Heimskringla - 17.04.1902, Side 1
J K A TTPTr> ^ J
j Heimskring/u. J
J BORGIÐ
J Heimskring/u. j
. •
XVI. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA 17. APRÍL 1902.
Nr. 27.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
26. Júní næstk. verður haldinn
almenmir frfdagur f Canadá í til-
etni af krýningu Edwards Breta
konungs, sem fer fram pann dag.
Leo páfi ætlar að senda nefnd
manna, aðra til þess fyrir sfna
hönd að vera við krýningu Breta
konungs og hina til að vera við
krýningu Alfons, komandi kon-
ungs á Spáni.
Auðmannafélag í Bandafíkjun-
um hefir beðið C. P. R.-fél. um
grunnlóðir með fram brautum sín-
um hér í fylkinu, til að byggja 60
til 75 hveitigeymsluhlöður á kom-
andi sumri. Sýnir f>ett.a bezt hve
mikið álit Bandaríkjamenn hafa á
Manitoba.
Skipagöngur frá Port Arthur til
austurhafna byrjuðu 10. þ, m.
Brautimar flytja nú alt það hveiti,
sem þeim býðst héðan úr fylkinu
til austurhafna.
Dr. Wiil. Talmage, prestur f
Brooklyn, andaðistí Washington á
laugardaginn var. Talmage var
talinn einn af mestu ræðuskörung-
um Bandaríkjanna.
Prof. Miller í Detroit var dæmd-
ur til lífláts á laugardaginn var,
fyrir að myrða ungfrú Jennett, er
var hjákona hans.
Sagt er að Gen. Mil.es sé kominn
í svo mikla ónáð hjá Washington-
stjóminni, að hann muni verða
til neyddur að segja af sér embætti
innan skams tíma.
Philip D. Armour. gripakaup-
maðurinn mikli, sem andaðist í
Chicago í fyrra. skildi eftir sig eign
ir, sem enginn þá vissi hve miklar
vom. Nú er auglýst að þær hafi
verið $14.751,105, og að auki nokk-
uð aí fasteignum í Illinois og öðr-
um ríkjurn; sonur hanns og ekkja
fá alt féð.
Bandarfkjastjóminni var nýlega
bent á, af málsmetandi embættis-
manni hennar, að Bretar væru
búnir að setja upp herbúðir f bæn-
um Lathrop, Mo„ og var skorað á
stjórnina að láta rannsaka ]>að mál
Gov. Dockery kvað ekkert mark-
vert við þessa uppgötvun, f>ví að
Lathrop hafi verið mesti hesta-
markaður heimsins í síðastl. 10 ár.
Bretar ættu J>ar 1800 ekrur af landi
oghefðu par að auki leigt 8000
ekrur sem bithaga fyrir hesta þá
og múlasna. sem þeir hefðu keypt
í Öhio, Texas, Arizona, Colorado
Iowa og Missourj sfðasta ár. Hann
kvað 70,000 hesta hafa verið senda
frá Lathrop til Suður-Afrfku á sfð
astl. ári, og 6000 biðu nú eftir skip
um til að taka þá yfirhafið; kvað
hann Ifklegt að 150,000 hestar
yrðu sendir fyrir næsta nýár. Bret-
ar hefðu borgað $250,000 á sfðastl.
ári fyrir hey og íóðurbætir fyrir
þessa hesta, og það væri góð og
arðsöm verzlun fyrir bændur í
Bandaríkjunum. Þeir borga vinnu-
mönnum sínum frá 3 til 4 dollers á
dag í laun.
Loftfari Santos Dumont er í
New York um þessar mundir. í
samtali við blaðamann þar kveðst
hann vera þess viss, að sér entist
aldur til að lfta J>ann dag, að fólk
og farangur yrði fiutt f loftföram
yfir Atlantshaf milli Ameríku og
Englands.
Óttawa-bær hefir samþykt að
eiga framvegis sitt eigið tal]>ráða-
kerfi—Winnipeg ætti að gera eins.
Hjón í New Ytirk hafa verið sett
í fangelsi fyrir illa meðferð á 10 ára
gömlum syni sínum, sem var krypl-
ingur. Hann hafði brotið rúðu,
sem faðirinn varð að borga 10 cent
fyrir. Svo tók hann drenginn og
batt hann í járnkeðju, sem negld
var niður í gólfið. Þar var hann
látin liggja í meira en viku rúm-
fatalaus og sveltandi, en járn-
hlekkjakeðjurnar höfðu étið sig
innf hold á fótleggjum drengsins.
Lögregluþjónn, sem gekk fram hjá
húsinu, heyrði hljóð drengsins, er
þá var nær dauða en lifi, og leysti
hann og tók með sér til lijúkrunar.
Bretar og Þjóðverjar hafa sent
2 herskip hvorir til Kfna, til J>ess
að bæla Þar n/tt upphlaup gegn
útlendingum, sem nýlega var hafið
1 Chi Kiaug-fylki.
Sósfalistar hafa gert upphlaup
mikið f Brussel í Belgfu móti kaj>-
ólskum mönnum þar. Herlið og
lögregla með dregin sverð, hafa
verið send til að sundra upphlaups
mönnum. 100 eru særðir og falln
ir. Sósfalistar hafa vopnast á móti
herliðinu og lögreglunni.
Ósamlýndi milli Sviss og Ítalíu
er komið upp út af þvl, að anark:
ista-blað f Sviss hafði farið óvirðu
legum orðum nm Humbert sál.
ítalfukonung. ítalir heimtuðu aft-
urkall orðanna, en Svissastióm
neitaði að hafa nokkur afskifti af
málinu.
Ottawastjómin hefir ákveðið að
auka herafla Canada úr 35,000
ma.nns, sem nú er, f 100,000 manns.
Þessi 100,000 manna eiga að vera
landvarnarher og halda uppi stöð-
ugum æfingnm á ári hverju,
C. P. R.-fél. hefir samið um bygg
ingu á auka komgeymsluhlöðum í
Port Artliur, svo að hlöður félags-
ins rúmi als 10 millfónir bushels.
Sem stendur rúma J>ær 5 millíónir
busli.
Öll J>au félög á Bretlandi, sem
búa til jámbrautavagna, hafa
myndað eina íélagsheild með millf-
ón punda höfuðstól.
Verzlun Breta við umheiminn
var í sfðastl. mánuði 40 millíónir
dollar minni en í Marz í fyrra.
Cuba hefirhætt við kviðdóma í
sakamálum. Kviðdómar hafa ver-
ið viðteknir J>ar í eyjunni sfðan ár-
ið 1900, en reynzlan heflr sýnt að
það er nálega ómögulegt að sak-
fella glæpamenn, með því að láta
kviðdóma skera úr málum.
22 háskólastúdentar hafa verið
gerðir landrækir úr Prússlandi.
Þeir vom frá Póllandi, en ekki er
getið um að nein sök hafi legið á
J>eim önnur en þjóðemið.
Bæjarstjórnin í Toronto hefir
samj>ykt að borga verkamönnum
bæjarins 20c. um tímann framveg-
is-
Bandaríkjaþingið hetír samj>ykt
bann gegn innflutningi Kfna 1
landið.
C. P. R.-fél. heflr keypt Ottuwa
Western & Northem járnbrautina
í Ontario. Verð $4,000,000.
C. W. Peterson undirráðgjafi
akuryrkjumála N, W. T., heldur
að 290 ]>ús. manns muni flytja inn
í Norðvesturhéruðin á þessu ári.
Hann^egir að Mormónarfrá Utah,
sem sezt hafa að f Norðvesturhér-
uðunum séu á fögru framfaraskeiði.
Einn þeirra er Mr. Knight, millí-
óna-eigandi, hefir varið hálfri mill-
fón dollara til þess að rækta sykur-
rófur þar vestra, Einnig hefir
hann keypt og flutt þangað vestur
45,(XX) sauðfjár. Hann leggur alla
peninga sfna í þarfleg fyrirtæki til
þess að efla iðnað f hémðunum og
segir ráðgjafinn það muni hafa
hinar beztu afleiðingar fyrir inn-
flutninga fólks inn í héruðin.
Bæjarstjómin f Dawson City
hefir samþykt að borga bæjarstjór-
anum þar $4000 árleg laun og hverj
um bæjarfulltrúa $2000 á ári fyrir
störf þeirra í þarfir bæjarins.
Leopold Belgíukonungur átti í
vök að verjast fyrir hóp af Sósfa-
listum í Brussels þann 7. þ. m., er
söfnuðust utan um kerru konungs
og létu all-ófriðlega. Konungur
slapp þó ómeiddur og hrósaði
happi.
Mark Twain—(Samuel Clemens)
sem fyrir nokkmm árum tapaði al-
eigu sinni, á annað hundrað þús.
dollars, við gjaldþrot bókaútgáfu-
félags, sem liann var riðin við, hef-
ir nú svo náð sér aftur að hann
keypti nylega húseign mikla í New
York fyrir nær 50,000 dollars.
Fylkisstjórnin hefir borgað þá
þúsund dollars, sem hún lofaði fyr-
ir að ná Gordon og fá hann dæmd-
an sekan. Serg. Sears frá Fort
Meade í Bandaríkjum, sem var að-
alvitni móti Gordon, fekk $750,
hitt gekk til manns þess í Halifax,
sem fekk Gordon tekin fastan þar.
Gordon játaði það fyrir Sears í
fangelsinu í Brandon, að hann
hefði ásett sér að drepa hann. til
þess að vera viss um að hann bæri
ekki vitni á móti sér. En hann
fekk aldrei færi til þess.
Fyrir nokkmm vikum tóku Bret
ar einn af herforingjum Búa til
fanga, Krit?inger að nafni. Hann
var kærður fyrir herrétti Breta um
4 morð og að hafa eyðilagt járn-
brautarlest. Nú hefir herréttur-
inn syknað Kritzinger af þessum
kæram, en heldurhonum samt sem
fanga, en íer að öðm leyti vel með
hann.
Gas hefir fundízt í eyju f Saskat-
chewan-ánni, um 90 mtlur vestur
fráMooseJaw. Kol hafa einnig
fundist þar í grendinni.
Verkfall var gert í Kings Mills
í Georgia, 7. þ. m. Verkstæðar
eigendur i bænum tóku sig þá sam-
an um að hætta vinnu á öUum
verkstæðum í bænum um óákveð-
inn tíma. 10,000 menn tapa þann-
ig stöðugri atvinnu.
SWAN RIVER 1. Apríl 1902,
Héðan er alt liærilegt að fri'tta
löndum líður hér að vonum vel,
Sumir em komnir vel á veg með
hveitirækt, og allflestir miuiu liafa
beztu vonir um þetta pláss að það
verði með tímanum með betri
plá8sum í Manitoba. Sögunar-
millur hafa gengið hér í vetur og
hafa landar flestir að meira og
minna leyti haft þeirra góð not.—
Heilsufar fólks heldur gott, enginn
dáið hér af löndum.—Veðrátta hefir
verið þenna vetur hin yndælasta,
enginn snjóstormur og frost vægt,
en til baga var snjólaust hér f vet-
ur.
íslands-fréttir.
Nýkomin Fjallkooan segir afla-
brögð á Miðnesi ágæt um mið.)an
Eebrúar, en fiskurinn langt undan
landi—Tíðarfar ásuðurlandi ágætt
20. Febr., jörð alauð, hiti (í stig C.
Enn fremur segir blaðið að tanga-
veiki, baruaveiki og einhver önnur
mannskæð veiki hafi verið á Akur-
eyri er sí*ast fréttíst.—Fyrirlestur
hélt St. B. Jónsson í Reyrkjavík um
ísland og Ameríku, lét vel yfir fram
faraskilyrðum íslands og bar ekki
neitt hól á Ameriku.—Bjarni Magn-
ússon í Ósgerði í Ölfusi réði sér bana
í leysingarvatnslóni skamt frá bæn.
um, enga orsök vita menn til þessa,
—IJti urðu 10. Jan. Guðmundur
Tómasson frá Skeggjastöðum f Mið-
firði og Bessi frá Nýjabæ á Langa-
nesströndum og Óiafur Hinriksson
frá Örriðavatni f Fellum. — Ilerra
Krud Zimsen, sá er ferðast hettr um
Danraörk, Noreg. Sviþjóð og ísland
til þess að kynna sér skiiyrðin fyrir
því hvort klæðaverksmiðja geti þrif-
istáíslandi, hefir'samið skýrslu um
ferðir sínar og rannsóknir og eru
þær nú prentaðar og útbýtt meðal
manna á íslandi. Alþingi lagði
5000 krónur til þessa ferða'ags og
til að prenta skýrslu herra Zimsens.
Niðurstaða sú er hann komst að er
sú að ráðlegastmuni að byrja með
að reisa eina smá klæðaverksmiðju á
Seyðisflrði og að stofnanin full-
gerð muni kosta 150,000 krónur.
Telur hann vfst að fyrirtækið muni
reynast arðberandi.—Húsið Glasgow
f Reykjavík selt Þorvaldi Björnssyni
á Þorvaldseyri fyrir 25,000 krónur.
— Frú Guðrún Björnsdóttir frá
Sauðanesi orðin forstöðukona við
Lauganesspítalann. Kristófer Jóns-
son frá Fremri-Langey f Dalasýslu
og Helgi Helgason af Akranesi tóku
út af þilskipi og drukknuðu.—Veiði
á þilskipum sunnanlands fremur góð
sem höfðu fengið altað 4000 í byrj
un Marzmánaðar.
Þjóðviljinn 11, Marz sfðastl.
segir 80 þilskip hafi lagt út frá
Reykjavík og nærsveitum þá daga.
—Nýtt bindindisblað er byrjað að
koma út á Seyðisfirði. Það heftir
'‘Hvöt“, og er Jón læknir Jónsson á
Vopnafirði ritstjóri þess. — Hafís
sagður allmikill við norður- og aust
urland og einnig nokkur hroði á
Vestfjörðum. Kolaskip, sem fara
átii til Isafjarðarfjarðar varð að snúa
aftur vegna íss. Fiskafli sagður
góður við ísafjarðardjúp. 10—16 kr,
hlutur suma daga. — Ólína Vigfús
son, ekkja Sigurðar sál. fornfræðings
andaðist í Reykjavík 1. Marz.
BRÉFKAFLI úr höfuðstaðnum.
--------Reykvíkingar eru ekki á
bláhjarni staddir um þessar mundir,
að því er snertir fóður handa sálum
sfnum. Hér er messað tvisvar á
hverjum sunnudegi og einu sinni á
hverjum miðvikudegi. Mesta at-
hygli vekur það hér f bænum, að
“innri-missionin" alræmda er að
stinga sér hér niður, með logbröud
um sínum og ógnunum og báli hel-
vítis. Heíir hún gert hingað út er-
indreka, er reka erindi sitt allfrunta-
lega. Sígbjörn nokkur Ásvaldur
Gíslason dvaidi f Danmörku í fyrra
vetur og nam þar ófreskisgáfu Becks
heitins og annara helvítis-“agenta“.
Friðrik Friðriksson er öflugur fylgis
maður hans. Hann kvað einkum
hugsa um að fræða unglingana um
“kvalanna stað“ og mun þannig
bezt þykjast veita þeim kjarngott
sálarfóður. Þriðja' “persónan" í
þessari fríðu sveit, er Ólafía Jóhanns
dóttir, sem er hin ákafasta.
Ástvaldur þykir ganga einna
vasklegast frara. Hann sér djöful-
inn og sveit hans á hverri bunda-
þúfu og hverju götuhorni. Hann er
líka gagnkunnugur þar neðra, svo
að menn skyldu ætla að hann hefði
dvalið þar langvistum. Eitt sinn
hélt þriggjamanna ráð þetta sam-
komu i húsi Good-templara. Um það
bil er slfta skyldi samkomunni,
kvaddi Ástvaldur sér hljóðs. Skýrir
hann þá lýðnum frá því, að hann
hafi séð hörmungasjón í dag. Hann
kvaðst hata séð Krist og djöfulinn
leiðast og voru þeir þá að togast á
um hjörtu 6yndugra manna, Hrylti
aumingja manninn við þessu, sem
von var. Hettr hann víst ætlast til,
að saga þessi slægi miklum óhug á
fólk, en ekki varð úr því, heldur
göbbuðust menn mjög að þessu. —
Svona er saga Þessi sögð hér í bæ.
Náungi þessi er skoplega siðavand
ur f prédikunum sínum, enda þykja
þær helzf líkjast ræðum Einars
Jochumsonar. Þó held ég að Efnar
þyki tilþrifameiri- Hann o: Sigur-
björn f-egir ýmsar sögur úr bæjarlíf-
inu á stólnum og ýms æfintýri, sem
hann hefir ratað f. Eitt sinn sagðist
hann t. d. hafa verið staddur f húsi
einu hér f bænum. Honum va r þar
geflnn kafflsopi, sem vanalega þykir
ekki frásögu vert. En honum vildi
sú slysni til, að hann glevmdf að
láta rjómann í kafflð. Þá kvað hann
frúna hafa sagt: “Guð hjálpi mér!
Þér haflð gleymt að láta rjómann f
kaftið“. Þetta var ræðutextinn,
Þótti honum mjög ósæmilegt að
leggja þannig nafn guðs við hégóma
Ekki mega menn heldur blóta eða
*##4!***##«##*t*0#*#*##*#*«
*
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
THE NEW YORK LIFE
1
2.
4.
Fyrir 10 árum voru árlegar inntektir félagsins yfir $30 millionir.
10 árum síðar, eða 1901, voru árlegar inntektir orðnar $70 mill.
Fyrlr 10 árum voru gíldandi lífsábyrgðir $575 millionir. Við
síðustu áramót voru þær orðnar $1,360 mil.
FyrirJO árum voru allar eignir félagsins metnar $125 millionir.
Við síðustu áramót voru þær orðnar yfir $290 millionir.
Fyrir lOárum borgaði félagið skírteinahöfum, árlegayfir$HJ mill.
Á síðasta ári borgaði og lánaði það til skírteinahafa $34J million.
Við síðustu áramót var New York Life félagið starfandi í hverju
stjórnbundna ríki í heiminum, og hafði stærra starfsvið í flestum
rikjum, heldur en nokkur önnur samkynja félög, útlend eða þarlend.
Öll ábyrgðarskirteini þessa félags eru ómótmælanleg strax frá út-
gáfudegi þeirra.
J. €4, JNorgan, raðsmaðdr,
Grain Exchange, Winnipeg.
Chr. Olafswon,
islenzkur agent.
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
t
#
#
#
#
#
#
#
«########################*
ÍGULLMED HALFVIRDI TILI.MAI!
___________________________________________!
hringar fyrir $2.00. Svona gróða-tækifæri mætír fólki ekki oft á J
lífsleiðinni. Þess vegaa ættu nú allir, sem vilja eignast góða á
muni að koma sem fyrst og velja úr vörunum. *
G. THOMAS, (
598 MAIN STREET. f
Ég er af vissum ástæðam tilneyddur að fiytja um næstu mánaða-
mót úr búð þeirri, sem ég hef verzlað í um undanfarin 8 ár, og
þess vegna hef ég hugsað mér að losast við eins mikið af gull- og
silfurvörum, klukkum og vasaúrum, éins og kostur er 4, áður en ég
flyt. Alt verður selt með innkaupsverði og sumt enda nokkuð
ragna, en þó er drengur ekki feim-
inn að nefna höfðingja myrkjanna á
prédibunarstólnum.
G. Thorkelson, Grocer,
539 Konm Ave.
Hann hefir og lýst því, hvernig
það sé að koma til hicnaríkis. Kveð
ur hann það ekki smáræðis vanda,
svo að heyrzt hefir, að hann hafi
hrópað upp á stólnum: “Hugsið
ykkur að komast í hendurnar á guði
almáttugum!” Er hann ekki síður
kuunugur þar uppi f sölum drottins
en í undirheimum, svo að piltur hef-
ir víst víða farið.
Þess er skylt að geta, að ýmsir
hyggja manninn ekki vera með öll
um mjalla. Þó sækir fjöldi manna
messur hans, sumir til að skemta sér
auðvitað, einkum hinir betri menn.
Það er því vonandi, að “legáta"
þessum verði ekki mikið ágengt.
Fengu íslendingar nóg áf brenni-
steinssvælu helvítis 4 I7.öld, þegar
ar myrkur vanþekkingar og fáfræði
grútði sem svartast yfir landinu, sem
lesa má um i Landfræðissögu dr.
Þorvaldar Thoroddsens. Þarf að
gæta þess vel, að þeir óheilla-iraug-
ar verði ekki vaktir upp aftur--”.
í Febrúar lést á ísafirði Óli F.
Asmundsson verzlunarmaður. Kona
hans var Lonísa Hall, og sonur
þeirra, Vilhelm i lærða skólanum.
Botnverplar teknir. “Beskytter-
en“ hefir enn að nýjn tekið tvo
botnverpla í landhelgi. Með því að
eigi varð saunað, að þeir hefðu ver
ið að veiðum f landhelgi, sluppu
þeir, annar með 800 kr., en hinn
með 600 kr. sekt.
Veðr&tta hefir verið nokkuð um
hleypingasöm bíðustu viku, en áður
var ágætistíð síðan í þorralok.
Slysfarir. Maðnr drukknaði í
Jökulsá á Sólheimasandi, 6. Febrúar,
Hann hét Guðmundur og var frá
Sóiheimahjáleigu. Ókvæntur.
22. Jauúar varð Sölvi Bjarnason
frá Ekkjuíelli úti á Fjarðarheiði i
Múlasýslu. Hann hatði orðið veik-
ur á heiðinni og fór þá bróðir hans,
er með honum var, til bygða að
sækja mannhjálp, en er hann kom
aftur, varSölvi með litlu lífsmarki
og lézt áður en þeir næðu til bygða.
Selur vömr með eftirfylgjandi
verði til 23. J>. m.
Rarp sykur ágætur 19 pd. $1.00;
Molasykur harður og sætur, 16 pd.
$1.00;púðursykur, bezti, 22 pd.$1.00
Baking Powder, bezta 5 pd. könn-
ur 50c., peningum skilað til baka
ef þetta duft reynist ekki vel. Nið-
ursoðin mjólk, 4 könnur á 25c.
vana verð er 15e. hver kanna;
þvotta Lye, 4 könnur á 25c., vana
verð I5c, kannan; söltuð og reykt
ýsa í 30 pd. kössum—ágætur mat-
ur—6c. pundið; kúrínur 6 pund á
25c.; sætt Biscuit 5 pd- fyrir 55c.;
Kaffi, gott, 11 pd. fyrir $1.00;
kartöflur 40c. bush.; saltað kjöt 6c.
pundið; nýtt sauðakjöt 5—7c. pd.;
hangið kjöt lÖc. pundið,
Komið með skildingana og kaup-
ið vörurnar að;
Thorkelson 539 Ross Ave.
Gunnar Sveinsson er búinn að taka
að sér umboðstöðu fyrir nýtilbúið
meltingarlyf, sem nefnist Kola vfn.
Félag J>að sem býr vfnið til hefir
fengið mesta f jölda vottorða um 4-
gæti J>ess, og setjum vér hér sýnis-
hom af einu þeirra:
“Winnipeg, 3. Marz 1902.
Hygine Kola Co.
Herrar:—
Eg pjáðist svo áruin skifti af
megnu meltingarleysi, og reyndi
öll hugsanleg meðul til að lækna
sjúkdóminn, en ekkert dugði. Sum
bættu mér um stnndarsakir, en bat
inn varð ekki varanlegur, J>ar til er
ég frétti af Kolavíni yðar. Eg
brúkaði 6 flöskur og fékk við það
algerðan bata. Nú get ég neytt
allrar fæðu og finn aldrei þá ónota
verki, sem ég áður J>jáðist af. Ég
mæli því hiklaust með J>essu víni
við öllum sjúkdómum meltingar-
færanna. Ég veit það læknar á-
reiðanlega.
S. CAMERON,
Winnipeg.”