Heimskringla - 22.01.1903, Side 2
HEIMSKRINGLA 22. JANÚAR 1903.
Beimskriugla,
PUBLISHBD BT
The Heimskringla News 4 Publishing Co.
Verð blaðsins í CanadaogBandar $2.00
am árið (fyrir fraui borgað). Sent til
Ísland9 (fyrir fram borgað af kaupend-
um blaðsins hér) $1.50,
Peningar sendist i P. 0. Money Order
Registered Letter eða Express Moneý
Odrer. Bankaávísanir á aðrabanka eni
Winnipeg að eins teknar með afföllum.
K. Ij. Baldwinson,
Editor & Manager.
OfiBce ; 219 McDermot Ave.
P.O. BOX
Baldur-veizlan.
lOc. ílutniiiííSífjaldi
lofad.
Baldurbúar og bændurnir þar
umhverfis, héldu stjórnarformanni,
R. P. Roblin, veizlu mikla í leik-
húsi bæjarins f>ann 14. þ, m. Leik-
húsið, sem rúmar milli 2 og 3
hundruð manna, var fult. 3 borð
voru sett eftir endilöngu húsinu og
það fjórða fyrir stafni þess og voru
J>au öll f>étt skipuð mönnum og
konum. Réttimir vom vel til-
reiddir og allir skemtu sér vel,
\ eizla þessi er sú fyrsta af sinni
tegund, sem ritstjóri f>essa blaðs
hefir séð, f>ar sem konur sóttu jafnt
og karlmenn og hvað sat við ann-
ars hlið við hin ýmsu borð, eins og
mentuðu fólki sæmir, og þar sem
konumar sátu út allan veizlutím-
ann, frá kl. 7.30 um kvöldið, til kl.
1 eftir miðnætti. Astæðan fyrir
þessu mun liafa verið sú að þar
var ekkert vfn um hönd haft og
engar reykingar, eins og þó er
vanalegt við slfk tækifæri, og telj-
um vér hinn nýja sið Baldurbúa
einkar vel viðeigandi og umbót
mikla frá J>vf, sem vanalegt er við
slík tækifæri. Að endaðri máltíð
fóra ræðuhöld fram og talaði Mr.
Roblin þar f 2 kl. tíma og sk/rði
frá starfsemi stjórnar sinnar í þau
ár, sem hann hefir verið stjómar-
formaður, og aldrei höfum vér
heyrt hann halda öflugri eða mælsk-
ari ræu en pessa. Hann sýndi
fram á hagsmuni f>á, sem fylkfð
hefir haft af járnbrautarsamning-
um þeim, sem hann gerði við Can-
adian Northem Railway félagið og
lofaði að lækka bráðlega flutnings-
gjald á hveiti og öðrum vörum enn
þá meira en f>egar hefir verið gert.
Hann lofaði áreiðanlega að hveiti-
flutnihgsgjald á komandi upp-
skeru bænda að hausti, skyldi ekki
verða hærra en 10 cents fyrir hver
100 pund, og var þessari staðhæf-
ingu hans fagnað með miklu lófa-
klappi. Þetta er f fyrsta sinn, sem
Mr. Roblin hefir gefið f>etta á-
kveðna loforð opinberlega, og fylk-
isbúar mega vera vissir um að
hann stendur við J>að loforð. Sömu-
leiðis lofaði hann að flutningsgjöld
á öllum vörum skyldu lækka að
sama skapi, hvort sem f>ær væm
fluttar út úr fylkinu eða inn í f>að.
Ákveðnar upplýsingar um þetta
mál verða náttúrlega að bíða næsta
þings; en þá verða fylkisbúum
veittar ýtarlegar upplýsingar um
það og önnur ágreiningsmál. A
samt jámbrautamálinu minntist
Mr. Roblin á fjármál fylkisins og
sýndi að stjórn sín hefði haft tekju-
afgang á hverju ári síðan Con-
servativar komust til valda, og að
tekjuafgangurinn fyrir árið 1902
væri meiri en á nokkra undanfömu
ári. Hann kvað inntektir fylkis-
ins fara stöðugt hækkandi f tilefni
af sköttum þeim, sem lagðjr hefðu
verið á járnbrautir, strætabrautir,
banka, Insurance- og lánfélög og
slfkar auðstofnanir. Hann dró
engan efa á að inntektir af þessum
sköttum mundu f nálægri framtfð
verða' mjög mikilvæg inntektagrein
fyrir fylkið og það án þess að auka
að nokkru vexti af peningalánnm
eða ábyrgðir iðgjalda, eða á nokk-
urn annan hátt að þrengja að kost-
um almennings. Mjög góður róm-
ur var gerður að ræð u herra Rob-
lins og öll samkoman fór svo vel
fram sem frekast mátti verða. Það
er enginn efi á því að vinsældir
Mr. Roblins og stjómar hans fara
stöðugt vaxandi meðal fylkisbúa í
réttum hlutföllum við vaxandi
rétta þekkingu á þeirri þýðingu,
sem starfsemi hans og hennar hef-
ir haft og hefir fyrir framfarir
fylkisins og hagsmuni fbúanna.
Fundurinn endaði tneð þreföldu
húrra fyrir Mr. Roblin og Breta
konungi. Þess skal að síðustu getið
að á lestinni frá Baldur til Winni-
peg, fékk Mr. Roblin hraðskeyti
frá bændum í Sumerset höraðinu,
það var veizluboð. Þeim, ekki sfð-
ur en Baldurbúum, er ant urn að
sýna honum verðskuldaða sæmd
fyrir stjórnmálalega starfsemi hans
í hag fylkisins.
Hami er reiður.
Ritstj. Lögbergs getur ekki á
heilum sér tekið síðan hann fór
fyrir alvöra að sannfærast um það,
að vinsœldir Roblinstjómarinnar
fara stöðugt vaxandi um alt Mani-
tobafylki. ogsæmdhans eykst því
meir, sem almenningur fær ljósari
þekkingu á hans ágætu hæfileik-
um, dngnaði og stjómvizku, sem
alt lýtur að því, að bæta hag fylk-
isins, auka vöxt þess og framför og
auðga íhúa þess að miklum mun.
En aldrei hefir honum sviðið
eins og þegar fregnin barst um
það’ að kjósendur í kjördæmi Mr,
(xreenways höfðu ákveðið að halc
Roblin heiðurssamsæti f virðing-
ar og þakklætisskyni fýrir star:'
hans 1 þágu fylkisins, Það er eins
og riðguðum sáraskurðarhníf hafi
sungið verið f sitjandann á ritstjór
anum, svo svíður honum Baldur-
veizlan, ekki af því að maturinn,
sem þar var veittur,. væri frá hon-
um tekin, því að það vár hann
vissulega ekki, heldur af ótta fyrir
afleiðiugunum af þvf að Roblin
gefst við slík veizluhöld tækifæri
til þess að kynnast og tala við
kjósenduma og skýra þeim rétt eg
satt frá starfsemi stjómar sinnar
og þeirri þyðingu, sem hún hefir á
hag fylkisins í heild sinni. Lög-
berg veit að það eru í Mountain-
kjördæminu eins og annarsstaðar,
svo sanngjarnir borgarar að þeir
era líklegir til að aðhyllast þá
stefnu f stjómmálum, sem þeir sjá
að sér og öðrum íbúum fylkisins,
er fyrir beztu. En þetta geta þeir
að eins séð með því að þeim gefist
kostur á að heyra rétt og sann-
gjamlega skýrt frá málavöxtum af
þeim mönnum, sem af reynslunni
hafa persónulega þekkingu á mál-
um fylkisins út í yztu æsar. Tœp-
lega getur ritstjórinn hafa reiðst af
þvf að Mr, Robltn lofaði að flutn
ingsgjald á hveiti bænda skyldi
vverða fært niður í lOc. fyrir hvei
100 pund frá Manitoba til stór-
vatnanna eystra, áður en næsta
uppskera yrði flutt út úr fylkinu.
Það var þetta lOc. gjald, sem
Greenway var stöðugt að vinna að
að koma í framkvæmd í öll þau 12
ár, sem hann var við völdin, en
sem aldrei gátu fengist fyr en Con-
servatfvar komust til valda, og þó
að Mr. Roblin hafi tekizt á 3 árum
að afkasta því verki, sem Green-
way gat ekki gert í 12 ár, þá sjáum
vér ekki að hann verðskuldi van-
þóknun Lögbergs eða annara fyrir
það. Ekki heldur getur rirstj.
hafa komist f þenna voðalega æs-
ing, sem grein hans f síðasta blaði
ber vott um, þó Mr. Roblin hafi
áorkað þvf að færa flatningsgjald
á hveiti bænda niður f lOc. í stað
14c., sem gamli Greenway hélt þvf
f meðan hann hafðj tögl og hagldir
á fylkisbúum, og því sfzt getur
bann hafa reiðst af því, að nú er
árlegur tekju afgangur í fylkis-
sjóði, f stað árlegrar sjóðþurðar
meðan Greenway hélt um fylkis-
pyngjuna. Ekkert af þessu getur
hafa æst skap ritstj. Bamt er mað
urinn reiður, og f ofsa bræði sinni
voðalega illorður í grein sinni.
Hvers vegna er þetta svo? Jú,
iað er af því, að hann lætur flokks-
ofstæki sitt fara f bökstaflegar gön-
ur með vit og tilfinningar út af
iví, að það er Mr. Roblin og Con-
servatfvastjómin, sem tekist hefir
að forða fylkisbúum frá þeim sí-
vaxandi skuldaviðjum og áfallandi
árlegri sjóðþurð, sem legið hafði á
stjómarárum Liberala eins og
farg á fylkisbúum, Ekki af þvf
að þessar ^umbætur hafi vérið gerð-
ar, heldur af því taki menn eftir
—að það vorn Conservatívar, en
ekki Liberalar, sem gerðu J>ær.
En þetta er að vorri hyggju ekki
nægilegt reiðiefni fyrir ritstjórain,
því að frá almennu sjónarmiði ger-
ir það ekkert til, livert nafn stjórn
sú ber, sem kemur fjárhag fylkis-
ins. framför þess og velsæld al-
mennings f æskilegt liorf, heldur
'iitt, að það sé gert, og gert á þann
hátt, að árangurinn af starfseminni
sé öllum augljós og áþreifanlegur;
eða svona lítum vérámálið. En
ritstj. Liigbergs getur þetta sfni-
lega ekki. Maðurinn er svo ras-
andi, að hann sör |ofsjónir, ekkert
nema ofsjónir. Tökum til dœmis
grein hans í fyrra blaði, þar sem
hann segir um kosningalög fylkis-
ins, að þau séu svo úr garði gerð,
að það skuli ekki vera mögulegt
fyrir andstæðinga stjórnarinnar að
komast á kjörskrá fyrir næstu kosn-
ingar, vitandi þó að kosningalögin
ákveða að kjörskrár fylkisins skuli
samdar undir umsjón dómaranna,
og af mönnum settum’af þaim.
Stjórnin hefir sem sé ekki hina
minstu meðgjörð með samning
skránna. Það verk er algerlega
í höndum fylkisdómaranna og þó
slær blaðið því út, að lögin séu svo
gerð að það skuli verða ómögulegt
undir nokkrum kringumstæðum
fyrir andstæðinga stjórnarinnar
að komast á kjörskrá. Eftir þess-
ari staðhæfingu blaðsins að dæma
hlýturþaðað álfta alla fylkisdóm-
arana vera blátt áfram pólitfska
skálka, sem við samning skránna
hafi það eitt hugfast, að stela kjör-
rétti af hverjpm einasta Liberal í
fylkinu, Hvers á Mr. Myers að
gjalda, hinn nýsetti dómari. Hann
hefir þó sýnt það, að nann hefir
verið ákveðinn og einbeittur Liber-
al þingmaður. Þvf skyldi hann
vera svo snúinn, að hann geti ekki
unt flokksbræðram sfnum, sem
verið hafa, þess réttar, að mega
greiða atkvæði við kosningar.
Þessi staðhæfing Lgbergs
ritstj, um kosningaölgin, er svo
frámunalega fjarstæð öllu heil-
brigðu viti og sannleika, að hún er
tæpast svaraverð nema að eins til
þess að sýna vfsvitandi öfgar og
ósanngimi mannsins þegar þessi
pálitisku ofsjónaköst koma yfir
hann,
Tökum næst aðra staðhæfingu
úr sfðasta númeri Lögbergs þar
segir hann um jámbrautarsamn-
inga Roblinstjórnarinnar, að þeir
séu “verstu, vitlausustu, ranglát-
ustu járnbrautarsamningar, sem
nokkurn tíma hafa gerðir verið”.
Hvemig veit maðurinn þetta,
er hann svo gagnkunnugur öllum
jámbrautasamningnm, “sem nokk-
umtíma hafa gerðir verið”, að
hann sé fær um að sanna, að hann
fari með rétt mál? og í nverju ligg-
ur rangsleitni samninganna? Blfkt
verður að dæmast af áhrifum þeim,
sem þeir hafa á hag fylkisbúa. Með
þessum samningum hefir fylkið
fengið flutninga og fargjalda, um-
ráð á 1500 mílum af járnbrautum,
eins gersamlega eins og ef fylkið
ætti hvern dollar f stofnfé þeirra,
og þessi flutningsgjalda umráð
veita Manitobafylki um t v ö
li u n d r u ð þúsund dollars bein-
an hagnað á ári‘ sem árlega fer
vaxandi eftir því sem fylkið bygg-
ist og búskapur bænda og aðrir at-
vinnuvegir fjölga og aukast f fylk-
inu. Og alt þetta án þess að fylk-
ið verði fyrir svo miklu sem eins
eents útlátum, beinlfnis eða óbein-
lfnis fyrir þann feykna hagnað, er
það hefir fyrir þessa samninga.
Það er satt, að fylkisstjórnin heflr
gengið f ábyrgð fyrir þvf að vextir
skuli borgaðir af vissri “upphæð af
skuldabréfum félagsins, eftir að far
og flutningsgjald með brautum
þess hafa komist niður fyrir ákveð-
ið gjakl, en bæði er það að fylkið
hefir fulla tryggingu með fyrsta. og
öðrum veðrétti í öllu brautakerf-
inu fyrir ðllu því, sem það kynni
að þurfa að leggja út, sem greiðslu
af vöxtum félagsins, og svo er. eins
og oft hefir áður verið tekið fram.
als engin hætta á því, að fylkið
þurfi nokkum tfma að borga svo
mikið sem eitt cent af vðxtum af
þessum skuldabréfum. Þvf að C.
N. félagið hefir þegar f byrjun svo
rniklar inntektir af starfi sínu hér
i fylkinu, að það hefir sjálft borg-
að öll útgjöld sem á því hvíla og
alla vexti af öllum skuldabréfum
þess, og þó haft svo mikin afgang
í gróða, að það sér sér fært að færa
enn niður flutningsgjöld á vörum
þeim sem það flytur inn í fylkið og
út úr þvf. Og það má óhætt vona
að þessi flutningsgjalda lækkun
fari árlega sílækkandi eftir þvf sem
landið byggist og vömflutningar
aukast, Annað sem }>essir samn-
ingar hafa haft f för með sér er að
auka stórfeldlega innflutning fólks
úr Bandaríkjunum inn í fylkið og
að auka með þvf landverð að stór-
um mun, svo að jarðir bænda eru
nú miklu meira virði en þær voru
meðan Liberalar liöfðu stjórn fylk-
isns í höndum sínum. Það var
sannur frelsisdagur fyrir Manitoba
þegar Conservatívum voru fengin
völd fylkisins í umsjá. Þetta eru
bændur og businessmenn út um
fylkið farnir að sjá, og þess vegna
eru þeir teknir til að halda stjóm-
arforseta Roblin heiðurssamsæti
hver í kapp við annan, til að votta
honnm og stjóm hans með því
þakkladi sitt og vináttu, og að
vorri hyggju verður stjórnleg starf-
semi Mr. Roblins í hag fylkisbúa
aldrei of vel þökkuð. Þetta látum
vér nægja að sinni. Að eins skal
það tekið fram, að skortur á flutn-
ingsvögnum á C. N. brautunum f
Manitoba á sfðastliðnu hausti var
ekki meiri en á flestum öðrum
brautum, bæði í Canada og Banda-
ríkjunum, eins og allir vita. sem
lesið hafa blöðin, og satt vilja segja
um málið, og það er enganvegin
rétt,að kenna stjóminni um það,
þótt þessi nýja braut hafi ekkj
flciri vagna að tiltölu, heldur en
elztu og fullkomnustu brautir í
landinu. Enda hafði C. N. braut-
in fleiri vagna að tiltölu og flutti
út meira hveiti og aðrar vörur held
ur en C. P. R. félagið og það vita
Baldnrbúar allra manna bezt. Um
N. P. einkalagningsleyfið, sem
Lögberg og önnur Liberalblöð era
sffelt að stagast á, getum vér sagt,
að það mál verður á næsta þingi
skýrt svo ljóslega og nákvæmlega,
að almenningur mun sjá og viður-
kenna, að þar er engin flugufótur
fyrir staðhæfingum Lögbergs og
annara Liberalblaða.
Harvard háskóla bréf.
Kæri herra ritstjóri :—
Eg veit varla hyert það nemur
því að efna loforð mitt við yður að
senda yður nokkrar línur héðan, því
bæði er orðið langt síðan ég kom og
ég búinn að gleyma miklu af því
nýsiárlega, sem ég sá hér fyrst eftir
við komum, og svo sé ég að það
berast fréttir að blaði yðar úr öllum
áttum, og það frá viðburðaríkari
stöðum en héðan. En svo aftur á
móti er Hkr. góðra gjalda verð og
mjög kærkominn gestur fyrir þá,
sem lifa hér eins og “farþegjar
sjóinn við” og heyra ekkert íslenzkt
orð nema til sjilfra sín, það er að
segja þegar þeir ekki þá þegja, líkt
og landarnir sem búnir eru að veia
hér nærrí í 1000 ár upp með Charles
ánni, og búnir eru að tapa málinu
náttúrlega fyrir löngu eins og spáð
er fvrir Islendingum í Dakota og
Manitoba. Það var hörmulegt ann-
ars að það skyldí ekki komast á fót
hjá þeim skóli eða að rninsta kosti
íslenzk bókasafn áður en svona fór.
En í þá daga var skinn svo dýrt og
þeir nýbyggjarar svo fátækir, að það
var óhugsandi að koinast yfir marg
ar bækur, og skrælingjar ófianlegir
til að viðurkenna, hvað þá að kenna,
íslenzkuna svo mikið sem fyrsta ár-
ið í undirbúningsdeíldinni, svo það
var ekki við að búast að færi öðru-
vísi en fór. En svo ég fari ekki að
telja mér raunatðlur, þegar ég á að
senda yður fréttapistil herra ritstj.,
þá er víst bezt að fara ekki lengra
út í þetta efni, enda er það löngu
liðíð, en teikn þessara tíma öll önnur
og gleðilegri.
Ferðalag hingað austur frá
Winnipeg er engin æfintýraför. Það
gengur vanalegast fljótt og vel, mað-
ur heldur áfram viðstöðulítið unz
takmarkinu er náð. Þann tíma sól-
arhringsins, sem Ijóst er, er fátt að
sjá nema smá bæi hér og hvar og þar
á milli sléttiir, skógaeða vötn. Aust-
ur að Chicago er laridslagið mjög
tilbreytingalítið, hér og hvar hólar
og hæðir með smávötnum á milli eða
á eða læk á stöku stað, en þess utan
eintómar eyður og akiar. Enginn
getur þó borið á móti því að á viss-
um stöðum er útsýuið bæði fegurra
og tilbreytilegra en maður á að yenj
ast í Manitoba, t. d. í Norðmanna
nýlendunni hjá Stillwater í Wis-
consin og víðar í því ríki: en yfir
það heila tekið er Ameríka lík sjálfri
sér þar eins og annarstaðar. Eftir
42 tíma ferð frá Winnipeg, þar af
stendur maður 12 tíma við í St. Paul,
kemur maður til Chicago kl. 8 að
morgninum, og heldnr þaðan af stað
aftur að kveldinu, austur á leið.
Við fórum með Wabash brautinni,
sem ekki leggur út fyr en kl. 10.30
að kveldinu-
Biðin hefði orðið okkur nokkuð löng
þar hefðum við ekki verið svo bej p-
in að hitta vin minn, Gísla Jónsson,
frá Flatatungu, Gíslason, sem Jrar er
á læknaskólanum, Hann var með
okkur allan daginn og skildum við
ekki fyr en nokkrum mínútum áður
en lestin fór af stað, þá var klukkan
mikið gengin ellefu um kveldið. Eg
var hálf kvíðafullur yfir því að
hann næði ekki heiin með heilu og
höldnu, ég margbað hann því að
taka strætisvagninn, en hann þver.
neitaði að gjöra það, því hann sagð
ist ekki ætla að fara að taka upp á
sig ómök og ónot að fara að rífa upp
bankaþjónana þegar komin væri
nótt, til þess að víxla ávísunum fyrir
sig, en á sér sagðisf hann ekki hafa
meira en svo að sér væri óhætt með
það heim. Eg lét hann þá ráða og
kvöddumst við svo búið, og hét
hann að skrita mér strax og hann
fengi línu frá mér héðan. Ég lét
ekki bíða að skrifa eftir að hÍDgað
hingað kom, en ekkert svar hef ég
fengið enn, og uggir mig því að þar
hafi farið eftir sem ég kveið fyrlr að
kynni að ske um kveldið þá við
skildum. Ég bið fólk hans samt að
óttast ekki, hafi það fengið bréf frá
honnm síðan 18. Okt. síðastl.
Sunnudagsmorguninn þann. 19.
Okt. komum við til Detroit, Mich. og
stönzuðum við þar klukkutfma og
hálfan. Eftir ytra útliti að dæma
er það með þeim fallegri bæjum
sem ég hef komið í og án efa sá
þrifalegasti. Útsýnið er þar mjög
tilkomumikið og vfðsýnt. Vatn á
tvo vegu og hinum megin iOntaro
skaginn. Frá Detroit fórum við yfir
til Windsor og var lestin með öllu-
saman ferjuð yflr fljótið og fók það
rúman hálftíma, Það hafði ég aldrei
séð fyr gert og þðtti mér tíðindum
sæta. Allir farþegjar ruddust út úr
vögnnnum stiax og lestin var kom-
in upp á bátinn, upp á dálítinn pa.ll,
sem varum 3 mannhæðir fyrir ofan
aðal þilfarið, og sá maður þaðan
langt inn í Canada. En ekki var
það sem inn í neinn töfra heim sæi,
og þó er sá skagi sagður vera mjög
frjófsamur og kallaðnr ‘aldingarður
Canada.” Þenna Ameriska aldin
garð” bygðu fyrst af hvítum mönn-
um þeir.sem heldur vildu vera ánauð-
ugir þegnar konungs en taka þátt í
frelsisbaráttu Bandaríkjam. 1775—
82, eða eiga heima í frjálsu landi.
honungur úthlutaði þeim að afloknu
stríðinu þenna skaga og settust þeir
þar að og þar hafa þeir og afkom-
endur þeirra alið aldur smn síðan.
Það er annars merkilegt í sögunni
hversu ætíð heflr tekist eitthvað
ömurlega tíl með alia aldingarða,
eins og þeir eru þó ettirsóknavert
pláss, en þó sýnist síðari villan hafa
orðið argari hinni fyrri í þessu til-
felli, nema því að eins það sé svo
leiðis að þeir einir eigi skilið að lifa
I aldingarði, sem ekki þekkja mis-
muninn milli góðsog ils. Ef svo
er, þá var engum gert rangt til þótt
“LoyaP' istunum væri gefinn Ontario-
skaginn.
Til Niagara Falls, Cnnada-
megin, komum við um kveldið og
mr þar stanzað til kveldverðar.
Ekki höfðum við tíma til að fára
ofan að fossinum því eftir hftlftíma
var haldið af stað aftur, og eftir að
farið var frá Buffalo var haldið á-
fram viðstöðulítið unz komið var til
Camb/idge morguninn eftir. Á
þessum síðasta áfanga er laudslagið
mjög tilbreytilegt og víða fallegt, eu
nokkuð er það hrjóstugt og öiæía-
legt, þó einkum strax og komið er
í Ný-Englandsríkin. Þegar maður
getur fyrst glórt út um vagnglugg
ann og séð hvar maður er staddur, sér
maður ekkertannaðenhiminháa hóla,
alla skógivaxn og hér og hvar fra.m
aní brekkunum hús og hús á stangli.
Daljrnir, sem maður fer eftir, e>u
allir mjóír og þrengslalegir og gróð-
urlitlir eftir því sem séð verður;
bæirnir flestir smáir og gamaldags-
legir og húsin flöt og fornfáleg. Á
vagnstöðvunum á þessari leið var
hvergi neinn ólmandi eða læti þegar
lestin staðnæmdist, menn fóru sér að
öllu rólega. Þeir sem fóru ofan á
þessum eða hinum staðnum, fóru
þegjandi og í hægðum sínum, og
þeir sem biðu þeirra fyrir utan létu
sér í engu óðslega að heilsa þeim eða
sýna þeim önnur vinalæti sem tíðk-
anleg eru milli innlendra, og vana-
legast ganga af með hljóðum og há-
reisti. Það helzta sem maður tekur
eftlr við bændabýlin á þessum stöðv-
um eru girðingarnar, sem hrófað er
upp úr lausagrjóti, sem stunglð heflr
verlð upp úr hólunum Alstaðar
þar sem maður fer eftir brautinni
sjást þessar girðingar á báðar hend-
ur. Mér datt strax í hug túngarð-
arnir sem ég hef heyrt gerið um að
séu á Islandi, en ekki veit ég hvort
þessir Ný-Englandstúngarðar eru
neitt líkir þeim, og eitt er víst að
hvergi voru að sjá nein “Grettistök”
í þessum görðum. En ef túngarð-
arnir á Islandi eru ekki fallegri en
þessir garðar eru hérna þá er það
áreiðanlegt að þeir eru engin bæjar-
prýði, því til þess að halda steinun-
um kyrrum er troðið mosa og mold
í allar misfellur,—En svo þarf mað-
ur nú reyndar ekki að lá bændum
hér þessa byggingaraðferð, því það
er margur yeggurinn, þótt ekki sé
úr grjóti, sem hlaðinn er upp á líkan
hátt, og margir sem gefa sig í að
halda honum við og fylla upp í
eyðurnar með' engu vandaðra efni
en torfl og mosa. Þær eru margar
gömlu flíkurnar sem enn er reynt
að halda saman ineð nýjum bótum
og þeir ekki svo fáir sem læra aðal-
lega upp á það ad klippa bætur; því
það er um að gera að láta ekki al-
múgan komast úr sínum hversdags-
görmum, og ekki út fyrir vegginn,
uinfram alt ekki út fyrir vegginn.
(Meira).
Ókurtetsi á hæsta stigi.
Samkomunni, sem haldin var
á Nortli West Hall 13. þ.m. varþað
til stórlíta hversu óvirðuglega ein
persóna, sem fram kom á prógram-
minu, var leikin af áheyrendunum,
nefnil Miss Emily Morris, sem
síðast á prógr. spilaði piano solo.
Þegar Miss Morris var kölluð upp,
þnsti allur fjöldinn út, en flest af
þvf er eftir sat talaði svo hátt að
vart beyrðist hvort verið var að
spila eða ekki, samt sá ég örfáar
manneskjur sitia kyrrar og gera
tilraunir til að hlusta.
Slík vanvirða, sem þessi, ætti
aldrei að koma fyrir, f>ví þó fólkið
ætli ef til vill ekki að fyrirlfta þann
er fram kemur heldur skoði sein-
asta stykki prógrammsins zem út-
göngu-march, hvert heldur það er
upplestur, kvæði, ræða eða hljóð-
færasláttur, f>á er það þó tfl að
meiða tilfinningar þeirra, er fram
koma, og lýsir ókurteisi þeirra er
á hlýða, og til að spilla stóruin fyr-
ir eftirfarandi samkomum, sem
f>ó má ætla að verði stofnaðar eins
og þessi áminsta samkoma, til að
hjálpa J>eim sem bágt eiga.
Btykki það, sem Miss Morris
spilaði var vel f>ess virði að hlust-
að væri á það með athygli, þvf ein-
mitt f>að var einna bezt fram borið
af öllum Music stykkjunum á J >ei rri
samkomu. Lagið sem Miss Morris
spilaði var fremur af léttri tegund
og hvergi innihélt J>að ]>ungt eða
flókið harmony, en samt sem áður
er lagið hljómafagurt og töluvert
rnikil fingra æfing. Miss Morris
gjörði mjög vel og á þakkir skyldar
frá öllum er viðstaddir voru.
Jónas Pálsson.
SPANISH FORK, UTHA.
1. Janúar 1903
Herra ritstj.
Gleðilegt nýtt ár!
Egjjheld ég verði nú að slá f að
rita þér fáeinar línur, fyrstog tremst
til að óska þér til lukku og gengis á
þessu nýbyrjaða ári, og þar næst til
að þakka þér fyrir “Cempiimentary-
ið“, og síðasten ekki sízt, fyrir jóla-
blaðið, sem ég álít prýðilega úr
garði gert, bæði að efni og frágangi,
og sömuleiðis huglátlega og myndar
lega jólagjö* trá prcntfélagí Hkr.
Þegar ég var að lesa blaðið og