér þar heimilisréttarland og flytur sig búferlum þangað vestur síðar í sumar. Leizt honum þar blóm- leg bygð og bændur þar í laglegum efn- um. Hr. Stefán Björnsson frá Pembina koma til bæjarins á laugardaginn á leið til Shoal Lake nýlsndunnar í landskoð- un. Hann hefir ákveðið að taka sér heimilisland hér norðan megin línunnar Vér óskum honum til lukku með bú- staðaskiftin. Mrs. Ólöf Ólafsson, kona Kristjáns Ólafssonar, lífsábyrgðarumboðsmanns hér í bænum, andaðist á fimtudaginn var. Banamein hennar var lungnatær- ing. Hafði hún legið rúmföst síðan um eða fyrir jól í vetur. Jarðarför hennar fór fram á mánudagjnn var. Ágætt íveruhús er auglýst til sölu á öðrum stað hér í blaðinu, með afarlágu ▼erði. Það er 6 herbergja hús, sem leigist fyrir $8.00 um mánuðinn, vel sett í bænum, borgar kaupverðið á 5 árnm. Þetta er tækifæri, sem ekki býðst hverjum degi, til að eignast gott íveru- hús með góðri bæjarlóð fyrir lítið meira en hálft virðingarverð. Hr. Runólfur Sigurðsson er nýkom- inn úr snöggri ferð norður að Gimli. Leizt honum þar vel á sig og hugði þar vel björgulegt fyrir dugandi menn. Hann biður Hkr. að færa lðndum í Sel- kirk og Gimli þökk sina fyrir góðar og alúðlegar viðtökur. Þann ‘29. Maí urðu þau bjónin Mr Og Mrs. Skúli Jóhannsson f Fort Rouge hér i bænum fyrir því mótlæti, að missa nærri 5 ára gamlan dreng, mjög efnileg- an, Sigurð Hjaltalín að nafni. Nokkrar atkvæðagreiðslur eítir fiokkaskifting fóru fram í Manitoba- þinginu í síðustu v ku út af ýmsum atriðum i fjárlögunum. Macdonald- stjórnin hafði frá 7 til 9 atkv. framyfir. í 17. tölubl. Hkr., í dánarfregn frá Joliette, N.D., er þessi villa, að Sigur- björg sáluga hafi verið lasin síðastliðin 23 ár, á að vera 2 til 3 ár. Sljórnin lagði vinsölubannslögin fram í fylkisþinginu á föstudagin var. Þau banna vínsölu i fylkinu í smáskömt um, það er að segja minna í einu en 12 flöskur eða 5 gallons. Oll vínsala til nautnar innan takmarka fylkisins er bönnuð, en þó mega lyfsalar selja vín tillækninga samkvæmt læknisrá i. En selja má vin í heildsölu til nautnar utan Sex islenzkir vesturfarar komu til bæjarins á fimtudaginn var beint frá íslandi. Þeir voru: Guðmundur Sig- urðsson frá Reykjavík með konu og . barn; Björn Jónsson frá Rvík; Guðrún Guðmundsdóttir, frá Hafnarfirði og Þorsteinn Ingimundarson frá Vest mannaevjum. Þetta fólk fór frá Rvik 3. Maí með Laura. Það lætur v el af ferðinni, að því er veður snertir. Fr á Englandi fóru þeir með Beaver-línunni ekki láta þeir vel af viðurgerningi á þvi skipi. Að heiman segir fólk þetta góða vetrar veðráttu og yfirleitt góðar fisk veiðar sunnanlands. Vér áttum tal við herra Guðmund Sigurðsson og sagð hann að margt fólk mundi koma vestur í sumar, flest af Norðurlandi, en einnig nokkuð úr Borgarfirði;'um 200 áskrif endur voru komnir þegar hann fór a heiman, en miklu fleiri kvaðhann koma mundu í sumar. Hópur íslendinga ætlaði frá Rvík 18. Maí, þar með fjölskylda séra Bjama Þórarinssonar og annað fólk af Suðurlandi. Fremur kvað Guðmundur ,hafa gengið stirðlega að koma eigum vesturfara i viðunan legt verð, og sumir sem urðu að hætta við vesturferð í sumar af þeirri ástæðu En margir vilja nú losna að heiman og flytja hingað vestur, ef þeir gætu fengið upp nægilegan fyrareyrir. bændur úr Laugardal i Xrnessýslu ætla vestur í sumar, en að öðru leyti fer fátt úr þeirri sýslu í sumar. Vinnu fólashald er orðið svo dýrt, að bændur með góð efni sjá ekki fært að halda við búskap, og flytja sig i kaupstaðina og að sjávarsiðunni. Guðmundur álitur að vistarbandslausnarlögin hafi þau á hrif að hnekkja öllum landbúnaði og ef til vill í mörgum tilfellum að gera hann ómögulegan. Innflutningaskrifstofan hér hefir fengið hraðskeyti um það, að 150 is lenzkir innflytjendur séu á leiðinni hingað. Er búist við að þeir lendi í Quebec á sunnudaginn kemur, og ættu þeir þá að koma hingað á fimtudaginn í næstu viku. Hr. W. H. Paulson fer alla leið til Quebec til að mæta þessum hóp. r Islendingadagurinn 19. JtJNl 1900 á Grund í Argyle-bygd. PROGRAMME: Forseti dagsins, Björn Jónsson, setur samkomuna kl. 11 árdegis. Inngangseyrir verður 25 cts. fyrir fólk 15 áia og eldra en engin fyrir börn. Islenzki hornleikaratiokkurinn frá TVinnipeg (Foresters Band) spilar á staðnum allan daginn. Hluttökueyrir verður tekinn fyrir hjólreiðar, stökk, hlaup og glímur, þannig: Fyrir nr. 1, 2, 6, 7, 8. 9, 10, 11, 12, 13 og 14 á prógraminu er 15 cent af hverjum, en fyrir númer 3 og 4 25 cent Númer 5 ókeypis. Þeir af hluttakendum, sem það kjósa, geta fengið verðlaun sín í hlutum, jagngildi peninga þeirra, sem þeir vinna. Ottawa-stjórnin hefir auglýst eftir nýjum tilboðum um viðgerð á Rauðá r strengjunum. í sambandi við'þetta er það tekið fram, að yerkamönnum skuli goldin fullkomin vinnulaun við þetta verk Hefir það þá þýðingu, að verk gefandi getur ekki ákveðið kaupupphæð ina, heldur verður hún sett samkvæmt tillögura verkamannafélagsins hér bænum. Herra Gunnar Sveinsson, sem um undanfarna nokkra mánuði hefir verlð ráðsmaður Heimskringlu félagsins hef- ir hætt þeim starfa. Viðskiftavinir blaðsins geri svo vel að rita framvegis bréf sfn til Heimskringlu News <fi Publ- ishing Company, Box 305, Winnipeg. Kjörkaup á skóm og stígvélum. Karlraannastígvél úr vatnsheldu leðrs 95c. “ vinnuskór með þykkum sólum 90c. “ léttir spari skór - - 90c. Karlmannaskór úr rauðu leðri, ágætir $1 15 “ vinnuskór, “Grain”-leður él.20 Kvennmanna fínir reimaðir skór - $1.00 “ beztu geitaskinn&skór - $1.50 Munið eftir því að búð vor er lokuð á laugardögum þar til um sól- arlag. Eftir það opnum vér. 351 cfc main Ntreet. RÆÐUR OG KVÆ ÐI kl. 1 síðdegis. ÍSLAND. KVÆÐI: S. J. Jóhannesson, RÆÐA: Friðjón Friðriksson. AMERÍKA: KVÆÐI: Stephan G. Stefanson. RÆÐA: VESTUR-ÍSLENDINGAR: KVÆÐI: Sigurbjörn Jóhannsson, RÆÐA: séra Björn B. Jónsson. 1 HJÓLREIÐAR: Fyrir þá, sem ekki hafa fengið verðlaun áður, karlmenn og drengi 1 míla. 2. Fyrstu verðlaun $3 00 Önnur verðlaun 200 Þriðju verðlaun 1 00 FYRIR ALLA 1 MÍLA Fyrstu verðlaun 3 00 Önnur verðlaun 2 00 Þriðju verðl. 1 00 3. “HAFDICAP” 2 MÍLUR # Fyrstu verðl, 400 # Önnur verðl. 300 # Þriðju verðl. 200 # FYBIR ALLA 5 MÍLUR # Fyrstu verðl. 500 Önnur verðl. 800 # Þriðju verðl. 200 # 5. HJÓLR., KVENFÓLK, JMÍLA Fyrstu verðl. 3 00 Önnur verðl. 2 00 STÖKK FYRIR ALLA. 6. Hástökk jafnfætis, verðl Sl,50 $1 00 7. Langstökk “ 1.50 1 00 8. Hopp-stig stökk “ 1,50 1 00 9. Hástökk við staf “ 2,00 1 50 KAPPHLAUP. 10. Drengir undir d8 ára, 75 yards— Verðl. S1 50 1 00 75c. 11. Ógiftir menn yfir 18 ára, 100 yards Verðl. $1 50 1 00 75c. 12. Giftir “ 100 " 1 50 1 00 75c. 13. Hlaupfyr alla 1 míla 8,00 2 00 14. ÍSLENZK GLÍMA. VI. Í3 00 2 00 Ritstj. þessa blaðst getur vísað á mann, sem nauðsynlega þarf að selja hús og lóð hér i bænum. Húsið er ný- legt, mjög vandað til hlýinda og sterk- viðað; stærð 22X24 fet; plastrað, eldhús og skúr að auki. Öll eignin fæst fyrir minna verð en húsið sjálft yrði bygt fyn'r; þarf að seljast innan mánaðar. —Skilmálar auðveldir. Maður að nafni Francis Kerr, til heimilis að 382 Notre Dame Ave. hér í bænum, skaut tveimur skammbyssu- skotum á konu sína og einu skoti á kostgangara sem þar var í húsinu, á mánudagskvöldið var. Hljóp svo upp á loft og læsti sig inn í herbergi og skaut sjálfan sig til bana. Konan er á spítalanum og er vonað að hún lifi. Forester-stúkan “Fjallkonan” held- ur fund á North JFest Hall 12. þ. m., kl. 8 að kveldi. Þetta verður siðasta tækifæri, t,em væntanlegir meðlimir fá til þess að komast i félagið með $1,50 inngangseyrir, og þess vegna ættu allir sem hugsa til að ganga í félagið, að gera það tá þessum fundi. Framvegis verður inngönguleyfi $3,50. Mrs Kristín T/urrgeirson, R. 8. Fellibylu æddi her yfir borgina á þriðjudaginn var og gerði nokkurn skaða. Mest kvað Jað honum á Rauð- árbakkanum; þar Jfauk bátaskýli um koll og drap 15 ára gamlan dreng, sem stóð undir húsinu; hafði hlaupið þang- að í skýli. Á Notre Dame Ave. fauk þak af húsi, isem þó var um 2000 pund að þyngd. Engan skaða gerði það. þar sem þnd féll niður. Víða brot uðu flaggstengur og auglýsingaskildir og nokkur smáhýsi færðust til á grunni. Loyal Geysir Lodge, 7119,1.0.01, M.U Heldur fund, mádudagskvöldið 11. Maí næstk. á North West Hall Cor. Ross Ave. & Isabel St. Áríðandi að allir meðlimir sæki fundinn, Paul Olson. 1 DREWRY’S * # # * *k. # # JÉk. # # # # nafnfræga hreinsaða öl “t’reyðir eins og kampavín.” Þett er óáfengur og svalandi sælgætis- drykkur og einnig hið velþekta Canadiska Pilsener Lager-öl. Ágætlega smekkgott og sáínandi í bikarnum xmJir þoosir drykkir er seldir í pelaflöskum og sérstaklega ætl- aðir til neyzlu í heimahúsum. — 3 dúsin flöskur fyrir $2.00. Fæst hjá öllum vín eða ölsölum eða með því að panta það beint frá REDWOOD BREWERY. EDWARD L- DREWRY mannfactnrer & Importer, WIIHMPEG. # # t t I # # # # s s # # # X æi g |i c Organdies, Dimities, Piques, ♦ ▼ ▼ VJUUUð DUCKS, LAWNS, LINENS,GINGHAMZ Muslins. 2500 yards‘Pointed Muslin’ mjög laglegt fyrir kventreyjur og morg unkjóla. Vanaverð 8c. yarðið,en hjá oss að eins.........4c, Hyit-dropótt Muslin, mjög smekk legt og aðlaðandi, með stórum eðasmáum dropum, frá lO til 45c. yd. Organdies. 500 yards af upphleyptu og drop- óttu ‘American Organdies’ vana- verð 22c. yardid, hjá oss 15c. “French Organdies” upphleypt og röndótt, af nýustu gerð, vana- verð 40c. yd., hjá oss SS5c Linens. Tvær sérstakar tegundir af því, hentugar fyrir kvennpils og kjóla 32 þuml. á breidd, bezta kaup á 12 l-*c. til 15c. yd. 400 yards “Grass Linens” með fínum, mislitum röndum, mjög létt og þægilegt fyrir þessa heitu daga. Selt fyrir hálfvirði lOc. yardid flercerized Lawns. Þau líta út eins og silki, af öllum fínustu og smekklegustu litum Alveg nýar ljósar og dökkar lít- breytingar.........*5c. yd. | Robinson & Co, 400 & 402 Main St. ! ♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Stúkan Skuld, nr. 37., heldur út- breiðslufund, miðvikudagskvöldið 13 þ. m. kl. 8J á North West Hall. Þar verða fjörugar ræður og skemtilegt Program, Aðgangur ókeypis, Allir velkomnir. 4 VOTTORÐ. Rafmagnsbelti J. Lakander hefir bat- að mig að mörgu leyti. En ég er orðln gömul og slitin og þar af leiðandi ekki að búast við albata. Hnausa, Man. 18. Maí 1900. Ása Einaredóttir. Eg lá í rúminu í margslags vesöld og búin að leita lækninga árangurslaust. Þegar ég fékk rafmagnsbelti J. Lak- anders. gerði það mig hér um bil jafn- góðft á stuttum tíma. Hnausa, Man., 18. Maí 1900. Ingibjörg Ogmundsdóttir. Rafmagnsbelti J. Lakander heflr gert mér mikið gott. Eg fókk oft yfirlið, og svo hefi ég verið vesöl af taugaóstyrk og slæmum hægðum. En cú er ég á góðum batavegi síðan ég fékk beltið. Árnes, Man., 18. Maí 1900. Ingibjörg S. Fiunsdóttir. Næstl. sumar varð konan min mjög lasin af margskonar kvensjúkdómum, er henni þó bötnuðu nokkuð af læknis- hjálp. En þegar kom fram á síðastl. vetur, fór henni |að versna aftur af sömu kvillum. Fékk ég þá eitt af raf- magnsbeltum J. Lakanders, og eftir fáa daga fann hún bata, sem haldist hefir fram á þenna dag, og er hún við góða heilsu nú. Árnes, Man., 23 Maí 1900. F. Finnbogason. Sent með pósti ókeypis. Karla eða kvenna fílabeinsskeftur vasahnífur, gilt úrkeðja eða ljómandi gilt skæri, ágæt vasabók eða peninga- veski, silfur smjörhnífur eða sykurskeið eða fimm arkir af nýjustu söngam, og svo hundruðum skiftir af öðrum ljóm- andi fallegum munum. Þetta fæst gef- ins með eins dollars póspöntun af okkar ágæia Tei, Kaffi, Cocoa, Baking Powder Sukkulaði, Pipar. Sinnep, Engifer o. fl. Verð á þessu er 25, 30, 35 og 40c. pd. $2.00 pöntun með pósti gefur yður hvaða 2 muni sem auglýstir eru á $1.00 1 verðlistanum, eða J tylft af silfurgöfl- um eða teskeiðum eða J tylft af “Gran- ite Pie Plates” eða stóran “Granit Pot” eða ágæta stóra te eða kaífikönnu úr sama efni, Oll þessi steinda vara er hin bezta sem búin er til (Davidson’s). Sendíð eina pöntun til reynslu og sannfærist um þau kjörkaup er vér bjóðum, Vér óskum eftir útsölumönn- um. Sendið eftir stórum príslista. Kjós- íð ykkui hvaða prísa sem þið viljið eða látið okkur velja þá. 3 eða 4 punda pöntun $1.00 af hverju sem er. 6 eða 8 punda pöntun $2.00, Nefnið það sem þið viljið fá, te eða kaffi eða dálítið af hvoru fyrir sig. GREAT PACIFIC TEA CO. 1464 St. Catherine St., Montreal, Que. X>angað eigum við að fara. Mánudagskvöldið 18. þ. m. kl. 8j verður haldin samkoma af hálfu Hvíta- bandsins, á North West Hall. Sig. Júl. Jóhannesson flytnr þar fyrirlestur úm -*njög skemtilegt efni. Þar verður söngur, hljóðfærasláttur og alt, sem auga fýsir að sjá og eyru að heyra. — Agóðanum á að verja til hjálpar blá- fátækri og munaðarlausri ekkju með börn. Aðgangur kostar ekki nema 15 cents. Þangað verðum við að fara. Sig. Júl, Jóhannessou hefir aðgöngu- miða til söln; hann er heima, 358 Paci- fic Ave., á kveldin fiá 6—7. Aðstoð óskast. Þér takið eftir í þessu blaði lista sem ver auglýsum yfir muni er vér gefum með hverri $1.00 eða $2.00 pöntun af okkar ágæta tei, kaffi o. fl. Þetta boð stendur í 60 daga, eða þar til agent er fenginn í yðar bygðarlagi. Vér gefum yður hvern þann hlut sem nefndur er á listanum með $1 eða $2 pöntun, og ef þú vilt selja fyrir okkur og ná saman 25 pöntunum, $1 hver, eða 15 pöntunum $2 hver, þá skulum við senda þér gefins ágætt gylt úr, í lokuðum kassa; ábyrgst að það gangi rétt; karlmanns eða xven mannsur. Þetta er aðeins sérstakt fyr- ir þi«; Þeir sem þú pantar fyrir, fá prisa lika. Vér gefum útsölumönnum kaup og sölulaun. GREAT PACIFIC TEA CO. 1464 St. Catharine St., Montreai, Que. Eldsábyrgð. GHJNNAR SVEINSSON útvegar elde- ábyrgð á hús og húsáhöld og búðargóss með sama verði og aðrir. Gott félag, aðalskrifstofa í vinnipeg. Enginn þarf að bíða eftir peningum lengur en þar til lögmætar kröfureru sannaðar. 'Cð S5 lO Oj o c3 bc O XO • rH a o 3 ju E Q 4J V u » S S S c Mi OLI SIMONSON MÆLIR MEÐ SÍNU NÝJA Skandinavian Holel. Fæði $1.00 á dag. 718 Main 8tr. Stærsta Billiard Hall i Norð vestrlandinu. Fjögur “Pool”-borð og työ “Billiard”- borð. Allskonar vín og vindlar. Lennon & Hebb, Eigendur. Nortliern Padfic. Til- (Inion Itrand HEFIR 8 ÞETTA jj MERKI P g KAUPIÐ l BKKERT ® ANNAÐ St. Paul, Minneapolis, Duluth og allra staða austur og suður. Til---- BUTTE HELENA SFOKANA SEATTLE TACOMA PORTLAND CALIFORNIA JAPAN KINA ALASKA KLONDIKE ENGLANDS, EVROPU, AFRIKU- Farejald í Manitoba 3 cts. á míluna 1000 mílna farbréf fyrir 2Jc. á míluua. Til sðlu hjá öllum agentum félagsins. Hin nýja járnbrautarlest, “North Cost Limited”, hin skrautlegasta járn- brautarlest. í Ameríku, hefir nú verid sett af stokkunum, og renna nú tvær lestir daglega austur og vestur. J. T. McKENNEY, City Passenger Ag’t, Winnipeg. H. S WINFORD, General Ag’t, Winnipep. CHAS. S FEE, G.P. & T.A., St. Paul. BOYD’S BRAUD er fyrir verkamanninn, keimgott,. heilsusamlegt, nærandi og matar- mikið.—Það er meira selt af því en af nokkurri annari brauðtegund fyr- vestan Toronto og framleiðslan og- salan eykst daglega. — Vér gefum fleiri og fleiri bökurum og keyrslu- mönnum vinnu árlega. Reynið það: Þér ættuð að hafa það bezta. Verðið er 20 brauð fyrir $100. .W J. Boyd, 370 og 579 Main Str. Victoria Kniployinent Itnrean Foulds Blocl^, Room No. 2 Corner Mainé & Market St. útvegar stúlkum vistir, sem eldakonum og við borðstofu og uppiverk á gest- gjafahúsum, einnig vistir í prívathúsum. THE CRITERION. Beztv vín og vindlar. Stærsttog bezte Billiard Hall í bænum. Borðstofa uppi á loftinu. John Wilkes, eigandi. CHINA HALL 57» main Street. Komið æfinlega til CHINA HALL þeg- aryður vanhagar um eilthvað er vér höfum að selja. Sérstök kjörkaup á hverjum degi. “Tea Sets” $2.50. “Toilet Sets $2.00 Hvorttveggja á ágæt og ljómandí falleg L. H. COMPTON, Manager. Orgel Pianos Og önnur hljöðfæri ódýr og góð og indislega falleg, þau beztu sem fást í bænum, selur Gunnar Sveinsson, Managkr Hbimskringlu.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.