Heimskringla - 14.05.1903, Qupperneq 1
XVII. WINNIPEG, MANITOBA 14. MAÍ 1908. Nr. 81.
PIANOS og ORGANS.
Ileintxinnii & C« 1‘ííiiiom.--Bell Orgel.
VTér seljam með mánaðarafborgunarskilmáluin.
J. J. H M< LEAN & CO. LTD.
530 MAIN St. WINNIPEG.
ew
York [jfe |
nsurance
JOHN A. McCALL, president.
Lifsábyrsfðir í gildi, 31. Des. 1902. 1550 niillionir Bwlliii'M.
700,000 gjaldendur, sem eru félagið eiga það og njóta als gróða.
145 þús. manna gengu i félagiðá árinu 1902 með 302 miliion doll.
ábyrgð. t>að eru 40 miiliónir meíra en vöxtur fél. 1901.
Gildandi ábyrgðir hafa aukiet á síðastl. ári um 188 mill. Dollars.
Á sama ári borgaði félagið 5000 dánarkröfur—yfir 15 mill. Doll.—
og þess utan ti) lifandi n eðlima 14J mili. Do!l.. og ennfremur var
$4,750,000 af gróða skift, upp milli treðlima. sem er $800.000
meira en árið 1901. Sömuleiðis lánaði félagið 27,000 meðlímum
$8,750,000 A ábyrgðir þeirra, með 5 per cent rentu og án annars
kostnaðar,
C. Olafson, J. O. Horgan. Manager,
AGENT. GRAIN EXCHANGE BIIILDING,
W I JST IsT IPEGr.
Fregnsafn.
Markverðuscu viðburðir
hvaðanæfa.
- Jarðfræðingar hafa rannsakað
Tartle JMountain n&kvæmlega,
sem hrundi um daginn, nálægt
bænum Frank. Búist við öðru
framhlaupi þi og þegar. Stjórnin
hefir lfttið fólkið flytja burtu úr
þorpinu og grendinni, því næst & að
flýta fyrir skriðunni eða hruninu
cteð dynamite. Um 40 milliónir
tonna af aur og leir og grjóti hanga
utan í fjallinu og fellur áreiðanlega
fyrr eða síðar, og á að hjálpa hlaup-
inu til að komast ofan á jafnslóttu
með sprengingu.
—Maður sá sem & að vera búinn
að flnna berklu þá, sem veldur bólu-
veikinni, er Dr. W. C. Counc.ilman.
Vísindafélagið i Boston staðhæflr
þesSa uppgötvun, sem virkilega. Dr.
Councilman, er professor í sjúkdóma
træði við Harvard Medical-skólann.
Berklan er ein sú allra lægsta, sem
þekkist nú-
—Þeirri sögu var fleygt út fvrir
helgina; að konungur vor heíði ver-
ið myrtur þegar hann kom til Paris
ar. Vakti það hina mestu greuiju
á Englandi, sem nærri má geta. En
sagan reyndist tilhæíulaus.
—Fyrra sunnudag áttu Doukho-
borar og agentar stjórnarinnar í
skærum við Saskatchewan-ána. Loks
báru agentarnir og varðliðið sigur
úr býtum eftir harða víðureign.
Voru foringjarnir, sem réðu fyiir
leiðangri Doukhobóra fangaðir, og
er verið að flytja fótkið heim til sln
aftur, nauðugt og nær því frávita.
Libcral máigögnin segj i að Douk-
hobórar hefji ekki leiðangur aftur-
því hafa þau slegið fyrir fyrri, en
ekki gengið eftir spám þeirra, og lík-
iegt að svo fari enn þá.
- Um mánaðamötift voru mjög
miklír vatnavextir í Klondyke, og
hafa flóð gert þar afar skaða, eink
um í Bonanza Creek. Sópaðist þar
f burtu og eyðilögðust áhöld og vél-
ar. Það er hlákuvötn, sem va'da
þessum vatnagangi. Mælt er að
aur og sandur, sem mokað var upp í
vetur og lá á snjó og klaka, hafl sóp
ast burtu, og er áætlað að þar hafi
tapast um tvær milliónir dollarar af
gnlli. Þegar fréttin kom, var ekki
útlit fyrir rénun að_svo stöddu.
—Margar þúsundir Gyðinga eru
að taka sig upp á Rússlandi, einkum
af þeim stö.ðvum, sem þeir voru
drepuir og misþyrmt á um daginn.
Stjórnin lætur varðlið hafahið strang
asta eftirlit á, að þeir séu látnir í
iriði. Þeir sem fasteignir eiga
ganga frá þeim, án þe3s að geta selt
þær eða haft nokkuð upp úr þeirn-
—Mælt er að stjórnin í Ottawa
ætli að fyrirbjóða alla hskveiði i
suður parti Winnipegosisvatns þetta
sumar. Annarsstaðar mega heimil-
isfeðnr veiða sér til matar.
—Óeirðnm og npphlaupum heldur
áfram í Salonica. Kventólk og ung
lingar taka þátt í því. Tyrkjum er
ekki farið að lítast á blikuna þar.
—Mælt er og áreiðanlegt talið, að
Grand Trunk járnbraptarfélagið ætii
að leggja braut þá, sem það hetir í
hyggjn að byggja fiá hafi til hafs,,
gegnum Wínnipeg Að undan-
förnu hefir verið sagt að brautin ætti
að liggja langt norðnr í óbygðum
og yflr mjóddina á Winnipegvatni.
Tveir ytirmenc þessa félags voru &
ferðinni hér í viknnnj sem leið, og
staðhætðu þeir að járnbrautín yrði
lögð gegn um Wínnipeg. Þeir voru
hættir við hina áætlunina. Þeir vorn
á ferðinni að finni Laurierstjórnina
upp á styrkveitingar til brautarinn-
ar. Brautin á að byrja austur við
haf, & þeim stað, sem heitir North
öay, og þaðan norður til Quebec,
og verður sá partur um 525 inílur á
lengd. En brautarlengdin frá Qne-
bec vestur á Kyrrahafsströnd, að
þeim stað, sem heitir Port .Simpson,
verður 3.205 milur, eða 59 mílum
styttii en vegalengdín milli Quebec
og Vancouver, sem C. P. R. brautin
liggur eftir Port Simpson er 500
mílur norðar en Vancouver, eða því
mílnatali nær Yukonhéraðinu. G
T. brautin býzt við að geta byrjað
með því að flytja 30 milliónir bush.
af hveiti austur til stórvetna áður en
frýs á haustin, þar ætlar hún að hafa
nægilegt rúm til að geyma 20 mill.
bush. Brautin á að liggja liéðan fiá
Winnjpeg iun í Norðvesturlandið og
gegnum Saskatchewan héraðið til
Battleford. og liggur grein til Ed-
monton. Þaðan ætlar félagið að
byggja hanaí tvennu lagi til vestur-
sttandarinnar, aðra brautina gegn
um Yellow Head-skarðið til Butte
Inlet, og hina gegnum Peace River-
skarðið til Port Simpson. Síðar
kveðst það hafa í hyggju, að lengja
brautina trá Port Simpson alla leið
til Daivson,
— Þinginu í B. C. var frestað um
daginn á meðan ákærur þær, sem
bornar hafa verið á suma ráðgjafana
eru rannsakaðar. Þeir eru ákærðir
um fjárbrall í sambandi við landa af-
sal í Suður Kootenay til C. P. R -
félagsins frá stjórainni. Einkum
er W. C. Wells ráðgjafi grunaður um
lævísi í þessu etni.
Transvaal hefir fengið lán, sera
nemur &175 millíónum, með 3%
vöxtum. Það á að borgast fyrir ár-
ið 1953, eða innan 50 ára.
Herlið so'dáns beið ósigur ná-
lægt Fez, Morocco, um miðja fyrri
viku, fyrir uppreistarmönnum. Þeir
báðu um liðsauka tíl að halda stöðv-
um, sem þeir náðu, en fengu ekki
þá 3íðasi fréttisf..
—Að morgni þess9. þ. m. brunnu
12 menn til dauða nálægt Fort Wil
liam, Ont. Þeir voru inn í vagni,
sem þeir borðuðu í, og var hann lok-
aður svo þeir komnst ekki úf. 8
menn komust loks út, en eru allir
svo skemdir, að allar líknr eru til
að þeir deyi fiestir eða allir.
—Maður og kona ætluðu að gifta
sig hér um daginn í Bandaríkjun-
um, sem ekki er tiltökumál. En þau
höfðu ekki peninga til að borga
dómaranum fyrir athöfnina. Maður-
inn skildi því konuefnið eítir sem
pant hjá dómarannm og fór út að
fá sér peningalán. En kom attur
peningalaus. Dómarinn siepti við
hann konunni og lýsti því yflr, að
þau væru ógift. Þau komu aftur
næsta dagog báðu hann að gifta sig,
og gerði hann það. Svo vildi hann
fá borgunina að aflokna starfi sínn,
en það tór alt á sömu leið og fyrri
daginn; maðurinn hafði enga pen-
inga, og setti konuna aftnr í pant,
en fékk enga peninga. Dómariun
kvað ríkið eiga konuna þar til hún
væri borgnð út, en það mundi ekki
svara kostnaði fyrir það að halda
henni og íorsorga, svo hann lét þau
fara, en hélt giftingar skýrteinnnum
eftir í pant.—Víða eru menn efna-
lítlir, en einsdæma íáheyrt er það,
að brúðgumi þurfi að pantsetja
brúður sína á brúðai bekknum.
—Því er fleygt fyrir í hlöðunum,
að gainli Thomas Greenway sé þá
og þegar búinn að gefa npp öndina
í pó'itisku starfl. Betri menn flokks
ins eru orðnir þreyttir & honnm fyr-
ir löngu, og hann sjálfur gamall og
þreyttur. Sem eftirmaður hans er
helst nefndnr A. C. Fraser í Brandon.
Enn fremur er þess getið, að sam-
bandsstjórnin ætli að gefa karlsauðn
um smávik svo hann geti dregið
fram lífið, raeð þessu litla, sem hann
nurlaði saman á meðan hann sat við
vöidin í Manitoba, en aðallega sé það
gert til að slétta yfir það í augum al-
mennings, að flokksmenn hans vilja
ekki hafa hann lengur, setn uokkru
ráðandi í flokknum, því einn af nafn
kendustu Iáberölnm hetii nýiega
sagt við fregnrita Tribune: “Það
ern menn svo tugum skiftir, og það
sterkustu Liberalar, sem hafa ekki
minstu trú á að Greenway beri sigur
úrbýtam.gegn þeirri stjórn, semnú
situr að vöidnm f fylkinu".
- Sléttneldur gerði allmikið tjón í
vikunni sem leið kringum Edrans,
skamt norður af Carberry. Bændur
hafa mist hús og heimili og mörg
þúsund vagnhlöss af eldivíð hefir
brunnið til ösku. Fólk hefir geng-
ið hraustlega fram í að bjarga mönn
um og skepnum undan eldinnm, er
innilukti plássið á þrjá vegu. Sjálf-
boðalið bauð sig fram og fiutti C. P.
R. það þangað, og forðaði það Þorp-
inu Edrans frá að brenna til kaldra
kola, því íbúarnir voru hættir að
bjarga því, afþreytu og vonleysí.
Skaðinn er feykilega mikill, sein
sléttubruni þessi heflr valdið.
—Fleiri félög hafa hafið verkfall
í Montreal, en þau sem áður eru um
getið. Útlit hið versta.
—David Mills, einn meðmerkastu
stjórnmálamönnuni í Canada, andað-
ist á föstudagskveidið var að heimili
sínu í Ottawa.
-—Ófriðarskýin verða æ svartari
og svartari í Búlgatium&linu. Ný-
lega yar bænahús í Kinp: iwl sprengt
íloftuppmeð dynamite. Um 200
Tyrkir vot u inni að biðjast fyrir, og
fórust allir.-
—Stórbrenna var í Ottawa um
heígina. Eldurinn kom upp seint á
sunnudaginu í trj&viéarhlöðam og
er brunnið stórt svæði í borgiuni.
Um 500 familíur standa uppi hús
næðislausar. Eignatjón er firna
mikið. Brenna þessi hefir líklega
mikil áhrif á húsaviðu, bæði austur
frá og hér vestia. Vatnsmagn þraut
til að hemja eldinn. Haldið að
brennnvargar hafi kveikt í tirnbur-
hh'iðupiim. ,
ISLAND.
Ef'tir Norðurlandi.
Akureyii, 22. Maiz 1903.
Bjarki lætur ekki vel af hag
manna f nágrenni við sig. “Sann-
leikurinn er sá, sem engin getur neit
að”, segir blaðið, „að ástandið ei
hér um sloðir Sskyggiiegt, sem stend
ur. Alt bendir til þess, að tólkið
muni framvegis leita héðan buit í
stói hópurn. Og það er víst, að nú (
vor mundi fjöldi af vet kafólki fara
héðan til Vesturheims, ef það hefði
réð & fargjaldinu”.
Húsbruni á Grunnavatni á Jökul-
dalsheiði. Þar btann 18. f. m. bað
stofa, búr og eldbús, er Nl. ritoð af
Jökuldal 9. þ. m. Veður var mjög
hvast á norðvastan. Við eldinn
varð fyrst vart í þekju að baðstof-
unni, kviknaði þar út frá ofnpípu.
Litlu varð bjargað. Alt var óvá-
trygt, eins og tíðast er um íslenzka
bæi, enda vorkunarmál, þegar litið
er til kjara þeirra, er íslenzkir hús
eigendur verða að sæta hjá útlend
um bt unabótafélögum. Vonandi
sannfæia slík slys sem þetta menn
umþörliina á innlendu brunabótalé-
lagi fyrir bæina okkar.
Tveir menn urðu úti 8. þ. iu.
örstutt frá bæjum hérnamegin við
Siglufjarðar; mennirnir voru, Finn-
bogi llafiiðason bóndi í Leyningi,
lætur eftir sig ekkju og 1 barn, og
Helgi Sigfússon ókvæntur piltur,
sonur bóndansf Skardalskoti.
Vigfúsi Sigutðssyni veitt vínveit-
ingaleytt til næstu 5 ára með þeim
skilyrðnm: að hann hýsi 40 manns
og selji þeim nauðsynlegan greiða,
að hann hýsi 20 hesta og að enginn
gestur fái næturhýsingu eftir að bú-
ið er að loka húsinu á kveldin, nema
honum sé vísað til sængur af þjóni
eða húsbónda.
Ól. G. Eyjólfssyni neitað um að fá
grjót að helmingi eða endurgjald
fyrir það við lóð hans & Torfunesi.
Thor E. Tulinius stórkaupmaður
hefir [stofnað hlutafélag i Khöfn, er
keypt hefir gufuskip hans og auk
þess aflað sér tveggja annara gufn-
skipa. Ilr. Tulinins er formaður fé-
iagsins. Það ætlat að sögn í sumar
að leggja fyrir þingið tilboð um að
takaað sér ferðirnar miili Islands og
útlanda og strandferðirnar, sem sam
einaða gufuskipafélagið hettr haft
mcð höndum til þessa.
Ilr Guðm. Finnbogason ætlar að
dvelja hér á Akureyri fram á vorið.
Hann hefir ritað allinikla bók um
lýðrnentun, og er nú fariðað prenta
bana í prentsmiðju Nl. Þar eru í
tillögur þær um mentamálið, sem
hann leggur fyrir þingíð i sumar.
Hann heflr brennandi áhuga á því
máli, eins og reyndar á öllum fram
faramálum þjóðar vorrar.
Frú Ragnheiður Einarsdóttir,
kona Stefáns Gíslasonar, héraðslækn
is f Múlasýslum. er látin eftir lang-
varandi veikindi. Skömmu áður
misti læknirinn barn úr barnaveiki
og var sjálfur lagstur í lungnabólgu
þegar síðast fréttist.
28. Marz. Þann 22, þ m. and-
aðist að heimili Einars H jörleifsson-
ar ritstj. Guðlaug Jónína Eggerts-
dóctir tiá Undirfelli í Vatnsdal, 22
Ara. Húu hafði alist upp hjá Hj’irl.
prófasti Einarssyni frá því hún var
var 12 ára, og kom hingað til bæj-
arins haustið 1901, með fram til
þess að leita sér lækninga. Hafði
veiið heilsutæp rojög frá barnsaldri
og )ézt af innvortis meinsemd.
4. Aprfl. Enginu ís. Hákarla-
skipið ‘Annaí (eign Ilöepfners) kom
í dag inn á höfnina, vegna þess að
tapi st hafði stjórafæri og akkeri í
gierjandi stórhríð og vestanroki í
gæi 3—4 milur vesfur af Grímsey.
Skipve jar sáu hvergi ís, svo baí'is-
sögurnar, sem hingað hafa borist.
eru ilhæfulausar.
U . Apríl. Með Vestu fréttist. að
tvö ^ikiskip eytirzk hafl strandað,
#• varð báðutr.
TíI ,Oak’ og ,Skjaldar’ hefir ekki
spurst, siðan er skípverjar á ‘Tjörfa’
mistu sjonar á þeim.
Eftir Fjailkonunni.
Reykjavík, 24. Maiz 1903.
Nýdáinn 17. þ. m. er Einar Eyj-
ólfsson, sem mörgum var kunnur á
Suðurlandi ogjafnvel um laiid alt.
Hann var orðlagður göngugarpur
og manna minnugastur á daga og
stundir. Riðvandar maður og hrekk
laus yar hann og öllum að góðu
kunnur.—Andlát hans var fremur
með skjótum atburðum.
Eiskiskipið Langanes, eign Thor
tteinsens kaupmanns á Blöndudal,
kom inn í Haínarfjörð f fyrramorgun
með 11 þús. af flski, þar af 1700
óslægt á þilfari. Ilatði fengið þann
afla fram undan Grindavík, enda
þar sagður góður afli, ergæftir leyfa
róðra.
Fiskiskipið Swift kom hingað í
morgun með 14,500 af fiski.
31. Maiz. Hafís heflr sést af
Strönduia 10—11. þ. m. og varð
landfastur við Horn. 13. þ, m.
geiði sunnanveður, rak þá ísinn frá
landi og hefir ekki séstsíðan.
Þingeyrarlæknishérað veitt 19. þ.
ui. at landshöfðingja settum lækni
þar, Andiési Féldsted.
Lausn frá prestskap veitti lands-
hötðingi 18. þ. m. séra Jósef Kr.
lljörleifssyni á Breiðabólsstað á
Skógarströnd frá næstu vordögum
sakir vanheilsu og með lögmætum
ef'tirlaunum.
Sorgleg afdrif. Föstudaginn 27.
þ. m. fatgaði sér maður suður &
Vatnsleysuströnd (hengdi sig), Jón
Gestur Jónsson bapnakennari á
Stiöndinni. Jón heitinn var vel-
geflnn maðnr.
Nýlega kom inn fiskiskipið Björn
Ólafsson með 14,500 af vænum liski.
Varðskipið Hekla (Evers) kom á
snnnudaginn 29. þ. m., fór l'rá
K höín 15. þ. m.
7,April. Dáin 10. Marz í K.höfn
byskupsfrú Sigríður Bogadóttir,
ekkja Péturs Péturssonar byskups,
fædd 22. Ágúst 1818. Meðal barna
þeirra má nefna: frú Þóru, konu
Þórvalds prófessors Thoroddsen, frú
Elinborgu Thorberg og Boga sál
lækni í Rangárvallasýslu.
Maður hvarf héðan úr hænum á
föstudaginn var, 3. þ. m., Jón Páls- i
son að nafni, sonur séra Páls sál.
Pálssðnar frá Þingmúla. Var hann
að læra trésmíði bjá snikkara einum
hér í bænum- Er ætlun manna að
hann hafl farið með botnverpingi,
sem fór héðan af höfninni sama dag
kl. 6 e. m. Var skipstjórinn íslenzk
ur maður og vantaði mann. Virð-
ist sem ferðin hafi verið fyrirhnguð,
þyí pilturinn var búinn að koma
öllu dóti sínu undan.
— >— --
BLAINE, WASH. 4. Mai 2903.
Heiðraði vin:—
Fátt er til frétta héðan, góð hðan
meðal landa okkar að frekast ég til
veit. Tölnverðnr fólksflutningur
hingað í vor, og lóðir og lönd þess
vegna að stíga í verði. Að minu
áliti verður ekki langt að bíða þar
til maður sér Blaine skara fram fram
úr stærri bæjum hér á ströndinni, og
skal þess síðar getið gegnum ‘Hkr’.
WINNIPEG.
Herra Bjöm Halldórsson, sem
verið hefir um mánaðartfma hjá
börnum sínum f Dakota, kom til
bæjarins í gærdag. Með honum
iom herra Jónas Hall frá Garðar-
bygð. Þeir vom að flytja háaldr-
aða konu, móður Magnúsar Gran-
dy í Pine Valleybygð. Hún œtlnr
að dvelja hjá syni sfnum þar það
sem eftir er æfinnar. Björn segir
engar markverðar frcttir að surtn-
an.
Verkfallið f Montreal, sem
öllu rfkinu hefir staðið tjón og
geigur af síðustu daga, var útkljáð
á mánudagsmorguninn var. Mega
báðir málspartar allvel una úrslit-
nnum. Verkamenn fá kaupliækk-
un.
Hra Arnór Ámason frá Brandon
var hér á snöggri ferð þessa daga.
Tiðin að hlýna þessa daga og í
þann veginn að jörð sé að grænka.
Um helgina komu 3 Islendingar
frá íslandi. Einn af þeim er Jens
Hansen trá Seyðisfirði.
Lesið auglýsingu Tjaldbúðar-
kvenfélagsins & öðrum stað í blað-
inu. Ágóðanum á að verja í þarfir
kyrkjtmnar- Sum stykkin verða
óefað góð, og vel af hendileyst.
VOTTORÐ. Þe«ar ég byrjaði
vinnu í vor, i leyslugum o* kalsaveðri.
fékk ég svo vouda í aunan fótinn.
sem leiddi urn mig vtðar, og eg þoldí
ekki við, og komst, nauroast heim hjálp
arlaus. Ég sendi til K. Á. B, og bað
hann um gigtarmeðal. Þegar hann
kom heim til mín h ifði ég ekkert við-
þol. Hann lét míg fá gigtarmeðal og
sagðí mér nákvæmlega til hvernig ætti
ad brúkaþað. Strax um nóttina batn-
aði mér mikið, og svo dag frá degi, og
hefi ég ekki fundið til hannar síðan, og
er óáreittnr af þessum vonda sjúk-
dómi. Meðöl hans hafa reynst mér
langtum betri en annara, og er ég sann
færður um að þeirn fylgir undrakraftur
og þess vegna mæli ég óhikað með þeim
við aði a,
Wpg. Þ. Gíslasoa.
Samkoma
verður haldin 19. Maí í Tjaldbúðar-
salnum undir umsjón kvenfélags Tjald-
búðarsafnaðar.
Kökuskurður
—00—
PROGRAMME:
1. Ræða:—M. Markússon;
2. Söngur:—Guðmundm ísleifsson;
3. Reoitation.'—Jónina Johnson;
4. Sðngur:—Miss Dr. Suther land;
5. Recitation:—Minnie Johnson, og
Laura Halldórson;
6. Organ Solo:—Miss Johanna Olson;
7. Recitation:—Ena Johnson;
8. Kappvæðal—Sig. Jnl, Jóhannesson
ogStefm Scheving um.hvor se hæf
ari: giíta koDan eða ógifta stúlkan
til að skera kðkuna.
B^’rjar kl. 8. Inngangur 25 oents
fyrir fullorðna, 15c. fyrir börn inn-
an 12 ára.
Vinna er með mesta móti um
þetta le'yti árs hér f bæ og kaup-
gjald alment með hærra móti. Inn-
flutningurinn inn í bæinn er með
langmesta móti, og svo er þröngt
um húsnæði, að fólk er farið að
reisatjöld og búa f þeim.
Dr. Mclnnis í Brandon, fyrverr-
andi þingnt., var útnefndur til f>ing
sóknar á þriðjudaginn var f Bran-
don City, af Conservatívum.
Fundnr verður haldinn í fundar-
sal Tjaldbúðarinnar næstkomandi
m&nndag, þann 18 þ. m. kl. 8 e. m.,
til þess að ræða um undirbúning ís-
lendingadagsins f sumar, og verður
þá vœntanlega nefnd kosin. Mjög
æskilegj væri að sem flestir vinir
dagsins vildu mæta, og er hér með
vinsamlðga skoraðáþá að fjölmenna.
Fyrir hönd síðnstu íslendinga-
dagsnefndar,
SiGFéa Anderson, (forseti).
Sigdrður Magnósson, (skrifari)