Heimskringla - 05.11.1903, Page 1
XVIII. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 5. NðVEMBER 1903.
Nr. 4.
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
—Gull er sagt nýfundið á tveim-
ur stöðnm—hjá Wabbwood nálægt
C. P. R. brautinni. Það er talið nð
geyma $25 í tonni — Free Milling
gul), og enn fremur heflr gull fund
ist í allríkuglegum mæli hjá White
Horse Rapids í Yukon, en fréttir
þaðan óljósar enn þi.
—Efnamenn I Calgary og Van
couver hafa sameinað sig til að leita
aðsteinolíu í Snðnr Alberta. Menn
hafa um mörg 6r þótst vissir um að
olía værl á þvf svæði, sem liggur
mlllí Cardston og Klettafjalla, en
veruleg samtök til að bora eftir
henni hafa ekki komist á fyr en nú.
—F. G. Reid, auðmaðurinn mikli
1 Nýfundnalandi, hefir höfðað 3 mill-
íóna dollars skaðabótamál móti
stiórninni þar út af því að Dominion
stjórnin tók úr höndum hans öll um-
ráð yflr telegraf-þráðum eyjarinnar
6rið 1901. En samkvæmtsamningi
hans við eyjarstjórnina átti hann að
hafa umráð þráðanna.
—Dáleiðari einn kom til bæjarins
Lamont, S. Dak., og héltþarsýn-
ingu. Hann dáleiddí mann einn og
lét grafa hann sofandí í kistu 6 fet f
jörðu og liggja þar í 24 kl.tíma,
Þegar hann va>- grafln upp tókst dá-
leiðaranum ekki að vekja hann, þó
hann gerði til þess 3 tilraunir. Við
þetta varð fólkið I bænnm svo æst,
að það hsfði drepið dáleiðarann
hefði honum ekki verið bjargað úr
höndum þess. Sá sem dáleiddur
var, liflrenn þá, en talið líklegt að
hann muni deyja. Dáleiðaríun er i
felum.
—Capt. Ludvig Eisenbraun sigldi
nýlega yflr Atlantshaf 6 17 feta
löngum báti. Hann var aleinn i
bátnum og fór 3600 milur á 72 dög-
um. Hann ætlar að sýna sig og
bát sinn á St. Louis sýningunni.
— Steinolía heflr hækkað í verði
um 2c. gallónan f austurfylkjunum.
Má. þvf búast við að hún hækki
einnig í Mai.itoba.
—Hroðalegur eldsbruni varð á
Cony Island, N. Y., á sunnudaginn
var. 250 hús brunnu til ösku.
Skaðinn ein millíón dollars. Eng-
inn misti líf, en margir særðust go
sumir hættulega við eld þenna.
—Hallowe’en skemtanir í Chicago
álaugardagskveldið var enduðu
með því að lögreglnstjóri borgarinn
ar var drepinn með hnffstungu í
hálsinn. Mikið uppþot varð í borg-
inni milli hvítra manna og svartra.
En að síðustu tókst lögreglunni að
skakka leikiun svo að ekki varð
meira úr hroðaverkum þar.
—Það þykir óviðfeldið að Bretar
hafa nýlega selt Rússum ógrynni af
kolum sem bæði biezk og þýzk skip
eru að flytja fyrir þá til Asiu.
Marga grunar að Bietar muni sjá
eftír þessu ef f ófríð slæ.t með Rúss-
um og Japönum, því að Bretar
verða að hjálpa Japönnm ef f það
harðasta fer. Þar sera nú má telja
vfst ’að Frakkar séu áreiðauloga að
hjálpa Rússum.
- Enn eru blöðin full með grein
ar um dómgerðina í Alaska þ ætu-
málinu milli Breta og Bandarfkja
manna. En mjög tala nú flest þeira
gætilega um það og sú skoðun virð-
ist að vero ofan á, að tilkall Banda-
ríkjannu til latids þess sem Því var
dæmt hafa vcrið bygt á svo sterkum
rökum. að ekki hafl orðið komist
hjé að dæma þeirn í vil.
—Eftir 2 ára rannsókn heflr her-
máladeild Breta tekist að koma upp
fallbyssu, sem er við hæti þeirra.
Ilún kastar þungum kúlum 10 þús-
und vards vegar 27 sinnum á mín
útu. Byssa þessi er 4 hjólum og
ætluð tíl hernaðar á landi eingöngu.
—60 þús. Macedoniu hermenn, er
nú hafast við á landamærum Tyrk-
lands, eru svo illa útbúnir að vistum
og fatnaðí, að til vandræða horfir.
Ferðamenn á þessum stöðvum segja
mikjð af þessu liði líði hungur og
að margir hljóti að frjósa í vetur, ef
bráð hjálp berist ekki úr einhverri
átt. Margir af mönnum þessum eru
giftir og má nærri geta hvernig
konur þeirra og börn hafast við í
fjærveru þeirra. þar sem engin björg
er á heimilunum og engir til að
vinna fyrir nauðsynlegustu þörfum .
—Kornhiöðurnar í Fort William
eru orðnar svo mikið bættar að þær
rúma 9 millíónir bush. af hveiti og
öðrura kornmat.
—Maður dó snögglega á C. P. Ry.
vögnunum í Regina um helgina. 16
Sra sonur mannsins kendi 3 ferða-
mönnum um að hafa með valdi helt
svo miklu Whisky ofan í föður sinn
að það hefði drepið hann. Menn-
irnir voru handteknir og málið rann
sakað, en kviðdómurinn komst að
þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði
dáið af of miklu Whisky inntökum,
sem ýmsir á vögnunum hefðu geflð
honum af afvegaieíddum velvilja.
Mennirnir sluppu, — sem aldrei
skvldi verið hafa.
—Maður einn f Þýzkalandi, sem
búinn er að vera 26 ár í fangelsi
fyrir morð, hefir nýlega verið látin
laus, þar nú heflr sannast að hann
var saklaus af morðinu. Maður
þessi og faðir hans frörndu rán í
bóndahúsi áríð 1877. Faðirinn
skaut og drap bæði hjónin þar, Son-
urinn vildi frelsa föður sinn frá
hegningu og meðgekk þvf að hafa
skotið hjónin. Báðir voru dæmdir
il lífláts, en keisarinn breytti dóm-
inum í æfllangt varðhald. Faðirinn
dó f fangelsinu 1896. Nú heflr son-
urínn meðgengið alt og skýrt rétt
frá málavöxtum og er því nú frjáls
maður, og býr með móður sinni, sem
er 90 ára gömul.
—Mannvinir í Vestur-Ontario eru
að mynda samtök til að fá vínsölu
aðallega útrýmt úr þeim hluta fylk-
isins. Ovíst er enn hvern árangur
það heflr, en allra hluta vegna er
óskandi að þeim takistþað.
—60 þúsund manna báðu um að-
göngumiða til að geta hlustað Já
ræðu. sem Mr. Chauiberlain hélt í
Liverpool í síðastl. viku um tollvernd
unarstefnu þá, sem hann vill láta
brezku þjóðina hefja á dagskrá hjá
sér.
—John Healy heftr verið hand-
tekinn í Chicago og ikærður um að
hafa framið morð fyrir J16 árum
Ytírvöldin bafa stöðugt leitað hans
allan þenna tíma, en aldiei haft
hendur í hári hansfyrr en nú. Öll
gögn eru við hendina til að sanna
sekt hans.
—Herra S. O. Sigurðsson, Brown
P. U, Man., heflr góðfúslega tekið
að sér innheimtu á andvirði Heims-
kringltt í sínu bygðarlagi og að
veita áskriftum að blaðinu móttökn.
Vér biðjum þvl Brown P. O. búa að
snúa séi til hans i þessum efnum.
—Aðstoðarpóstmeistari Laurier-
stjórnarinnar i BonaDza í Yukon,
hefli verið fastsettur. Uann er
kæ ður um að haía stolið 600bréfum
þar af 100, sem voru registeruð. ÖII
biéfln fundust í herbergi hans.
—Mrs llooth Tucker, ein af æðstu
fyrirliðum Fielsishersins í Ameríku,
andaðist i síðastl. viku af sárum, er
hún íekk i járijbrautai slysi nálægt
Dean Lake, Mo. 15 aðrir, sem á
lestiuni voru, særðust mikið.
—1200 búðarstúlkur háðu klukku
tíma kappgöngu í Paris í síðastl.
yiku. 14 ára stúlka vann fyrstu
verðlaun—$60. Hún gekk 7 míl-
ur á 1 j kl.tfma.
70’ftskiskip frá Nova Scotia
hafa komið úr haustvertíðinni því
nær alslaus. Óvanalegt afialeysi
hefir verið þar eystra í suraar og
horfir til báginda meðal íólks þar.
Flestir útgerðarmenn hafa tapað
etórfé og h&setar eytt vertíðinni til
einkis arðs fyrir sig eða sína. Verzl
unarskuldir sverfa að og kaupmenn
eru hættir að lána þeim, sem mest
eru þurfandi, Yfirleitt er ástand
þessa fólks líkast því sem víða á sér
stað á íslandi, og það heflr ekkert til
að borga áíallnar skuldir og fær
ekki lán í búðum.
—Lagafrumvarp er í undirbún
ingi 0g sem næsta þing í Paris verð-
ur beðið að samþykkja, Það mið-
ar að því takmarki að gera verkföll
sjaldgæfari en nú, með því að tak-
marka ástæður þær sem þau mega
byggjast á, og í öðru lagi með því
að hlynna að því að vinDUsamn-
ingar milli verkvejtenda og verk-
þiggjanda séu gerðir fyrir langan
tíma í einu og í þriðja lagi með því
að stofna viðvarandi gerðardóma í
landinu, sem jafnimálum milli fram
angreindra málsparta. Því er hald-
ið fram að á Frakklandi sé vinnu-
lýðurinn svo fátækur að hann þoli
ekki uppihald það frá verkum sem
ætíð lylgir verkföllum, og I öðru-
lagi sé fé því svo mikil hætta búin
sem stofnað er í iðnaðarf.yrirtæki,
undir núverandi krirgumstæðum.
að auðmenn fáist ekki til að verja fé
í iðnaðarstofnanir, og við það minki
vinnutækifærin í landinu.
—Regnfallið í London á Englandi
frá 1. Jan.síða8t). til 20. Okt., heflr
verið 32 þuml.; lltið rneirra en á ár-
inu 1879, ogmeira en sögur fara af
að nokknrntíma bafi áður orðið þar
i bæ.
— Bandaríkjablöð kvarta yfir yax
andi glæpum kvenna í New York.
Ungar stúlkur 14, 16 og 17 ára ger-
ast ræningjar á götum borgarinnar,
ganga vopnaðar og skjóta ef þeim
er ve tt mótspyrna er þær ráðast 6
vegfarendur til að ræna þá Þetta
er sagt að gangi skör lengra en áður
hefir átt sér stað í sögu Bandaríkj-
anna.
Minneapolis Journal skýrir frá
því að akuryrkjufélHg í Wyoming
rtkinu hafi boðið $1000 verðlann
hver.jum þeim sem ræktað gæti mest
ar kartöflur af einui ekru lands.
Bændur í 2 héruðum I því ríki tóku
sig þegar til að vinna fyrir verð
laununum. Ekran var mæld undir
umsjón félagsins og kartöflunum I
hana sáð í viðurvist umboðsmanna
þess. Uppskeran var einnig tekiu i
viðurvist þeirra sem gáfu ve ðlaun
ín. 8á sem hlaut féð fékk 976
bnshel, eða 1952 skefifur af kartöti
um úr ekrunni. Margar þessar
kartötíur voru nær 1 fet á lengd og
6 þurnl. þykkar. Þær vorn af
beztu tegund og svo bragðgððar að
Union Paeiflc járnbrautarfél. keypti
þær allar til nota í borðvögnum
sínum, auk þess sem það sendi nokk
uð af þeim tilChicagoog Minneapolis
til sýnis og nota á beztu gestgjafa-
húsum þar.
—1500 hús hafa verið bygð f
Winnipeg á 9i| mánuði, eða frá 1.
Janúar slðastl. til 25 Okt. Verð
þeirra er alsrúralega 5^ railión doll.
Það er sæmileg framför á einu ári
fyrir ekki stærri bæ en Winnipeg er.
—Eitt þúsund Tyrkjum var slátr
að I síðustu viku, I bardaga við
Araba, út af nautgiipaskatti sem
soldán skipaði að leggjr á þá, en
sem Arabar neituðu að borga. Sol
dán heflr sent 15 herdeildir til að
hefna hinna föllnu manna sinna og
til að kúga Araba til skattgreiðslu.
Winnipeg hygst að stofna gas-
framleiðslu á eigin reikning og að
leggja undir atkvæði borgarbúa
aukalagafrumvarp er leyfi bæjar-
stjórninni að taka $400,000 lán til
þessa fyrirtækis, Ætlað er að verð
á lýsigasi verði þá $1.40 fyrir hver
1000 fet, og að gas til eldsneytn
muni ekki kosta yfir $1 00 hver þús.
fat. Nú kostar það hér nm $2.00
og $1.60 hver eitt þús. fet.
—Enn eina tilraun haía Þjóð-
verjar gert til að komast éftir með
hvé raikíum hraða lestir fá runnið
eftir rafmagnsbrautum þeirra. Slð-
asta tilraun var gerð á brautinni
milli Marienfeld og Lossen þann 23.
Okt Lestin skreið l3lj| mllur á
klukkustund. Það er sú mesta ferð
sem enn hefir verið farín, en þó talið
víst að enn fáist meiri hraði innan
skams tíma.
Þrír háttstandandi embættis
menn í lögregluliðinu í Madrid á
Spání hafa verið kærðir nm að
þiggja mútur frá þjófum og láta þá
svo sleppa óhegnda. Einn þjófur,
sem stolið hafði £3000 var látin
sleppa gegn £80 borgun, svo var
hann aftur handtekinn fyrir annan
þjófnað en var slept gegn £20 bo g
nn. Málið er liið Ijótasta, sannanir
óhrekjandi og hegning verður ef-
þung.
- Svertingi einn í Ontario, að
nafni Augustus Waun, 115 ára gara-
all. varð fyrir meiðslum miklum af
eimtest, sem rakst á hann í síðastl.
viku. Hann var fluttur á spítala og
læknar segja hann verða jafngóðan
innan skams, þrátt fyrir háan aldur.
—Bandaríkjastjórnin hertr skipað
að senda til Englands Anarkista uð
nafni John Turner. Eu lögmaður
Turner ver skjólstæðing sinn með
því. að Auarkistaskoðanir hans séu
trú íelegion, en ekki glæpur, og að
undir Bill of Right, eða trúfrelsis
lögunum. eigi Bandaríkjastjórnin
ekkert með að amast á nokkurn hátt
við herra Turner. Hann skoraði á
lögmenn Bnndaríkjastjórnar að sýna
á hverju stjórnin bygði útlaga skip-
un sína og heimtaði jafnframt að
maðurinn væri látinn laus þar til
einkver sök yrði 6 hann fest. Dóm-
arinn félst á skoðun lögmannsins og
lét Turner lausan gegn loforði hans
um að mæta aftur fyrir rétti ef hann
yrði kallaður.
Verkamenn á Spáni hafagert
svo mikið upphlaup“í Bilbao að 5000
heniienn léðu ekki við þá. Þeir
ræntu búðir og banka, brutu og
brendu eignir manna, hlóðn víg-
garða yfir þver strætin til þess að
aftia herliði ferða sinna. Sendi-
heriar stórþjóðanna í þeirri borg
hafa beðið stjórnir sínar að senda
tafai laustherskip þangað til að verja
skip sln og aðrareignir og borgara.
— 30,000 kolanámamenn voru
látnir hætta vinnu I Pennsylvania
um síðustu helgi. Talið þeir muni
verða frá verkum eina eða tvær vik-
ur, þar til ögn grynni á kolabyrgð-
iim félagsanna.
Úr bréfi frá
SHERIDAN, Or„ 22. Okt. 1003.
Fátt í fréttnm úr þessu bygðar-
lagi utan einmuna tíð alt næstliðið
snmar og það sem af er hanstinu.
Öll uppskera hirtist vel, og varð 1
góðu meðallagi. Hveiti 30—35
busli. al ekrunni, hafrar 35—60,
flestar tegundir af “Fruits” i betra
iagi ntan beldur lítið af stráberjuru;
hoppsatekja góð og borgun $1 lyrir
að tína hver 100 pund. Flestar
nauðsyrijavörur í nokkuð háu yerði,
svo sem 50 punda hveitimjölaokkur
PIANOS og ORGANS.
Heiiitznian & C«. Pinnoa.-Bell Orgel.
Vér seljum með mánaðarafborgunarskilmálum.
J. J. H McLEAN & CO. LTD.
530 MAIN S«. WINNIPEG.
6W
York |_ife |
nsurance l.o.
JOHN A. McCALL, peesident.
Lifsábyrgðir igildi, 31. Des. 1902, 1550 millionir BollarM.
700,000 pjaldendur, sem eru félagið eiga það og njóta als gróða.
145 þús. manna gengu í félagiðá árinu 1902 með 3081 miliion doll.
ábyrgð. Það eru 40 milliónir meíra en vöxtur fél. 1901.
Gildandi ábyrgðir bafa aukist á síðastl. ári um 188 mill. Dollars.
Á snma ári borgaði félagið 5000 dánarkröfur—yfir 15 mill. Doll,—
og þess utan ril lifandi a eðlima 14J mill. Doll.. og ennfremur var
#4,750,000 af gróða skift upp milli rreðlima, sem er #800.000
meira en árið 1901. Sömuleiðis lánaði félagið 27,000 meðlimum
$8,750,000 á ábyrgðir þeirra, með 5 per ceut rentu og án annars
kostnaðar,
C. Olafson, J. tt. llorgan, Manager,
AGENT. GRAIN EXOHANGE BUILDING,
'V7' I 3ST 3ST IPE G-_
$1—1.05.—Kartöflur lo pundið, en
búist við að þœr komi niður. Kjöt
er hér jafnast lOc pundið; smjör er
nú 20c pnnnið; egg 20c tylftin og
s vo framvegis.
Óþurkarnir
Eftir Austra. 8, Sapt.
Það er engin fnrða, þó menn
hér á Anstnr- og Norðurlandi horfi
heldur kvfðafullir á móti komu
vetrarins. Suinarið hefir verið
frámunalega óblítt, sífeldir kuldar
og stórrigningar, og stundnm jafn-
vel snjóað ofnn f bygð, siðast t. d.
8. Sept. hér eystra. Elztu menn
muna eigi oftir svo köldu og ó-
purkasömu sumri. Grasspretta
hefir þó vfða verið vel f meðallagi,
en hún hefir eigi komið að notum
vegna hinna stöðugu óþurka. Víða
hér á Austurlandi hafa hey mauna
Bkemst meira og minna, sérstak-
lega taða, menn orðið að taka hana
iun hálfblanta og skemda og sum
etaðar hér eystra. 14 taða úti fyrstu
daga j>. m.
Nú er orðið svo áliðið sumar,
að lftil líkindi ern til þess að bænd
ur geti hér eftir ailað sér nokkurra
heyja að mun, þó að hamingjan
yrði inönnum Svo blfð að láta
veðráttuna breytast eitthvað til
batnaðar. Göngur og aðrar h.iust-
annir fara að útheimta þann vinnn
kraft sem bændur allflestir liafa á
að skipa.
Skórinn kreppir því fast að
landbóndanum á Austur- og Norð-
urlandi um þessar mundir. Hvað
á hann að taka til bragðs? Hann
hefir ef til vill ekki meira hey en
handa tæpum helmiug, eða jafnvel
þriðjung af öllnm skepnum sínuin;
hann getur ekki sett of mikið á
heyin og átt það á hættu að missa
fé sitt úr hor í vetur.
Það verður því óumflýjanlegt
fyrir bændnr að lóga af fésínu með
mestii móti f haust. Erum vér
þess fullvissir, að kaupmenu sýna
bænduin þann drengskap, að gefa
svo hátt verð fyrir sláturfé, sem
þeir framast sjá sér ært, þvf þar
með stuðla þeir að því, að bændur
geti sem mest og á sem heppileg-
astan hátt borgað verzlunarskuldir
sínar, og líði þannig sem minstan
halla að hægt er við skepnumiss-
inn.
En það er hérumbil vfst, að
skepuum verður aldrei lógað svo
mörgum, að það verði eigi tilfinn-
anlegur fóðurskortur f vetur, ef
veðráttan verður eigi því betri.
Finst oss því ráðlegt fyrir alla
þá sem búa á |>eim stöðum, eða þar
nálægt, sem gufuskipin frá útlönd-
um korna, og sjá fram á það,að þeir
muni verða fyrir heyekorti í vetur,
— að gera ráðstafanir til þess að fá
hey frá Noregi. Norskt hey hefir
áður verið brúkað hér á Se/ðisfirði
og reynzt vel, fult eins vel og taða,
þar að auki er það vlst litlu sem
engu dýrara hingað komið, en taða
er venjulega seld hér á vet.urna: 5
an. pundið.
Hinir stórauðugu hvalamenn
hér eystra ættu nú að [hlaupa und-
ir bagga á þann hátt, að selja
bændum fóðurmjöl með vægu verði
og jafnvel flytja hey frá Noregi
fyrir lágt flutningsgjald. Með þvf
sýndu þeir f verkinn, að þeir vildu
taka þátt f kjörum landsmanna og
mettu það einhvers, að alþingi hef
irnú farið eftir beiðni þeirra og
lækkað svo stórkostlega útflutnings
gjaldið, af hvalaafurðunum frá því
sem var ósk og vilji alls þorra
manna hér austan- og norðanlands.
Að endingu leyfum vér oss að
benda sveitarstjómum, sýslunefnd-
um og yfirvöldum á þessi fóður-
kaup og hina yfirvofandi hættu
fyrir bændur af þessari voðalegu
ótfð. En einkum bendum vér máli
voru í þessu efni að þeim valds-
manni vomm, er jafnan hefir borið
velgengni og framtfð bænda lands-
ins heitast fyrir brjósti og látið
sér annast um þá f ræðu og riti,
Páli amtmanni Briem, er vér
treystuin manna bezt til að leggja
það til málsins, er helzt megi að
gagni koma.
TOMBÓLA
OG
Skemtisamkoma,
til arðs fyrir Unitarasöfuuðuinn,
verður haldin í kyrkju safn-
aðarins
fimtudagskv. 12. Nov. 1903
PROGRAMME:
1. Samspil—Fiðla og Ilarpa—
Th. Johnson, K. Abbato.
2. Fjórraddaður söngur—“Nú svíf-
ur sagan þangað”
3. Avarp—
Stefáu Scheving.
4. Samspil—
Th. Johnson, R. Abbato.
5. Söugur—‘Sátt Maschinen i gáng’
Gisli Jónsson.
6. Samspil—
Th. Johnson, R. Abbato,
7. Fjórraddaður söngur— “Heyrið
morgun söng á sæunm”.—
8. Samspil—
Th. Johnson, R. Abbato.
Tombólan byrjar kl. 7.30 e. h.
Aðgöngumiði og einn dráttui 25 cto.