Heimskringla - 24.12.1903, Síða 8
8
HEIMSKRINGLA 24. DESEMBERBKR 1903.
*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
ÆFIAGRIP
ísl. presta í Ameríku.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦«♦♦♦♦♦♦♦♦♦
SÉRA OÐDUR V. GÍSLASON
er fæcldur f Reykjavík 8. Aprfl
1886, sonur Gísla snikkara Jóns-
sonar og konu hans Rósu Grfms-
dóttur. Oddur varsnemma hneigð-
ur til náms, og þó foreldrar hans
væru fátæk, J>á gátu þau hjálpað
honum til skólanáms, enda vann
hann öllum stundum, er hann gat,
frá 8. aldurs ári. Hann útskrifað-
ist úr Latínuskólanum árið 1858,
og gekk svo á prestaskólann og út-
skrifaðist þaðan árið 1860. með 2.
betri einkunn, eins og af lærða-
skólanum. Eftir J>að tók hann
umboðsstöðu fyrir útlent námafé-
lag og starfaði á íslandi og var f
þjónustu þess um 16 ára tfma hjá
útl., á sumrum ,en kendi og skrif-
aði á vetrum. Árið 1870 gekk
hann að eiga ungfrú Önnu Vil-
hjálmsdóttur, K, Hákonarsonar og
Þðrunnar Brynjólfsdóttur í Kyrkju
vogi f Höfnum. Þau hafa eignast
15 börn og lifa 10 þeirra. Árið
1875 vfgðist séra Oddur að Lundi í
Borgarfirði og þjónaði þar 3 ár, en
árið 1879 flutti hann að Stað í
Grindavík og þjónaði þar 15 ár.
Til Canada fluttihann 1894 og hef-
ir síðan þjónað söfnuðum f Nyja
íslandi þar til á sfðastl. ári. Séra
Oddur starfaði mjög að bjargráð-
um sjómanna á íslandi, og gaf auk
þess út ýmsar bækur. Hann varð
með fyrstu mönnum á Islandi til
að gefa út Leiðarvísir til náms
enskrar tungu. Séra Oddur er
starfsmaður mikill og stundar nú
lækningar ásamt prestverkum sem
óháður prestur.
SKRA JÓN BJARNASON er
fæddur að Þvottá í Álftafirði f Suð
ur-Múlasýslu 15. Nóv. 1845. For-
eldrar hans voru hjónin séra
Bjarni Sveinsson, síðast prestur
að Stafafelli f Lóni, og Rósa
Bryjólfsdóttir prófasts Gíslasonar
að Eydölum í Breiðdal Séra Jón
útskrifaðist úr Reykjavfkurskóla
árið 1866, en úr prestaskólanum út
skrifaðist hann árið 1869 með
bezta vitnisburði, er sá skóli hefir
nokkurntfma gefið nokkrum nem-
anda. Að loknu prófi var hann
vígður til aðstoðarprests hjá föður
sínum; var þar 1 ár, fluttist sfðan
til Reykjavfkur og kendi þar um
3 ára tfma. Fluttist til Amerfku
1873 og kendi 2 ár við Decorah-
háskólamg f Iovva, var svo 2 ár rit-
stjóri við blaðið „Budstikken“ f
Minneapolis. Fluttist sfðan til
Nýja íslands árið 1878 og var prest
ur þar um 2 ára tfma. Fluttist þá
til íslands og var prestur að
Dvergasteini f Seyðisfirði til 1884,
að hann gerðist prestur Islendinga
f YVinnipeg, og er það enn. Kyrkju
félagið íslenzka stofnaði hann árið
1885, og kyrkjublaðið Sameining-
una 1886 og hefir sfðan verið rit-
stjóri þess. Séra Jón er hæfileika-
maður mikill og lærdómsmaður
og fyrir löngu viðurkendur leiðtogi
ísl. Lúterstrúarmanna vestan hafs.
SÉRA EINAR VIGFÚSSON
er fæddur 3. Janúar 1851 að Geita-
gerði f Fljótsdal í Norður Múla-
sýslu á íslandi. Hann ólst upp
með foreldrum sfnum þar til hann
var 13 vetra, þá tók Sigurður sál.
prófastur Gunriarsson á Hallorms-
stað hann, til að kenna honum
undir skóla. Dvaldi hann hjá
honum næstu vetra, unz hann
gekk undir inntökupróf f latínu-
skólann árið 1869. Útskrifaðist
þaðan vorið 1874, Gekk á presta-
skólann 1875 og útskrifaðist 1876.
1880 gekk hann að eiga Björgu
Jóusdóttur Sigfússonar Oddsen.
Þau hafa átt 4 böm og lifa þrjár
dætur, nú fullorðnar. Hann vígð-
ist sama ár (1880) til Hofs og
Miklabæjar f Skagafirði. Fjalla-
þing voru honum veitt 1884, en
Desjarmýri í Borgarfirði 1885 og
þjónaði hann því brauði þar til ár-,
ið 1902, að hann flutti með fólk
sitt hingað til Canada og hefir
lengst um dvalið hér f Winnipeg
sfðan. Hanner nú mission-prest-
ur Lúterska kyrkjufélagsins.
SÉRA MAGNÚS J. SKAPTA-
SON er fæddur að Hnausum f
Húnavatnssfslu hinn 4. Febrúar
1851. Foreldrar hans voru þau
hjón Jóseph Skaptason, héraðs-
læknir, og Anna Margrét Björns-
dóttir(01sen frá Þingeyrum) Hann
gekk 4 ár á Reykjavfkur lærða-
skóla og síðar 2 ár á prestaskólann
og vfgðist árið 1875. Arið 1876
gekk hann að eiga ungfrú Val*
gerði Sigurgeirsdóttur Jónssonar,
prests frá Reykjahlfð. Þau hjón
komu til Canada ásamt 3 börnum
þeirra árið 1887 og gerðist þá séra
Magnús lúterskur prestur í Nýja
Islandi, en hvarf frá þeirri trú árið
1891 og gerðist Unitari og hefir
síðan starfað að útbreiðslu þeirrar
kenningar. Magnús er skarpur,
sk/r og lesinn vel, einarður og ein
lægur f allri framkomu. en ekki
að sama skapi vinsæll, en er þó
mjög vel metinn af öllum þeim er
fylgja hinum frjálslyndari trú-
mönnum hér vestra. Unitaratrú-
boðið tók hann upp fyrstur allra
íslenzkra presta í Vesturheimi og
mun sú starfsemi hans hafa verið
grundvöllur til þess að aðrir yngri
menn létu mentast á prestaskóla
Unitara og halda nú, ásamt séra
Magnúsi, þvf trúboði uppi meðal
íslendinga liér vestra.
SÉRa RUNÓLFUR RUN-
ÓLFSSON er fæddur í Stóragerði
á Vestmannaeyjum á Islandi 10.
Aprfl 1852, sonur hjónanna Run-
ólfs Magnússonar og Ingirfðar
Bjarnadóttur. Hann fór ungur
frá foreldrum sfnum og ólst upp
hjá Jóni bónda Magnússyni í Döl-
um þar í eyjunum, þar til hann
giftist árið 1872 ungfrú Valgerði
Nielsdóttur frá Eystri-Landeyjum
f Rangárvallasýslu. Hann var
snemma hneigður til bóknáms, en
of fátækur til að ganga skólaveg-
inu, en naut mentunar hjá séra
Brynjólfi Jónssyni á Ofanleiti og
lærði þar undir skóla, ásamt öðrum
fræðigreinum. Árið 1881 fluttist
hann til Spanish Fork f Utah, og
b/r þar enn. Árið 1888 fór hann
að prédika lúterska guðfræði f
SpanisFork og stundaði jafnframt
guðfræðisnám, þar til árið 1892,
að hann vígðist undir umsjón Gen-
eral Council þann 31. Október með
góðum orðstfr. Umboðsbmf til að
prédika fékk hann frá ísl. Lúth.
kyrkjufélaginu f Júní 1890. Sc-ra
Runólfur hefir með tilstyrk ýmsra
leiðandi landa inyndað söfnuði f
Spanish Pork, Utah, Sayerville,
N. J. og í Ballard, Wash. Séra
Runólfur hefir verið fátækur, en
eljumaður mikill alla æfi. Guð.
fræðisnámi sfnu náði hann með til-
styrk ýmsra velviljaðra landa sinna
og frá Lúterskum söfnuðum kyrkju
félagsins bæði f Bandaríkjunum
og Canada.
SÉRA BJARNI ÞÓHARINS-
SON er fæddur 2. Aprfl 1855, á
Syðra Langholti f Hrunainanna-
hreppi í Árnessýslu. Þórarinn
faðir hans var systursonur Tóinas-
ar sál. Sæmundssonar, prófasts á
Breiðabólsstað í Fljótshlíð. Móð-
ir hans Ingunn, sem enn er á lffi,
er dóttir Magnúsar sál. Andrésson-
ar, alþingismanns. Séra Bjarni
útskrifaðist úr latfnuskólanum 1
Reykjavfk vorið 1881 með annari
betri einkunn, tók próf í heim-
speki og guðfræði við prestaskól-
ann. sumarið 1883. hvortveggja
með 2. einkunn. Sama ár vfgðist
hann til Þykkvabæjarklausturs, ’en
fékk Prestbakka á Sfðu 1884. þar
var hann f 12 ár og prófastur Vest-
ur-Skaftfellinga f 11 ár. Árið 1896
fékk hann Útskála f Gullbringu-
s/slu, en árið 1899 fór hann vestur
um liaf og hefir dvalið sfðan hér í
Winnipeg, sem þjónandi prestur.
Kona lians er Ingibjörg Einars-
dóttir, kaupmarins á Eyrarbakka,
alsystir cand. stúd. júris Sigfúsar
Einarssonar, söngfræðings, sem
allir nú kannast við af fsl. blöðun-
um. Þau hjón eiga 4 böm á iffi)
en hafa mist 3.
SÉRA HANS BAAGÖE GUÐ-
MUNDSSON (Thorgrimsen) er
fæddur 21. Ágúst 1853 á Eyrar-
bakka í Árnessýslu, sonur hjón-
anna Guðmnndar verzlunarstjóra
Thorgrimsen og Sylviu Nielsdótt-
ur (Nielson). Hann mentaðist á
latfnuskóla Reykjavfkur og sam
kyns skóla í Kaupmannahöfn f 3 ár.
Fluttist til Ameríku 1872, og eftir
5 ára nám á Decorah-skólanum út-
skrifaðist þaðan 1879; var svo 2 ár
á prestaskóla f Madison og sfðar á
þ/zk-lúth. skóla f St. Louis, Iowa,
og útskrifaðist þaðan árið 1883.
Fluttist þá til Mountain, N. Dak..
og þjónaði fslenzkum og norskum
söfnuðum þar í 3 ár. Giftist ári ð
1885 Mathildi Stub, frá Decorah,
Iowa. Árið 1886 tók hann köllun
frá norskum söfnuðum í Sioux
Falls, S. Dak., og þjónaði þar
lengst af um 12 ára tíma. Tók þá
köllun frá norskum og svenskum
söfnuðum f Milwaukee, Wis . og
þjónaði þar f 3 ár, Þur misti hann
konu sfna frá 5 ungum dætrum og
1 syni. Érið 1901 tók hann kfill-
un frá Vídalfns- Hallson- og Pét-
urssöfnuðum í Pembina Co. N. D,
og fluttist til Akra, N. D., og er
þar nú. Árið 1892 giftist hann f
annað sinn ungfrú Dora Halver-
son, frá Wisconsin, og hafa þau
hjón eignast 1 son. Síðan séra
Hans kom til Dakota hefir hann
fengið köllun frá Víkursöfnuði og
þjónar þvf nú 4 söfnuðum þar í
bygð. Hann hefir þvl erviðara og
umfangsmeira starf, en nokkur
annar fslenzkur prestur vestan
hafs.
SÉRA FRIÐRIK JÓNSSON
BERGMANN er fæddur að
Garðsvík á Svalbarðsströnd við
Eyjafjörð á Islandi þann 15.
Aprfl 1858. Foreldrar hans voru
þau hjón Jón Jónasson Bergmann
og Halldóra Bessadóttir frá Gauks-
stöðum á Svalbarðsströnd. Hann
ólst upp hjá foreldrum sínum á
Syðra Laugalandi í Staðarbygð í
Eyjafirði. Hann var snemma
hneigður til náms og eftir að hafa
náð vanalegri barna mentun lærði
hann undir skóla hjá séra Jóni
Austmann á. Halldórsstöðum og
Arna presti Jónssyni f Glaumbæ,
og tók inntökupróf f latínuskólann
í Reykjavík 16 ára gamall árið
1874. Næsta ár flutti hann til
Amerfku og vann að ýmsri vinnu,
svo sem járnbrautabyggingu og
landbúnaði og verzlun. Árið 1876
fór hann á Luther College í Dec-
orah í Minnesota og útskrifaðist
þaðan árið 1881. Gekk síðan á
prestaskóla í Noregi um 2 ára
tfma 1883 til ’84 og síðan á presta-
skóla í Philadelphia veturinn 1885
til ’86 og útskrifaðist þaðan. Var
vfgður prestur til Garðar-safnaðar
f N. Dak. 4. Júlf 1886 og þjónaði
þvf brauði stöðugt þar til árið 1901
að hann tók prófessors embætti
við Wesley-háskólann f Winnipeg,
og hefir dvalið hér síðan. Árið
1888 gekk hann að eiga ungfrú
Guðrúnu Thorlacius.
SÉRA NIELS STEINGHÍM-
UR THOKLAKSSON er fæddur
að Stórutjörnum f Ljósavatnsskarði
f Þingeyjarsýslu 20. Janúar 1860.
Foreldrar hans voru þau hjón Þor-
lákur bóndi Jónsson, er lengi bjó
að Stórutjörnum, og kona hans
Lovfsa Nielsen, af danskri ætt.
Harin fluttist frá fslandi með for-
eldrum sínum árið 1873. Mentun
sfna fekk hann við Luthers College
í Decorah, Minn., en fluttist sfðan
til Kristjaniu f Noregi og gekk
þar á prestaskóla og vfgðist þar ár
ið 1888. Það sama ár tók hann að
þjóna söfnuðum Islendinga f Min-
neota, Minn. um 4. ára tfma, en
flutti þá til Park River og þjónaði
þar norskum söfnuði um 5 til 6 ára
tfma. Árið 1899 fékk hann köllun
frá Islendingum í Selkirk, Man, og
hefir síðan stundað prestverk þar.
Séra Steingrfmur kvongaðist árið
1888 ungfrú Eirikku Rynning, af
norskum ættum. Þau lijón eiga 6
börn á lffi.
SÉRA PÉTUR HJÁLMSSON
er fæddur f Norðtungu f Mýras/slu
á íslandi 15. Maf 1863. Foreldrar
hans voru þau hjón Hjálmur Pét-
ursson bóndi, lengi alþingismaður
Mýramanna og hreppstjóri, og
Helga Árnadóttir, er fyrst bjuggu
í Norðtungu og sfðar á Hamri. 18
ára gamall fór hann úr foreldra
húsum, stundaði jarðyrkjunám í
Ólafsdal f 2 ár, stundaði jarðabæt-
ur á sumrum en barnakenslu á
vetrum. Eftir nauðsynlegt unclir-
búningsnám tók hann inntökupróf
í latfnuskóla Reykjavfkur árið
1887 og settist f 3. bekk og útskrif-
aðist þaðan árið 1891; sigldi sfðan
til Kaupmannahafnar og tók þar
próf f heimspeki. Sfðar stundaði
hann guðfræðisnám við prestaskól-
ann í Reykjavík og lauk þar prófi
árið 1895, Fjórum árum . sfðar,
1899, fluttist hann til Canada;
stundaði frekar guðfræðisnám
við prestaskóla í Chicago með til-
hjálp kyrkjufélagsins íslenzka hér,
og hefir sfðan starfað sem missión-
prestur Þess meðal íslendinga f
canadisku nýlendunum. I sumar
eð var gekk hann að eiga ungfrú
Jónfnu Jónsdóttur, Helgasonar,
fyrrum bónda í Eskiholti á Mýr-
um f Mýrasýslu. Þau hjón hafa
aðsetur hér f Winnipeg.
SÉRA BJÖRN B. JÓNSSON er
fæddur að Ási í Kelduhverfi í
Þingeyjarsýslu á íslandi þann 19.
Júní 1870. Foreldrar hans voru
Björn Jónsson og Þorbjörg Björns-
dóttir, sem lengi bjuggu rausnar-
búi á áðurnefndum bæ, en fluttust
til Canada árið 1876 og settust að
í Nýja-íslandi, þar sem Björn sál.
JónsSon gekst mjög fyrir málum
héraðsmanna og var um tfma æðsti
valdsmaður þar. Séra Björn ólst
upp hjá foreldrum sínum f Nýja
íslandi, Norður Dakota og f Ar-
gyle-nýlendu og Winnipeg, og
stundaði alþýðuskólanám þar til
hann var 16 vetra. Eftir það
gekk hann um tveggja ára tíma á
verzlunarfræðisskóla í Winnipeg
og vann síðan eitt ár að ritstörf-
um þar í borginni. Síðan gekk
hann á Gustavus Adolphus College
f St. Peter bæ í Minnesota. vetur-
inn 1889 til ’90 og 1890 til ’91, en
vann við skólakenslu á sumrum.
Tók inngöngupróf f prestaskólann
f Chicago um haustið 1891 og út-
skrifaðist þaðan vorið 1893 og var
vígður 25. Júnf sama ár og vann að
trúbragðastörfum fyrir liið Ev.
Lúth. kyrkjufélag Islendinga um
eins árs tfma. Gerðist sfðan prest-
ur Islendinga í Minnesota haustið
1894 og hefir þjónað þar síðan.
Hannvar kosinn skrifari kyrkju-
félngsins 1898 og er það enn. Var
ritstj. „Kennarans“ meðan hann
kom út sem sérstakt blað, um 4.
ára tíma. og hefir ásamt Dr. Thord-
arson haft á hendi ritstjórn blaðs-
ins ,.Vfnland“ sfðan það fór að
koma út. Hann er kvæntur Sig-
urbjörgu Stefánsdóttur Gunnars-
sonar. Þau eiga 4 börn.
Séra Björn er maður prýðisvel
gáfaður og drengur bezti og leggur
alla alúð við starf sitt. Er þvf
vinsæll meðal fólks síns hver
vetna.
SÉRA RÚNÓLFUR MART-
EINSSON er fæddnr að GiLsár-
teigi f Eiðaþinghá f Suður-Múla-
sýslu á íslandi 26. Nóvember 1870
somir Marteins hreppstjóra og
gullsmiðs Jónssonar og konu hans
Guðrúnar Jónsdóttur, Bergssonar
prests að Hofi f Álftafirði. Hann
ólst upp hjá foreldrum sfnum þar
til hann var 13 ára, fluttist þá með
þeim til Winnipeg, Canada, árið
1883 og sfðar til Gimlisveitar. í
byrjun ársins 1885 yfirgaf hann
föðurgarð sinn og Huttist til söra
Jóns Bjarnasonar f Winnipeg og
dvaldi hjá honum þar til árið 1889
Á þessu tfmab'li gekk hann á al-
þýðuskóla f Winnipeg. Hann
stundaði nám við Gostavus Ad-
olphus College um 5 vetra tírna.
frá árinu 1890 þar til vorið 1895.
að hann útskrifaðist þaðan. Þar
eftir stundaði hann nám á presta-
skóla f Chicago f 3 vetur og út-
skrifaðist þaðan 26. Apríl 1899.
Eftir það þjónaði hann Winnipeg-
söfnuði séra Jóns Bjarnasonar um
eins árs tíma f fjarveru hans á ís-
landi, en við heimkomu séra Jóns
fór hann til Nýju íslands og hefir
sfðan þjónað lúterskum söfnuðum
þar. Hann er kvorigaður ungfrú
Ingunni Bar.lal dóttnr, Sigurgeirs
Pálssonar, fyrrum bónda í Svartár-
koti í Bárðardal í Þingeyjars/slu.
Þau hjón eiga 2 börn.
SÉRA FRIÐRIK HALL-
GRÍMSSON, Sveinssonar, bysk-
ups, er fæddur í Reykjavík þann
9. Júnf 1872. Hann ólst upp og
mentaðist f foreldrahúsum þar til
hann útskrifaðist úr Reykjavfkur
lærðaskóla árið 1891. Eftir það
sigldi hann til Kaupmannahafnar
og tók þar embættispróf árið 1897.
Kendi svo við skóla f Reykjavík,
þar til f Október 1898, að hann var
vfgður prestur við holdsveikraspít-
alann í Reykjavfk. Þar þjónaði
hann þar til sumarið 1899, en var
þá settur prestur í Útskála presta-
kalli og sfðar veitt það. Þaðan
fluttist hann til Canada sumarið
1903 og gerðist prestur Argyle-búa
f Manitoba. Sumarið 1900 gekk
hann að eiga ungfrú Bentfnu
Björnsdóttir frá Búlandsnesi í Suð-
ur-Múlasýslu. Þau hjón eiga 2
börn.
SÉRA JÓN JÓNSSON CLEM-
ENS er fæddur f Reykjavík 5.
Sept. 1872. Foreldrar hans eru
þau hjón, Jón snikkari Þorkelsson
Clemens og Ingibjörg Jónsdóttir
frá Elliðavatni. Hún fluttist til
Chicago í Bandaríkjunum árið
1885 með3sonu þeirra hjóna; Jón,
Þorkel og Pál, og settist að hjá
manni sfnum, sem var kominn
þangað ári áður. Jón yngri vann
þar í borginni við skrifstofu og
búðarstörf þar til hann tók að
stunda nám við Chicago Lútheran
Seminary, veturinn 1892— ’93.
Hann stundaði nám á vetrum og
vann á sumrum fyrir námskostn-
aði. Sumarið 1895 þjónaði hann
ensk-lúterskum söfnuði f Chicago,
sem hann að mestu stofnaði sjálf-
ur. Næsta vetur tók hann köllun
fsl. safnaðarins f Argylebygð f Ma-
nitoba og tók þá prestvígslu á
kyrkjuþingi það ár. Þar þjónaði
hann þar til 1901, að hann fluttist
til Chicago og stundaði háskóla-
nám og útskrifaðist þaðan 30.
Aprfl með Baccalaurens Divinita-
tes nafnbót. Var hann sá annar
Islendingur er það st’g heflr tekið
við Chicago-skólann, Skömmu
sfðar tók hann köllun frá söfnuði í
Ellisworth og Fall River bæjun-
um f Wisconsin ríkinu og þjónar
þeim að þessum tfma. En fengið
hefir hann köllun frá enskum söfn-
uði f LaCrosse í Wisc. og hygst að
flytja þangað á næsta ári. Séra
Jón er þess gott dæmi, hve nám-
fúsir og ástundunarsamir gáfu-
piltar geta haft sfg til menta og
metorða í landi þessu. Hann var
innan fermingar, er hann kom til
Ameríku og er enn kornungur
maður. En strax á barnsaldri
hneigðist hann að kyrkjulegri
starfsemi og varði til hennar öll-
um stundnm, er hann mátti missa
frá vinnu og nómi. Hann kendi á
sunnudagsskóla skömmu eftir ferm
ingu og varð brátt kjörinn aðalum-
sjónarmaður fyrir Luthers League
kenslufélagið f Chicago, Séra
Jón er ákveðinn bindindismaður,
og ötull félagsmaður í hvfvetna.
Hann er giftur ungfrú Hanna
Maria Pfeiffer, frá bænum Red
Wing, Minn. Þau hjón eiga eina
dóttur.
SÉRA JÓHANN PÉTUR SÓL-
MUNDSSON er fœddur að Hegg-
stöðum í Andak/1 f Borgarfjarðar-
sýslu 28. Sept. 1872. Foreldrar
hans eru þau hjónin Sólmundur
bóndi Sfmonarson og Guðrún
Aradóttir, Jónssonar, frá Kyrkju-
völlum á Akranesi, sem bjuggu f
Hrítárósi og Staðarhóli og sfðast
f Reykjavík. Hann fluttist til
Canada árið 1888 með foreldrum
•fnum og settist að með þeiui í
Nýja-Islandi. A Islandi hafði
hann aflað sér svo mikillar ment-
unar, að hann var kominn gegnuin
2 bekki lærðaskólans í Heykjavfk.
þá 15 ára gamall. Hér vestra hef-
ir hann unnið sig áfram af eigin
ramleik og aflað sér mikillar lær-
dómtþekkingar á mentastofnunum
hör i Winoipeg. Haustið 1899 fór
hann á Unitara prestaskólann f
Meadville í Pennsylvania f Banda
ríkjunum og var þar 3 vetur, til
vorsins 1902, að hann gerðist prest
ur Unitarasafiiaðarins f Winnipeg
og þjónaði honum þar til íJúnf síð-
astl., að hann tók að þjóna Unit-
aras ifnuðum í Nýja-íslandi.
Jóhann er maður sjálfgerður.
Fáir hafa átt við meiri efnaskort
að búa en hann. En einbeitt á-
stundun og ágætar námsgáfur hafa
fleytt honum áfram. Hann er
maður skarpgáfaður, víðlesinn og
fróður, og í fremstu röð íslenzkra
mælskumanna vestan hafs. Hann
er giftur ungfrú Guðrúnu Jónas-
dóttur frá Hegranesi í Skagafirði.
Þau eiga 6 börn.
RÖGNVALDUR PÉTURS-
SON er fæddur þann 14.
Ágúst 1877 að Ri^j f Hegranesi í
Skagafjarðarsýslu. Foreldrar hans
eru þau Pétur sonur Bjöms Jóns-
sonar, bróður Péturs Jónssonar, er
lengi bjó á Hofstöðum, og Ragn-
heiðar Guðmundsdóttur, og Mar-
grét dóttir Filipiu Hannesdóttir
prests Bjarnasonar að Ríp og fyrri
manns hennsr Björns eldra, bróður
Arnljóts prests á Sauðanesi Ólafs
soriar, og Margrétar Snæbjarnar-
dóttir prests á Mfiðruvöllum og
Grímstungum Halldórssonar bysk-
ups á Hólum Brynjólfssonar.
Sumarið 1883 fluttu þau hjón
Pétur og Margrét með böm sfn frá
íslandi alfarin til Bandarfkjanna
og settust aðí íslendingabygðinni í
Norður-Dakota og bygðu skamt
frá Hallson. Þar bjuggu þau þar
til vorið 1899, að þau fluttu alfar-
in úr þeirri bygð, og em nú vestur
í Assiniboia-héraði.
Rögnvaldur byrjaði guðfræðis-
nám haustið 1898 á prestaskóla
Unitara, sem haldinn er f Mead-
ville f [Pennsylvania. Vorið 1902
útskrifaðist hann þaðan sem „Bac-
helor of Diviuity1-. Haustið sama
fór hann til Cambridge, Mass., og
las guðfræði og germanska forn-
fræði - við Haravrd háskólann. í
Jólf þessa árs kom hann vestur
hingað og tók við Unitarakyrkj-
unni hér. Sunnudaginn 2. Ágúst
fór fram innsetning hans inn í
prestsembætti unitarisku kyrkj-
unnar frá hendi séra Magnúsar
J. bkaptasonar, forseta Hins urii-
tariska kyrkjufélags Vestur-íslend-
inga. og F. V, Hawleys umboðs-
manns ameriskra Unitara.
Rögnvaldur er kvæntur og
heitir kona hans Hólmfríður, dótt-
ir Jónasar Kristjánssonar og Guð-
rúnar Þorsteinsdóttir frá Hraun-
koti í Suður-Þingeyjarsýslu.
PRENTl ILLUR f þessu blaði:
1. í kvæöinu „Sigurbj. Jóhannsson11 4.
dálki 7. línu: nafniBþínn,les: nafnió þitt o. s.
frv.
2. í kvæðinu ..Sólarcyj an“, 6. dálki,
15. llnu er Sólereyjan, les: Sólareyjan o. s. frv.
3. 1 kvæóinu „Vornætur", 1. erindi, sló-
ustu hendingu orðió fliótleKa, les: fljótleKa.
öóru erindi 4. hend : [>ar, les: |>vf. Fjóróa er-
indi 1. hehd. vautar r. Fimta erindi 6. hend.
vantar ?.
í kvæðinu „Prumuskúr", 3. erindi, and-
streymi, les: andstreymió.
Guðmundur Johnson að North
West Hall hefir uppgötvað að önn-
ur jól koma ekki fyrr en 25. Des,
1904—í heila 12 mánuði,— þess
vegna hefir hann ásett sér að selja
alt sitt jólaskraut með miklum af-
slætti frá þessum tíma til n/árs.
Konur þær sem gengust fyrir
fjársöfnun til sjúkrahússins, af
hentu hospitalinu $154.20 frá Is-
lendingum á mánudaginn var.—
Hafið þökk fyrir handtakið.
Fariö ííöa skriflö til _____
ODDSÓN, HANSSON & VOPNI,
viövfkjandi landkaupum, landsölu, peninRalán-
um, vátrygKÍng o. fl. —55 Ttribune Illdg..
WINNIPEG, MAN.
Jólatrés samkoman í Unitara-
kyrkjunni byrjar kl, 7.30 e. h. á
aðfangadagskveldið. Á jóladaginn
verður messað í kyrkjunni kl 2 e h,