Heimskringla - 23.07.1903, Síða 2
HEIMSKRINGLA 23. JÚLÍ 1903,
Deimskringla.
PUBLISHBD BY
The Beimskringla News & Pnblishing Co.
Verð blaðsins í CanadaoRBandar.82.00
um árið (fyrir fram borgað). Sent til
íslands (fyrir fram borgað af kaupend-
nm blaðsins hér) $1.50,
Peningar sendist í P. O. Money Order
Begistered Letter eða Express Money
Odrer. Bankaávísanir á aðrabankaen í
Winnipeg að eins teknar með afföllum.
R. L. BaldwinRon,
Edltor & Manaeer.
Offioe : 219 McDermot Ave.
P O. BOX 12*3
Kosninga sigur.
Roblinstjómin hefir unnið
stðrfeldan sigur við nýafstaðnar
fylkiskosningar. Það var öllum
Ijóst, sem nokkurt skyn bera 4
landsmál, að stjómin mundi vinna
kosningarnar. En fáum datt í
hug að dómurinn mundi verða
eins ákveðinn og bráðdrepandi fyr-
ir Greenway-flokkinn eins og raun
varð 4 í J>etta sinn. En það sem
sérstaklega gerði fitslagið svo 4-
kveðið, var: 1. að kjörlistar hafa
aldrei verið eins hreinir og hár-
réttir, sem nú. Engar þrætur og
atkvæðaklœkir gátu átt sér stað;
og Conservativar höfðu sama
kosningar tækifæri og Liberalar,
sem er Þvert 4 móti því, sem átti
sér stað í Greenway-tíð. Kosn-
ingalög Roblinstjórnarinnar s/na
hreinan og lieinan almenningsvilja,
einsogallir vita. 2.að Roblinstj var
rétt á undan kosningunum búin að
lækka flutningsgjald á hveiti héðan
úr Manitoba austur til Stórvatna
niður í lOc. hver hundrað pund, en
Sú niðnrfærsla þýðir fimm hundr-
uð f>ús. doll. á ári í hag bænda í
fylkinu. 3. að hún hafði lækkað
dómsmálagjald það, sem liún hefir
áður lagt á sveitimar, um nær 30
þús. doll. á [>essn ári. T. d. var
gjald það, sem lagt var á Girnli-
sveitina árið 1899, undir
Greenwaystjóminni $182.00, en nú
er J>að að eins $117, eða sem næst
tveimur fimtu pörtum lægra. A-
stæðan fyrir þessu er sú, að skidd
sú, sem fylkið var í síðan 1883 fyr
ir byggingu dóm- og fangahúsanna
í Winnipeg, er nú borgnð að fullu,
og þess vegna var hægt að lækka
álögur stjómarinnar á svAitirnar f
fylkinu. 4. ástæðan fyrir sigrin-
um er sú, að það hafði komizt upp
að Greenway hafði samið við
Grand Trunk Pacificfél. að veita
J>vi riflegan fjárstyrk, og að láta
hætta við þá bygginga á brautum
C. N. félagsins, sem Roblinstjóm-
in hafði sarnið um að bvgðar skyldu
verða. Enn fremur komst J>að
upp, og Free Press svo gott sem
játaði, að ef Greenway kæmist að
kæmist að völdum, J>á skyldi 10
centa flutningsgjaldið 4 hveiti af-
numið, og aftnr fært upp að þvf
marki, sem Grand Trunk Pacific-
fél. þóknast að láta það verða.
Þessi sviksemi og undirferli gamla
Greenways var meiri en svo að
fylkisbúar gætu [>olað hana; [>ví
hún þýddi ekki annað en að steypa
fylkinu í stóran voða, og baka
bændum afarfjártjón á ári hverju.
Þess vegna reis almenningur upp f
almætti sfnu og bókstaflega kæfði
Liberalflokkinn, svo að hann á
enga viðreisnarvon um langan ó-
kominn tfma. • Hkynbærir menn
era orðnir svo leiðir á allri meðferð
Greenways f fylkismálum, að [>eir
em hættir að bera traust til hans,
eða þeirra manna, sem fylgja hon-
um að málum. Enda sést þetta á
því, að á öllum þeim stöðum f>ar
sem mest er samsafn af vitsmun-
um, mentun og þekkingu á lands-
málum, J>ar vom alstaðar kosnir
Conservativar, svo sem í Winni-
peg, Brandon. Portage la Prairie,
Morden, Neepawa og öðrum bæj-
um. Afleiðingin af þessu er sú,
að 31 Conservativar era kosnir, en
ekki nema 6 Liberalar f fylk-
inu, eins og eftirfylgjandi tafla
sýnir:
Kjðrd. Flokks- Meiri
fyhdendar hluti atkv.
Winnipeg-S.. • Con. ... 17(5
Wpg.-Mið.... Con 145
Wpg.-N Con 91
Arthur Con .... 96
Assiniboia...
Avondale.... . Con 93
Beautiful Piains.. Con. 154
Birtle . Lib .... 235
Brandon • Con. . .. 68
Brandon-S... 12
Carillon..... 14
Cypress 344
Dauphin .,... 146
Dufferin 167
Deleraine.... 20
Gilbert Plains ..Con... 213
Gladstone... 115
1 Hamiota .. Lib... 1
[ Emerson....
Killamey.... 422
Landsdowne. .. Lib... 16
La Verandrye ... Llb .. 17
Lakeside.... ...... 100
Manitou . Con .. 372
Minnedosa... . .Con... 51
1 Morden 88
Morris 138
Mountain.... .. .Lib .. 349
Norfolk 189
Port. la Prairie.. Con.. 30
J Rhineland... .. Lib .. 71
Rockwood... 93
Russell 125
1 St. Boniface.. ..Con... 1
St. Andrews óvfst enn
Springíield.. 105
TurtleMountain. Con .. 252
Virden ...... 60
Kosningar f Gimli og Swan
! River kjördœmunum fara fram
I innan fárra daga, J>á gefst Gimli-
I mönnum kostur á að sýna með at-
kvæðum sínum, hvort þeir eru
I samþykkir þessum gerðum gamla
l Greenways, og hvort þeir vilja
i segja Roblinstjóminni strfð á
' hendur fyrir alt sem hún hefir
i fyrir þá gert, eða hvort þeir vilja
! styrkja hana og hlynna að slnum
1 oigin veiferðarmálum, með þvf að
I senda henni viu í þingið, sem svo
| gæti haldið áfram að vinna í f>arf-
ir Jæirra eins og B. L. Baldwinson
1 hefir gert sfðan hann varð f>ing-
maður þeirra árið 1899.
Vér treystum því að kjósendur f
! Gimli-kjördæmi beri svo mikinn
áhuga fyrir sfnum eigin sveitar
hag, að þeir kjósi B. L. Baldwin-
son. Hann getur starfað þeim til
gagns, en andstæðingur hans get-
ur það með engu móti, f>ó hann
næði kosningu.
Það er hætt við að Mr. Roblin
og stjórn hans mundi skoða kosn-
ingu Sigtr. Jónassonar, sem ljósan
vott um persónulegan fjandskap
við sig og væri J>á illa launað.
það sem stjóm hans hefir gert fyr-
| ir kjördæmið. Allra hluta vegna
! er f>ví æskilegt að Gimli-kjósend-
i ur sjái hag sinn og sóma í f>ví að
i endurkjósa B. L. Baldwinson. Og
það vonar Hkr. að þeir geri 30. þ.
I m.
Þingmannsefni Greenways, Sig-
tryggar Jónasson, hefir lýst því yf
ir oftar en einu sinni, að erindi sitt á
þing sé að skammast og rífast við
j Roblin. Hann heflr sem ré sagt
kjósendunum í Gimli-kjördæmi, að
hann vilji endilega komast á þing,
f>ð sinn flokkur verði þar í minni
hluta, til þess 'að geta skammað Rob
lin. Þegar pðlitiskt „prinsip“ er að
eins komið á f>að stig, Jsem hér um
ræðir, fer aðjkasta tólfunum. Að
vísu má treysta því, að það séu ekki
nema sára fáir, sem stuðla að þvi, að
senda svona pólitiska náunga 4 þing
Og það mun líka lengi verða í
roinnum haft, ef Gimlibúar senda
Þingmann að eins á þing tii að rffast
við stjórnarformanninn. Þeim er
oefað betra að hafa góðan, áreiðan-
anlegan og ötulan þingmann fyrir
kjördæmi sitt. Og það gera þeir.
Mr. B. L. Baldwinson ætti að fara
að þingmensku, með öllnm „hvftum1
atkvæðum í kjördæminu.
Liberal-blöðin sögðu, að Con-
servatívar væru svo illa liðnir og
stjórn þeirra og svo bandvitlaus, að
fólk ræki Roblinstjórnina af höndum
I sér. Þau uppástóðu, að þeir mundu
hafa svo sem tvö sæti í næsta þingi.
„Gamli, stóri maðurinn"!! — hann
Greenway, ætti því að fá 38 sæti af
: 40. Mikil er sú nákvæmni! Eftir-
breytnisverð |er sú sannsögli!!
HeimBkringla leitaðist við að
segja, sem allra sannast og réttast
frá hvernig Conservatívar stæðu í
ftliti og fylgi bjá íbúum fylkisins
Húnsagði að Greenway og flokkur
hans hefði 6 sæti ínæsta þingi. Nú
hefir sá ftokkur ’4 eða 5, vonandi að
hann nái einu sæti úr þessum kjör-
dæmum, sem ófrétt er frá enn. Hkr.
þykir viðkunnanlegra að Greenways
fiokkurinn komist i kúgildistöluna.
Það er tala þess ílokks.
bréfi frá forseta. Nortliern Pacific,
Mr. Mellans, dags. 10 Nov. 1899.
Roblinstjórnin hefir færtflutn-
ingsgjald á hveiti ofan f 10 c, og
fært niður flutningsgjald á vöram
að stórum mun. og ætlar að færa
það meira niður. Hún hefir látið
járnbrautarfél. byggja og auka
brautir í fylkinu, sem nemur yfir
þúsund mflur. Hún hefir gert alt
f>etta án f>ess, að f>að kostaði fylk-
ið eitt einasta cent.
hefir ákveðið. í öðrulagi hvort
flokkurinn vilji láta byggja f>ær
brautir, sem Canadian Northern
er að byggja nú, og hefir ákveðið
að byggja, satnkvæmt núverandi
samningum. I þriðjalagi vill sá
flokkur lýsa yfir nú f>egar hvort
hann ætlar að gefa Giand Trunk
Pacific-félaginu peningastyrk og
aðhlynningu, upp á sama hátt og
hann gerði á meðan sá flokkur sat
við völdin í Manitobafylki?
Roblinstjórnin hefir
fært hveitiflutnings -
gjald ofan í 10 cent.
Eins og Roblinstjómin hefir lof-
að fólkinu f Manitoba, hefir nú
verið gert stjómarákvæði um flutn-
ingsgjald; á hverjum hundraðpund-
um á hveiti verður það að eins ÍO
cent eftir fyrsta September
næstkomandi. Greenway kvaðst
vilja gefa eina milión dollara til
f>ess að geta sett flutningsgjald á
hveiti niður, en gat engn áorkað í
því efni.þó hann ysi út fylkisfé í
j árnbrau tar félög.
Ákvæði stjómarinnar hljóða á
f>essa leið:
No 8593-1.
Eftirrit, af ákvæðum
framkvæmdarvalda stjórnar-
ráðins, sem samþykt eru
af hans háborinlieitum fylkis-
stjórans í Manitoba, 13. dag
Júlímánaðar 1903.
Að fyrsta dag Sepetmber
mánaðar næstkomandi, 1903,
og svo framvegis, skal flutn-
ingsgjald á hveiti, sem Can.
Northern Railway Company
flytur á járnbrautum í Mani-
toba, v e r a sett niður um 2
cent á hverjum hundrað
pundum, frá því sem það er
nú hjá téðu félagi, og nær
þetta til þess staða í fylkinu:
Winnipeg, Carman, Portage
la Prairie, Brandon og Hart-
ney, einnig nær þetta til allra
annara staða, þar sem braut-
ir þess félags eru, og innifel-
ur í sér alla brautarstaði The
Northern Pacific, sem áður
nefnt félag hefir að leigu.
Vitnar
C. GRABURN,
cleik, Executive counsil
Winnipeg, Man. 13. Júli 1903
í samningum núverandi stjórn-
ar og Canadian Northem Railway
Company, sem staðfestur var 11.
Febr. 1901, stendT að stjómin hafi
fulla heimild að r á ð a y f i r flutn-
ingsgjaldi Þessarar brautar hér í
Manitoba. Á þessuin rúmum
tveimur árum hefir stjómin, eins
og kunnugt er, fært niður farþegja
gjald. vöruflutningsgjald, og nú er
hún tvisvar búin að færa niður
hveitiflutningsgjald. Það var l4c,
fyrir 100 pd., alla Greenways tfð,
en nú er það komið ofan í lOc. 1.
September í haust.
Mr. Sifton gaf C. P. R. félag-
inn $3,300,0o0, og nbkkuð yfir
3,000,000 tii að ná 14c. fluinings-
gjaldi hjá því félagi,
Greenwaystjórnin gat' og
lofaði einni millfón dollara í pen-
ingum og tuttugu til þrjátíu ára
skatt undanþágu á löndum. án
þess að koma flutningsgjaldinu
niður um eitt einasta cent.
„Mr. Greenway lét í ljósi, að
hann væri reiðubúinn að borga
nokkra tilslökun,á flutningsgjaldi.í
sambandi við f>etta, lét hann mig
vita, að styrkur fráfylkinu, slump-
uppliæð $1,000,000 [til Mackenzie
& Mann, hefði komið til orða.
fram yfir styrkveitingu í löndum
og ábyfgðarbréfum, til f>ess að fá
tilslökun á flutningsgjaldi”. í ■
A ð v ö r u n til Manitoba-búa.
Allir muna eftir hvernig Mr.
Greenway jós út fé Manitoba-búa
f járnbrautir. Hann braut lög á
fólki. Veitti fé án vitundar Þess
og þingsins; og samdi leynisamn-
ing, sem hann og ráðgjafar hans
þrættu fyrir f síðustu kosningum.
Það veru $150,000, sem hann hafði
lofað C. P. R. fél., sem kom upp
þegar hann var rekinn frá völdum.
Hann segist nú lofa fólki að gera
það sama og hann hefir gert áður
Allir vita livað það þýðir. Nú
kemur upp bréf um leynisamn-
inga hans við Grand Trunk Paci-
fic fél., sem sœkir um byggingar-
leyíi, og vill fá afarháan stjómar-
styrk til að byggja braut austan i
frá liafi og vestur að Kyrrahafi.
Fréttir um f>á samninga em ný-!
komnar austan frá Ottawa. Samn |
ingar, sem hann á að hafa gert,
auðvitað í laumi, er að vinna á
móti og eyðileggja CanadianNorth-
ern fél. og koma því út úr fylkinu.
En lofar öllu mögulegu fylgi f>essu
Grand Trunk Pacific fél., og á það
ekki að vera skuldbundið til að
hafa lœgri flutningsgjöld en því
gott þykir. Þetta meinar að eyði-
leggja C. N. fél., og láta alt vera í
höndum járnbrautarfél., [eins og
var á meðan hann var við völdin.
Eðlilega er jámbrautarfél. léttara
um aðborga stór fjámppliæðir fyrir
svoleiðis löguð kaup og sölur á í-
búum fylkis og rfkis, en þegar
þau verða að skuldbinda sig t.il að
láta stjórnina, sem hlut á að máli,
ráða flutningsgjaldi. Þetta sjá
allir heilvita meim. Og allir menn, j
sem nnnf sjálfum sér og fólkinu
hagkvæmum og réttlátum viðskift-
um.
Samningur Þessi, sem áminst
bréf talar um, ber nákvæmlega
saman við blöð og ræður Green-
ways sjálfs. Hann er reyndur um
samfleytt tólf ár að því að versla
með fylkið við jámbrautarfé lög án
þess, að veita fylkinu nokkur
hlunnindi. Hann er reyndur að
f>vf að bruðla út fylkisfé í járn-
brautarfél. til þess, að ná nógu
miklu fé upp handa sjálfum sér og
gæðingum sfnum. Hann lætur
l>löð sin úthrópa járnbrautarstefnu
Roblinstjórnarinnar og fordæma
liana ofan undir allar hellur, Hann
hefir verið nógu óhlutvandur til
þess, að láta ritstjóra Free Press
segja, að Canadian Northern leggi
ekki jám á 10 mílur af brantnm
þetta surnar. Þó allir viti að fé-
lagið er að byggja fleiri lmndruð
inílur af járnl>rautum, og hati yfir
2,000 verkamenn, og þar af séu
400 að leggja járn, og búnir að
leggja þau á margar mílur.
Hann var nógu ósvffinn og
skeytingarlaus að segja sjálfur í
Boissevain n/lega:
“Ef nokkur dirfist til að segja
f>að, að 10 centa flutningsgjald fá-
ist gegnum járnbrautarmálið, [>á
talar hann lygar”.
Þetta sagði hann daginn eftir
að stjórnin ákvað 10 centa flutn
ingsgjald á hveiti. Hve s/ndi
hann ekki og félagar hans, að hann
hefði vilja á að ná niðurfærslu á
flutningsgjaldi í sinni stjórnartfð,
ef hann hefði nokkum tfma meint
það. Hann meinti aldrei annað
en verzla fyrir sjálfan sig og flokk
sinn með fylkisfé og fylkisbúa.
Hann er f óbeinum skilningi mjög
slunginn mannsali.
Það hefir verið skorað á Mr.
Greenway að svara [>essum spurn-
ingum:
Fyrsta spurningin er sú hvort
Greenway eða annar leiðtogi Lib-
eralflokksins vilji,ef hann kemst til
valda, viðhalda og lækka f>au
flutningsgjöld, er núverandi stjóm
Þessum spumingum hafa Lib-
eralar og blöð þeirra forðast að
svara. Þeir segja að eins, ef þér
komið okkur að, þá gerum við alt
[>að sama og við gerðum meðan
við sátum við völdin. Sú stefna
og loforð hefir nýlega verið skýrð í
Heimskringlu.
Þér sem hafið stjórnmálaf>ekk-
ingu, og viljið vita sóma yðar, og
viljið niðjum yðar og landinu vel,
greiðið atkvæði yðar á móti Lib-
eralflokknum. Látið engar hall-
ærisláns-ætur, eins og Lögberg-
inga, fleka ykkur. Sýnið að f>ið
standið jafnfætis hérlendum mönn-
um. Þeim heiður sem heiður ber!
! Verið f>að sem f>ér eruð inst í yðar
eðli!
Eimreiðin.
Hún er nykomin hingað vest-
ur, Efnisyfirlit hennar er á þessa
leið:
SV. SVEINBJÖRNSSON og
VHLTÝR GUÐMUNDSSON: ís-
land (sönglag og kvæði),
ÞORSTEINN ERLINGSSON:
Seyðisfjörður um aldamótin 1900
(með 5 mvndum).
SIGFÚS EINARSSON: Söng-
kensla í skólnm,
VALTYR GUÐMUNDSSON:
Sprengisandur (með 1 uppdrætti
og 11 myndum).
ÞORVALDUR THORODDSEN:
N/tt rit um náttúru íslands, Rit-
sjá.
VALTÝR GUÐMUNDSSON: ís-
lendingasiigur. — Guðbjörg í Ðal.
—Norðlenzkir skólar.—Tíðindi frá
kyrkjuþingi. — GUÐMUNDUR
! FINNBOGASON: Axel.—HAF-
STEINN PÉTURSSON: Jóhann-
esar guðspjall.—
Skfrsla um prestaskóla Islands.
HELGI PJETURSSON: Merki-
leg draugasaga.
LÁRUS THORARENSEN:
Sveitin mfn (kvæði).
SIGURJÓN FRIÐJÓNSSON:
Hinn þröngi vegur.
HELGI PJETURSSON; Gunn
arshólmi.
Islenzk hringsjá.
VALTÝR GUÐMUNDSSON:
Um fslenzkar konur,—Framfarir
Islands á 19. öldinni.—Fregnbréf
frá Islandi.—Um steindysjar eink-
um á Islandi,—Um búnaðarhætti
íslendinga að fornu.
Sönglagið mun vera gott og
blessað fyrir þá, sem lifa og vekja
söng. Kvæðið sem það á við er
ekki eindæma hrffandi, eða anð-
ugt af skáldskap og fagurfræði.
Það kafar svona í miðjum hlfðum f
ísienzku skáldaófœrðinni, sem ein-
att þyngir á, bæði austan hafs og
vestan.
Þá kemur seinni parturinn af
| ritgerðinni: Seyðisfjörður, eftir
skáldið Þorstein Erlingsson, og er
Það langur kafli, Hvergi nærri
! er sú ritgerð hngðnæm. Hún er
[ meira að segja ósögulega skrifuð.
Myndir [>ær sem hennifylgja era
verri en ekki neitt fyrir ókunnugan
mann. Ritgerð f>essi ernæstum
hálfstráklega samin, og þrungin af
hnútukasti og kvepsni til ýmsra
i manna, sem á Seyðisfirði hafa bú
i ið. I fáum orðum sagt; hún er
miklu lfkari því að kærulaus
glanni hafi skrifað hana, en ment-
aður maður. Sögugildið virðist
alstaðar haft á hakanum fyrir al-
vöruleysi og spéi. Mundi sú rit
gerð stórhneyksla útlendinga, sem
farfróðir em í J>essum heimi.Hefði
Eimreiðinni óefað verið sæmra
sjálfrar sinnar vegna, að flytja
ekki aðra eins ritgerð og þessi er
Tímarit og bókmentarit eiga að
vera laus við háð og flimt. Þau
eiga að vera áreiðanleg og óhlut-
dræg, fræðandi og mentandi, en í
þessu efni, sem viðvfkur nefndri
ritgerð, fer alt slfkt út um þúfur í
þvf efni. Þó Þ. Erl. hafi ætlað að
stæla Ben, Gröndal, í lýsingunni af
Reykjavík. f>á hefirslfkt enga bók-
mentalega þyðingu eða gildi, þvf
í staðinn fyrir það að B. Gröndal
heldur sögulegum f>ræði alt í gegn,
þrátt fyrir útúrdúrana og vaðalinn,
þá hefir Þ. Efl. ekki haft tök á að
koma sjálfum scr, sem söguritara,
að á einum eða öðrum stað f þess-
ari ritgerð, Hann snýst allur um
náungann í lausu lofti utan víð
sjálfan sig. Auðvitað hefir Eim-
reiðin ekki gætt að nokkru slíku,
þar eð hún fl/tur annan eins sam-
setning og hér er um að ræða og
kallar J>að Seyðisfjörður um alda-
mótin 1900”.
Þá kemur SÖNGKENSLA
eftir Sigfús Einarsson, seinni part-
ur. Sú grein virðist frá ritgerðar-
legusjónarmiði vel skrifuð.Minsta
kosti leitast höfundurinn við að
skýra og fræða menn um efnið
sem hann hefir á prjónunðm, og
blandar þar ekki inn í erjum og
væringum til manna, eða félaga.
Það má fullyrða að sú ritgerð er
fróðleg, uppbyggileg og vel samin,
innan J>eirra takmarka sem hún
á heimahaga í. Sú ritgerð er vekj
andi og glæðandi, þó hún sé ekki
leiðarvfsir í nótnagerð eða söng-
kenslu. Og á höfundurinn og
Eimreiðin f>ökk fyrir slfkar grein-
ar.
Þá kemur all-löng ritgerð, sem
lieitir SPRENGISANDUR. Það
er lýsingin af vegastæðum og
aukaleiðum á f>eim öræfum, ásamt
dálitlum uppdráttum til skfringar
ritgerðinni. Hana heflr ritað höf-
uðsmaður Daniel Bruun fyrir
Geografisk Tidskrifter, eftir til-
mælum Páls Briems amptmanns.
Þettasem Eimreiðin flytur er út
dráttur úr þeirri ritgerð. Útdrátt-
ur þessi er fróðlegur og glöggur og
sannarlega f>ess virði að birtast á
prenti. Manna og staða myndir
ern í ritgerð þessari.
Þá er MERKILEG DRAUGA-
SAGA, eftir Helga Pétursson.
Hún er þess virði að haldast við.
En hvort höfundurinn fœr rétta
ályktun út úr henni, er annað mál.
SVEITIN MÍN, eftir Lárus
Thorarensen, er snoturt kvæði.
„Hinn f>röngi vegur”, eftir
Sigurjón Friðjónsson, er auðug af
hugsun og viti; enhættervið að
hún falli í grýttan jarðveg, og
myrkur skyggi á það, sem gióir í
henni, fyrst um sinn.
„Gunnarshólmi“, eftir Helga
Pétursson. Það er athugasemd
við hið góðfræga kvæði Jónasar
Hallgrímssonar með sama nafni.
Höfundurinn hneykslast á því, að
Jónas skuli láta Gunnar á Hlfðar-
enda segja.:
.,Hér vil ég una æfi minnar daga
Alla, sem guð mér sendir“.
Finst H. P. óviðurkvæmilegt
af Jónasi, að láta Gunnar, heiðinn
manninn, taka svona til orða. Þekk
ing og tilfinning geta skákað hvor
annari þar. En átrúnað nokkurn
hafði Gunnar á Hlfðarenda, sem
aðrir menn í [>ann tíð.
Þá er íslenzk hringsját og er
ekkert stórvægilegt þar um að
gresja.
Þetta hefti Eimreiðarinnar er
svipað systrum sfnum nú í seinni
tíð. Nú sfðari árin hefir rit það
verið nokkuð þynnra af andlegum
auð, enf>að var fyrstu árin. í fá-
um orðum sagt, Eimreiðin gerir
nú ekki betur en vera með slark-
færam vorþrótti á andlega visu.
Þyrfti hún hið skjótasta betra eldi,
en hún á nú að fagna hjá hús-
bændum sínum.
K. Ásg. Benediktsson.
Tj al d b úðar-m ál i ð.
Fundur fyrir söfnuðinn var
auglýstur, og haldinn 7, þ. m.
Hann var boðaður af forseta eða
fulltrúum safnaðarins, eins og
vera ^bar’ Þessi fundur var fá-
mennur. Voru [>ar rædd lítið eitt
mál Tjaldbúð arsafnaðar.—Féh irð -
ir kyrkjunnar gerði uppástungu
sem einn af lulltrúunam studdi,
að presti safnaðariris værisagt upp
með sex mánaða fyrirvara, eins og
lög safnaðarins ákveða. Ástæður
fyrir uppsögninni kvað uppá-