Heimskringla - 20.12.1900, Blaðsíða 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦!
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Hitunarofnar.
Amerík-
enskir loft-
heldir hitunarofnar frá $3.25 til $18.00.
Véi höfum ágæta eldastó
fyrir $ 15.00. Bezta verð á öllu
WATT& GORDON,
Cobnbr Loqan Ave. & Main St.
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*
♦
:
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
WATT & GORDON, ♦
Corner Logan Ave. & Main St.
/ nmnnn HenSilatnPar’borð °K
fJíii • lestrarstofu lampar.
Sjáið vorar margbrey tilegu
vörur og vöruverð. Hvergi
betra né ódýrara í borginni.
♦
♦
♦
!♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦0
XV. ÁR
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Ekki er alt búið enn þá i Suður
Afríku. Núersagt aðBúar hafi náð
4 deildum brezkra hermanna, margir
hafi fallið og særzt, en fleiri teknir til
fanga, ásamt vistum og hergögnum.
Aðvisusegja sum blöð að þetta sé ekki
fullsanuað, en líklegast er þó eitthvað
hæft í því. Oss var lofað fyrir nokkr-
um vikum, þegar Kitohener lávarður
tók við herstjórninni þar syðra, a,ð ver
skyldum ekki fá aðrar fréttir af stríð-
inu. en þær sem hann leyfði að senda,
og um leið var þess getið að hann
mundi sjá svo um að sem minstar frétt-
ir bærust út af vígaferlum þar. Það
mun mega ætla að þar gangi stöðugur
ófriður, þótt vér fáum óljósar fréttir af
honum, og að Búar haldi þar ekki
kyrru fyrir, þótt þeir séu nokkuð das
aðir og hljóti að lúta í lægra haldi um
síðir.
Skeyti frá Kitchener lávarði, dags.
15. þ. m., segir að 5 liðsforingjar og
326 liðsmenn, sem hafa verið fangar i
Magaliosberg, hafi verið gefnir lausir,
Og nýlega hafi Búar umkringt og her-
tekið 120 hesta frá Brabant hershöfð-
ingja í Seastrou-héraðinu.
Blomíield sveitarforingi sigraði Búa
herdeild á leidinnitil Vryheid. Biðu Bú-
ar mikið manntjón' Var orusta þessi
13. þ. m. ,Blomfield hrakti Búa
burtu úr Scheapeis Nek, og náði all
miklu af hergögnum.
Annað jhraðskeyti frá Kitchener
lávarði kemur Jl6. þ. m. og hljóðar á
þessa leið: Clement herforingi hefir
komið að finna mig. Hann segir að
þessar 4 herdeildir, sem Búar tóku um
daginn hafi varlat á hæðunnm meðan
þeim entist skotfæri. Herdeild Búa
sem réðist á þá, hatl veuö 2000 her
menn harðsnúnir og vel útbúnir. En
á meðan hafi 1000 Búar barist við liö
sitt! af fádæmá hreysti og ofurhug.
Klukkan 6,20 um kvölðið hafi hæðirn-
ar veríð alveg mannlansar. Hjálparlíð
komst þangað ekki í tíma. Clements
hershöfðingi og.lið hans barðist sam-
kvæmt heireglum nema töluvert margir
innfæddir kynblendingar, er önnuðust
um hergagnakeyrslu, struku burtu
meðan á orustunnistóð. Var því flutn-
ingurinn tekinn af Búum, ogþaðafhon-
um sem þeir gátu ekki haft með sór
brendu þeir. Clement segir að liðs-
menn sínir hafi hegðað sór sem sönn
um hermönnum ber að gera.
Það þykir að sumir brezku þing-
mennirnir á Englandi vera orðnir ærið
Búa-sinnaðir. Sagt er að þeir sýni
gleðilæti þá fregnir koma um að Búar
beri hærra hlut. Mælt er að á fundi,
sem þessir Búa-sinnar héldu, hafi þeir
hrópað þá nafn K itcheners lávarðar var
nefnt: “ítalinn”, ‘‘slátrarinn”, “villi-
dýrið”, en þegar nöín þeirra De Wet
og Steyn voru nefnd, hafi þeir sýnt gleði-
læti. Taka blöðin í Lundúnum hart á
þessu athæfi, sem vonlegt er.
Methuen herforingi hefir nýlega náð
talsverðu af nautum og sauðum frá
Búum, og er það talinn sigur.
Mr. William T. Stead. rithöfundur-
inn mikli, átti tal við gamla Kruger, í
Hague ájsunfiudaginn var. Vita menn
fátt um tal þeirra. nema að Stead
hvatti gamla manninn til aðleita allra
ráða til að fá stórveldin í lið með sér, og
þegar hann væri búinn að fara um
Norðurálfuna, þá ætti hann að finna
stjórnina í Washington tafarlaust og
biðja hana liðveizlu. Ekki vita menn
svör Krugers i þessnm ráðleggingum,
en góðan llðsmann hetir hann þar sem
Mr. Stead er.
Stjórnin í Nýfundnalaudi hefir haft
$258,000 tekjuafgang á síðastl. fjárhago-
Ari. Stjórnin er nú að semja við Mr.
Reid, járnbrautakónginn mikla, um að
leigja járnbrautir hans þar á eyjunni
um 50 ára tímabil og stjórna þeim Svo
eins og þær væru þjóðeign.
Mælt e. að Kitchener lávarður hafi
skorað alvarlega á brezku stjórnina að
senda hvern leinasta fullkominn liðs
mann, sem riðið og gengið getur, til
Suður-Afríku. Eftir þau stórtíðindi
sem orðið hafa í Suður-Afríku síðan
Roberts lávarður lagði niður völdin,
spyr enska þjóðin með alvörusvip
stjórnina, hví lávsrðinum sé leyft að
fara heim. Stórtíðindi þau er hafa
gerzt síðan Roberts lagði niður völdin
en í stjórnartíð KitchenerS eru þessi:
Herforingi De Wet slapp úr herkvíum
WINNIPEGr, MANITOBA 20. DESEMBER 1900.
í gegn um herv erði Breta við Thaba
N’cbu. Hinir stóru mannskaðar og
hernám við Novitgedacht, og ósigur
við Zastron og Magaliesberg.
Skeytí frá Lorenzo Marques stend-
á þvi að allar herdeildir Búá séu ágæt-
lega búnar að vopnum og hertækja
byrgðum, en séu í skorti með matvæli.
Bandaríkjasenatið hefir samþykt
að Bandarikjastjórnin víggirði Nic-
aragua skipaskurðinn þegar hann verði
grafinn. Bretar lýsa í blöðum sínum
megnri óánægju yfir þessu.
Það er talið að allar afurðir af nám
um í Ontariofylki á þessu ári nemi að
upphæð $1,353,287,00.
Það er sagt í enskum blöðum að
keisaraekkjan í Kína hafi gengið að
eftirtöldum skilyrðum, sem parti af
fiiðarsamningnum við sambandsþjóð-
irnar:
]. Að láta keisarann Kwang Su
koma fljótlega til Pekin og hafa aðset-
ur þar.
2. Að borga stórveldunum 40 milíón-
ir pund sterling í herkostnað. er borg-
ist á 6 árum.
3. Að veita stórveldunum leyfi til að
hafa 2000 evrópiska hermenn við hverja
sendiherrastöð þeirra þar eystra.
4. Að hvert fylki í landinu skuli hafa
ráðanaut frá sambandsþjóðunum, út-
nefndan af þeim og úr þeirra löndum.
6. Að reisa minnisvarða yfir baron
von Ketteler, sendiherra Þjóðverja,sem
myrtur var í fyrra í Kína.
6. Að senda e inn af æðstu prinsum
Kínaveldís yfir til Þýzkal nds, til þess
að biðja afsökunar á því morði o g láta
iðrun Kínastjórnar í ljósi fyrir þann
glæp.
7. Að hegua stranglega fyrirliðum
Boxers uppreistarinnar.
8. Að banna innflutning vopna og
annara hergavna inn í fylkið Chi-Li.
9. Að evrópiskir hermenn hafi eftirlit
með öllum umferðum milli Taku og
Pekin.
10. Að útlendir sendiherJar skuli á
ölluin tímum eiga aðgang að keisara-
höllinni og geti haft pesónulegt, samtal
við keisarann.
11. Að land- og sjávarherstöðvar milli
Shaw Hai Kiwan, Taku og Pekin skuli
verda eyðilögð.
12. Að mönnum frá þeim héruðum,
sem hafa sýnt sig andstæða Evrópu-
þjóðunum, skuli ekki leyft að taka þátt
i herprófum Kína í Pekin um 5 ára
tímabil.
Li Hung Chang hefir verið veitt
leyfi til að taka keisara innsigliðog
setja það á öll embættisbréfín til stór-
veldanna og samninga við þau. Er
þetta meira vald en nokkrum öðrum
manni hefir áður varið veitt þar í landi
og sannar það, að karl er svo gott sem
einráður í gerðum sínum þar eystra.
Umræður mikiar hafa orðið í brezka
þinginu út af væntaniegum kostnaði
við stjórnina í Suður Afríku. Har-
court hélt þ ví fram að lögregluliðið þar
syðra. undir forustu Baden Powels
munði kosta Breta £4 milíónir á ári,
en það væri eins mikið og öll fjárveit-
íng Búanna hefði verið á síðastl. ári til
að standast allan kostnað við stjórn
landsins og stríðið til samans; kvað
hann Bretum mundi veröa landið ærið
dýrkeyptog óvíst um framtíðarfrið þar
Maður datt útbyrðis af skipi á höfn
í Canton i Kína. * Það voru um 400
manns um borð og allir þntu til að sjá
hvað um væri að vera. Af þunga fólks-
ins valt skipið og sökk og drukknuðu
þar 200 manns, en200 varð bjargað
með illan leik.
Samkvæmt samningum, sem Bret-
ar hafa gert við Portúgalsstjórn. er nú
Delagoaflóinn i Afriku orðinn eign
Breta, sem hafa umráð yfir allri verzl-
un þar og rétt tll að leggja tolla á inn-
og útfluttar vörur, með því að borga
Portúgal 15% af dollarnum-
J. Austin .Chamberlain gat þess
í brezta þinginu í siðustu viku, að Eng-
land hefði boðið Bandaríkjunum að
lækka fargjald bréfa og böggla milli
landanna, en Bandarikin hafa neitað
því.
Jarðskjálftar miklir og jarðföll hafa
orði ð á Heligoland eynni, (og er sagt að
við jarðskjálftann hafi jörðin sprungið
og svelgt í sig 30 íbúðarhús, Sagt er
að s jór hafi gengið svo upp á eyna, að
partur af lienni Jhafi verið undir vatni
svo dögum skifti. Litilli eða engri
hjálp varð við komið og skaðinn sem er
stórmikill, er enn þá ekki tilgreindur.
Samkvæmt ný útgetinni reglugerð
Ottawastjórnarinnar verður innflutn-
ingsskattur á Kínverjum, sem ætla að
setjast að í Canada, $100 á hvern mann
eftir nýár, í stað $50, sem verið hefir að
undanförnu. Á síðasti. ári hafa inn-
tektir stjórnarinnar af þessari tekju-
grein orðið $210,152 af 4231 manni.
Tveir piltar, 15 og 17 ára gamlir,
urðu úti nálægt Elkhorn hér i fylkinu
í síðustu viku. Þeir voru að sækja víð
i skóg6 mflur frá heimili sínu, en urðu
seint fyrir, og í myrkrinu töpuðu hest-
arnir slóðinni og viltust. Yngri bróð-
irinn fraus i hel, en hinn lifir, stór-
skemdur.
. Stórknstlegt regn og stormur æddi
yfir bæinn San Francisco áföstu dag-
innvar. Regnfallið var óttalegt og
götur og hús manna flóðu í vatni.
Vindhraðinn var ákaflega n.ikill og
kippirnir svo harðir að ýms hús ultu af
giunninum. Telegrafstólpar og girð-
ingar fuku um koll. Einn maður beið
bana af því og inargir meiddust. Yms
ar aðrar skemdir urðu þar.
Nú hefi’ K.tchener lávarður sent
hermálastjórninni á Englandi svo hljóð
andi skeyti: ‘ Pretoria, 14. Desember.
Clement herforingi hefir beðið stóran
ósi ;ur vi 3 Nooitgedacht. Mannfallið
er mikið, 5 liðsforingjar dauðir og 9
liðsmenn; horfnir 18 liðsforingjar og 555
liðmenn. Þetta tapaða herlið var í 4
liðsdeildum og höfðust þar við á hæð
um nokkrum i kring um orustuvöllinn.
Gáfu sum blöðin í skyn, að ekki sé
þessi liðsmannatala of talin, sem gefin
er út af hermálastofunni.
Mælt er að Knox herforingi haldi De
Wet í skefjum með 3000 liðsmönnum
nálægt Thaba N’Chu, Ladybrand.
Dominionþingíð á að koma saman
6. Febr. næstk. Það verður beðið um
að löggilda Alberta Central járnbraut-
arfél. og leyfa því að byggja járnbraut
frá Tp. 38, R. 23, til Red Deer-bæjar
Sýningarstjórnin á Frakklandí hef-
ir tapað 2 milíónum franka á sýning-
unni. Kostnaðurfnn við hana varð 116
millíónir, en inntoktirnar 114 millónir
franka.
Mr. Chas: T, Yerkes frá Chicago
hefir fengið leifi hjá bæjarstjórninni í
Lundúnum til þess að bryggja neðan-
jarðar rafmagnssporbrautir um bæinn.
í sambandi við það hefir stjérnarnefnd
félags þess sem Mr. Yerkes er meðlim-
ur í, ákeðið að byggja stórkost-
legar skrifstofur þar. Land er dýrt í
Lundúnum bæarlóð sú, sem lmgsaðjer
aðbyggja þessar skrifstofur á, kostar
$1J miljón og til þess að hafa sem mest
not af lóðinni vill félægið fá leyfi hjá
bæjarstjórninni til þess að byggja 455
feta hátt hús, með 3o loftum,og verður
það þá stærsta og hæzta bygging i
heimi. Það er álitið að byggingin
kosti ekki meira en lóðin sem hún á að
standa á. í þessari byggingu getur
félagið haft allar sínar skrifstofur og
leigtþess utan nægil. hús og skrifstofu-
rúm fyrir 550 leiguliða semáætlað er að
mundu borga $220,000 í húsaleigu um
árið Sjö lyftivélar eiga að vera í bygg-
ingu þessari og rafmagn veifur eigi að
veita stöðugan straum af fersku
lofti um herbergi hússins. Borgarvatn
á ekki að nota framvegis, heldur á að
þrýsta brunnvatni um alt húsið, sem
bæði er svalara og hollara, en borgar
vatnið. Það er áætlað að hús þetta hið
mikla verði 21,(00 ton að þyngd, svo
að eigi er hætt við foki af völdum
vinda.
Gull hefir fundist í stórum stíl í
Alaska i svonefndu Yellow River hér-
aði í vesturhluta Alaska um 300 mílur
frá Holy Cross trúboðastöðuum í Yu-
kon.
Tólf Svíar fóru þangað vestur í
Júií síðastl. og fundu bull þar í jörðu,
sem þeir segja að sé eins auðug eins og
Eldorado og Bonanza lækjunum i Klon
dyke. Segja þeir að á þessi sé full af
gulli á þriggja mílna svæði. John Ab-
enson, einn af þessum 12 Svium og fé-
lagar hans, grófu holu sem var 16 feta
á hvern veg og 2 feta djúp, og tóku þar
$34,000. Þessir menn leigðu Indíána
til þess að bera gullið til Yukonlands-
ins. Þeir komu til St. Michaels með
allan auðinu snemma i siðastl. mánuði.
Robert Morreney, sá er flutti þessa
frétt, er ferðbúinn til Skagway; þaðan
æílar hann að ferðast 2100 mílur til
þessara nýfundnu gullstöðva.
Dominionþingið er kallað saman
þann 6. lebrúar næstkomandi. Það
er búist við að þingsetan verói með
stytsta móti að þessu sinni.
Frakkar ætla að leggja 762,000.000
franka til þess að smíða 269 herskip af
ýmsri stærð. I franska þinginu kom
einnig fram uppástunga um að stjórnin
legði lagabann við tilbúningi og sölu
skaðlegs áfengis, sérstaklega þeirra
drykkja, sem búnir eru til úr malurt.
Uppástuugumaður kvað slíka drykki
orsaka brjálsemi i þjóðina og orsaka
eyðilegging hennar. Uppástungan
gekk í gegn í einu hljóði.
James Parker var dæmdur til 13
ára betrunarhússvinnu í Philadelphia
fyrir þjófnað. Hann hefir setið 6 ár í
fangelsinu, og er nú látin laus, af þvi
að algerð sýkna hans af ákærunni hefir
verið sönnuð.
Um skemtisamkomuna í
Geysir-bygð.
Að kvöldi hins 1. Des var skemti
samkoma haldin í skólahúsinu í Geysir-
bygð í Nýja Islandi. Fyrir skemtun-
inni stóð kvennfélagið þar í bygðinni
og var alt mjög vel af hendi leyst, enda
virtust allir sem sóttu samkomuna, vera
mjög ánægðir; því bæði er húsið, sem
skemtanin fór fram i, hið allra hentug-
asta, sem huugsast getur í sveit,og eins
voru veitingar ágætar í alla staðl, og
voru þær bornar fram í stórum sal upp
á loftinu í húsinu. Það var eins og
allir bygðarbúar hefðu tekið saman
höndum með að gera þessa samkomu
sem ánægjulegasta.
En það sem mest einkendi sam-
komu þessa. var ^sjónleikurinn, sem
þar var leikinn. Heitir leikur sá
'‘Nihilistarnii” og er hann að mörgu
leyti mjög fræðandi og tilkomumikill,
sérstaklega II. og IF. þættirnir. Eru
Nihilistar sýndir þar eins og þeim er
oftast lýst í góðum skáldsögum frá
Rússhtndi. Búningurinu á aðalsfólk-
inu, í leiknum, var í alla staði hinn
prýðilegasti svo góður að maður gat
ekki annað en dáðst að honnm. En aft-
ur voru tjöldin á leiksviðinu mjög léleg,
og var það illa farið, því svona tilkomu-
mikill leikur missir mikið af gildi sínu
ef málverkið vantar. Þó var auðséð að
öllu var þar *el stjórnað, og öllu vel til
hagað eftir því sem föng leyfðu. Að-
dáunarvert mátti það heita, að ár-niður
skildi heyrast, og eins var öllu snildar
lega niðurraðað á leiksviðinu, þegar
afieiðingarnar af seinna fundi Nihilist-
anna voru sýndar þar, sem Nihilistinn
nr. 13 lá fallinn, og Nikulás heldur Al-
exandra í örmum sinum. Hún er þar
náföl, en um leið tíguleg og höfðinleg,
en hann prúður og karlmannlegur, með
brokkið og kolsvart hár — maður gæti
p-kki hugsað sér rússneskan aðals-
mann fallegri en hann. En svo sást til
annarar handar hið ógurlega tröll
(Petur lögregluþjónn) með tvo af Nihi-
listum, en á bak við er Petroveski, og
bendir á hinn fallna Nihilista. Þetta
atriði var ef til vill hið tilkomumesta í
öllum leiknum, og lýsti það mikilii leik-
ara-íþrótt.
Aitir sem léku þetta umfangsmikla
leikrit, eru unglingar, að undantekinni
einni konu, sem er komin á efri aldur,
en bún var tilkomumesta persónan á
leiksviðinu, eg sýndist jafnvel vera
ung kona.
Mér var sagt að leikendurnir hefðu
haft mjög stuttan tíma til að æfa sig í
þessum leik—jafnvel ekki meiraen fjóra
daga og er það nærri ótrúlegt. En þó
leikendurnir hefðu verið búnir að æfa
sig í heilan mánuð, þá hefð samt verið
ósanngjarnt að ætlast til að þeir hefðu
leyst sitt verk vel af hendi. Aðal-per-
sónan í leikritinu er hertoginn—gamall
maður og drottnunargjarn. Guðmund-
ur Erlendssou lék þá persónu, og það
má með sanni segja að hann léki ágæt-
lega, sérstaklega þegar hann talaði við
sjálfan sig, og þegar hann varð æstur;
enginn af leikendunum þurfti eins oft
að skifta um skap sem hann, því her-
toginn er ýmist hálfreiður, eða hissa, og
á altaf í vök að vekjast, og er með
köflum ofurliði boriun af heimilisfólki
sínu. Ásbjörn Pálsson lék greifann, og
gerði það prýðilega. Greifinn er altaf
hálf drukkinn, en verður um leið að
láta lítið á þvi bera. Hann drekkur oft
en litíð i senn. Greifafrúna lék Ingi-
björg Erlindsdóttir, og lék hún snildar-
lega, sérstaklega þegar hún var að fá
greifann til að þegja yfirleyndarmálinu.
Gerði hún það svo náttúrlega, að fáar
stúlkur á hennar aldri hefðu gert betur.
Hei togafrúna lék Jóhanna kona Jóns
Sveinssonar, var auðséð að hun skildi
vel þann þátt, sem nún þurfti aðleika,
enda kom hún vel fram á leiksviðinn og
sópaði mikið af henni, en bezt lék hún
þegar hún var að tala hljóðskrafi við
greifRfrúna. Kristján Jónsson lék Ni-
hilista-spæjaraun, og léku fáir betur en
hann. Hann var lifandi af ijöri, og
gletnin skein úr augum hans, og þegar
hann sagði hertogauum frá viðskiftum
sinum og Nihílista, þá ljk hann af
hreiani suild. Nihi.istinn i>r. 13 var
leikinn af Magnúsi Sigurðssyni. Var
mjög erfitt að leika þann þátt. Én ef
ril vill hefði euginn af öllum hiuum
leikendunum getað leyst það verk eins
vel af hendi sem Magnús, því þegar
hann las bölbænirnar j'fir hertoganuin,
lýsti röddhans þeirri geðshræring, sem
ekki er ætíð gott að ger sér upp. Og
tilburðir hans alllr voru í fullu sam-
ræmi við rödd hans og geðshræring.
Sigríður Pálsdóttir lék Katrínu (nihil-
istaforingjaun). Hún lék ágætlega síð-
ast í IV. þætti og þegar hún stóð
frammi fyrir hertogann m. Brynjólfur
Jónsson lék son hertogans og var hann
vel til þess fallinn sökum þéss að hann
er fríður og karlmannlegur Það var
unun að borfa á hann slíta af sér bönd-
in og verjast þremur eða fjórum nihil-
istum. Það var engin uppgerð. Hann
braust um eins og kappi og það mátti
sjá vöðvana á handleggjuin hans tútna
út., Jane Nordal lék Alexöndru. Hún
lék ágætlega. En bezti lék hún það at-
riði, þegar hún kom fram til að bjarga
Nikulási. Og það eina atriði var nægi-
legt til að sýna áhorfendunum að hún
hefir mikla hæfileika til að koma framá
leiksviðið. Siguý Þorsteinsdóttir lék
þjónustustúlkuna, hún er yngst af öll-
um bessum leikendum, en hún lék þó
siun þátt eins vel og hinir; ekki sízt
þegar hún snoppungaði lögregluþjón-
inu. Húu sýndi það, að hún skildi til
hlítar “karaktet” þeirrar persónu, sem
húnlék. Lögregluþjóninn lék Svein-
björn Pálsson. Haun er jötuu aö vexti
þó hann sé að eins sautján ára gamall.
Hann var mjög líkur lögregluþjónum
eins og þeir alment gerast, og va ð
mörgum starsýnt á hann. Þorsteinn
Þorsteinsson lék nihil’stanu nr. 11.
Hann virtist vera óvanur við að leika,
því hann talaði oiiágt, en að öðru leyti
kom hann vel fram; sá þáttur, sem
hann lék, var tilkomuminstur.
Sá sem lék leynilögregluþjóninn var
Jóhannes kennari Pálsson. Að mínu
áliti var lang- vandasamast að leika
þann þátt. En Jóhannes lék hann
meistaralega, og ekki er hægt að hugsa
sér þá persónu betur leikna. Þegar á-
horfendurnir gátu ekki hlegið að hon-
um, sem þó var oftast, þá urðu þeir að
dást að honum. En það mátti glögg-
lega sjá að Jóhannes er vanur við að
leika peisónur með líkum “karakter”
og þessi.
Það merkilegasta við þenna unga
leikflokk í Geysii-bygð er það, að hann
hefir leikið hvert leikrítið á fætur öðru
án þess að fá hina allra minstu hjálp
utan að, hvað tiisögn snertir heldur
æfa þessir unglingar sig alveg tilsagn-
arlaust.
Meðan Geysir-bygð hefir þenna
leikflokk verða samkomur þeirra vel
sóttar.
Einn ap áhorfendum.
Islenzkur
raálaflutningsmaður
Thomas H. Johnson
Barrister, solicitor etc.
Room 7 Nanton Block, 430 Main Street,
Winnipeg Manitoba.
TELEPHONK 1220
p. O. BOX 750
CHINA HALL
572 main Str
Komið æfinlega til CHINA HALL þeg-
ra yður vanhagar um eitthvað er vér
höfum að selja. Sérstök kjörkanp á
hverjum degi.
‘Tea Sets” $2 50. “jjoilet Sets” $2.00
Hvortveggja ágæt og ljómandi falleg.
L. H COMPTON,
Manager.
FERÐA-AÆTLUN
Póstsleðinn, sem gengur milli
Winnipeg og Nýja íslands í vetur, fer
frá Wicnipeg kl. 12 á suunudögum, frá
Selkirk kl. 7 á mánudacsmcrgna, frá
Gimli kl. 7. á þriðjudagsmorgna. Kem-
ur að íslendingafljóti á þriðjudagskvöld
og dvelur þar yfir miðvikudaginn. Fer
frá tíjótinu kl. 7 á fimtudagsmorgna,
frá Gimli kl. 7 á föstudagsmorgna og
kemur til Selkirk á föstudagskvöld.
Fer frá Selkirk kl. 9 á laugardags-
morgna áleiðis til Wínnipeg.
Burtferðarstaður sleðans frá Win-
nipe™ er að
701 ELGIN AVENUE-
Þeir sem fara frá Winnipeg með
járnbrautarlest á sunnudögum, til
Austur Selkirk, geta fengið þaðan
kevrslu með sleðum okkar tíl West
Selkirk og náð í póstsleðann þaðan.
Mr. G. Gíslason keyrir sleðann* Hann
er æfður og gætinn keyrslumaður og á-
reiðanlegur í öllum viðskiftum, og lætur
sér annt um velliðan farþegjanna.
Vakið far með honum.
miflge &
We»t Selkirk.
JOLIN I NAND_
Fjarska afslattur!
16 pund molasykur.....
10 stykki af góðri sápu.
#1.00
25c
Barna og stúlku treyjur fyrir lægra verð en þær kostuðu oss.
Kvenntreyjur mjög ódýrar,—6 centa og átta centa mislit léreft
fyrir að eins 3c. yardið,—85 centa lífstykki fyrir 05c.—200 pör
af skóm með 35 per cent afslœtti.—Vorir 75 centa upp-
hleyptu kjóladúkar kosta nú að eins 40c, yardið.
Vorir karlmanna $6,00 yfirfrakkar fást nú fyrir að eins #4.50.
Yfirskór mjög ódýrir.
3 pund engiferskökur................................... 35c
Karlmannafatnaður fæst hjá oss fyrir lægra verð en vér borguð
úm fyrir hann, _ _____
*
C. A. Holbrook & Co.
CAVALIER, NORTH-DAK.