Heimskringla - 06.06.1901, Page 4
HEIMSKRINGLA 6. JÚNÍ 1901.
Winnipes'.
Kvisast heflr að núverandi ritstjóri
Lögbergs verði bráðlega leistur frá því
starfl. Ýmsum þikir hann rita nokkuð
ruddalega og einhliða og fremur spilla
fyrir vinsseldum blaðsins. Þess höfum
vér og heyrt getið að Jónas Sigurðsson
fyrrum prestur í Dakota mun fáanlegur
til að taka ritstjóra stöðuna- Hann
hvað ekki hafa neitt áhveðið starf síðan
hann gerði útreið sína úr söfnuðuaum
þar.
Rafmagnsbeltin góðu fást á skrif-
stofu Heimskringlu; $1,25 hérlendis,
$1,50 til íslands; fyrirfram borguð.
Einar Borgfjörð, bóndi frá Austur-
bygð i Minnesota-nýlendunni var nér á
ferð í síðustu viku með konu sína og 4
börn. Hann setlar að set jast að við
Mary Hill P. 0. I Manitoba og þar
verður framtíðar bústaður hans.—Ein*
ar lét vel af ferðinni að sunnan og lönd-
um sínum þar. Hann biður blað vort
að færa þeim kæra kveðju sina.
Canadian Northern-félagið hefir
auglýst að fargjald með brautum sín-
um hér i fylkinu verði hér eftir 3 cents
á hverja mílu í stað 4 centa á míluna
eins og verið hefir.—Það er fjórðungs
afsláttur frá því sem verið hefir og er
algerlega að þakka járnbrautastefnu
Roblin-stjórnarinnar.
Ódýrust föt eftir máli selur — --
S. SWANSON, Tailor.
512 Haryland St. WINNIPEG.
Þeir herrar Matúsalem Jónsson og
Jónas Kristinnson frá Pembina fór u
alfarnir þaðan með fjölskyldur sínar og
búslóð til Nýja íslands snemma í síð-
ustu viku. Framvegis verður utaná-
skrift {þeirra: Geysir P. O., Man.
Gunnlaugur Gíslason frá Pembina
fór til Nýja íslands í siðastl. viku til
þess að skoða þar land með þeim á-
setningi að setjast þar að, ef honum
lýzt þar vel á.
Jakob Jónsson frá Cavalier, Jón
Björnsson, Eggert Sigurðsson og Ind-
riði Einarsson frá Akra, JónGuðmunds
son og Benedikt Sigurðsson frá Hensel,
N. Dak., komu til bæjarins i síðustu
viku. Þeir voru á ferð til Nýja íslands
í landaskoðunarferð, með þeim tilgangi
að taka sér lönd í Geysirbygð, ef þeim
llzt þar vel á landkosti.
Daginn eftir að Roblinstjórnin aug-
lýsti lækkun flutningsgjalda hér í fylk-
inu með stjórnarbrautinni um 7J%, þá
auglýsti C. P. R félagið lækkun á
flutningsgjöldum á lifandi peningi frá
Manitoba til Montreal 'svo nemur frá
7—lOc. á hver 100 pd. í þyngd grip-
anna. Þetta er fyrsti beinn hagnaður-
inn af járnbrautarstefnu Roblinstjórn-
arinnar, og C. P. Ry.. fær að koma bet-
ur niður með tímanum eins á algeng
um vörum sem gripum. Roblin kann
tökin á rángjöldum brautafélaganna.
Frétt send með hraðskeyti frá
Danmörku segir að 29 menn, karlar og
konur, hafi drukknað af stórum báti
yið Vestmannaeyjar og að óvanalega
mikið sé um drukknanir við strendnr
íslands á þessu ári.
Á sunnudaginn kenur messar séra
Bjarni Þórarinsson í Selkirt.
Næskkomandi sunnudag, kl. 7 að
kvöldinu paedikarSig. Júl. Jóhannes-
í Tjaldbúðarkirkju.
Við síðustu ársfjórðungsmót voru
góðir og gildir meðlimir stúknnnar
Heklu 317. — Stúkusjoður $274.
Embættismenn settir i embætti:
Æ. T. William Anderson;
F.Æ. T. Kr. Stefánsson;
V. T. Agnes Jónsdóttir;
G. M. U. T. Sveinbjðrn Gíslason;
R. P. J. Tomson;
F. R. B. M. Long;
Gjaldk. Mrs B. M. Long;
Kap. Ephimia Thorvaldson;
Drótts. Hólmfriður Olson;
1* V. Árni Jakobson;
U. V. Ásgeir Bjarnason;
Aðst. R. Carl J. Anderson;
Aðst. Dr. Seselja Gottskálksdóttir.
í sumar á að gera tilraun til að
plægja lönd í Manitoba með plógum, er
ganga af gasolineafli, og vænta menn
að það muni ganga vel eítir þeim til-
raunum að dæma, sem gerðar hafa ver-
ið annarstaðar með sama hreyfiafli.
Leikflokkur Good-Templar-stúk-
unnar Skuldar. Eins og auglýst var
nýlega í Hkr. fór Leikflokkur Skuldar
suður í Bandaríkjabygðir íslendinga
fyrir skömmu; sýndi hann íþrótt sína á
Hallson, Garðar og Mountain, tvö
kveld á hverjum stað og var allsstaðar
vel sótt. Flokkurinn lætur ágætlega
yfir ferðinni, hrósar mjög gestrisni og
höfðingskap Landa þar syðra, en hinír
kváðust hafa haft ágæta skemtun af
ieiknum og kvedast vænta þess að fá
oftar likar heimsóknir héðan að norðan.
Mr. H. C. Reikard frá Hallson,
N. D., kom til bæjarins á mánudaginn
var. Hann er á landskoðunarferð hér
nyrðra. 'Mr. Reikard var áður í Bald-
ur, Man., en hefir dvalið syðra á þriðja
ár, en hugsar nú til la..dtöku hér í
Manitoba. Mr Reikard er Þingeying-
ur, kona hans er Ingibjörg, alsystir
húsfrú Helgu Gísladóttir konu Jóns
Björnssonar á Baldur. Mr. Reikard
fer suður aftur til að vinna þar í sum-
ar, eftir að hafa skoðað lönd hér í fylk-
ínu.
Þeir herrar F. K, Sigfússon og Jó-
hannes fóhannsson frá Garðar, N. D.,
Thorl. Jónasson frá MerlP. O. N. D.,
voru hór á ferð í þessari viku.
Allmikið.regn féll hér í fylkinu fyrri
part þessarar viku, og er það talið íull
trygging góðrar uppskeru i haust.
Þeir 5 herrar, sem getið var um í
síðasta blaði að hefðu höfðað mál móti
Manítobastjórninni út af járnbrauta-
samningi hennar, hafa nú séð villu
sinna vega og tekið málið út úr rétti.
Halldór J. Austmann frá íslend-
ingafljóti kom til bæjarins í þessari
viku. Hann segir hátt í Winnipegvatni
og úilit fyrir að það muni flæða yfir
lálendi þar nyrðra; að öðru leyti tíð-
indalaust.
Mesti fjöldi af bændum úr Álfta-
vatns- og Grunnavatns-nýiendum eru
í bænum í þessari viku, allir í verzlun-
arerindum.
O. T. B. Excursion sú. sem átti að
verða ífyrrakveld, gat.ekkiorðið vegna
óveðurs; hún verður bofð á föstudags-
kveldið i þessari viku kl. 8.
Rétt nýlega fengið allar nýjustu og fegurstu tegundir af karlmanna
eg drengja fatnaði.
Svartar og bláar karlamanna yfirfatnaðir naeð ein- eða tvihneptum
vestum. Þessir fatnaðir eru sniðnir og saumaðir af
beztu skröddurum.
Ágætir “'Worsted”, “Serge” og “Tweed”-fatnaðir með ýmsu sniði.
Allar nýjustu og beztu tegundir af yfirfrökkum úr •‘Whipcord”,
“Venice” og “Covert”-dúkum.
Hattar harðir og mjúkir af öllum tegundum.
Skyrtur, hálstau og alt annaðer lítur að karlmannafatnaði.
íslenzkur afhendingamaður í búðinni.
Komið og skoðið. Allar vörur með sanngjörnu verði.
Q. C. Long, - 458 Main St.
Rannsókn sú sem hafin var nýlega
til að komast eftir þvi hvortsamtök séu
meðal pappirsgerðar manna til að halda
uppi verði á pappír, hefir sannað að svo
er. Samningur sá sem bindur alla papp-
irs gerðarmenn í Canada til að selja
ekki undir vi3su verði var lagður fyrir
nefndina. Hann tekur fram að hver
þeirra sem gengðið hafa i félagið, skuli
borga $500 veð i félagssjóðinn, og $600
fyrir hvert brot gegn samningnum, sem
sannað verði á þá. En slík brot eru
innifalin í því að einhver félagslimur
selji pappír með lægra verði en samning-
urinn ákveður.
Prestafélagið í Winnipeg hefir beðið
bæjarstjórnina að útrýma úr bænum
vissum stofnunum, sem um mörg ár
hafa hafzt við á Thomas St. hér vestar-
lega i bænum.
í næsta blaði gefum vér yfirlit yfir
umbætur, sem bæjarstjórnin ætlar að
láta gera hér i sumar. Þá auglýsum
vér og fund til þess að ræða um ís-
lendingadagshald i sumar.
Ef þér óskið algerðrar
ánægju þá ríðið á
Gendron Bicycle.
Það eru reiðhjólin sem þér
getið reitt yður á. Þau eru
gerð úr beztu efuum af beztu
smiðum.
GENDRON reiðhlólin spara
eigendum sínum mikil óþæg-
indi, og þau eru beztu njól-
in á markaðinum.
Tiie Occidental
Bicycle Co.
62931 itin Sf. Phone 430.
P. S. Hæsta verð borgað fyrer brúkuð
hjól, í skiftum fyrir ný hjól. — Vér ger-
um við allar tegundir af reiðhjólum,
sækjum þau heim til fólks og skilum
þeim þangað aftur, hvar sem er i
borginni.
Brúkuð hjól til sölu frá S5.00 og
þar yfir.
Efurmæli.
Pdlína Hólmfrtður T. Pdlsson,
dáin 6. Maí 1901,
innan Hallsonsafnaðar.
Sorglegt er að sjá nú liðna
svona snemma unga mey;
unaðs liljan bjarta, brostin
brúnaljósin glóá ei.
Rauð er fölnuð rósin væna
rósanna um ardags tíð,
jarðlífs meina fyrir froeti
falla vonar blómin þíð.
Odauðleikuns von og vissa
vili og harmi svara nei;
æðra til hún heyrir heimi,
hér því dvelja mátti ei.
Ungrar meyjar æsku blóma
ei hér hindrr sjúknaðs mein.
Sannarlega sæl því lifir
sumar liljan björt og hrein.
Þar sem ljómar ljós og friður
lífsins dafnar sérhver rós,
þangrð mærin fór hin fríða,
foreldranna augna Ijós.
Andans gáfna yndisleiki
æðri, fegri þroska nær;
röddin meyjar sæta syngur.
sem hér var þó blíð og skær.
Heill sé þér i lífsins ljósi,
látna, fagra, unga mey.
Gott var héðan fljótt að fara,
fekk þig heimur vélaðei.
Of góð til að villast varstu,
vonir margar bregðast hér,
Seinna munu á sinum tíma
syrgjendurnir fagna þér.
Mrs. H. D. Jónson.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
: Isrjómi
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
i heildsölu og
smasölu.
Þessi ágæta vöru-
tegund er rétt tilbú-
in úr algerlega ó-
*
X menguðum efnum.
♦ Farið til Boyd’s. *
Anægjuleg matvæli ♦
Almenningur er svo ♦
ánægður með vor ♦
ágætu brauð að all- *
ir hafit þau að um-
talsefni.
W. J. Boyd,
370 og 579 Main Str.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
#
*
#
#
#
#
#
#
#
#
#
*
*
*
#
DREWRY’S
nafnfræga hreinsaða öl
“lí’reyðir eins og kampavín.”
Þett er óáfengur og svalandi sælgætis-
drykkur og einnig hið velþekta
Canadiska Pilsener Lager-öl.
Ágætlega smekkgott og sáínandi í bikarnum
Láðir þ»asir drykkir er seldir í pelaflöskum og sérstaklega ætl-
Jgt aðir til neyzlu í hcimahúsum. — 8 dúsin flðskur fyrir $2.00. Fæst
hjá öllum vin eða ölsölum eða með því að panta það beint frá
REDWOOD BREWERY.
#
#
#
*
EDWARÞ L- DREWRY-
Manuiacturer & Jmporter, WIJjKlPEG.
#
w
#
*
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
*
#
#
#
#
#
#
#
»******»****#*******#####g
##################### #*###
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
f
#
#
#
#
t
I
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
*
*##########*######## ###4##
Areiðanlega það bezta er
Ogilvie’s Mjel.
Sjáið til þess að þér fáið OGILVIE’S.
V Peningar lánaðir gegn lægstu gildandi vöxtum.
^ Hus og lóðir til sölu með vægum tímaborgunum.
^ Eldsabyrgdar umboðsmenn.
J C4RBUTHERS, BROCK & JOHNSTON,
^ CONFEDERATION LlFE BLOCK 471 MaIN St. - WlNNIPEG, MaN.
}
t
t
0
*
*
Army and JVavy
Heildsala og smásala á
tóbaki og vindlum.
Vér höfum þær beztu tóbaks og vindla-
byrgðir sem til eru í þessum bæ, og selj-
um þær ódýrara en aðrir. Enda gerum
vér meiri verzlun en nokkur annar.
Vér óskum eftii viðskiftum yðar.
f. Brown & Co.
541 Main Str.
WimiM Creamery & Proflnce Co.
LIMITED.
S, M. liarre, - - radsniRdnr.
Rmnrllin ! 8endlðriémann yð
oœnuur. 4 eista stærsta
beztstjórnaða smjörgerðarhúsið í Mai
toba. Starfsaukning 400% á 4 árum.
Vér ábyrgjumst að gera viðskíft
menn ánægða.
Fullar upplýsingar fást meðþví ,
ritta til 240 KING ST. WINNIPEG.
THE CRITERION.
Beztv vín og vindlar. Stærsttog bezta
Billiard Hail í bænum. Borðstofa
uppi á loftinu.
John Wilkes,
eigandi
Union Brantl
HEFIR
ÞETTA
MERKI
kaupið
EKKERT
annað
186 Lögregluspæjarinn.
njlri meðaumkun til hennar; hugsar sér að láta
skríða til skara með öllum mögulegum ráðum.
hvort sem þau væru leyfileg eða óleyfileg. Hann
kemst að þvi að keisarasonurinn ætlar heim með
föður sínum undir eins og þegar liðkönnuninni
er lokið og þeir ætla af stað eftir klukkan þrjú.
DeVerneyhefir skilið eftir kerru sína fyrir ut-
an garðinn. Þegar hann kemst að þessu fer
hann þangað; en áleiðinni kemur hann við hjá
ófríðum og nærsýnum drykkjusala. Hann
staulast út og inn og kallar hærra en allir aðrir
og auglýsir vöru sína. “Enginn selur eins gott
og ódýrt sætuþykkni !” kallar hann.
Stúlka nokkur, sem þar var í nánd svarar
honum og segir: “Ég vil ekki sjá sætuþyknið
þitt, gamli hrokkinskinni, en ég skal gefa þér
fimm cent tfyrir fallegu rósína þína !” Þetta
heyrir de Verney. Gamli maðurinn svarar
engu, en hristir aðeins höfuðið.
Stúlkan heldur áfram og segir: “Heldnrðu
virkilega aðþú getir haft þessa rós til þess að
haena að þér stúlkurV þú gamla ljóta greppitrýn-
ið ! Ha, ha, ha ! þú sem hefir verið á kvenna-
veiðum i 20 ár og ekkert orðjð ágengt !” De
Verney fer að athuga nánar þenna mann. Hann
er i gömium fötum, sem hann hefir auðsjáanlega
keypt fyrir lítið verð af Gyðingi, en þau eru
hrein ogsvuntu hefir hann mallahvita. De Ver
ney tekur eftir því að þessi rós er eins lit og jafn
stór þeim þremur rósum, sem voru í felustað
keísarasoDarins. Hann hugsar sér að fara þang-
að aftur. Þegar þar kemur er ein rósin horfin,
að eins tvær eftii og það sér hann að einhverjir
Lögregluspæjarinn. 191
niður hrukkóttu kinnarnar hennar. Hún bregð-
ur svuntuhorninu upp að augum sér, stynur
þungt við hvert andartak og fer nú að bíðja guð
sér til hjálpar. Henni dettur í hug þegar hún
hugsar um slátraiavagninn með bjúgunni að
þrælmennið muui hafa stolið kettinum og ætli
að slátra honum og hafa hann í bjúgu.
“Gættu þess nú að ekki yerði komið að mér
að óvörum”, segir de Verney við Regnier; geng-
ur hratt upp götuna og rakleiðis inn í dyrnar,
sem stéðu opnar.
Gestastofan i húsi Ágústs er alveg eins og
hún var kveldinu áður. Ef bréfin, sem hanu
vantar eru nokkursstaðsr í húsinu, þá hljóta þau
að verá í svefnherbergi Á-úst eðaLouisu. Hann
skundar upp stiga og fer að leita, en tautar fyrir
munni sér: “Þetta er þó laglegt starf og sam-
boðið mér eða hitt þó heidor ! Ja,þvílíkt! Það
er eins og ég sé ræningi eða þjófur!”
Samt heldur hann áfram leit sinni mnð hraða
og nákvæmni eftirtekt. Efra húsloftíð er
þiljað í sundur í tvö , svefnherbergi með gangi á
milli, stórum og rúmgóðum og þarfindahús (Clo-
sets) á báðar hliðar. Hann leitar fyrst í fremra
herberginu. Skilst honum það vera muni *vefn-
hýsi Liebers, því þar eru engir þeir skrautgripir,
sam konur vanalega prýða með dvalastaði sína;
þar eru engir munir, sem geti verið eign stúlku.
að eins’byssur, sverð ag glímuáhöld, kylfor og
fleira, sem aíiraunamenn einir hflfa í vörzlum
sínum. Tvö stór þarfindahús fylgja þessu her-
bergi.
De Verney skoðar ”aL 8em nákvæmast, en
190 Lð^regluspæjarinn.
allan hugann á þvi að leitakisu sinnar. en í því
vagninn kemur beint á móti hú*i hennor heyrir
hún ámátlegt kattarhljóð. er hún þekkir einkar
vel. Hún sér að slátraradrengur heldur á kett-
inum hennar; hún verður bæði glöð og reið; húu
veit ekki hvort hún eigi hemur að skamma
strákinn eins og hund eða þakka honum fyrir
með fögruoi orðum. Hún veit ekki hvort hann
er þrjóturinn, sem hefir stolið kettinum hennar
eða hann hefir fundið Loulu og ætlar nú að
skila honum.
“Hamingjan góða ! Þetta er kötturinn minn
Fáðu mér hann undir eins !” kallar hún á þýzku.
En slátraradrengurinn lætur sem hann skilji
ekki orð kerlingarinnar; rekur upp skellihlátur
og ekur fram hjá henni sem hraðast.
Hún hleypur á eftir vagninum og kallar í
sífellu svo hátt sem röddhennar leyfir. “Fáðu
mér köttinn ! fáðu mérhann undir efns ! Takið
þjdfinn ! stöðvið ræningjann, handsamið fant-
inn !” og svo hreytir hún úr sér nokkrum vel-
völdum blótsyrðum á þýzku til áherzlu og upp-
fyllingar. Hún hafði staðið berhöfðuð og fá-
klædd og hárið stóð ógreitt út í allar áttir og
milliáttir eins og ótal horn. Einu sinni stað-
næmdist vagninn og bíður þangað til hún er
komin að houum, þá róttir hún út hendurnar og
ætlar að taka í þrælmennið. en hann lítur fr»m-
an í hana með strákslegul striðnisglotti og slær
í klárinn, en vesaliegs frú Lieber stendur eftir á
götunni og hefir engin önnur úriæði en aðbclva
Slátraravagniun hverfur úr augs>n, en garcla
konan horfir í áttina; tárin renna títt og ótt
Lögregluspæjarinn, 187
hafa athugað staðinn eftir að hann fór þaðan.
Hann kveikir á eldspítu og fer niður í gryfjuna,
Það logar glatt á eldspítunni og því veit hann að
engin hætta er enn á ferð. Hunn skoðar alt ná-
kvæmlega og sér enga breyting á neinu. Hann
fýsir aðgrenslast frekai eftir drykkjasalanurn
en býzt ekki við að finna hann aftur í mann-
þrönginui. Hann litur á árið sit;, það er hálf-
fjögur. Ef hann á að fylgja þeirri starfskrá,
hann hafði sett sér fyrir. þá varð hann að fara
og hitta Microbe við Passyhliðið, því Svo hafði
hann ráð fyrir gert. Hann hugsar stg unr
stundarkorn, heldur hægri hendinni um ennið
stynur þungan og fer síðau til kerru sinnar og
ætlar til féUga sins. Hann kemur að hliðinu
enþágetur hann ekki anuað en hábölvað, því
nú sést Microbe hvergi og hann hafði þó lofað
statt og stöðugt að vera kominn þangað klukk-
an þrju; nú varhún orðin fjögur og de Verney
verður hræddur um að honum hafi misheppnast
það, sem hann átti að ieysa af hendi. Hann ek-
ur nokkra faðma frá garðiuum, en þá heyrir
hann til Miorobe syngja eða ra ula sömu orðin otr
fyr: *
“Laula, ó, Laula,
litla greyið Laula;
bráðum skal ég, kisu kind,
korna til þín Laula !”
Hann^ sér skamt frá sór dálítinn slátrara-
vagn og Normandy hest fyrir. í vagninum er
ungur slátraradrengur og glottir út fyrir eyru
Þegar de Verney nálgast hann kallar hann og
segir: “Ég hefi náð honum !”