Heimskringla - 04.06.1903, Side 1
Kærkonmasta gjiif til ísl.
á íslandi er:
Heimskringla |
$1.50 um áriö heim send.
KAUPIÐ
Heimskringlu
og borgið hana; að eins
$2.00 um árið.
XVII.
WINNIPEG, MANITOBA 4. JÚNÍ 1903.
T
Arnljótur B 01s m
jai.03
Nr. 34.
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
. hvaðanæfa.
— Bandaríkjafélag hefir keypt
fjarskamikil skóglönd 1 Nova
Seotia, svo aldrei hefir verið selt
jafnmikið skóglendi í einu hér f
Canada. Fölagið gaf $1.250.000
fyrir I>að. Það ætlar að setja þar á
stofn páppírsgerðarmylnur f stór-
um stfl.
—Það lenti f þjarki miklu með
stjórninni í Victoria, Ástralfu, og
mönnum þeim, sem vinna fyrir
hana við járnbrautir. sem eru eign
rfkisins. Þó gerðu mennirnir ekki
algert verkfall, og lfkur virðast til
að [æir og stjómin komi sér saman
án stórkostlegs verkfalls.
Nauta-at var að Algiersas á
Spáni 17. f. m. Hrundi þá part-
ur af hringmynduðu leikhúsi og
dóu 12 menn og nokkrir meiddust
meira og minna, og nautin tróðu
og rifu bæði konur og unglinga.
sundur í troðningunum sem urðu.
—Munkar af Grand Chartrense-
reglu hafa keypt kastalaeignina
Cambross í Castien f Suður-Belgíu
fyrir 6 0 þús. dali. Þessir menn
voru gerðir útlagir úr Frakklandi
ekki alls fyrir löngu. Þeir liafa
ekki farið þaðan skildingalausir.
—Mælt er að samsæri sé mynd-
að til að drepa Gyðinga f Roum-
eníu. Stjórnin hefir vörð til taks,
ef slfkt ætlar að reynast satt f
verkinu. Enn fremur er mælt að
samsæri hafi myndast aftur og
fram um alt Rússland, til að drepa
eins mikið af Gyóingafólk'i og
peim er auðið. Aðalslátrunartíð-
in er ákveðin á hvftasunnudaginn,
segja þeir sem kunnugir þykjast
samsærum þessum.
—Lög hafa nýlega náð staðfesting
rfkisstjórans f Pensylvania, að biim
innan 16 ára vinni ekki í námum
þar, og reglulegur vinnutfmi sé
ekki nema 8 klukkutímar úr sólar-
hrfng.
—NýlegaVar herskipinu Oomm-
weath hleypt af stokkunum og
fram á Clyde-ána; er það stærsta
herskipið í brezka sjóflotanum nú.
—Mr. Wallace Necbitt, K. C„ f
Toronto hefir verið skipaður yfir-
dómari f sæti það sem Davis Mills
hafði.
Stjórnin í Ottawa verður beð-
in að semja sparisjóðslög, eða eins
cents sparisjóðslög með stjórnar
ábyrgð. Þessir eins centa spari-
sjóðir eiga að verða notaðir af
sunnudagaskólabömum og má ske
fleiri kyrkjulegum félögum.
—Þurkar liafa verið miklir
Ontario að undanförnu og liggja
þar við stórskemdir á jarðargróðri.
Ávextir og aldina gróður er þegar
að skrœlna upp og gjöreyðast.
Þann 23. f. m. voru kýr og nðrir
gripir á gjöf, og í mörgum pörtum
fylkisins sást ekki grænkuvottur á
jörðu,
—Menn sem vinna á strætis
vögnum í Montreal gerðu verkfall
í fyrri viku. Hafa orðið allmiklar
róstur út úr því, af því félagið hef-
ir viljað láta utanfélagsmenn taka
stfiðu þessara manna, en þeir hafa
varnað þvf þess. Meiðingar og
mannhvörf liafa átt. sér stað. Or-
s'ikin til þessa verkfalls er sú, að
félagið hefir nú f seinni tfð bætt
mönnum í vinnuna við strætisvagn
ana, sem fyrst hafa skrifað undir
það, að ganga aldrei i félagsskap,
Félagið ætlaði með þessu móti að
eyðileggja félag strætisvagnamanna
Þeir sáu þvf, að þeir voru nauð-
beygðir til að taka eitthvað til
bragðs.
—Sir Thomas Lipton lagði af stað
frá Gourock á Skotlandi til Sandy
Hook, í Ameríku, þann 28. f. m til
að þreýta kappsiglingu við B.inda-
ríkjamenn, enn einu sinni. Sham-
rock III. er kappsiglingaskipið
núGa, þó Shamrock 1. se í ferðinni,
og þar að auki eimskipið Erin og
enn þá eitt skip til. Skipshafnirnar
eru 170 manns. Sést at þessum út-
búnaði, að Sir Lipton kostar ógrynni
fjár í þessa kappsiglingu.
Það þykir tiðindum sæta, að
Mr. Ross formaður hinnar alræmdu
stjórnar í Ontariofylki, er nú ekki
lengur heiðursforseti Dominion Al.
lianee-félagsins, sem hann hefir
haldið um mörg ár að undanförnu
Sýnir þetta að vegur Ross fer ofan á
yið, en ek.ki fram á við, jaínt í aug-
um bindindismanna, sem annara
Það er ólíklegt að D. A. geti ekki
komist afán hans og slíkra manna,
sem hans pólitisku stet'nu fylg.ja, sem
er að svikja og tæla bindindisfólk og
skamma það á bakið. Samanber
ræður Mr. Greenways,sem hann ung
ar nú út um alt Manitoba.
—Stjðrnin í Nýja Sálandi vill
koma samningum á við stjórnina á
Englandi, að Englendingar kaup: ei
nýtt kjöt að annarsstaðar en frá sér.
Nýja-8játandsstiórnin ætlar beint
að seija upp kjötmarkaði á Englandi
aftur og fram, og hafa kjötgeymslu-
hús og slátrunarhús í stærstu hainar
bæjum að sunnan og vestan verðu
Englandi. Hvort stjórnin á Eng-
landi yill ganga að þeim samniug-
um, að kaupa kjöt frá öðrum stöð-
um er óvíst enn þá, en tæplega er
hægt að hugsa sér. En kjöt frá Nýja
Sjálandi verður óefað mjög ódýrt og
netur því íarið svo, að sú verzlun
boli aðrar þjóðir út úr kjötsölu til
Englandi, þá framlíða stundir.
-Sambandsþingið er þessa dag-
ar.a að :æða um byggingarleyfið ti'
Grand Trunk járnbrantarinnar. Mál-
ið erkomið gegnuin fyrstu umræðu.
Félagið er ákatiega heimtufrekt, en
það sýnist sem stjórnin taki öllum
kröfum þess íegins hendi, og segja
kunnugir að stjórnin muni ekki
svelta sig á þeim viðstiftum.
í vikunni sem leið var ákaflega
miklir jarðskjálftar í Litlu Asíu.
í’ell þar borg til grunna, og voru ír
búarnir um 2000, og er talið áreið-
anlegt, að engin manneskja hafi
komist lífs af. Af þeim voru 700
Armeníumenn, og nokkrir varð
menn.
—Flóð og vatnagangur hafa ver-
ið mikii f Kansas að undanförnu.
Ffóir þar víða f bæj um yflr stræti og
inn í hús, og skemdir urðu einnig
allmiklar á meðal bænda. Sumstað-
ar heflr flætt yfir járnbiautir og þeim
skolað burtu og lestagangur hætt.
— Það er mælt að Alfons Splnar-
konungur hafl erft et'tir afa sinn,
Francis konung $7,500,000, svo Al-
fons konungur er ekki skildingalaus
rétt sem stendur.
Fyrir 28 árum slapp maður úr
ríkisf'angelsinu í Kingston, Ont.,|sem
hét John Jo3ie. Hann hafði diepið
konu og fékk lífstfðar fangelsi. Þeg
ar hann var búinn að vera 9 ár í
fangelsínu, siapp hann, og hefir ekki
spurst til hans í íull 28 ár, fyrr en
vikunni sem leið. Hann lá á sjúkra
húsinu í Seattle, Wash., og þekti
maður sá, sem var í félaginu við
hann í morðmálinu hann þar. Það
var kona þess manns, sem þekti
Josie á d inardægri, er þessi st.oku-
fangi drap.
—Franskir auðmenn sendu mann
hingað til Manitobu síðastl. haust,
og átti hann að kaupa góð og rækt
uð lönd ásamt byggingum handi fé-
laginu til að reisa afarstórt mjólkur-
bú á. Nýlega komu menn með út
búnað og mikinn farangur til að
setjast að á landinu og setja mjólk-
urbúið á stokkana. Umboðsmaður
íélagsins hafði sent þeim kaupsamn-
inga fyrir landi á hinum hagkvæm
asta stað í St. Norbert, slcaint utan
við beinn En þessum mönnum
brá heldur en ekki í brún, þegar
þeir slu landið, sem er hvorki hey-
skapar- né kornyrkjuland, og lftils
virði. Þeir segja að þessi agent sinu
haflstungið $50,000 í vasa sinn af
því fé, sem þeir f'engu honum, o_g
veit enginn um hann nú. Búist við
að þetta auðmannafélag hætti alveg
vift’' þetta fyrirtæki, fyrst agent
þeirra reyndist þeim svona, og er
það stórskaði bæði fyrir Winnipeg
og Manitoba fylki.
-Stúlka 13 ára göinut, í Colling
wood, Ont., var drepinn á leiðinni
til sköla f vikurmi sem leið, á hinn
svívirðilegasta og hryllilegasta hátt,
sem hugsast getnr. Haldið, og
nokkrar líkur til, að svertingi hafl
legið fyrir henni í ^skógarkambi, er
var á leiðinni. Hann er ófundinn,
—Nýlega er dáinn W. A. Hast
ings, ráðsmaður Lake of the Woods
MillingCo. Ilaun bjó f Montreal
Hann var fæddur í Petite Cota,
Jlontreal, 1852. Nokkrir elstu ís-
lendingar í þessu landi þektu hann
fyrir löngu síðan, og það eflaust að
góðu einu.
—llöfuðmaðurGrand Trunk járn-
brautarfélagsíns, Sír Chas. Rivers
Wilson, hefir verið hér á ferðinnf
um undanfarinn tima, í sambandi
við tilvonandi járnbrautabyggingu.
Ilann hefir haft eftirlit á gerðum
sambandsstjórnai innar í því máli nú
sfðustu daga. Har.n segir hið sama
og búið er að geta um áður f þessu
blaði, að sú braut liggi gegnum
Winnipeg, en hann jbætir því nú
við, að aðalstaður hennar á austur-
ströndinni verði St. Johns og Hali
fax. Hún byrji samt norður við
North Bay, og liggi þaðan til
Quebec og þaðan suður til áður-
nefndra bæja. Hann staðhæfir að
sú braut geti#fiutt um 60 millfónir
bush. af hveiti úr vestui landinu og
austur áður en fio?t og snjó'ar-hamia
lestagangi á haustum. Um samn-
ínga þessarar brautar, eða það blaða
skraf, að íólag sittsé að kaupa Can
Northern-brautina, þá sé engin hæfa
í slíku enn þá. En það hefir hann
látið í ljós, að ekki mundi félag sitt
slá hendi á móti slíkum kaupum, ef
föl væru.
Andstæðinga blöð Róblinstjórn-
arinnar yortt að hlaupi með það um
daginn, að Grand Trunk félagið
væri búið að kaupa Canadian North-
ern brautina, og sést bezt á þessum
orðum Sir Chas. Bivers AVilsons,
hvað hæft er í slíku þvaðri.
- Eimskipið H dderfield, er lagði
af stað frá Antwerp 26. f. m. fórst;
því voru 38 innflytjendur, flest
Galiciumenn, sem ætluðu til Canada.
Skipið rak sig A norskt skip og fór-
ust 22 af innflytjendunum. Norska
skipið hjálpaði þeim sem af komust,
því hitt sökk.
Begniall heflr nýlega byrjað í
Ontario og er vonandi að það verði
nægilegt til að bæta úr þurkunum
og spiettuleysinu, sem þar var orðið
afar ískyggilegt.
-Mörg ný pósthús voru opnuð 1.
þ. m. í Manitoba og Noiðvesturland-
inu.
Flóðin og vatnagangur fer vax
andi i Kansas. Búist við að fjöidí
fólks hafi farist. Eignatjón fjarska
mikið á lifandi peningi og dauðum
munum.
—Sambandsþingið hefir verið að
gerðalitið enn þá. Það heflr snúist
mest um þau mál, er stjórnina varð
ar sjálfa, en litið um lagasmíði og
aðsend þingmál. Conservatíva-
flokkurinn inótmælti þessari aðferð
stranglega, og lofaði stjórnin að
hugsa meira framvegis um þingmál
en hingað til.
St LAURENT, MAN. 23. Maí 1903.
Sorglegt slys vildi hér til að
kveldi þess 10. þ. m , að seglbátur,
sjm var á leið frá Oak Point til
Delta, hvolfdi hér um bil 6 mílur
undan landi. með 3 mönnum á. Þeir
voru Björn Kelly frá Selkirk, Stein-
grímur Jónsson frá Winnipeg og
Þorsteum Þorsteinsson Þorkelssonar
á Oak Point. Þeir komust allir upp
á bitinn og voru á honum alla nótt-
ina og þangað til kl. hér um bil 10
daginn eftir, að 2 dóu með mjög
lítlu millibili, voru of þjakaðir af
kutda og bleytu. En þeim þriðja
B. Kelly var bjargað hér um bil 2
tfmum seinna, af fiskimönnum úr
Iandi, þá aðfram kominn. Líkin eru
ófundin enn, en búið er að gera þær
ráðstafanir sem hægt er því viðvíki-
andi.
Th. Brown.
ISLAND.
Eftir Stefni.
Nýja verzlun hefir Eggert Lax-
dal byrjað á Toifunefi þessa dagana.
18. Marz sfðastl. andaðist á
Seyðisfirði Bjarni Siggeirsson kaup
maður áSænesií Breiðdal. Bana
mein hans var hjartaslag. Eftirlif-
andi kona hans er Jensina Jónsdótt-
ir. Attu þau þrjú börn: Stefaníu,
er andaðist á fermingar aldri, Jónu
og Olaf, sem bæði lifa. Bjarni sál.
var framúrskarandi góður heimilís-
faðir, og vart mun hugsast geta betri
og innilegri faðir, en hann var börn-
um sínum, Allan síðari hluta æfi
sinnar gengdi hann verzlunarstörf-
um á Seyðisfiiði, og nú síðast á
B;eiðdaÍ, og það að sumu leyti fyrir
sjalfan sig, I þessu starfl sínu á-
vann hann sér hylli húsbœnda sinna
fyrir ti úmensku sfna og ötulleik, og
var mjög afhaldinn af skiftavínnm
íyrir lipurð sína og alla framkomu.
Eftir Norðurlandi.
Akareyri, 18. Apríl 1903.
Laugaidagskvöldið 21. f. m.
kl. 11 til l2kviknaði i húsi Rur.ólfs
borgara Halldor^sonar á Vopnafiiði
og brann það upp til kaldra kola á
rúmum klukkutíma. Eldurinn hafði
kviknað út frá ofni, er var S litlu
herbergi upp á efra loftmu í austur-
enda hússin3. Það helzta, er bjarg-
aðibt af innanstokksmunum Bjarna
Þorsteins8onar myndasmiðs og þeira
hjóna, er einuig höfðu veitingu á
hendi f húsinu, var mestallur rúm-
fatnaður, 2 kommóður með ýmsu,
Ijósmyndamaskfna og annað fleira
smávegis. íverufatnaður þeirra
b ann svo að segja allur, mat væli og
húsgögn að mestöllu leyti; einnig
Ijósmytidaskúrinn, sem bygður var
áfastur við austurenda hússins. Hafa
þau hjón því oiðið fyrir stórkostleg-
um skaða, þar sem þau því miður
höfðu ekkert af sinu vátrygt. Run-
ólfur Ilalldórsson mun einnig hafa
liðið mikirin skaða, þar eð húsið var
of lágt vátrygt, en vörur hans alls
ekki og vaið mjög litlu bjargað.
Sunnudagsmorguninn eftir 22.
kom maðnr ofan í kaupstaðinn með
þá fregn að vöruskip Örum & Wulffs
verzlunar, skonnort Ellinor, sem var
von á um það leyti, væri komin í
strand á Tangaboða. Kaupstaðar
búar þustu allir samstundis út eftir
og gengu rösklega fram í því að
ganga frá köðlum railli skips og
ir.ds til björgunar mönnum, því ó
hugsandi var að geta komizt á bát
út til skipsins, sem stóð á hliðinni
út á grynningunum um 60 faðma
frá landi, og þar sem sjóarnir brotn
uðu á þvf og bnmrótið æddi milli
skips og lands. Fjórum at skipverj
um lánaðist að ná í land um daginn
og voru þeir allir meira og minná
dasaðir at'vosbúð og sjóvolki. Voru
þeir samstundis fluttir inn í Lciðar'
höfn og hjúkrað þar. Skipstjóra og
stýrimanni var ekki hægt að ná um
kvöldið, því að svo var dimt orðið
Urðu þeir þvf að halda kyrru fyriri
í skipinu um nóttina, og náðust þeir
ekki f land fyr en um miðjan dag
mánudaginn, mjög þjakaðir og dofn
ir orðnir af bleytu og kulda, þar
sem þeir mestalla nóttina máitu sitja
í sjó upp undir mitti í káetunni. Það
vildi til happs á flóðinu um nóttin a
að skipið snerist yið og fluttist rúma
lengd sína nær landi, þannfg, að
PIANOS og ORGANS.
Ileint/.1111111 A C». I’innoK.-Rell Orgel.
Vér seljom med mána’arafborKunarskilmálum.
J, J. H M^LEAN & CO. LTD.
530 MAIN St. WINNIPEG.
ew
York j_ife jnsurance (yo.
JOHN A. McCALL, president.
l.ífsábyrgðir í gildi, 81. Dss. 1902 1550 iiiillionir llollars.
700,000 pjaldendur, sem eru félagið eiga það og njóta als gróða.
145 þús. rnanna gengu í félagiðá árinu 1902 með 503 miliion doll.
ábyrgð. Það eru 40 milliónir meíra en vöxtur fél 1901.
Gildandi ábyrgðir hafa aukist á siðastl. ári um 188 mill. Dollars.
Á sama ári borgaði félagið 5000 dánarkröfur—yfir 15 mill. Doll.—
og þess utan t.i) lifandi rreðlima 14| mill. Doll.. og ennfremur var
#4.750.000 af gróða skift upp milli meðlima sem er #800,000
meira en árið 1901. Sömuleiðis lánaði félagið 27.000 meðlímum
S8 750,000 á ábyrgðir þeirra, með 5 per cent rentu og án annars
kostnaðar,
J. «. W orgRii. Manager,
GRAIN EXCHANGE BUILDING,
av iisrjsriPEG.
C. Olafson,
AGENT.
íramstafninn bom fast uppað klöpp,
sem hægt var að komast út á á bát,
og af henní var þeím náð ofan af
skipinu. Annars er efnsamt hvort
æir hefðu náðst lifandi, ef ekki
hefdi verið um annað að gerá en að
nota kað.'ana eins og fyrri daginn,
?ar eð þeir trauðla mundu hafa haft
uátt til að halda sér við á þeim.
Sömuleiðis hefir komið fregn
um, að hákarlaskipið Vikingur af
Sigluflrði (eign Gránufél- o. fl.) hafi
rekið á land inst fn« í Vopnahrði.
Skemdir litlar sem engar. í veðr-
inu mikla 3. þ. m rak það austur
með landinu að norðan og náði Há-
mundarstaðavfk á Langanesi. Svo
kom ofsaveður að nýja og þá urðu
skipverjar að sleppa akkerum og
festum og náðu landi á þenna hátt á
Vopnafirðí.
Jónas Jóhannesson, bóndi á
Fellseli í Kinn, andaðist úr holds-
veiki 20. f. m., tæpra 38 ára. Van-
heilsu sína tók hann fyrir 12 árum.
Hann var bræðrungur þeirra Sands-
bræðra og Fjallsbræðra í Aðaldal,
og svipaði m.jög í þá ætt að mörgu.
Hagmæltur var hann og mikill fræða
vinur, Jarðarförin fór fram 6. þ.
m, Fjöldi manna viðstaddur. Flutt
4 kvæði.
Voðalegt níðingsverk.
Efnilegur sveitarpiltur 10 ára
gamall kvalinn til dauða f hor. nf
vanhirðu og með misþyrmingum.
Það [er 1 Skaptárdal, efsta og
vestasta býli á Síðunni, sem sagt
er að þetta illvirki hafi verið unn-!
og fram
bæirnir
ið.
Bærinn er afskektur
úr liggjandi til fjalla, en
eru tveir á jörðinni og nokkurt bil
á milli.
Að (iðru býlinu fluttist f vor
inaður utan úr Mýrdal, og á þeim
bænum hefir ekki verið annað fólk
en þau hjónin og drengurinn.
Piltur þessi var árinu áður
hjá bóndanum í Hörgsdal með nál.
50 kr. meðlagi, en f fyrra vor
banðst þt>ssi maður til að taka pilt-
inn fyrir 20 kr. og lét hreppsnefnd-
in svo flytja hannþangað.
Faðir inltsins fór út að Skapt-
árdal um jólaföstu byrjun f vetur,
og hann hafði orð á f>ví. að illa
væri farið með piltinn, og var að
brjótast í að útvega annan í lians
stað. En maðurinn var miður vel
kyntur. og befir úður farið mjög
illa að sínu ráði, og var því ekki
trúað svo vel sem skyldi. Hrepps-
nefndaroddvitinn vildi honum og
engu sinna, en bao sóknarprestinn
__l>ærinn cr í Ása-prestakalli—að
rannsaka verustaðinn. Prestur
gaf það vottorð, að staðurinn 'væri
forsvaranlegur’, og neltaði f>& odd-
vitinn að barnið væri tíutt þaðan.
Eftir það heyrðist ekki á þetta
minst um tíma.
En laugardaginn fyrsta f Ein-
mánuði (28. Marz) kom sendimað-
ur frá hreppstjóra, Runólfi dbrin.
Jónssyni á Sfðu, til sýslumanns
með tilkynningu um, að piltur
þessi hafi orðið hráðkvaddur 26.
Marz.
Sýslumanni mun haf f>ótt frá-
fall piltsins ískyggilegt. Hann
sendi um hæl þá skipun, að flytja
líkið og bóndann. til sfn að Kyrkju
bæjarklaustri.
Það var talin glæfraför, yfir
fjöll og háar heiðar, með hömrúm,
giljum og gljúfrum; er talinn erf-
iður vegur á sumardag, en nú var
fannkyngi svo míkið, að eigi rnuna
menn annað eins; vegir lftt færir í
bygð, livað þá á fjöllum.
Sendimennirnir voru fjórir.
Þ(>ir komu með lfkkistuna og
bóndann og afhentu sýslumanni á
þriðjndagskveldið 31. Marz.
Kistuna höfðu þeir orðið að
bera alla leið frá Skaptárdal að
Holti, nál. 14—2 mflur danskar,
yfir fjöll í mestu ófærð og vondu
veðri, og var það talið mikið þrek-
virki.
Næsta dag var tekið til rann-
sókna.
Héraðslæknamir Bjarni Jóns-
son og Þorgr. Þórðarson voru
kvaddir tilað skoða líkið.
Þeir kváðu það Iiera vot um
viðurværisskort. Það var blóðlftið
og mjög magurt, svo telja m&tti í
því beinin á löngu færi.
Drep inn t bein á báðum stóm
táargóinum og minni sár á nærfelt
öllum hinum tárium, ogbjúgbólga
á fótunum.
Áverkar sáust á lfkinu, bak
við eymasnepla og undir f>eim, á
öðru gagnauga, efri vör og4á breið-
um kafla frá miðju baki yflr um
það þvert niður fyrir lendar og
niður undir kné á liægra læri, eins
og eftir hríslu.
Þykir enginn vafi á, að þessi
áverkar séu eftir misþyrmingar af
hendi hjónanna, annars hvors eða
beggja.
He yrst hefir að bóndinn muni
hafa játað á sig misþyrmingarnor
á baminu, fáum dögum áður en
það dó: Dregið það á eyrunum
og þannig þröngvað því að sópa
fyrir kúm, barið það á bert hörund
með hrísvendi ofan í eldri sár. o.
s. frv., en fullkunnugt er eigi hvað
rannsókninni lfðnr.
Þykir þetta hér inikil tíðindi
og ill.
Effir bréfl til Isafoldár, af
Sfðu.
1