Heimskringla - 16.04.1903, Síða 1
XVII. WINNIPEG, MANITOBA 10. APRÍL 1903. Nr. 27.
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
—Sagt er að konungur vor sé
búinn að lýsa því formlega yfir, að
hann ásamt drotningu sinni ætli að
heimsækja írland í sumar. Þessi
ttðindi valda ofsakæti 4 írlandi, því
írar vonast eftir að konungurinn og
drotningín heimsæki sig ekki nema
því að eins, að þau færi þjóðinni
einhverja réttarbót. Það eru eink
um landlögin, sem írar vonast eitir
að þingið geri umbætur á, og kon
ungshjónin skjótist svo með þau yfir
til stn, og hafi þau að orðlofsgjöf.
—Margrét Neve er nýdáin. Hún
var elsti þegn Edwards konungs
VII., oghefði talið 111 aldursftr, ef
hún hefði lifað þangað til í Maí næst-
komandi. Húiv var mikil vinkona
Victoriu drotningar. Hún var
ekkja milli 50 og 60 og útti ekkert
barn. Hún var læið kona og ment-
uð vel. Hún þýddi miKið af rit
verkum Dantes á franska tungu, og
hlaut lof fyrir það verk. Hún gekk
óstudd til dauðadags og notaði aldrei
staf, og var aldrei sjúk & efri árum
sínum.
—Háöldruð kona, Mrs Ann War-
ren, er nýdáin í Bandaríkjunum.
um. Hún var 103 ára gömul.
—Upphlaup varð Madridum helg
ina sem leið. Stúdentar og lög-
regluþjónar áttu vopnaviðskifti og
drap lögreglan 3 skólapilta og særði
14. Fólkið fylgdi skólapiltum, og
hrópaði: ,,Lengi lifi þjóðveldi, en
helja sæki inninríkisrfiðgjafann”,
(Senor Maura). Þessi fylking bar)
syartan íána á undan fylkingur.ni.
Lýðveldissinnar á Spáni gera sér
nokkrar vonir um að ná yöldum nú,
meðan fiest er þar á ringulreið, og
reyna því að gera upphlaup sem
víðast. En eftir þessum viðskiftum
að dæma, er ólíklegt að von þeirra
rætist.
—Búlgaríumenn og herliðTyrkja
er sagt að hafi háð orustn nýlega, og
hafi 1000 menn legið eftir á vfgvell-
inum særðir og dauðir.
Stórþjófnaður og fjárglæfra-
brögð eru borin á stjdrnina á Prince
Edward Island. Hún er liberöl,
—Upphlaun og manndráp hafa
verið á sumum stöðum í Mexico.
Skríllinn hóf göngu og hrópaði:
„Dauðinn sæki hershöfðingja Reyes’.
Lögreglan og herliðið var sent á
móti uppieistarlýðnum, og sló í bar-
daga. Nokkrir féllu og æðimargir
særðust. Orsökin er það, að tólkið
vill ekki hafa þann mann fyrir
landstjóra, sem er það nú.
—Fregnriti blaðsins Daíly Mail,
sem heima á í Sidney í Ástralíu,
hefir nýlega sent blaðinu frétt um
að fjarska mikið hafi fundist nýlega
afgulli í miðju landi. Staðurinn er
þetta gull finst í, heitir Adelaide.
Það er sagt í þessari frétt, að þar séu
heil fjöll full af gulli og ekki þurfi
annað en mala grjótið og ná síðan
gullinu, sem grjótið sé mjög auðugt
af. Gullleitarmenn hafa einlægt
spáð því, og staðið fast á því, að það
væri afarmikið af gulli inn í miðju
landinu,- Og hafa menn í mörg ár
beðið eftir því, að það fyndist og
yrði unnið.
—Nýtega á að vera fundin gröf
Thothmas IV, í konungadalsgraf-
reitnum, sem svo er nefndur, af því
að þar áttu allir konungar, sem voru
íThebu að hafa verið jai ðaðir. Þessi
Thothmas var einn af Faraóunum,
og var af hinni 18. kynkvfsl, og gröf
hanser um 3000 til 4000 ára gömul.
Beinarusl af flestum dýrurn og fugl-
um fundust í séstöku skoti í graf-
hvelfingunni. Þar heflr einnig fund
is skrautlegur hervagn frá þeim tím-
um, og sem þessi faraó ók í inn og
út um Theba. Það er hið eina, sem
óskemt er, því það sér ekkert á hon-
um. Á hann eru krotaðar orustur
þær, sem faróínn heflr átt í Sýríu.
Það er mjög vel gert, og eru andlit-
in á herteknum mönnum úr Sýrfu,
sem fluttir voru til Thebu og hneptir
í þrældóm, mjög vel gerð.
—Macedoniumenn eru að útvega
sér sjálfboðalið. Professor Michai-
louski fór til Englands og ætlaði að
fá þar sjálfboðalið, en það varð alveg
árangurslaust. Englander ekki af-
lögutært af herliði.
Meðan velska fótgöngulið Breta
var í Suður-Atríku ófriðnum, hafði
það geit, sem það fangaði þar, og
lét hana ganga í broddi fylkingar,
samfleytt í 2 ár. Nú hefir konung-
inuin þóknast að taka geit þessa, og
lAta setji hana í geítahjörð sína í
Windson Great Park, en gaf liðinu
af'tur geithafur úr hjörð sinni, valda
skepnu og góða, sem tekur við starfi
Suðar Afrlku geitarii.nar. Hún kann
illa við sig í nýja heirakynninu; hún
þykist auðijáanlega ófrjálsari f hjöið
konungsins, en í Kruggersdorp, þar
sem heímastöðvar hennar voru áður.
Vond matreiðsla er talin orsök
fyrir 400 hjónaskilnuðum í Chicago
síðastl. ár. Það er að segja, að
bændurnir hafa fært vondan matar-
tilbúning hjikonum sínum, sem aðal
ástæðu fyrir því, að þeir gerðu lög-
skilnað við þær.
—Á Frakklandi vinna 15,319
kvenmenn yið járnbrautarstarfa.
Flestar eru þær verðir við j rnbraut-
irnar, þar sem þær liggja þvert hver
um aðra. Laun þeirra eru lá, en
allar hafa þær ofulitla skemmu til í
búðar, með fáein ferhyrningsfet í
kiing um fyrir blómarækt, leigufrí-
ar, Þær vinna alla daga í árinu og
fá engan frídag, hvorki helgidnga
né aðra daga, og starfstími þeirra er
15 18 k'ukkutlmur. 5275 af þeim
fá ekki nema $2,90 um mánuðinn-
7000 fá $4,10 og upp í $7,72, og 601
frá $7,91 til $10.61. Að eins fá 60
konur úr þessum flokki hærra kaup,
en engin fær meira en $31,84 um
mánuðinn.
í fyrri viku kom Perry ásamt
tveimur aðstoðarmönnum sínum tii
Selkirk. Hann er verkfræðingur
hjá Trans Canadian járnbraatarfó
laginu, og hefir starfað að landmæl-
ingum fyrir norðan Winnipegvatn í
vetur. Ferðin að norðan var lang-
sótt og erflð og uppgáfust hnndar
þeirra af ófærð og vaðli- Perry seg
ir að þeir hafl rannsakað og mælt
200 mílur, um 70 mílur austan við
Norway House. Þessum mœlinga-
fiokk hefir liðið frekar vel í vetur,
og vetur þar nyrðra segja þeir bú-
inn, Þeir sem eftir eru, eru nú að
mæla land austan við Island Lake.
—f vikunni sem leið gerðu 2,500
múrarar og daglaunamenn verk-
fall í Sviss. I erringar elóst á milli
þeirra og lögreglunnar og léku þeir
hann ærið hart, og hefir fram-
kvæmdarvald þjóðarinnar kallað 7
herdeildir út til að annast um frið
og spekt. Búist við að verkfallið
standi ekki lengi, því það ernýlunda
þar í landi.
— Að undanförnu heflr verið yfir-
giipsmikið verkfall I Hollandi. Allir
sem hafa unnið við vörufiutninga á
vatni og landi hafa haflð verkf'allíð.
Er því umferð á járnbrautum og
vatnaleiðum nær engin nú sem
stendur.
ÍSLAND.
Eftir Norðurlandi.
Akureyri, 14. Febrúar 1903.
Afturhvarf. Séra Rjörn B. Jóns-
son í Minneota skrifar ritstj. Nl. í
bréfi, sem kom nú ineð Agli: „Ein-
kennilegt er það—það segi óg til að
gleðja yður—að á allra síðusta tíð
virðist vera að koma reglulegt aftur
hvari mjög viða til als, sem er ís-
lenzkt. Það gæti ég á margan hátt
sannað”.
“Þetta ár var sannkallað velti-
ár”, skrifar séra B. B. J. enn frem
ur, „enda framfarir ótrúlega mikl-
ar. Drottinn heflr sannarlega bless-
að bvgðir vorar”.
Mannalát. Þann 4. þ. m. and
aðist hér í bænum Guðríður Jónas.
dóttir, tengdamóðir kaupmanns Jak
obs Gíslasonar, 73 ára gömul, ekkja
Davíðs Sigurðssonar, fyrrum veizl-
unarmanns á Akureyri, dáins 1899.
21. Febrúar. Húsfrú Guðrún
Sigurðardóttir á Möðruvöllum i
Hörgáidal, kona Stefáns Stefánsson-
ar eldra á Möðruvöllum, lézt kl. 10
í gærmorgun úr lungnabólgu eða af
leiðingum hennar, lúmlega sjötug
að aldri.
Nýlega andaðist Hallgrímui
Þórðarson á Völlnm í Eyjaflrði, nær
þvi 83 ára gamall.
Dáinn er tómthúsmaður Bene
dikt Olafsson á Akureyri, einn af
elztu borgurum bæjarins.
Einnig er dáinn Jóhannes Jóns
son á Hranastöðum í Eyjafirði, er
þar bjó lengi ágætu búi og mörgum
er að góðu kunnur.
I gærdag andaðist hér í bænum
merkiskonan ekkjufrú Margrét Hall-
dórsdóttir, systii cand. Jóhannesar
Halldórssonar hér í bæ, prófasts
Daníels a Hólmum og þeirra svst-
kina Hún var hátt á ftttræðisaldii.
Tíðarfar óstöðugt, enda allkvef-
hætt og kvillasamt hér umslóðir.
28. Febrúar. Aðfaranótt hins
20. þ. m. brann til kaldra kola brauð
gerðarhús Höepfners-verzlunar hér í
bænum, Norður o' suðurendí húss
ins var einloftaður, en iniðhluti húss
ins þríloftaður stöpull. I norður-
endanum var bakaraofninn, en í
suðurendanum og miðju húsinu uppi
íbúð forstöðumanns brauðgerðar-
hússius, Axel Sehiöths.
Um berkiaveiki og varnir gegn
henni hélt héraðslæknir Guðmundur
Hannesson injög fjölsóttan alþýðn-
fyrirlestur í stóra salnum í Hotel
Akureyri á miðvikudagskveldið var.
Dinir eru tveir merkisbændur í
Kelduhverfi, Þórarinn Björnsson,
fyrrum bóndi á Víkingavatni.greind-
armaður mikill og fróður yel, og
Indriði IsaKsson, Keldunesi, taljnn
einn af beztu bamduin sveitarinnar.
Fyrir skömmum tíma fór Þórður
Jónasson í Saurbrúargerði, sá er áð-
ur bjó á Skeri og lengi var hafn-
sögumaður við Eyjafjðrð, ftleiðis
heim til sín af Kljftstrðnd, en fórst í
þeirri för, að menn halda. í lónunum
milli Ness og Höfða. Hann var ó
fundinn er síðast fréttist.
Veðráttan umhleypingasöm mjög;
þó hafa hákarlaskipin Phönix og
Stormur farið í hákarlalegar og afl-
að vel, flutt mikinn hákarl á land.
Með síðasta pósti barst verzlun-
arstjóra Grönvold sú tilkynning frá
herra kaupstjóra Chr, Havsteen,. er
dvelur í Khöfn, að frá þessu nýári
1903 væi i Gránufélag hætt allri á-
fengissölu hér.
7 Marz. Úr Svarfaðardal er skrif
að 28. f. m.. “Skepnuhöld hér f
sveit munu nú vera í bezta lagi
Hér er hvorki síldar- né þorskaafli
nú og hefir ekki verið síðan í haust í
Nóvember, MjÖg Þungt kvef hefir
gengið hér að undanförnu, en engir
hafa dáið úr því það ég til veit.
Þann9. ,Ian. síðastl. andaðist
að heimili sínu Jóhann Guðmunds-
son í Hamarkoti, ráðvandur maður,
hníginn á efri aldur. Heilablóðfall
varð honum að bana.
Einnig er dftinn Bergur Bergsson
á Hæringsstöðum, faðir Páls kaup-
manns f Olafsfirði.
Yflr 100 hákarlar voru veiddir
hér á Pollinum upp um ís síðastl.
mánudag og þriðjudag. Sjómaður
Jón Friðfinns'On veiddi með öðrum
manni 47 hftkarla, raest á einum sól
arhiing. Flestir voru hákarlarnir
smáir, hinn stærsti þó nálægt 6 áln-
um. Til jafnaðar mun hverhákail
ekki gera meíra en I kr. Mjög lítið
f'anst af tiski í maga hákarlanna, en
mikið af sel, í einum var heill hóp-
ur. Til beitu hafa veiðimenn eink-
um notað hrossakjöt og selstykkin
úr maga hftkailanna.
Annars er hér aflalaust á öllum
Eyjafiiði og hefir verið það síðan í
haust.
Tíðarfar. Frostlítið hefir ottast
verið þessa viku, þó aldrei hláka,
loít oftast þykt og drungalegt. en
snjókoma lítil. Þó féll töluyerðnr
lognsnjór á miðvikudagsnóttina.
Eftir Þjóðviljanum.
Bessastöðum, 17. Febrúar 1903.
Sumarveðrátta má heita að ver-
iðhafinúum hríð, hlakur og þíð-
viðrí á hverjum degi. Annarstaðar
af landinu er llka einmunatíð að
frétta. T. d. unnu Skagfirðingar að
jarðabótum fyrir jólin og er það fá-
gæt veðurblíða á norðurlandi.
10. Marz. Fríkyrkjusðfnuðurinn
í Reykjavík hefir nú komið sér upp
kyrkju og varhún vfgð 22. f. m. af
hinurn væntanlega presti fríkyrkj-
unnar. Ólafi Óiafssyni ritstj. Kyrkja
þessi er hin vandaðasta og söfnuðin-
um til sóma I henni geta setið um
600 manns. Kyrkjan kostaði um
20.000 kr. auk organs, sem pantað
hefir yerið fyrir 4 J þús. kr. í ráði
kvað vera að rafiýsa kvrkjuna og
kostnaður við það ftætlaður um 2000
kr. í fríkyrkjusöfnuðinum eru nú
hér um bil 1000 manns.
Skipstrand, Um miðjan f. m.
jstrandaði enskur botnverpill fram
i undan Jökulsá ft Sólheimasandi og
fórustmenn allir er á voru.
Ofsaveður á landnorðan helir ver-
ið hér tvo síðustu dagana.
19. n arz. „Motor”-bátar. Herra
Árni Gíslason, formaður og útvegs-
maður í Isafjarðarkaupstað, hefir í
vetur lfttið setja .,motor”-véI í roðrar
bát, sem er eign hans og hr. Soph.
J. Nielsens, fyrrum verzlunarstjóra
og er Árni formaður á skipinu.
Klæðaverksmiðja í Reykjavík.
Á furidi, er haldinn var í Reykjavík
12. Marz síðastl., var stofnað hluta-
félag, er nefnir sig „Iðunn”, og er
ætlunarverk þess, að koma á fót full-
koiuinni klæðaveiksmiðju í Reykja-
vík. Stofnféð er ætlast til að nemi
60 þús. kr., og að félagið hah að
auki 15 þús. kr. sem starfsfé, og er
upphæð hvers hlutar 500 kr. Gert
er ráð fyrir að verksmiðjan verði
reíst inn við Ranðará, og að gufafl
verði notað, til að knýja áfram vél-
arnar.
Tíðarfarið hefir í þ. m. verið afar-
óstððugt og stormasamt, og snjóar
öðru hvoru. 14. þ. m. gerðí suðaust-
an hvassviðri, og hellirigningu, svo
að jörð varð þft alauð að kalla, en
daginn eftir var hann með úrsynn-
ingsjeljum, og dyngdi þá aftur^niður
nokkrum snjó. og hefir tið síðan ver
ið mjög umhleypingasöm.
3. þ. m. andaði8t í Reykjavík, á
kaþólska spítalanum.húsfrú Jóhanna
Friðríksdóttir, seinni kona Gunnars
kaupmanns Einarssonar í Reykjavík
—Banamein hennar var tæring.
Manntjón á þilskipum við Faxa-
flóa, í miklu veðrunum 8.—9. þ.
m, hafa því miður orðið mannskaðar
á sumum þilskipunum hér við Faxa-
flóa, er voru nýlega lögð út til fiski-
veiða, ftður en veður þetta skall á.
ew
York |_ife
nsurance l.o.
JOHN A. McCALL, prksidext.
l.ifsábyreðir f gildi, 31. Des. 1902. 1550 niillionir Dollain.
700,000 ejaldendur, sem eru félagið eiga það og njóta als gróða.
145 þús. manna gengu í félagið A árinu 1902 með 303 miliion doll.
ftbyrgð. Það eru 40 milliónir meira en vöxtur fél 1901.
Gildandi ábyrgðir bafa aukist á síðastl. ári um 188 mill. Dollars.
Á sama ári borgaði félagið 5000 dánarkröfur—yfir 15 mill. Doll,—
og þess utan til lifandi weðlima 14J mill. Doll.. og ennfremur var
@4,750,000 af gróða skift upp milli iredlima. sem er @800,000
rae'ra en árið 190f. Sömuleiðis lánaði félagið 27,000 meðlimum
$8,750 000 á ábyrgðir þeirra, með 5 per cent rentu óg án annars
bostnaðar,
C. Olafson, J. «. Tforgan. Manager,
AGENT. ORAIN EXCIIANQE BUILDINQ,
•W INNTIPEG.
Strandið á Skeiðarársandi.
Eir.s og drepið heflr verið á í
blöðurn hér vestra strandaði þýzkt
skip, sem hét Freidrich Albert á
miðjum Skeiðaiársandi 19 Janúar
siðastl. Skipverjar voru 12 ogkom-
ust allir lifandi á land. Frost var
allmikið, hvassviðri og náttmyrkur,
og drífa nokkur. Strandið var með
hftsjó, svo sjór féll undan skipinu að
miklu leyti. Allir menn voru í
svefni nema vökumaður þegar skip-
ið strandaði. Það fyltist strax af
sjó. Skipverjar náðu engu úr því
nema litlu af matvælum og d&litlu
af fatnaði, og allir voru þeir mjög
vanbönir að mæta harðindum. Þeir
láu útí í 11 sólaihringa og 3 dóu,
en 6 kólu meira og minna. Aðmorgni
þess 30. kl. 9J ftrd. komust 9 af
þeim til mann abygða. Allan þann
tíma urðu þeir að viðhafast á sand-
inum og Eöfðu^lítið afdrep, Þeir
gerðu 3 tilraunir að vaða yflr vötn-
in, ýmist upp undir jökli eða neðár,
en urðu jafnan frá að hverfa, því
vötnin reyndust óvæð. Við strand-
ið höfðu þeir gert sér skýli úr tunnu
ræflum, sem rak af skipinu, og
breiddu segldruslur yflr. Þrjár
nætur g&tu þeir hatst þar við. Þeir
leitnðu daglega mannahygða. Fyrír
framundan sér sáu þeir hungur-
dauðu.eða að frjósa f hel. Yfirstýri-
maður ætlaði að brjótast yfir svo
nefnt Hvalsíki 27. og fór einn sfns
liðs, og veit enginn um hann síðan.
Hefir druknað eða frosið í hel þar á
eyrunum. Stðan smíðuðu hinir sér
lleka, og drógu hann ýmist í vötnum
eða stjökuðu sér yfir dýpstu álana,
Einn dag sáu þeir manníerðir vestau
Hvalsíkis, er gengu á fjörur. en með
engu móti tókst skipbrotsmönnum
að vekja þeim eftirtekt á sér, enda
veður hvast og vegalengd mikil
Samt herti þetta á þeim að brjótast
upp á líf og dauða vestur yfir vötn-
in, sem þeim tókst loks, en 2 af
þeim frusu í hel í vötnunum. Þá
þeir komu vestur yfir fundu þeir
sleðaslóð og röktu hana til kvelds og
láu þá úti undir bátflaki | úr mílu
frá bygð. Næsta morgun komu
peir að Orrastöðum; þar býr fátækur
bóndi og einyirki, eu veitti þeim
móttöku af liinni mestu snild. Hann
brá tafarlaust við að útvega menn
og hesta að flytja þá köldu og sjúku
á læknissetrið. Vegir voru vondir
og fönn mikil, vötn auð eða illa
held.—Haldið er að 3 af þeim verði
ferðaíærir eftir lítinn tíma., en 6
liggi lengi í kali. Kölin eru mest
á höndum og fótum, og voru þýdd í
snjó og köldu vatni.—Strand þetta
var langsfrá ölluin mannabvgðum,
og á versta stað, og eru þar aldrei
maunaferðir, nema þeirra er ganga
á reka milli Hvalsíkis og Skeiðarár,
en þeir ganga aldrei um h&vetur, því
slíkt er talin háskaför.—Strandmenn
þessir hafa sýnt framúrskarandi
mikla dáð og þrautseigu í að bjarga
sér. Viðtökur bóndans á Orrastöð-
um & Brunasandi eru annálsverðar,
og á hann í hæsta máta skilið að fá
virðulega viðurkenningu fyrir þær.
—Leið sö sem skipbiotsmennirnir
brutust eftir, er talin af kunnugum
ófær öilum mönnum.
séð hina fyrcefndu útgáfu, með því
hin síðarnefnda ,er að ýmsu leyti ó-
fullkomin og hroðvirknisiega af
hendi leyst.
Æflsciguna aftan við bókina
þyrftu og þeir, sem þegar hafa eign-
ast hana, að senda Jóni Ólafssyní, af
því álíta verður að slík æflminning
sé iniklu fremur lýsing & einni hlið
karakers Jóns Ólafssonar, heldur en
lyndiseinkunnum Gests sáluga.
Hesteyri, l3.Febrúar 1903.
SlC.URÐUR PÁLSSON.
S. Anderson.
V EGGJA=
Pappirssali.
Hefir nú fádæma miklar birgðir
af alskonar veggjapappir, þeim fall-
egasta, sterkasta og bezta, sem fæst f
Canada, sem hann selur með lægra
verði en nokkur annar maður hérna
megin Superiorvatns, t. d.: fínasta
gyltan pappír á 5c. rúlluna, og að
sömu hlutföllum upp í 50c. Vegna
hiuna miklu stórkaupa, sem hann
heflr gert, getur hann selt nú með
lægra verði en nokkiu sitini áður.
Ilann vonast eftir að Iflendingar
komi til sín ftður en þeir kaupa ann-
arss'aðar, og lofait til að gefa þeim
10% afslfttt að eins íuóti peningura
út í hönd tii 1. Júni. — Notið tæki-
fæiið meðnn timi er til.
S. ANDERSON.
(»51 Riiuiiiit)ne Aveiuu*.
Telefon 70.
Yfirlýsing
FRÁ ÍSLANDI.
Með þvt að ég hefi selt þeim
herrum Sigurði Júlíusi Jóhannessyni
og Arnóri Árnasyni í Ameríku út
gáfurétt minn að skftldritum GESTS
sftl. PÁdSSONAR bróður míns, er
þeir Sigfús forleggjari Eymundsson
og Jón Ólafsson ritstjóri hafa tekið
sér þann myndugleika að gefa nokk-
uð af ritum þessum út án minnar
vitundar og vilja, þá leyfi ég mér
hér með að skora á alla góða Islend-
inga, sem unna skáldlegum listum,
að kaupa ekki þessa útgáfu þeirra
Sigfúsar og Jóns, fyrr en þeir hafa
Legsteinar —*
Ég hefi tekið að mér útsölu á
legsteinum fyrir eitt af hinum
stærstu og áreíðanlegustu marm-
arverkstæðum í ríkinu, og vegna
þess að ég hef feomist að raun
um að verkið er vandaðra og
verðið að mun lægra en hjft
keppinautum okkar, þá vildi
ég mælast til að landar mínir
láti mig vita áður en þeir panta
legsteina hjá öðrum. Borgunar-
skilmáli er líka betri en hægt
er að fá hjá flestum öðrum á-
reiðanlegum félögum.
H. J. HALLDORSON.
HALLSON N. DAK.
LAND TIL SÖLU
að Brú P. 0., Argylebygð, S. W. J
8. Tp. 6, R. 13, VV. lst. M. Þeir
Bem kunna að vilja eignast ágætt
land í Argylebygð, með vægum skil-
málum, snúi sér til undirritaðs, sem
gefur nánari upplýsingar.
Hallgrímur Jósephsson.
Brú P. O., Man.