Heimskringla - 22.05.1902, Side 1
J KATTPm ^ J
j Heimskring/u. J
j Heimskring/u. J
XVI. ÁR
WINNI^EG MANITORA :Í2. MAÍ 1902
Nr. 32.
Frjettir.
MarkverÖTistu viðburðir
hvaðanæfa.
Þann 17. þ. m. varð nppblanp
mikið í Atlanta, Ga., í Bandaríkjun-
um. Dögregian ætlaði að fanga
svertingja, sem höfðu setið fyrir
lögregluþjón rétt éður, en hervædd-
ust móti henni. Fimrn lógreglu-
menn voru skotnir til bana og 5 eða
6 svertingjar. Svertingjar söfnuð-
ust saman í byggingu og skutu það-
an á lögregluna. Ríkisherliðið hefir
verið kallað til hiálpar og st rskota-
liði skipað þangað, að vinna bygg-
ingnna.
Klukkan 9 um kvöldið
var byggingin brunnin til ösku, og
haídi varðliðið kveikt í henni. En
fyrirliði svertingjanna eá sem mest
skaut & iögregluna, sást eKki koma
fit úr brennunni. Óróleiki er mikill
í borginni út af þessum viðbnrði.sem
von er.
Krýning Alfonso konungs á
Spáni fór fram 17. þ. m. með hinni
mestu viðhöfn. Spánverjar eegja
að hann muni fbera konungsnafn
með rentu. Hanner 16 ára gam-
ail. Þegar Alfonso konungur settist
í hásæti sitt, settist ekkjudrottningin
móðir hans hið næsta honum, eins og
bar að vera. Við hina hlið hans sat
prinsinn og prinsessan frá Austur-
ríki og höfðingja benda frá ýmsnm
löndum þar út frá. Konungur Al-
fonso er þreítándi konungur með
því nafni á Spáni.
Herforingi Blíss hefir skrifað konu
sinni, sem á heima í Ottawa; hann er
herforingi í Second Canadian Mount-
ed Rifiesiiðinu. Hann lVsir ástand-
inu nð Kleinhart ána, eftir bardag
ann 2. Apríl slðastl. Um 125 Cana
da liðsmer.n mistu þar líflð. Um
bardagann segir hann svo: “Alt
flant í mannablóði, og særðir og
deyjandi menn á vígvellinum voru
tættir og rifnir sundur til agna af
sprengikúlunum. Sú sjón var hroða
leg”, Hann skrifaði þremur dög-
um eftir oiustuna. Þann tíma hafði
hann ekkert haft að eta. Hann seg
ist vera blóði og leiri storklnn frá
hvirfli til ilja. Hann og lið hans
varð að ganga nótt og dag, og ef
hvíld fékst um fáein augnablik, þá
urðu þeir að liggja á berum leirnum
og höfðu hvorki brekáh né mai.
Hraðfrétt. frá Nelson í B. C. seg-
ir, að mjög rík gullnáma, sem sé
brot af Nome, sé fundin á þeim
stað, sem Ymir heitir. Gullæðin
er 8 fet á breidd að jafnaði, ogmeð
altalið sem fæst úr tonninu eru
$59. Síðan þessi náma fanst er alt
á ferð og flugi í þorpinu Yrnir og
vill hver komast þangað, sem vetl-
ingi getur valdið, Ymir er við
Spokane Northern brautina, um
20 mflur frá Nelson. í því héraði.
semYmir[er í, eru 80 millur að
mala gull úr grjóti, [og eru sumar
af þeim þær stærstu í Canada.
Nú um tfma hefir 8 klukkutíma
vinna verið samþykt og fylgt í
í Victoria, B. C. af verkamannafé-
lögum. Alt. hefir farið slétt og fall
ega. En verkhafendur, sem eru
að byggja stjómarbyggingar þar,
vildu ekki borga mönnum sfnum
$3 á dag, á föst.udaginn var. Verka
menn þeirra neituðu að halda á-
fram, ef kaup þeirra væri sett nið-
ur, og hættu verki. Oséð er enn þá
hver afleiðingin f>ar verður af
f>essu verkfalli; búist við að smiðir
muni gera verkfall og kann ske
fleiri verkamannafélög þar.
Það varð meira uppþot 1 Quebec
á föstudaginn var, en veuja er til
þá um sekra manna föngun er að
ræða. I Leynilögregluþjónn Banda-
rfkjastjórnarinnar lét lögregluna
taka fasta 2 strokumenn úr Banda-
rfkjunum: kapteinn Greene af Sa-
vannah var annar og hafði hann
stolið frá stjórninni $570,000 alls.
Þeir sem tóku þá ásamt leynilög-
regluþjóninum, keyrðu f>á tafar-
laust ofan að höfninni. og neituðu
föngunum að tala við konur sínar.
eða lögmenn, og lofuðu f>eim ei að
náyfirfrökkum sfnum af skrifstof-
um þar sem þeír sögðu að f>eir
væru. Oðar stigu þeir á gufu-
snekkju f>egar kom ofan í hufnina,
sem beið þar eftir f>eim með fylstu
gufu, og sigldn tafarlaust upp fljót
ið til Montreal. Gufusnekkjan
heitif Spray, og er gangskip ágætt.
Óðara var kveiktur sá kvittur upp
í borginni, að þessum mönnum
hefði verið stolið, og engin lögleg
föngun hefði átt sér stað. Dóms-
máiaráðgjöfunum og yfirvöldunum
þar var sagt þetta og þau beðin að
skerast f leikinn, Þeir brugðu við
og telegröfuðu á alla staði með
fram fljótinu og buðu að hefta
gufusnekkjuna Spray, og á sama
tíma lét líigreglustjómin gufu bát-
inn Hackett, sem er örskreiður,
leggja á stað á eftir Spray. Hit-
inn og gauragangurinn varð afar-
mikill, f>ví báðir þessir menn voru
búnir að afla sér hinna mestu vin-
sælda og álits hjá borgarbúuin.
Hackett veitti Spray hina hörð-
ustu eftirför, og er það mælt, að
aldrei hafi meiri kappsigling farið
fram en milli þeirra. Virtist Hac-
kett í fvrstu draga upp á Spray. en
þegar þriðjungur leiðarinnar var
búinn, sýndi það sig að hún hafði
meiri flýtir en en hún hafði tekið
á. Dró hún þá svo skjótt fram úr,
að Hackettgafst upp við eftirför-
ina og hélt ofan til Quebec aftur.
en Spray varð með engu móti
hindruð. Bátum var skotið fram
og fóru þeir í veg fyrir Spray og
buðu henni að gefast upp, en sá er
stýrði og lögregluþjónnin gerðu
gys að þessu og siglau léttan á-
fram.
Þegar nánari upplýringar íeng-
ust., komst það upp, að stjórnin í
Bandárfkjunum var búinn að und-
irbúa þessa föngun formlega og ör-
ugt við æðstu dómsvöldin i Cana-
da, og hafði því fullan rétt til að
láta taka þessa sakamenn sfna
fasta, og flytja þá burtu úr Quebec.
Svo upphlaupið um mannránið er
nú dottið niður.
íslands-frettir.
Eftir Norðurlandi. . •
Akureyri, 22. Marz 1902.
Séra Matth. Jochumson hefir
gert samning við D. Oslund prent-
smiðjueiganda á Seyðisfirði um út-
gáfu ljóðmæla sinna, sem eiga að
koma út f 4 bindum, þar af 1 bindi
í ár. Auk úrvals úr því, 'sem áður
er prentað i Ijóðabók skáldsins,
verða þar kvæði, sem prentuð hafa
verið í blöðum og tímaritum, og
auk þess margt, sem aldrei hefir
verið prentað. Þess þarf naumast
að geta, hve vonin um þessa bókar
útgáfu hlytur að vera mikið gleði-
efni öllum þeim, sem unna fögrum
ljóðum og íslenzkum bókmentum.
Sfldarveiði hefir verið hér tölu-
verð öðruhvoru, aldrei síldarlaust
með öllu í net f þessum mánuði,
“Strokkurinn“ er seldur á 5 kr, í
peningum og 7 kr. í innskrift.
5. Aprfl. Samskot til Akureyr-
arbúa.^Tveir rit.stjórar frjálslyndra
kyrkjublaða í Lundúnum hafa
sent hingaðjtil séra Matth. Jocfi
umsonar og fyrir hans milligöngu
rúmar 2 þús. kr. til útbýtingar
meðal hinna fátækustn, er urðu
fyrir brunatjóninu hér á Akureyri
f vetur.
Jón bóndi Þórðarson í Háholti
andaðist f Rvfk 8. Marz. áttræður
og hafði verið blindur mörg ár.
Var lengi bæjarfulltrúi í Rvík.
Prestaköll. J^Við prestkosning að
Lundi 27. Febr. var séra Sigurður
Jónssoníá Þönglabakka kosinn með
18 atkv- — Séra Lárus Benedikts-
son f kelárdal hefir fengið laúsn
frá prestskap, eftir 36 ára þjón-
ustu.
Laus prestaköll [eru því: Selár-
dalur, met. 1580 kr. 76 a., veitist
frá næstk. fardögu. , umsóknar-
frestur til 28. Aprfþ og Þöngla-
bakki, met. 1021 kr. 39 a.. veitist
frá næstk. fardögum, umsóknar-
frestur til 28. Aprfl.
Ljóðasafn eftir Guðm. Friðjóns-
son er væntanlegt á þessu ári. Bók-
sala Isafoldar (Bjöm Jónsson) kost-
ar útgáfuna.
Eftir Stefni.
Akureyri, 26. Marz 1902.
YTfir 30 þús. kr. virði brunníð
á 5 tímum.
22. þ. m. varð vart við allmikinn
eld á efsta loftinu í skólahúsinu á
Möðruvöllum kl. l^ e. h., svo mik-
inn að engin tök þóttu til að reyna
að slökkva hann. Heimilismenn
og skólasveinar löigðu því alla á-
herzlu á að bjarga munum úr skól-
anum, og heppnaðist það svo vel
að eigi þrann þar annað inni, en
meiri partnr af bókasafni skóla-
stjóra, J. A, Hjaltalfns, sem að
vfsu var stórt og dýrt, og eitthvað
af munum og bókum fyrsta kenn-
ara Halldórs Briems. Aftur á
móti varð bjárgað bókasafni og
gripasafni skólans, rúmfatnaði, öll-
um húsgögnum skólastjóra o. fl.
Húsið var biunnið og hrunið sam-
an um miðjan aftan. Hægur norð
vestan vindur var, og því var bæj-
arhúsunum eigi hætta búin, en
sem eflaust hefðu brunnið, ef vind-
ur hefði staðið af suðri,
Hvemig kom eldurinn upp?
munu margir spyrja, og þvf brann
bókasafn skólastjóra ?
Um upptök eldsins er vfst flest-
um eða öllum ókunnugt, og verða
því einungis sennilegar getgátur
að ráða hugmyndum manna um
hana. Á efsta lofti skóians er
kvistherbergi á miðju húsi að aust-
an, þar var ofn, og þar var bókasafn
skólastjóra, og á því herbergi bjó f
vetur Ólafur Davíðsson eand. phil.
millibilskennari við skólann, en á
efsta lofti í norðurenda bjó Hall-
dór Briem fyrsti kennari skólans,
Þennan dag mun að venju hafa
verið lagt f ofninn á kvistherberg-
inu, og er ætlun kunnugra manna,
að í húsinu hafi kviknað frá reýk-
pípum þeim, er liggja frá þeim ofni
Þegar fyrst var komið upp, var
kvÍ6therbergið og loftið vfða orðið
fult af reyk, og óð þá ólafur Dav-
fðsson inn f svæiuna, til að ná
þjóðsftgnahandritum sínum, sem
honum og tókst og mun hafa verið
honum dýrmætari en fullur mrelir
silfurs, en eigi þótti þar þá viðvært
og engin tö>k til að bj’arga bóka-
safninu.
Halldór Briem hafði setið inni á
norðurherberginu. Reykjarsvæl-
an gaus þangað strax ogopnað var,
enda þá eigi oröið viðvært á gangi
efsta loftsins, gat því Briem ekki
bjargað nema sárlitlu af munum
sfnum, þar sem bein hætta var orð-
in að vera uppi á því lofti.
Ólafur Davíðsson var norður í
bæ og beið eftir dagverði, þegar
eldurinn kom upp.
Mælt er að skólahúsið hafi verið
vátrygt fyrir 30 þús. kr. Eins og
kunnugt er, var það landssjóðs-
eign.
4. Apríl. Fjú Sigurlaug Hall-
dórsdóttir, kona Þorsteins Jónas-
sonar skipstjóra á Grýtubakka,
andaðist á heimili sfnu 25. Marz
síðastl. 68 ára gömul. Hún var
fædd á Grýtubakka og hafði alið
þar allan aldur sinn.
Hafísinn er mikill fyrir Aust-
fjcirðum, þó komst Yesta á Seyðis-
isfjiirð. Að vestan liggur hann
suður undir Látraströnd, komst
því Vesta eigi einu sinni til Isa-
fjarðar.
Veðrátta Harðneskju norðanátt
nleð snjókoma hefir verið sfðustu
daga.
Nú er skarlatssóttin sögð aug-
ljós í 2 húsum hér í bæ.
Eftir Fjallkonunni.
Reykjavfk. 3. Aprfl 1902.
Drangey. Samþykt var á sfð-
ásta sýslufundi Skagfirðinga, að
reyna að sá grasfræi og trjáfræi til
að yarðveita eyna fyrir uppblæstri.
Hún er bezta veiðistöð Skagfirð-
inga. Fengust þar f fyrra vor full
90 þús. af svartfugli (mest lang-
vfa), en þó var fiskaflinn talsvert
meira virði.
> Xvennaskóli Húnvetninga. Ekki
vildu Skagfirðingar ganga í kvenna
skólafélag með Húnvetningum,
nema ef Eyfirðingar gengju f það,
og mega þá Húnvetningar líklega
sitja einir að því.
Aflabrögð. Áður en norðanrok-
ið hófst, sem nú stendur yfir. eða
skömmu fyrir mánaðamótin, hafði
orðið vel fiskivart í net í Garðsjó,
—Austanfjalls aflalftið, mest 200
hlutir (á Eyrarbakka).—Bezti afli
við Isafjarðardjúp og kominn álit-
legur afli á Eyjafirði í f. m. og
sfldarafli nokkur.
Ellefsen hvalveiðamaður er nú
að reisa mikil hús við Mjóafjörð og
verður þar aðalstöð han6 hér á
landi framvegis.
Prófastsfrú Þóra Ásmundsdóttir
kona séra Guðmundar Helgasonar
lézt 17, Marz fimtug að aldri,
merkiskona.
17. Aprfl. Veðrið óvenjulega
kalt, oftast norðanátt með frost og
stormi. Skálholt lagði af stað
vestur í fyrradag, en komst ekki
nema eitthvað vestur í flóann og
sneri svoaftur,
Franska spitalaskipið St. Pierre
átti aö fara til Fáskrúðsf jarðar, en
komst ekki fyrir fs.
IJólar komu aftur f morgun og
höfðu þeir strandað í Eyrarbakka-
bugt, og þorði skipið því ekki að
halda lengra áfram, heldur sneri
aftur til að láta skoða hvort nokk-
uð hefði bilað. Hafði fengið ofsa-
veður.
Valdimar Ásmnndsson dáinn.
Þegar síðasta blað Heimskringlu
var búið að prentun barst sú fregn-
hingað, að Valdimar ÁsmundssoB,
ritstj. Fiailkonunnar væri dáinn, og
gat blaðið um það. Nú eru kom
in blöð frá Rvík, sem segja nokkuð
gjörr frá þessum fréttum. Af því að
ég er viss um að margir Vestur ísi.
þektu Valdimar sál. annaðhvort
persónulega eðaaf blaði hans, Fjall-
konunni, sem nú í seinni tíð hefir
verið eitt hið fróðasta og áreiðanleg-
asta blað.^sem gefið hefir veríð út á
Islandi, þá ætla ég að segja fáein orð
um hinn látna.
Valdimar Ásmur.dsson dó að
kveldi hins 17. Apríl síðastl. ur
heilablóðfalli, að blaðið segir nú, eft-
ir tæpa sólarhringslegu, nær timtug-
ur að aldri. Hann var fæddur að
Hvartt í Bárðardal, Þingeyjarsýslu,
10. Júní 1852. Foreidrar hans
voru- Ásmundur Sæmundsson, ættað
ur úr Reykjadap og Bóthildur
Björnsdóttir, Þorkelssonar, Jónsson-
&r, Halldórssonar bónda að Mýri í
Bárðardal, og voru þeir Kristján
heitinn Jónsson og Valdimar Ás-
mundsson fjórmenningar, og komn-
ir út af hinni gáfumestu skáld
mærings ættum. er að undanföinu
hafa verið uppi í Þingeyjarsýslu.
Með foreldrum sínum fluttist Valdi-
mar kornungur að DaðaBtöðum í
Reykjadal, og þaðan nokkru síðar (á
11. ári) að Álandi í Þistilfirði, og
litlu síðar að Flögu í sömu sveit.
Þar dvaldi hann hjá foreldrum sín-
um þar til hann fór alfarinn frá þeim
um eða litlu eftir 1870.
Það bar snemma á gáfum og heil-
brigðri skynsemi hjá Valdimar, og
las hann fljótt mikið, en hafði ekki
Nwi9mmnTwinrwmttmnnwntfrwrnffmmwiflmmn>
|THENEW YORK LIFE. !
^ “Pro bono Pnblioo”
Þe^ar maður kaupir hlut.
UœboJsmenn New York Life ábyraðarfelagsins fserðu forseta
felagsins. Honorable John A McCall. 56 millíonir dollrrs í nýjum lifs-
ábyrgðum á sex vikum, og skömmu þar á eftir færðu þeir öðrum
varaforseta féiagsins, hra. Geo. W. Perkíns, 62 milliónir dollars í nýj
»m iífsábyrgdum, Þannig fékk félavið EITT HUNDRAÐ OG
XTj ÁN MILLIONIR DOLLARS virði í nýjum iífsábyrgðum á
fyrstu 3 mánuðum af árinu 1902. Aldrei fyr befir jafnmikil lífsá-
byrgðar upphæð safnast að nokkru einu félagi í heiminum á jafn
stuttum tima eins og að þessu STÆRSTA og BEZTA af öllnm lífs-
ábyrgðarfélögum. THE NEW YORK LJEE er á undan öllum
keppinautum í beimi. Það er einfait sameignarfélag án nokkurra
hl'Jthafa. allur gróði er eign skírteinahafendaDna. NEW YÓRK
LIFE er á undan öðrum félögum i Canada.
Skoðið vaxtasafnsskírteini NEW YORK LIFE félagsins áður en
Þér gacgið i iifsábyrgð I nokkru öðrn féiagi.
Chr. Olafanon,
isienzkur agent.
á>í, IHorgnn. radssiaðijr,
Grain Exchange, WinDÍpeg.
nikii
kjörkaupa
NAIjA
ÞEGAR ÞER
ÞURFIÐ GÓÐ
AR VÖRUR
FYRIR HÚS
YÐAR
BANFIELD’S!
CAHfCT STOftC :
4«4 WAIS 8TBEET - WINNIPKO ♦
FEGURSTU olíudúkar 50c. yarðið ALLIR í EINU ♦
STYKKI og lita út eins og gólfteppi. ♦
Teppi sem þekja heilt gólf fyrir ^2 00-$5.<H>. ♦
Mikið af ódýrum glugga-gardinum hjá J
♦♦♦♦♦♦«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦;
kringumstæður að komast að skola-
leiðinni. Samt íékk bann tölnverfa
tilsögn hjá' séra Gannari síJ. I
Gunnarssyni, presti að Sauðanesi og
Svalbarði, þegar hann var nær tví
tugú. Hfinn ritaði einnig nokknð
um tvitugsaldur tyrir próíast Vigfús
Sigurðsson á Sauðanesi, og var þá
með honum tima og tíma. Sóknar-
lýsingu reit hann fyrir prófast, sem
hlaut lof mikið, og í hvevetna var
hann viðurkendnr strax sem gáfu-
maður- Bar.n ætlaði eitt sinn að
g.mga skólaveginn, en varð ei af, og
mun fátækt og örðugar kringum-
stæður hafa hamlað honum frá því.
Litlu eftir 1870 fór hann inn á Ak-
ureyri, og hafðist þar við um tíraa.
Þar gaf hann út Vasakver, og kann-
ast allir við það. Því var mjög vel
tekið af alþýðu, enda vel úr garði
gert eftir kringumsíæðum. Rétt nm
það leyti gaí hann út Ritreglnr sin-
ar í fyrsta sinn, og náðu þær st’ax
almennings hylh. Um 1880, eða
rétt eftir, för hann alfarinn af Norð-
urlandi og suður. Gegndi hann
fyrst barnakenslu störfum að Leirá,
og las þá og skrifaði af hinu mesta
kappi. Rétt á ettir varð hann kenn
ari við Flensborgarskótann,en bætti
því skjótt, og stofnaðl blaðið Fjall-
konan í Febrúar 1884(?). Blað:ð
varð strax velþokkað á meðal al-
þýðu, og náði góðri hylli, að minsta
kosti á Norðurlandi. Hann var fé-
laus maður, þegar hann byrjaði það
lyrirtæki, en klauf þið furðanlega.
Enda var hanu einn hinn panna-
liprasti maðnr, sem þá skritaði á Is-
landi.
Árið 1888 giftist hann ungfrú
Brietu Bjarnhéðinsdóttur, sem nú lif-
ir mann sinn, ásamt tveimur börn-
um, syni og dóttur, um íermingai -
aldur.
Auk blaðamensku starfs hans,
og þeirra rita, er nefnd hafa verið,
gerði hann margt fleira af ritstörfum
Hann bjó undir prentun og gerði
skýríngar á vísum í ísl.dsögunum, er
Sigurður Krátjánsson í Rvík hefir
getið út. Þar að auki tók haDn af-
skriftir af ýmsum fornskjölum, svo
sem máldögum og fleiru, bæði fyrir
sjálfan sig og aðra, og var hinn
vandvirkasti og áreiðanlegasii mað
ur í öllum sínum ritstörfum. Hann
var sérlega glöggur og fróður að
fjalla um gömul handrit. Og hafi
hanu ekki verið sá fróðasti og ís-
lenzkasti íslendingur, að máli og ísl.
bókfræði, þA var hann með þeirn
ailra fremstu í þeirri list.
Hann var sjálfmentaður maður,
en engu síður var hann lærðari
mörgum þeim, sem á lærðaskólann
gangn, ekki einasta f lslenzkum
fræðum, heldur oe mörgu öðru.
Hann var góður ritstjóri, eD, enn þá
meiri fræðimaður, og hafði mjög
heilbrigða þekkingu hvivetna.
Ég kyntist Valdimar heitnum
1880. Um það leyti var hann nokkr-
um sinnum á ferðum norður í Þistil-
fjörðað finna foreldra og vini. Mér
féll skjótt vel við hann. Hann var
hægur og stilturi framgöngu og tali,
og ei laustekinn. Hann var skemti
legur og fræðandi þegar hann var
orðinn kunnugur manni. Um þetta
skeið voru þeir Valdimar Ásmunds-
son og Hamies Lárns Þorsteinsson,
sfðar prestur í Fjallaþingum og dá-
inn fyrir nokkru, hinir bezt ment-
uðu af ungum mönnum í N.-Þing-
eyjarsýslu. Báðir gáfumenn og
skemtilegir í sinn hóp. Og þótt ég
væri þá nngur er ég kyntist þeim,
þá þótti mér þeir öðrum mönnum
frarnar að víðkynningu.
Það er ekki efi um það I minni
sál, að íslar.d hefir mist einn þann
einlægasta og bezta mann á islenzka
vísu, þar sem Valdimar Asmundsson
leið. En ságan geymir minningu
hans langt fram um ökomnar aldir,
og aldrei nema en að maklegleikuin'
Kr. Ásg. Benkdirtsso.v.
“AMBER plötu-reyktóbakið er að
sigra af eigin verðleika.
Hafið þér reynt það ?
Safnið TAGS. Þau eru yerðmæti.
Góö bújörð til sölu nálægt
Seamo, Man.
Agætt, nýtt fjós úr steini, rúmar
24 kýr, loggafjós, sem rúmar 40
nautgripi, hesthús gott fyrir 4 hesta,
mjólkurhús úr steini 20x12 á stærð,
íveruhús 20x18 að stærð og eldhús
20x14 og ágætis brunnur, 1 áeinar
ekrur eru plægðar og girtar Þessi
bojörð með öllu tilheyrandi kostar
að eins $700.00 með yægum sk.il-
málum, Listhafendur snúi sér til:
ÁRNA ANDERSON,
799 Flllice Ave W.
Winnipeg, Man.