Heimskringla - 28.08.1902, Side 1
XVI. ÁR WINNIPEG MANITOBA 28. ÁGtJST 1902. Nr. 46.
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
—Fólag eitt í Montreal heflr í
hyggju að hita upp hús bæjarins
með gufu úr pípum, er liggja skulu
6 fet undir yflrborði jarðar, eftir
götunum, á sama h&tt saurrennur og
vatnspípur eru lagðar. Þetta er ný
uppfynding og getur hitinn orðið
einkar þægilegur og ódýr, þegar
notkun hitafæranna er orðin almenn.
—Kvartað er yfir því við yflr-
völdin í índianinupolis,Ind.,að svart-
hol séu höfð þar í betrunarhúsum
fyrir kvenfólk. það eru 11 slíkir
klefar undir húsinu 7 feta langir og
4 feta breiðir; hvorki birta né loft
kemst þar inn, og stúlkur, sem
verða brotlegar við reglur stofnun-
arinnar, eru settar í klefa þessa og
haidið þar svo dögura skiftir, á
brauði og vatni.—Mál þetta er nú
þar í bæjarrétti, en óútkijáð.
—Tólf mentamálamenn og kenn-
arar fi á Englandi eru að ferðast um
Canada. Þeir komu til Manitoba í
síðastl. viku og láta vel af skólafyr
irkomulaginu f þessu landi. En
þess hafa þeir orðið varir, að i Ont-
ario er skólakensla svo illa launuð,
að það eru orðið mestu vandræði að
fá hæfa kennara, og sagt að enn sé
engin kennari fengin fyrir marga
barnaskóla þar i fylkinu, sem eiga
að taka til starfa, eftir sumarfríið,
þann 1. næsta máu.
—Kínverskt herskip, Kai Chiw,
sprakk í ioít upp á Nan King-höfn-
inni í Júní síðastl. 130 manna, er
á skipinu voru drukknuðu; hð eins 1
maður komst af. Engin veit orsök
tíl þessa óhapps, en getið er til að
gálaus meðíerð ljósa hafl orsakaðeld
í púðurgeymsluhólfi skipsins.
—Eldgos mikið varð 13.—15. þ.
m. á Torishinna-eyjunni í Japan.
Um 150 manns bjuggu á evjunni,
en létu allir lífið í gosinu og hús
þeirra brunnu. Eyjan er síðan öll
þakin eldhraunleðju og alt sem á
henni var er ýmist brunniðeða graf-
ið í leðjunni.
—-Austan-blöð telja víst að Ross-
8tjórnin í Ontarío láti ganga til ann-
ara kosninga þar í fylkinu, því hún
heflr engan meirihluta í þinginu.—
Víst má teija að Conservatívar vinni
kosningar þær.
—Opium verzlun í Kína borgar sig
svo vel, að maður einn, sem fengið
heflr einkaverzlunarleyfl á þeirri
vöru í Canton-héraðinu, heflr lofað
að borga Kinastjórn 1 millión doll-
ars á ári fyrir það.
—Tveir hópár at mönnum með
hesta og áhöld eru nú að vinna á
Oak Point brautinni- 10 hestapör-
um verður bætt við í þessari viku.
—S. D. Mann, meðeigandi Cana-
dian Northern brautarinnar, segir
farþegjalestir gangi nú daglaga báð-
ar leiðir milli Port Arthur og Win-
nipeg. Viðvíkjandi flutningi korn-
togunda út úr fylkinu kvað hann fé-
lag sitt þegar hafa flutt 9 millíón
bush. af síðasta árs hveiti, austur til
markaða og að nú gæti félagið flutt
14 millíónir bush. af þessa árs hveiti
Hann kvað félagið hafa ráð á 25
gufuvögnum og 800 flutningsvögn-
um til vöruflutninga. í fyrra hafði
félagið korngeymsluhlöður, sem
rúmuðu 2 millíónir bush,, en nú hef-
ir það rúm fyrir 6 millíónir.
—Persa keisari kom í kynnisför
til Englands í þessum mánuði. Svo
segja brezk blöð, að ekki hafl Engl-
ar áður séð nokkurn mann prýddan
svo miklu af dýrmætum gimsteinum
eins og hann, og svo hafi allir hirð-
menn hans verið búnir, sera væru
þeir voldugir þjóðhöfðingjar.
—Bæjarstjórnin í Paris á Frakk-
landi heflr samþykt að takmarka
ekki hæð bygginga S aðalverzlunar-
parti borgarinnar. Hún hafði feng-
ið margar beiðnir um að mega reisa
15 lofta hús í þessum parti bæjarins
og var það leytt landeigendum.
—Einhver gamansamur náungi
sendi rýlega ofurlitin poka á póst-
húsið í Pittsburg, Pa. Þegar hann
var opnaður, kom úr honum undur
af flóm og settust margar þeirra á
póstþjónana, sem hættu strax vinnu
til að geta klórað sér. Póststjórnin
bað tafarlaust yflrvöldin að hefja
rannsókn í þessu máli og hegna þeim
sem sent hefði flærnar, ef hann
flndist.
—Ný aðferð til að geyma ost ó-
skemdan um óákveðin tíma heflr
verið reynd í Ottawa, og er innifal
in í því, að dýfa ostinum í bráðið
paraffin vax, sem syo myndar þunt
hulztur utan um ostinn og geymir
hann óskemdan og ver myglu og
möðkura um óákveðin tíma.
—Andrew Carnegie heflr gefið
$25,000 til að tyggja bókhlöðu í
Dawson City.
—Mr. R. L. Borden, leiðtogi Con-
servatívaflokksíns í Canada, og aðrir
leiðandi menn í þeim ttokki, ætla
að ferðast um Manitoba og
Norðvesturlandið í næsta mánuði.
—Roosevelt forseti er að ferðast
nm Austur-Bandaríkin til að kynn
ast þegnum sínum og búa undir
næstu forsetakosningar, samkvæmt
ósk forsetans verða honum ekki
ha.'dnar neinar opinberar veizlur á
þessu ferðalagi. Atlir sem vilja,
mega sjá hann, en ekki vill hann
hafa neitt með handabönd að gera,
hvorki til að heilsa eða kveðja.
—Tyrkjasoldán heflr ritað sendi-
herra Bandaríkjanna í Constantino-
pel vingjarnlegt og auðmjúkt bréf
og lofar að jafna bráðléga öll ágrein
ingsmál, sem nú eru á dagsk>á milli
Tyrkja og Bandamanna.
—Nokkrir menn hafa um undan-
farinn tíma verið að bora eftir olíu
hjá Birds Hill, nálægt Winnipog.
Þeir hafa fundið olíuna, en í svo
smium stíl, að það borgar sig ekki
að vinna við hana. En þeir hafa
fundið salt þar niðri í jðrðunni og er
talið víst að það só nægilega mikið
til að geta orðið verzlunarvara.
—Tvær persónur í Quebec giftust
I síðastl. viku. Brúðguminn var 75
ára, en brúðurinn 76 ára. Hvorugt
hafði áður gifzt.
—Róstur miklar hafa verið á
Frakklandi um undanfarnar nokkr-
ar vikur út af tilraunum stjórnar-
innar að afnema hina svonefndu
nunnuskóla þar. Herlið heflr ver-
ið sent til ýmsra staða, til þess að
kúga nunnurnar til hlýðni.
—Kona ein var nýlega tekin föst
í Ownesboro Ky. fyrir að búa tíl
Whiskey en þegar hún kom f Dóm-
húsið þá komst hún ekki inn um dyr-
nar á sjálfum dómsalnum. Beiðni
var tafarlaust send til Waehington
um að mega prófa mál hennar undir
beru lofti. Konan er aðeins flmm
fet og 5 þuml. á hæð en svo er hún
íeit að hún vigtar 430 pd.
—Frá Minneota er ritað að miklar
rigningar hafi gengið þar og gert
stórskemdir á hveiti, sem var í hrauk-
um á ökrum bænda í íslendingabygð-
ir.ni, en þó sérstaklega á hörfræi sem
mest var slegið og lág flatt og verð-
ur að mestu ónýtt ef ekki skiptir
bráðlega til þurka.
—Washington stjórnin heflr á kveð-
ið að hér eftir skuli hver heildsölu-
sali sem verzlar með oleomargarin
smjör borga $480 árlegt leyfl, en
smásalar $48 á ári; þessutan er ann-
ar stjórnarskattur á þessu ógerðar
viðbiti; í Canada er innflutningur
þess fyrir boðin með lögum.
—Nokkrir flskimenn fundu ný-
lega í Messina sundinu 2 fallbyssur
af spönsku lystiskipi; þær voru úr
eir, og báru ártölin 1640 og 1632.
Sllan var fengin kafari til að kanna
fljávarbotninn þar og fann hann
J skipið og ýmislegt, sem á því hafði
verið. Tilraun verður gerð til að
koma því að landi, og vænta menn
að þar flnnist mikil auðæfl.
—Frétt frá Kína segir keisara-
ekkjan þar hafi skipað að láta taka
umbótamanninn og mannvininn
Kung-Yu-Wei af lífl.
—Vatn hljóp f 900 feta djúpa
námu hjá Rossland, B. C. í þessari
viku. 4 menn unnu f námunum, 2
mistu lífið, en 2 komust með illan
le ik úr henni.
—Hon. Joseph Royal, fyrrum
fylki8stjóri yfir Norðvesturhéruðun-
um, andaðist í Montreal 24. þ. m.
Hann dó úi afleiðingum af uppskurð
til að ná steini úr gallinu.
-'-Can. Pacific jáinbrautarfélagið
lætur þess getið, að ef það geti ekki
komist að samningum við biezku
stjórnina um styrk fyrir að byggja
hraðskreið gufuskip til að ganga
milli Canada og Englands, þá ætli
það að láta smíða skipin á eigín
reikning og keppa svo við hveija
aðra hi aðskreiða línu, sem sett veroi
á Atlantshaf. Enda sé nú staifsvið
félagsins oiðið svo mikið, að það
megi til með að eiga skip á Atlants-
hafi.
— Lyfsali einn á Frakklandi, að
nafni Dauvai, var dæmdur til líf-
láts árið 1877 fyrir að hafa drepið
konu sína á eitri. Dauðadóminum
yar síðar breytt í æfllangt fangelsi
og Dauval var sendur í fang-rný-
Frakka í Nýju Caledoniu. Nú rétt
nýlega eru fengnar fullar sannanir
fyrir því, að maður þessi var sak
laus af konumorðinu, og heflr því
verið látinn laus eítir 25 ára fanga-
vi3t. Hann hafði komið sér svo vel
í útlegðinni, að yflrvöldin leyfðu
honum að giftast aftur. Nú snýr
hann til Marsaelles með seinni konu
'sína og 3 börn þeirra hjóna. Frakk-
ar hafa byrjað gjafasöfnun handa
manni þessum með því augnamiði,
að gefa honum lyfjabúð í miðri Mar
seillesborg.
— Canadastjórnin heflr bætt þeim
ákvæðum við innflutningslög ríkis-
ins, að ekki skuli þeim innflytjend
um leylð landganga, sem sannað er
að haíi hættuloga smittandi sjúk-
dóma. Innflutningar hafa svo mjög
farið vaxaudi á síðari árum, að
stjórnin álítur nauðsvnlegt að vanda
sem mest val þess fólks er hingað
flytur.
—Gasbrunnur hefir fundist hjá
Peiican River f Athabasca-héraðinu
norður frá Edmonton. Loginn úr
þeim brunni stóð 85—100 fetí loít
upp og eyðir þó ekki hundraðasta
parti af því gasi, sem fer þar til ó-
nýtis. Maður sá, er fann brunn
þenna, telur vfst að gnægð af stein-
olíu sé víða f því héraði, og kveðst
muni leita hennar að ári. Enn
fremur álítur hann að olfa sé fáanleg
í Edmonton, með því að bora eftir
henni 3000 fet niður, og heflr hann
þegar fengið menn til að takast það
verk á hendur tafarlaust, Gasið í
Athabasca segir hann ekki verði
notað að svo stöddu, þvf það sé svo
langt út í óbygðum, en kostnaður-
inn við að leiða það gegnura 2
þuml. járnpípu sé $10,000 á hverja
mflu.
—4 menn hafa látist af eldingu í
Manitoba í þessum mánuði; 3 Gali-
ciumenn hjá Rosthern og 1 Mennon-
iti hjá Hague.
IsLAND.
Eftir Fjallkonunui.
Reykjavík, 29. Júlf 1902.
Alþingi var sett á laugardaginn
26. Júlf. Konungur hafði sent
boðskap til þingsins, er landshöfð-
ingi las upp. Að J>ví búnu kvaddi
landshöfðingi hinn elzta þinginann
Sighvat Árnason, til að taka for-
sæti, en Sighv. tók sér til aðstoðar
Lárus Bjarnason og Hannes Þor-
steinsson. Þvf næst gengu þing-
menn í 3 deildir, til að rannsaka
kjörbréfin. Spunnust á eftir all-
lungar og heitar umræður um kosn
ing Skúla Thoroddsens í Isafjarð-
arsýslu, og var þó engin tillaga
gerð um að ógilda kosninguna eða
að fresta að samþykkja hana, og
snerust umræðurnar mest um það,
hvort nokkuð hefði verið ólögmætt
eða hegningarvert af kjósenda
hálfu við kesningarnar. Auk lög-
framsögumanna þeirrar kjördeild-
ar er hafði kjörbréf Sk. Sh. til með
ferðar. Lárus Bjarnasonar, tóku
til uiáls Skúli Thoroddsen, Guðl.
Guðmunds'sen, Kristján Jónsson
og Júlíus Havsteen.
Loks er öllu þessu J>ófi var lokið,
var gengið til kosninga og var Ei-
rfkur Briem kosinn forseti sam-
einaðs Jiings með 32 atkv., Júl.
Havsteen fekk 1 og Hallgr. Sveins-
son 1. Skrifarar f sameinuðu
þingi Hannes Þorsteinsson 21 og
Lárus Bjarnason 19. Sig. Stefáns-
son fekk 16 og Guðl, Guðmunds-
son 14. Til efri deildar voru kosn-
ir Sigurður Jensson, Guttormur
YigfúsSon, Guðjón Guðlaugsson
og Josafat Sónatansson með 34
atkv. hver, Eggert Pálsson með 33
atkv. og Skúli Thoroddsen með
18. Bjöm Kristjánsson fekk 14
og fáir aðrir, 1—3 atkv.
Foi’seti neðri deildar, Klemens
Jónsson með 22 atkv. Þórh. Bjarna
son fekk 1.—Varaforseti Þórhallur
Bjarnason með 22 atkv. Tryggvi
Gunnarsson 1. — Skrifarar: Árni
Jónsson 23 atkv, Jón Magnússon
22.—Guðl. Guðmundsson fekk 1
atkv.
Forseti efri deildar Árni Thor-
stoinsson með 11 atkv. Varafor-
seti Guðjóu Guðlaugsson með 6
eftir ondurtekna kosningu; Kristj-
ánJónsson fekk4atkv. Skrifarar
Sigurður Jensson og Eggert Páls-
sr»
Fundinum var ekki lokið fyr en
kl. að ganga sex; ollu þvf hinar
löngu umræður um Isafjarðarkosn
ínguna,
Um kveldið skemti lúðrafélagið
þingmöununum og öllum almenn-
ingi f þinghúsgarðinum.—Yar veð-
ur hið fegursta og skemtu menn
sér hið bezta. Þannig endaði þessi
fyrsti dagur þingsins i fegurð og
fögnuði eg vonum vér, að það viti
á gott.
Fiskiafli hefir vcrið góður hér f
vor á opna báta, og gæftir. Verst
er livað fáir róa hér á snmrin J>ó
gnægð sé fiskjar alveg uppi undir
landsteinum.
Látinn er hér f bænum 25. þ. m.
uppgjafaprestur Þorkell Bjama-
son frá Reynivöllum. Hann var
hinn mesti merkismaður, en hafði
nú í nokknr ár þjáðst af heilsu-
leysi.
FIRST NATIONAL BANK.
B. VAN SLYKB, FORSETI.
E. FULLER, VARA-FORSETI.
Madison, Wis., 14. Jan. 1902
i( Esq. President,
York Cit.y.
John A. McCal:
Nev,
Kceri herra:—
Vér hefum fengið sundurliðaða skýrslu yðar fyrir síð-
astliðið ár. Vér getum ekki annað en dáðst að vexti félagsins,
sem skýrslan áreiðanlega sýnir, og sem ekkert annað félag
jafnast við.
Vér tökum eftir því, að eignir þær, sem félagið hefir stofn-
að fé sínu f, hafa hækkað að mun í verði og eykur það trygg-
ingu allra viðskiftamanna þess, með þvf eignirnar em allar
af beztu tegimd. Og satt að segja höfum vér í undanfarin
nokkur ár haft skýrslur yðar sem fyrirmynd f vali okkar á
eignum sem bankinn liefir varið peningum sfnum í.
New York Life ábyrgðarfélagið getur vel staðið við að
segja allan sannleikan um starf sitt. Alt of margar ábyrgð-
arstofnnair segja bara part af sannleikanum.
Yðar með virðingn.
N. B. VAN SLYKE, forseti,
€1. Olafson, J. 11. iTloixan. Manager,
AGENT. GRAIN EXCHANGE BUILDING,
w x nsr jsripe g-.
lagði samdægurs af stað til íslands.
Sömuleiðis Miss K. Johnson skerati
ferð til Reykjavíkur; bæði væntanl.
aftur í haust. Mr. Arnói Arnason,
með konn og dóttur er nýfarinn til
Winnipeg og annara fieiri staða, býst
við að verða 3—4 vikur. Mrs. J.
Thordarson, með móður og tvö börn,
og Miss R. Magnúson til Wisconsin
og víðar.—Aðrir halda sig að mestu
leyti innan vébanda borgarinnar og
verða að þola hita og þunga dagsins.
Þetta er alt, sem ég get um þá sagt
en ekkert veit ég þó til hliðar lagt,
en seinna meir ef sé ég eitthvað fleira
ég sezt þá niður "strax” og læt þig
heyra.
Homo.
CHICAGO 30 Júlí 1902.
Fáar eru fréttir héðan, friður og
ró hvflir yflr félagslífl landa vorra,
svo að ekkert verður um það sagt.
Kyrkjulffið var hér með fjörugra
móti síðastliðinn vetur—nóg af guð
fræðingum og mikið af messum.—
Séra Jón Clemens lauk hinu æðra
próft við prestaskólann hér, og áður
en hann fór héðan, gerðu nokkrir
vinir hans samskot og gáfu honum
hempu sem mínnismerki fyrir dugn-
að á mentaleið hans og góða fram
komu meðal landa.
Cand. theol. Pétur Hjálmsson
messaði hér oftast og líkuðu ræður
hans alment mætavel. Þriðja guð-
fræðinginn höfðum við, Kristinn
Olalsson, ungan og efnilegan mann,
sem einnig stundar nám hér í sumar
við æðri mentastofnun í bænum
Þegar nú hverjar 20—30 sálir
hafa prest, flnst mér að þær ættu að
verða góðar, enda er nú sjón sögu
ríkari.Jþvf að slðan hætt var að messa,
hafa íslendingar ekki haft neina
skemtisamkomu.—Nokkrir hafa far
ið burt úr bænum um leDgri eða
skemri tíma. Ólafur Jónsson Ólafs
sonar ritstjóra lauk prófl við h&skóla
hér um síðustu mánaðamót og
Samtíningur.
I
Nú er stundað bezt Og bætt
bú að Helgafelli,
taðkláfamir gátu grætt
grænkuna Jiar á velli.
Undrast menn livað mykjan lér
makalausan gróður,
Töðufallið talið er
tíu kúa fóður.
Fjósakonan flautúm á
fyllir sig f vetur;
kýmar gamla Kórmak hjá
kálfana fæða betur.
II
Sefar hitann sólarlag
svölun flytur löngum,
þverrar strit við þrotinn dag.
þornar sviti af vöngum.
III.
Engann góðann ávöxt ber
áköf trúarræða;
deila um það sem dulið er
dugar ei til að fræða.
Það er furða, þeir sem nú
þykjast veginn rata,
síklifandi sína trú
saurga mest og ata.
Vanaþrætur vinna smátt
Verkin gilda meira.
Oft vill trú sem liggur lágt,
láta til sín heyra.
S. S, Ísfeld.
talaði þar als ekkert um kristindóm-
inn; það var guðstrúin’ sem fyrir-
lesturinn gekk út á og hvað heirn-
spekingar og n&ttúrufræðingarnir
hefðu að segja um hana með og mót,
en þetta var, sem menn mega rainn-
ast, gert eingöngu frá kristil. sjónar-
miði, og fyrirlesturinn trúvarnar-
legs (apologetisk) en als ekki trú-
hrundningslegs eðlis, jafnvel þó svo
skýrt, sem hægt var, teknar væru
fram mótbárnr nokkurra vísinda
manna, og sérstaklega þá efneskju-
spekinganna (materialistanna) gegn
guðstrúnni, sem ég jafnharðan reyndi
að hrekja.
Mér komu því þessinefndu um-
mæli um fyrirlestur þenna undar-
lega fyrir, og ltkar þau yfirleitt
ekki, bæði sökum þess að ég við
þetta tækifæri als ckkert amaðist
við krLtindóminum, og svo hins
vegna, að ég yflrleitt flnn enga köll-
köllun hjá mér til þeís, jafnvel þó
ég, sem margir fleiri, kunni að hafa
ýmis'egt við kyrkjuna að athuga er
gengur undir Krists merkjum, eða
heldur kyrkjurnar, hinar sí og æ
munnhöggvemdisk kyrkjur, vænandi
hverar aðrar villutrú og villnkenn-
ingum, en út í þá sálma fór ég held-
ur ekkert í þessum umrædda fyrir-
lestri mínum.
Málkunningi minn óskar að ég
l&ti prenta fyrirlestur þenna, það
geri ég ekki að svo stöddu; en fús er
ég til, svo sem ef ég kæmi inn í
Winnipeg í haust — sem ég geri ef
fólk mitt kemur að heiman þangað—
að fiytja þenna sama fvrirlestur fyr-
löndum mínum þar, ef þeir vilja láta
svo lítið að koma og hlýða á. Efnið
er ekki svo þungt sem sumir kynnu
að ætla.
p. t. Brú P. O. Argyle 18- Aug. 1902
Stefán Sigfússon.
Herra ritstjóri.
Gerið svo vel og og veita eftir
fylgjandi línum viðtöku í blað yðar:
Eins og ég get verið m&lkunningja
mínum, herra S. Benediktssyni í
Selkirk, þakklátur fyrir það, að hann
mat fyrírlestur minn þar sfðast um
“trúna og vantrúna” þess verðan að
geta hans með lofl heldur en iasti f
opinberu blaði, eins get ég á hinn
bóginn ekki þakkað honurn það, að
hann kveður mig við það tækifæri
hafa larið þeim orðum um kristin-
dóminn, að ég spáði honum bráðum
endi, eða & þá leið. Þetta er sem sé
als eigi rétt hermt, ég vona að aðrir
þar viðstaddir minnist þess, að ég
Blaðið ”Free Lance" Innísfail
Alta. dags 7. Ágúst flytur svolát-
andi grein: Laugardagurinn f sl.
vjku var h&tíðisdagur Islendinga
við Tindastóll. Það var þjóðhátíð
þeirra. Samkvæmið var haldið á
fagurri hæð og var þaðan ágætt út-
sýni yttr sveitina-það var reglulegur
Alberta sólikin^dagur og alt h&tíða-
haldið fór ágætlega fram, þrátt fyrir
lítinn regnisskúr, sem gcði um
kveldið. Af ræðupallinum blakti
fáni Danmerkur að viðbættri ísl.
stjörnunni.það var gjöf til íslendinga-
dagsins frá herra Jesse Stewart í
Innistail. Kæðupallurinn var Bettur
fögrum lundi umhringdur Poplar
tr&m, sem skyldu fólkinu frá sólar-
hitanum. Meðal ræðumanna voru
þeir herra St. G. Stephansson C.
Christiánson, Christian Johnsson, J.
Húnfjörd, J. A. Simpson, þingmaður
og G. W. West. Meðal skemtana
var mjög unaðasríkur söngur. Oss
þykir fyrir að geta ekk birt nöfn
þeirra er sungu, og hjálpuðu á þann
hátt til að auka skemtun dagsins.
Tindastóll leikflokkurinn skemti
með ágætlega spiluðum lögum með-
an dansinn fór fram, og allir skemtu
sér hið bezta frá morgni til kvelds,