Heimskringla - 04.12.1902, Page 1
New York Life Insurance Co’y.
JOHN A. McCALL, president. *
f>Ann 11. Janúar 1882 tók hra, Chas, T. Strauss, í New York bore,
810,000 00 lífsábyrgö í Kew York Lite felttginu meö 20 ára af-
borgnnarsamningi.
Sama mánaðardag 1902 átti hann völ á eftirtöldum 4 tilboöum:
1. aðfáTiu þúsund dollars útborgaða í peningum og 8351.42 ár-
lega meðan hann lifði.
2. að fá 815,292 40 út í höud i peningum.
3. að fá $30,080.00 borgaða til erfingja hans að honum látnum.
4. að fá $1 088.82 árlega borgun meðan hann lifði.
Hann kaus tilboð No. 2, þá 50 ára gamall. Tók svo aðra $10 000
lifsábyrað hjá áetv York l.ife.
Nú eru íslendingar farnir að gjðra það sama, Neer 200 þeirra hafa
þegar trygt lif sitt í Yew York Life fólaginu á rúmu ári.
C. Olafson, J. 14. Norgan. Manager,
AGENT. GRAIN EXOHANGE BUILDING,
w i isr jst ipeg-.
Fregnsafn.
Markverðnstu viðbnrðir
hvaðanæfa.
—Harðkol I Pennsylvania, sem
selst hafa fyrir $3 50 tonnið I v«gn-
unum við námurnar, kosta nú $7.50
til $8 00 tor.nið þar. Verkstæðaeig-
endur frá New York og Philadel-
phia hafa verið þar á staðnum um
nokkurn undanfarinn tíma og
sprengt upp verð kolanna. Þeir
kaupa alt sem þeir geta fengið af
þeim á þessu verði. Það má því bú
ast við verðhækkun her og annar-
staðar í fylkínu.
—Bretar og Þjóðverjar eru i
undirbúningi með að senda út herleið-
ingar á hendur Venezuela rikinu til
að heimta borgun á skuld, sem þess-
ar þjóðir þykjast eiga hjá Venezuela:
—Tyrkj soldán heflr keypt $4
millón virði af skotvopnum. Hann
býst við að þurfa að nota þau mót
Maccadonia og máske mót Rússum, í
mjög nálægri framtíð. Enginn veit
hvaðan karl fær peninga til að borga
þessa upphæð.
—Bfezka stjórnin er að láta gera
umbætur á varnarvirkjum við Esqui
malt í B. C., með þeim ásetningi að
gera staðinn óvinnandi fyrir nokk-
urn óvinaher.
—Joseph Martin lætur þess getið
að hann muni vinna rnóti Priorstjórn-
inni nýju í British Columbia og
reyna að fella hana.
—Ontariobúar greiða atkvæði uui
vínbann þar í fylkinu á morgun
þann 5. þ. m.
—Liberal vinir stjórnarformanns
Ross f Ontario, eru að skjóta saman
$50,000 sjóði, sem þeir ætla að gefa
honum. Hann heflr svo sem enga
fieirtölu f þingi og þaif því að fá sér
nýja fylgdarmenn, hvað sem þeii
kosta:
—Fséttir frá fínglandi segja að
Joseph Chamberlain sé á leið til
Suður-Afríku og að hann ætli að eiga
góða daga á leiðinni suður: Mesti
fjöldi af lifandi sauðfé og fuglum var
flutt um borð í skip hans, svo nýtt
kjöt geti verið á borði við hverja
máltíð. Fiéttin segir hann hafi tek-
ið með sér $2,500 virði af sælgæti
til að neyta með kjötinu við máltíðir
og að auk 300 kassa af vfntegund-
um; það munu vera 24 flöskur í
hverjum kassa eða als 7,200 flöskur.
Verði Chamberlain að heiman um 3.
mán. tíma, þá hefir hann áð jafnaði
60 flöskur á dag, og ætti það að vera
nægilegur forði. Annars eru slíkar
sögur í blöðum, um það, sem má
virðast að vera framúrskarándi óhóf
einkanlega í mat og diykk, bæði
heimskulegar og hneykslanlegar og
blátt áfram skaðlegar, þær vekja ó-
vild almúgans til slíkra óhófsseggja,
og skapa anarkismus fiekar en flest
eða hokkuð annað.
—Efnn írskur þingmaður var ný-
lega dæmdur í Lundúnum f 3. mán.
fangelsi fyrir samsæri.
—Vetrarkuldar í Frakklandi og
öðrum Evrópulöndum eru taldir
þeir mestu sem þar hafa komið í 50
ár. Sama frétt kemur frá Þýzka-
landi og-Austurríki.
—Dóttir Leopold konungs sendi
honum lukkuósk, er hún frétti að
hann hefði komijt undan anarkista
þeim, er skaut á hann um daginn.
En svo er konungur reiður við dóttir
sfna að hann svaraði henni ekki.
—Frétt frá Gautemala segir eld
gos á Santa Maria hafa orðið 5,000
manna að bana og gjöreytt stóra
landfláka, mest kafíi akra; ýmsir
kafíiakrar, sem virtir voru á millión
dollars hver, og sumir miklu meira,
eru nú gersamlega eyðilagðir.
Mest af ökrum þessum lá þó í 20 til
40 mílna fjarlægð frá eldfjallinua.
—Admiral Dewey er orðinn æðsti
flotastjóri Bandarfkjánn.
—Ríkisféhirðir Þýzkalands gat
þess í þinginu í síðastl. viku, að
þessa árs sjóðþuið næmi 37-J mill.
marka.
—Lagafrumvarp var nýlega borið
upp í Brezka þinginu til þess að
heimila Edward konungi að gefa
þjóðinni Osborne kastalann. Stjórnin
játaði að gjötin væri ekki f samræmi
við óskir hinnar látnu drottningar,
og að þess vegna væri nauðsynlegt
að veita konunginum lagaheimild til
að afsala sér eigninni í hendur þjóð-
arinnar.
—Breti einn í British Columbia
hefir fundið upp nýja öfluga drátt-
vél, I líkingu við hest, með 4 fótum,
og einnig með 4 bjólum. Hún e'
ætluð til að draga þung hlöss á van-
alegum brautum þótt ósiéttar séu.
Hún er talin ágætt verkf'æri.
—600 bðrn gerðu námsíall í ein-
um at Chicago skólunum þanD 20. f
m. af því að ekkert drykkjarvatn
var fáanlegt þar. Heilhrigðisnefnd
borgarinnar hafði skipað að loka
vatnspípum þeim er í þenna skóla
höfðu verið leiddar, og f tilefni al
þessu fengu börnin þar ekkert vatn,
en þeim var sagt að innan 3. mán
aða fengist vatnið aftur. Börn úr
20 herbergjum komu saman og ræddu
mál þetta og ákváðu að ganga ekki
á skóla þar til skólastjórnin væri
búin að leiða hæfllegt vatn í skólann
Þau bjuggu sér til fána og rituðu á
hann “fíkkert nám án drykkj
a r v a t n s ”, og báru hann svo á
stöng um götur borgarinnar.
—C. N brautin var fullgerð til
Neepawa fyrir nokkrum dögum, af
leiðingin var að nokkrir bændur,
sem fluttu hveiti sitt þangað, fengu
talsvert betra verð fyrir hveitið en
áður var þar f bænum eða grendinni.
Þeir þakka Roblinstjórninni þetta,
eins og líka er réttlátt.
—George Strivel hefir tekið að sér
að höggva 50 þús. járnbrautarbönd í
vetur fyrir C. N. járnbrautarfélagið,
övæði það, sem hann vinnur á verð
ur í Ontario, 50 mílur austur frá
Fort Frances.
—Kaupmenn segja kafíi muni
hækka í verði f tilefni af skemdum,
sem urðu á kaftiökrum vegna jarð
skjálfta í þessum mánuði.
—Grand Trunk brautarfélagið
auglýsir að það ætli að byggja braut
gegnum Manitoba og Norðvestur-
héruðin, vestur að hafl, í nálægri
fiamtíð.
—Ottawastjórnin heflr veitt auð
mannafélagi f Esscx County f Ont.,
einkaleyfi um 21 árs tfma, til þess
að reka fiskveiðar í James Bay, sem
liggur inn af Hudjonsflóanum.
James Bay er 400 mílur á lengd og
200 mflur á breidd. Með þessari
einokun er bygt fyrir það að al-
mennir flskimenn geti leitað sér þar
atvinnu á eigin reikning, og um leið
hindruð bygg ing landsins þar nyrðra.
Flói þessi er bókstaflega fuilur af
alskyns veiðmætum flski. En sú
bji'irg er héðan af bönnuð um 21 árs
tíma öllum nema þessum fáu liber-
um*frá Essex. Þetta er alment af
blöðum ríkisins talin eiu hin hættu-
legasta einokunarstofnun, sem mynd-
uð hefir verið í Canada, og marga
furðar á að stjórnin skyldi ljá lið sitt
til þess.
— Svo hafa peningarán af járn-
brautalestuni verið tíð og stórfeld
nú um sundanfarin tíma í mið og
vertur-Bandaríkjunum, að Express
og járnbrautafélög þar eru farin að
bjóða $1000 fyrir hvern dauðan
ræningja og $5000 eru boðnir hverj
um f>eim sem komi undir manna-
hendur ræningjum þeim, sem ný-
lega ræntu Chicago og Rock Is-
land brautarlest og tóku þaðan fé
mikið, Brautarfélögin eru farin
að vopna alla jámbrantarþjóna
sfna, sem vinna á flutningslestum
og örfa þá til aö æfa sig f skotlist,
og bjóða peim svo $1000 fyrir
hvem ræningja sem þeir geti
drepið
—Þýzkt auðmannafélag hefir
myndast til að nema harðkol á
Spitzbergen-eyjum. Þar hafa ný-
lega fundist ágætar kolanámur.
Sýnishom kolanna hefir verið
fiutt til Berlfnar og þar rannsakað
og álitin bezta harðkolategund.
Capt. Wismar, sá er fann kolalagið
segir ógrynni mesta vera af þeim á
eyjunum. Félagið hefir þegar sam-
ið um flutning á kolum þessum til
allra aðal-kolakauptúna í Evrópu,
þar sem þau eiga að komast í sam-
keppni við Welsk, skotsk og ame-
rísk kol.
—Grand Tmnk brautarfélagið
augl/sir, að það selji þúsund mílna
farbréfabækur fyrir $25.00. Það
er Jc á mílu hverja.
—Krupp stórskotasmiður, sem
andaðist á Þýzkalandi ffrir nokkr-
um dögum, var 46 ára gamall.
Yerksmiðjur hans voru metnar á
$75.000 og skuldabréfaeignir hans
er ætlað að nemi annari eins upp-
hæð. Hann liafði 55.000 verka-
menn í þjónustu sinni.
Nýjar járnnámur hafa nflega
fundist í Sault Ste. Marie héraðinu
í Ontario. Þœr eru sagðar vfðáttu
mestu jámnámur f Canada.
—Hraðskeytasendingar til dag-
blaðanna milli Canada og Ástralfu
kosta með nýja sjóþræðinum 22c.
hvert orð. Það er sagt að vera
hálfu minne en áður var. Prívat
hraðskeyti eru nokkuð dýrari.
—Nýtt félag, nefnt “Canadian
Order of Oddfellows“, liefir verið
stofnsett f Winnipeg Fyrsta stúk-
an hefir 59 meðlimi. Það er bygt
á svipuðum gmndvelli eins og I.
O. O. F. félagið. Herra John J.
Vopni er einn af stofnendúnum og
embættismönnum stúkunnar.
—Eldur inikill varð í bænum
Norman hjá Rat Portage f Ont. f
fyrri viku eg gerði nær fjórðung
millíón dollars eignatjón,
—Félag eitt hefir keypt 1 millf-
ón ekm land í Mexico, áfast við
Bandaríkjalandamærin, Spilda
þessi er 4000 ferh.mílur og kostaði
21 uiillíón dollars. Auðmenn í
Utah og öðrum Bandarfkjum
mynda félagið. Landið á að not-
ast til griparæktar og verður með
stærstu hjarðlandaspildum í heim-
inum,
— Skýrslur járnbrautafélaga í
Manitoba sýna að þau hafa f ár
gert fimmtungi meiri flutninga
en á nokkra undangengnu ári.
—Marcorii segist vera við þvf
búinn áð senda fréttir frá Ame-
rfku til Englands á örf ium tfmum
með sfnum loftsendinga útbúnirigi
— Maður einn í San Franciscó,
hefir tekið að sér að finna og ná úr
sjó $1,600,000 virði f peningum og
auðæfum sem voru á skipi, sem
sökk þar úti fyrir hafarmynninu
fyrir 40 áram. Mikil leit hefir
verið gerð eftir legustað skips
þessa, en það hefir aldrei fundist.
Nú lofar maðurþessi að fiuna það,
segist vita upp á hár hvar það sé,
og að koma auðæfunum ofansjáv-
ar,
—Nokkrir Galiciumenn í Fort
William réðust með bareflum Og
grjóti og hnífum og exi á Rúss-
neskan mann, Stefan Redbuk, og
börðu hann og grýttu til bana. A-
stæður eru ósagðar.
í tilefni af frétt þeirri sem nú
er borin út á íslandi, að þeir Sig-
urður og Halldór Arnasynir frá
Ilöfnum á Skagaströnd I Húna-
vatnssýslu nafi verið hengdir fyrir
glæpi framda f Canada. heflr sá síð-
arnefndi beðið Heimskringlu að
birta eftirfarandi vottorð sem honum
var gefið dagÍDn áður en hann
kvaddi ísland. Það er svo hljóð-
andi: •
’íSamkvæmt ósk Halldórs Árna-
sonar, er hjá mér heflr verið skrif-
ari I næstliðin liðug 3 ár, lýsi þvf
hér með yflr, að nefndur Haildór
heflr þennan tíma verið mér trúr og
dyrggur þjónn í öllu því, er ég hefl
látfð hann starfa.—Hann ritar ágæt-
lega fallega hönd og vegna langrar
æfingar, sem sýsluskrifari, bæði hjá
mér og Lárusi sál Blöndal, er hann
prýðilega heima í öllu þvf er að
skiifstofustöifum lýtur og mjög
vandvitkur á alt sem hann starfar
aðj og röskur að þvf skapi.
í öllu dagfari sínu er Halldór
lipur og hinn siðprúðasti í allri
framkomu sinni heflr hann verið
gagnyaat mér og heimili mfnu.
Blönduósi 31. ágúst 1901
Cisli Isleif8Son.
Sýslumaður í Húnavatnssýslu.
WINNIPEG.
Tombóla og dans verður
lialdinn þann 9. þ. m. kl. 8 að
kveldinu í North West Hall. 1
dráttur 25c. Dansinn frf.— Kaffi
með brauði lOc. Johnson’s
String Band spilar.
Nokkrar ungar stúlkur standa
fyrir þessari samkomu, og vona að
piltar komi.
Alex Haggard lögmaður sækir
um skólanefndar stiiðu fyrir Ward
2 og er talinn viss að fá hana.
Georg A. Lister sækir um
sömu stöðu fyrir Ward 4. Hann er
maður f bezta máta vaxinn þvf em-
bætti. Hann hefir dvalið mörg ár
í Winnipeg. Hann varum tveggja
ára tíma ýfirkennari við Dufferin
skólan, og síðar, skrifstofustjóri
fyrir John Arbuthnot, og nú síðast
er hann framkvæmdastjóri fyrir
Keewatin Lumber-fðlagið hér í bæ,
svo að liann hefir alla þá þekkingu
og liæfileika, sem nauðsyniegt er
að skólanefndarmaður hafi, en sem
þvf miður alt of fáir þeirra hafa.
Mr. Lister fær efalaust mikið fylgi
kjósendanna.
Dr Inglish, hér f bœ, fór f
þessari viku til Chicago til að lære
að nota hina nýustu og fullkomn-
ustu X-geislavél sem þar er f borg-
inni. Hann kaupir um leið eina
af vélum þessum til að nota hér
við læknisátörf sfn.
Mrs. E. Sumarliðason frá
Gladstoné Man., hefir tekið að sér
umboðsstöðu fyrir ”National Bodv
Braceu félagið í Salina Kansas.
U. S. Hún hefir dvalið hér f bæn-
um nokkra daga og býzt við að
verða hér fram að 15. Jnæsta mán.
til að selja bönd þessi, sem talið er
að lækni veikleika meltingarfær-
anna, og styrkji allan líkamann.
Þau hafa reynzt vel, þeim sem hafa
brúkað þau.—-Mrs. JSumarliðason
hefir vottorð 'ýmsra ‘vel þektra
lækna um ágæti þessara lianda.
Hana er að finna að 754 Elgin
ave., frá kl. 6—9 á kveidin meðan
hún dvelur f bænum. Þeir sem
þjást af ofangreindum kvillum,
ættu að finna Mrs, Sumarliðason
meðan hún er hér.
Empire-skilvindufél. heflr herra
Gunnar Sveinsson sem aðalumboðs-
mann sinn í Manitoba, Skriflð hon-
um að 505 Seikirk Ave., Winnipeg,
et yður yantar vindu.
AFMÆLl Tjaldbúðarkyrkju
verður lialdið hátfðlegt hinn 16.
þ. m. Program siðar.
SAFNAÐARFUNDUR
verður lialdinn f Tjaldbúðarsalnum
föstudaginn þann 5. þ. m. kl. 8 að
kveldinu. A þessum fundi skilar
byggingarnefnd Tjaldbúðarkyrkju
af sör starfa sfnum, ásamt öllum
reikningum þar að lútandi, til
safnaðarins. Enn fremur verður
á þessum fundi tekið til umræðu
nýtt mjög mikilsvarðandi lnálefni.
—Allir safnaðarlimir em alvar-
lega ámintir að mæta.
I umboði Bafnaðarnefndarinnar.
M. Markusson.
forseti.
SKATTHEIMT-U AUGLÝSING.
Herra Geo. H. Iladskis skatt
heimtumaður Winnipegborgar heflt
>ent öllum skattgreiðendum bæjar-
ins svo látandi auglýsingu á skatt-
heimtuseðlum þeirra og jafnframt
beðið oss að augl/lsa hana:
„Skattar eru nú fallnir í gj ld
daga og borganlegir tafarlaust. Til
þe.38 að örfa gjaldþegna til skjótrar
gjaldgreiðslu, þá verður veittur 1
per cent afsláttur af öllum sköttum
borguðum fyrir 29. des. 1902.
Skattborgun fyrir árið 1902 verður
ekki þegin fyr en allir eldri skattar
eru borgaðir að fullu. Allar land-
eignir sem skattar hafa ekki verið
greiddir af í meira en eitt ár, verða
seldar fyrir skattjkuldinni. ”Busin-
ess”-skatturinn veiður að vera
greiddnr fyrir 31. desember, 1902
annars verður hann tekinn lögtaki
og þetta getur átt við alla sem eftir
þann tíma skulda (lBufiness”-tkatt.
Engar ávfsanir verða teknar sem
gild borgun nema þær séu Aður
merktar gildar. Öllum ávfsunum
verður að fylgja innheimtugjalds-
upphæð, nema þær séu borganlegar
fnllu ákvæðisveiði hér f Winniþeg,
og stllaðar til skattheimtumsnsins.
Borgið því skatta yðar og sparið á.
lagið, sein lagt verður á eftir fyrsta
jánúar 1903 og sem verður 6/10 per
cent á mánuði á öllum sköttum þá
óborguðum. Bandaríkjaávísunum
sem ekki eru borganlegar í Winni
peg, verður að fylgia innheimtu
gjald.
Komið með skattheimtnseðilinn
þegar þér borgið skatta yðar.
Á sunnudaginn kemur verður
messað f Tjaldbúðinni kvöld og
morgun á venjulegum tfmum.
Þessa árs skattiir Winnipegborg-
ar em:
Barnaskólakostnaður $135,210,00
Til fylkisstjórnarinnar 26,729,70
Lystigarða kostnaður 14,307,90
Til umbóta í borginni 489,369,98
Samtals $665,317,15
Als eru skattgreiðendur um
15,000 að tölu.
Herra Magnús Teit hsfir tekið
að sér umboðsstöðu fyrir Heims-
kringlu f Pipestone.bygð. Menn
þar em góðfúslega beðnir að snúa
sér til lians með pantanir og borg-
anir til blaðsins.
Dr. O. Stephensen verður að
finna á vanalegum Office-tfma eftir
næstkomandi stmnudag.
Mr. J. B, Búason hefir í þess-
ari viku opnað nýja Grocery-verzl-
un og katfiliús. að 539 Ross ave.,
(í búð þeirri er Mrs. Th. Thor-
kelsson hafði). í Groceri-deild-
inni verða flestar algengar matvör-
ur, er fólk þarfnast, og býzt Mr.
Búason við, að geta selt eins ó-
dýrt og hægt er að fá slíkar vörur
annarstaðar í bænum. Hann á-
byrgfst einnig aö vöruanar séu nýj-
ar og vandaðar.
í kaffisalnum verður ætfð 4
reiðum höndum kaffi, súkkulaðe,
cocoa og svaladrykkir; þar að auki
verður þar selt sætabniuð, gómsæf-
ar jólakökur, tvfbökur og kringlur
og allmargar tegundir af brjóst-
sykri.
Mr. Búason býður alla vel-
komna í búð sína, og vonar eftir að
vinir sínir og kunningjar líti inrt
til sín, áður þeir kaupa annarstað-
ar.
Á LAUGARDAGINN 6. þ.
m. kl. 8 verður haldinn almenuur
fundur á l’nity Hall, sérstaklega
fyrir Islendinga. Rœðumenn
verða þar Georg Dales, bæjarfull-
trúaefni, Puttee þingmaður, W.
Scott, Arbuthnot bæjarstjóri.
Mitchell ljósmyndari og fleiri ensk-
utalandi menn; auk þess 3—4 ís-
lendingar.
Kæru skiftavinir.
Nú er ég búinn að fá heilt “Car
load“ af'alslags nauðsynlegum hús-
munum og koma þeim svo fyrir, að
ég get sýnt það alt með þægilega
móti, sem ég sel langt fyrir neðan
alla aðra, er verzla með svoleiðis
vörur. Svo ef að þér þarfnist ein-
hvers af því tægi, látið ekki bregð-
ast að sji mig, áður en þér kaupið
annarstaðar. Líka 'nett ég fáein hús-
Orgel og saumavélar, sem ég sel
með mjög lágu verði.
Fyrir næstu tvær vikur, að
ininsta kosti, sel ég allar vörur með
stói kostlegum afslætti, gegn pening-
um. og eru eftirfyjgjandi prísar sýn-
ishorn af því hvað verð á vörum
heflr verið fært niður frá því, setn
áður var:
16 pd. af molasykri fyrireinn dollar
17 “ “ möluðusykri “ “ dollar
9 “ “ 15c biendu kaffi “ dollar
6| “ “ 20c. “ “ « dollar
“ “ 25c. “ “ <• dollar
16 stykki af kaffibætir 25c.
30 pd. af bezta hatramjöli “ dolla
7 “ “ góðu grænu kafíi “ dollar
iOc. gerkökubox fyrir 5c.
Beztu rúsínur 9c, pd.
1 pd. af svensku neftóbaki 29 cents
—var Aður 60c.
1 pd. af “RedCross" mUnntóbaki 27o
—var áður 40c.
-Jpd. Kickapoo nmnntóbak I8c.
—var áður 25c.
Nokkur Dasin af karlmanna buxum
aföllum stærðum, með fjórðaparts
afslætti, og alt sem eftir er af karl-
manna og drengja fötum (alfatnaði)
25c. afsláttur af hverjum dollar.
Nokkur trérúmstæði með fullri stærð
sem kosta frá $3 upp í $7, sel ég
á meðan þau eru til frá $1,50 upp í
$2,50, og allar sortir af járnrúm-
stæðum hefi ég lika. Allar aðrar
vörur, sem ekki eru upptaldar, með
10—25c. afslætti af hverju dollars
virði.
Fyrir þenna tlma, að minsta
kosti, borga ég fyrir bænda vörur
sem fylgir:
Nautahúðir, af allriþyngd, 7c. pd.
Gærur írá 6c. upp í 8c. pd., eftir
því hvað mikil ull er á þeim.
Smjör 20c. pd.
Egg 20c. Dús.
Með beztu þökk fyrir góð skil.
Yðar einlægur.
Elis Thorwaldson.