Heimskringla - 20.09.1900, Blaðsíða 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
II •. r Amerík-
n ituncirofncir. enskiriott-
heldir hitunarofnar frá $3.25 til $18.00.
Véi höfum ágæta eldastó
fyrir $15.00. Bezta verð á öllu
WATT& QORDON,
CORNEK hiOGAN AVE. & MAIN St.
!!♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ <1
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
*
♦
♦
♦
♦
!?♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
<
Lr mnnr Hen«ilamPar-bord°g
~l*illjjlll . lestrarstofu lampar.
Sjáið vorar margbrey tilegu
vörur og vöruverð. Hvergi
betra né ódýrara í borginni.
WATT & GORDON,
Corner Logan Ave. & Main St.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
§)♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«!
XIV. ÁR WINNIPEGr, MANITOBA 20. SEFTEMBER 1900. Nr. 50.
The Home Life Association
of Canada.
Aðalskrifstofa í Toronto.
‘Höfuðstóll—ein millíón dollars.
I all trygging í höndum sambandsstjórnarinnar.
Lifsábyrgðarskýrtejuj Home Life félagsins gilda hvar i heimi sem er. Eng-
in höft eru lögð á skírteinishafa hv«ð snertir ferðalög. bústað eða atvinnu. Þau
eru ömótmælanleg eftir eitt ár frá dagsetningu.
Skírteinin hafa ABYRGST VERÐGILDI í uppborgaðri lífsábyrgð, pen
ingura og lánsgildi, eftir þrju ár.
Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þess hjá
W. H. WHITE, ARNI EGGERTSSON,
MANAGER. GEN-ERAL AGENT.
Ilclniyre Blotk, A’i inni|>eg. P. O 1ÍOXÍSÍ45.
f PENINQAR LANADIR. - H.„, alborguiir.
Vér ?rum umboðsmenn fyrir hið bezta og ríkasta lánfélag
sem bækistöðu hefir í Winnípeg.
® VILTU EIGNAST-— Lartleaí oB v,l vaudað .in.ot.a, hd,
(Oottage) á Alexander Avenue ? Það er úr timbri, á
//AvN steingrunni og kostar $1200.
* TAKID VATRYGGING— , ..Th, p„0„ix op 1ohdo„,,
^ Pað er hið elzta og bezta vátryggingafólag í heimi.
Nares, Robinson & Black,
Bank of llamilton (JhambcfS.
Macdonald
fagnad eystra.
Hon. Hug'h J. Macdonald kom
austur til Ottawa á sunnudaginn
leið. Sir Cliarles Tupper beið hans
ferðbúinn á brautarstöðvunum. Þrátt
fyrir það þó það væri á fárra vitorði
að forsætisráðherra Manitoba væri
væntanlegur með lestinni, hafði fólk
í Ottawa fengið veður af því að eitt-
hvað markvert væri á seiði, svo
æðimargt hafði safnast saman á stöð-
inni. En þegar Hon. Hugh J.
Macdonald sást, flaug koma hans
eins og eldur [ sinu um alla borgina,
og á augabragði var orðið troðfult af
fólki. Hon. Hugh J. Macdonald
stanzaði að eins fáar mínutur, og
þurfti að hamast að taka í hendina á
góðþektum kunningjum á meðan.
Fagnaðarlæti fólksins voru dæma-
laus. Síðan lögðu þeir Sir Charles
Tupper, Hon. Hugh J. Macdonald
og Hon. George E. Foster, ofan til
Montraal. Þar var tekið á móti þeim
af konservativum með mesta fögnuði.
Á mánudagskvöldið var héldu þeir
undirbúninsfund. Var svo mikil að-
sókn og ákafi að hlusta á þá, að slíks
eru engin dæmi í stjórnfarsögu Can-
ada. Ramstæk liberalblöð, sem
Free Press hör í Winnipeg og önnur
hringvitlaus ofstækisblöð, flytja
fregnir um fjömenni á fundi þessum.
Sir Charles Tupper hélt fyrstu
ræðuna. Hann kvað konservativa
hafa meira fylgl nú, en nokkurn
tíma áður. Hann væri nýbúinn að
fara um strandfylkin: New Bruns-
wick, Nova Scotia og Prince Edward
Island, og þar hefði konservative-
tíokkurinn tvo þriðju yfir, eftir næstu
kosninar. Elokkurinn yrði í stórum
meirihluta að kosningunum afstöðn-
um. Enda væri það eðlileg afleið-
ing af framistöðu Laurierstjórnar-
innar, sem ekki hefði staðið við eitt
einasta loforð. Önuur eins stjórn
hefði aldrei þekst í heimi áður.
Hann rakti feril stjórnarinnar lið fyrir
lið, og sýndi hina óviðjafnanlegu
ranghverfu, sem sú stjórn kemur á
alla hluti—orð og gerðir— sem hún
fjallar nm. Ræða hans var fróðleg
og efnisrík, og fékk ræðumaður
ágæta áheyrn.
Næst talaði Hon. Hugh J. Mac-
donald. Var honum fagnað ágæt-
lega vel. Hann talaði mjög lipurt
og næstum af viðkvæmni. Ræða
hans gekk einvörðu út á stjórnarfar
föður hans sáluga. og helztu menn
sem fylgdu honum að málum. Hann
taldi Sir Charles Tupper mesta
alda vin hans og stoð og styttu þá
til vandræða kom. Hann fór ekki
út í pólitík þó sem nú er efst á blaði,
enda þurfti hann þess ekki, því Sir
Cliarles Tupper hafði rakið hana svo
vel og greinilega, að engin nauðsyn
var að bæta þar á.
Þegar íæðumaður hafði lokið
máli sínu, og fengið hina hlýjustu og
virðulegustu áheyrn, hélt Uon, Geo.
E. Eoster snjalla ræðu ásamt fleirum
ieiðandikonservativum. bíðan valdi
flokkurinn sér tvö þingmannaefni tii
sóknar í næstu kosningum, fyrir
Jlontreai kjördæmi. — Þessi fundur
heíir óefað verið sá lang fjölmennasti
fundur, sem nokkurn tíma hefir
haldinn verið í Canada.
Frjettir.
Markverðustu yiðburðir
hvaðanæfa.
Eldurinn mikli, sem fyrir nokkrum
mánuðum eyðilaKði raikinn hluta af
bæjunum Hull og Ottawa, hefir meðal
annars haft þær afleiðingar, að eldsá-
byrgðarfélögin hafa hækkoð ábyrgðar-
iðgjöld í þessum bæjum alia leið frá 25
til 50 per cent frá þvf sem áður var.
Þessi ákvörðun gekk í gildi þann 10. þ.
m. Ábyrgðir eru að eins teknar til 1
árs í senn, en ekki til 3 ára eins og áður
var.
Skraddarar í Montreal gerðu verk-
fall á verkstæðunum þar fyrir nokkr-
um dögum. Þeir unnu fyriJ $14—$15 á
viku. Ný innfluttir Gj’ðingar frá
Rúmeníu voru settir i verkstæðin og
vinna þeir fyrir $5 um vikuna og gera
nálega eins mikið og gott verk og áður
var gert fyrir þrefalt kauþ. Þetta olli
mikílli óánægju þar neðra. Verka-
menn kenna Laurierstjórninni um inn-
flutning þessara Gyðinga,
Hon. Hugh J. Macdonald sagði á
fundi í Ontario, að hann yrði meira en
hissa, ef hann fengi ekki yfir 400 atkv.
fram yfir Mr. Sifton í Brandon kjör-
dæminu við næstu kosningar. Það er
víst óhætt að fullyrða, að Mr. Macdon-
ald fær þar stóran meirihluta allra at-
kvæða.
Sir Charles Tupper og Mr. Macdon-
ald eru farnir að hafa fundi úti undir
b 3ru lofti í ýmsum stöðum í Ontario,
því að engin samkomuhús í bæjunum
eru nægilega stór til þess að rúma helm
ing af því fólki sem sækir fundina.
Segja austanblöðiiT, að aldrei í sögu
Canada hafi pólitisEir fundir verið eins
vel sóttir í austurfylkjunum og Onta
ario eins og þessir Conservatíva fundir.
Lord Ifoberts hefir sett alt Trans-
vaal undir herstjórn og nefnt héraðið
“Vaal River Colony”.
Chas. Landois & Co. í Montreal
hafa orðið gjaldþrota. Skuldir þeirra
nema um $400,000.
Nýmæli eru það, að heil herdeild í
Parisá Frakkiandi hefir verið handtek-
in og allir mennirnir settir i varðhald,
kærðir fyrir að hafa selt hafra og ann-
að hestafóður stjórnarinnar og stungið
andvirðinu í vasa sinn.
Leiðtogar Conservatívaflokksins,
Sir Charles Tupper og Hon. Hugh J.
Macdonald, hafa liaft allmarga póli-
titka fundi í Ontario og 2 fundi í Mont-
real. Segja blöðin að aldrei fyr hafi
nokkrum stórmennum verið betur fagn
að í Canada en þessum tveimur mönn-
um, og svo er aðsóknin að fundum
þeirra mikil, að þúsundir verða að
hverfa frá á hverjum ræðustaö vegna
rúmleysis. Það er talið alveg áreiðan-
legt í flestum austanblöðunum, að Con-
servatívar vinni næstu kosningar.
Eréttir fiá Kína óljósar um þessar
mundir, Svo mikið er þó víst, að Rúss-
um er mjög ant um að koma hermöun-
um stórveldanna þaðan sem allra fyrst.
og þykir það tíðindum sæta, að þeir
skuli n ú sýna sig svo friðsama eftir all-
ar óeirðirnar. En svo kemur það upp
úr kafinu, að gamli Li Hung Chang
hafi iofað Rússum að veita þeim öll yf-
irráð yfir Manchuria-liéraðinu, ef þeir
gangist fyrir því, að koma her stór-
veldanna þaðan úr latidl. Síðan þetta
kornst upp, hafa stórveldin algerlega
neitað að fara að ráðum Rússa og
Bretar segjast sitja sera fastast þar til
lögbundin stjórn sé komin þar á fastan
fót og trygging sé fengin fyrir því, að
friður haldist þar í landi, og að lífi og
eignum útlendinga só þar engin hætta
búin; enn fremur, að þeir verði að fá
allan herkastnað sinn greiddan að fullu
áður en þeir yfirgefa Pekin. Aðrar
þjóðir fylgja væntaniega Bretum i þess
um kröfum.
Síðustu fréttir segja áreiðanlegt að
Kruger sé nú kominn á leiðina til Evr-
ópu, og að viðstaða Búanna móti Bret-
um sé því ekki lengur möguleg; þá
skortir meðal annars skotfæri.
Kona nokkur í Neepawa og önnur
kona hér í Winnipog, frömdu sjálfmorð
í síðustu viku. Báðar konurnar voru
geðveikar.
Ofsaveður það, sem getið var um i
síðasta hlaði, að ætt hafi yfir part af
Texasríkinu, hefir gert meira mann-
tjón en í fyrstu yar getið tíl. Það er
nú orðið víst, að um 10,000 manns hafi
farizt í þessu veðrí og óvíst hve marg-
ir tieiri biðu líftjón við það, með því að
í bænum Galveston, sem varð fyrir
mestu áfaili af veðrinu, liggja nú dauð
ir líkamir úti á víðavangi og rotna þar,
af því að ómögulegt er að grafa þá eða
brenHa eins fljótt og vera ætti. Þessi
rotnun eitrar loftið og gerir það drep-
andi fyrir þá sem eftir lifa. Vaskir
karlmenn vinna daga og nætur við að
grafa langar grifjur og hlada líkunum
í þær í hundraða tali, til þess að koma
þeim sem fyrst i jörðina. Stór hópur
þjóf« og ræuingja tíykkist inn í hæinn
til að stcla öllu verðmætu af líkunum
og ræua úr hi’isum þeirra. Yfir 20 af
föntum þessum hafa verið skotnir af
heimönnum og horgurum og mælist
það vel fyrir. Vinir og ættingjar flykkj-
ast inn í bæinn úr öllum áttum til þess
að leita að ættingjum sínum. Fóður-
skortur er þar mikill. því samgöngu-
færí eru eyðilögð.
Governors-kosningarnar ! ríkinu
Maine hafa gefið Repúblíkum 33,000 at-
kvæði um fram.
Æðsti réttur Bandaríkjai’na heldur
dómþing þann 8. Október næstkom-
andi. 414 mál eru þar á dagskrá.
Um 300 verkamenn komu til Mani-
toba austan úr fylkjtim á fimtudaginn
var, til þess að vinna hér við uppskeru,
og enda til að setjast að hér í fylkinu.
Læknafélagið í Canado. hefir á
fundi sem það hélt nýskeð i Ottawa á-
kveðið að hafa næsta ársfund sinn hér
í Winnipeg. Dr. Chown frá Winnipeg
var kosinn íorseti félagsins.
He máladeild Breta hefir keypt
19,200 tons af heyi í. Canada og látið
tiytja „til Suður-Afríku síðan stríðið
byrjaði þar. Auk þess 8207 sekki af
höfrum, 7547 kassa af Jam, 12,687
af kjöti (um ! 0 pd. í kassa) og 38,285
sekki af hveitimjöli. Fyrir þetta borg-
ar Bretastjórn Canada $á3*Ó,obO;ÖO.
Montreal Cold Storage & Freezing-
fólagið hefir orðið gjaldþrota. Allar
skuidir félagsins voru $550 000, en á-
byrgðir eru fyrir $370,000 af þeim.
Mikill fjöldi af canadiskum her-
mönnum er nú á leið frá Englandi
til Canada, en nokkrir sem komnir voru
til Englands úr stríðinu hafa látið til-
leiðast að snúa til baka til Suður-Af-
ríku, til þess að halda áfram hernaðin-
um þar til stríðinu er lokið- Nokkrir
Canada hermennmenn hafa fengið
Victoria-krossinn fyrir drengilega fram
göngu í hernaðinum. Er það mesti
heiður, sem almennum hermönnum er
veittur.
Gamli Kruger hefir nú aðsetur sitt
í landstjóiairöllinr.: iLorenzo Marques,
sem er í landareign Portúgisa í Suður-
Afríku. En ekki er honum leyft að
hafa neitt samtal við sendiherra ann-
ara þjóða eða jafnvel sína eigin menn.
Bretastjón hefir. sem sé, andmælt því
því að Kiuger væri leyft að stjórna
hermálum Transvaal meðan haun sitji
í öðru ríki, og þá kröfu hefir portúgiska
stjórnin skoðaðsvo sanngjarna, að hún
hefir skipað landstjóra sínum í Lorenzo
Marques að sjá til þess, að Kruger láti
TranSvaalm 1 afskiftalaus meðan tiann
er í riki þeirra. Annars má segja að
karl sé alfluttur úr Transvaal. Hann
er húiun að segja af sér íorsetatigniuni
og Schalkberger tekinn við af honum.
En svo hefir embætti þetta litla þýð-
ingu nú, þar sem landið er alt komið
undir herstjórn Breta.
Allmikið ve»-kfall er nú í Pennsyl-
vania kolanámunum, Yfir 7o,000
manna er sagt að hafi hætt vinnu. Þeir
biðja nú um kauphækkuu. Það er
sennilegt að þetta hafi þau áhrif að
hækka talsvert verð á koium hér
nyrðra.
Stórkostlegur eldur k ,m upp í ban-
um Paris.Ont. þann 12. þ. m. og brendi
til ösku allan aðalpart hæjaritis. Skað-
inn metinn yfir $250,000.
Fundur mikill var haidinn í Toron-
to i síðastl. viku, til þess að reyna að
mynda nýan Independent pólitiskan
flokk i Canada. Þar voru rædd ýms
stórmál, t’vo sem vínbannsmálið. Fund-
urinn áleit ógjörlegt að koma vínbanns
lögunum á í Cauada, en vildi í þess
stað koma hér á fót hinum svonefndu
Gothenburgvínlögum. En þau eru, að
öll vinsala skuli vera í höndum stjórn-
arinnar og ágóðinn af lienni renna i
landssjóð. Þetta þykir haía gefist vel,
þar sem reynt hefir verið, EkA kaus
fundur þessi neinn mann til að sækja
um þingsæti undir merkjum sínurn í
þetta sinn. En flokkinn skírtfu þelr:
‘ The Peoples Party”.
MaDnsmorð liefir komist upp í New
York, eftir 14 ár. Beinagrind af mtnni
hafði fundizt í brunni á landi. sem
maður að nafni Peter Austui hafði búið
á, og þegar beinin voru skoðuð, kom í
ljóshver hinn mj-rti maður var. Peter
var tekinn fastur og játaði haun sökina
á sig.
Stórkostlegir stormar gengið yfir
part af austur Canada í síðastl. viku
og gert mikið tjón á landi. Margir
gufuhátar á yötnunum hafa skolast
upp að ströndunum og rnargt manna
farist. 14 menn drukknuðu af einum
gufuháti, sem hvolfdist í sjórótinu.
Það skip var metið $60,000. Skaðí vai ð
talsveiður á byggingum i ýmsum bæj-
um og borgum.
Fjórir menn fórust í járnorautar-
slysi, sem varð í British Columbia á
sunnudaginn var. Tvær kolavagÐa
lestir rákust á, á brú nokkuri á Esqui-
malt og Nauaimobrautinni. Vagnarn-
ir hentust í loft upp og hrotnuðu í spón,
og mennirnir stj’kkjuðust í sundur.
Stórkostlegur eldur kom upp i baðm-
ullar- og olíu-verksmiðju í bænum
Houston í Texas á sunnudaginn var og
gerðu $400,000 skaða og svifti 350
manns atvinnu.
Al)an-Línu skipið “Corinthian”
varð fj-rir slysi í Belle Isle sundinu i
St. Lawence-flóamynninu þann 14. þ,
m. Stýriskeðjan slitnaði i stórsjóum
og varð því ekki komið við stjórn. 16
klukkntíma voiu skipverjar að bæta
það sem bilað hafði, og segja farþegjar
að það hafi verið kraftaverk að þeim
tókst það eins og þá var vindur og ó-
sjór.
Fréttir Jrá Kína segja, að héraðs-
böfðinginn yfir Tien-Tsin hafi boðið og
borgað 50 Taels fyrir hvern Ameríku
hermann, sem landsmenn hans gæti
mj rt. Dagbók hans ber með sér, að
hann hafði borgað 100 taels fyrlr höfuð
in af tveimur ameríkönskum sjómönn-
um. — Bretar, Þjóðverjar og Japauar
eru rú orðnir sambuga um þástefnu að
auka lið sitt í Kína að stórum mun og
eru Bretar nú að gera þær ráðstafanir
að fæia það af liði sínu, sem þeir mega
missa frá Suður Afríku, yfir til Kína.
Brezka þingið verður rofið þann 25
þ. m.
Hertoginn d’Alruzzo, á Hollandi,
er nýkominn úr norðurför sinni og var
honum vel fagnað. Hann hafði komist
u okkt.0 lengra norður en Dt^ NaDsen.
Friðþjófur Nansen komst 86 stig,
14 mínútur nbr. og átti þá eftir 260
mílur norður í heimskaut.Eu Louis her-
togi komst 86 stig, 33 mín. og átti því
eftir 241 mílur að heimskautinu.
En það voru eugir sældardagar, er
þessir norðurfarar áttu þar nyrðra. 11
máuuði lá skijúð fast í ís og skemdist
stórkostlega. Þrír menn drukkuuðu í
þessari svaðilför (uorskur maður og
2 Italir). Kuldinn var heljarlsgur.
Hertoginn skaðfraus á tveimur fingr*
um, svo hann gat ekki tekið þátt í
Störfum norðurfara. Annars þykir
þessi för þýðingarmikil frá vísindalegu
sjónarmiði.
Árið 1897 ferðaðist hertoginn um
Ameríkn ,og klifraði þá upp á hæsta
tindinn á St. Elias, ssm er hæsta fjall í
Alaska. Og hafði enginn maður áður
stigið þar fæti. Varð hann frægur
mjög íj'rir þá jökulgöngu sína. —
Það er talið ekki ólíklegt að hann muni
ganga að eiga Vilhelminu. hina ungu
drottningu Hollendinga.
íslands-fréttir.
Reykjavík, 3. Ágúst 1900.
Samsæti héldu nokkrir bæjatbúar í
gærkveldi til heiðurs Páli Ólafssynl, er
hér hefir dvalið um tima.
Þilskip nokkur hafa komið inn
þessa vikuna og flest aflað vel. Hæstur
afii 32,000 á * 1 Margrétu” (skipstjóri
Finnur Finnsson).
Mauualát. Hinn 29. f. m. andaðist
að heimili sínu á Eyrarbakka heiðurs-
konan Guðný Þórðatdóttir Möller.
Hún var fadd að Óseyri við Hafnar-
fjörð 28. Janúar 1843. Foreldrar henn-
ar voru Þórður Gíslason smiðs Péturs-
sonar og Guðlaug Sveindóttir. Hún
giftist eftirlifandi manni sínum Harald
Ludvig Möller, trésmið og gestgjafa á
Ej-raibakk?. 30. Ágúst 1890; tóku þau
hjón það vor við búi Guðlaugar Sveins-
dóttur að Óseyri og hjuggu þar í 9 ár
eða þangað til þau fluttust hingað að
Ej'iarbakka,
25. Ágúst. Mannalát. í Kaup-
mannahöfn er nýdáinn úr lungnatær-
ingu Karl Torfason stúdent, sonur
Torfa Bjarnasonar skólasrj. í Ólafsdal,
efnllegur piltur. Einnig er látin frú
Petiína, ekkja Eiriks Jínssonar vara-
prófasts á Garði.
Nýlátinn er í svefni Sigmundur
Pásson hóndi á Ljótsstöðum á Höfða-
strönd, 77 ára gamall. Var nokkur ár
í skóla. en veik þaðan “pereatsárið’’ og
náði ekki síðav stúdentsprófi. Hann
var merkur maður og vel metinn.
Byskupinn datt af baki nálægt Ási
í Hegranesi og brákaðist eða hrotnaði
að nokkru vinstri handleggurinn. Var
þetta skömmu áður, en haun steig á
skip á Sauðárkrók. Li„gur hann nú
rúmfastur að fyrirsögn læknis.
Maður hrapaði til dauðs fyrir skömmu
úr Hornbjargi áStröndum; var að síga
i hjn,.gið við fuglveiðar og hal-dið, að
steinn hafi hrapað í höfuð honum.
Skarlatssóttin var komin á Djúpa-
vog 10. þ. m. Lá þar þá veíkt eitt barn
Stefáns verslunarstjóra Guðmundsson-
ar. Ekki vissu menn, hvaðan veikin
hefði borizt þangað. Landshöfðingi,
er þávar staddur í Djúpavogi með Hol
um, fyrirskipaði þegar einangrun sjúk
liugsinsþarí húsinu.— Fáskrúðsfirði
hefir enginn skarlatssótt verið (sbr.
Bjarka og Þjóðv.); það var að eins al
menn taugaveiki í nokkrum frakknesk-
um mönnum, er höfðu fengið hana í
Færeyjum og lágu á spítalanum á Fá-
skrúðsfirði, en nú var sú veiki um garð
gengin, og hafði ekki breiðst neitt út
þar í firðinum.
Síldarveiði góð var á Fáskrúðsfirði,
Rej-ðarfirði og Eskifirði þá er Hólar
fóru þar um á austurleið 10 —12. þ.m,
Fiskafii var og góður eystra og
vestra (t. d. Bolungarvík, var um tíma
hlaðafli, svo að s’.mir höfðu þar 30—40
kr hlut á dag, reiknuð eftir blautfisk-
verði. Þetia mundi þj'kja færandi í
frásögur vestur í Ameríku, ef önnur
eins uppgrip væru þar og talin dágóð
daglaun af vesturfara-agentum.
Eftir Þjóðólfi.
Frá löndum.
TINDASIÓIÆ, ALTA. 3. SEPT. 1900.
(Frá fiéttaritara Hkr.)
Veðmátta óstöðug og vætusöm all-
au næstl. mánuð, að eins þurkdagar á
stangli. 25. Ágúst gerði hér snjódrífu
mikla, snjófallið var mikið, en þiðuaði
þó jafnótt, því frostlaust var. Hríðin
hélzt framundir morgun þann 26. Hret
þetta gerði mikið tjón á ökrum hænda.
Flestlr voru búnir að slá þá.svo snjór-
innlagði stráið tlatt niður að rótum
víðast hvar, svo ill mögulegt er að slá
það. Suuuan Red Deer árinnar voru
akrai víða “móðnaðir”, en óslegnir, og
er sagt, að á mörgum þeirra hafi lagzt
flatt. í Edmonton er sagt að snjórinn
hafi verið 5—6 þuml. djúpur; er því út-
lit fyrir að hríðargarður þessi hafi náð
vitt yfir og verða afleiðingarnar því
verri. Snjór þessi skemdi líka gras
sumstaðar, einkum að þvi lejTti, að
vatn óx á lágler.di. Næstliðna viku htf-
ir rigut nálega á hverjum degi. í dag
er stórrigning og útlit mjög iskj-ggi-
legt. Heyskapur hefir gengið seint,
sökum ótíðar. og vantar marga enn
mikið af nauðsj-nlegum hej’jum. Al-
menn heilbrygði og góð líðan í þessari
hygú, það frekast ég veit.
Lausafregn sú frá Alberta, sem
Hkr. getur ura í síðasta blaði, að bólu-
veikin muni vera kominn í það hérað;
hygg ég að lrafi—sem betur fer—við lít*
ið aðjstyðjast; í öl!u falli nron það
tilhæfulaust, að hún hafi gert vart við
sig meðal íslendiuga; og ekki liefir
h-iy , Zi. að honUftv hafi orðið vart í ná-
grannahéruðunum, — Ný verzlun er
V-
byrjuð hér í bygðinni. Herra Jesse
Stewart, stórríkur Englendingur, hefir
keypt verzlunarhús Mr. H. Jónassonar
og er byrjaður að verzla fyrir nokkru
síðan. Aðallega verzla hændur samt
við þá Benedictson Bro’s, að því leyti,
sem þeir ekki reka verzlun í Innisfail
og Red Deer, Benedicts Bro’s hafa
aukið vevzlun sína að mun þetta ár;
þeir bræður eru liðlegir menn og dreng*
ir góðir. Smjörgerðar verkstæðið hér
vinnur úrið um kring. Bændur að-
skilja mjólkina heima, og er því engin
mjólk flutt að verkstæðinu, heldur að
eins rjómi. Meiri hluti bænda hefir
skilvindur—Separa; or—og þjTkja þeir
góð eign; þeir sera ekki hafa þær, að-
skilja mjólkina með setningu heima.
Yfir höfnð munu bændur vel ánægðir
með þessa stofnun, enda er hún ómiss-
andí, og má sjálfsagt telja hana eitt hið
stærsta framfaraspor þessarar bygðar.
Öndverðlega í síðastl mánuði flutti
liingað alkominn herra Pétur Gísiason
frá Joliette, N. Dak. Hann hafði áður
tekið land í nánd við Tindastól P. O,.
og er nú búinn aðbyggja á því.
Dánnarfregn.
Hér með tilkynnist vinum og
vandamönnum, að 31. Ágúst þ. á. lézt
á heimili sínu aðGeysir P. O., Man..
konan Sigþrúður Guðmundsdóttir eftir
að vera búin að vera meira og minna
veik síðan 16. Feðr. síðastl.— Öllum
þeim sem á einn og annan hátt reyndu
til að létta á sálar og líkamans þján-
ingum henuar í hinu langa og stranga
stríði við dauðann, er ég innilega þakk.
látur. Það var dæmafá mannúð og
hluttekning, sem henni var látin í té af
mörgum hér í kring, sem vissu um hin
réttu tildrög til veikínda hennar, er
lögðu hana á hezta aldri í hiná köldu og
þögulu gröf. Það er beiskara en svo
að tárum taki,
Sigurmundur Sigurðsson.
KENNARA
vantar við Minervaskóla fyrir það
fyrsta frá 20. Október til 20. Desember
1900. Umssékjendur tilgreini hvaða
kaup þeir vilja hafa og hvaða menta-
stigi þeir hafa náð. Tilboðum verður
vei.t móttaka af undirrituðum til 8,
Októ ber.
JOHANN P. ÁltNASON,
ritari og féhirðir, Gimli P. O., Man,.