Heimskringla - 19.09.1901, Page 2
HEIMSKKINGLA 19. SEPTEMBER 1901.
Beiiskringla.
PUBLISHED BT
The Heimskringla News & Publishing Go.
Verð blaðsins í Canada og Bandar .91.50
nxn árið (íyrirfram borgað). Sent til
faianda (fyrirfram borgað af kaupenle
nm blaðsins hér) 91.00.
Peningar sendist í P. O. Money Order
Begistered Letter eðaExpress Money
Order, Bankaávisanir 4 aðra banka en í
Winnipeg að eins teknar meðaSöllum.
B. Li. Baldwinson,
TCditor & Manager.
Office : 547 Main Street.
P o. BOX 188».
William McKinley
Forseti Bandaríkjanna andaðist í
Buffalo að morgni þess 14. þ. m.
Hann var fæddar í Niles í Ohio
rfkir.n, þann 29. Janúar 1843. For-
eldrar hans voru William og Nancy
Allison McKinley. Þaa vora af al-
þýðustéttum, hvorki rík né fátæk.
Sonur þeirra fékk mentun sína á al-
þýðuskólanum þar í bænum. Þegar
hann var 15 Ara gamall gekk hann í
söfnuð Methodista þar. Næst gekk
hann á æðriskóla, College, en dvaldi
þar að eins skamma stund og varð
þá skólakennari á barnaskóla þar í
grendinni. Þegar þrælstríðið byrj-
aði milli Norður og Suðurríkjanna,
gekk ungi McKinley í lið með
Norðanmönnum í 23. Ohio-deildinni,
þar sem hann hækkaði í tigninni
þar til hann var orðinn „Major“
deiidarinnar. Að enduðu stríðinu
gekk hann á lögfræðiskóla í bænum
Abanv í N. Y. ríki og útskrifaðist
þaðan 1867 og stundaði síðan lög-
fræði á eigin reikning í Canton í
Ohio. Hann var ekki talinn neinn
ágætis lögmaður, en ræður hans voru
kjarnyrtar, mælskar ogsannfærandi.
Hann tók snemma að gefa sig við
pólitík. Hann var fyrst kosinn í
opiobera stððu sem lögsóknaii fyrir
sýslu þá er hann bjó í, 2 árum síðar
gift.ist haun nngfrö Ida Saxton. 6
árum síðar, þegar Rutheríord B.
Haves sótti um forsetaembættið, þá
höfðu ræður McKinleys svo mikil á-
hrif, að Ohio ríkið, sem að þeim tfma
hafði haft fleirtölu atkvæða fyrir
deraokrata, snerist republican, og
Mr. Hayes náði embætti. Árið 1877
var hann kosinn þingmaður til Con-
gressins í Washington. Hann var
strangur tollverndar rnaður, og hafði
áhrif á þingið í þá átt að halda við
hátollastefnunni, og árið 1890 bar
hann fram og dreif í gegnum þing-
ið hátollafrumvarp það sem við hann
var kent og enn þá eru kölluð „Mc-
Kinley toll-!ögin.“ Ræða hans við
það tækifæri var talin hin ijósasta og
röksemdafylsta ræða sern nokkru
sinni hefði verið flutt um hagfræðis-
leg mál í ríkisþinginu. Næst var
hann kosinn ríkissjóri í Ohio, og
hélt því embætti um 2 kjörtímabil.
Forsetatigninni náði hann haustið
1896, og í fyrrahanst var hann end-
urkosínn í það embætti. Það þykir
trúlegt að honum hefði veitt hægt að
ná forsetakosningunni í þriðja sinn
ef honurn hefði enst aldur til. En
eins víst er það líka að hann hefði
ekki sótt um það embætti eftir að
þetta kjörtímabil væri útrunnið, því
að það virðist vera rfkjandi skoðun í
Bandaríkjunum, að þeir menn sein
hafa setið í forsetaembættinu um tvö
kjörtímabil, ættu ekki að sækja í
þriðja sinn, og McKinley hefði ef-
laust beygt sig undlr þá skoðun
fólksins.
Ytiileitt er það viðurkent að
hann hafi verið gætinn og góðnr
stjórnari, og að á har.s stjórnarárum
haíi Bandaríkin tekið rniklum fiam-
förum og afrekað ýmislegt þsð sem
hefir hatið þau hátt í augum og áliti
stórþjóða heimsins.
Vaxandi auðsafn.
Samsafn auðæfa er ávöxtur af
starfsemi- Þessi setuing er óhrekj-
andi og gildir yflr allan heiminn,
Hver sú þjóð sem skarar fram úr
öðrua. þjóðam í starfserai, fær sín
verðiaun í aukinni uuðlegð og f til-
svarandi þjóðarframför. Það sem
gildir fyrir einstaklinginn, gildir
einnig fyrir þjóðirnar. Hver sá
maður sem stundar jöfnum höndum
starfsemi og sparsemi, hlýtur að
auðgast fram yflr hinn sem minna
vinnur og meiru eyðir, og það mun
oft fara saman að sá sem slær slöku
við vinnabrögðin og eyðir tíma sin-
um til ónýtis hann fellurog í eyðslu-
semi að syo miklu leyti sem efnin
leyfa það, þar sem starfsami maður-
inn heflr engan tíma til þess að eyða
efnum sínum, af því að öllum æfl-
stundum hans er varið til nytsam-
legrar starfsemi. Alt eins er það
með þjóðirnar, sem er sameining
einstaklinga. Þær þjóðir sem iðka
mest starfsemina, þar sem flestir
einstaklingar vinna lengstan tfma
þar er velsæld borgaranna og fram-
för þjóðarinnar—samsafn auðæfa, á
hæsta stigi. En eins og starfstil-
hneiging einstaklinganna er mis-
jöfn, eins er og það með þjóðirnar.
Bandarfkin hafa á síðari áratugum
verið talin starfsamasta og framfara-
mesta þjóð í heimi, og sú þjóðin sem
me8tum auði hefir safnað, og þar
næst Rússar. Þessi staðhæfing hefir
leitt til þess að bókmentamaður einn
i Ameríku, að nafni Charles A. Con-
ant, heflr rannsakað skýrslur ýmsra
landa, og heftr hann komist að þeirri
hiðurstöðn að stórþjóðirnar fylgist
allvel hver með annari í safni auð-
æfa. Til þess að sýna þetta telur
hann sparifjárupphæðir þjóðanna á
bðnkum þeirra fyrir nokkrum árum
og ber það saraan við sparieignirnar
eins og þær eru nú sýndar í skýrsl-
um þjóðanna. Mr. Conant segir:
„Alt sparifé í bönkunum í Evrópu á
árinu 1900 var talið 9 biliónir doll.
En í Bandaríkjunum var það á sama
tíma 2 biliónir og 400 miliónir doll.
Á Bretlandi var spariíéð á bönkum
ríkisins árið 1880 2 biliónir og 600
miliónir doll. En 30 Júní 1900 var
það orðið 4 bil. og 70 mil. doll., eða
sein næst tvöfaldað á 20 árum.
Árið 1875 var sparifé í bönkum
Bandaríkjanna minna en 700 mil.
dall., en árið 1900 var það orðið
meira en 2 bil., hafði sem næ3t' þre
faldast á 25 árum. Á árinu sem
endaði 30. Aprfl 1900, höfðu mynd-
ast 17,752 auðfélög, sem byrjuðu
starf sitt með 8 bil. doll., en það var
helfingí meira fé en þar var í veltu
11 árum fyr. f Þýzkalandi var höf-
uðstóll þeirr félaga sem mynduðust
þar á árinu 1890 að eins 19 mil., en
árið 1900 var höfuðstóllinn orðinn
130 mil. Á Frakklandi er sagan
rojög svipuð. Þar hafa verið ná-
lega eins miklar framfarir eins og
á ÞýzkalaDdi. En Rússar hafa skar-
að framúr í aukinni starfsemi og auð-
iegð, á 6 árum, sem enduðu með ár-
inu 1900, höfðu Rússar lagt 811
mil. doll. í iðnaðarstofnanir, og Japan
jók iðnaðarstofn sinn úr 75 mil. doll.
árið 1894 upp í 218 mil. árið 1897.
Mr. Conant telur auðæfi Bandaríkja-
þjóðarinnar á yflrstandandi tíiua,
sem næst $1,200.00 á hvert nef f
landinn, og telur hann að það sé
fjórfalt meira en fyrir 50 árum. En
hann kemst líka ad þeirri niður-
stöðu að aðrar stórþjóðir hafl aukið
efni sín, sem næst þessum hlutföll-
um á sama límabili. Hann gefur
það sem sína skoðun að þessum
vexti auðiegðar í löndunum haldi
áfram, og að því fé sem afgangs er
heimaþörfnm verði varið til að
byggja upp og bæta ný lönd, sem
ýmisteru nú óþekt eða lítt þekt, og
því "ekki enn þá mentuðu mann-
kyni til nota.
Mentamál á Filips-
eyjnm.
Fred. W. Atkinson, umsjónar-
maður mentainála á Filipseyjum,
heflr sent skýrslu um þau mál nýlega
til Washington, og er svo að sjá á
henni, að verið sé að gera tilraun til
að bola spanska tungu út af eyjun-
um, og koma enskunni ístað hennar,
svo að enskan einungis verði fram-
vegis kend þar í skólunum, og með
tíinanum gerð að þjóðtungu á öllum
eyjaklasanu.m. Herra Atkinson
segir að enska sé nú notuð við undir
búning allra þeirra Filípseyjamanna
sem eiga að stunda kennarastöðu
þar eystra, og að innan 12 mánaða
veiði enska kend á öllum skólum,
en á engum spanska, þótt hún væri
embættislega málið þar alt fram að
byriun stríðsins, en sem að eins var
töluð eða notuð af iitlum hluta þjóð-
arinnar, seui lét sér nægja að tala
sfnar ýmsu þjóðlegu máliskur. Hra.
Atkinson segir vera talsverð vand-
kvæði á rð gera skjóta breytingu á
tungumáli þjóðarinnar. En með
því að kenna að eins ensknna á öll-
um menta8tofnunum landsins, vonar
hann að hún verði orðin að við-
teknu þjóðmáli innan fárra áratuga.
Samkvæmt núgildandi skólalögum
þar eystra, þá er Bandaríkjunum
leyft að útnefna 1,000 kennara og
hafa 781 þeirra verið útnefndir, 487
hermenn sóttu um kennaraMöður en
að eins 79 þeirra stóðust próf: Þessir
79 hafa lagt vopn sín til hliðar, og
byrjað á kenslustörfum. Kennarar
þeir sem valdir hafa verið, eru sagð-
ir gæddir ágætum hæfileikum bæði
að gáfum, siðprýði og mentun.
Þetta verður svo að vera þar sem
þessir 781 sem valdir voru, voru
valdir úr meir en 8,000 manna, sem
sóttu um kennarastöður á eyjunum.
Enda voru þeir einir teknir, sem
höfðu sýnt að þeir höfðu þekkingar-
og kennaraleg skilyrði í fullum
mæli, á meðal þeirra eru sagðir
margir ungir menn sem höfðu ágæt-
ar stöður í Bandaríkjunum áður en
þeir fóru í stríðið.
Mentamáladeildin hefir skift
eyjunum niður í 18 deildir og hefir
hver deild sérstakan mentamála um-
sjónarmann. Einn æðri skóla á að
stofna í hverri deiid á næsta ári, og
kennarafélög eiga að myndast í
hverri deild.
Herra Atkinson segir Filipevja-
fólkið—ungt og gamalt—vera mjög
námfúst. Það flykkist í skólahúsin
þar til hver kennari heflr yíir 100
og alt að 200 manna undir sinni um-
sjá. Skýrslan tekur fram að bygg-
ing hæfilegra skólahúsa se hið mesta
nauðsynjamál, að allar skólabygg-
ingar sem hermenn Bandaríkjanna
hafa tekið til íbúðar ættu tafarlaust
að vera gefln upp, og fengnar í
hendur skólastjórninni. Sömuleiðis
skildi taka öll klausturhús til skóla-
kenslu. Flest skólahús á eyjunum,
segir skýrslan, að hafa að eins 1 til
2 herbergi, svo að fleiri en einn
kennari verði stundum að kenna í
sama herbergi.þessu þurfi að breyta
með því að stækka húsin og gera
þau hæfileg til kenslu. Engin trú-
fræðikensla er leyfð í neinum skóla,
og allar bækur er lúta að þeim mál-
um eru fyrirboðnar í skólnnum. Öll
áherslan er lögð á að auðga anda
fólksins með sönnum fróðleik og
nauðsynlegri mentan, en blind bók-
stafstrú er rekin á dyr. Skýrslan
tekur fram að þessu fyrirkomulagi
sé stranglega fylgt og að engar
mótbárur hafi komið gegn því,
hvorki frá foreldrum, nemendum né
kennurum. Meira að segja er svo
að sjá sem þessi tilhögun hafl verið
samkvæm skoðunum almennings,
því að aðsóknin að skólunum jókst
talsvert eftir að reglur þessar gengu
í gildi, svo að á þeim tíma sem
skýislan er samin var aðsóknin til
skólanna talsvert meiri en hún liafði
nokkurn tíma áður verið í allri sögu
eyjanna.
Hra. Atkinson endar skýrslu
sína með því að segja að það sé
engin þörf á að lögskipa skólagöngu
barna þar á eyjunum, því að fólkið
sé svo sólgið í að læra að það komi
þvingunarlanst. Og hann endar
skýrslu sína með þessum orðum:
„Tagalo börn, bæði piltar og stúlkur,
eru bráðþroskuðustu börn sem ég
hef séð, mjög skyn3öm og ástund un-
arsöm og framurskarandi siðprúð“.
Jakob Oddson og-
uMutnal Reserve.“
Aldrei fiutti frómari sál tií
þessa lands en hei ra Jakob Oddson,
sem býr skamt fyrir norðan Gimli f
Nýja Islandi, og enginn gat verið
grunlausari um annara hrekkvfsi en
hann, enda var hann í tölu þeirra
sem trúðu um of, og sér til stór
skaða fagurgalanum, sem fyrir 10
árum og meira, var básúnaður um
félag þetta í riti og ræðu. Svo gekk
Jakob í félagið og voru þá iðgjöld
hans innan við $40.00 á ári. En í
stað þess að standr í stað eins og
lofað hafði verið, þá voru þau smám-
saman hækkuð þar til þau voru
koinin upp í yflr $80.00 á ári. En
samt voru iðgjöldin borguð þvf að
maðurinn var orðinn gamall og þótti
leitt að fyrirgera ábyrgð sinni í fé-
laginu, ef ske kynni að hann dæi á
undan því. Eftir 10 ára veru í fél.
og um $600.00 borgun 1 sjóð þess,
fékk hann svo fyrir skömmu ofur-
litla aukakröfu upp á $283.00 og
aðra fyrir $13.00. Þetta átti hann
að borga tafar- og umyrðalaust, en
var þó boðið að láta leggja það sem
skuld móti ábyrgðarupphæðinni, og
átti hann að borga 5% árlega vöxtu
af þessari upphæð. Það er óþarfi
að taka það fram hér, að þessí mað-
ur heflr nú farið úr félaginu og tap-
að allri ábyrgð sinni í því eftir 10
ára borganir í félagssjóðinn, sem
netnur að upphæð um 600 dali.
Vér getum getið þess í þessu
sambaudi að dómari einn sagðí í
fyrra, út af máli sem haflð var fyrir
honum mót Mutual Reserve félaginu,
að sér virtist stjómendur þess félags
í New York vera frekar fantar en
heimskingjar, eftir þeim npplýsing-
um að dæma, sem fram komu í því
máli. Réttarrannsóknin og dóms-
ákvæðið er birt í síðustu ársskýrslu
frá ábvrgðardeild Ottawastjórnar
fyrir árið 1900. Má vera vér getum
hennar síðar-
Ríkisháskólinn í Norður
Dakota.
Ritst. Heimskringlu:—
Kitt af þvl sem hvað mest hvatti
vora íslenzku feður til þess að flytja
frá ætijörð sinni og taka á sig þá
örðugleika — að ótöldum kostnaði
sem flutningi heimsáifa á milli eru
jafnan samfara — að flytja sig til
þessa lands og reisa hér bygð, var
án efa meðvitundin um það, að hér
mætti bjargast betur en á ættjörðinni
og að framtíð vor, barnanua þeirra,
væri betur trygð hér vestra heldur
en ef þeir hefðu setið kyrrir heima á
Islandi. Þess vegna tóku þeir á sig
það umstang, kostnað og andstreymi
að flytja til þessa lands, og heija
hér hermannlega baráttu fyrir til-
verunni. í þessari baráttn hafa
þeir unnið frægan sigur. Hvers
vegna hafa þeir unnið sigur? Vegna
þess að þeir hafa án efa verið gædd-
ir meira stai fsþoli, meiri hagsýni og
meiri vitsmunum en nokkur þeirra
þjóðflokka sem þeir hafa att kapps
við í þessari heimsálfu, og það, þrátt
fyrir að alt var þeim hér nýtt og ó-
kunnugt og að flestu leyti mjög frá
brugðið því er þeir höfðu vanist í
ættlandsátthögum sínum. En ein-
mitt þessi nýbreytni kendi þeim
þann sannleika, að aukiu þekking
og vaxandi mentun væru skilyrðin
fyrir framtíðar hagsæld þeirra og
vor, baruanna þeirra. Samkvæmt
þessari ályktnn hafa þeir starfað, og
afleiðingin er auðsæ í því að hin
fyrsta kynslóð íslendinga í Amer-
íkn heflr náð meiri og varanlegri
framförum, heldur en fyrsta kynslóð-
in af nokkrum útlenzkuin þjóðflokki
sem flutt heflr til þessa lands—Ame-
ríku. En nú er hin önnur kynslóð
vor þegar að koma til sögunnar og
það er á þeim sem skyldan hvílir að
sýna og sanna hve sannlega glögg-
skygnir feður vorir voru, þegar þeir
heima á ættlandi sínu skygndnst út
í framtíðina og sáu f anda hverjir
framtíðarmögnleikar biðu vor, af-
komenda þeirra hér vestra. En þetta
tekst oss að sanna komandi kynslóð-
um að eins með því cióti að vér
færum oss sem bezt í nyt öll þau
menta skilyrði sem hér eru lögð að
fótum Vorum og oss boðið að njóta.
Það er helg skylda vor að heiðra
vitsmnni, framsýni, atorkn og minn-
ingu íeðra vorra með því að taka
fegins hendi mót allri þeirri upp
lýsing sem ókeypi3 er að oss rétt hér
vestra. Sjálíra vor vegna verðum
vér einnig að hafa vakandi auga
fyrir nauðsyninni á því að keppa
við hérlenda meðborgara í öllum
greinum mentunar og aukinnar upp
fræðslu og þekkingar, ef vér eigum
að geta unniö í kapphlaupinu. Því
vér getum átt það algerlega víst að
hver s’i sem bezt er búinn hndir lifs-
baráttuna er viss að bera sigur úr
býium og það er vor eigin ófyrir-
gefanleg sök eí vér verðum eftirbát
ar annara meðborgara í landinu.
Jafnvel f landbúnaði, sem íyrr á ár-
um var talinn með einföldustn og
óvönduðustu atvinnugreinum, er
mentuu og þekking nauðsynleg og
ómissandi til þess að tryggja bónd-
anum sem mestan arð aí landi hans.
Foreldrar verða að gæta þess
að með vaxandi alþýðu, æðri skóla
og háskólamentun þá geta börn
þeirra ekkl vonað að vinna sigur
í lifsbaráttunni, með samkepni ann-
ara meðborgara, nema þau fái að
njóta meiri og hagfeldari mentunar
en foreldrarnir áttu kost á að njóta í
ungdæmi sínu. Þau eru þess vegna
til neydd, eins og þau eru líka sið-
ferðislega skyldug til að veita nú
börnum sínum öll þau mentatæki
sem kostur er á og nauðsynleg ern
til þess að etja sigursælu kappi við
samtíðar meðborgara þeirra. Með
þessu eina móti er oss mögulegt að
uppfylla hugsjónir feðra vorra og
forfeðra.
Með þessar hugsanir syrir aug-
um mínum dettur mér í hug að það
gæti verið bæði gagnlegt og fræð-
andi fyrir lesendur Heimskringlu að
frétta eitthvað um Ríkisháskólann í
Norður Dakota, sem er án als efa sú
fullkomnasta mentastofnun í því ríki,
og er þess utan hinn ódýrasti skóli,
og þess vegna sá, sem ég álít að
Norður Dakota Islendingar ættu
helzt að sækja. Háskóli þessi tók
fyrst til kenslustarfa árið 1884. Hann
hafði verið löggiltur undir héraðslög-
unum gömlu, en þegar Norður
Dakota var veitt inntaka í ríkjatöl-
una þá varð hann ríkisháskóli, og
fékk þá landstyrk frá ríkinu sem
nam 106,080 ekrnm. í fyrstu átti
skóli þessi að eins 1 hús og hafði 4
kennara og 30 nemendur. Nú á
skólinn 5 vandaðar stórar múrsteins-
hygrgitigar, og heflr 24 kennara, án
þeirra sem kenna í lögfræðisdeild-
inni, og á síðasta ári voru þar 298
nemendur. 4 af byggingum skól-
ans eru fjórloftaðar, og allar. eru
þær hitaðar með gufuhita og lýstar
með rafljósum, sem hvortveggja er
framleitt í sérstöku húsi, frá skildu
hinum öðrum byggingum skólans.
Allar hafa þessar byggingar ágæt
loftskiftingafæri (ventiiation) og ann-
an nýjasta útbúnað til þæginda,
hreiniætis og heilsubótar. 3 af hús-
unum eru svefn- og matarstofur,
og býr einn eða fleiri af prófessorum
skólans í hverri þeirra ásamt nem-
endunum. í einni byggingunni býr
aðal yfirmaður skólans og heflr þar
skrifstofur sínar. Þar eru og kenslu-
stofur, leik- og líkamsæfingasalir
og bókasafn skólans, sem heflr 7,000
bækur. Fimta byggin;-,in var bygð
í sumar og ern þar kend vísindi, og
er húsið bygt með sérstðku tilliti til
þeírrar vísindalegu kenslu sem þar
fer fram, og er hún talin bezta og
fullkomnasta bygging af sinni teg-
und sem nú er til í norðvesturríkjun-
um. I þessu húsi er og gripasafnið
sem heflr að geyma verðmætustu og
beztu sýnishorn í líffærafræði, dýra-
fræði og steinafræði.sem lil er í
ríkinn.
Háskólanum er stjórnað af full-
trúanefnd, sem sett er til þess starfa
af ríkisstjóranum með samþykki
senatsins. Embættistími hyers
þeirra er 4 ár, og skólinn heflr verið
sérstaklega heppinn í því að þeir
menn, sem kosnir hafa verið í for-
stöðunefndina, hafa verið hver öðr-
um frjálslyndari og framfarasamari,
sem tekið hafa persóulegan þátt í að
vinna. að vexti og fullkomnun skói-
ans. Og kennarar hafa verið valdir
með mikilli varkárni og með sér-
stöku tilliti til bekkingar þeirra og
kensluhæflleikö. Þeir eru allir menn
sem hafa útskiifast frá einhverjum
af eftirtöldum ágætis háskólum:
Yale, Harword, Brown, Oxford
(England), Dartmouth, West Point
eða frá háskólunum í Chicago, Min-
nesota eða Wisconsin. KeDnarinn í
lögfræðisdeildinni er hinn velþckti
Guy C. H. Corliss, fvrrum yflr-
dómari í hæstaréttardóm.-itólunui)i í
Norður Dakota, og rueðal hjáipar-
kennara hans í þessari deild eru hin-
ir frægu glæpamálaiðgfræðingar,
dómari John Cochrane, Hon- Tracy
R. Bansq og okkar gáfaði landi
Barði G . Skúlason.
Fram að þessum tíma hafa sjö
sérstakar fræðideildir verið stofn-
settar við skóla þenna, sem sé: Vís-
indadeildin (Coliege of Art) þar eru
kend tungumál, bókmentir, heim-
speki og vísindi. Ivennaraskólinn,
lagaskólinn, jarðfiæðiskóiinn, vél-
fræðiskólinn, lierfræðiskólinn, veizl-
unarfræðiskólinri, eru allir undir
umsjón kennara sem hafa gert síuar
sérstöku kenslu fiæðigreinar að æfi-
starfi sína. Það er ákveðið að ís-
lenzka sé kend sem eitt af tungumál-
um skólans í vísindadeildinni, en að
þessum tíma heflr islenzkur kenn-
ari ekki verið fáaulegur, en
í vor er leið var séra John
Tingelstad valinn til að kenna
þýzku og scandinavisk mál og bók-
mentir. Hann ætlar að dvelja í
haust og vetur á íslandi og Noregi
og kynna sér mál og sögu og bók-
mentir þessara þjóða. Þetta er auð-
vitað ekki eins ákjósanlegt eins og
ef íslendingur hefði fengið stöðuna,
en þó ættu að geta verið talsverð
hjálp í því, þar eð séra Tingelstad
er talinu gáfu- og hæflleika maður.
Kensla í öllum deildum skólans, að
iögfræðisdeildinni einni undantek-
innn, er frí, en fæða og herbergi á
háskólanum kostar $3.25 um vikuna,
en inni i bænum kostar það frá $2.50
og þar yfir. Annar kostnaður hér
þarf ekki að vera tilfinnanlegur, og
það er talið að $136.75 sé nægileg
árs útgjalda upphæð. Þenna kostnað
má færa niður með því að tveir nem-
endur eða fleiri slái sér saman og
fæði sig 4 eigin reikning. Sá er rit-
ar bréf þettfj, var í meira en .lálft
ár f slíku samfélagi við aðra pilta og
kostaði þá fæði hans að eins $1.50
um hverja viku, og var þá allur árs-
kostnaðurinn eitt hundrað
d o 11 . Þessi staðhæfing er ekki
bvgð á neinum draumórum, heldur
á persónnlegri reynslu minni og
þekkingu á reynslu annara, og
skynsamir og ástundunarsamir nem-
endur geta fengið vinnu til þess að
borga part af þessutn kostnaði, ef
þeim finst þess þörf. Þrír nemend-
ur eru bjálparmenn í starfsfræði-
deildunum, og tveir við bókasatnið.
Póststjórinn og hjálparmenn bans
eru einnig nemendur og bréf og
póstsendingaberi er líka einhver
af nemendunum. Þess utan er
gæsluvinna við skólann Og borð-
stofuvinna og margt fleira.
Hór er það ekki skoðuð nein niður-
læging að vinna líkanlega vinnu,
heldur þvert á móti heiður fyrir þá
er það gera til þess að hjálpa sjálf-
um sér áfram gegnum háskólann.
Islendingar hafa að undanförnu
staðið f flestum af ofangreindum
stöðum. Þe'r éru virtlr vel af
kennurunum og oft látnir sitja í fyr-
irrúmi fyrir öðrum.
Áður en ég lýk við bréf þetta
má ég til að minnast þess öfunds-
verða álits sem íslendingar hafa
komist í á háskólanum. Enginn
annar þjóðflokkur er jafnmikils
virtur af kennurunum og stjórnend-
um hans, eða nemendum yfirleitt.
Þeir eru ástundunarsamir og nám-
fúsir og greindir, og þeir eru að
jafnaði á nndan öðrum nemendum,
ekki að eins í skólabekkjum sínum,
heldur og líka í almennum bókment-
um og í líkamsæfingum. Það má
segja að þeir beri líkamlegan og
andlegan ægishjálm yflr alla sam-
keppendur í skóla. Barði G. Skúla-
son* er viðurkcndur mesti mælsku-
skörungur sem útskrifast heflr úr
háskólanum síðan hann var stofnað-
ur, og bæði nemendur og kennarar
líta til hans með virðingu og minu-
ast hans með stærilæti. G. F. Jóns-
son** er talinn að hafa skarpari og
dýprl hugsun og vera betri náms
maður en nokkur annar hefir verið
hér við háskólann. S. G. Skúlason,
bróðir Barða, er talinn ieikflrnasti
maður sem í skólann hofir komið.
Hann útskrifaðist í vor úr College-
deildinni, og við það var stórt skarð
höggið f bókmenta, leikfimis og fé-
lagslíf ísl. námsmanna hér. Pétur
G. Jónsson var foringi kappræðenda
í lagadeildinni, þeirra er unnu há-
skóiaverðlanin í ár. Hann er sér-
staklega Ijós og áhrifamikill mælsku
ræðumaður og hcflr iag á þvf að
reka alla mótmælendur sfna í vörð-
urnar, jafnvel þó hann taki að sér
þá hlið málsins sem alment er skoð-
uð veikari hiiðin. Þessi maður
ásamt með Páli Haidórssyni, útskrif-
aðist úr iögfræðisdeildinni í vor er
leið, og mér er sagt að þeir ætli að
mynda félagsskap og stunda lög-
fræði að Milton N. Dakota. Þar fá
Islendingar lögfræðinga sem þeir
*) Barði G. Skúlason og bróðir hans
Skúli G.Skúlason.eru synir Guðmundar
Skúlasonar er síðast bjó A Reykjavöll-
un: í Skagaflrði.
**) G. F. Jónsson er ættaðor úr Mid-
firði í Húnavatnssýslu, og gengur á
læknaskóla í Minneapolis, Minnesota.
Ritst.