Heimskringla - 14.04.1904, Síða 1
XVIII. ÁR. WINNIPEG, MANITOBA 14. APRlL 1904. Nr. 27
BAKER BLOCK.
408 MAIN STREET.
Priöju dyr fyrir sunhan Bannatyne Ave., vest-
anveröu á Aöalstrœtinu.
Það er eins áríðandi fyrir fjöl-
skylduföðurinn að sjá fjölskyldu
sinni fyrir góðu heimili,' eins og
góðum klæðum. Við bjóðum eft-
irfylgjandi fasteignir með svo góð-
um kjörum að allir geta keypt.
McMicken Street hús og 2 lóðir,
66 fet, fyrir $1000. Hús og lóð á
Victor Street meðplöntuðum trjám
$750. Nýtt hús á Arlington Street
fyrir norðan Wellington $1200.
Við höfum nokkuð óselt af bæj-
arlóðum á Beaverley og Simco
strætum. Verð #0 og SIO fetið.
William Ave. fyrir vestan Nena
49J fet $725. ‘
William Ave. fyrir vestan Te-
cumseh 25fet $300.
Peningalán afgreidd mjög fljót-
lega.
Eggertsson & Bildfell.
468 MAIN STREET.
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
STRÍÐSFRÉTTIR.
Nýja tilranu gerðu Japar til
að vinna Port Arthur um mánaða-
mótin, en tókst úkki, Sagt að
þeir hafi orðið fyrir miklu mann-
falli f bardaganum við Ching Ju,
en engar áreiðanlegar fréttir fast
um p>að, Aftur unnu þeir sigur á
600 Rússum við Yalu-ána þann
2. þ. m., og er nú lier Þeirra um
50 þús. manna, komnir til Wiju.
Búist er við að mikill bardagi
verði háður f Ping Yung héraðinu.
En Rússar færa sig stöðugt undan
norður á bóginn og p>ví als óvfst
hvar þeir kjósa að veita viðnám.
Sa.gt er að hestar Japana séu því
nær ónýtir til hernaðar og svo illa
tamdir, að ]>að verði að teyma ]>á
Fréttir frá Rómaborg telja vfst að
að ófriður þessi verði langdrægur,
og að f>að sé markmið Rússa að
fara að óllu hæglega, enda séu þeir
nú að búa sigundir 5 ára strfð við
.Japana.—7. þ. m. kom sú frétt að
Japar hafi skift sjóflota sínum f 7
deildir, sem séu á reiki um hafið
að leita rússneskra her- eða flutn-
ingsskipa og hremma þau. Einn-
ig er sagt að ]>eir passi svo upp á
Port Arthur, að engin matvæli eða
annar farangur komist þangað.—
Nýlega náðu -Japar 70 Rússum og
tóku þá fauga eftir harðan slag.
Herdeildir Rússa flýðu, en Japar
sættu sig við þá 70 menn er þeir
náðu.
Umtal mikið hefirorðið f Eng-
landi út af ]>vf að prestur einn p>ar,
séra Hensley Henson heflr ritað
langa grein í blaðið Contemporary
Review um bibliu framtfðarinnar.
Fer hann hörðum orðum um nú-
tfma ritninguna, 8egir ’nana vera
fulla af öfgum, heimskulegum
hugsjónum og lygum. og svo sið-
spillandi séu margir kaflar f gamla
testamentinu, að hún sé ekki liæf
til lestnrs í húsum siðaðra og upp
lýstra manna. Prestur þessi
kveðst við þvf búinn að verja skoð-
skoðun stna og staðhæfingar f
þessu efni.
Bæjarlögmaðurinn og bæjar-
gjaldkerinn f Calgary liai'a báðir
sagt af sér embættum vegna ólög-
legra lóðasölu bæjarstjórnarinnar.
Dómarinn kvað 2 bæjarfglltrúana
verða að yfirgofa stöðu sína f stjórn
fmd og er alt í mesta ólagi þar út
af pæssari svikasiilu, sem dómarinn
ónýtti.
íbúatala Bandarfkjanna er nú
talin 80 millíónir.
Ross-stjórnin hefir borið fram
frumvarp til laga í Ontario-J>ing-
inu um að skatta járnbrautir. 8á
skattur skal nema $30 á h verja
mílu, þar sem spor ereinfalt og
$10 fyrir hverja aukamflu þar sem
spor er tvöfalt. Þetta gildir f lög-
giltum sveitum, en í ólöggiltum
héruðum er skatturinn $20 á mílu
fyrir eitt spor og $5 fyrir hverja
mfln af aukasporum. Skatturinn
greiðist árlega f fylkisstjóð.
Panamaskurðar-sanmingarnir
eiga bráðlega að undirritast f Par-
is á Frakklandi. Með þeirri undir
ritun fá Bandaríkin fullan eignar-
rétt á Panamaskurðinum og öllu
honum tilheyrandi. En Frakkar
afsala sér öllum rétti sfnum til
þessara eigna.
Frétt frá Paris segir að samn-
ingar séu langt til fullgerðir milli
Frakka og Breta að Nýfundnaland
muni bráðlega ganga í canadiska
sambandið sem sérstakt fylki.
Frakkar afsahi s<'r öllum yfirráð-
um þar á eynni gegn vissym hlunn
ipdflm, sem Bretar veita þeim á
Indlandi,
Isaac Nebcnzahl f New York
strauk ]>aðan nýlega með $20,000.
Lögreglan lét þegar elta hann,
fyrst til Vfnarborgar f Austurrfki
og þaðan til Munich,, svo til Ber-
línar, svo til Parfsar. Þar var hann
tekin og átti ]>á að eins eftir $80
af f>ýflnu, Hann verður fluttur
til Bandaríkjanna til að taka út
hegnir.gu sfna Þar.
Leiðtegar rússneskh kyrkjunn-
ar í Odessa liafa nýlega látið út-
býta prentaðri áskorun til "allra
þjóðliollra Rússa, að feta nú ræki-
lega í fótspor þeirra, er hófu of-
sóknirnar í Kishineff í fyrra og
drepa nú alla Gyðinga i landinu;
djöfullinn búi f öllum Gyðingum
og það sé viiji keisarans að þeir
séu upprættir úr Rússlandi. Askor-
unin segir Gyðinga drekka blóð
kristinna barna, Þess vegna sé það
skipan keisarans að drepa alla
Gyðinga og guð sé með öllum sem
það geri.
— Hjónaskilnaðarskýrslur, ]>ær
fyrstu á 7 árum eru nýútgefnar í
New York. Þær sýna að á f>essu
tfmabili hafa hjónaskilnaðir farið
árlega f vöxt, frá 16,436 upp í 70
þús. eða meira en fjórfaldast. í
Japan eru taldir 100.000 hjóna-
skilnaðir á ári og er ]>að nálega
eins margt og hjá öllum öðrum
pjóðum samlögðum, en nú eru
Bandarfkjn að feta sig upp að
sama takmarkinu.
Frakkar höfðu á síðastl. ári
21,939 skilnaði. Bretar höfðu
461 algerða hjónaskilnaði á pfðast-
liðnu ári. En f Canada voru 19
skilnaðir á árinu 1902. Canada
stendur þvf vel að víg f saman-
burðinum, en svo segja þeir sem
kunnugir eru, að fleiri skilnaðar-
mál mundu verða hér á ári hverju,
ef skilnaðarli'g ríkisins værn rýmri
en þau nú eru.
Roosevelt forseti hefir látið
þess getið, að hann skoði Elya
Root mesta stjórnskörung Banda-
rtkjanna og að það sö sinn vilji að
hann verði næsti forseti Bandaríkj-
anna.
Mr. Sifton sagði f pinginu
þann 7. p>. m., að 3 per cent rentu-
skuldabréf Canadastjórnar hefðu
selst á peningamarkaðinum fyrir
90 cents hvert,$l yirði.
Lögfræðingur í Calgary og 2
aðrir menn hafa verið handteknir
kœrðir um að vera í vitorði með
þjófl þeim sem fyrir 4 mánuðum
stal $10.000 í peningum frá Hamil
ton bankanum í Winnipeg,
Svo eru snjóskriður nú tfðar f
Klettafjöllunum, að allur lesta-
gangur er úr lagi, en engínn skaði
hefir orðið, svo frétzt hafi.
Það hefir komist upp, að fyr-
verandi borgarstjóri McCandless f
Victoria, B. C.ýhafi selt 40 Kín-
verjum leyfi til að selja livftum
mönnum Whiskey. Hvert leyfi
kostaði $5, en samkýns leyfi til
hvítra manna kostar $300 þar í
borginni. Ströng rannsókn verð-
ur hafin f máli p>essu og málsókn
höfðuð gegn meðlimum fyrri borg-
arstjórnar.
Innflutninga umboðsmönnuip
Canada telst svo til að 100 járn-
brautarlestir Jnirfi til að flytja Það
fólk út úr Bandaríkjunum sem á-
kveðið er að fari Þaðan tilVið taka
sér búlönd í Vestur-Canada á kom-
andi sumri.
Bæjarstjórnin f Winnip >g ætl-.
araðauka 20 lögregluþjónum við
núverandi tölu þeirra f borginni.
Ibúatala borgarinnar er óðum að
fjölga; nú talin að vera nær 80
þús. manna.
Anarkistar reyndu tii að drepa
Spánarkonung á ferð hans í borg-
ina Barcelona þann 6. p>. m. En
sprengikúlan, sem kastað var að
honum, hitti ekki rétta markið.
Hún sprakk sp'ilkorn frá þeini stað
er konungur stóð á, SVO að hann
komst af ómeiddur og alt fylgilið
hans, en 2 bændur Bem stóðu ná-
lægt þar sem kúlan sprakk, biðu
báðir bana af þvf.
Preetur einn, sem unnið hefir
að trúboði f Congo-ríkinu f Suður-
Afríku segir svo látandi voðasögu
af ástandinu þar. Leoi>old Belgfu
konungur hefir 20 ]>ús. þarlenda
hermenn undir stjórn belgiskra
herforingja. Þeir bera allir nútfð-
ar rifla. Þessum mönnum er þrengt
f herþjónustu og svo eru þessir
hálf- og alviltu hermenn notaðir
til þess að kúga landsmenn sfna til
að framselja borgunarlaust mestu
undur af fflabeinum og Indian-
rubber, ]>rátt fyrir ]>að að Belgíu-
konungur er sá mesti fflabeins- og
rubber-kaupmaður, sem til er í
heiminum, ]>á er hann p>ó að
p>röngva landsmönnum þessum til
að láta af hendi aleigu sína f þess-
um vörum. Það fylgja þessum of-
sóknum alskonar hryðjuverk. A-
lilaup eru gerð á varnarlausan
landslýð. Bæir og þorp eru brend
og eydd, tólkið er ýmist drepið eða
borið burtu og selt í ]>rældóm.
Margir þeirra sem drepnir eru af
hermönnum eru etnir af ]>eim.
Þeir karlmenn, sem komast lijá
dauða eða þrælasölu, eru neyddir
til að ganga í herinn. Það má fá
keypta þræla }>ar f landi fyrir $10
til $15. Þegar áhlaup eru gerð á
bæina, þá eru konur og börn líflát-
in og pfnd á alla vegu. Af sumum
eru höggnar hendurnar, og yfir-
hermönnum Belgíukonungs færð-
ar ]>ær til sönnunar um að her-
mennirnir hafi trúlega gengt
skyldu sinni.
Bæjarkosningar f Chicago
fóru fram 5. þ. m. Þar var aðal-
bardaginn um það, livort borgin
ætti að eiga sporbrautir og aðrar
opinberar nauðsynjastofnanir, svo
sem vatn, gas, raflýsinga stofnanir
o. fl, þ. li. Sam]>ykt var með miki
um atkvœðamun að borgin skykli
taka að sér að eignast alt þetta og
stjórna ]>ví á eigin reikning. Til-
skots stefnan var einnig staðfest,
„Inititine and Referendum '.
Sagt er að Duke of Sutlier-
land verði næsti 1 andstjóri f
Canada.
ISLAND.
íslands-blöð: Þjóðviljinn, Fjall-
konan, Frækorn, Ingólfur, Norður-
land, Stefnir, Austri og Reykjavfk,
eru nýkomin hingað vestur.—Ur
þeím eru helztar fréttir þessar;
Damku blaðið „Klokken 12“
hefir gert fyrirspurn hji Marconi
um hvað mikið firðritinn milli ís
lands og Skotlands mundi kosta. og
fengið sem svar: 786,635 krónur,
Það er sem næst $200,000.
Um 20 fríkyrkjnmenn hafa ný-
lega verið reknir úr fríkyrkjusöfn-
uðínum í Reykjavík fyrir það að
borga ekki safuaðargjöld sín í tæka
tfð.
Reykvíkingar virðast nú vera
að vakna til meðvitundar um að
kleyft sé fyrir ,þá að eígnast vatns-
leiðslu handa bænum, Vatnsleiðsla
þar mundi ko3ta alt að 300 þús. kr.
Rentnr og afborgun af þeirri upp-
hæð um 30 þús. kr. á ári. Guðm.
Björnsson hóraðslæknir hefir komist
að þvf, að vatnssókn eins og hún er
nú muni kosta bæjarbúa um 50 þús.
kr. á ári. Vatnsleiðsla í Reykjavfk
mundi þvf, auk als hins góða, sem
hún heíði í för með sér, spara bæn-
um 20 þús. kr. á ári.
—Björu Jónsson, ritstj. Isafoldar
nú heimkominn til Reykjavfkur og
tekinn við ritstjórn að blaði sínu.
Hann heíir náð fullri heilsu eftir að
hafa tvívegís sætt holskurðí erlend-
is.
Jön Heigason, kaupmaður í
Reykjavík, hefir verið dæmdur í 12
mánaða fangelsi tyrir skjalafölsun.
Sömuleiðis hefir Oddur Stígsson ver
ið dæmdur í 12 mánaða betrunar-
hússvinnu fyrir grímdarfulla með
ferð og misþyrmingar á Páli Júlíu3Í
Pálssyni, sem lézt hjá þeim h jónum,
en kona Odds var syknuð.—Af þe3s-
um dómum er það auðsætt að ís-
lenzka réttvísin leggur gersamiega
sömu hegningu við grimdarlegu
barnsmorði eins og við litílfjörlegri
skjalafölsun, og er }>i,síst að undra
þótt hugsnnarháttur þjóðarinnar sé
orðin ærið seyrður og fari dagversn-
andi.
—Látinn er Ástríðar Guðmnnds-
dóttir, kona Gnðm. bóbsala Guð-
mundssonar á Eyrarbakka, 60 ára
gömul; einnig Guðlaug Jónsdóttir,
ekkja Sigurðar Jónssonar sýslu-
manns Snæfellinga, 53 ára.
Brunninn til ösku bærinn Þing-
vellir í Helgafellssveit nálægt Stykk
ishólmi.
Þeir Páll amtmaðnr Briem og
M. J., kaupmaðnr Kristjánsson á
Akureyri er sagt að munu keppa
um þingsæti fyrir Eyjafjarðarsýslu
þar sem fyrv. þingmaður og bæjar-
fóeti Klemens Jónsson er nú orð-
inn landritari og komin til Reykja-
víkur. En svó er mælt að Páli amt-
manni Briem hafi verið boðin banka
stjórastaðan í Reykjavík. Taki hann
því boði, þá er hugsanlegt að hann
sæki ekki um þingmensku, og er þá
M. J. Kristjánsson kaupmaður tal-
inn viss að ná kosningu.
Látnar eru Marfa Thomsen í
Reykjavík og Kristfana systir henn-
ar, báðar ókvæntar og báðar yfir 70
ára gamlar. Hjörleifnr Erlendsson
frá Móakoti á Vatnsleysuströnd-
Rannvejg Sigurðardóttir á Seyðis-
firði eystra, 80 ára gömul, hjá einka-
dóttur sinni frú Wathne; Jón hrepp-
stjó. i Jónsson á Kjarna í Eyjafirði:
Sigurðnr bóndi Jónsson á Minni-
Þverá og Stefán bóndi 4 Minni-
Brekkn og ekkjan Guðrún Nikulás-
dóttir; öll í Eyjafirði.
Útibú á Isafirði ætlar landsbank
inn jað stofna.
Látinn er í Reykjavík Bjöin
Jónsson kennari við lærðaskólann.
Einnig húsfreyja Guðtún Frímanns-
dóttir á Miðhópi í Húnavatnssýslu;
einnig Pétur Björnsson skipstjóri á
Bíldmdal,
PIANOS og ORGANS.
Ilelntxninn & Co. Píiiiiom.-Bell Orgel.
Vér seljum með máDadarafborgunarskilmálum.
J. J. H McLEAN & CO. LTD.
530 MAIN St. WINNIPEG.
NEW YORK LIFE
JOHN A. McCALL, president.
Síðasta skýrsla félagsins sýnir að á árinu 1903 hefir það gefið út
170 þús. lífsábyrgðarskírteini fyrir að upphæð *330. miliónir doll..
Á sama ári borgaði fél. 5,300 dádarkröfur að upphæð yfir 16
miliónir doll., og til lifandi meðlima borgaði það fyrir útborgað-
áarlifsbyrgðir fullar 18 miliónir doll. Sðmuleiðis lánaði félagið
$32 þús. meðlimum út á iifsábyrgðarskírteini þeirra nær því 13
miliónir dol’ars. Einnig hefir félagið skift á mílli meðlima sinna á
Siðastl. ári 5J mlión dsdl., í vexti af ábyrgðum þeirra í því, sem er
$1,250,000 meira en borgaðvar til þeirra á árinu 1902, Lifsábyrgðir
i gildi hafa aukistá síðastl. ári um 191 millionir DollarM.
Allar gildandi lífsábyrgðir við áramótin voru §1,745 milionir
Allar eignir félagsins eru yfir .35«! miilion llollarn.
C. ölaf'son, ,J. W, iHorgan, Manager,
AGENT. GRAIN EXOHANGB BHILDING,
WIlTNriPE Gr.
Lungnabólga hefir gengið i
Reykjavik [og nokkrir hafa dáið úr
hanni.
Þessir hafa sæmdir verið heið-
ursmerki af konungi Dana: Magnús
iandshöiðingi, Jón Magnússon fyrr-
um landritari. Ólatur Halldórssou
skrifstofnstjóri, Ðr. Valtýr Guð-
mundsson, Björn Jónsson ritstjóri,
Klemeus Jóusaou og Hannes Haf
steinn.
Látin 'er á Akureyri Ingibjörg
dóttir Torfa I Ólafsdal. Hún var
kennarivið kvennaskólann á Lauga-
landi og sfðar á Akureyri. Mentnð
kona og vel látin. Banamein tær-
ing.
Eftir Austra.
Seyðisfirði, 6. Marz 1940.
Snjóflóð og vatnsflóð bafa nú
alls fyrir skömmu er þiðna tók,
gert mikinn sknða bæði í Fjörðum
og Héraði.
Á Brekkugerði í Fljótsdal hljóp
SDjóflóð á fjárhús og drápust þar 21
sauður. Snjóflóðið hafði stefnt á
bæjarhúsin, 'en klauf sig á hlöðu er
stóð á túninu beint upp af bænum. Á
Klausturseliá Jökuldal hljóp vatns-
flóð ft fjárhús og drap 30 ær.
Á Fagradal hljóp snjóflóð yfir
Skriðarnar, þar sem Lagarfljótsbrú
artrén liggja. og sópaði 14 stórtrjám
niðnr í árgil. 6 af þeim eru mol-
brotin, en hin lítið sem ekkert
skemd.
Á ReyðarfLrði og Eskifirði urðu
nokkrir skaðar. Þannig kom vatns-
flóð á Lambeyri, þar sem sýslumað-
ur A. V. Tulinius býr. Urðu þar
töluverðar skemdir á heyjum og svo
hljóp vatnið í kjallarann undir íbúð-
arhúsinn og evðilagði þar mikið af
matvælum.
Á Mjóafirði hljóp snjó- og vatns
flóð á hús Berg hvalveiðamanns og
og olli þar miklum skemdum.
Veðrátta hófir að undanförnu
verið mjög blíð og snió tekið upp
9vo að nú mun ví^jast komin góð
jörð.
Fftir Fjallkonunní.
Reykjavík 15. Marz 1904.
Sæmdar og þakklætisvert er
það.sem hoyrst hefir, að verzlunar-
stjóri Brydesverzlunar í Vestmann-
eyjum, Anton Bjarnason, hafi sett
nndir lás og innsiglað öll v’nföng
verzlunarinnar, er hana frétti, að
áfengissðln vœri lokið á Eyrarbakka
og Stokkseyri.
Mannalát. Sigurður Magnússon
oðalsbóndi á Iljartarstöðnm í Eiða-
þinghá. Frú Matthildur Magnús-
dóttir, kona Þorsteins Jónssonar,
læknis í Vestmannaeyjum; audaðist
úr slagi 5. þ.m. Var fædd 6. Jan.
1833. Sögð merkiskona, dugleg,
reglusðm og iyálpfús
Eftir Ingólfi.
Reykjavík Sunnudag. 6. Marz 1904.
Próf. við hafnarhiskóla. Jón
Hjaltalfn Sigurð33son hefur teikið
fyrra hlut, eméættisprófs í læknis-
fræði með hárri I eink.—Pétur Boga-
son ogValdimar Erlindsson hafa tek-
ið „Kantussen”, hinn firri með l.
eink., en s& síðari með annari.
Tíðarfar gott fyrir norðan og
vestan. Snjór lítill en fro3t þó
nokknr, einkun fyrir vestan.
Áfengissala hætti nú við nýárið
á Eirarbakka og stokkseiri, það er
mikið þakkaðdugnaði framkvæmdar
nefndar stórstúkunnar. Við nýár
hætti og annar kaapmaðnrinn á Flat-
eyri vestur að fiytja vin, og veitinga
menn á Húsavík. Er þá engin
opinber víusaii frá Akureyri tii
Seiðistjarðar, en hvert það er að ölln
er sparsmfJ. Skipin geta selt Þann-
ig komst upp ólðgleg v'nsala ft xigli
í haust á Hú3avtk.
Eftir Norðurlandi.
Akurcyri 23. Janúar 1904.
Hr Þórðar Ediionsson, héraðs
læknir í Kjósafhéraði, hefir sagt af
sér erabætti sínu, ætlar að gerast
aðstoðarlæknir hcraðslæknissins í
Rvfk. oghafa aðsetur í Hafnarftrði
samkvæmt fjárveiting sfðasta þiugs.
Verksmiðjan Mjölnirer nú tekin
til starfa í Rvík. Hún á að mylja
grjót og gera alskonar steina úr
steinsteypu. Cufuafl er notað til
að hreyfa vélina, sem mylur grjótið
I sambandi við verksmiðjuna er
rannsóknarstofa, þar sem prófa skal
styrkleika steinsteypunnar og gera
ýmis konar rannsóknir og tilraunir
snertandi þess iðnaðargrein. Hluta-
fclag með 50 kr. hlutum, hefir veríð
stofnað og það tók' við verbsmiðj-
unni af stofnendum nú um nýárið.
j (Meira ft 3. bls )