Heimskringla - 24.09.1903, Blaðsíða 1
XVII. WINNIPEG, MANITOBA 24. SEPTEMBER 1903. Nr. 50.
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
—Síðustu viku bylur, sem áður
heflr verið getið í Hkr., gerði 2
millíóna dollars tjón á Manhattan-
eynnj í N. Y. 18 manns fórust þar
í bylnum, sem frétzt heflr af, en tal-
ið víst að margir fleiri hafl farist,
sem er ekki frétt um enn. Svipaðar
fréttir berast frá nálega ðllum pört-
um Bandaríkjanna og víðar að. 14
manns biðu líftjón hjá Glochester í
Maine í þessu veðri. Þeir voru á
skipi sem strandaði.
—Búlgarar hafa kallað saman stór
an hluta af herdeildum sínuin til
þess að vera viðbúnir að fara í stríð
við Tyrki hvenær sem nauðsyn kref
ur. Sagt er að Servia hafl boðfst
til að hjálpa Búigörum til að berja
á Tyrkjum, og talið víst að það boð
verði þakksamlega þegið.Það er og á
orði að Bretar hafl í hyggju að
reyna að koma í veg fyrir frekari
grimdarverk Tyrkja hersins á varn-
arlausum konum og börnum, sem
þeir hafa verið önnum kafnir að
brytja niður um marga undanfarna
mánuði. Brezk blöð segja að hluti
af sjóher Breta verði sendur tíl Con-
stantinople til þess að árétta beiðni
Breta um aflétti glæpanna, og er þá
talið líklegt að Tyrkjasoldán lofl
bót og betrun, hvað sem um efndir
kann að verða. Ánnars eru hryðju-
og grimdarverk beggja málsparta
svo voðaleg, að þeim verður naum-
ast lýst í blaði.
_NýJátinn er í Minneota, Minn.,
Ólafur G, Anderson, frá Haukstöð-
um í Vopnaflrði. Ilann tiuttist til
Minnesota árið 1879, þá 20 ára gam-
all, ómentaður og efnalaus. Með sér
stakri atorku og hyggilegri stjórn
hæfileika sinna vann hann sig stöð-
ugt áfram og upp á við þar til hann
varð kaupmaður þar í bænnm.
Hann léteftir sig 150,000 í fasteign-
um og vörum. Hann varð 44 ára
gamall, tvíkvæntur og eftirlætur
ekkju og 8 börn.
—Þýzka stjórnin heflr gefið út
strangt boð til hermanna sinna, að
hafa engin mök við Sósialista,
syngja enga söngva þeirra, hafa
ekkert meðferðis af ritum þeirra og
láta á engan hátt á því bera, að þeir
séu þeim vilhallir í skoðnnum.
—Frétt frá Westburne segir vél-
ina í gasolinebát herra Helga Einars
sonar hafa sprungið í síðastl. vikn.
Tveir menn voru í bátnum, Helgi
og annar raaður. Helgi brendist
nokkuð á höndum og höfði, en hinn
maðurinn hentist í vatnið og slapp
við bruna. Ekki eru sár Helga tal-
in hættuleg.
—Ottawastjórnin hefir samþykt
að hækka laun allra stjórnarþjóna í
Canada núna fyrir kosningarnar svo
nemi að jafnaði f 100 á ári-
—Count Orloff, ítalskur auðmað-
ur, er nýdáinn. Hann hafði ferðast
um öll lönd Evrópu til að sýna sig.
Hann var nálega gagnsær, t. d.
mátti sjá gegnum lærið á hcnum
hvað klukkan var, jafnvel beinin í
líkama hans virtust vera gagnsœ.
Eftir dauða þessa manns vildi há-
skólaráðið í-Leipzig kaupa líkama
hans til vísindategra rannsókna, eu
aðstandendur hans heimtuðu svo
þátt verð, að skólinn varð frá að
ganga.
—Stjornarformaður Seldon í Nýja
Sjálandi hefir lofað að styrkja með
fjárframl'tgum úr ríkissjóði nokkra
fátæka leikendur til þess að ferðast
til Englands á næsta ári til að
þreyta þar kappleiki við Breta. Er
þetta f fyrsta skifti sem sögur fara
fara af, að stjórnír landa taki þátt í
slíkum kapþleikjum með tillögum úr
landssjóðum.
—C. P. R. féiagið hefir ákveðið
að lækka flutningsgjald á hveiti og
mjöli frá Manitoba til Stórvatnanna,
til þess að geta kept við C. N. braut-
ina. Þetta er bein afleiðing af braut
arsamnir gum Roblinstjórnarinnar,
sem nú heflr knúð félagið til að
lækka flutningsgjöldin, og við það
má vænta að fylkisbúar græði árlega
hundruð þúsundir dollara, — Það
borgar sig að hafa þjóðhollastjórn 1
landinu.
■ —Eldur kom upp í bænum Sault
St. Marii i Ontario í síðustu viku og
gerði @700,000 skaða.
—Joseph Ganthier hefir fundið
gull hjá Sturgeon Lake, Ont- Sýn-
ishorn þau sem hann hafði voru próf
uð eg reyndust að hafa $2000 í
hverju touni af grjóti. Gauthier
segir ógrynni af þessu grjót: vera á
því svæði, er hann fór yfir og telur
víst að þar verði innan fárra mán-
aða ein sú mesta námastöð í heimi.
Svæði það sem hann kannaði eru 30
mílur á lengd og 8 mílur á breidd,
alt þakið þessum gullkenda kletti,
sem nefndur er ,Free Milling quartz'.
Gullminsta svæðið geymir $200 í
tonni. Margir leitarmenn eru þegar
komnir á þessar stöðvar. Þeir segj'
ast meira en vinna fyrir kostnaðin-
um við leitina, með því að.selja
gullmola er þeir finna ofanjarðar,
sem sumir eru alt að $10 virði. Mr.
Gauthier telur nauðsynlegt að járn-
braut sé lögð urn þetta svæði norðan
við C. P, Ry. brautina, og segir þá
munu fijótlega verða svo mikíð þar
um vinnu og peninga að allur Cana-
da undrist auðæfln.
—Skoðanamunur í brezka ráða-
neytinu út af misman á stefnum
þeírra Chamberlains og Balfours hef-
ir lyktað með því að 5 ráðgjafar
hafa sagt sig úr stjórninni. Þeireru:
Joseph Chamberlain, nýlenduritari,
Chas T. Richie, ríkisféhirðir,
Lord Geo. Hamilton, Indlandsritari,
Lord Balfour of Burleigh, Skotlands-
ritari, og Arthur R. D. Elliott, fjár-
málaritari.
Sá síðastnefndi var ekki í ráða-
neytinu, svo að 4 ráðherrar að eins
eru farnir. Enn þá er óvíst hverjir
valdir verða í þeirra stað. En svo
segja brezku blöðin, að Balfour hald
áfram að stjórna og að ekki verði al-
menr.ar kosningar á Bretiandi fyrri
en árið 1904, og er þá talið líklegt
að stjórnin tapi völdunum. Það
þykir og eftirtektavert og ekki við
alþýðuskap, að Lord Stanley verður
látinn halda áfram að vera í ráða
neytinu. Fylgjendur Chamberlains
í Birmingham héldu nýlega, þing
mikið; vorn þar saman komnir 330
erindi ekar, sem höfðu málsvara um-
boð fi á 240 þúsund verkaraönnum.
Þeir samþyktu í eínu hljóði að halda
fa t við frjálsverzlunarsteínuna og
fylgja Chamberlain að málum. Út-
litið er að Lord Mulner fái stöðu
Chamberlains í ráðaneytinu og Aust
in Chamherlain verði gerður að rík-
isféhirðir og að Mr. Broderick verði
gerður að Indlands-ritara. Fjórði
ráðgjafinn er enn þá óvi3s, en talið
víst að það verði elnhver öfiugur
hermfdamaður, er geti endurskapað
alla hermáladeild Breta.
—Það heflr vakið mikil andmæli
gegn Balfour, að hann hefir látið
prenta rit það á eigin ko tnað, sem
lýsfr stefnu hans í tollmálum Breta,
og tekur svo sjálfur mestan part af
gróða útgáfunuar. Það er búist víð
að ein millión bæklingar seljist f
Bretlandi, og verðið er 25c, en marg-
ir verða að borga 50c fyrir eictak
hans. Það er ætlað að gróði af söl-
unni muni nema 170 þús. doll og að
Balfour fái mest af því fé. Þykir
blöðunum það Ijóttað nokkur maður
skuli nota ráðgjafastöðu sína til þess
að nota skýrslur ríkísins til fjár-
bragða. Þykir sennilegt að Balfour
græði nóg fé 4 þessu fyrirtæki til
þess að standast allan kostnað við
byggingu stórhýsis þess sem hanu
heflr samið um að láta byggja á
horninu á Rorie St. og McDermot
Ave. hér í Winnipeg.
—Tyrkjasoldán heflr statt og stöð-
ugt lofað stórveldunum því að af-
taka algerlega öll ofbeldisverk í
Macedoniu og hegua þeim sem gert
hafa sig seka í þeim. En á sama
tíma eyðilögðu Tyrkir heílan bæ f
Macedoniu með 10 þús. íbúum,
brendu bæinn til kaldra kola og
deyddu hvert einasta mansbarn sem
þeirnáðatil. Nú er samt búist við
að Soldán sýni einhvern lit á því að
láta að orðum stórveldanna, að koma
í veg fyrir slík illvirki framvegis.
—Kona ein i New Yerk riki and-
aðist nýlega og lét eftir sig $10,000
í eignum, se.n hún ánafnaði yngri
syni sínum, en afskifti þann eldra
algerlega. Af þessu reiddist eldr
bróðirinn svo að hann skaut erfingj-
ann til ólífis.
—Fræðimaður einn á Englandi,
Sir Robert Giffen, heflr nýlega í fyr-
irlestri, er haun hélt á fundi brezka
vísindafélagsins, gert áætlun um
verðgildi hinna ýmsu Hkja í Breta-
veldi. Hann metur Canada á 6,500
millíónír dollars og Ástralíu nokkru
minna, en ekki er getið um hvernig
hann gerir grein fyrir þessum út-
reikningi.
— Stjórnin í Kfna hefir beðio sína'
gömlu andstæðinga, Japana, að
byggja 4 ný öflug herskip fyrir sig
tatarlaust og lof'ar að láta þá bygga
fieiri skip, ef þessi reynist vTe), Kfna
stjórn er að safne að sér miklum
byrgðum af alskyns hergögnum,
—Snjór íéll í Wyomiug og víðar í
Bandarfkjunum um miðjan þ. m.
Sumstaðar varð hann 18 þuml. til
2 feta djúpur.
—Gull lefir fundist í jöiðu undir
Dawson bænum i Yukon héraðinu,
en ekki er það talið mikils virði.
Það er frá 2 til I5c. úr hverri pönnu
sands. Þetta er við endan á Albert-
stræti. Borgarbúar keppast nú
hver við annan að grafa á Ióðum
sínum í von um að finna auðugar
námur.
Maðuraðnafni Gilman Law, f
New York, sýndi nýlega þá atiraun
þar í borginni, sem enginn heflr áð-
ur gert, en það var að lyfta millíón
punda þunga frá jörðu á 34 mínút-
um og 35 sekúndum. Law J>essi er
ekki talinn neinn sérlegur burða
maður, en hefir tamið sér likamsæf-
ingar og á þann hátt eflt krafta sína
mjög á síðari árum. Með simplum
útbúnaði sem hann sjálfur gerði og
festi við Fairbanks metaskálar lyfti
hann hæg-lega 1000 punda þunga á
hverjum 2 sekúndum og 22 sinnum
lyfti hann 2000 punda þunga. Hann
lyfti þessum 22 tons á 19 mín.
og.l/5sek. Mr. Law hvildi sig lítið
eitt eftir lyf'tingu hverra 50 þús- pd.
og gekk þá fáein spor til að liðka
sig. Mr. Law hélt sýningn sinni
við í 55 mínútur, og á þeim tíma
lyfti hann I,141.33l£ pundum Á
þessu tímabili tapaði hann við þessa
aflraun 5| punds þyngd. Hann var
það mikið léftari eftir áreynsluna,
heldur en áður en hann byrjaði
hana. Mr. Law segir sjálfur svofrá
að hann hafi tekið tveggja mánaða
tíma til undirbúnings. Á því tíma-
bili át hann kjöt að eins 2 sinnum.
Hann fann að það áttí ekki við hann
I 0g því hætti hann við það. Fyrstn
I 5 víkur uudirbúnings tímabilsins át
hann að eins eina máltíð á dag, það
voru 3 egg, hálft hveitibrauð, kál-
meti. aldini og nuður. Á eftir hveri
máltíð drakk hann glas af mjólk og
mikið af vatni, en vín eða tóbak
snerti hann aldrei. Síðustu 3 vik-
urnar borðaði hann að eins 12 mál-
tíðir, eða svo sem því svaraði, með
öðrum orðum, hann treindi sér í 3
vikur það sem flestir aðrir menn
eyða á 4 dögum. En skömmu áður
en hann byrjaði aflraun sína, át
hann 6 egg og heilt brauð ásamt
öðru góðgæti.—Það heflr vakið eftir-
tekt lækna og líkamsæfinga manna í
j andaríkjuuum alment, að maður
sem á 60 dögum étur að eins 33
meðal máltíðir skuli á þeim tíma
hafa getað safnað svo kröftum að
hann gat afkastað aflraunalegu þrek
virki, sem enginn hefir áður árœtt
að reyna.
—Maður að nafni Fred. Marshall,
þreskti nýlega hjá bónda einum að
Fannystelle í Manitoba 6,863 bush.
af korni á 2 dögum tæpum. Er
þetta talin mesta vinna f þeirri grein
sem geið hefir verið hér í fylkinu.
—Það þykir tiðindum sæta, að
Robt Benson, sonur byskupsins yfir
Canterbuiy á Englandi, hefir sagt
sig úr ensku kyrkjunni og gengið
inn f kaþólsku kyrkjuna.
—Can Northern Ry. félagið heflr
hóp af landmælingamönnum síðan í
Júní síðastl. til að mæla út brautar-
stæði f'rá Manitoba til Hudsonsflóans.
Það er tilgangur félagsins að byggja
braut til Port Nelson strax og búið
er að mæla út brautarstæðið.
Biæðnr okkar austan hafs
Eftir Fjallkonunni.
Norðmaður einn skrifar nýlega
um ástandið í Noregi á þessa leið:
„Hver maður, sem álengdar heflr
virt fyrir sér ástandið í Noregi nú á
seinni árum, hlýtur að verða þess
var, að þjóðin hefir lifað einhverju
hátíðalífi. Hún hefir vanrækt nauð
synleg og nytsöm störf og í einfeldni
gert sér hjáguði úr hinni ,,æðri
mentun og menningn“. Það hefir
verið ofvöxtnr í ví3indum og listum,
þegar litið er á efnahaginn og ástand
ið í landinu, Þessi hjáguðadýrkun
hefir dregið huga æskulýðsins frá
vinnunni og framleiðslunni. Þjóðar
uppeldið hefir líka stefnt í sömu átt;
unglingaskólarnir hafa alið upp ó-
nýta kynslóð, golubelgi og slæpinga.
Hér við bætist, að hin ríkjandi
stjórnmála- og þjóðmálastefna hefir
kæft hjá mönnum þá hugsun, að vilja
ráðast í eitthvað að fyrra bragði og
upp á eigin spítur. Þessi hugsun
var að vísu veik og vesæl; en versn-
að hefir hún samt. Kíkið er orðið
barnfóstra og þjóðin keltubarn. Ekk
ert er gert nema með hjálp ríkisins;
það rekur að því, að þurfi eínhver
að bæta rassinn á bugsunum sínum,
þá verður hann að fara í landssjóð-
inn.
Æskulýðurinn er framtíðarvon-
in. Hann verður að læra að líta
réttum „augum á silfrið“. Hann á
að hætta að gefa sig mest við hégóm
anum og sinna þvf, ,.sem mest kall-
ar að“.—
„Jlargt er líkt með skyldum'1
megum við Islendingar segja, er við
lieyrum þessi orð, og Þegar Norð-
mönnum er í þessu efni kent, þá er
okkur bent. Við eigum líka í okkar
fátækt. golubelgi og slæpinga, og
æskulýðurinn á Islandi, hannþarf
já, hann þarf, ef vel á að fara, að
læra að horfa í rétta átt, aðra en
sumstaðar er tftt, læra betri siði,
meiri iðjusemi en sumstaðar er títt,
læra að skoða sjálf'an sig, verkin sín
og all mannlíflð í léttu Ijósi.
Við þurfum engu síður en Norð
menn að læra að bæta rassinn á
buxunum okkar upp á eigin spítur.
PIANOS og ORGANS.
HeintKiiian & C» Pianos.-Bell Orgel.
Vér seljam med mánaðarafborgunarskilmálum.
J. J. H MfLEAN & CO. LTD.
530 MAIN St. WINNIPEG.
ew
York [_ife |
nsurance
JOHN A. McCALL, president.
IJfsábyrgðir í gildi, 31. Des. 1902, 1550 tnillionír UnlIai'H.
700,000 gjaldendur, sem eru félagið eiga það og njóta als gróða.
145 þús. manna gengu í félagiðá árinu 1902 með 303 miliion doll.
ábyrgð. Það eru 40 milliónir meíra en vöxtur fél. 1901.
Gildandi ábyrgðir hafa aukist á síðastl. ári um 188 mill. Dollars.
Á sama ári borgaði félagið 5000 dánarkröfur—yfir 15 mill. Doll,—
og þess utan tiJ lifandi nceðlima 14J mill. Doll.. og ennfremur var
$4,750,000 af gróda skift upp milli nceðlima, sem er $800,000
meira en árið 1901. Sömuleiðis lánaði félagið 27,000 meðlímum
$8,750,000 á ábyrgðir þeirra, með 5 per cent rentu og án annars
kostnaðar,
C. Olafson, J. K. Morgan, Manager,
AGENT. GRAIN EXCHANGE BUILDING,
w i jst jsripe C3-.
Skemtisamkoma
og
kvóldverdur.
Skemtisamkomu þeirri, er auglýst var í síðasta blaði Hkr. að
halda ætti á Unity Hall fimtudagskvöldið 24. þ. m., hefirverið
frestað til mánudagskvölds
28. September.
Aðgöngumiðar þeir, er þegar eru, eða verða seldir, dag-
settir 24. Sept., gilda fyrir samkomu ]>essa,
Eftirfylgjandi verður til bkemtana þetta kvöld:
•)
4
4
4j
4
4
4j
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4j
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4i
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
41
4
4
í.
2.
3.
4.
5.
f>.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
lfi.
17.
18.
19.
Samspil—Anderson’s Orchestra.
Fjórraddaður söngur— (“Velkomnir gestir"),
Guðmundur Arnason—Ræða.
Davíð Jónasson—Solo
Mrs. J. Christie Upplestnr,
Gfsli Jóusson—Solo (“Sangerliilsen'”),
Edv. Grieg.
Rögnvaldur Pétursson—“Essay”.
Gfsli Jónsson—Solo (Du gamla, du friska.)
Mrs. M. J. Benekictsson—Ræða,
(“Stgr. Thorsteinsson og kvenfólkið").
Fjórraddaður söngur — (‘Til austurh. vil ég halda')
Miss Ina Johnson—lipplestur,
Fjórraddaður söngur,
(“Þú sæla heimsins svala lind'’).
KVÖLDVERÐUR.
Samspil—Anderson's Orchestra.
Fjórraddaður söngur, (“Við hafið ég sat").
Kappræða—Kr. Ásg. Benediktsson, H. Leo.
Málefni: “Viknblöðin fsl. fyrir vestan haf
gera meira til viðhalds ísl. tungu og f>jóð-
erni en kenslan í fsl. við Wesley Coliege
getur gert, í þvf formi og nú er”.
Samspil—Anderson’s Orehstra.
S. B. Benedictsson—Upplestur.
Fjórraddaður söngur—('Tsland, ísland”).
I*
I*
f
(•
f*
{•
I*
i*
(•
I*
i*
w-
i*
í-
i*
(•
(•
i*
i*
i*
i®
i*
i*
t-
t-
W-
í*
í*
\t*
tí-
w»
J-
i-
w*
w*
w*
í-
i-
Það er þarfleysa að hafa nokkur hólsyrði um f>að, sem hér
er upptalið og til skemtana verður á samkomu þessari. Þó
má geta þess að bæði Miss Ina Johnson og hra. Gísli Jóns-
son, er liafa hvortveggja lofast til að skemta þetta kvöld,
nnmi ekki bregðast vonum þeirra er til þekkja og búast við
góðri skemtun frá þeirra hendi. Hið sama má og segja um
lira. Davíð Jónasson og Jóhannes Davfðsson, en f>eir eru
alþektir í þessum bæ og þarf ekkert um þá að fjðlyrða.
Búast m& einnig við að kappræðan verði einkar skemtileg,
enda er hún um f>að mál, sem flestir ísl., er nokkuð hugsa
fram í veginn um þjóðemi sitt hér í landi, liljóta að láta sig
varða að einhverju leyti.
Samkoman byrjar kl. S e. li. & mánudagskvöldið, o^
fólk ámint um að koma í tíma. Þeir sem fyrstir koma fá
beztu sætin.—Adgangseyrir er 25 cents.
í umboði Unitarasafnaðarins.
SAFNAÐARNEFNDIN,
ÁTTTmtTTTTTTTTTTTTtTTTTTTT