Heimskringla - 01.01.1903, Qupperneq 2
HEIMSKRINGLA 1. JANÚAR 1903.
HeimskriDgla.
PUBLISHBD B Y
The Heimskringla News 4 Pablishing Co.
Verð blaðsins í CanadaogBandar $2.00
um árið (fyrir fram borgað). Sent til
íslands (fyrir fram borgað af kaupend-
um blaðsins hér) $1.50,
Peningar sendist í P. 0. Money Order
Begistered Letter eða Express Money
Odrer. Bankaávísanir á aðrabanka ení
Winnipeg að eins teknar með affðllum.
B. Íj. Baldwinson,
Editor Sc Manager.
Office : 219 McDermot Ave.
P O. BOX 128».
Gestur Pálsson.
Rit hans í bundnu og óbundnu
xnáli, fyrsta hefti; útgefendur;
Amór Amason og Sig. Júl Jó-
hannesson,— er ný-útkomið úr
prentsmiðju ”Lögbergs”.
Bók þessi sem er nær 300
blaðsíður að stærð, í stóra 8 blaða
broti og í sterkri kápu, er prentuð
á bezta bókapappír og að öllu hin
vandaðasta að ytra frágangi, \>6
einstöku prentvillur liafi slæðst inn
hér og þar.
Innihaldd bókarinnar er:
1. Ágæt mynd af Gesti Pálssyni,
með eiginhandar nafni hans, og
þessum einkunnarorðum skáldsins:
”Hver skýra kann írá prýsund og
píslum öllum þeim, sem, písl-
arvottar gæfunnar líða’ í þessum
heim.”
2. Formáli. Þar er í fáum orðum
gerð grein fyrir þeim tveimur aðal-
ástæðum sem knúðu útgefenduma
til að gefa út á prent megin þorr-
af skáldskaparverkum Gests, og
eru þær:
Fyrst, að gefa mönnum kost á,
að eignast það flest í einni heild
er sá maður hefir eftir sig látið,
sem á síðari tímum hefir náð traust-
ustu haldi á öllum betri tilfinning-
um íslenzkrar alþýðu”. Og annað:
”Að reyna að svna f>ess vott f verki
. að vér varðveitum minning leiðar-
stjarna þeirra, er lýst hafa þjóð
vorri á leiðir menningar og mann-
kærleika.
3. Efnisyfirlit.— Það sýnir að áð-
al-innihaldi bókarinnar er skipt
niður í 5 kafla. 1: Kvæði. 2: sög-
ur. 3: Fyrirlestrar. 4: Þýðingar,
og 5: Ritgerðir.
4. Æfiágrip.— Það tokur yfir 24
blaðsíður, einkar vel ritað og svo
nákvæm lýsing af sálarlífi, hugar-
fari og lyndiseinkennum Gests,
sem verðu má, ritað af f>eim, som
eins og útgefendur taka fram,
aldrei hafa manninn séð eða haft
nokkra persónulega þekkingu á
honum, og hafa því ekki eptir öðm
að fara en ritverkum þeim sem
eptir hann liggja enda taka útgef-
endur fram, að þá langi til að sýna
Gest, eins og hann var; sýna kost-
ina og ekki sfður ókostina. Sálar-
lífi hans og æfiferli er all-nákvæm-
lega lýst, alt frá vöggunni til graf-
arinnar, í þessu æfiágripi, og svo
er sú lfsing dregin saman f mjög
snotm og skáldlegu kvæði sem
mun veraorktaf Sig. Júl. Jóhann-
essyni. Ein er þó yflrgnæfandi
lyndiseinkunn Gests, sem þrengir
sér gegn um mörg af kvæðum hans
og ritverkum, en óvfða þó, og ef til
vill hvergi frekar, en í ritgerðinni:
”Aðfangadagskveld í Winnipeg”.
En hún var, nálega algerður skort-
ur á virðingu fyrir skoðun allra
manna er hann áleit ekki jafningja
sína að gáfum og menntun.
Maðurinn var drambsamur, eða,
eins og það er nú alment kallað,
stoltur, og leit með fyrirlitningu á
allan þorra manna. Skoðaði þá
sem sér langt óæðri verur, en sem
hann f>ó að vfsu varð að þola sam-
neyti við af því hann átti engan
kost á að umflýja f>ær meðan hann
var hér f heimi. Að Hafnarvera
hans hafi átt mikinn f>átt f að glæða
eða að magna þetta hugarfar hans,
má vfst telja áreiðanlegt, f>vf að
f>að hefir lengi einkennt Hafnar-
stúdenta og s<‘rstaklega f>á af þeim,
sem einhverra orsaka vegna ekki
höfðu þreyju til að ná nægilega
fullkominni menntun, að lfta niður
á aðra, sem væm f>eir fyrirlitlegir
jarðarmaðkar, sem ekki verðskuld-
uðu að þeim væri neinn sómi sýndur
Þetta atriði hefðu útgefendur efa-
laust tekið fram og talið með ó-
kostnnum, ef þeir hefðu haft per-
sónulega þekkingu á skáldinu og
umgengni við liann, og eins hitt,
að hann var, ef til vill, sá mesti
bölsýnismaður sem nokkurn tíma
hefir flutt fráíslandi vestur um haf,
var algerlega ómögulegt að lfta á
hina björtu hlið lffsins og enda
ekki að viðurkenna að hún væri
til.
Með þessum undantekningum
má segja að lýsing á sálarlífi og
lyndiseinkunnum Gests sé rétt og
vel sögð f æfiágripinu. Að sfð-
ustu er þar tekið fram, það sem
aldrei verður of öfluglega brýnt
fyrir Islendingum, að "erlendar
þjóðir hafa sangið Gesti verðugtlof
og reist honum verðugan minnis-
varða við altari bókmenta sinna.
en vér höfum látið gröfina hans óá-
reitta í 12 ár”.—Þessi setning bend
ir á, að útgefendur muni hugsa sér
að setja minnisvarða þann sem
þeir hafa ákveðið að reisa honum
af ágóðanum af sölu þessarar bók-
ar og þeirra síðari hefta, sem f>eir
hyggja að gefa út, á gröf skáldsins
hér f Winnipeg, enda væri hann
hvergi betur eða tilhl/ðilegar sett-
ur, en einmitt f>ar, f>ví vandalaust
er að finna gröfina.
Nú, að því ersnertir aðal-inni-
hald þessa heftis, sem er hið fyrsta
af fjómm heftum, sem útgefend-
umir hyggja að gefa út af skáld
verkum Gests, f>á er í raun réttri
lítið hægt að segja, f>vf að bæði
eru verk hans sem mest öll hafa
áður verið prentuð,/mist heima á
íslandi eða hér vestra, almenningi
að nokkra leyti kunnug, og svo
hefir þetta fyrsta. hefti að geyma
að eins lftinn hluta af verkum
hans.
T. d. era f þessu hefti að eins
24 kvæði af óllum þeim ljóðum,
sem Gestur orkti, en auðvitað má
vænta liinna annara kvæða hans
í síðari eða komandi heftum- En
af þeim kvæðum sem nú era birt,
eru nokkur sem aldrei fyr hafa
prentuð verið; svo sem; ”Hinn
sfðasti Rómverji á banastundinni”
einkar fagurt sorgarkvæði, í lfk-
ingu við banakvæði Hjálmars hug-
umstóra, og fl. ný kvæði, Af sög-
um f þessu hefti era “Svanurinn”
og “Kærleiksheimilið”, “Hans
Yöggur,” “Uppreistin á Brekku”
og “Sveitasæla.” Að einseinn fyrir-
lestur. “Lffið f Reykjavfk” er í
hefti þessu og svo all margar þýð-
ingar. alt stuttar greinar en mjög
læsilegar. Að síðustu era f fimta
og síðasta kafla bókarinnar 2 rit-
gerðir, “Aðfangadagskveld” tekið
úr Heimskringlu og “Náttuglur,”
tekið úr Suðra,
Sjálfsagt verða deildar mein-
ingar um það, hve vel útgefendun-
um hefir tekist að velja efnið f
þetta rit, og víst munu margir
telja að meira hefði inátt þar vera
af kvæðum en mínna af þyðfngum.
En á hinn bóginn má ekki missa
sjónar á þvf að ekki var mögulegt
að koma nema nokkram hluta af
ritverkum skáldsins f þetta hefti,
og að það, sem lesendur nú ekki
finna þar, geta þeir vænt að fá í
komandi heftum. Eins munu
verða skiftar skoðanir á þvf, hvem-
ig þeim hafi tekist meðferðin á
verkum Gests. Til að dæma um
það, er nauðsynlegt að hafa nægan
tfma til að lesa hefti þetta saman
við upprunalegu handritin, eða
það, sem áður hefir verið gefið út
af þeim, en Jtil þess höfum vér
engan tíma, og eftirlátum þvf öðr-
um það verk. En vér teljum út-
gefenduma hafa unnið þarft sóma-
verk að takast á hendur útgáfu á
ritverkum pess frægasta söguskálds
sem Island hefir átt. Fyrir þetta
verdskulda þeir að bókin sé vel
keypt og víðlesin. Bókin er hin
eigulegasta bæði að efni og ytra
frágangi, og með það jafnan hug-
fast að arðinum af útgáfu hennar á
að verða varið til þess að reisa
verðugan minnisvarða yfiir Gest
Pálsson, eða f minningu hans, telj-
um vér rétt og skyldugt að hún
verði svo vel keypt að hún komist
inn á hvert íslenzkt heimill hér
vestan hafs.
Bókin kostar í kápu $1,25 og í
bandi $1.50. Til sölu hjá H. S.
Bardal, Elgin Ave., og P, S. Páls-
son, 741 Ross Ave. Winnipeg, og
fleiram.
Eftirköst.
Það liefir slettst upp á fyrir
þeim skirlffu í Montreal nú fyrir
skömmu. Mr. Branet, liberal
þingmaðurinn nýkosni fyrir St.
James kjördæmið, hefir verið
dæmdur úr sæti og bannað að
taka |>átt í landsinálum um 7 ára
tfma. Liberalar unnu þá kosn-
fngu, eins og margar fleiri, moð
alskyns svikum og lagabrotum.
Enda sagði dómarinn að kosning
þessi hefði verið sú langsvívirði-
legasta, sem sögur fara af í Can-
ada, fram að þessum tfma.
Það var meðal annars sannað
fyrir rétti að hra. Brunet hafði
fengið einum vinnumanni sínum
hálft þriðja ]>úsund dollars til að
brúka við þessar kosningar, en
hvorki gat hann né sá sem tók við
þeim neitt sagt um það hvað af
þessum skildingum hafði orðið,
þeir vissu bara að J>efr vora eyddir,
höfðu einhvemvegin gengið f
kosninga kostnaðinn. A liinn bóg-
inn var J>að sannað að margir höfðu
verið keyptir til þess að greiða at-
kvæði vfðsvegar í kjördæminu und-
ir nöfnum ýmsra annara manna,
hverra nöfn voru á listanum, sumra
lifandi, og sumra dauðra. Sumir
þessara manna greiddu atkvæði
frá 16 til 25 sinnum sama daginn,
við sömu kosninguna. Umsjónar-
maður þessara glæpaseggja var ná-
frændi Jnngmannsins sem kosinn
var, og var sá dæmdur í 6 mánaða
fangelsi. En Ottawastjórnin náð-
aði hann eftir tveggja og hálfs
mánaða betrunarhússvinnu. Næst
var höfðað sakamál mót Rodolphe
Hetu, einum af undirkjörstjóran-
um. Sá maður er leikinn í at-
kvæðafölsun, Það var sannað fyrir
rétti að yfir 80 kjósendur greiddu i
hans kjördeild atkvæði með con-
servativeumsækjandanum, en úr
kassanum komu að eins 4 atkvæði
af þessum 80. Aðferðin við J>etta
var sú sama er svo lengi hefir
hefir haldið Ross-stjórninni við
völdin í Ontario, kjörstjórinn
skifti um atkvæðin. Hann tók
atkv. úr höndum kjósendanna, en
f stað þess að láta þau í kassann,
eins og lög bjóða, þá stakk hann
öðram atkvæðaseðli í hann úr pakka
sem hann sjálfur hafði útbúið og
öll voru merkt fyrir Mr. Bergeron.
Þessi maður var dæmdur f tveggja
ára fangelsi og enn þá hefir hann
ekki verið náðaður af stjómfnni.
Brunett varði mál sitt með J>vf að
segja að öll þessi sviksemi væri sér
óafvitandi og mót vilja sfnum, en þó
játaði hann að hafa sjálfur borgað
yfir sex þúsund dollars í kosninga-
kostnað, en gat J>ó enga grein gert
fyrir J>vf hvernig J>vf fé hefði verið
varið, og sfðar viðurkendi hann að
hafa að auk fengið Azaire Brauet
hálft þriðja J>úsund til að vinna
með. Þetta töldu dómaramir næga
sönnun J>ess að hann, sjálfur um-
sækjandinn, hef ði verið framkvöðull
allra svikanna og kosningaglæp-
anna og f vitorði með J>eiin seku,
og þess vegna féll dómur á hann,
bæði að þvf, er Jungsætið snertir,
og einnig J>að að mega ekki sækja
um J>ingsæti aftur um næsta 7 ára
tfmabil. Svona gengur það í
heiminum, jafnvel þeir hrein-
hjörtuðu vérða stundum að þola
mótlæti. Sú eina huggun er þó í
máli þessu, að báðir þessir fangels-
islimir verða væntanlega lausir um
næstu kosningar, og geta þá með
endumýjuðum kröftum veitt Laur-
ierstjóminni það lið, sem kunnátta
þeirra oggóðvilji f hennar garð gat
ekki f þetta sinn áorkað eins og til
var ætlast.
V enezuela-málið.
Elins og getið var nm í síðasta
blaði, þá hafa Bretar og Þjóðverjar
lagt saman lið sitt til þess að k úgi
lýðveldið Venezaela til að borga
skuldir sínar til brezkra og þýzkra
borgara þar í ríkinu, sem það skuld-
aði þeim fyrir járnbrautarbyggingar
og vinnu við önDur opinber verk.
Skuldir þessar eru orðnar 7 ára
gamlar og eru sagðar að nema als
um 15 millionir dollars. Bretar og
Þjóðverjar segjast hafa reynt alt sem
í þeirra valdi hafl staðið, með frið-
samlegu móti, til þess að fá rikið til
að greiða þegnum sínum þessar
skuldir, en tilraunum hafi í engu
verið sinnt, og þess vegna hafl þessi
stórveldi neyðst til að beita valdi
við Venezuela til að fá fé þetta inn-
heimt. Venezuela getur náttúrlega
enga verulega mótspyrnu veitt svo
öflugum andstæðingum og er því að-
gerðarlaus. En aðal ástæðan sem
liggur til grundvallar fyrir því að
skuldir þessar hafa ekki verið greidd
ar fyrir löngu, er sú, að Venezuela
stjórnina heflr um mörg ár grunað,
að Bretar væru í samsæri með upp-
reistarmönnum þar í lýðveldinn og
hafl hjálpað þeim um voþn og aðrar
nauðsynjar og að þetta hafl verið
gert með vitund og samþykki brezku
stjórnarinnar og embættismanna
hennar, og með því að slíkt samsæri
hefði bakað Venezuela-ríki hið mesta
tjón fjárhagslega. þá hefir st.jórn-
inni þar ekki (fundist ástæða til að
hraða skuldalúkningum sínum til
brezkra þegna þar í landi. Þessa
hefir enda verið getið opinberlega
þar f blöðum, En engar slíkar á-
stæður hafa verlð færðar fyrir drætti
á skuldalukningum ríkisins við
þýzka þegna. Nú heflr fioti stór-
veldanna skotið niður varnarvirkj-
f einni af aðal-höfDum ríkisins og
sökt einu herskipi þess, þrátt fyrír
það, þó ekki væri búið að segja rík-
inu strið á hendur. Stórveldin hafa
þegar játað, að þar hafi verið of
langt gengið og hvorirtveggju, Bret-
ar og þjóðverjar, reyna að kenna
öðrum um sökina. En eptir öllum
fcéttum að dæma, þá eiga Bretar þar
upptökín, en bafa að eins notað
Þjóðverja sem hjálparmenn að verk-
inu. Um leið létu þeir þess getið,
að þeir ætluðu að setja ”Peaceful
Blockade” eða friðsamlegt lending-
ar bann meðfram ströndum landsins
svo að engra þjóða skip gætu lent
við strendur eða á hafnir rfkisins.
Strax og frétt þessi barst út um
heiminn, sendi Bandaríkjastjórnin
skeyti til þyzku stjórnarinnar og
heimtaði tafarlausa skýringu á þvf,
hvað meint væri með ”friðsamlegu
strandlendinga banni” (Peaceful
Blockade). Hún kvað Bandarfkin
eiga skíp á höfum heimsins, sem
væru á leið tíl lendingarstaða í Vene-
zuela og hygði að láta þau lenda þar
þrátt fyrír bannið. Þjóðverjar voru
seinir til svars—svöruðu engu. En
Balfour gat þess í ræðu f brezka
þinginu, því þjóðverjar höfðu auð-
sjianlega leitað andsvars frá honum
um þetta mál, að Bandaríkjunum
yrði gert jafnhátt undir höfði og
öðrum þjóðum. meðan á hafnbann-
inu stæði. Þegar Bandaríkjastjórnin
frétti þetta, þá sendi hún tafarlaust
skeyti til Admiral Dewey og bað
hann halda með flota sinn (30 öflug
herskip) til Venezuela og fylgja
verzlunarskipum Bandaríkjanna inn
á hafnir ríkisins, þar sem þau þyrftu
að lenda. Það virðist að hafa kom
ið hik á Breta og Þjóðverja, er þeir
fréttu þetta, því að skömmu þar ept-
ir létu þeir þess getið, að þessi ”Peac-
eful Blockade” ætti að eins við skip
sem væru eign Venezuela-ríkis eða
þegna ríkisins. Þetta var Dewey
strax látinn vita og þegar hann sá
að stórv. höfðu brotið odd af oflæti
sínu og dregið inn hornin, þá stakk
hann Uppáþví við stjórn sína.aðsenda
að eins fá skip til Venezuela svo sem
til að ftyrkja embættismenn Banda-
ríkjanna þar, og um leið sjá til þess,
að skip Bandaríkjanna gætu óáreitt
tekið sér lendingu hvar við strendur
rikisins sem þeim líkaði bezt, og sú
tillaga var samþykt.
Nú heflr Ítalía og Frakkar sleg-
ist I leikinn. Ítalía legst á band
með Bretum og Þjóð verjum að heimt
a skuldir af Venezuela, en Frakkar
kveðast skulu teknir til greina þegar
til samninga kemur. Almennings-
álitið f Bandarfkjunum er mjög æst
á móti Bretum og Þjóðverjum út af
þessum ófriðí við nfibúa-ríkið, og
hefir það vakið svo mikla eptirtekt í
Evrópu, aðbæði stórveldin hafa hik-
að við framkvæmdir þar til þau sjá
greinilega hver endir þar á verður
Við þetta bætist og það að ýmsir vel
metnir Bretar, svo sem Mr. Stead og
aðrir mannvinir hafa haldið fundi
í Englandi og þar skorað á Banda-1
ríkjamenn að þola engan yfirgang
af Evrópu þjóðum, en halda fast við
Munroe-regluna. Enda væri það
brot móti þeirii kenningu, ef Banda-
menn leyfðu öðrum þjóðum að herja
k Venezuela. Sá kvittur heflr og
komið upp, að skjöl hafi fundist í
Caracas, og séu nú í höndum Vene-
zuela stjórnarinnar, sem sanni ljós
lega að Bretar séu í sambandi við
Matos-upprei'starflokkinn þar í landi,
og að skip með hergögnum til upp-
reistarmanna hafl með vitund Breta
verið send til Venezuela. Ýmsir
auðmenn þar f landi hafa boðið fram
allar eigur sínar til þess, að mæta
skuldakröfum stórveldanna, og Cast-
ro forseti heflr falið herra Bowen.
sendiherra Bandarfkjanna, að semja
við stórveldin um frið og borgun á
öllum skuldakröfum þeirra, og þetta
hafa stórveldin samþykt með því að
biðja Roosewelt forseta að skera
úr þrætum við Venezuela og hafa
fullnaðardóm í þyí máli. Annars
þykir það alment ofsa fljótræði, sem
Bretar og Þjóðverjar hafa sýnt, í
þessu máli, í því að vera samtaka
í að brjóta fyrst allrá þjóða. Samn-
ing þann er gerður var í Hague, um
að leggja þjóðamál í gerð, þegar
þegar ágreiningur kæmi fvrir, og að
eins að berjast með vopnum þegar
slíkar sáttatilrauuir ekki tækjust.
Það þykir engum efa bundið,
að Venezuela sem vitanlega er í ó-
bættri sök fyrir seinlæti í borgun
skulda sinna, ef ekki í beinni svik-
semi, verði undan að láta í þessn
máli, en á hinn bóginn dylst engum
skynberandi manni það, að þessar
stórþjóðir hafa vaðið að þessu litla
rfki í þetta sinn, með meira ofbeldi
og yfirgangi, en þær mundu hafa
látið sér detta í hug, að gera, ef
stærra og voldugra ríki hefði átt
hlut að máli, svo sem Prússar eða
Bandaríkjamenn. Og víst mun mörg-
um þykja Bretar og Þjóðverjar hafa
lotið lágt, að þurfa að ganga í
bandalag til að berja á eins litlu ríki
og þeir hafa nú gert.
Herra E. E. Best, skóla Inspect-
or fylkísstjórnarinnar, hefir beðið
Heimskriuglu að færa lesendum sín-
um þá frétt, að bæði hann og Mr.
Mclntyre aðal-umsjónarmaður fylk-
isskólaona, séu einkar vel ánægðir
með skólakennsluna í Gimli.sveit og
framför skólabarna þar. Mr. Best
ferðaðist um Nýja ísland í October
s. 1, í embættiserindagjörðum sínum
og lét mjög vel af menntaástandi
ungdómsins í nýlendunni. Hann
kvað skólahúsin yfirleitt vera ágæt-
lega góð og kennarana ástundunar-
sama og vel vaxna stöðu sinni. Mr.
Best kom með nokkur sýnishorn af
rithönd barna frá 5 til ]3 ára aldurs
og einnig uppdrætti af ám, löndum
og sérstökum hlutum og taldi hvoru-
tveggja í fremstu röð og fyllilega
eins gott og fengist heflr frá nokkrum
öðrum sveitaskólum sem hefðu jafn-
stuttan kennslutíma á hverju ári.
Mr. Best kvað kennsluna fara þar
fram 6 mánuði af ári hverju, ýmist 3
mán. að haustinu og aðra 3 mánuði
að vorinu eða þá í samfleytta 6 mán-
uði eptir því sem á stæði. Til Mikl-
eyjar kvaðst hann ekki hafa komist,
en hann bjóst við að ferðast aptur
um nýlenduna að vori og koma þá
til Mikleyjar- Við íslendinga-fljót
kvað hann vera skólahús með þeim
langbeztu i fylkinu eptir því sem
gérðist í sveitum. Félag kvað hann
hafa myndast í nýlendunni, til að
vinna að eflingu menntunar þar og
sagði herra Stefán Sigurðsson að
Hnausa vera heiðursforseta þess.
Herra Best bað blað vort að
bera nýlendubúum þá ósk sina, að
sem flestir þeirra sem áhuga hafa
fyrir menntun og framförum íbú-
anna, vildu ganga í þetta félag og
styrkja það eptir mætti. Sðmuleið-
ís kvað hann það mjög æskilegt, að
árlegur skólakenslutími, í skólunum
rar, væri lengdur um 2 til 3 mán
uði. Það er álit hanns, að 6 mánaða
kennslufími sé alt of stuttur, og
hann mæltist til þess, að nýlendn-
menn vildu athuga það, hvert, ekki
sé heppilegt og hægt, að lengja tím-
ann að mun. Hann kvað námfýsi
og skarpleika barnannna þar, verð-
skulda að þau ættu aðgang að
kennslu meira en 6 mánuði úr árinu,
og áleit að íélag það sem um er get-
ið, gæti haft mikil áhrif í þá átt, að
fá lengdum skólakennslutíma komið
í framkvæmd. Einnig bað hann
blað vort að taka það fram, að þótt
skólahús nýlendunnar væri ágæt, þá
skorti þar tilfinnanlega nógsamleg
kenusluáhöld, og taldi hann hina
mestu þörf á að þau væru aukin hið
allra bráðasta, svo að þau nægðu
þörfunum, t. d. sýndi hann oss, að
sum rithandar sýnishornin voru rit-
uð á mjög óvandaðann "scribbling-
paper”, og þó þessi sýnishorn væru
góð, þá hefðu þau eflaust orðið betri
ef pappír hefði verið vandaðri. Á-
höldin til skólakennslu eru tiltölu-
lega ódýr og þess vegna létt að afla
þeirra. Á þessu óskar herra Best að
bót verði ráðin svo fljótt sem verða
má. Hann segir bæði kennara og
nemendurna verðskulda það, að
skólaáhöldin séu eins fullkomin og
flnnast í beztu barnaskólum. Það
gerir kennsluna léttari og fullkomn-
ari og námið auðveldara., Keynzlan
heflr sýnt að ungmenni frá Nýja-ís •
landi, sem gengið hafa háskólaveg-
inn hér, hafa sýnt meiri námshæfi-
leik.i að tiltölu við tölu þeirra, en
nokkrir aðrir nemendur, og einmitt
þess vegna er það áríðandi, að undir
búnings-kennslan í heimaskólura sé
sem allra fullkomnust og áhrifamest
og góð og fultkomin skólaáhöld eiga
mikinn þátt í að gera hana það.
Þetta biður herra Best Ný-Islend-
snga að hafa hugfast og með bót ráð-
inni á þessu, telur hann nemendur
þaðan verða fylsta ígildi beztu nem,
enda hér í fylkinu.
Nýárið.
Ljómar ból, signandi sól,
tefur ei hraðfleygt hjól.
Dagarnir koma og berast á braut,
byrgjandi tilfellin, gleði og þraut.
Tíminn er leiftrandi Ijós.
Fold og sjár, himininn hár,
óma nýtt náðar ár,
lofandi fyrir hið umliðna alt,
unað og sorgina, heitt bæði og kalt,
eilifa alföður stjórn,
Nýja tið, brosandi blíð,
hagsæld krýu lönd og lýð;
hrek þú burt kúgunoghræsni cgtál,
hljóma lát frelsis og sannleikans mál,
friðinn og falslausa trú.
Þjóðum lands, lífl hyersmans
flétta þú kærleiks krans;
mýkjandi sárin og þungbæra þraut,
þerrandi tárin á reynslunnar brautj
bætandi mannlífsíns böl.
M. Markusson.
Á gamlárskveld 1902.
Vér kveðjum í hjörtunum hrærðir
þig hagstæða blessaða ftr,
stríðinu friðinn þú færðir
svo fækkuðu blæðandi sár.
Manns æflskeið endar um siðir
og af þerrast syrgjenda tár.
í kvöld allir kveðja nú lýðir
þig, h verfandi framliðna ftr.
Nú er f nótt öllum hulið
hvað nýárið færir í heim,
en einstakling engum er dulið
hvað eftir þú skilur hjá þeim.
Burtfarar sálm vill hversyngja,
er svífurðu út lífshallar gólf,
um allan heim klukkurnar klingja,
þá kveður á slaginu tólf.
Þakkargjörð greidd sé af öllum
gjörvöllum kristninnar lýð,
til drottins í himnanna höllum
fyrir handleiðslu á liðinni tíð.
G. H. Hjaltalin.
Af þeirri ástæðu, að eitthvað af
fornum og nýjum kunningjum mín-
um verði á braut Heimskringlu, þá
bið ég hinn heiðraða ritstjóra að Ijá
eftirfylgjandi linum rúm í blaðinu.
Ferðin mín gengur syo ljómandi létt
því Ifflð og sólin
skutu mér á þenna skinandi sprett,
til að skoða hér jólin,
Þó borgin sé háð þessum breytinga
soll
og bergmáli af glaumi,
þá flnst mér að vera mfn, vera hér
holl,