Heimskringla - 06.06.1901, Side 2
EIMSKRINGLA 6. JÚNÍ 1901.
Qeimskringla.
PUBLISHED BT
The HeimskrÍDgla News 4 Pablishing Co.
Verð blaðsins í Canada og Bandar.$1.50
nm árið (fyrirfram borgað). Sent til
íslands (fyrirfram borgað af kaupenle
um blaðsins hér) $1.00.
feningar sendist í P. 0. Money Order
Registered Letter eða Express Money
Order. Bankaávisanir á aðra banka en f
Winnipeg að eins teknar með affðllum
B. L. Raldwinson,
Kditor & Manager.
Office : 547 Main Street.
P.o. BOX 407.
Doktorsleg rökfræði
getur það tæpast heitið sem kemur
fram í bréfi því frá Dr. Valtý Guð-
mundssyni til ritst. Lðgbergs, sem
þar birtist í síðasta blaði um orða-
bökarmálið. Vér efum að vísu ekki
að Dr. Valtý segi það satt að Geir
Zoega sé að semja í s 1. • e n s k a
orðabók, né heldur efumst vér um
það að Dr. Jón Stefánsson í London
sé að semja samskyns bók, það er
ísl.-enska —í handbókarformi.—
Hvaða form er það? En hinsvegar
getum vér ekki skilið að hverju leyti
þessar upplýsingar koma við málinu
um samning á al-ísl.-íslenzkri
orðabók, sem geti verið kenslubók
fyrir hvern einasta íslending að læra
sitt eigið móðurmál, þar sem isl.
orðin eru glögglega útskýrð á ís-
lenzku. Sú staðhæfing Doktorsins
að ísl. kensludeild við einhvern hér-
lendan háskóla verði ísl. tungu frá
gleymsku meðal Vestur-Islendinga,
finst oss vera eins hjákátlega barna-
leg eins og hún er órökstudd. Þó
mætti hér til vera nokkur ástæða ef
það væri sýnt eða gæti 'orðið sýnt að
menn sem læra móðurmál sitt á há-
skólunura, væru nokkuð betur að
sér í því—að námstímanum enduð-
um—en ýmsir aðrir menn sem ekki
hafa gengið skólaveginn, en þess
eru dæmi á íslandi að óskólagengnir
menn — sjálfmentaðir menn — eru
jafn fróðir í móðurmáli sínu og þeir
sem beztir eru þeirra er notið hafa
háskólakenslu. Sannleikurinn er sá,
að móðurmálkenslan á ekki að þurfa
að vera háskólamál, það er alþýðu
mál og hvert einasta ísl. barn á að
geta gaft sem greiðastan og ódýrast-
an aðgang að því námi. Allar sjálf-
stæðar heims þjóðir, sem nokkra
menningu bafa fengið, eiga slíkar
orðabækur, og eru þær bæði full-
komnar og svo ódýrar að hvert
mannsbarn getur keypt þær. Og
það ætti ekki að vera íslendingura
ofvaxið að koma á fót slíkri bók. En
þeir eru í því eins og sumu öðru,
rúm 200 ár á eftir nútímamenningu
eða nenningu mentaþjóðanna. En
þótt vér gefum það eftir, að þeir
sem stunda ísl.nám við skólana verði
að jafnaði betur að sér í málinu en
aðrir menn, þá má ekki tapa sjónar
á því atriði að þeir eru svo undra
fáir af fjöldanum, sem hafa ástæður
til þess að ganga skólaveg, og al-
þýðan verður jafn ófróð um málið
eftir sem áður. Það er að jafnaði
fyrir hálærðumönnunum eins og
læknunum sein ekki skoða það í sín-
um verkahring að koma í veg fyrir
að fólk verði veikt. Málfræðing-
arnir gera sér, oss vitanlega, harla
lítið far um að útbreiða sína mál-
fræðilegu þekkingn meðal alþýðunn-
ar, enda era þeir ekki, eftir
þúsund ára stúderun málsins, enn
þá k.omnir lengra en það að rífast um
það sín á milli hvort þetta eða hitt
orðið skuli stafa með i eða y, o. s. frv.
þrátt fyrir alt þeirra háskólanám og
málfræðisþekkingu. Enda eru eng-
ir menn til undir sólunni sem jafn-
jnikíð krydda móðurmál sitt í ræðu
og riti eins og lærðu mennirnir sumir
hverjir. Enn annað er það í sam-
bandi við þetta mál, að ef Vestur-
íslendingar ætla sér að bíða með ísl.
námið þar til þeir eru búnir að
koma upp háskóla sem því nafni
megi nefnast, þá verða þeir að lík-
indum flestir dauðir sem nú lifa. En
samning orðabákar, sem gæti orðið
hyriiingaisteinn undir íslenzkunám
allra fslendinga austan og vestan
hafs, ætti ekki að þurfa að dragast
I mörg ár, ef kappsamlega er unnið
að málefninu. Tilraun Vestur-
íslendinga með stofnun háskólans,
heflr til þessa borið svo undurlítinn
árangur, að það er engin ástæða
til að ætla að hann komist á fót um
mörg ókomin ár enn þá, og heflr þó
óspart verið betlað af ísl. alþýðu til
þess fyrirtækis í síðastl 7—10 ár.
En sannleikurinn er að ísl. alþýða
er á móti háskólahugmyndinni af því
hún veit að vér erum engir menn til
að gera hann svo úr garði að hann
yrði þjóðflokknum til sóma, þó ein-
hver mynd yrði gerð á hann. En
allir vita að bókarsaming þessi er
ekki einasta þarfi og nauðsyn held-
ur og lífea vel framkvæmanleg, og
að með því er unnið það stórvirki
sem aldrei hefir áður verið fram-
kvæmt af ísl. þjóðinni, auk þess
sem slík orðabók mundi styðja að
því að verja málið hér vestra, og
kenna ísl. það, ef þeir annars ætla
að halda áfram að festa sér málið í
minni.
“FREYJA”.
Það getur enginn um þetta
litla blað, eina íslenzka kvennblaðið
hér I Vesturheimi. Ég hef oft furð-
að mig á því, slðan ég kom vestur
um haf. Er það af því, að ritstjór-
inn er kvenmaður? Erum við svo
mikið upp úr því vaxtnir, karlmenn-
irnir, að nefna þetta blað á nafn, af
því að á því eru flngraför konu? Ég
get vel ímyndað mér, að svo sé, því
að ekki er kvenfrelsismálið og konu-
virðingin komin lengra en svo hjá
oss enn, fslendingunum, í þessu
frjálsa landi, að við Ijáum fremur
auga og eyra pólitiskum rifrildis-
greinum karlmannanna en fögrum
og siðbætandi greinum, hugsuðum af
kvenmanns heila og skráðmm af
kvenmanns höndum.
Við eigum hér vestra ekki nema eitt
kvennablað á íslenzkri tungu, blaðið
“Freyju”, geflð út af konunni
Margréti Benediktson, í Selkirk,
sjálfmentaðri konu, en prýðisvel gáf-
aðri og fram yfir allar vonir, ritfærri
konu. Ég þori að fullyrða, að þetta
blað hennar er talsvert betra og
fjölbreyttara að efni, en ísl.
kvennblöðin heima á Frómi, sem þó
er stýrt og stjórnað af mentuðum
konum. Málið á “Freyju er, auð-
vitað, ekki alveg eins gott, en efnið
langtum betra. Og svo er sá stóri
kostur við “Freyju”, að hún
lætursvo margar konur tala.
bæði í bundnu og óbundnu máli,
þar sem kvennablöðin heima
hafa nálega ekki nema eina rödd og
einn penna, sem sé ritstjórans, að
minsta kosti oftast nær. Aðalhugs-
un þessarar konu, ritstjóri “Freyju”
er, að berjast fyrir frelsi kvenna og
jafnrétti við karlmenn, og efst á borði,
hjá henni er mannkærleikrinn, á öll-
um stigum og í öllum myndum.
Frelsi kvenna, jafnrétti og kærleikur
er hennar eina prógram, samfara
fölskvalausri trú á alt göfugt og fag-
urt, alt háleitt og gott. Hún er ekki
þröngsýn né dökksýn; hún vonar,
að sá tími komi, að bæði konurnar
og kærleikurinn geti sprengt at sér
hlekkina í heiminum. Fyrir þetta
málefni sitt vill hún berjast og láta
blaðið sitt, “Freyju”, sýna hinni ísl-
þjóð, að svo verði og h 1 j ó t i að
verða, samkvæmt þeirri reglu, að
guð muni gefa hverju góðu málefni
sigur að lokum.
Blað þetta heflr allmikla út-
breiðslu hér í Ameríku meðal ís-
lendinga, en ég vildi óska, að allar
íd. konur, vildu líta svo á sóma sinn,
að styrkja .blað þessarar konu og
móður, og styðja að útbreiðslu þess
í þessu landi, eftir mætti, svo að það
mætti, uppbyggjandi, fræðandi,
hressandi, sjást á hverju einasta
heimili, þar sem dygðug og góð ís-
Ienzk kona á heima.
B.iarxi Þórarinsson.
Vinsamleg leiðrétting.
í síðasta blaði Lögbergs birtist
grnn með fyrirsögriinni: “Orðabók-
armálið”, og er aftan í hana hnýtt
bréfkafia frá Dr, Valty Guðmunds-
syni. Ég varð satt að segja stein-
hissa þegar ég las þessa grein- Eg
hafði altaf skilið flutningmenn þessa
máls þannig að þeir vildu fá samda
íslenzk-íslenzka orðaðók en
ritstjóri Lögbergs og Dr. Valtýr tala
um íslenzk-e n s k a orðabók. Ef ég
hefi skilið rétt, þá er það, sem þeir
tala um þetta mál alveg því óvið-
komandi; því það hefir aldrei verið
minst á slfka bók í Heimskringlu,
en ef þeir skilja rétt. þá bið ég fyrir-
gefningar á mínum misskilningi og
verð á máli ritstjórans og Doktorsins,
því ég álít þýðingarlaust og jafnvel
heimskulegt að kosta $20,000 til út-
gáfu íslenzk-enskrar orðabókar,
en hinu fyrirtækinu væri ég mjög
hlyntur; það þarf ekki annað en að
benda á blöðin íslenzku hér vestra—
og jafnvel heima líka—til þess að
sanna það að sumir af betri mönnum
sem kallaðir eru þyrfti stundum að
líta í orðabók til þess að skilja þýð-
ing sumra íslenzkra orða og
skrifa þau rétt, mundi slík bók verða
eitt öflugasta ráðið til þess að halda
við íslenzkri tungu, ekki að eins
meðal einstakra manna, er
kynnu að nota sér mentun á
hærri skólum — því þeir verða
alt af tíltölulega fáir—heldur einnig
á meðal alþýðumanna, og í það er
meira varið að menta alþýðuna en
einstaka menn að eins á hennar
kostnað. Fyrirkomulag herra Hall-
dórssonar í síðasta blaði Heimskr. líst
mér vel á og nóg er til af mönnum
heima á Fróni, sem trúandi væri til
að leysa verkið vel af hendi. Et
vér getum komið út þessari orðabók
er trygging fengin að miklu leyti
fyrir varðveizlu tungu vorrar að
því er bókmálið snertir, og ef
vér komum á fót íslendingafélaginu
alment, þá er að miklu leyti lagður
grundvöllur að viðhaldi þjóðræknis-
tilfinningar, ættjarðarástar og tungu
vorrar aðþvíer ræður snerti.
Ég þykist viss um að ritstjórinn
og doktorinn snúi þegar við blaðinu
ef þeir komast að því að minn skiln-
ingur á orðabókarmálinu sé réttur,
nefnii. að hún eigi að verða íslenzk-
í s 1 e n z k en ekki íslenzk- e n s k.
Vilja þeir sem málið hafa flutt
t. d. herra Halldórsson, svara þvi
hvort minn skilningur eða þeirra
sé réttur.
Vinsamlegast.
SlG. JÚL. JÓHANNESSON.
Úr umheiminum.
(Framh.)
í öðrum verkstæðum sér hún
þúsundir manna starfa að því að
framleiða rafmagn til að hreyfa ýms-
ar vélar og verkfæri og upplýsa jörð-
ina í nætnrmyrkrunum, þeir sem
að því starfa hafa orðið frægir og
eru álitnir miklir—já óviðjafnanleg-
ir meðal manna—og það dregur ekki
úr frægð þeirra að nú brúka þeir
rafaflfð til að drepa með bræður
sína og félagsmenn. Hreyknir eru
þeir mjög yfir verki sínu og syngja
óendanlegt hól um sjálfa sig. Af
vörum þeirra heyrast þessi orð:
“Miklir menn erum vér jarðarbúar”.
Á enn öðrum verkstæðum sér gyðjan
fjölda manna sem virðast vera í
djúpum þankabrotum, fyrir framan
þá og alstaðar í kringum þá eru sýn-
ishorn hugmynda þeirra, ýmsir
smápartar tilheyrandi einni heild,
sem ekki er enn þá fullger né full-
hugsuð. Gyðjan skilur meining-
una, hún sér að það eru loftför sem
þeir eru að leitast við að til búa og
brjóta heilann um. Tilgangur
þeirra er að Ioftdrekar þessir taki af
alt ferðalag á landi og vötnum, og
verði hraðmeiri í förum en öll önnur
ferða- og flutn’ngafæri sem þeir áð-
ur hafa uppgötvað og reynt. Ástar-
gvðjan sér að 1 álfunni fyrir handan
hefir morðinginn dregið hníf sinn ur
sliðrum og bíður rólegur og hlakk-
andi eftir því að loftreiðin komist á
fljótlega, svo að þeir sem með henni
fara, og hann ætlar sér að ræna og
drepa, komist í hendur honum sem
fyrst. gjörvallur mannheimur
hlakkar og blður óþreyjufullur yflr
þessum uppgötvunar úrslitum, þeir
gera sér í hugarlund hve dásamlegt
og merki'egt .það yrði — hve óvið-
jafnanlegt framfarastig, — að geta
hatast í loftinu, elt hvern annan með
bölvi og banaspjótum í loftinu, og
drepið hvern annan í Ioftinu, hvo há
tíðarlegt og dýrðlegt það yrði að sjá
upphöggna og sundurtætta manna-
búka hníga til jarðar á millum hræ-
dýra merkurinnar, og á millum
villimanna sem þá mundu vitstola
verða—trúandi því að hinn “mikli
andi” hefði sent þá þeim sem bend-
ingu—og hlaupa í vötn og elfur og
ofan fyrir hamra og fyrirfara sér.
Blys ástargyðjunnar logar og tindr-
ar með endurnýjaðri birtu og Ijóma,
og dýrðarljóminn um höfuð hennar
skín enn skærar en áður, hún er að
leitast við að draga augu og athygli
mannanna að geislabirtu sinni, en
tilraunir hennar eru árangurslausar,
enginn þeirra lítur upp frá verkinu,
hugsjónir þeirra og hjörtu eru bund-
in við hlutina í kringum þá sem þeir
eru að búa til. Og áfram flýgur því
fistargyðjan; áfram yflr hið sollna
og syndumspilta mannkyn á jarðríki,
og grætur sorgartárum af því hún
fær engu til leiðar komið. Á einum
stað sér hún mann berjandi konuna
sína og dragandi hana á hárinu. Á
öðrum stað er fjöldi manna eltandi
nágranna sinn með blóðhundum. Á
enn öðrum stað er mikill mannfjöldi
samankominn og brennir bróðir sinn
lifandi á báli með öskrum miklum
og æðisgangi. Á öllum þessum stöð-
um birtist hatursnornin og hinn
draugslegi hlátur hennar og hvás
höggormsins ómar um loftið og heflr
töfrandi og djöfulleg áhrif á menn-
ina.
Ástargyðjan beinir fluginu frá
vestri til austurs og lætur sig bera
með hraða jarðarinnar inn í kvöld-
hfimið, þar sér hún fagra og göfuga
sjón. Það eru elskendur í faðmlög-
um, á andlitum þeirra skín unaður og
gleði, elskendurnir lyfta höfðunum
og horfa upp til ástargyðjnnar með
innilegu brosi og endurnýja faðmlög-
ln og kossast með draumhýrum
fcignuði og sælu. Þetta eru þær
fyrstu mannverur sem hafa veitt
gyðjunni eftirtekt á ferðinni um-
hverfls jörðina, hún grætur nú
kristalskærum gleðitárum og ásjóna
hennar verður grátfögur og angur-
blíð. Áfram líður lengra og lengra
inn í náttmyrkrið sem sumstaðar er
roflð með döpru endurskini frá mána
jarðarinnar, hér breytir hún stefn-
unni og flögrar um yrirborðið milli
heimskautanna og virðir fyrir sér á-
standið eftir þ\ í sem jörðin snýst,
ljós aí ölium tegundum eru tendruð
hér og hvar, sumstaðar er mann-
fjöldi samakominn í hús og hallir í
br ðurlegri sameiningu fullur ein-
drægni og lífsgleði, það líkar Astar-
gyðjunni svo nún klöknar við og
henni vöknar um augu. Á öðrum
stöðum sér hún eymd, kvalir og
dauða, þá hryggist hún og andvarp-
ar, á einum stað sér hún mann læð-
ast að bróðir sínum sofandi og reka
hníf í gegnuin hjarta hans. Nú ber
fyrir þá staði jarðarinnar sem gyðj-
an virti fyrir sér við dagsbirtuna.
Það er anuar bragur yflr vigvöllun-
uin hér í næturmyrkrunum, stríðs-
mennirnir þreyttir og þjakaðir eftir
dagsverk sitt fofa og hrjóta hátt, þeir
veltast um í draumórum sínum og
berja frá sér höndum og fótum bölv-
andi, því þá dreymir að þeir séu
enn að d?epa óvinina. Á meðal
hinna hálfdauðu og dauðu vaða hræ-
dýr merkurinnar sem hafa komið
fram úr fylgnsnum sfnum i myrkr-
inu til að drekka blóðið og rífa í sig
hold mannanna. Þar eru líka
mensk hrædýr sem rífa af þeim alt
fémætt og bera á burt með sér. Mað-
urinn sem dregið hefir konuna sína
á hárinu daginn áður, liggur í
saurnum úti á víðavangi yfirkominn
af áhrifum Bakkusar ogósjálfbjarga;
svínið, skítugasta skepna jarðar-
innar labbar þar fram bjá, en hrín
og drynur við þá sjón og fæltst á
burt. Konan sem hann hafði svarið
órjúfanlega ástareiða og umönnun—
sama konan sem hann barði og
misþyrmdi — situr uppi á heimili
þeirra, marin, blóðrisa og styDjandi
með grátandi ungbarn þeirra í fangi
og leitast við að hugga það, en fær
ekki aðgert því það grætur af sulti.
Manníjöldinn sem hafði elt nábúa
sinn með blóhundum, sefur nú í næði
og dreymir um hugrekki sitt og sig-
ur, en náunginn sem þeir höfðu
eltt liggur hlekkjum bundinn f
svartholi sem honum var kastað I og
kvelst af þeim logandi undum sem
blóðvargarnir særðu hann — varg-
arnir sem nú eru á verði við svar-
holsdyrnar svo hann ekki sleppi.
(Niðurlag næst)
“Frjálsar ástir“ 1
Er að áliti mínu ekki nákvæm þýð-
i ng hjá yður, herra ritstj. Hkr. á orð-
unum “Free love“, iádeilugrein enska
klerksins Neil Herman’s, til íslendinga
í Selkirk. Enskan mun, eftir anda
greinarinnar, eiga að tákna lausung,
ástabrall, fjöllyndi eðaeitthvað þvílíkt.
Ég bendi hér til ritstj.-greinar í Hkr.,
No. 30 þ. á.
Orðin “frjálsar ástir“ eru Ijóm-
anaí falleg. Einhver þau fegurstu sem
finnest í íslenzku máli. Ég ann þeim
og svo mun margur landinn gera. Og
þau þýða heldur ekkert ljótt, eftir ís-
lenzkri málvenju, heldur þvert á móti.
Piltur og stúlka t. d., sem unnast heitt
hreint oginnilega, lifa í frjálsum,skýja-
lausum ástaheimi, sem astamenn, eins
og gamli Breiðfirðingur mundi kalla
“Himnariki á vorri jörð“.2 Og, einmitt
á meðan ástir þeirra eru frjálsar, —með-
an ekkert hindrunarvald snertir þær—
getur ekkert ilt eða óhreint komið ná-
lægt þeim, En svo eru nú aðrar ástir
til—því það er ógrynni af slíkum út-
brotum í hjarta og eðli mannsins — og
köllum vér eina tegund þeirra meinaást
"ást í meinum". Þær ástir getur mað-
ur sagt að séu ófrjálsar, því að þær
stríða gegn flestra þjóða lagaskipun og
á móti siðferðistilfinningu fjöldans.
Það varðar t. d. við lög, að leggja of
mjög ástalag sitt saman við annara
maka, eins og Hkr. segir frá. Svo er
og um persónur, of nánar að skyld-
leika. Þvíumlíkt telst með siðspjöllum,
enda koma þar fram ófrjálsarást-
ir eða ringulreið.
Ég skal svoekki eyða stærra rúmi
til að tala um þetta, jafnvel þó mér
falli mæta vel að ræða um ástir og
ástalíf. Það er eitt hið langskemtileg-
asta og skáldlegasta efni, sem til er í
heiminum. Ég, sem só vona, herra rit-
stjóri, að við verðum á eitt sáttir í
þessu efní og að “frjálsar ástir" verði
báðum okkur geðfeldar.
En, að hinu skal nú heldur víkja,
sem grein yðar gefur efai til: “Laus-
lætis lifnaður sá, sem hneykslað hefir
pristafélagið, og sem þeir saka oss um
sem þjóðflokk, er mjög algengur á ís-
landi. Þaðan höfum vér fengið að arf-
töku þá hugsun, sem hefir leitt oss af-
vega hér vestra. Á íslandi er slíkt al-
gengt og hvorki blöð né yfirvöld hreyfa
við þvi.....“.
Það er satt, ritstj., að á íslandi eru
frjálsar ástir ekkert fágætar. Menn og
konur koma sér alloft saman um að
“aukast og margfaldast11, eins og drott
inn bauð, og það er ekki æfinlega verið
að spyria prestinn eítir hvort það sé nú
layfílegt eða ekki. Þess vegna hafa
margir góðir og gáfaðir landar orðið til
í ‘'frílifis“-meinleysi, Reyndar ákveð-
ur kyrkjan og biblían, sem kyrkjan er
bygð á, svona af og til, að maðurinn
skuli eiga eina eiginkonu og búa
(dúsa) með henni. * Samt sem áður má
finna þess hroðaleg dæmi, í hinni “vísu
bók“, að fjörmenn þurftu fleiri konur.
Dávelmegum vér muna gamlaSalómon
konung; karlinn hafði eitthvað um 1000
konur að moða úr, og var þó vinur
guðs. Davíð var kvennamaður mikill
og fór ekki ætíð aðlögum. Engu að
síður úir og grúir þessi “heilaga ritn-
Ing“ af einlægum heimskulegum, hót-
fyndnis setningum spádómsmaDna, svo
sem: "nær þú lítur eina konu girndar-
auga þáhefir þú allareiðu drýgt hór
með henni í hjarta þínu”. og margt og
margt þessu líkt.
Það væri frekar vandskriðið milli
skers ogbáru ef menn mættu ekki lofa
auganu að hvíla i þægindum"á fagurri
konu, jafnvel hvort heldur hún léki
lausum taum eða væri öðrum fest.
Gegn slíkum prédikunum ætti hver og
einn að fara eftir lögmáli sjálfsviljans.
Að binda sig, hneftum klafa, við
setníngar þeirrar kyruju, sem bygð er á
, afn-harðstjóralegum grundvelli, sýnist
bara óðs manns æði. En þó skal það
sagt, löndum vorum á Fróni til mak
legs heiðurs, að hreinlifi eða skírlífi
þeirra er langtum meiraheldur en bibl-
1. "Ást" set ég fyrir “elsku", sem
er bótstaflega sömu merkingar. Höf.
2. Ástir barna til foreldra og foreldra
til barna, eins systkina ástir eru auð-
vitað allar eðlilegar og frjálsar. Höf.
* Allar greinar kyrkjunnar, sem alt
eru verzlunarpútur, þ.ykjast byggja
boðorð sín á bibliun ti. Og hvað skeður
svo viðvíkjanði hjónabandinu? Lúter-
anar boða einkvæni, kaþólíkar—prest-
arnir—mega e n g a konu eignast, “eða
neina faðma snót”, Mormónar mega
hafa tugi kvenna o. s. frv. Höf.
iuherranna, að fráteknum Jesú af Na-
zaret og ýmsum hans líkum. Þótt að
nokkur börn getist og fæðist án þess
að klerkar kræki foreldrum saman, þá
eru oft mjög afsakanlegar ástæður til
þess. Stundum eru persónurnar svo fá
tækar að sveitastjórnirnar leyfa þeim
ekki að ganga í "heilagt hjónaband",
þótt þau elskist af öllu hjarta. Oft vill
það og til. að foreldrar annarshvors
hlutaðeiganda banna sambandið.en ‘frí-
viljinn vill ekki getast upp, og ber þá
stundum við, að “lausaleikskrakki"
hoppar inn I heiminn þegar minst varir
og—er það engin stórsynd.
En svo er það nú og talsvert skoð-
unarmál hve heiðarlegt þetta svokall-
aða “heilaga hjónaband" er oft og tíð-
um, t. a. m. þegar maður og kvinna
sitja því nær aldrei á sáttshöfði. heldur
er heimilish'fið: agg, reiði, þrætugirni,
barsmíð, ulfúð og ódáða skammir, hver
höndin vinnur á móti annari. Konan
verður eins og norðanstormur og bónda
garmurinn venst á að elska alt annað
en heimilið, svo sem spil, drykkjuskap
ellegar farandfljóð. Því það mega menn
vita. að kifin kona er verri en húsleki,
eins og Salómon segir eða þá Sírak .
En samkvæmt ríkislögunum og kúg-
unarvaldi kyrkjunnar verður þó þetta
husfélag að teljast gott og blessað í sam
anburði við einkasamninga manns og
konu um að búa saman og—margfald-
ast. Hjónabönd munu tæplega slitna
nema því að eins að annaðhvort eða
bæði hafi gert sambúðina banvæna. Þá
er og líka skynsamlegt og sjálfsagt að
leysa upp samningana.að því ógleymdu
að leitast sé við að sjá framtíð af-
kvæma borgið þar sem þau eru til.
Allir meðalvitrir menn sjá að það er
eðlilegt að hinir sundruðu makar leiti
fyrir sér að annari nýrri aðstoð og höf-
um vér þess allmörg dæmi að seinni
gangan, sem oftast erlausvið presta-
pressu, verði langtum liðlegri en hin
fyrri.
Þá er að athuga tvíkvæni, fjölkvæni
eða makaskifti á Fróni. Að þess hátt-
ar eru harla litil brögð og gegnir furðu
að slíkt sé gert að umtalsefni hér vestra
Sem sagt er þettasvo fágætt á íslandi,
að það er talið með stórtíðindum, ef að
ráðskona, ekkja, eða ókvænts búanda
fer að gildna eftir 10—2o ára þjónustu
hja honum. Ég veit að eins eitt dæmi
úr fornsögum, sem sýnir að bændur 2
á Suðurlandi höfðu skifti á jörðum,
bui og gerðu þá kvennabýtti um leið.
En þetta er svo óvanalegt, að önnur
konan varð alveg hissa, svo að hún
gekk út og hengdi sjajfa sig, eins og
Júdas.
gigurður Breiðfirðingur átti, að
vi su, 2 konur í einu, í gáleysi, og urðu
yfírvöldin á íslandi þá svo uppvæg, að
Siggi hefði hlotið flengingu fyrir vikið,
ef eigi hefði Vernharður prestur og aðr-
ir frjálslyndir menn skotið saman fé í
sektina sem koma mátti í stað vandar-
ins
Jörundur íslandskóngur gaf aðeins
einam bónda. Hákoni. leyfi til að taka
sér unga konu, með þeirri fyrri, sem
var töluvert farin að eldast.
Þetta er nu hér um bil alt, sem
hægt er að telja upp af fjölkvæni úr
sögu íslands frá fyrrí árum.
Og um þær mundir sem S. Breið-
fjörð slysaðist í tvíkvæni varar sýslu-
maður, Slg. Pétursson, alvarlega við
fjölkvæni, eins og sjá má af stökunni:
‘‘Hainingjan verndi hvern frá þvi
hér um æfidaga" o. s. frv.
Eg hefi fært dálitlar sannanir fyrir
Því, að yfirvöldin á íslandi hafa ekki
látið afskiftalaust það lítla sem út af
hefir borið með einkvænis-hreinlífið.
En svo vil ég einnig vísa til ' ‘Stóra-
dóms“ og allra hinna ógnarlegu harm-
kvæla, sem hann hlóð að mannskepn-
um þeim, er yfirvöldunum þóttu mis-
stíga sig á siðferðisbrautinni. Bann-
færingar, ;brennur, sektir þungar og
sárustu hýðingar voru iðuleg gjöld,
jafnvel fyrit meinlausustu barneignir.
Kyrkjanog klerkarnir stóðu þá trú-
lega á verði og hentu á lofti hverja ör-
litla yfirsjón í ástamálnm eða lugu upp
kærum og létu miskunarlaust múta sér
til þess að ganga ekki of nærri lífi
manna. Hýðingar i þá daga voru svo
þrælslegar, að lífi og heilsa sakborn-
inga gat verið hin mesta hætta búin.
Meðal annars bendir ein staka, sem ég
kann. á þetta.
“Það á að hýða Þorgrím tröll
þungt og griðarlega.
húðiu níðast at skal öll
auðs- fyrir -hliðar meydómsspjöll.
Sökum þess að íslendingar hafa
frá landnámsdð verið lagaskarfar hinir
mestu og enn fremur gengið ríkt eftir
löghlýðni, þá hefir þjóðin vanist á og