Heimskringla - 31.07.1902, Side 1
XVf. ÁR WINNIPEG MANITOBA 31. JÚLl 1902. Ni-. 42.
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
—Kóleraveikin er sögð œjög raann
skæð í Manehuria. 757 œanna dóu
úr henni & einnm sólarhring um
miðjan þenna mftnuð. Aður hafði
hón feld yfir 100 Rússa og 360 Kín-
verja.
—Óspektir miklar eru í Frakk-
landi yfir ofsóknum stjórnarinnar
þar á hendur öllum trúfélögum nema
þjóðkyrkju katólíkum. Opinberir
óánægjufundir eru haldnir og æs
ingaræður fiuttar til lýðsins frá
beggja hálfu.
—Nokkrar umrœður hafa orðið í
Ástralíublöðunum yör launum land-
stjórans þar. Hann er sagður að
hafa kostað Ástralfu sambandið $225
000 á síðasl. 18 mánuðum og er það
talin ofmikil borgun. Mikill hluti
af þeirri upphæð heflr samt gengið
til að halda veizlur fyrir konung
legt fólk og aðra. Ánnars eiga laun
hau8 að vera $50.000 árlega og um
$40,000 að auk fyrir tilkostnað við
húshald hans, og þess utan hefir
hann fengið $40,000 á ári til að leika
sér með.
—Svo er nú Breta konungur orð-
inn hress að hann er farinn að geta
gengið lftið eitt, en varasamur verð-
ur hann að vera með fæðu sfna og
alla áreynslu. Læknar telja vtst að
hann verði fær um að þola þá á-
reinslu sem krýningunni fylgir þeg-
ar hún fer fram þann 9. n. m.
—Bandaríkjastjórnin heflr fengið
tilkynning frá Filipseyjum um að 4
kennarar, sem hún setti þar á Cebu
eyjuna og sem týndust þann tíunda
Júnf, hafi allir verið myrtir af eyia-
búum, sem ekki vildu hlýðnast til-
sögn þeirra. Morðingjarnir eru nú
fundnir og fyrirliði þeirra lífiátinn. 8
aðrir hafa verið teknir, kærðir um
meðsekt í þessum glæpum.
—Mr. Chamberlain Nýlendu ráð
gjafi Breta, hefir tilkynt brezka
þinginu að engum öðrum en inn
íæddum Suður-Afríkubúum, sem
háðu bardaga við brezka herinn,
verði leyft að flytja aftur til Suður
Afríku.
—J. H. Brown, frá Maine í Banda-
ríkjunum, hefir fundið npp fallbyssu,
sem að afli tekur langt fram þeim
sem áður hafa þekst í heiminum. Eftir
14 ára umhugsun hefir hann nú full-
komnað verkfæri, sem hendir 600
punda þungri kúlu 40!t mílu vegar
með hraða sem nemur 3,500 feta ferð
á sekúndu. Áður áttu Bandaríkja-
menn 12 þuml. byssu sem kastaði
kúlu 24 mílur vegar.
—Harry Tracy, Oregon útlaginn,
sem getið er um á öðrum stað í blað-
inu, heflr nýskeð drepið félaga sinn,
Davið Merrill, sem strauk með hon-
um úr fangelsinu. Oregonstjórnin
hafði boðið $1,500 hverjum þeim er
findi Merrill og handsamaði hann
dauðan eða lifandi. Kona nokkur
sem fann líkið í skóginum þar sem
það hafði fallið fyrir kúlu morðingj-
ans, heimtar nú fundarlaunin.
—Breta stjórn hefir nú fastlega á-
kveðið og auglýst að krýning kon-
ungsins skuli fara fram 9. Ágúst
næstkomandi.
—Annar hópur auðmanna og
blaðamanna frá Bandaríkjum ætlar
að koma til Manitoba í haust til þess
að líta yflr landið og ná sér í ein-
hvern hluta af því. Og nú eru blaða-
menn á Englandi að taka sig saman
um að ferðast hingað vestur um upp
skerutímann til að sjá fegurð og
frjófsemi landsins. Það eru brezkir
og ameriskir gáfumenn, sem kunna
að meta Manitoba eins og hún á skil-
ið. Hvenær skyldi (sl. embættis og
kaupmvnna stéttirnar á Fróni vaxa
svo að vitsmunum hreinskilni í
sannleikans viðurkenningu a ð þ e i r
fáist til að láta Canada njóta sann
mælis?
—Dugleg kona. — Mrs. Joubert (
Carbondale í lllinois ríkinu, skaut f
síðastl. viku bónda sinn og bróðir
hans. Þeir höfðu báðir lagt samac
og ráðist á konur sínar og ætluðu að
misþyrma þeim og börnuunm. Kon-
urnar vörðust vopnlausar meðan
þær máttu, en er ofmikils afllsmunai
kendi þá greip önnur konan skaram-
byssu og lagði þá báða að velli.
Síðan seldu konur þessar sig i hend-
ur lögreglunnar og rannsókn var
hafin í málinu. Kviðdómurinn frí-
kendi konuinar sarastundis. .
— Fellibilur æddi ytir þorpið
Chesterville í Ontario á föstudaginn
var og gerði $200,000 skaða. Mikill
fjöldi húsa hrundi og 5 manna létu
þar ltfið.
—Maður að nafni Tonneth, frá N.
J. I Bandarlkjunum, var nýlega
handtekinn ( bænum Bra í Belgiu.
Skjöl sem fundust á honum sýna að
hann var á ferð fyrir anarkistafélag
í Bandaríkjum til gess að ná lífi
Emanúels Belgiu konungs.
—Félag eitt í Bri6bane í Ástralíu
hetír boðið De Wet, Búa foringja,
$1,250 á viku og allan ferðakostnað,
til þess að ferðast um Ástralíu og
halda þar fyiirlestra um Búastríðið
og alt það mál. Enn þá hefir ekki
frézt hvert De Wet .þiggur þetta
sómaboð.
—Ungur piltur á Italíu háði ný-
lega átta einvígi með sverði á einni
klukkustundu, allir andstæðingar
hans voru bornir af yígvellinum,
sjálfur fékk hann lítið sár í síðustu
atrenuunDi, en ekki var það bættu
legt.
—Gufuskip á Elb ánni í Þýzka
landi, rakst nýlega á annað skip og
brotnaði svo að það sökk samstundis.
Þar týndust yflr 50 manna.
—ÚtgjaJdaAætlun Bandaríkjanna
fyrir yflrstandaDdi fjárhagsár er yfir
800 mill. doll. ($800,193,837). í
fyrra voru útgjöldin $730 milb
Þessa árs útgjöld eru: Til landbún-
aðar $5 mill. Landherinn $92 mill.
Til sendiherra landsins f öðrum
löndum og til stjórnarlegra fram-
kvæmda $2 mill. Til Columbia hér-
aðsins $8^ mill. Til landvarnar-
stöðva $7 mill. Til Indiána $9 mill.
Þingkostnaðar $25 mill. llermanna
skólinn $2J mill. Sjóherinn $79 mill.
Eftirlaun $140 mill. Póstmál $138
mill. Hafnbætur $27 mill. Fasta út-
gjölð $124 mill. Isthman skipaskurð-
urinn $5 mill. Ýmislegur kostnaður
yflr 90 mill. doll. Þessar upphæðir
benda á auðugt stórveldi, annars
stæðist það ekki útgjöldin.
— Inntektir Canada á siðastl. fjár-
hagsári til 31. Júní síðasl, voru
$55,309,693, en á fyrraári$50| mill.
Tollintektin nam als rúmlega 43
mill. doll. á árinu; þar af innflutn
ingstollur $32 mill. og innalandstoll-
ur rúmar $11 mill. Útgjöldin
jukust um rúmar $3£ mill. á árinu,
borið saman við fyrra ár, voru nú
nálega 40 mill. doll.
—Engisprettu uppskeran í New
Hampshire ríkinu litur vænlega út
í ár. Ríkisstjórnin þar veitti eins
dollars verðlaun fyrir hvert bushel,
sem henni var fært árið 1899. Hún
fékk 523 bushel. En nú er útlitið
svo að miklu fleiri busbel muni þar
fást I ár.
—Louis Wilklns, 30 ára gamall,
andaðist I spftala í Chicago I stðastl.
viku úr heilaveiki. Hann var tal-
inn með stærstu mönnum heimsins,
8 fet og 2 þuml. á hæð og vigtaði
yfir 300 pund. Sagt er að silfur
dollar komist gegnum hring mikinn
sem hann bar á fingri sér.
Ofsa prumuveður og rigningar
hafa gengið yfir Bandaríkin Ýms-
ir dóu af eldingu f New York,
Pennsylvania og New Jersey, og
eignatjón varð mikið á fasteignum
ogiikrum. Einniggerði haglstorm-
ur skaða á ökrum bænda f N. Dak.
28. þ. m.
ISLAND.
Eftir Austra.
Seyðisfirði, 28. Júní 1902.
Tíðarfarið er nú loksins gengið til
verulegs bata, landátt og sumarhiti,
13 til 14 stig R. með hlýrri salla-
rigningu; svo grasspiettunni fer nú
óðum fram.
Fiskiafli fremur lítill, enda storma
samt til hafsins síðustu dagana.
Nýdáin er hér í bænum ekkjan
Kristín Einarsdóttir, um sjötugt.
7. Júlí-
Tíðin altaf hagstæð, hitar og úr-
kon ur, svo grassprettu fer nú vel
fram á degi hverjum.
MINNEOTA, MINN. 19. Júli 1902
Pólitík. Enn á ný eru gæðingar
hinna pólitiskuflokka komnir fram á
orustuvöllinn. Enn að mestu leyti
virðist pólitíkin hér hjá oss, Minne-
ota-mönnum, vera einhliða. repúbl-
íkar hafa auðsælega öll völd i hönd-
um sér. Fyrir þingskrifara hér í
Lyon Co., sækir fram úr fylkingu
repúblíka Gunnar Björnsson, ritstj.
“Minnéota Maseot”, er yonandi að
allir Isl. greiði honum atkv., án til-
lits til flokks.
B',ramfarir. — Landi vor, St. Th.
Jónsson Vestdal, er um tíma hefir
dvalið á stjómarprentsmiðjunni i
borginni Washington, heflr á kvöld
in eftii vinnu stundað nám við laga
skóla þar i borginni og gengið ný-
lega undir próf og hlotið lögmanns
nafnbót.
Blaðið “Vínland” er hér mjög
vinsælt. margbreytt að efni og fjöl-
frótt að fréttum. Hvað mál snertir,
er það, samkvæmt ísl. vesturheims-
mælikvarða, fremur gott.
ÚR BRÉFI FRÁ MINNEOTA 21/5 ’92
Hér er alt stórtíðindalaust. Upp-
skeruhorfur hinar vænlegustu, ef
engin óhöpp koma fyrir áður en
þresking gengur í garð, verður upp
skeran mikil. Nokkrir hafa þegar
skorið bygg og er það vel vaxið.
ÚR BREFI FRÁ I. B. BÚASON,
dags. 12. Júlí.—“Alheims stúku-
þingi er nú lokið. Alt gekk vel og
skemtilega. Good Templarar í
Svíþjóð gerðu sitt bezta til að
skemta erindrekunum, sem bezt
þeir gátu, með því að halda þeim
heimboð, veizlur og fara með þá
skemtiferðir út um landsbygðina.
Embættismannakosningar gengu
heldur vel, þó tapaði Ameríka tveim
embættum, sem hún ,áður hafði. H.
V. stórtemplar endurk. Jos- Malins.
H. V. S. ritari B. F. Parker, H. V.
S. G. U. T. Miss Jessie Börsyth En
I staðinn fyrir H. V. stórkanselráð
Cotterill frá Seattle var Dr. Berg-
man (Svíi) kosinn, og í stað Jones frá
New York var kosinn þýzkur mað-
ur, sem ekki kann ensku, að nafni
Blamer.—Næsta alheims stúkuþing
verður haldið í Belfast á írlandi
1905. Amerikumenn gerðu sitt ýtr-
asta til að fá það haldið i Ameriku,
en voru ofurliði bornir. — Héðan
býzt ég við að fara með Haraldi Ni-
elsyni.sem er erindreki stórstúku Is-
lands, til Englands og Skotlands, og
kem þvi ekki til íslands fyrri en 5.
Ágúst,,.
íslendingadagurinn
verður haldinn hátfðlegur 1 Sýn-
ingargarðinum hér í Winnipeð á
laugardaginn kemur, 2. Ágúst-
Nefndin hefir vandað til þessa há-
tfðahalds, svo sem efni og ástæður
ur hafa frekast leyft. Skemtanir
eru margbreyttar og verðlaun góð,
og það er búist við að mesti fjöldi
fólks verði viðstatt þenna dag eins
og að undanförnu. En eitt hefir
nefndin orðið að taka til bragðs,
sem áður hefir ekki verið gert.
Hún hefir hækkað inngangseyrinn
upp f 25c. fyrir alla yfir 14 ára,
en fyrir börn innan 14 ára er 10c.
inngangnrinn eins og að undan-
förnu. Ástæðumar sem nefndin
hafði fyrir þessari breytingu eru:
1. að hornleikendaflokkur sá, sem
nú á að skemta á Þjóðhátfðinni
setur $74 fyrir verk sitt yfir
daginn, og er það $14 hærra en
í fyrra og $24 hærra en á nokkru
öðru undanfömu ári.
2. að eftir því sem þessi hátíð
verður umfangsmeiri og skemt-
anir margbreyttari, eftir því
hækkar verðlaunakostnaður á
nefndinni.
3. af þessu leiðir það, að þeir pen-
ingar, sem nefndin verður að
verja til verðlaunakaupa, verða
að takast úr sjóði dagsins. og
þessi útgjaldaliður fer stöðugt
vaxandi, þvi að gera má ráð fyr-
fyrir þvf, að menn trénist upp á
því að gefa árlega kostbæra
hluti til verðlaunanna, og flestir
menn illfáanlegir til að safna
slíkum gjöfum af því að svo
mikið er um aðra og betur laun-
nðá vinnu.
4. jKefndin telur og vfst að þar
sem nú er mesta árgæzka og all-
ir liafa nóg að gera með góðum
launum, þá muni enginn sjá eft-
ir að borga 25c. fyrir inngang-
inn, sem annars unnir deginum
lífs, og það því fremur, sem
lietri og margbreyttari skemt
anir eru boðnar fólki á hátfð-
inni. en það á völ á að fá á öðr-
mn tfmum ársins fyrir jafna
borgun.
Eæðumenn dagsins verða:
Islands ræða:
. Séra Bjnnii Þórarinsson.
Canada ræða:
Kr. Ásg. Benediktsson.
V estur-lslendingar:
Þorvaldur Þorvaldsson, stúdent,
Það má vænta þess, að allir
þessir menn flytji góðar ræður.
Allir eru þeir mælsku- og gáfu-
menn og hafa þekkingu á því efni,
er þeir ræða um.
Kvæðin verða 4 í ár.
Verðlaunakvæði um “ÍSLAND“,
eftir herra Magnús Markússon,
forseta Heimskringlufélagsins og
Tjaldbúðarsafnaðarins.
“KVEÐJA frá Islandi til Vestur-
íslendinga“, eftir þjóðskáldið
Steingrfm Thorsteinson.
“CANADA“, eftir Sig Júl.
Jóhannesson.
“VESTUR-ÍSLENDINGAR“,
eftir Hjört kennara Leo.
Heitt vatn'ókeypis fyrir full-
orðna og brjóstsykur ókcypis fyrir
öll börn innan 12 ára, sem koma
fyrir kl. 11 f. h. Aðrar veitingar
verða seldar eins og að undan-
förnu.
Myndasmiður verður f garð-
inum til þess að taka myndir af
hverjum sem óskar þess. Hann
hefir ágætan myndatöku útbúnað
til þess og vonar að fólk noti tæki-
færið. Myndimar kosta 25 cents
tylftin.
Dansleikur verður að kveld-
inu og verðlaun gefin þeim, er bezt
dansa.
Yfirleitt verðvir alt svo vel út-
búið til að skemta og hressa gesti
dagsins, að nefndin hefir fulla á-
stæðu til þess að vona óftir fjöl-
menni á deginum og það {>ví frem-
ur, sem hún hefir fengið lækkun á
fargjöldum fyrir utanbœjar gesti,
sem kunna að óska að vera við-
staddir.
Að sfðustu óskar nefndin f>ess
að sem allra flestir íslendingar í
Winnipeg, sem eiga kost á að
sækja hátíðahaldið, vildu sæma
samkvæmið og tilgang þess með
nærveru sinni.
TIL ISLENDINGADAGS-
NEFNDARINNAR
2. Ágúst 1902.
Vér undirritaðir höfum lesið
kvæði þau, sem yður hafa verið
send fyrir Minni íslands 2. Ágúst
1902. og sendum þau hér með til
yðar aftur.
Álit vort er þannig:—
Af öllum kvæðunum er kvæð-
ið nr. 1 hið eina, sem laust er við
braglýti. Vér mundum hafa valið
nr. 6, ef eigi hefði þar verið þrír
formgallar, cn viðurkennum J>ó að
það er ef til vill meiri skáldleg feg-
urð í nr. 6, þar sem að hinu leyt-
inu er meiri sonarleg tilfinning í
nr. ,1 og þar af leiðandi meir við
eigandi, sem minni íslands ort í
fjarlægð, af syni þess. Samt sem
áður getum vér engan verulegan
mun þessara tveggja kvæða gert.
Til að sýna f>að, hefir einn af oss
(St. Scheving) boðist til að veita
verðlaun fyrir kvæðið nr. 6. Það
höfum vér f>egið með væntanlegu
samþykki íslendingadagsnefndar-
innar,
Winnipeg, 28. Júlf 1ÍK)2.
Björn Halldórsson;
O. Olafsson;
J. Einarsson;
S, J. Schevino;
H. Leo.
Þessir fimm menn, sem skrif-
aðir eru undir bréfið til Islendinga
dagsnefndarinnar, voru útnefndir
til að dæma um verðlaunakva-ðin
fyrir 2. Agúst í ár.
Prógramms nefndin úr Islend-
ingadagsnefndinni óskar eftir að
mega láta prenta öll kvæðin, sem
send voru sem verðlaunakvæði.
Höfundar kvæðanna geri svo vel
og láti ritara prógramsnefndarinn-
ar, Kr. Ásg. Benediktsson, vita
hvað þeir vilja gera f f>essu efni.
Mr. A. S. Elford,
umboðsmaður “New York Life”
Grand Forks N. D.
Kæri herra:—
Ábyrgðarskírteini mitt, No.
102,469, sem nú er fallið f gjald-
daga, f NEW YORK LIFE, hefir
reynst mér ábatasamt vaxtafé ekki
sfður en fjöskyldu minni í síðastl.
20 ár. hef borgað félaginu $425.60
eii 'er nú boðið $734.15 f peningum,
sem gerir í hreinan ágóða $308.55,
eða. ég get fengið frá fél. $278.15 f
peningum og samt haldið ábyrgð
minní fyrir $1,000.00 uppborgað og
rentuberandi. Þessir $278.15 eru
65% af innstæðuborgunum, og þó
hef ég haft $1,000 ábyrgð 1 20 ár f
þvf sterkasta lffsábyrgðarfi'dagi í
heimi. Eg get tæpast látið 1 ljós
ánægju mína yfir þessum árangri.
Viðskifti mín við “New York
Life” hafa verið mér bæði ánægju-
leg og ávaxtasöm. Eg tel þetta
hina beztu tegund lffsábyrgðar
sem nokknr inaður getur keypt.
Yðar einl.
F. F. Monciomerv.
KENNARA VANTAR
við Kjarnaskóla. Kensla fer ftam
frá 1. Október til 1«. Desember þ. á.
og frá 16. Janúar til Marzmánaðar
loka næstk. Umsækendur verða að
hafa kennarapróf og snúa sér til:
Gcttormdr Thorsteinson
Ser.-Treaa.
HÚSAVÍK P. O. MAN,
Rafmagnsbeltin góðu — verð
$1.25, eru tilsölu áskrifstofu Hkr,
ÍSLENDINGA-DAGURINN
2. AGUST 1902.
XII. ÁRSHÁTÍÐ
Hátíðin fer fram í Sýningargarðinum.
Garðurinn opinn kl. 7 árdegis.
Hátíðin sett kl. 9 að morgni.
Forseti dagsins : S. Anderson.
Programme:
RÆÐUR og KVÆÐi:
Minni Islands (verðlaunakvæði) ...... M. Markósson.
Ræða fyrir íslandi................... séra B. Þórarinson,
Kveðja frá Islandi til Vestur Islendinga eftir.. Stgr. Thorsteinsson.
Minni Canada......................... Sig. Júl. Jóhannesson.
Ræða Canada.......................... K. Ásg. Benediktsson.
Minni Vestnr Islendinga ............. H. Leo.
Ræða Vestur Islendingar.............. Þ. Þorvaldssón.
Hlaup byrja kl. 94 árdegis. Ræður og kvæði byrja kl. 1 síðdegis,
og þar næst stökk, hjólreiðar, aflraun á kaðli, “Baseball” og glímur.
Dans að kvöldinu.
Sú breyting hefir gerð verið við prógrammið að hjólreiðarnar verða
Þannig:
I. Ein míla (novice race).
1. verðlaun úmisti.................... $5,00
2. “ ávísun (til Aslidowns)................ 3.00
3. “ ávísun.............................. 2.00
II. Handicap fyrir alla 4 mfla.
1. verðlaun 100 vindlar................ 7,00
2. “ kassi af tobaki Canadas Own Co,.. 4.00
3. “ vindlakassi......................... 3.50
III. Ein míla (milli flokka, 3 á hvora hlið).
Verðlaun silfurbolli frá C. C. & MotorCo.. 25.00
ennfremur peysa (Swcater) frá Whitla
handa hverjum.
IV. Tvær mílur (Scratch race).
1. verðlaun silfurbolli frá McCullough &
Boswell............................... 25.00
2. verðl. gullst.áss og ávísun (til Strang)... 9.00
3. “ viudlakassi..................... 5.00
DANS.
1. verðlaun ávísun..................... 5.00
2. “ nafnmiðar....................... 4.00
Hluttðkueyrir verður tekinn fyrir stökk, hjólreiðar og glfmur, 25c.
fyrir hvern.
Inngangseyrir 25c. fyrir fullorðna, en lOc. fyrir bfini innan 14 ára.
Öllum bömum gefinn brjóstsykurpoki, sem koma fyrir kl. 11 árdegis.
Einkasölu f garðinum hefir hra. S. Sölvason.