Heimskringla - 24.09.1903, Page 3
HEIMSKRINGLA 24. SEPTEMBER 1903.
HINN AGŒTI
‘T. L.’ Ciffar
er laugt á undan, menn ættu ekki að reykja
aðra vindla en þá beztu. Búnir til hjá :
l WESTERN CIGAR FACTORY
S Thos. Lee, eigandi, WIlSnSriPEGI-.
flANITOBA.
jjEgfe r tT irrHwn'i
É.
Þessi mynd sýnir uppdrátt af ný
fegursta og tilkomumesta bygging
275,000
41,000
7,201,519
17,172.888
2' ,922,280
53,077,267
100 052,343
146,691
282,343
35,000
9'.598
3747.608
81,402,800
(t>essi mynd er eign “The Morning Telegram”).
ju vagnstöðinni og hótelinu, sem C. P. R. félagið ætlar að láta byggja hér f Winnipeg, og á að verða sú
af sinni tegund, sem til er f Canada, og kosta 3 milliónir dollars.
Afríku margar púsundir af Kín-
verjum, sem þeir vilja binda í 5
ára vinnuvist þar syðra. Þessum
námaeigendum er ant um að vinna
náma sína með sem mestum
mannafla, svo að þeir geti tekið
auðæfin úr þeim á sem allra styzt-
um tima
Að undanförnu hefir reglan
verið sú við vistarráðningu Kaff-
íinna, að þeir hafa unnið fyrir fé-
lögin, sérstaklega De Beers félag-
ið, yfir umsamið tímabil, innilukt-
ir á landeign félagsins, svo að þeir
gátu með engu móti komist þaðan
fyrr en vinnutímabil þeirra var út-
runnið. Þetta vargerttil þessað
koma í veg fyrir að mögulegt yrði
að bera nokkuð burtu af gimstein-
um húsbændanna. En sú varð
raunin á þessu fyrirkomulagi, að
Köffum leiddist varðhaldið svo
þegar þeir voru búnir að vinna
þannig stöðugt inniluktir um 6
mánaða tíma, þá fóru þeir að ó-
kyrrast og langaði til að komast
úr vinnuvarðhaldinu og fá sér
frískt loft og hvfld og aðra hress-
ingu. Þeir sögðu þá upp vinn-
unni og drógu út kaup sitt hj i fé-
lögunum að frádregnu því sem
nam fæðiskostnaði þeirra. Þeir
fóru svo inn f Kimberleyborg og
lágu þar þar til fénu var öllu eytt,
að undantekuu því sem þeir fyrir
frain notuðu til matarkaupa svo að
þeir gætu legið aðgerðalausir yfir
þvf um nokkura mánaða tfmabil.
Nú þótt þessir menn séu á þennan
hátt mestu óreglu og fyrirhyggju-
eysis seggir, þá er sú bót í máli,
að f>ll vinnulaun þeirra ganga'til
kaupmanna og annara, semjbúa í
landinu. svo að ekkert af vinuuarð-
inum gengur til þess að auðga út-
lend ríki. En á hinn bóginn, ef
að Kínverjar væru fluttir inn f
landið, þá munduþeir verða stöð-
ugir við vinnu sfna alt 5 ára tíma
bilið, samkvæmt samningi, en
hvert einasta eyrisvirði, sem þeir
innu fyrir, gengi gegnum hendur
félagsins heim til Kfna, alveg á
sama hátt eins og þeir sem vinna í
Bandaríkjunum og Cariada, láta
gera við vinnulaun sín. En þessí
alþekta og ófrávíkjanlega regla
Kínverja er drep fyrir hvert land
eða hérað, sem þeir vinna í og
mundi hafa afar ill áhrif á verzlun
ar og iðnaðarlífið f Suður-Afrfku,
þvf að ekki einasta mundu öll
verkalaunin renna út úr landinu,
heldur lfka allur ágóðinn af náma-
erviðinu rnundi renna út til náma-
eigendanna í Englandi, Frakk-
landi og Þýzkalandi og öðrum Evr-
ópulöndum. Bæði Bretar og Þjóð-
verjar, sem vinna f þessum nám-
um, eru algerlega mótfallnir þvf
að Kínverjum sé leyfð innganga f
landið, og kveðast inunu gera alt
sem í þeirra valdi stendur til að
hindra þann ófagnað. En óvfst er
enn þá hver álirif þessi námafélög
geta liaft á stjórn Breta f þessu
máli.
Djóðhátíðin í Vestmanna-
eyjum.
Þióðhátfð Vestmannaeyinga var
haldin 15. Ágúst. <■ Hún hófst kl. 8
árdegis með kappróðri á höfninni-
tóku 3 bátar þátt í honum og hlaut
einn þeirra verðlaun, 12 kr. Sá er
honum stýrði, var formaður Þor-
steinn Jónsson fi á Hrauni.
Einni stundu íyrir hádegi komu
menn saman við þinghúsið og fylktu
sér þar til skrúðgöngu inn I Herj-
ólfsdal.
Áður en lagt var upp, sungu
menn þjóðlag.
Á hádegi setti Jón Kristjánsson
organisti hátfðiua með hlýium og vel
völdum orðum. Þá var sungið vel-
komanda minni, kvæði eftir Stein
Sigurðsson.
Þá mælti læknir, Þorsteinn Jóns
son, ^fyrir minni konungs og var
stingið á eftir: „Ó Guð vors lands“.
Síðan flutti Magnús sýslumaður
Jónsson tölu fyrir minni íslands og
var sungið á eftir: „Eítt er landið
ægi girt“ og „Ó! Fögur er vor fóst-
ur jörð“.
Tveitr. stundum eftir hádegi var
teflt lifandi skáktafi og að því búnu
tóku menn sér miðdagsverðar hlé.
Einni stundu eitir nón hófst há-
tíðin aftur og mælti þá séra Oddgeir
Gnðmundsson fyrir minni Vest-
mannaeyja. Var síðan sungið kvæði
eftir Stein Sigurðsson.
Fyrir minni kvenna talaði stud.
art. Björgóltur Ólafsson og þá sung-
ið kvæði eftir Stein Sigurðsson.
Fyrir minni Islendinga erlend
is mælti kennari Eirfkur Hjábnars
son. Síðan voru ræðuhöld frjáls.
Sté þá í stólinn Michelsen, mælinga-
maður, og fór mjög hlýjum orðum
um viðtökur þær, er þeir félagar
hefðu tengið á íslandi, eg lofaði
hann einkum Vestmannaeyjar.
Hálfri stundu fyrir miðaftan
voi u reyndar ýmsar fþróttir svo sem
fótboltaleikur, kapphlaup og fleira.
Verðlaun fyrir kapphlaup lilaut
Jónas Jónassou, smiður úr Reykja-
vík.
Einni stundu eftir miðattan
hófst dans. Endaði svo hátíðaliald-
ið um miðnætti með flugeldum, er
þá var skotið.
Samkomustaðurinn var skreytt-
ur blómum og veifuui, 80 talsins,
var hann mjög fagur til að sjá, í
mátulegri fjarlægð. Var veður hið
ákjósanlegasta þann dag, eins og er
nú með hverjum degi.
Geta má þess, sem skyldugt er,
að forstöðunefnd þjóðhátíðarhaldsins
leystl starf sitt og hlutverk mjög vel
af hendi.
11. Ágúst, Þingmannafiumvörp.
Um þingsköp til bráðabirgða fyrir
alþingi. Frá stjórnarskrárnefndinni
í e. d. um að ákveða megi með kon-
ungs tilsk, þær breytingar á þing-
sköpunum, sem leiða af stjórnar-
skrárbreytingunni.
Frv. til laga um viðauka víð lög
um stofnun landsbanka 18. Sept
1885. Fim. Tr. Gunnarsson, L.
Bjarnasop, Hafstein, H. Þorsteins-
son. Um að landsbankanum í Rvík
sé heimilt að stofna sérstaka deild,
er gefa má út alt að 1 milíón króna í
seðlum, er greiðist handhafa með
gullmint, ef ekki verður stofnaður
hlutafélagsbanki á Islandi skv. lög-
um Nr. 11 frá 7. Júní 1V02.
Fremur heflr verið ófýsilegt að
vera á gangi á götum bæjarins und
anfarna daga. Rykið hefir verið svo
mikið, að menn hafa orðið að halda
fyrir vit sín til þess að þau fyltust
ekki af óþverra og skít. Er það ó-
fært, að bærinn skuli ekki hafa tök
á því, að bleyta göturnar þegar
langvarandi þurkar ganga, svoað
menn þuríi ekki að verða eins og
kolamokarar í framan þó þeir skrepp
húsa á milli. Kostnaðurínn yrði
varla mikill, en þrifnaðarauki stór-
kostlegur, og mun enginn telja van-
þörf á honum hér.
Frönsk flskiskúta sigldi fyrir
nokkru síðan á annað skip norður
undan Horni Skútan franska
skeytti þvf engu þó skipið svkki
með öllu er á því Aar. Atburð þenna
sá íslenzkt fiskiskip, en|gatekki að
gert. (Gj.h.).
Agætis afli afstútungi og þorski
kvað vera í Hafnarsjó og Reykja
nesröst.
Barnslík fanst fljótandi við
bryggjurnar á Búðareyri á Seyðis-
hrði 30 f. m. Þar var drengur á
ís, ári, Guðmundur að nafni, sonur
Bjarna Jónssonar á Búðareyri. Hafði
veiið að fást við fisk á bryggjunni
og hefir svo dottið í sjóinu, en eng-
inn þar nálægt, er sæi til hans eða
gæti bjargað honum. (Bjaiki).
Tíðarfarið ávalt það sama,
brakandi norðan þerrir.
25. Ágúsl. Hvalreki er sagður f
Öræfum í Austur.SkaftafellssýsIu.
Ágætis aflab^ögð segja síðustu
fréttir á Eyjafirði. Sumir aflað jafn-
vel upp á 60—80 kr, á dag.
V atnsleiðslan á Akureyri kvað nú
fullger og búið að leiða vatn inn í
flest hús.
LANDTIL SÖLU
Þeir sem hafa hús og lódir til sölu,
snúi sér til Goodmans & Co. No. 11
Nanton Block, Hann útvegar pen-
ingalán í smáum oc stóium stíl.
WINNIPEG BUILDING & LABOR-
ERS UNION heldur fundi sí.iaí Trades
Hall, horni Market oji Main Sts, 2. og 4,
föstudauskv, hvers mánaðar kl. 8.
Kynnið ydur kosti þess áður en þér ákveðið að taka yður bólfestn
annarstaðar.
íbúatalan í Manitoba er nú......................
Tala bænda í Manitoba er.........................
Hveitiuppskeran i Manitoba 1889 var bushels........
“ “ 1894 “ “ .......
“ '• 1899 " “ .......
“ “ “ 1902 “ “ .......
Als var kornuppskerau 1902 “ “ .......
Tala búpenings í Manitoba er nú: Hestar..........
Nautgripir......
Sauðfé.........
Svín............
Afurðir af kúabúum i Manitoba 1902 voru.........
Tilkostnaður við byggingar bænda í Manitoba 1899 var.
Framförin í Manitoba er auðsæ af fólksfjölguninni, af auknim
afurðum lanlsins, af auknum járnbrautum, af fjðlgun skólanna, af va t-
andi verzlun, af vexti 'borga og bæja, og af vaxandi vellíðan
almennings,
í síðastliðin 20 ár hefir ræktað land aukist úr ekrum.. 50,000
Upp í ekrur...............;••••.• .......................2,500 000
og þó er síðastnefnd tala að eins einn tíundi hluti af ræktanlegu landi
i fyikinu .
Manitoba er bentugt svæði til aðseturs fyrir innflyténdur, þar er
enn þá mesta gnægðaf ágætum ókeypis heimilisréttarlöndum og mörg
uppvaxandi blómleg þorp og bæir, þar sem gott er til atvinnu fyrir
karla og konur.
í Manitoba eru ágætir friskólarfyrir æskulýðinn.
í Manitoba eru mikil og fisksælveiðivötn sem aldrei bregðast.
í bæjunum Wlnnipeg, Brandon, Selkirk og fleiri bæjum mun ná
vera vfir 5,000 Islendingar, og í sjö aðal-nýlendum þeirra í Manitoba,
eru rúmlega aðrar 5,000 manna. Þpss utan eru i Norðvesturhéruðunum
og British Columbia um 2,000 Islendingar.
Yfir ÍO millionir ekrur af landi í ýlaniioba. sem enn þá
hafa ekki verið ræktaðar, eru til sölu, og kosta frá $2.50 til $6.00 hver
ekra, eftir gæðura. Þetta land fæst með vægum kaupskilmálum.
Þjóðeignarlönd í öllum pörtum fylkisins. og járnbrautarlönd mei
fram Manitoba og North Western járnbrautinni eru til sölu.
Skrifið eftir nýustu upplýsingum, kortum o. s. frv. alt ókeypis, tU'
HOM. R. P RORLIN
Minister of Agriculture and Immigration,
WINNIPEG, MANITOBA.
Eða til:
.lomepli B. Skapatnon, innflutninga og landnáms umboðsmaður.
Steinunn Skagford.
Kædd 11. Mal 1881,—Páln 3. Ágúst 1903.
Steiiiuiin sáluga andaðist á sjúkrahúsinu f Mor-
den, Man„ eftir 27. daga þunga legu. Banamein
hennar var nýrnaveiki. Steiimnn heitin var einungis
22 ára gömul, fæddist að (xilhaga í Skagafirði. hvar
foreidrar hennar [>á bjuggu. pau Magnús Þorsteins-
son og Oddný Þorsteinsdóttir.
Árið 1887 fluttist hún með foreldrum sínum til
Ameríku—til Hallson N.-Dak—-ólst hún þar upp hjá
þeim þar til hún var 18 ára. — 5. Nóv. 1899 giftist
hún Halldóri B. Skagford, frá Hallson N.-D. — Yorið
eftir fluttu þau hjón norður til íslenzku bygðarinnar
hjá Morden og settust þar að á landi sfnu, og bjuggu
þar þar til hún veiktis, sem áður er getið.
Steinunn lieitin var einkar myndarleg og góð
kona og sérstaklega vel hugsandi. Hún var elskuleg
eiginkona og ástrík móðir; hafði þá sérstöku eiginleika
sem útheimtast til þess að gegna jafnvel móður og
konustöðunni, og var þvf sörm og eftirsækanleg fyrir-
mynd af ungum konum.
Þau hjón eignuðust 2 dætur, sem báðar lifa móð-
ur sína, og er missiriim ekki hvað sfst átakanlegur
fyrir þær, þó þær nú söu svo ungar að þær enn ekki
skilja þýðingu hans.
Steiiiunn heitin var greind og félagslynd, gætin
og vinföst, ávann hún sér þvf hylli allra er hana þektu,
er hennar Þvf sárt saknað, ekki einungis af foreldrum
hennar og systrum, eður hinum einmana og eftir-
þreyjandi eiginmanni, setn nú finst hann hafa verið
öllu sviftur, lieldur og einnig af öllum er hana þektu
Jarðarför hennar fór fram frá heimili hennar 5.
Ágúst, að viðstöddum nálega öllum íslendingum úr
bygðinni, og mörgum innlendum. Hún var jarð-
sungin af séra Jóni Bjarnasyni.
VINUR.
(Janadmn Pacific JJailway
; Jola skemtiferdirnar i
Desember.
Fram og aftur
lœgsta fargjald
til allra staða í
ONTARIO,
QUEBEC
SJOEYLKJANNA.
Gildir þrjá mánuði.
Yiðstöðuleyfl veitt þegar komið er
austur lyrir FORT WILLIAM.
TOURIST
og fyrsta pláss
SVEFNVAGNAR
á hverjum degi.
Jola og nyars-farbrefin
fram og til baka kosta TVO ÞRIÐJU
vanaverðs —Farbréfln til sölu Des.
21. til 25. og 30. 3l., og Jan. 1.
Gilda til 5.
töldura.
[an., að þeim degi með
Eftir frebari upplýinfjum snúið yður
til næsta umboðsmanns C. P, R. fél
eða skrifið
C. E. McPHERSON,
Gen. Pass. Agent,
WINNIPEG.
Bonner & Hartley,
Lögfræðingar og landskjalasemjarar
434 Main St, - - - Winnipeg.
K. A. BONNEK. T. L. HARTLBY.
OLI SIMONSON
MÆLIR MEÐ 8ÍNU NÝJA
Skandinavían Hotel
„ . 718 Main Str.
Fæði $1.00 & dajt.
Woodbine Restaurant
Stærsta Billiard Hall i Norövestiirlandinn.
Tíu Pool-borö.—Alskonar vín og vindlar.
tennon A Hebb,
Eieendur.